Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
23.6.2009 | 22:05
Þvílík og önnur eins starfsorka
Nýlega skrifaði ég færslu um litlu býfluguna" hana Joly . Nú er ég í vafa um greininguna á þessu norska fyrirbæri. Er þetta ef til vill dægurfluga eða bara fiskifluga?
Það er augljóst að kerlingin má ekkert vera að því að kafa í skít á Íslandi, enda kemur hún hingað aðeins nokkra daga í mánuði, mest til að halda fjölmiðlum og ríkisstjórninni við efnið. Fyrir það fær hún 1,3 milljón á mánuði og það er greinilega ekkert mál að yfirfæra það á reikning maddömunnar í París þrátt fyrir 500.000 kr. yfirfærsluloft á gjaldeyri á mánuði, sem venjulegar býflugur sem fóðra þetta norska fyrirbæri þurfa að sætta sig við.
Nú er hún líka komin með stöðu við háskólann í Þrumu og Fiskerihøgskolen. Já, svo fiskifluga er líklega rétt greining. Til hamingju Madame. Ekki með það að vera fiskifluga, heldur stöðuna þarna í landi Samanna, sem Norðmenn hafa níðst á í aldaraðir. Þeir geta kannski ráðið þig líka?
Stjórnmálin í ESB taka líka mikinn tíma hjá frúnni. Fyrst konan er svona hlaðin starfsorku, ætti hún líka að geta fengið starf í auglýsingum, til dæmis fyrir Duracell rafhlöður. Hvað með norskukennslu í RÚV?
En hvað getur ein manneskja annars verið á launalista á mörgum stöðum í einu án þess að menn fari að gruna hana um græðgi? Kann hún sér yfirleitt hóf? Er kannski dálítill Íslendingur í henni? Eða er hún kannski alveg eins og vondu Kanarnir sem hún réðst á í ræðu sinni í Tromsø, þegar hún sagði: Fáir einstaklingar hafa rænt til sín miklum fjármunum með því að halda því fram að þjónusta þeirra sé algerlega nauðsynleg," og bætti við: Þegar Bandaríkin hnerra fær restin af heiminum kvef," og benti á að Bandaríkin hefðu 25% af brúttó þjóðarframleiðslu heimsins og að 72% af þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna væri byggð á neyslu, neyslu sem minnkaði í takt við þau 1,1 milljón störf sem nú hyrfu í því landi í hverjum mánuði.
Á heimasíðu háskólans í Tromsø er haft eftir rektor: - Vi sørger for en stilling til henne, det er bare formalia. Já, rektor hefur augsjáanlega komist í feitt. Nú fær skólinn almennilegan Ameríkanahatara til að halda uppbyggilegar ræður um sýkingar frá BNA.
Ef þessi gífurlega orka eru bara norsk Messíasar-heilkenni, en ekki amerísk græðgi og neysla sem hrjáir Joly, vonar maður bara að þeir peningar sem hún fær fyrir formalia" og önnur störf renni í sjóði eða eitthvað skynsamt. Vonandi er starf hennar á Íslandi ekki bara "formalia" sem endar áður en botninum er náð.
Kannski ætti maður að hafa samband við Philippe Cohen, rannsóknarblaðamanninn sem sérhæft hefur sig í flugum eins og Joly?
![]() |
Eva Joly: Botninum ekki náð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.6.2009 kl. 05:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.6.2009 | 08:50
Kann ekki einu sinni samningaensku
Allt Icesave málið verðu sífellt augljósara, sérstaklega slæleg frammistaða íslensku samninganefndarinnar undir forystu Svavars Gestssonar sendiherra (á framlengingu) í Kaupmannahöfn. Megabloggarinn Jón Valur Jensson birtir úrdrátt úr viðtali á Útvarpi Sögu við Magnús Thoroddsen hrl og fyrrverandi forseta Hæstaréttar, sem sagði:
Það er kannski skrýtnast í sambandi við þetta, að þessi maður [Svavar Gestsson] hafði verið valinn sem formaður í nefndinni. Hann er hvorki lögfræðingur né, að því er égveit, haft nokkra reynslu í sambandi við samninga af þessu tagi. Og ég vil bara leggja áherzlu á það, að enskt lagamál, það er allt öðruvísi heldur en venjuleg enska. Og menn, sem kunna að vera góðir í enskri tungu, þeir skilja ekki samninga á ensku, alls ekki til fullnustu, að minnsta kosti, ég fullyrði það." (zeturnar er í boði Jóns Vals)
Þetta er líklega rétt hjá Magnúsi. Ekki lærði Svavar samningaensku við HÍ þau ár sem hann kallaði sig stud. jur. Á PHS, Parteihochschule Karl Marx(Rotes Kloster) am Köllnischen Park, i Berlín lögðu menn áherslu á nómenklatúru og Volkswirtschaftslehre, en ekki samningaensku. Þeir sem voru á Institut für Ausländerstudium (Ernst Thälmann Institut hjá Johnny Norden) gætu hugsanlega hafa sótt kúrsa á Lehrstuhl Politische Ökonomie des Kapitalismus, en ekki til annars en að nema þar ókosti og dekadansa Kapítalismans. Sem sagt, engin samningaenska, aðeins kommúnistískt orðagjálfur.
Á þessum síðustu og verstu tímum, þegar fólk með potta, pönnur og nómenklatúr ringulreiðarinnar hefur sett ómenntaðan" seðlabankastjóra af, legg ég til að búsáhaldadeildin ærist dulítið yfir manni sem kann meira í kommúnistískum nómenklatúr en samningaensku, en sem á að hafa fyrir okkur vitið í mikilvægustu ákvörðun sem þjóðin hefur þurft að taka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2009 | 18:09
Er Ögmundur kominn á breytingaraldurinn?
Nú lýsir hann yfir stuðningi við ESB-aðildarviðræður, já meira að segja aðildarumsókn í allri sinni dýrð. Miklar breytingar eru greinilega yfirvofandi. Ögmundur lýsir, eins og kunnugt er, gjarnan yfir stuðningi við Hamas og Hizballah, sem ESB skilgreinir sem hryðjuverkasamtök. Mikið verður Mundi að breyta sér til að komast inn í ESB. Það þýðir ekkert að vera stuðningsmaður Hamas, þegar maður vill aðild að ESB. Ég sé fyrirsögnina fyrir mér í stórblöðum Evrópu: Icelandic EU application spokesperson supports Hamas - Nei, það gengur auðvitað alls ekki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2009 | 13:37
Icelandic Trash
Tvær ESB-þjóðir eru að gera Íslendinga að ruslaralýð, sem á endanum fer á vergang og verður flóttamannalýður í ESB löndunum.
Fitch, Moody's og Standard og Poor's eru að sögn bölmóðra stuðningsmanna ríkisstjórnarómyndarinnar okkar, að setja Íslendinga í ruslaflokk. Við erum að verða að skrásettum ruslaralýð. Nokkrir Mammonsrunkarar hjá þessum matsfyrirtækjum hafa lýðveldið okkar í höndum sér. Okkur verður rusluð út um allar jarðir, þegar þeir eru búnir að ljúka sér af.
Við kusum nefnilega yfir okkar ruslastjórn, sem lét 3. flokks ruslakommúnista með flokksþjálfun frá DDR ganga frá ruslasamninga við Breta og Hollendinga, þar sem við verðum urðuð á ruslahaugi sögunnar, því Landsbankaeignir eru svo mikið rusl, að þær ná aðeins upp í 83% skulda sem ríkisstjórnin ætlar að neyða Íslendinga til að greiða Bretum og Hollendingum. Var nema von að Bretar og Hollendingar vildu ekki láta ruslþjóðina sjá neyðarlega samninginn? Það var stór hætta á því að einhverjir meðal ruslalýðsins áttuðu sig á því hvað um væri að vera.
Eignir Landsbankans rýrna enn meira ef við verðum sett í öskuna af skrásettum ruslaralýð í boði Fitch, Moody's og Standard og Poor's.
Íslenskur ruslalýður verður að sætta sig við að Herraþjóðirnar í Evrópu, sem tókst að sameinaða það sem Hitler mistókst, valta yfir 300.000 manna þjóð, sem var svo einföld að hún lét nokkra gráðuga gauka velta hagkerfi sínu. Herraþjóðirnar í ESB, sem af og til hella peningum í hryðjuverkalið í Palestínu til að ganga frá lýðveldinu Ísrael (og ljúka verki Hitlers), vill nú mergsjúga Íslendinga út af sparireikningum gráðugra Hollendinga og Breta, sem trúðu því að í ruslaríkinu Íslandi væru til menn sem breytt gætu lofti í peninga. Það er þá ekki bara annars flokks þjóð og ruslararlýður sem trúir á slík ævintýri?
Íslendingar, sem gefast upp, geta svo hæglega sótt um hæli sem flóttamenn í ESB og skýrt umsókn sína með að að Hollendingar og Englendingar hafi þvingað þá frá heimilum sínum og ættjörð vegna meintra hryðjuverka nokkurra aðila sem stóðu á bakvið ICESAVE-svindlið.
Flytjum öll til ESB og krefjumst hælis vegna valdbeitingar og fjármálaþvingana ESB ríkja. Við munum örugglega fljótlega fá aðstoð frá ESB löndum. Gervilimina eigum við á lager.
Burt með ríkisstjórnina
Burt með Icesave þrælasamninginn
Burt með hugaróra um ESB-aðild (ESB safnar ekki rusli)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.6.2009 kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.6.2009 | 14:43
Þjófar á gröfum
Er það ekki einmitt vandi Íslands. Gráðugir gröfumenn í bönkum, hér þar og alls staðar? Stórir strákar, sexí stjórar, miklir skaffarar, sem hafa verið góðir í sandkassaleik síðan þeir voru litlir. Þegar rigningin kemur hrynur allt hjá þeim. Í græðgi sinni keyra þeir yfir annað fólk og brjóta svo niður þegar þeir eru komnir á kúpuna. Miklir menn og litlir karlar. Mömmustrákar.
Húsbrjóturinn af Álftanesinu var hylltur sem hetja af Borgarahreyfingunni. Kannski ætti liðið í þeim flokki, sem einnig hyllir hryðjuverk út í heimi, að nota gráu sellurnar oftar - að minnsta kosti áður en þeir nota afleitar fyrirmyndir og örþrifaráð þjófs til að tala máli sínu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.6.2009 | 12:23
Frá flokksskóla í Berlín í framlengingu í Kaupmannahöfn
Óstaðfestar sögur fara af því að Svavar Gestsson, aðalhetjan okkar úr Icesave samningunum, óski eftir að fá framlengingu í embætti sínu hér í Kaupmannahöfn. Svavar er svakalega upp með sér yfir glæstum ferli og vel unnum afleik fyrir Íslendinga. Afleik sem jaðrar við landráð.
Ætli Össur hafi sett stubb á Svavar til að halda VG góðum meðan ESB er troðið upp á Íslendinga?
Svavar Gestsson hefur verið gallharður í því að verja land og þjóð, en sérstaklega hagsmuni útrásarvíkinga hér í Danmörku, allt þangað til yfir leið. Þegar ég bað saksóknara í Danmörku um að rannsaka ásökun Ekstra Bladets um að allir Íslendingar hefðu áætlun um að yfirtaka heiminn, var Svavar upptekinn í því að lýsa yfir ágæti þeirra fáu Íslendinga sem síðar settu okkur á hausinn. Ég vildi ekki liggja undir þeim grun, að ég væri kominn með mikilmennskubrjálæði vegna þess að einhverjir pabbadrengir og loddarar höfðu keypt lausagóss í Danmörku.
"Mr. Brown, this fellow is most likely a terrorist"
Ef Svavar fær framlengingu, ætti hann kannski að skrifa endurminningar sínar í glerskála sendiherrabústaðarins á kvöldin. Til dæmis sæluminningar frá flokksskólanum á Berlínarárunum, þar sem hinn saklausi sveitamaður frá Íslandi sat á skólabekk með forhertum hryðjuverkamönnum. Þrátt fyrir að Steingrímur Hermannsson og Jón Baldvin hafi reynt að klína STASI stimpli á björgunarmann okkar í ICESAVE-deilunni, hefur enn ekkert fundist. En gleymum ekki einu: Afrit voru tekin af afritum, margt var sent til Moskvu og víðar og jafnvel klósettpappírinn í DDR var í þríriti.
Réttast væri að flengja Svavar opinbera fyrir þau landráð sem ICESAVE afleikurinn er, í stað þess að klína á hann framlengingu.
Kaghýðing ríkisstjórnarinnar, sem lætur þjóðina ærast vegna lélegs upplýsingastreymis og ónógs gegnsæis, er líka tímabær. Og hvernig hýðir maður svo ríkisstjórn sem gerir mistök á mistök ofan: Maður segir henni upp! Það er lýðræði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.6.2009 kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2009 | 20:36
Ijsschavers
Henk van der Dijk lögfræðilegur ráðunautur hollensku stjórnarinnar, lýsti því yfir í kvöld, að ef Íslendingar gætu ekki greitt Icesave skuldina, væru Hollendingar tilbúnir með lista yfir það sem þeir vildu eignast á Íslandi. Van der Dijk lýsti því yfir, að hann teldi öruggt að Hekla, Gullfoss og Geysir væru þar ofarlega á lista.
Pick Zakkewasser, listfræðingur og aðstoðarmaður Henk van der Dijk, taldi af og frá, að taka við Kjarvalsmálverkum upp í skuldir Íslendinga. "Kjarval hefði einfaldlega ekki málað nógu mörg málverk".
Aðstoðarmaður Picks, Engerd de Hoerejong, lýsti því yfir að Hollendingar væru auðvitað himinlifandi yfir því að hafa lent á mesta fífli sögunnar, sem stýrði samningunum fyrir hönd Íslendinga. Af þeim sökum kæmi ekki til mála að flytja Íslendinga á fæti til Hollands til að vinna við annað en drátt pramma. Ljóshærðar og vel vaxnar konur gætu þó alltaf fengið vinnu við drátt líka, enn allt fé sem þær ynnu sér inn færi vitanlega beint upp í skuldir.
Nei, lesendur mínir, allt gaman til hliðar. Hollensk yfirvöld hjálpuðu nasistum til að myrða bróðurpart gyðinga Hollands, og hafa aldrei greitt skaðabætur né beðist afsökunar. Svo eiga Íslendingar að fara að skuldbinda sig eins og þrælar.
Hollendingar vilja eignast Ísland, því að Holland er að sökkva í hafið .. og öfgalýð.
Godverdomme Nederlanders - Stop het Ijschave in je nauwe gaatje !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.6.2009 | 11:09
DJ Ásta
Þingforseti, frú Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, er einnig þekkt sem allrahanda, þar sem hún hefur verið á þingi fyrir Framsóknarflokk, Þjóðvaka, Þingflokk Jafnaðarmanna og Samfylkinguna. Hún hefur einnig boðið sig fram fyrir Framboðsflokkinn, O flokkinn (1971), sem hélt því fram að pólitík væri bíll. Nú er pólitík bjalla við hásæti þingforsetans.
Hin einstæða slagverkskunnátta hennar kemur sér örugglega vel í undanfaranum að eymd Icesave áranna og í volæði ESB, þar sem einhver Gísli, Eiríkur og Helga munu sitja og semja af okkur æruna og það sem eftir er.
Þeir sem hafa eitthvað annað að segja fá bjöllusóló hjá frú Ástu.
En ekki má gleyma því að Ásta Ragnheiður var plötusnúður í Glaumbæ 1969-1971, auk þess í Tónabæ og Klúbbnum og enn fremur á Ríkisútvarpinu þar sem Lög Unga Fólksins voru hennar sérgrein. Discobjallan er henni því ekki framandi hljóðfæri.
Það er þó langt frá því að þingforseti okkar sé búin broti af þokka Anitu Ward, sem líka hrindi bjöllu sinni hér um árið og ærði unga menn með seiðandi tilboði um að dingla á bjöllunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.6.2009 | 22:01
Birthday á barnum
O, thou old green guy of the Icelandic rain,
you cannot imagine the state of your country, the pain.
The good old Althing's gone down the drain,
Happy birthday Johnny, your work was in vain.
You are standing there oh so swell,
not far from the Banks of the sewer, the smell.
The nation insane, not sound nor well,
awaiting The European Union train to Hell.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.6.2009 kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2009 | 19:11
Sýnum stuðning þeim sem frelsa vilja Íran
Hvar er íslenska ríkisstjórnin nú? Þegar Palestínumenn öskra og krefjast útrýmingar Ísraelsríkis, eru margir Íslendingar tilbúnir með alls kyns aðstoð. Peninga, gervilimi, sjálfsblekkingu og jafnvel hreinræktað gyðingahatur.
En þegar ein elsta menningarþjóð í Asíu, Íranar, þurfa á hjálp heimsins að halda, er forsætisráðherrann okkar víðs fjarri að skála við kollega sína á Norðurlöndum í Arnarhreiðri nasistaskálds austur á Héraði. Þeir munu víst styðja okkur inn í Fata Morgana morgunlandsins (ESB). En styður Jóhanna baráttu frelsisafla í Íran? Eða í það minnsta réttindi samkynhneigða þar í landi?
Þegar stríðið geisaði á Gaza um áramótin voru bloggarar og fréttamiðlar á Íslandi oft meira uppteknir af því en naflaskoðuninni í sambandi við hrun íslenska efnahagsundursins .
Nú, þegar íbúar eins kúgaðasta land heimsins eru hugsanlega að kasta af sér okinu, heyrist vart í Íslendingum. Þeir eru skriðnir inn í naflann á sér til að leita að kuski. Ekki einu sinni heilög Birgitta, þingmaðurinn sem grætur Þjórsá fyrir Tíbet og er tilbúinn að deyja fyrir Palestínumenn. Nei, hún er að reyna skilja Icesave og bjóða landsmönnum í ókeypis Tíbetbíó.
Egill Helgason, maðurinn á bak við Joly Co la la, og margt, margt fleira, sem er svo stór að alltaf sést í hann á bak við allt það sem hann stendur á bak við (og það er ekki lítið), hefur ekki úthellt galli um Amadinejad eins og hann hellir jafnan sýru og eitri í skál Ísraelsmanna.
Styðjum þau öfl í Íran, sem vilja losna undan vitleysingnum, sem Íslensk yfirvöld, eitt fárra ríkja í Evrópu ákvæðu að heiðra á ráðstefnu SÞ um mannréttindi í Genf í apríl sl.
Frjálsara Íran þýðir aukinn heimsfrið og öryggi.
Ekki tel ég víst, að Mirhossein Mousavi sé það sem menn leggja líf sitt að veði fyrir í Íran þessa dagana. Mig grunar að ungt fólk í Íran sé að andmæla því afbrigðilega Íslam sem eyðilagt hefur hið merkilega og gamla ríki, Íran.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 1356163
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007