Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Fjölmiđlar

Fyrirspurn til stjórnar RÚV

author_icon_10670

Er ţetta fréttamađur á Ríkisútvarpinu og stjúpsonur forsćtisráđherrans?
 

Til Stjórnar RÚV

Svanhildur Kaaber, formađur
Margrét Frímannsdóttir, varaformađur
Auđur Finnbogadóttir
Kristín Edwald
Ari Skúlason

Vegna fréttaflutnings RÚV 29.12. 2009

Virđulegi formađur,

Í fréttum Sjónvarps kl. 19.00 ţann 29. desember sl. var birt viđtal (http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497856/2009/12/29/8/) fréttamanns RÚV viđ hjónin Mohammad (Ahmed) Odeh og Rawda (Salim Khalil) Odeh (fćdd al Tamimi) sem voru í heimsókn hjá ćttingjum á Íslandi.

Hjónin fóru mikinn í ţessu stutta viđtali, t.d. töluđu ţau um "dagleg fjöldamorđ (massacre) Ísraela á Palestínumönnum" og sökuđu Abbas leiđtoga Palestínumanna um ađ hafa tekiđ vopn af sonum Palestínumanna ("our sons") og látiđ Ísraelsmenn drepa ţá. Ţau bođuđu reyndar líka nýja Intifödu gegn Abbas.

Hjónin sögđust í viđtalinu búa 20 metra frá ţeim vegg, sem Ísraelsmenn hafa reist, til ađ koma í veg fyrir hryđjuverkaárásir. Ţau hjónin búa í Wadi al-Joz (Valhnetudal), arabísku og circassisku hverfi, sem er rétt norđaustur af gömlu borginni í Jerúsalem. Ţađ er enginn veggur eđa girđing ţar sem ţau búa. Ţess vegna eru ţađ ósannindi ţegar ţú segjast ekki geta heimsótt ćttingja í 20 metra fjarlćgđ.

Ţar ađ auki var ţví haldiđ fram af fréttamanni RÚV/Sjónvarps, ađ einn sonur hjónanna, sem ekki var nefndur á nafn, hefđi veriđ dćmdur í 28 ára fangelsi fyrir ađ hafa tekiđ ţátt í uppreisn Palestínumanna fyrir tćpum 10 árum. Ţađ rétta er, ađ ţessi sonur ţeirra hjóna var dćmdur fyrir ađild ađ hryđjuverkum í Ísrael.

Eftir sat hinn venjulegi Íslendingur, án nokkurs annars en óheflađs áróđurs og lyga. Annađ hvort hafđi fréttamađurinn ekki burđi til ađ sjá ţađ, eđa hann blandar eineygđri pólitískri skođun sjálfs síns í fréttaflutning til Íslensku ţjóđarinnar. Fréttamađur Ríkissjónvarpsins, Gunnar Hrafn Jónsson er međ Moggablogg, ţar sem hann birtir ţessa mynd af PFLP-manni í kynningu á sjálfum sér (http://gunnar-hrafn.blog.is/blog/gunnar-hrafn/about/)

author_icon_10670 

Mig langar ađ biđja Stjórn RÚV um ađ ganga úr skugga um, hvort Fréttastofu Útvarpsins sé kunnugt um ađ umrćdd frétt hennar ţann 29. 12. 2009 sé full af rangfćrslum og ađ Fréttastofan hafi leyft stuđningsfólki öfgastefnu og hryđjuverka ađ fara međ helber ósannindi í ríkisreknum fjölmiđli sem greiddur er af íslenskum skattborgurum. 

Undirritađur hefur ritađ á blogg sitt um frétt ţessa (http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/999161/) og mun birta ţetta bréf á bloggi sínu

Virđingarfyllst,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Danmörku


Heiladabbinn nú kominn í útlendinga

Boyes' tumor
 

Roger nokkur Boyes, blađamađur, sem í mörg á hefur ţjösnast á Ţjóđverjum međ ţví ađ segja ţeim „sannleikann" um sjálfa sig međ hinni heimsfrćgu "jolly good British superiority-minnimáttarkennd", hefur veriđ lagđur inn á sjúkrahús í Reykjavík eftir ađ hafa fengiđ heiftarlegan heiladabba í beinni útsendingu í dag.  

Nýlega gaf Roger Boyes út bók um Ísland međ hjálp íslenskra ástmanna sinna og skuggapenna, ţar sem hann hélt ţví fram ađ á Íslandi hefđi veriđ njósnari, sem vissi allt um hćttuna sem stafađi af Dabbameini íslensku ţjóđarinnar. Í ljós er komiđ ađ ţessi breski spćjari gekk undir heitinu 000, license to lie.  Svona sögur ţykir Íslendingum svo svaka fínar. Njósnari ađ njósna um Ísland, Vá mađur. Sumir kalla Boyes jafnvel frćđimann.

Ţrátt fyrir stóran skammt af ţynningarlyfjum virđist Boyes hafa fengiđ svo gríđarlegan skammt af feitum íslenskum lygasögum, ađ honum var vart hugađ líf um tíma. Egill Helgason reyndi ţá mouth to mouth, eins og hann hafđi gert svo oft áđur, og bjargađi Boyes fyrir horn.

Euromenn, -konur og ađriđ heiladabbsjúklingar flykkjast nú til spítalans ţar sem Boyes liggur í dabbísku sjokki. Ţeir biđja í kór fyrir sínum manni, ţví enginn af ţessu fólki vill viđurkenna nokkra sök í útafkeyrslu sinni. Ţađ var bara Dabbinn, og ekkert annađ en Dabbinn sem olli vandanum og kannski dálítiđ HINir 29 veirustofninn, sem kom í kjölfar Dabbans.

Ţegar Boyes braggast á Grensásdeildinni, og Dabbinn leysist upp, öđlast hann ef til vill nćgilega ţekkingu á Íslendingum til ţess ađ getađ séđ annađ en Dabbann á heilanum á sér. Ţví ţađ er líkt međ skilning Boyes á Íslendingum og Ţýskurum, sem Boyes hefur skrifađ svo mikiđ um. Hann hefur ekki hundsvit á ţeim frekar en fallegum konum.


Víkingar komu viđ á Hawaii á leiđ til Ástralíu

Viking on Lesbos

RÚViđ heldur áfram lélegum vinnubrögđum. Í gćr greindi Rúviđ frá víkingum í Síberíu og ţađ án heimilda. Danska dagblađiđ Berlingske Tidende greindi líka í gćr frá grein eftir rússneskan sagnfrćđing, Svetlönu Wolder, sem búiđ hefur í Danmörku í 14 ár. Sú skrifar harla undarlega grein í tímaritiđ Siden Saxo, ţar sem hún geriđ ţví skóna ađ "víkingar" hafi fariđ langtum austar en hingađ til hefur veriđ taliđ.

RÚV vitnar rangt í heimildir og greinir frá fornleifafundi á eyjunni "Valgatz", sem er skrítiđ ţegar eyjan er kölluđ Vaigatz af Svetlönu Wolder, en er ţekktust undir nafninu Vaygach (Ostrov Vaygach).

Ţegar Svetlana ţessi Wolder er spurđ, hvort ţađ ţurfi endilega ađ vera norrćnir menn sem hafi átt gripi ţá sem fundist hafa í Vaygach og sem hún telur norrćna, upplýsir hún, ađ hún hafi miklu fleiri upplýsingar en hún er međ í grein sinni.

Ó já, var ţađ ekki eins og gamla manninn grunađi. Svetlana Wolder er ein af ţessum merku frćđimönnum sem eru međ miklu fleiri rök heima hjá sér en ţau sem ţeir birta. Slíkir vísindamenn eru ekki hátt skrifađir hjá ţeim fornleifafrćđingi sem ţetta skrifar.

Mér lýst ekki á blikuna. Ćtli Svetlana ţessi viti ađ Samar breiddu út norrćna gripi og gripi međ norrćnum stílbrigđum, ţeir voru góđir smiđir. Samar og ćttingjar ţeirra gćtu auđvitađ hafa selt einhverjum manni víkingarusl, sem sá gaf öđrum, sem síđar geymdi ţađ áđur en barnabarn hans álpađist út eyjuna Vaygach og tíndi ţví.  Hlutir án nokkurs samhengis segja lítiđ eđa ekkert um fólkiđ sem átti ţá.

Djöf... er ég orđinn ţreyttur á endalausu víkingarugli.


KGB´s loverboy nr. 1 er naívisti

Jan Jan Rasputin KGBs greatest love machine

Nú ţegar fram er komiđ, ađ sćnski ”hjartaknúsarinn” og vinstrihetjan Jan Guillou var KGB-njósnari, lýsir hann roggin yfir:  ”Jag var ung og kolossalt naiv”. Vandamáliđ er bara ađ Jan Guillou er enn kolossalt naiv og styđur hryđjuverkasamtök líkt og fjöldi annarra einfeldninga á Vesturlöndum.

Spurningin er, hvort Guillou hafi ekki alltaf veriđ kolossalt naiv? Fólk sem ađhylltist mannfyrirlitningu kommúnismans eru einfeldningar margt sekt um stuđning viđ glćpi. Ţegar ţađ fer ađ lofsyngja terrorista er mađur alvarlega í vafa um geđheilsu ţeirra. Ég biđ ađ heilsa íslenskum góđvinum Jan Guillou. Ţetta er mikill dándipiltur.

Nýr Eyjubloggari: Davíđ Oddsson

DavidOddson

Nú bregđur svo viđ ađ hálfir Bloggheimar eru á flótta undan Davíđ Oddssyni yfir á Eyjuna. Menn bera sig illa og geta ekki skrifađ fyrir leiđa og vindverkjum. Menn sigla loks eintrjáningum og tuđrubátum hégóma síns ađ ströndum Eyjunnar fögru. Sumir vađa í land nćrri dauđa en lífi og eru varla skrifandi eftir róđurinn mikla.

Samtímis virđist Davíđ vera orđinn albloggarinn ţar, og er búinn ađ bumba Agli Helgasyni úr hásćti bloggaranna. Ţađ er vart um ađra menn rćtt ţessa dagana á Eyjunni en hann Davíđ, nema vera kynni um dugleysi Tyrkjabuddu og hinna vitleysingana í Ríkisóstjórninni. Öflugur Bloggari, Davíđ. Kominn á Eyjubloggiđ, án ţess ađ vera ţar.


Davíđ, er algjör arabi á vaktinni?

david_oddson

Hr. Davíđ Oddsson ritstjóri. Snemma í morgun var sett frétt á mbl.is. Hún hljóđađi svo í einfaldleika sínum:

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sem ítrekađ hefur lýst andúđ sinni á gyđingum og Ísrael og sagt helför gyđinga vera lygi, virđist sjálfur vera af gyđingaćttum. Ţetta fullyrđir breska blađiđ Daily Telegraph.

Svo var henni breytt međan ađ ég skrifađi ţetta og hún öll aukin.

Í upphaflegu fréttinni var enginn tengill viđ frétt Daily Telegraph. Svo var settur tengill í afar vafasama frétt Daily Telegraph ţar sem Ahmadinejad var venslađur viđ gyđinga. Slíkar sögur hafa flakkađ um Miđausturlönd í nokkur ár. Menn kalla hann líka Tyrkja og ađrir segja ađ hann sé af armenskum ćttum. Gott ef ekki hefur veriđ haldiđ fram, ađ hann sé Dani. Ekki var blađamađur Moggans ađ hafa fyrir ţví ađ tengja í ţessa frétt.

Fréttin í Daily Telegraph er annađ hvort, tilraun til ađ vera fyndinn, eđa gyđingahatur. Hún er full af rangfćrslum og mćli ég međ ţví ađ menn lesi ţetta: http://tracingthetribe.blogspot.com/2009/01/iran-jewish-genealogists-at-work.html

Var mađurinn á myndinni hér ađ ofan ekki sagđur vera af negrum kominn - og ţađ er ţó ekki ljótum ađ líkjast - og ekki skýtur hann yfir markiđ. Ţađ gerir www.mbl.is hins vegar nokkuđ oft. Menn ćttu ađ sjá sóma sinna ađ vera ekki ađ lepja furđufréttir af breskum fjölmiđlum nú á hinum síđustu og verstu tímum.

Ég tek ţađ fram vegna fyrirsagnar ţeirrar sem ég slengi hér út međ ţessu morgunbloggi, ađ arabi var skammaryrđi í minni barnćsku í Reykjavík. Menn töluđu um "algjöra araba". Svo ekkert píp frá pólítískt rétthugsandi vćlukjóum og grátkerlingum, takk.


mbl.is Ahmadinejad af gyđingaćttum?
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

RÚV eyđileggur fréttirnar

Tape-Spaghetti

og viđurkennir ţađ fúslega. Fréttatími RÚV frá byrjun kreppunnar hefur veriđ eyđilagđur, en menn náđu mynd af Davíđ á rauđu ljósi, ţar sem hann vinkar og hagrćđir krullunum. Mikiđ var ţađ nú frábćrt.

Ađ RÚV skrumskćli fréttir, eru ekki nýjar fréttir. En nú er RÚV líka fariđ ađ eyđileggja fréttir.

Eru myndir af Davíđ ađ strjúka háriđ merki um kreppu? Ég hefđi frekar haldiđ, ađ ef ađ hann hefđi borađ í nefiđ, hefđi ţađ veriđ ástćđa til ađvstaldra viđ. Hor er fylgifiskur kreppu.

Er Ţórdís Arnljótsdóttir fréttamađur? Ég leyfi mér ađ draga ţađ í efa eftir ađ hafa séđ ţessa "fréttaskýringu" hennar í sjónvarpsfréttum kl. 19. í gćr.

Getur RÚV upplýst hvađ var í ţessum eyđilagđa fréttatíma, og hvađ margir ađrir fréttatímar hafa eyđilagst hjá stofnuninni frá t.d. aldamótum?

Nú tel ég víst ađ réttur dagsins í Efstaleiti verđi : Kreppufréttir međ rauđri sósu.


Ísland afgreitt Down Under

Ísland er svo púkó

Ekki af ruglađri yfirborđskerlingu frá 60 Mínútum í Ástralíu, heldur af ţví "mannavali" sem hún talađi viđ: Víkingar sem spóluđu í moldarflagi, miss Iceland sem ćtlađi ađ fara ađ borđa ţang, og annar leikaraskapur. Ađalhetjan, Steini staur, var greinilega enn svekktur yfir ţví ađ hann fékk aldrei bođsmiđa á Elton John í afmćli eins svindlaranna. Mikiđ hefur Steina nú hrakađ síđan ţetta var tekiđ upp.

Menn verđa vara sig á ţví hvađ ţeir segja viđ útlendinga um landiđ sitt. Hvađ ćtli afkomendur afbrotamanna í Ástralíu haldi?

Var ţetta ekki annars tekiđ upp fyrr í ár, um leiđ og ástralskur fjárglćframađur reyndi ađ kaupa hér billegt á brunaútsölu Moggans?


RÚV á bágt. Erindi beint til gráa Boga.

Argentina

Eins og ég skrifađi í gćr á fréttastofa RÚV stundum bágt. Geta fréttamenn Sjónvarpsins ekki sagt alla söguna, ţannig ađ ađalatriđin eru međ?

Í gćr var greint frá ţví ađ Amadínijad í Íran ćtlar sér ađ setja Ahmad Vahidi í embćtti ráđherra. Greint var frá ţví, ađ mađur ţessi er eftirlýstur hryđjuverkamađur, sem stóđ á bak viđ sprengjuárásir í Argentínu. Sjá fréttina hér.

En af hverju Argentína?, hljóta einhverjir ađ spyrja. Hvađ hefur Argentína nokkru sinni gert Íran? Af hverju eru menn ađ hatast út í í Argentínu?

Fréttasnápar og -snípur RÚV, hér er upplýsing handa ykkur, sem ţiđ mćttuđ tattúera á handlegginn: Ţađ eru gyđingar Argentínu sem ráđist var á í Argentínu. Írönsk yfirvöld og öfgamúslímar um allan heim drepa gyđinga, eđa hóta ađ gera ţađ. En ţađ telst til aukaatriđa á Ríkisútvarpinu, ţví ţar taka menn sífellt ţátt í sögufölsun og fréttafölsun, ţegar kemur ađ ofsóknum á hendur gyđingum.

18. júlí 1994 sprakk sprengja í félagsheimili gyđinga Asociación Mutual Israelita Argentina (AIMA) í Buenos Aires, 87 voru drepnir, ekki bara gyđingar. Um 100 manns slösuđust alvarlega.  

Hvađ hefđi tekiđ langan tíma ađ lesa ţetta fyrir fréttaţulinn? 5-6 sekúndur? Í dag var hins vegar frétt í hádegisfréttum útvarpsins, ţar sem sagt var frá presti í Noregi sem sussađi á fólk.

RÚV og fréttastjóranum Boga, finnst merkilegra ađ segja frá ţví ađ kona sem pökkuđ er í svartar gardínur sé orđin ráđherra í morđveldinu Íran. Ţađ er svona álíka og ţegar Jóhanna varđ ráđherra á Íslandi. Ţađ var svart og ţađ var ekki til bóta.

Mynd handa RÚV
Snertiđ myndina til ađ sjá hana stćrri.
Ţarna sjáiđ ţiđ argentínsk fórnarlömb hryđjuverka múslíma.

Gyđingabörnin í lestinni

  kinder_transport

RÚV á stundum bágt. Fréttaflutningurinn er yfirborđskenndur. Í sjónvarpsfréttum í gćr sagđi frá ţví ađ fólk, sem hafđi veriđ börn fyrir stríđ, minntist nú björgunar sinnar frá Tékklandi fyrir 70 árum, međ ţví ađ ferđast međ lest sömu leiđ og ţá.

Ţađ var ekki fyrr en í miđri frétt ađ sagt var ađ börnin hefđu flest veriđ gyđingar. Slíkir björgunarflutningar, Kindertransporte, höfđu reyndar fariđ fram frá Ţýskalandi áđur, en Winton tókst ađ hjálpa börnum frá Tékkóslóvakíu. Margir gyđingar og gyđingasamtök börđust fyrir ţví ađ koma börnum og unglingum úr landi, til Palestínu eđa annarra landa, burt frá brjálćđingnum Hitler og öllum fylgifiskunum hans. Í Danmörku, Svíţjóđ og Hollandi voru t.d. sumarbúđir fyrir ţýsk gyđingabörn frá 1935, sem rekin voru af ... gyđingum.

Einnig gleymdist ađ segja frá ţví í fréttum í gćr, ađ bjargvćttur barnanna í Prag, Nicholas Winton, er sjálfur gyđingur. Fjölskylda hans kom frá Ţýskalandi tveimur árum áđur en hann fćddist og ćttin hét í raun Wertheimer.

Ţess ber ađ geta, ađ hin fína frćndţjóđ okkar, Svíar, áttu möguleika á ţví ađ bjarga 20.000 gyđingabörnum frá stríđshrjáđri Evrópu áriđ 1943. Ţeir ákváđu ađ gera ţađ ekki.

kindertransporte_bobby

Ţađ var ekki mikiđ samúđ í ţessum björgunum. Börnin frá Prag komust ekki til Lundúna, nema vegna ţess ađ ţađ tókst ađ finna fólk sem var viljugt ađ bera allan kostnađ af dvöl ţeirra. Svíum fannst t.d. of dýrt ađ borga undir 20.000 gyđingabörn. En ţeir seldu járn til Ţjóđverja.

Ţađ hefđu getađ veriđ miklu fleiri gyđingabörn í lestum og skipum á leiđinni í frelsiđ áriđ 1939. En ţađ var nú einu sinni svo, ađ ţađ voru fyrst og fremst gyđingar sjálfir sem báru ţungan af ţví ađ hjálpa sinni ţjóđ. Ađrir vildu fá borgađ fyrir ţađ.

Ég sá um daginn viđtal viđ konu, sem fćddist i Teplice, sem var send sem barn til Bretlandseyja. Fyrir rúmu ári hélt önnur kona frá Teplice, sem ekki er gyđingur, myndlistasýningu á Íslandi. Ćtli foreldrar hennar hafi hjálpađ gyđingabörnum áriđ 1939?


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband