Leita í fréttum mbl.is

Danskur njósnari á íslensku vegabréfi

Dummy 2

Til er upptaka af viđtali viđ einn helsta njósnara CIA í Danmörku, Niels Arne Frommelt (1921-2008), sem áhugamađur um sögu hefur tekiđ upp. Niels Arne Frommelt lýsir ţví yfir ađ hann hafi notast viđ íslenskt vegabréf ţegar hann vann fyrir CIA utan Danmerkur. Frommelt hefur sagt frá ţví ađ hann hafi viđ störf sín erlendis, m.a. í Sviss og víđar, gengiđ fyrir ađ vera Íslendingur, n.t. íslenskur kaffikaupmađur, Einar Guđmundsson ađ nafni . Vegabréfiđ hafđi hann fengiđ frá "Amerikanerne pĺ Island", en á Íslandi hafđi Frommelt aldrei veriđ. CIA keypti svo kaffi á uppsprengdu verđi til ađ halda leynd yfir ţessum "kaffikaupmanni" frá Íslandi, sem hafđi sérstakt heimilisfang og íbúđ í Kaupmannahöfn skráđa á "Einar Guđmundsson". 

Heimildamađur minn tjáir mér, ađ ţegar Íslendingar hafi haft samband viđ eđa hitt fyrir "Einar Guđmundsson", hafi Frommelt skýrt algjöra vankunnáttu sína á Íslensku međ ţví ađ hann hefđi flutt ungur til Danmerkur og hefđi ţví aldrei lćrt íslensku.

CIA notađi "Einar Guđmundsson" ţó nokkuđ í öđrum löndum en Danmörku, ţví hann ţótti einstakur "hlerari".  Hann mun m.a. hafa hlerađ í Genf og Vín, og m.a. sendinefndir Norđur-Kóreu. Hann er ţó mest frćgur fyrir hleranir sínar á samtölum danskra kommúnista.

Ţjóđsjalasafn Íslands getur ekki fundiđ neinn Einar Guđmundsson í Kaupmannahöfn í gögnum varđandi íslensk vegabréf frá tímabilinu 1942-1984, sem passađ gćti viđ Frommelt.

Getur veriđ ađ CIA hafi haft ađgang ađ, eđa stoliđ/falsađ íslensk vegabréf fyrir njósnara sína? Íslendingar voru örugglega talin saklaus grey, sem enginn grunađi um grćsku fyrr en ţeir voru settir á breskan hryđjuverkalista.

Meira um ţetta mál síđar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríđur Pétursdóttir

Sćll Vilhjálmur, ef ţú hefur lesiđ bloggiđ mitt um Dóttur njósnarans skilurđu áhuga minn á ţessum málum.

Ég var ađ renna augum yfir PET skýrsluna, en ćtla ađ lesa hana betur.

Ef ţú verđur var viđ frekari upplýsingar um samstarf Íslendinga og Dana ţćtti mér vćnt um ađ frétta af ţví.

Kveđjur,

Hólmfríđur Pétursdóttir, 3.7.2009 kl. 00:03

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćl Hólmfríđur,

mađur finnur víst ekki neitt um Ísland í skýrslum PET-Kommissionens.

Frommelt var einn helsti starfsmađur Gladio/Stay Behind samtakanna(Fimaet eđa Blikkenslagerbanden)   í Danmörku.

Operation Gladio sjá hér

Ég hef líka gluggađ í bindi 2, 5 og 6 og ţađ er nokkuđ mikiđ af alvarlegum villum.

Ég hef t.d. skrifađ manna mest um Gestapomanninn Hans Hermannsen í bók minni Medaljens Bagside, sem hćgt er ađ fá ađ láni á góđum bókasöfnum á Íslandi. Skýrsluhöfundur sem ritađi um Hans Hermannsen, og hvernig dönsk njósnateimi notast viđ hann eftir stríđ, hefur greinilega ekki ţekkt bók mína, ţar sem hann gćti hafa fengiđ betri upplýsingar en ţćr skólaritgerđir sem hann vitnar í. Svo vitnar hann í skýrslu Den Parlamentariske Kommissions, án ţess ađ athuga frumgögn, sem eru til ađ miklu leyti. Ef ţau eru notuđ, sést oft vel hve miklu var breytt áđur en skýrslan var gerđ. Sagnfrćđingarnir sem skrifa um tímabiliđ 1940-50 í PET-skýrslurnar, eru einfaldlega ekki sérfrćđingar í ţessari sögu. Sama er víst upp á teningnum um ţá sem skrifađ hafa um seinni tímann. Vinur minn er ađ skrifa bók um ţađ sem vantar á.

Einnig er í skýrslunum margoft greint frá tveimur lögreglumönnum Madsen og Weiss, sem njósnuđu fyrstir fyrir Ameríkana. Ţađ gleymist ađ einn ţeirra var í ţjónustu Gestapo frá 1938 og hinn vann viđ ţađ ađ senda kommúnista til Ţýskalands í stríđinu. Í skýrslunum er ţví nćrri haldiđ fram ađ ţeir hafi veriđ danskir andspyrnumenn í stríđinu. Ţví fer fjarri og mun ég ţegar ég hef betri tíma skrifa um ţađ. BNA-menn og CIA réđu sem sagt til sín gamla nasista (sem er reyndar ekki nein ný uppgötvun). Í Danmörku réđu svo tveir fyrrverandi Gestapo-njósnarar til sín SD/Gestapo mann, sem í stríđinu hjálpađi Dönum ađ senda gyđinga til Ţýskalands. Bćđi Madsen og Weiss unnu um tíma í útlendingalögreglunni og Weiss fylgdi handteknum gyđingum til ţýsku landamćranna áriđ 1941.

Wiedbrecht, sá sem ritađi föđur ţínum áriđ 1950, hafđi einnig veriđ starfsmađur Fremmedafdelingen hjá Ríkislögreglustjóranum danska, og ađallega unniđ međ mál gyđinga, sem hann hatađi á ţeim árum. 

Ég hef reyndar ţegar skrifađ lítillega um Christian Madsen í grein sem hćgt er ađ lesa á blogginu mínu hér til vinstri: "Ich weiss, was ich zu tun habe".  Greinin kom út í RAMBAM 15, 2006. Ég ritstýri nú RAMBAM, sem er ársrit sögufélags gyđinga í Danmörku. Á nćsta ári 2010 munum viđ hafa stóra grein í RAMBAM um mál sem ekki var tekiđ á í skýrslum PET-kommissionens.

Ég gef sem sagt skýrslu danskra yfirvalda um PET (Politiets Efterretningstjenest) og dönsku leyniţjónusturnar lága einkunn.

Hans Hermannsen 

Hans Hermannsen, njósnađi í Danmörku á 4. áratugnum. Gestapo-foringi í Danmörku á stríđsárunum og ađstođarmađur danskra leyniţjónusta međ milligöngu BNA eftir stríđ. Ţegar Hermannsen var  fćrđur til Danmerkur eftir stríđ, Lét Troels Hoff yfirmađur REA(Rigspolitiets Efterretningsafdeling), sem var forveri PET, ná í Hermannsen í sjúkrabíl til Ţýskalands. Hann var falinn á spítala sem Hans Hansen. Troels Hoff var einn af ţeim háttsettu embćttismönnum sem bar ábyrgđ á ţví ađ gyđingum og öđru flóttafólki var komiđ fyrir kattarnef í Danmörku í stríđinu. Samkvćmt dönskum lögum átti hann yfir sér dauđadóm. En mál hans og stríđsglćpir danskra embćttismanna var ekki ţekkt fyrr en bók mín Medaljens Bagside kom út

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.7.2009 kl. 07:08

3 Smámynd: Sigurđur Ţórđarson

Mjög áhugavert.

Ég bíđ spenntur eftir framhaldinu.

Sigurđur Ţórđarson, 3.7.2009 kl. 07:56

4 Smámynd: Hólmfríđur Pétursdóttir

Ţakka ţér fyrir ţetta Viljálmur.

Hólmfríđur Pétursdóttir, 3.7.2009 kl. 16:28

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvađ meinar ţú međ ţví, Ţrymur?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.7.2009 kl. 13:43

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband