Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.6.2012 | 15:34
Er Ekvador draumaland nauðgarans?
Aumingja karlrassinn hann Julianus, sem um skeið dvaldi í Mosfellsbæ og duflaði við marga í hópi íslenskra blaðamanna. Drengurinn sá þarf nú að flýja allt suður til Miðbaugs, til Ekvadors, þar sem hið fornkveðna er enn við lýði: Sus enemigos son mis enemigos. Miss Enemiga býr auðvitað í Svíþjóð, sem er, eins og kunnugt er, mjög svo aftarlega á merinni, réttarfarslega og í mannréttindamálum. Svíar eru heimsþekktir fyrir spillingu og sem skósveinar vondu mannanna í BNA. Allt öðruvísi en Ekvador, sem er sósíalístísk velferðarparadís eins og Ísland.
Réttast hefði verið fyrir fósturmóður eins af blaðasnápunum sem héngu í skottinu á Assanganum um tíma, að bjóða honum í sælureitinn, eins og öðrum heimsmeistara í móðursýki, rugli og vitleysu. Fósturmóðirin, Jóhanna Sigurðardóttir, er hvort eð er alltaf tilbúin í að brjóta lög og ganga á bak orða sinna. Assange getur svo bara fengið vegabréfið hans Bobby Fischers. Hann þarf hvort eð er ekki að nota það frekar en heimsmeistarinn. Báðir eru ofsóttir af vondum mönnum, og Obama líka, og komast hvergi.
Íslenskir femínistar yrðu vafalaust stórfegnir ef Assange yrði boðið til Ísalands. Þá fengju þeir nú líkast til nóg að gera. Bara senda Assangann á Þjóðhátíð í Eyjum, og þá eru komin tíu ný mál.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.6.2012 kl. 05:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.6.2012 | 07:18
Harðbrjósta Herdís
Ég hef lítið á móti Herdísi Þorgeirsdóttur forsetaframbjóðanda, en finnst fjandi óþægilegt þetta svar hennar í Vísi árið 1977, sem nú er dregið upp úr pokahorninu í forsetaslagnum.
Flestir hljóta þó að hafa verið sammála harðbrjósta Herdísi, því engir fáruðust í Vísi út af stúlkunni með köldu tilfinningarnar í garð svartra á þeim tíma. En að senda fólk í burtu á "lekum bát" er nú harla kaldrifjað miðað við það sem hinir sögðu, sem spurðir voru af Vísi svöruðu sumardaginn 27. júlí 1977.
En árið 1977 voru vinstri menn og siðapostular á síðustu dögum heilögum nefnilega ekki búnir að finna upp rétthugsun sína. Þó var ég nærri búinn að því í landsprófi í Ármúlaskóla, þar sem við höfðum ágætan sögukennara að Norðan, sem nú er látinn. Mig langaði oft að kæra hann, þar sem hann kom oft með ærið rasískar túlkanir á sögunni sérstaklega í garð blökkumanna. Hann hafði stundað nám vestur í Bandaríkjunum, n.t. í Arkansas, og hafði kannski smitast af því umhverfi sem hann var í. En eftir á að hyggja, held ég að hann hafi aðeins verið að reyna að ögra með yfirlýsingum sínum til að sjá siðferðislega greind nemanda sinna.
Herdís sagði kannski árið 1977 það sem aðrir hugsuðu í almennri xenófóbíu íslensku þjóðarinnar. Börn útlendinga á þeim tíma og fyrr könnuðust vel við þá fóbíu. Íslendingar voru nefnilega bölvaðir sveitamann og -durgar í garð útlends fólks, þar til fyrir skömmu. Og margir þeirra, sem töldu sig helstu heimsmenn þjóðarinnar, voru oft hin verstu þorpsfífl og ratar inn við hjartað, hræddir um að missa hana Siggu sína eða hann Jón í hendurnar á Kana eða, hugsaður þér, stórum negrabassa með VOÐA stór....
Íslendingar fáruðust líka yfir gyðingum, Víetnömum, Ungverjum og öðrum flóttamönnum. Herdís er bara venjulegur Íslendingur. What can I say?
Eins gott að Óli heitinn Tynes fékk aldrei þá flugu að bjóða sig fram til forsetaembættis. Þá hefði þetta, nú örugglega verið dregið upp úr hattinum til að sýna arabahatur hans, en hann var með þessa frétt í sama Vísi og Herdís sendi negrana í lekum bát út í hafsauga. Það mun hún örugglega ekki gera ef hún verður Madame la presidente, þar sem hún blandar sér ekki í slík mál. En ekki örvænta góðu Íslendingar, þið sem viljið leggjast í eina sæng með fátækum Evrumanni. Í ESB er til fullt af lekum bátum. Negrar sem kunna eitthvað í fótbolta eða körfu eru þó alltaf velkomnir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
19.6.2012 | 06:49
Stuðningur við Palestínu
Þýskir nýnasistar unnu með Palestínumönnum að hryðjuverkunum í München árið 1972.
Löng hefð er fyrir tengslum Palestínumanna við nasisma Þýskalands. Stórmúftinn í Jerúsalem hafði vægast sagt náin tengsl við Hitler, Himmler og 3. ríkið. Í dag má finna arabíska þýðingu á Mein Kampf eftir Hitler í öllum nágrannaríkjum Ísraels og fjölmiðlar í Miðausturlöndum nota sömu skopteikningarnar" og andgyðinglegu minnin og nasistar og Pravda í Moskvu notuðu. Danskir nýnasistar og helfararafneitarar lýstu því yfir fyrir nokkrum árum, að þeir hefðu leitað til hópa ungra róttækra Múslíma í Danmörku. Þeir sem hata gyðinga og Ísrael eru einfaldlega vinir málstaðar Palestínumanna, og vinstriöfgamenn um allan heim eru þar á meðal.
Nú er komið í ljós að þýskur nýnasisti, Willi Pohl að nafni, mun hafa aðstoðað við undirbúning hryðjuverkaárásarinnar á ísraelska ólympíufarana í München árið 1972. Pohl hafði náin tengsl við heilann á bak við hryðjuverkaárásina sem var beint gegn ísraelska hópnum fyrir 40 árum. Fyrir frelsi Palestínu voru 11 íþróttamenn myrtir á hrottalegan hátt á leikunum.
Gögn BfV, Leyniþjónustu Þýskalands, sýna að Pohl hafði árið 1972 samband við Saad nokkurn Walli, sem var falskt nafn PLO hryðjuverkaleiðtogans Abu Daoud Oudeh, eins af skipuleggjendum árásarinnar í München sumarið 1972. Abou Daoud var einn af stofnendum Fatah, sem nú stjórnar nýstofnuðu öfgaríki sem hinn íslenski hryðjuverkastuðningsmaður Össur Skarphéðinsson og aðrir íslenskir kjánar hafa viðurkennt í vinstrisinnuðu gyðingahatri sínu.
Haustið 1972 var Pohl handtekinn og dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum sprengjuvörpur, ólögleg vopn og skotfæri. Óskýrt er af hverju honum var sleppt nokkrum mánuðum síðar og hann hélt til Beirut þar sem hann hélt sig um tíma. Dómur sá sem hann fékk sem hægriöfgamaður er hlægilegur sé hugsað til þeirra dóma sem vinstriöfgamenn fengu. Pohl mun, samkvæmt heimildum Spiegel hafa útvegað Abu Daoud fölsuð skilríki og verið bílstjóri hans um þvert og endilangt Þýskaland.
Í dag heitir Willi Pohl, Willi Voss og skrifar vinsæla krimma sem seljast eins vel og Arnaldur Indriðason í Þýskalandi. Willi Voss Pohl er víst næst því að vera vinstrisinnaður í dag. Þegar árið 1991 upplýsti annar nýnasisti, Harry Sinowczik, um tengsl nýnasista við hryðjuverkaárásina í München.
Abu Daoud, vinur Willi Pohl Voss, lauk sinni aumu morðingjavist á jörðinni árið 2010 í Damaskus, bakgarði þjóðarmorðingjans Assads. Áður en Daoud geispaði golunni, lét hann hafa eftir sér að hann væri orðinn of veikburða til að berjast gegn Ísrael, en að barnabörn hans myndu berjast og einnig barnabörn barnabarnanna". Palestínumenn elska greinilega alltaf börnin sín jafnmikið.
Ísraelar og fjölskyldur fórnarlamba hryðjuverkanna í München hafa í 40 ár reynt að fá alþjóðlegu Ólympíunefndina til að minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum 1972 með þögn á leikunum, en því hefur verið hafnað vegna hræðslu við Arabaheiminn. Það er nú ljóst að fórnarlamba blóðugrar frelsisbaráttu" Palestínumann verður heldur ekki minnst við sérstaka athöfn í sumar. Ísraelsmenn gera það einir.
Myndin efst er af dönskum öfgamönnum fyrir framan félagsheimili gyðinga í Kaupmannahöfn árið 1979. Danskir gyðingar, sem vart þora að hafa skoðun á málefnum Ísrael, voru dregnir til ábyrgðar fyrir erjur í Miðausturlöndum. Boðskapurinn var greinilegur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.6.2012 | 19:32
Socialism, hypnotism
Einn smásmugulegasti Smugupenninn virtist heldur betur taugaveiklaður er ég kom í heimsókn á bloggið hans og spurði hann sex einfaldra spurninga um stríð og frið og fréttir af Vesturvígstöðvunum.
Innlegg Stefáns Pálssonar í forsetaframboðsumræðuna er ekki af lakara taginu. Sem argur stuðningsmaður Samfylkingarþóru vildi þessi blómlegi friðarsinni með færslu sinni á smáSmugubloggi sínu að setja Ólaf Ragnar Grímsson forseta á sakamannabekk með verstu stríðsglæpamönnum" Íslands.
Ykkar einlægur setti því snemma að morgni 17. júní athugasemd á opna umræðu hjá Stefáni Pálssyni friðarsinna og herstöðvarandstæðingi. Opin var umræðan ekki fyrir alla og Stebbi gerði sér lítið fyrir og útrýmdi mér og spurningum mínum, sem hann getur náttúrulega ekki svarað, þar sem ég er stuðningsmaður Dorritar og Ólafs og vel æfður í að sjá í gegnum líðskrum friðsams "fiðurfjár". Stefán sýndi þarna gamla takta úr fósturlöndum hugmundafræði sinnar. Ritskoðun er eitt sterkasta vopn friðarins í tæpum heimi manna eins og Stefáns Pálssonar.
Stefán Pálsson er því miður bara vesæll dindill á morðapparati sem sumir hafa kallar hugsjón og Stebbi "friðarsinni" veit það ósköp vel. Friðarsinni er hann ekki meiri en Pétur og Páll og blóð drýpur af sérhverju því máli sem hann styður í einfeldni sinni. Þess vegna þessi ritskoðun og eyðing, þegar hann fær erfiðar spurningar og heimur hans hrynur í spað. Stebbi getur hvorki svarað né gert af því að hann er svo tæpur, eins og friðurinn sem hann boðar. Friður Stebba kostar nefnilega fleiri líf en hann bjargar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.6.2012 | 10:53
Björn Bjarnason í skökkum turni í Písa
Björn Bjarnason sagði frá því í gær á bloggi sínu, bjornábjornofan.is, að hann hafi farið upp í skakka turninn í Pisa. Þar mun hann í skamma stund hafa séð allt í réttum hlutföllum og gert sér grein fyrir sannleikanum. Efst uppi í turninum gekk hann því umsvifalaust í Samfylkinguna, því þar sér fólk allt rökrétt þótt það hallist til vinstri. Þarna efst uppi, á meðal olíusjeika og Kínverja, gerði Björn sér grein fyrir því, að eftir að aðgangseyrir í turninn var hækkaður í 15 evrur, þá hafði enginn venjulegur Evrópubúi haft ráð á því að fara upp í Skakka turninn. Það var engin biðröð til að komast upp í turninn.
Þegar niður var komið breyttist allt mat aftur hjá Birni og hann sagði sig umsvifalaust úr Samfylkingunni. Hann gerði sér nú þegar grein fyrir því, að þegar hann var síðast í Písa komst hann ekki upp í Skakkaturn, því allt var miklu ódýrara þá.
Össur Skarnhéðinsson hefur lengi vakið athygli á því, að með upptöku evrunnar muni Íslendingar ekki þurfa að standa í eins mörgum biðröðum, nema atvinnuleysisbiðröðum. Björn Bjarnason var um tíma farinn að hallast að sömu kenningu, en sem betur fór komst hann niður úr turninum.
Össuri var reyndar fyrir nokkrum árum bannað að fara upp í turninn þar sem möndulhalli Össurar er of sjálfhverfur og hann var með bein tengsl við hryðjuverkasamtök.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2012 | 08:38
Eymd og atvinnuleysi í ESB
Ég tók mér smá tíma um daginn til að skoða neyðar- og aðvörunarhróp annarra bloggara sem ég hafði ekki skoðað nýlega. Hið vel skrifaða og skemmtilega blogg bloggvinar míns Ragnhildar Kolku, sem ætti tvímælalaust að vera í 1. deild Moggabloggsins, var ekki til vonbrigða frekar en fyrri daginn. Ragnhildur var með mjög góða færslu þann 10. maí sl. Ég held ég að greinin hafi farið framhjá ríkisstjórninni og þeim sem ráða, líkt og greinin á Bloomberg sem Ragnhildur vitnaði í. Íslenska ríkisstjórnin hlustar ekki á rök, og hvað þá fólk með rök, og svo er helmingur stjórnarinnar greinilega ólæs. Í Hollandi, landinu þar sem ESB-fáninn virðist í fljótu bragði vera þjóðfáninn, er farið að skammta mat í dalla fátæklinga. Sjá hér.
Ég skrifað aldrei neitt nema að ég sé persónulega snortinn af því, og það er ég vissulega í þessu tilfelli. Ég er nefnilega kominn með annan fótinn í örbirgðina í ESB. Þann 17. júní á miðnætti held ég upp á á ég sé ekki lengur atvinnulaus, heldur miklu frekar allslaus. Þannig eru reglurnar í velferðaþjóðfélögum eins og Danmörku. Þegar maður er búinn að vera atvinnulaus í ákveðinn árafjölda, í mínu tilfelli 4 ár, fer maður á aumingjastyrk, sem svo fallega er kallaður framfærslustyrkur á Íslandi en kontanthjælp í Danmörku. Líkt og á Íslandi, fær maður þann styrk þó ekki ef maður er svo óheppinn að vera giftur ríkisstafsmanni á meðalháum launum.
Ég og börnin þurfum því á næstunni að lifa á framfærslu konu minnar og við þurfum að selja bíl með miklum afföllum, nota síðasta sparnaðinn og annað til að geta sýnt fram á að ég þarfnist aumingjastyrks. Nú eru t.d. tveir ómenntaðir innflytjendur frá Sómalíu með 2 eða fleiri börn miklu betur sett en ég og það atvinnulaus. En svona eru reglurnar. Ég fæddist í röngu, og allt of friðsömu landi, þar sem menn éta skít þegar þeim er sagt að gera það - á Íslandi. Ég er innflytjandi sem ekki hefur krafist mikils í Danmörku, en hef þó tekist að fá forsætisráðherra landsins, sem aldrei baðst afsökunar á neinu, að setja fram afsökunarbeiðni. Enginn lifir á því, enda þeir sem beðnir voru afsökunar löngu dauðir í kerfi þar sem heldur var ekki hlustað á fólk.
Ég væli þó ekki mikið, en hugsa til kollega minna í BNA, sem búa undir hraðbrautarbrúnni. Ég hins vegar er alls ósmeykur við að segja frá mínum högum, gagnstætt því sem margt atvinnulaust fólk er. Það er búið að stimpla atvinnuleysingja á ennið eða brennimerkja, og fólk vill venjulega ekki tala opinskátt um fjárhagsvandamál sín. Því ber að skríða undir brú. Þeir sem vinnu hafa halda fast í hana og nú gildir lögmál frumskógarins.
Ég hef gert allt til að fá vinnu, og hef vottun þar til gerðra fyrirtækja sem reynt hafa að hjálpa mér við það. Þegar ég varð síðast atvinnulaus tilkynnti bæjarfélagið mér að þeir gætu ekki hjálpað "manni eins og mér", meint á þá vegu, að háskólamenntað fólk væri sent með ákveðnum kostnaði fyrir samfélagið til fyrirtækis sem hefði "umsjón" með starfsleit minni. Sú leit hefur ekki borið mikinn árangur, því atvinnuleysi í mörgum stéttum í Danmörku er gífurlegt, og svo er ég með ómögulegt nafn, Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sem liggur við að sé hættulegra fyrir dani en Ali Múhammeðsson.
Í Danmörku er erfiðara en í flestum löndum fyrir langmenntað fólk að fá vinnu fyrir utan sitt fag, m.a. vegna stéttarfélagsfasisma sem hér ríkir í miklum mæli. Á sama hátt er nær ógerningur fyrir "of menntaða" að fá störf í verslunum, lager og þess háttar, þar sem háskólamenntaðir eru litnir illu auga. Þeir spyrja of margra spurninga. Svo er einfaldlega mikið atvinnuleysi. Yngdómsdýrkun er mikið vandamál. En ung,t nýmenntað fólk hefur aldrei átt eins erfitt með að fá vinnu í Danmörku, nema að það sé með 5-10 ára reynslu í "lean management" og "lean philosophy." Það var því ekki kennt þegar ég var í háskóla, og svo er spurning hvað lean maður getur orðið. Fyrst þarf maður líklega að betla í nokkra mánuði.
Þannig er það líka með íslensku ríkisstjórnina í umsóknarferlinu fyrir ESB. Össur og Co hlusta ekki á rök og upplýsa sem minnst um örbyrgð og eymd þá sem nú ríkir í ESB-Evrópu. Ástandið er víðast hvar verra en á Íslandi, en Össur virðis lifa í heimi heiðursaría í Stórþýskalandi ESB. Hann segir líklega vini sínum í heilaþvættinu, Agli Helgasyni, að Grikkir séu latir og Egill segir það örugglega upp í opið geðið á Grikkjum, þegar hann fer þangað næst til að sóla íslensku velmegunarvömbina á Kissamos og Kos.
Evran er aðeins góð sumum og fleiri og fleiri sjá minna af þessum lokkandi myntfæti sem er svo rómaður af Brussugellum Íslands. Menn vilja kannski í meira atvinnuleysi en á Íslandi? Þá er um að gera að ganga í ESB, þessa þýsköguðu dauðsamkomu á heljarþröm. Þá eignast maður kannski fleiri "kollega" undir brúnni á E1.
Ég segi eins og Gerorge Soros, "Fuck", en gef Þjóðverjum Össuri Skarnhéðins og Jóhönnu Berlínarbollu aðeins tvo mánuði til að redda þeim skít sem þau eru búnin að sökkva okkur í. Það er enn hægt að klóra sig upp á bakkann á Íslandi, en hér, þar sem Evran vex á trjánum, horfa menn á hana þar sem þeir sökkva æ dýpra í kviksyndið meðan Rumpupoy skrifar lygahaikur á ESB-seðla.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2012 | 20:16
Þegar Obama mismælti sig
Við afhendingu frelsisorðunnar í Hvíta húsinu varð Barach það á, að tala um "pólsku útrýmingarbúðirnar" þegar hann nýverið heiðraði andspyrnuhreyfingarmanninn pólska Jan Karski, sem lést fyrir 12 árum síðan. Karski mætti vitanlega ekki í athöfnina, en Obama hefur líklega ekkert tekið eftir því. Bob Dylan varð stjörnu ríkari þennan dag.
Eins og allir vita, eða ættu að vita, drápu sumir Pólverjar gyðinga á fyrstu dögum innrásar Þjóðverjar í Pólandi árið 1939, Pólverjar stunduðu einnig gyðingamorð hér og þar í Póllandi án mikillar hjálpar Þjóðverja og eftir stríð héldu þeir áfram, t.d. í bænum Kielce. Eitthvað var um það að Pólverjar gengu til liðs við nasista, en ekki í eins miklum mæli og t.d. ungir menn í Eistlandi, Lettlandi og Litháen (sjá t.d. hér). Í Eistlandi eru morðingjar nú með lögum samþykktum 12. febrúar 2012 orðnir að frelsishetjum. Íslandsvinurinn Mart Laar, sem nú er fjarri góðu gamni vegna heilablóðfalls, setti fram tillöguna um þau lög. Hann kom einnig í veg fyrir með íslenskum stjórnmálamönnum að stríðsglæpamaður yrði sóttur til saka.
Það voru auðvitað engar pólskar útrýmingarbúðir, þó að Pólverjar hefðu oft slátrað gyðingum fyrr á öldum. En útrýmingarbúðirnar í Pólandi og fangabúðirnar og 1140 gettóin í Evrópu voru verk þýskra nasista - með dálítri hjálp frá vinum og vandamönnum í hinum ýmsu löndum. Gott ef ef það voru ekki líka Íslendingar sem unnu á svona stöðum. Einn var gyðingamorðingi í Eistlandi, en nú er hann, sem sagt, orðinn Frelsishetja í Eistlandi, samkvæmt lögum, þótt hann hafi undirritað aftökuskipanir. En hvað gera ekki frelsishetjur?
Pólverjar eru auðvitað nokkuð æstir út af þessu mismæli Obama, og hafa ekki sætt sig við afsökunarbeiðni frá einhverri blók í Hvíta Húsinu. Ég er á því, að sá sem þar ræður ríkjum verði sjálfur að að koma fram opinberlega og biðjast afsökunar og söguleysi sínu og Bandarísku þjóðarinnar. Annað kemur auðvitað ekki til mála. Um leið gæti hann líka skírt fyrir umheiminum, af hverju Bandaríks stjórnvöld sjá í t.d. í gegnum ósóma eins og þegar Litháar hylltu aðal-Quisling sinn um daginn (sjá hér og á vefsíðunni www.defendinghistory.com), eða þegar bandarísk yfirvöld neita að styðja ráðstefnur um gyðingdóm í Litháen, ef einn af forstöðumönnum Simon Wiesenthal Stofnunarinnar er með, og það að ósk yfirvalda í Litháen. Eru fangelsisaðstaða og fangaflutningar BNA keypt fyrir svo auvirðilega framkomu litháískra stjórnvalda?
Barach verðu að skýra svo margt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.6.2012 kl. 05:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.5.2012 | 18:29
Davíð og Golíat
Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins gerir sér sem betur fer grein fyrir því, að Þýskaland er herraþjóðin í ESB, og sendiherra Þýskalands Hermann Joseph Sausen telur sig greinilega vera í farabroddi sendiherra ESB-landa á Íslandi, þegar svarað er gagnrýni á uppivöðsluhátt ESB á Íslandi. Myndin hér er frá því er Sausen brá sér í vinsælt hlutverk sem útsendari ríkis síns í Brasilíu.
Hermann Sausen vinnur fyrir Auswärtiges Amt í Berlín, sem á sér gamla sögu og alls ekki fallega. Í Síðari heimsstyrjöld voru flestir þýskir diplómatar tengdir einhverjum glæp. En ráðuneytið hefur reynt að þvo hendur sínar með "dýrlingi" sínum honum Georg Ferdinand Duckwitz, sem hefur nú verið veginn og léttvægur fundinn í grein minni í tímaritinu RAMBAM 15: 2006 (ensk samantekt aftast).
Fyrir tveimur árum síðan kom út mikilvæg bók í Þýskalandi. Hún ber heitið, DAS AMT, sem lýsir þessu apparati sem Sausen vinnur hjá ágætlega fyrir og eftir Síðari heimsstyrjöld. Fjórir höfundar bókarinnar hafa meira að segja sýnt að helgi Duckwitz, hins eina "góða, þýska diplómats" var svo sem svo. Hann var rotinn karl niður í rætur, nasisti og síðar þýskur imperíalisti og hrappur sem bjargaði fleiri gömlum nasistum en gyðingum, sem hann sagðist hafa bjargað í Danmörku.
Það grátbroslega er, að lítið hefur breyst. Yfirgangsstefna þýskrar diplómatíu er söm við sig. Við sjáum hvernig Þjóðverjar hóta Grikkjum, en það ekki í fyrsta skipti. Þýskir diplómatar og stjórnmálamenn segja Grikki lata. Það eru þeir ekki Væri það ekki fyrir þann grikk, að þeir létu til leiðast að ganga í ESB og taka upp Evru eins og íslenskir kjánar vilja nú ólmir gera, hefði ekki farið sem fór á Grikklandi. Þegar ég heyri svo Stórþjóðaverja tala niðrandi um Grikki og kalla þá lata, minni ég þá vinsamlegast á þann óskunda sem Þjóðverjar unnu í Grikklandi á 5. áratug síðustu aldar. Hafa Þjóðverjar ekki gert nóg af sér í Grikklandi?
Ef menn hafa tautóníska burði til að lesa bókina Das Amt, mæli ég með því að þeir geri það. Það tekur um 10 vikur með þolinmæði því bókin er um 1000 síður, en í henni geta menn fræðst um stofnun með gamla hefð, sem ekki er endilega nein þýsk hefð. Þýsk utanríkisþjónusta er ekki til fyrir hinn venjulega þjóðverja. Þjóðverjar hafa gert upp við ömurlega sögu sína og yfirgang, en það hefur hin hrokafulla og tvískinnungslega utanríkisþjónusta landsins ekki, en hún er fyrst og fremst til að sjá þýsku Wirtschaft og iðnaði fyrir ódýrasta hráefninu, hvað sem það kostar.
Ef menn lesa bókina Das Amt, skilja þeir af hverju sendisveinar eins og Hermann Sausen eru að ybba kjaft á Íslandi. Nýjar handbækur hans í diplómatíunni kenna honum reyndar betri mannasiði en hann hefur sýnt á Íslandi.
Íslendingum ber ekki að taka við skipunum frá þýskum sendisveini, sem ber að hundskast til síns heima ef honum líkar ekki frjáls umræða á Íslandi, sem er enn frjálst land.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.5.2012 | 07:16
Eru hattar bannaðir í Litháen - eða er gyðingahatur þar enn vandamál ?
Ég kom í fyrsta skipti til borgarinnar Kaunas um síðustu helgi og sótti þar tvær ráðstefnur. Reyndar var mér nú aðeins boðið á eina ráðstefnu, og þar hélt ég fyrirlestur um þann ágæta mann Åge Meyer Benedictsen, sem ég hef áður greint frá hér á blogginu.
Frásögn af ráðstefnunni, sem ég gerðist boðflenna á, en hún var reyndar opin öllum og var boðið til hennar af ríkisstjórn Litháens, hef ég birt á ágætri og mjög nauðsynlegri vefsíðu Dovid Katz fyrrverandi prófessors í Jiddísku við háskólann í Vilníus, sem ber heitið DefendingHistory.Com.
Gagnrýnisrödd Dovid Katz olli því að hann missti embætti sitt í Vilníus, þótt það sem hann upplýsi á heimasíðu sinni sé nauðsynlegur sannleikur. Sá sannleikur, að heimamenn í Litháen, Lettlandi og Eistlandi hafi stundað fjöldamorð á gyðingum í miklum mæli, áður en að Þjóðverjar réðust inni í landið árið 1941, er greinilega erfiður sumum borgurum í þessum löndum og ríkisstjórnum. Þið munið kannski hann Mikson? Hér getið þið skoðað ágæta síðu Holocaust Atlas of Lithuania um fjöldamorðin á gyðingum í Litháen árið 1941.
Ég var um helgina nærri gerður brottrækur úr borgarráðssalnum í ráðhúsi Kaunas, einungis vegna þess að ég var með hatt, og maðurinn, sem réðst að mér, upplýsti mig að ég væri ekki í sýnagógu, samkunduhúsi gyðinga.
Gamli durgurinn (1-3) í brúngræna jakkanum á réðst að mér að tilefnislausu, því ég var með írskan hatt úr tweedi (newsboy hatt) og sömuleiðis upplýsti hann mig að ég væri ekki í samkunduhúsi gyðinga, og endurtók í sífellu orðin "nera sinagóga". Eftir að hann skipaði mér að taka hattinn ofan, sem ég tók ekki í mál, arkaði hann að tveimur vinum sínum í salnum og hvíslaði eitthvað í eyru þeirra. Loks hóf hann að ljósmynda mig. Mest var af gömlu fólki í salnum (4), en ungu fólki hafði einnig verið safnað saman (5) og hafði ráðuneyti boðist til að aka þátttakendum og sér í lagi ungu fólki á staðinn. Stækkið myndirnar með því að klikka á þær.
Ég heimsótti líka samkunduhús gyðinga í Kaunas þegar ég fékk mig fullsaddan af ráðstefnunni í ráðhúsi Kaunas.
Þetta er svo gesturinn í Kaunas með alveg eins hatt og þann sem hann bar í bæjarstjórnarsalnum í Kaunas 19. maí 2012
Hér má lesa grein mína um það sem ég upplifði á ráðstefnu fólks sem hyllti mann sem var forsætisráðherra í litháískri leppstjórn nasista, sem sumarið 1941 undirritaði lög sem gerði mögulegt að smala gyðingum í gettó, að byggja fangabúðir fyrir gyðinga og afnema réttindi þeirra sem Vytautas hinn mikli gaf þeim þegar á 14. öld.
Litháen er ekki stætt á ósóma eins og að hylla einn helsta skósvein nasista og Quisling landsins, og veita honum heiðursútför. Í kjölfar þeirrar árásar sem ég varð fyrir í Kaunas ætla ég með málið til Evrópusambandsins og Evrópuráðsins. Ríkisstjórn lands sem hyllir meðreiðarsvein verstu morðingja 20. aldar er ekki húsum hæf.
Ekki var Jóni Baldvini Hannibalssyni forðum bannað að bera hatt er hann var hetja í Litháen
Åge Meyer Benedictsen, sá ágæti maður, gekk líka iðulega með hatt
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.6.2012 kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.5.2012 | 09:22
Af Barbídúkku Samfylkingarinnar og öðru dóti
Mér finnst heldur til mikið talað um þessa Samfylkingarþóru og forsetadrauma hennar. Hún minnir mig nú mest á snobbaða Barbídúkku af ruslahaug 7. áratugarins, eða miss DDR 1978. Maðurinn hennar er óneitanlega nokkuð líkur afdönkuðum, gráhærðum aksjónmanni sem er búinn að ganga frá því sem honum var ætlað að ganga frá, fyrir aldur fram. Byltingin í sínu fínasta pússi - The Gucci Revolution. En látum ekki útlitið villa okkur sýn.
Mér finnst menn gera mjög lítið úr ættgarði forsetaframbjóðendanna í þetta sinn. Ég hef skrifað tvær blogggreinar til að bæta úr því hér og hér. Þær fjölluðu um ættir eins af álitlegri frambjóðendunum, Ara Trausta Guðmundssonar, og virðist það hafa valdið hríðminnkandi vinsældum hans um allt land, nema það sé vegna þess að hann er ekki með barni eins og Samfylkingarþóra.
En auðvitað á ekki að dæma menn eftir bumbunni eða ættgarðinum, en frekar hinu sem þeir hafa áorkað. Hugsið ykkur ef menn væru að pæla í því að í ætt Samfylkingarþóru væri graður satýr sem frelsaði Eystrasaltríkin undan oki Sovétrússa eftir að hafa sjálfur verið í upplýsingavinnu fyrir Rússa á kiðlingsárum sínum. En ljóst er þó, að Þóra Samfylkingarinnar er með sömu augun og frændi hennar, satýrinn glaði.
Ástþór, nei ég ætla nú ekki að nefna hann, en mér þótti það billegt hjá honum að draga nú fram fermingarstúlkuna Natalíu frá Rússíá, sem hann segist hafa verið kvæntur á 10 ár. Lágar tölur eru greinilega heldur ekki sterkasta hlið Ástþórs Magnússonar.
Í miklu framboði barbídúkka og afkomanda gyðinga frá Þýskalandi og sjálfskipaðra messíasa, svo ég nefni nú þá helstu, þá líst mér nú enn best á Ólaf Ragnar með alla sína mannlegu galla - nema þá að þjóðin vilji í barbíleik á Bessastöðum með Þóru og Svavari?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.5.2012 kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 7
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 1355465
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007