Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hirðfífl heimsins

Íslendingur

Það er greinilegt, og verður æ greinilegra, að íslensk yfirvöld og embættismenn, jafn fyrir sem eftir hrunið, voru og eru hópur óhæfra lassaróna, sem vissi lítið nema um ímyndað ágæti sitt. 

Þeir lofsungu spillinguna, sem saklaust fólk þarf nú að súpa seyðið af, og voru álíka sofandi á verðinum og íslensku bankaúlfarnir voru vakandi, þegar þeir rúðu einfalda féð og átu fyrir framan augun á þessum snillingum á Alþingi og ráðuneytunum. Aðalfjárhirðirinn á Bessastöðum var í sæluvímu allan tíman og leitaði leiða með Ingibjörgu Sólrúnu til að Ísland fengi hlutverk á meðal þjóðanna.

Það sem kemur fram í þessari frétt kemur fram í skjölum sem hollenskir sérfræðingar við háskólann í Amsterdam höfðu aðgang að, og sem þeir skrifuðu skýrslu um - skýrslu sem hollenskir vitleysingar sem trúðu á Icesave-reikninga ætla að nota til að fara í mál við Íslendinga - skýrslu sem íslensk yfirvöld voru ekki að hafa fyrir að birta á www.island.is og eða láta þýða fyrir sig sjálfa og  íslensku þjóðina.

Íslendingar eru nú taldir vera ein vitlausasta þjóð á jörðu, gjaldþrota, en samt enn í miðri ofurneyslu. Við erum vitleysingar á ölmusu "góðra manna" úti í heimi, og enn eru stjórnmálamenn og embættisblækur að leita sér að útópíu og hlutverki á meðal þjóðanna. Það hlutverk í heildarmyndinni er nú fundið. Íslendingar eru hirðfífl heimsins. 

Þetta eru eins og óþekk börn í sandkassaleik. Nú halda kratakrakkarnir að þeir geti komið þjóðinni inn í ESB-útópíuna, með því að selja almenning í ánauð með Icesave skuldinni sem kratar skelltu á þjóðina. ESB er enn ein ímyndunin, enn einn flóttinn frá veruleikanum.

Við fyrirgefum þeim ekki, þótt þau hafi ekki vitað hvað þau voru vitlaus.


mbl.is Starfsmenn AGS mótmæltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar niðurstöður

Saman höngum við segir Svavar

Allar niðurstöður eru góðar, þegar maður heyrir ekki gagnrýnina á þær. Til dæmis eru allar niðurstöður kínverskra yfirvalda góðar niðurstöður. Þeir sem segja annað eru skotnir eins og dýr eða stoppaðir upp og nýrun úr þeim seld hæstbjóðanda. Kóreumenn eru allir í fangabúðum meðan stjórnvöldin sýnir guðlega standpínu hins erfðagallaða Kim-ættbálks með flugskeytasýningu á torgi hinnar himnesku undirstöðu. Orðið niðurstaða er einfaldlega bannað í norðurkóreönskum orðabókum. Íranskir klerkar komast aðeins að góðum niðurstöðum, enda allar í nafni Allah. Allah hengir svo alla þá sem efa niðurstöður hans, litla Satans og klerkanna.  

Á Íslandi, á þessum síðustu og verstu tímum, er niðurstaðan í raun ótrúlega góð líka, ef trúa má Svavari Gestssyni, æðstapresti Icesave-kirkjunnar, og sjálfsmenntaðs kórstjóra Íslensu ríkisstjórnarinnar. Á Íslandi er niðurstaðan svo góð, að stjórnvöld ætla að hneppa heila þjóð í þrældóm skulda, sem þorri þjóðarinnar ber enga ábyrgð á. Íslenskum stjórnvöldum er sama þótt þúsundir manna fari á "vergang".   

Aðalmaður Icesave samningarnefndarinnar, sem rekið hefur sunnudagsskóla í Kaupmannahöfn í nokkur ár, lauk samningum sínum við Breta og Hollendinga með því að segja við Moggann að „niðurstöðurnar væru í raun ótrúlega góðar".  Eins og stjórnvöld í ráðstjórnar- og desperadóríkjum, eru trúarbrögðin mikilvæg fyrir Hósíanna-Svavar.  "Við erum í rauninni að bera burt syndir heimsins, eins og sagt var um Jesús Krist" var haft eftir honum.

Ætli sjö skuldlausu árin í Icesave-samningum séu líka tekin út Biblíunni. Já, og dansinn um Gullkálfinn er auðvitað þegar búinn að vera. Er Kópavogur þá Jeríkó? Hvenær kemur syndaflóðið, Svavar? Var veislan í sendiráðinu í Kaupmannahöfn þann 15. júní sl. brúðkaupið i Kaanan? Hvenær fáum við gögn um hana, síra Svavar? Fáum við kannski fjallræðu?

Samkvæmt Icesavetrúboðanum mikla verðum við krossfest. Víst er að Svavar gæti orðið leiður á að hafa hlutina hangandi yfir sér. En vart er hægt að komast hjá því að einhverjir hangi líka, ef ekki eru til nægilega margir krossar. Í Íran eru menn hengdir á knattspyrnuvöllum. Íslendinga væri hægt að hengja í íþróttahúsum.

Mikið er nú gott að íslenska þjóðin er svona upp til hópa falleg og vel menntuð. Það kemur sér einkar vel á þegar allir þurfa að hanga vegna fagnaðarerindis byltingarkennds trúarlosta vinstrimanna á Íslandi.

Lifi Icesaveskuldin, lykillinn að ESB útópíu kratanna, Amen


Alveg brjáluð helgi

ICECOLD 

Það virðist allt vera að fara til fjandans á Íslandi. Sneyptur fjármálaráðherra gerir Icesave deiluna að einhverri sveitastjórnarpólitík, vegna þess að Davíð vaknaði upp frá dauðum eins og draugur með franska skýrslu (Trichet skýrsluna) í höndunum. "Bööh", og Steingrímur J. er alveg í rusli. Enda rík ástæða. Hann og ríkisstjórnin hafa leikið illilega af sér. Upplýsingastreymi eru máttarstoðir nútímalýðræðis. Það þýðir ekkert að leika sér í DDR-sandkassaleik eins og ríkisstjórnin hefur gert hingað til.

Madame Joly vill láta reka Valtý Sigurðsson. Hún er greinilega ekki með nógu skýra starfslýsingu. Það er ríkisstjórnin sem setur Valtý úr embætti  - ekki madame Joly.  Á ekki að gefa Joly áminningu. Er hún ekki ríkisstarfsmaður?

Isesave reikningshafar í Hollandi ætla nú að fara í mál við íslensk yfirvöld, á grundvelli skýrslu sem hollenskir prófessorar hafa skrifað. Ég hef lýst undrun yfir því að skýrsla þessi væri ekki með í upplýsingapakka íslensku ríkisstjórnarinnar.  Ég tel mig hafa rétt fyrir mér um galla hennar. Skýrslan er skaðræðis plagg, en hún hefur ekkert upp á sig ef Trichet skýrslan frá 2000 er lesin. 

Ég sendi Gerhard van Vliet, formanni snuðaðra Hollendinga, Trichet-skýrsluna áðan og vona að hann og félagar hans lögsæki sína eigin ríkisstjórn í staðinn fyrir íslenska ríkið. Ég velti oft fyrir mér hvaða Hollendingar væru svo vitlausir að setja peningana sína í Icesave. Mér sýnist þetta vera „the greedy generation", fólk fætt eftir 1960.  Hollendingar eiga sjálfir banka í fremstu víglínu í heiminum. Hvernig dettur heilvita Hollendingi í hug að hægt sé að ávaxta peninga betur í íslenskum banka en í hinu dyggðuga Hollandi? Ég á ekki gyllini né evru!

Svo kom Lars Christensen, Danske Bank, með hollráð um að við ættum að lýsa yfir þjóðargjaldþroti. Ætli það sé ekki bara besta frétt helgarinnar? Hollráð.

Johan Barnard, samningastjóri Hollenskra yfirvalda, skrifaði mér m.a. í dag: I believe you will understand that I consider the Icesave agreements that are being debated in Althingi to be fair and that I am confident, they will therefore be accepted.

Barnard getur haldið það sem hann vill, en nú eru bæði þúsundir Íslendinga og Hollendinga sem ekki sjá mikla glóru í samkomulaginu.


Lars Christensen har talt

Iceland graf #1

... og han har ret som altid. 

Mennirnir sem við elskuðum að hata hafa talað. Davíð hefur rænt sviðsljósinu í kvöld. En hlustum nú líka á Banka Lása án þess að hata hann og fordæma eins og Davíð gerði.

Lars Christensen hjá Danske Bank, sem allir hötuðu fyrir að segja sannleikann í litríkum skýrslum sínum  hér um árið, þar sem  hann líkti íslenskum efnahag við goshveri.  Hann hafði á réttu að standa. Nú álítur hann réttast að við lýsum yfir þjóðargjaldþroti.

Hvað er hægt að gera annað með ríkisstjórn eins og þá sem nú er við völd, sem vill selja okkur í þrælkun?  

Ráðum Lars Christensen og setjum hann á skrifstofu við hliðina á Joly. Lars Christensen verði þrotabússtjóri Íslands.

Í alvöru talað, Ísland er á kúpunni. Viðurkennum það og byrjum upp á nýtt, án skuldbindinga við skallakomma og upplitaðar kratakerlingablækur með vota ESB-drauma. Höfnum Icesave frumvarpinu með rökhugsun og raunsæi.

Við erum ekki mikilvægari en það, þótt sumir hafi haldið að við hefðum hlutverki að gegna á meðal þjóðanna og værum rétttæk í Öryggisráð SÞ og önnur leiðtogahlutverk. Sjáið hvert sá hybris leiddi okkur.

Lars bendir okkur á Argentínu. Argentínumenn halda tign sinni og dansa enn tangó, þótt allt hafi farið á hausinn. Það getum við líka og sleppt við að verða þrælar. 

Og ef George Brown vill setja okkur á hryðjuverkalistann sinn, sá hlægilegi manngarmur, þá gerir hann það í einu af æðisköstum sínum og við munum hlæja að honum eins og allir hlæja af kækjum hans.

Ísland er gjaldþrota. En enginn er dáinn. Enginn missti lífið í Hollandi né Bretlandseyjum. Sumir þeirra sem komu okkur á hausinn ættu að fá 4000 ára fangelsi ef réttarkerfið væri eins og í BNA. Kæmust út eftir 2000 ár fyrir góða hegðun. Þeir munu borga með því að fá aldrei að koma nálægt viðskiptum aftur.

Tak Lars Christensen, nu er jeg enig med dig! Du er faneme en god ven af Island! Lad os håbe nogen lytter til dig denne gang.

Lars Christensen
Bank Lars

Total Makeover Bitch ræðst á Dorrit í London

Allt á floti hjá tacky Tiggy

Loksins önnur agúrka en bútun Michaels Jacksons eða Iceseve-lygar ríkisstjórnarinnar. Það er einfaldlega ekki á hverjum degi að forsetafrú á Íslandi kemst í heimsfréttirnar. Þessu ber að fagna.

Dorrit, sem ég hélt að væri á Bessastöðum sem stoð og stytta eiginmanns síns sem allir forsmá og ofsækja, á víst líka erfiða daga. Einhver dómadags Makeover bitch, sem býr í næsta stigagangi við Dorritu í London, var með svo lélegar pípur og klóak, að Thames fór að renna yfir til Dorritar. Sú endurgerða, Tiggy Butler, hefur ásakað Dorrit um húsbrot, ósæmilegt orðbragð og meira til.

Samkvæmt fréttum DailyMail er þetta orðið að dómsmáli. En sem betur fór fyrir okkar frú, hefur sú endurgerða, sem er innanhússhönnuður, dregið mikið af ásökunum sínum til baka og hefur þurft að borga Dorrit 80% af skaða þeim sem hlaust af þegar vatnið úr baðinu hennar fór yfir til Dorritar, og eyðilagði íslenska lopann hennar.  

Greinilegt er, ef dæma skal út frá þessu máli, að Dorrit er skapstór, og er það plús fyrst maðurinn hennar er gunga, t.d. enn ekki búinn að blanda sér í og stöðva Icesave-frumvarpið.

Dorrit er þó ekki alveg eins skapstór og Tiggy Butler heldur fram, en Tiggy laug því til dæmis að Dorrit hefði vippað sér yfir 2 metra vegg yfir til sín til að skipta sér að lekanum. Þetta segir Dorrit ómögulega fjarstæðu, þar sem hún var á hækjunni daginn sem þetta átti að hafa gerst. Hún hefur aldrei stokkið hærra en 1,84 síðan á Makkabí leikunum í Herzlia árið 1971. Old Baily trúði heldur ekki á söguna um vegginn og stökkið, þótt alvitað sé að Dorrit geti stokkið upp á nef sér.

Það geta auðvitað allir séð á myndinni hér að ofan, að kerlingin í næsta húsi við Dorrit er algjört bitch, með gervibrjóst og gervibakgrunn. Dorrit var nú líka fljót að taka hana með sniðglímu á lofti fyrir að hafa vætt lopann sinn.  Hún sagði: "Ég þekki ekki Tiggy en ég þekkti áður kærasta hennar Tony Ryan sem er heillandi maður". Þannig skrifar http://www.visir.is/  að minnsta kosti. Tony var kannski heillandi, því hann hefur ekki flogið mikið síðan 2007 er hann fór í hinstu flugferðina - ef þið skiljið hvað ég er að fara.  

Ég segi bara eitt. Það er gott að Dorrit á ekki nágranna á Íslandi. Ég ætla að taka hús á hana síðar í mánuðinum. Ætla að skoða demanta fyrir konuna mína. Já, það eru ekki allir sem voru með Icesave reikning... þótt kúlulánið hafi leikið við marga.


Danskur njósnari á íslensku vegabréfi

Dummy 2

Til er upptaka af viðtali við einn helsta njósnara CIA í Danmörku, Niels Arne Frommelt (1921-2008), sem áhugamaður um sögu hefur tekið upp. Niels Arne Frommelt lýsir því yfir að hann hafi notast við íslenskt vegabréf þegar hann vann fyrir CIA utan Danmerkur. Frommelt hefur sagt frá því að hann hafi við störf sín erlendis, m.a. í Sviss og víðar, gengið fyrir að vera Íslendingur, n.t. íslenskur kaffikaupmaður, Einar Guðmundsson að nafni . Vegabréfið hafði hann fengið frá "Amerikanerne på Island", en á Íslandi hafði Frommelt aldrei verið. CIA keypti svo kaffi á uppsprengdu verði til að halda leynd yfir þessum "kaffikaupmanni" frá Íslandi, sem hafði sérstakt heimilisfang og íbúð í Kaupmannahöfn skráða á "Einar Guðmundsson". 

Heimildamaður minn tjáir mér, að þegar Íslendingar hafi haft samband við eða hitt fyrir "Einar Guðmundsson", hafi Frommelt skýrt algjöra vankunnáttu sína á Íslensku með því að hann hefði flutt ungur til Danmerkur og hefði því aldrei lært íslensku.

CIA notaði "Einar Guðmundsson" þó nokkuð í öðrum löndum en Danmörku, því hann þótti einstakur "hlerari".  Hann mun m.a. hafa hlerað í Genf og Vín, og m.a. sendinefndir Norður-Kóreu. Hann er þó mest frægur fyrir hleranir sínar á samtölum danskra kommúnista.

Þjóðsjalasafn Íslands getur ekki fundið neinn Einar Guðmundsson í Kaupmannahöfn í gögnum varðandi íslensk vegabréf frá tímabilinu 1942-1984, sem passað gæti við Frommelt.

Getur verið að CIA hafi haft aðgang að, eða stolið/falsað íslensk vegabréf fyrir njósnara sína? Íslendingar voru örugglega talin saklaus grey, sem enginn grunaði um græsku fyrr en þeir voru settir á breskan hryðjuverkalista.

Meira um þetta mál síðar.


Í boði ríkisstjórnar alþýðunnar

Klapp Klapp

Í mars  2008 kom Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hér til Hafnar og hélt fund um ágæti íslenskra glæpamannanna sem við eigum nú að borga skuldirnar fyrir að mati sjálfsmorðsríkisstjórnarinnar sem nú stýrir Íslandi. Ingibjörg blessunin mátti  auðvitað vart vera að þessu, því hún var að undirbúa setur Íslands í Öryggisráðu SÞ. En hún hafði Sigga Einars með sér í bandi. Árið 2006 sagði Svavar Gestsson við Danska fjölmiðla:"der er ikke noget grundliggende galt med vores økonomi" og skammaðist yfir greinum í dönskum dagblöðum og áliti danskra efnahagssérfræðing.  Maðurinn sem hafði rangt fyrir sér árið 2006-2008 var látin stýra samningum um Icesave skuldina. Það hlýtur að hafa hvarflað að mönnum að sendiherrann í Kaupmannahöfn gæti líka hafa dæmt rangt og ger mistök í samningaviðræðum sínum árið 2009.

Þessi samningur um Icesave, sem er svo rómaður af flokkum sem telja sig tala máli alþýðufrelsis, var vanhugsaður eins og allt sem vinstri menn á Íslandi virðast gera þessa stundina.  Afarkostir "alþýðustjórnarinnar" í Icesave málinu er ekkert annað versta klámhögg gegn íslenskri alþýðu fyrr og síðar.

Um daginn renndi ég svo augunum yfir þau skjöl sem íslenskum stjórnvöldum þótti vert að sýna almúganum á Fróni. Mér sýndist vanta nokkuð og ritaði því Johan C. Barnard aðstoðaryfirmanni markaðsdeildar viðskiptaráðuneytis  Hollands. Ég hlakka til að fá svar frá hr. Barnard, áður en hann hættir í viðskiptaráðuneytinu. Ég bætti við nokkrum upplýsingum um kollega hans á Íslandi. Ætli Barnard hafi nú ekki menntun eða vit á því sem hann var að semja um? Þarf ekki líka íslenskur samningamaður fyrir stærstu skuld íslenskra glæpamanna sem um getur, að hafa betri menntun, samningavit, sem og laga- og fjármálaþekkingu en t.d. seðlabankastjóri.

 

Johan C. Barnard
Plv. Directeur Financiële Markten,
Ministerie van Financiën
Korte Voorhout 7
2511 CW Gravenhage

 Dear Mr. Barnard,

I am an Icelandic citizen, one of whom the present government in Iceland is trying to make liable for devastating consequences of a financial scam, committed by odd Icelandic "bankers" in the Netherlands and the UK.

Before you leave for your new office at the Ministry of Environment, I would like to know what happened, what was decided upon and receive a referendum/minutes from the meeting you as a representative of the Dutch authorities had with Mr Svavar Gestsson, the Icelandic Ambassador in Denmark and chairman of the Icelandic Negotiation Committee on ICESAVE, which he proposed should be held in his residence in Copenhagen on 15 April 2009.

I also would like to receive the "onderzoeksrapport on ICESAVE written by prof.mr. A.J.C. de Moor - van Vugt en prof.mr. C.E. du Perron of the Centrum voor Financieel Recht van de Faculteit der Rechtsgeleerdheid van de Universiteit van Amsterdam. Is this report available in English and has it been presented to the Icelandic authorities or the Icelandic Negotiation Committee on ICESAVE?

Just for the record. As an Icelandic citizen, who has been made liable for the criminal acts of Icelandic "bankers" in the Netherlands, which were not detected in time by the Dutch Financial Supervisory Authority, I would like to state, that I do not recognize the rights and ability of Mr. Gestsson to negotiate on my behalf. I doubt that the Dutch would allow a man, who never completed law studies at the University [of Iceland], and who otherwise only completed courses at the Parteihochschule Karl Marx, Institut für Ausländerstudium  in Berlin, DDR (1967-8).  Those are actually the only educational credentials of Mr. Gestsson, the man who chaired the Icelandic negotiation committee on ICESAVE and produced the "contract" with the Netherlands and the UK, which I personally believe will be rejected promptly in the Icelandic Parliament and by the Icelandic public.  

Yours Sincerely,

 

IceSave fyrir fólkið

ICESAVE FYRIR FÓLKIÐ


Hollenskur fréttasnákur

cartoon_20081011

Í nokkurn tíma hef ég fylgst með skrifum hollensks fréttasnáps á Ísland, sem m.a. ritar greinar í NRC Handselsblad í Hollandi. Maður þessi heitir Jan Gerritsen og er skráður til heimilis á Íslandi.

Að mínu mati hefur þessi maður ekki það til brunns að bera sem góður blaðamaður ætti að hafa. Greinar hans eru mjög litaðar af ákveðinni pólitík á Íslandi, og stundum hefur hann greinilega ekki skilið það sem hann er að skrifa um.

Mig grunar, að greinar hans gætu hugsanlega verið ein af ástæðunum fyrir neikvæðni þeirri sem sumir Hollendingar bera í garð Íslendinga allra vegna umfjöllunanrinnar um Icesave i Hollandi. Hann fer t.d. með fleipur í grein sinni: Akkoord over schuld Icesave, þar sem skilja mætti að Ísland hafi þegar gengið frá samningum og samþykkt afarkosti Breta og Hollendinga. 

Þegar þessum samningi verður hafnað, hverju lýgur Gerritsen þá í NRC?

Nú síðast sá ég Gerritsen bregða fyrir á heimasíðu Jón Baldvins Hannibalssonar.

Við Jan Gerritsen og aðra Stórhollendinga segi ég bara:

Godverdomme, Nederlanders - Stop het Ijssave in je nauwe gaatje !

Íslendingar eiga ekki að ganga að meingölluðum samningum við Hollendinga, sem skildi nýlendur sínar eftir í betri ásigkomulagi en því sem þeir ætla að skilja Íslendinga eftir í nú.  Hollendingar kröfðu ekki eins mikils af Þjóðverjum eftir síðari Heimsstyrjöld, og sættu sig við að lepja dauðann úr skel meðan að Þjóðverjar fengu Marshall hjálp sem þökk fyrir þjóðarmorðin (sem margir Hollendingar hjálpuðum þeim reyndar dyggilega með).

Íslenskur almenningur ber enga ábyrgð á mistökum hollenskra sparifjáreiganda. Hollendingar treystu (íslenskum) glæpamönnum á alþjóðamarkaði fyrir peningunum sínum. Hollendingar ávöxtuðu ekki peninga sína hjá íslensku þjóðinni, þeir létu glæpamenn fá þá til að ávaxta þá. En Hollendingar verða að eiga það við íslensku glæpamennina. Það er verið að leita þá uppi nú og frægur dómari, madame Eva Joly, hefur verið fengin til þess að vinna í því 4 daga í mánuði.

Icesave svikamyllan er ekki  "kollektief schuld" Íslendinga. Þetta tap gráðugra Hollendinga kemur ekki íslensku þjóðinni við.  Við erum og vorum ekki með evrur á tilboði.

Skrifaðu það og skrifaðu sannleikann, Jan Gerritsen! Mundu hvað Íslendingar gerðu við nafna þinn Jón Gerreksson..... Við getur orðið mjög reið þjóð.


Láttu ekki breyta þér í svín

 

Útrásarsvín

Þú íslenski erkiasni,

láttu ekki breyta þér í svín

eða draga þig á asnaeyrum

af geltandi langhundum Stór-Evrópu.

 

Vertu maður en ekki mús!

Þú ert hvort sem er 

 ekki velkominn í hið evrópska hús.


Hvað er kreppa eiginlega?

 

poland-ghetto-warsaw-5-13148-large
 

Kvikmyndabrot þau sem þið getið séð hér með því að klikka á slóðirnar og svo á píluna í myndarammanum sem birtist, sýna ástandið í gettóinu í Varsjá í maí 1942. Kreppa Íslendinga hefur verið borin saman við ástandið í gettóum Evrópu á íslenskum bloggum og siðmenntað fólk með hærri og hreinni siðferðiskennd en aðrir Íslendingar, (les vinstrimenn), bera gjarnan sjálfskaparvítið á Gaza við gettóin sem nasistar smöluðu gyðingum í.

http://www.bagnowka.com/flv.php?video=warsaw_ghetto_1942

www.bagnowka.com/flv.php?video=warsaw_ghetto_2

http://www.bagnowka.com/flv.php?video=jewish_police

Það sem þið sjáið á þessum myndskeiðum er fólk sem ekkert hafði, og sem ekki gat barist fyrir rétti sínum. Það hafði ekki sjálfstæði eða vopn, engar varnir. Þeim voru allar bjargir bannaðar. Enginn, ekki einu sinni hreinhjartaðir kratar á Íslandi, talaði máli þeirra.

Íslendingar halda enn grillveislur í miðri kreppunni, aka jeppunum sínum á gangstéttum um leið og þeir hugsa um offitu barna sinna og um ICESAVE i kapp við aumingja Björgólf Thor.

Íslendingar hafa í raun allt til alls. En þeir geta líka misst allt, ef þeir ákveða að afsala sjálfstæði sínu til gráðugra herraþjóða í Evrópu, sem eru að rukka skuld sem ævintýramenn og álfar á Íslandi skelltu á þjóðina. Ríkistjórn á ekki að vera í hlutverki lögreglunnar i gettóinu (3. kvikmyndin), sem tuktar alla til, til að þóknast ógnvaldinu.

Ísland er enn sjálfstætt ríki. Ef einhverjir Samfylkingarmenn og aðrir landsölumenn vilja ganga erinda manna í útlöndum, geta þeir flutt til útlanda og baðað sig í evrum og "frelsi".

ESB er einfaldlega andstætt eðli Íslendinga.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband