Leita í fréttum mbl.is

Socialism, hypnotism

Sex léttar fyrir Stebba friðarsinna

Einn smásmugulegasti Smugupenninn virtist heldur betur taugaveiklaður er ég kom í heimsókn á bloggið hans og spurði hann sex einfaldra spurninga um stríð og frið og fréttir af Vesturvígstöðvunum.

Innlegg Stefáns Pálssonar í forsetaframboðsumræðuna er ekki af lakara taginu. Sem argur stuðningsmaður Samfylkingarþóru vildi þessi blómlegi friðarsinni með færslu sinni á smáSmugubloggi sínu að setja Ólaf Ragnar Grímsson forseta á sakamannabekk með verstu „stríðsglæpamönnum" Íslands.

Ykkar einlægur setti því snemma að morgni 17. júní athugasemd á opna umræðu hjá Stefáni Pálssyni friðarsinna og herstöðvarandstæðingi. Opin var umræðan ekki fyrir alla og Stebbi gerði sér lítið fyrir og útrýmdi mér og spurningum mínum, sem hann getur náttúrulega ekki svarað, þar sem ég er stuðningsmaður Dorritar og Ólafs og vel æfður í að sjá í gegnum líðskrum friðsams "fiðurfjár". Stefán sýndi þarna gamla takta úr fósturlöndum hugmundafræði sinnar. Ritskoðun er eitt sterkasta vopn friðarins í tæpum heimi manna eins og Stefáns Pálssonar.

Stefán Pálsson er því miður bara vesæll dindill á morðapparati sem sumir hafa kallar hugsjón og Stebbi "friðarsinni" veit það ósköp vel. Friðarsinni er hann ekki meiri en Pétur og Páll og blóð drýpur af sérhverju því máli sem hann styður í einfeldni sinni. Þess vegna þessi ritskoðun og eyðing, þegar hann fær erfiðar spurningar og heimur hans hrynur í spað. Stebbi getur hvorki svarað né gert af því að hann er svo tæpur, eins og friðurinn sem hann boðar. Friður Stebba kostar nefnilega fleiri líf en hann bjargar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En óréttlátt! Hann virðist beita sömu brögðum og annar maður sem við þekkjum:

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=192326&pageId=2560094&lang=is&q=Pr%FA%F0b%FAi%F0%20rangl%E6ti

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 21:02

2 identicon

....issumpiss. Notar hann sömu aðferðir og þú?

Jóhann (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 22:03

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Elín Sigurðardóttir. Ég sé ekki hvað grein frá 1989 eftir Ellert B. Schram kemur ritskoðun hjá Stefáni Pálssyni við.

Jóhann, þetta tal um kjóann er þá rétt...dæmigerður andstæðingur ÓRG, maður sem getur ekki lesið. Elín var að vitna í Ellert B. Schram, ekki í mig.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.6.2012 kl. 23:08

4 identicon

Allir sitja við sama borð - en þó ekki. Sumum er hent út en öðrum ekki. Grein Ellerts fjallar um prúðbúið ranglæti. Lastu hana ekki?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 00:09

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jú, ég las hana og hún er einkennileg. Ég sé ekki hvað lög og ákvæði um brot manna á Íslandi á við yfirlýstan friðarsinna sem ekki vill svara spurningum um stríð og hernað eftir að hann hefur klínt því á forseta Íslands að sé ábyrgur fyrir hernaðaríhlutun í Írak, sem íraska þjóðin er að meirihluta til þakklát fyrir. Að blanda skattamálum á Íslandi árið 1989 við ásakanir rugludalls sem sakar forseta um aðild Íslands að hernaðaríhlutun í Írak eins og væri það höfuðglæpur er ALGJÖR siðblinda. En það kemur mér ekkert á óvart. Siðblinda hrjáir marga vinstri menn og er það kannski þess vegna að Samfylkingarþóra vill ekki samspyrðast Samfylkingunni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2012 kl. 05:24

6 identicon

Þú hefur ekki lesið greinina nógu vel Vilhjálmur Örn. Mismunun er höfuðatriði greinarinnar. Það er höfuðglæpur að mismuna mönnum. Að refsa sumum en öðrum ekki fyrir sama brot ber vott um siðblindu. Takk fyrir að benda á það augljósa.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 08:40

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Menn sem svíkja undan skatti eða greiða ekki gjöld til samfélagsins ættu ekki að vera að tala um mismunun. Þeir stuðla að því að jöfnuðurinn í þjóðfélaginu er ekki eins hann á að vera.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2012 kl. 08:56

8 identicon

Ertu að segja að Ellert svíki undan skatti - til varnar Ólafi?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 09:06

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Æi Elín, nú er nóg komið. Þú dregur fram grein eftir einhvern Schram, sem þú hefur greinilega ekki lesið. Þér til upplýsingar er Ellert Schram að skrifa um söluskattsskuldara.

Það kemur gagnrýni minni og spurningum beint til Stefáns Pálssonar ekkert við. Söluskattskuldarar draga úr jöfnuðu í þjóðfélaginu, því þeir halda eða missa peninga sem áttu að ganga til þjóðfélagsins. Það var atvinna ÓRG að innheimta þessi gjöld, svo samfélagið, en ekki bara einhverjir þjófar, mættu njóta góðs af þeim reglum og lögum sem við höfum til að hafa þjóðfélag.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2012 kl. 10:26

10 identicon

En nú var Ólafur Ragnar formaður Alþýðubandalagsins á sínum tíma og sagði m.a. að Dabbi kóngur væri með skítlegt eðli.  Styður þú hann samt?

Skúli (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 14:18

11 identicon

Sæll Vilhjálmur

Án þess að hafa nennt að skoða sérstaklega hvernig athugasemdakerfið á Smugunni er upp byggt, held ég að ég hafi engin stjórnendaréttindi til að eyða athugasemdum. Í það minnsta hef ég aldrei eytt athugasemd frá því að ég fór fyrst að skrifa á þetta vefrit. Hafi athugasemdum þínum verið fargað, þá hefur það verið gert af vefstjóra án minnar aðkomu.

Skal forvitnast um málið, því mér er illa við að athugasemdum sem skrifaðar eru undir fullu nafni sé eytt af svona spjallsvæðum. Því síður myndi mér detta í hug að eyða innleggi eftir þig, þar sem þú ert einn af mínum eftirlætisbloggurum, þótt ég sé sjaldnast sammála þér í pólitík.

Kveðja,

Stefán Pálsson

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 23:49

12 identicon

En svo ég svari spurningunum:

1. Nei

2. Ertu að tala um 1992 eða 1999? Ef þú átt við seinna stríðið finnst mér sérstaklega augljóst að íhlutun Nató var síst til þess fallin að leysa málin.

3. Eh? Ég held að þú sért eini maðurinn sem hefur látið sér detta í hug hernaðarinngrip Nató í Súdan.

4. Þessi spurning ber með sér að vera tilraun til að skora pólitískar keilur gegn Ingibjörgu Sólrúnu - svo ég leiði hana hjá mér.

5. Ég tel að hernaðurinn og þar á undan viðskiptabann á Írak sem kostaði smkv. nokkuð trúverðugum heimildum milljón manns lífið á áratug, hafi verið herfileg ákvörðun og er ekki undir neinum kringumstæðum til í að leggja blessun mína yfir slíkt blóðbað.

6. Ég vona það.

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 19.6.2012 kl. 01:31

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Stefán, mikið þykir mér vænt um að heyra að það varst ekki þú sem ýttir á eyðingahnappinn til að fjalrægja athugasemd mína við stuðningsinnlegg þitt við Þóru Arnórs, og þakka þér sömuleiðis fyrir svörin, sem ég leyfi mér að kommentera á.

1. Gott er að frétta að þú samgleðst mér með fjarvist Saddams og sona hans úr jarðlífi. Það voru leiðinlegir gaurar og Gaddafí líka, þó svo að manni hafi blöskrað blóðþorsti þeirra sem hann hafði haldið undir hæl sínum.

2. Ég átti við 1999. Þú hefði kannski viljað fara sömu leið og danski rithöfundurinn Klaus Rifbjerg, sem mælti með því í fúlustu alvöru í ágúst 1999 (Berlingske Tidende), að viðræður yrðu teknar upp við Milocevic og hans skósveina líkt og menn hófu viðræður við frammámenn Þriðja ríkisins til að freista þess að kaupa út fólk sem var verið að myrða í útrýmingarbúðum nasista? Ég svaraði Rifbjerg á sínum tíma í álíka stórri grein og hann skrifaði. Hann svaraði ekki, því í ljós kom umfang voðaverka þeirra sem Rifbjerg og meðlimir and-NATÓ elítunnar í Danmörku vildu ræða við. Gagnrýnin þagnaði.

3. Nei, hinn mikli friðarpostuli Alex de Waal hafði að minnsta kosti talað við aðra en mig sem hafði dottið í hug að hernaðaríhlutun í öfgaríkið Súdan myndi leysa vanda íbúa í Darfúr. De Waal taldiheppilegra að nota "friðargæslu". En friðargæslan skilaði engu öðru en enn verra þjóðarmorði í Súdan en ef NATO hefði beitt kröftum sínum. Arababandalagið var svo verndari morðingjanna og enn er verið að drepa fólk í Vestur-Súdan. Með aðgerðaleysi umheimsins sitja enn við völd morðingjar sem segja að 9000 manns hafi fallið í átökum meðan sumir sérfræðingar telja að um 450.000 manns hafi látist af völdum árása og afleiðinga þeirra í Darfúr og vinir Öræfaíslendinga, Kínverjar, og rauða keisarapútan í Kreml senda enn vopn í stórum stíl til hinna stríðandi hópa. Kynntu þér einnig Darfur Peace and Accountability Act sem Sameinað þing BNA samþykkti árið 2006. Þar er íhlutun NATO ekki útilokuð.

4. Þið, stuðningsfólk öfga í Miðausturlöndum, eruð öll fallnar keilur. Assad hlær að einfeldni ykkar og þakkar sínum Allah fyrir friðargæslu ykkar, allt til þess að hann verður hengdur og druslulegt lík hans verður dregið á eftir jeppa um rykugar götur einhvers afkima á Sýrlandi. Þá munuð þið örugglega fordæma á fullu og finna tilheyrandi syndahafur, og ekki myndi það undra ef hann yrði sá sami og uppáhaldsblóraböggull Assads - Ísrael

5. Ég skil skoðun þína á Írak, en ég treysti betur skoðun Íraka á þeirra innanríkismálum og vanda. Vandinn er ekki hernaðaríhlutun sú sem Ísland tók þátt í. Vandinn er óheyrilegt ástand í þessum heimshluta þar sem fjöldi fylkinga berjast um völd á miðaldavísu og það sem frelsi er fótum troðið og virðing fyrir mannslífum sama og engin. 

6. Kannski spyr einhver Þóru Arnórs, en ég býst ekki við svörum, því hún segir að Forsetar eigi ekki að blanda sér í neitt. Þegar hún er búin í barnsburðarleyfinu og aftur farin í fréttamennskuna er líka vonandi að hún spyrji sig sjálf hvað hún styður úti í hinum stóra heimi. Styður hún illmenni og einræðisherra fram í rauðan dauðann, ellegar öfl sem skapað geta frelsi fyrir kúgaða íbúa landa þar sem málfrelsi er ekki til og þar sem menn eru dæmdir í 15 ára fangelsi ef þeir hringja í vini á SKYPE.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.6.2012 kl. 07:53

14 identicon

Rétt örsnöggt varðandi atriði 2:

Það er ágætt að halda því til haga að útkoman úr Kosovo-stríðinu varð nánast sú sama og Rambouillet-samkomulagið sem Serbar samþykktu en Kosovo-Albanir höfnuðu. Það stríð var því gjörsamlega tilgangslaust og gerði ekki annað en að framlengja dvöl Milosevic í embætti, illu heilli.

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 19.6.2012 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband