Leita í fréttum mbl.is

Davíđ og Golíat

chargedaffaires

Davíđ Oddsson ritstjóri Morgunblađsins gerir sér sem betur fer grein fyrir ţví, ađ Ţýskaland er herraţjóđin í ESB, og sendiherra Ţýskalands Hermann Joseph Sausen telur sig greinilega vera í farabroddi sendiherra ESB-landa á Íslandi, ţegar svarađ er gagnrýni á uppivöđsluhátt ESB á Íslandi. Myndin hér er frá ţví er Sausen brá sér í vinsćlt hlutverk sem útsendari ríkis síns í Brasilíu.

Hermann Sausen vinnur fyrir Auswärtiges Amt í Berlín, sem á sér gamla sögu og alls ekki fallega. Í Síđari heimsstyrjöld voru flestir ţýskir diplómatar tengdir einhverjum glćp. En ráđuneytiđ hefur reynt ađ ţvo hendur sínar međ "dýrlingi" sínum honum Georg Ferdinand Duckwitz, sem hefur nú veriđ veginn og léttvćgur fundinn í grein minni í tímaritinu RAMBAM 15: 2006 (ensk samantekt aftast).

Das Amt

Fyrir tveimur árum síđan kom út mikilvćg bók í Ţýskalandi. Hún ber heitiđ, DAS AMT, sem lýsir ţessu apparati sem Sausen vinnur hjá ágćtlega fyrir og eftir Síđari heimsstyrjöld. Fjórir höfundar bókarinnar hafa meira ađ segja sýnt ađ helgi Duckwitz, hins eina "góđa, ţýska diplómats" var svo sem svo. Hann var rotinn karl niđur í rćtur, nasisti og síđar ţýskur imperíalisti og hrappur sem bjargađi fleiri gömlum nasistum en gyđingum, sem hann sagđist hafa bjargađ í Danmörku.

Ţađ grátbroslega er, ađ lítiđ hefur breyst. Yfirgangsstefna ţýskrar diplómatíu er söm viđ sig. Viđ sjáum hvernig Ţjóđverjar hóta Grikkjum, en ţađ ekki í fyrsta skipti. Ţýskir diplómatar og stjórnmálamenn segja Grikki lata. Ţađ eru ţeir ekki  Vćri ţađ ekki fyrir ţann grikk, ađ ţeir létu til leiđast ađ ganga í ESB og taka upp Evru eins og íslenskir kjánar vilja nú ólmir gera, hefđi ekki fariđ sem fór á Grikklandi. Ţegar ég heyri svo Stórţjóđaverja tala niđrandi um Grikki og kalla ţá lata, minni ég ţá vinsamlegast á ţann óskunda sem Ţjóđverjar unnu í Grikklandi á 5. áratug síđustu aldar. Hafa Ţjóđverjar ekki gert nóg af sér í Grikklandi?

Ef menn hafa tautóníska burđi til ađ lesa bókina Das Amt, mćli ég međ ţví ađ ţeir geri ţađ. Ţađ tekur um 10 vikur međ ţolinmćđi ţví bókin er um 1000 síđur, en í henni geta menn frćđst um stofnun međ gamla hefđ, sem ekki er endilega nein ţýsk hefđ. Ţýsk utanríkisţjónusta er ekki til fyrir hinn venjulega ţjóđverja. Ţjóđverjar hafa gert upp viđ ömurlega sögu sína og yfirgang, en ţađ hefur hin hrokafulla og tvískinnungslega utanríkisţjónusta landsins ekki, en hún er fyrst og fremst til ađ sjá ţýsku Wirtschaft og iđnađi fyrir ódýrasta hráefninu, hvađ sem ţađ kostar.

Ef menn lesa bókina Das Amt, skilja ţeir af hverju sendisveinar eins og Hermann Sausen eru ađ ybba kjaft á Íslandi. Nýjar handbćkur hans í diplómatíunni kenna honum reyndar betri mannasiđi en hann hefur sýnt á Íslandi.

Íslendingum ber ekki ađ taka viđ skipunum frá ţýskum sendisveini, sem ber ađ hundskast til síns heima ef honum líkar ekki frjáls umrćđa á Íslandi, sem er enn frjálst land.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Sigurđsson

Stór merkilegt Vilhjálmur. En hvađ er "tautóníska burđi? "

Óskar Sigurđsson, 26.5.2012 kl. 19:44

2 Smámynd: Guđmundur Kjartansson

Citadel gagnrýnnar hugsunar á blog.is 

Er ţađ annars ekki sögulegt jartekn ađ uppreisnin gegn hinni "hugprúđu veröld" muni hefjast í Grikklandi?

Aldous Huxley gerđi Íslandi skil í bók sinni um hina hugrökku veröld ... ţangađ voru andófsmennirnir sendir. 

Verst er ađ hugsa til ţess ađ ţegar andófsmennirnir flýja Sykurnammifjalliđ til Íslands, ţá mćtir ţeim hópur af bjánum á flugvellinum sem spyrja: "Hádjúlćkćsland?" .... og svo ađ ćđsti valdamađur í andófinu er gamall kommúnsti, stjórnleysingi,trúleysingi og öfundapamfíll sem búinn er ađ leggja niđur ţingćđiđ í elsta ţingrćđisríki veraldar, ......... ađ Grikklandi einu undanskildu.

Áfram frjálst Grikkland!

Guđmundur Kjartansson, 26.5.2012 kl. 20:00

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband