Færsluflokkur: Fjölmiðlar
20.8.2009 | 04:06
Lögmaður Írana lögsækir Íslendinga
"Certain claims have been filed". Það var nú harla fyndið að heyra þennan spænskættaða lögfræðingsskratta sem Sjónvarpið var að flagga í fyrrakvöld.
Ekki var þetta nú sannfærandi ræða hjá Joseph Tirado, sem einnig er ráðgjafi Írana í innheimtumálum. Já, maður sem þjónustar fyrir ógnarstjórnina í Teheran, er nú að þjónusta þá aurasálir sem ætla að sjúga blóðið úr íslensku þjóðinni fyrir erlenda banka vegna þeirra glæpa sem íslenskir kollegar þeirra frömdu í spilltu umhverfi alþjóðalegrar aurahyggju.
Joseph Tirado, þessi "Manuel" hjá Norton Rose, talaði um sameiginleg málaferli "40, 50, 60 banka" sem hugsast gæti að vildu sameiginlega höfða mál gegn Íslandi við íslenska dómsstóla. Hvaða Íslenskir lögmenn ætla að aðstoða þessa menn? Það verða örugglega einhverjir gráðugir skrattar til í það.
Svo var einnig í fréttinni kynntur til sögunnar einhver Svíaómynd, sem er meðeigndi Norton Rose, og fullvissaði hann að ekki væri verið að reyna að hnésetja Íslendinga.
Er RÚV vettvangur fyrir ókeypis hótanir lögfræðinga á Bretlandseyjum? Borgar Norton Rose fyrir þessar auglýsingar sínar? Er ríkisstjórnin kannski að fara að koma því inn hjá þjóðinni, að ef við greiðum Icesave, þá losnum við við þessar innheimtur?
Hvað eru þessir lagasnápar hjá Norton Rose og fyrirtæki þeirra annars að gera en að mata krókinn, að sjúga síðasta dropann?
En við þessu var að búast. Myndu Íslendingar sætta sig við að missa peninga í öðrum löndum?
Íslendingar geta aldrei staðið við ICESAVE-ánauðina með þessi boðuðu málaferli á herðunum.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 07:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2009 | 08:15
Þjóðnýtingin á Kjarval
Ég gaf mér loks tíma um daginn til að lesa blogg Ingimundar Kjarvals. Í dag er hann með færslu sem allir verða að lesa og sjá.
Mikið ósköp finn ég til með Ingimundi. Hann er fórnarlamb dómskerfis sem er álíka rotið og sá klíkuskapur og hyskisháttur sem setti íslensku þjóðina á hausinn.
Stundum held ég að eftir 1944 hafi Íslandi verið stjórnað af eintómu snobbuðu og gráðugu glæpahyski.
Íslenskir dómstólar eru greinilega ekki upp á marga fiska. Það er tilfinningin sem maður situr eftir með, þegar maður hefur séð hvernig íslenskir dómstólar umgangast skjöl og heimildir í málinu um arfleifð Kjarvals.
Hvenær ætli þetta skyldleikaræktaða kerfi hafi breyst, og hverning á það að geta dæmt þá sem settu Ísland á hausinn? Er þjóðin ekki farin að sjá að ekkert mun gerast, nema að róttækar breytingar verði á?
Ég er sammála Ingimundi Kjarval. Reykjavíkurborg á ekki verk Kjarvals fyrir fimm aura. Þeim var stolið.
Kjarvalsstöðum ætti sem fyrst að breyta í safn um það hvernig Íslendingar voru dregnir á asnaeyrum, í mónument yfir nepótisma græðginnar og smeðjulegs snobbs sem tröllriðið hefur Íslandi.
Ætli Guðmundi Andra Thorssyni, sem hér horfir á meistara Kjarval undrunaraugum, hugnist að verk Thors Vilhjálmssonar verði þjóðnýtt?
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2009 | 00:14
Al-Dura leikþættinum er lokið
Einn helsti píslavottur Palestínumanna er Mohammad al-Dura, drengurinn sem sagður er hafa verið myrtur af Ísraelskum hermönnum árið 2000.
Sjónvarpsstöðin France 2 sýndi upphaflega sundurklippta upptöku sína frá meintum dauðdaga drengsins. Dauði hans var sagður hafa orðið er hann og faðir hans lentu í skothríð á milli Ísraela og Hamas-liða við landamæri Gaza.
Síðan þá hafa margir haldið því fram, að mynd France 2 hafi verið klippt þannig að halda mætti að drengurinn hafi látist. Aðrir hafa sýnt fram á að ekki sé hægt að sýna fram á að drengurinn hafi í raun dáið. Enn aðrir hafa sýnt fram á að drengurinn hefði ekki getað verið skotinn af ísraelskum hermönnum, heldur aðeins af Palestínumönnum.
Hér er hægt að lesa um málið.
En nú hefur ARD sjónvarpsstöðin þýska gert enn eina rannsókn, sem sýnir að frétt fransk-ísraelska sjónvarpsmannsins Charles Enderlins, hafi verið svindl og prettir frá upphafi. Áður hafði verið sýnt fram á að fráklippur sem Enderlins sagði sýna dauðateygjur drengsins sýndu ekki dauða hans. Þvert á móti. Mælingar á myndum af drengnum sem sést í skotárásinni hafa verið bornar saman við mynd af andliti drengsins sem sýndur var fréttamönnum í líkhúsi og því haldið fram að væri Muhammad al-Durra. Sérfræðingar sem ARD hefur leitað til segja að ekki um sama dreng að ræða.
Kvikmyndin var sýnd 4. mars sl. á ARD. Ætli RÚV þori að sýna þessa heimildamynd?
Hér er það helsta sem fram kemur fram í myndinni:
Thanks to a biometric analysis of the faces, it has been proven that the boy who was filmed by France 2 is not the boy presented at the Gaza morgue and buried later. The eyebrows and the lips are very different.
The German TV used the lip-reading technique to read the father's lips. They discovered that Jamal al Dura gave instructions to the people who were behind France 2's cameraman during the filming of the scene.
The boy filmed by France 2 moves a red piece of cloth down his body for no specific reason.
In France 2's news report, there is no blood - neither on Mohammed nor on Jamal al Dura's body, whereas the two were supposed to have received 15 bullets all together.
The boy shown at the funeral as Mohammed al Dura arrived at the hospital before 10am, whereas France 2's news report was filmed after 2:30pm.
Úti er ævintýri. En lygin mun örugglega lifa áfram og verða notuð til að deyða fólk og sannleikann.
Ég treysti ekki Boga Ágústsyni og RÚV, svo hér getið þið horft á heimildamyndina í fimm hlutum:
1. hluti:
2. hluti http://www.youtube.com/watch?v=rs8mhfSWmbc&feature=related
3. hluti http://www.youtube.com/watch?v=BoJeHz2QHtE&feature=related
4. hluti http://www.youtube.com/watch?v=kuo_SOKhxEw&feature=related
5. hluti http://www.youtube.com/watch?v=Ds0XEoMh4mM&feature=related
Hér einnig eldri analýsa: http://www.youtube.com/watch?v=DzsCBFhCsyY&feature=related
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.3.2009 | 22:08
Harmleikur í Borgarleikhúsinu og á RÚV
Nú flytur Borgarleikhúsið leiksýningu um Rachel Corrie, sem lést af slysförum þegar hún tók þátt í aðgerðum á Gaza árið 2003. Rachel Corrie var ekki friðargæsluliði eins og haldið hefur verið fram á RÚV og í tengslum við auglýsingar á leiksýningunni í fjölmiðlum. Hún var liðsmaður í samtökum, sem hafði og hefur einhliða skoðun á málefnum Miðausturlanda. Það er ekki gott veganesti fyrir friðargæsluliða á þeim slóðum. Í augum Rachel Corries var Ísrael skúrkurinn og Hamas sakleysið uppmálað.
Fréttastofa RÚV birtir fréttir af þessari leiksýningu og Bogi Ágústsson var á Morgunvaktinni, með yfirborðskenndar upplýsingar um örlög Corries. Einnig var sýnt frá leiksýningunni í sjónvarpsfréttum kvöldsins. Því miður er áróðurinn einhliða og sannleikanum ábótavant í þessum umfjöllunum ríkisfjölmiðilsins á Íslandi.
Þegar stuðningshópur sá sem Corrie tilheyrði, og aðrir fréttamiðlar Hamas greindu frá því sem gerðist árið 2003, fór fram fólskuleg fréttafölskum. Myndum og kvikmyndum af atburðinum var breytt. Myndir teknar að morgni vour birtar og því haldið fram að þær væru teknar síðla dags. Dauði Corrie varð að leikatriði í svikamyllu fréttafölsunar Palestínumanna. Þetta er hægt að lesa um víða á netinu.
Rachel Corrie var ekki myrt af Ísraelsher, hún lést af slysförum í tengslum við blinda og einhliða baráttu sína fyrir Palestínumenn. Samtök þau sem Rachel Corrie barðist fyrir er einum um að kenna hvernig fór.
Leitt er að sjá að Fréttastofa RÚV hafi ekki gert málinu betri skil í gær og dag. Menn hefðu t.d. getað haft samband við Ísraelsk stjórnvöld og samtök til að heyra þeirra skoðun á slysinu og á þeirri rannsókn sem fór fram og sem t.d. er lýst hér eða hér. Svo birtist þessi grein í dag, þar sem hægt er að lesa yfirlit yfir allt ósamræmið í sögunni um Rachel Corrie.
Bogi Ágústsson, hvar eru siðareglur þínar og starfsmanna þinna? Af hverju leitar þú og þeir ekki allra fáanlegra upplýsinga um þetta mál? Nóg er til af þeim - ef maður vill finna þær. Fer kannski fram vísvitandi sniðganga og ritskoðun hjá RÚV? Vandamálið meðal starfsmanna Boga Ágústssonar er þó frekast, að þeir hafa ekki áhuga á sannleikanum þegar fréttir varða Ísrael á annað borð. Það hefur sagan sýnt okkur.
En sorglegast er þó að sjá, að Borgarleikhúsið sé gert að vettvangi fyrir leikrit sem byggir á lofsöng á hatri og ofstopa. Leiklistagyðjunni hefur enn einu sinni verið nauðgað. Það er líka harmleikur. Þó Rachel Corrie hafi verið tekin í dýrlinga tölu meðal þeirra sem telja sig eiga einkarétt á réttlætinu og sé nú píslavottur Hamas, þá var hún því miður enginn friðarengill.
Fjölmiðlar | Breytt 24.3.2009 kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.2.2009 | 12:56
Berskjaldaðir Bessastaðir berrassaðir
Menn ættu ekki að láta valdalausan forseta Íslands villa sér sýn. Þeir á Handelsblatt í Þýskalandi eru að minnsta kosti búnir að reikna Ólaf Ragnar út. Helmut Steuer ritstjóri Handelsblatt kemst að þessari niðurstöðu:
Já, hættið að hluta á Ólaf og vonandi getur Ólafur slappað aðeins af. Hann ætti að fara til London og kaupa sér haltukjaftikaramellu í Harrods.
Kannski ætti sú regla að gilda, sem lengi hefur verið nauðsynleg fyrir t.d. fornleifafræðinga sem tjá sig við fjölmiðla: Biðjið um að fréttamaðurinn lesi fyrir ykkur fréttina áður en hún birtist. Fréttamenn eru ekki alltaf greindasta fólk í heimi og eiga það til að leika skáld á kostnað lesendanna.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2009 | 08:13
Hlægilegar áherslur RÚV
Það var vægast sagt fyndið að hlusta á fréttamann RÚV í hádegisfréttum útvarpsins í gær nota heilar 2 mínútur til að greina frá söfnun 3 milljón króna fyrir íbúa Gaza og ½ milljón króna styrkveitingu samgönguráðuneytisins að auki. Hvað eru þrjár og hálf milljón, þegar verkalýðsfélag á Íslandi borgar 6 milljónir kr. bíl undir rassinn á formanni sínum? Ekki er einu sinni hægt að kaupa óvopnaðan jeppa undir mektarmenn á Íslandi fyrir skitnar 3,5 milljónir. Við höfum sem betur fer verið fullvissuð um að Hamas fær ekki þessa peninga.
Sami fréttamaðurinn, sem greindi okkur frá þessum gjöfum til Palestínumanna, sagði landsmönnum nýlega frá því hvernig 42 hefðu verið drepnir í skóla UNRWA á Gaza. Er nema von að nær 70% Íslendinga séu stuðningsmenn Hamas, og aðeins 3% styðji Ísrael í baráttunni gegn útrýmingarherferð Hamas gegn Ísrael? Hamas hefur útrýmingu Ísraelsríkis og gyðinga í stefnuskrá sinni.
Þessi fréttamaður RÚV hefur hins vegar ekki enn notað 30 sekúndur eða svo, til að greina frá því að sú frétt var uppspuni frá rótum, og hvernig hjálpastofnanir SÞ stunda fréttafalsanir. Sjá hér.
Enginn var drepinn í skólanum 6. janúar sl., en hann hefur fyrr verið notaður sem skjól fyrir Hamas-liða sem hafa skotið eldflaugum frá honum. Þetta var allt uppspuni og rugl, sem æsti upp saklaust fólk út um allan heim. Líka á Ísland, þar sem fólk er greinilega fyrr til að rétta út hjálparhönd til hryðjuverkastjórnar á Gaza, en að rétta sínu eigin landi litla fingurinn! Sumir Íslendingar neita meira að segja að gera við reiðhjól gyðinga.
70% þjóðarinnar er jákvæð gagnvart Hamas, þar sem fréttaflutningur er fyrir neðan allar hellur á Íslandi.
Um leið og fréttamaðurinn á RÚV, sem einnig er yfirlýstur skrímslafræðingur, notaði rúmar tvær mínútur af fréttatíma útvarpsins í 3,5 milljón króna hjálp til Gaza, greindi hann ekki frá eldflaugaárásum Palestínumanna á Ísrael í gær og síðustu daga.
Ætlar Össur utanríkisráðherra ekki að fordæma þær árásir, eða verður stefnu Ingibjargar Sólrúnar haldið áfram fram að kosningum? Myndin sýnir uppeldi á Gaza.
Fjölmiðlar | Breytt 3.3.2013 kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 80
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007