Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Kerlingabækur í kvenrembuþjóðfélagi

Rumour

 

Tæpri viku eftir að öllum Íslendingum varð það ljóst, að allar sögusagnirnar sem komist höfðu á kreik um hvarf og meint morð á Rögnu Esther Sigurðardóttur (sem síðar hét Radna Esther Isholm Vickers), er blaðið The Oregonian í Oregon-fylki í Bandaríkjunum með frásögn og sannleikann um örlög Rögnu.

Blaðamaðurinn Anne Saker á The Oregonian gerði í fyrra óhemjumikið úr morðórum Melissu Gavin. Melissa hefur teflt fram þeirri sögu, að faðir sinn hefði myrt Rögnu Esther með köldu blóði. Anne Saker hefur sem betur fer ekki velt sér upp úr þeim órum í þetta sinn og í staðinn hlutað á Lillý Valgerði Oddsdóttur sem hefur unnið ómetanlegt og óeigingjarnt starf fyrir ættingja Rögnu af hreinni samkennd. Anne Saker hefur einnig að ósk dóttur Rögnu, Lou Ann LeMaster, ákveðið að nefna ekki bók Melissu sem fjallar um morð sem aldrei átti sér stað. Fólk getur auðvitað ekki myrt fólk í bókum og komist upp með það.

Ég fæ heldur ekki skilið, hvernig fólk getur fengið sig til að þéna á sölu bókar, þar sem nafngrind er kona sem dó árið 2002, og sögð hafa verið myrt með hnífi á 6. áratug 20. Það er ekki eðlilegt. En sumir fjölskyldumeðlimir Rögnu á Íslandi tóku ekki annað í mál og frábáðu sér aðstoðar fólks sem að lokum tókst að finna hið sanna í málinu. Þeir sem drógu morðtilgátur í vafa voru húðskammaðir.

Bækur um fantasíumorð, sem ættingjar þess myrta frábiðja sér útgáfu á, ber manni ekki að kaupa, því það er spilað á ljótar kenndir. Græðgin er rétt handan við hornið.

RÚV/Sjónvarp hefur svo sannarlega enn einu sinni sýnt sína verstu hlið. En fréttamenn þar kynntu bókina með morðákærunni rækilega, daginn eftir að greint hefur verið frá því að morðið í bókinni hefur aldrei átt sér stað. Höfundurinn kom líka fram í ókeypis bókakynningu í Kastljósi. 

Allt þetta mál er svo siðlaust, að það tekur engu tali. En kjarni málsins er, að fyrir fjölda Íslendinga er það trúarbrögð að Kaninn, sem kom í stað Hitlers (sem sumir Stóríslendingar þráðu miklu frekar en Tjalla og Kana), hafi verið vondur. Og ef maður er kona í þokkabót er ekkert sjálfsagðara en að trúa því að vondur Kani hafi  myrt íslenska konu sína. Þeir elskuðu þær út af lífinu. Kanar og karlar  eru sannanlega með því versta á Íslandi og það er veiðileyfi á slík fyrirbæri í íslensku þjóðfélagi sem verður meira og meira matríarkalt og estrógent. Í slíkum þjóðfélögum þrífst kvenpeningurinn á ljótum bókmenntum um vonda karla og Kana, því konur eru víst svo friðsamar. Algjört dauðaklám selst grimmt og konur gerast vinir „myrtra" kvenna á Facebook Rögnu Estherar Sigurðardóttur, Bdvrr Shocking Allar elítur hafa eitthvað á hornum sér og eru konur engin undantekning. Nú vitið þið það. Jafnvel þessi karlremba hefur fengið nóg.

 

Indíánar og sifjaspell eiga líka sök á örlögunum

Í nýjast tölublaði Fréttatímans er eftirfarandi haft eftir höfundi bókarinnar þar sem Ragna er myrt en þar sem hún lýsir einnig hræðilegri sögu sinni af sifjaspelli:

"Melissa rekur þessa sifjaspellshefð langt aftur í tímann en í æðum hennar rennur Cherokee-indíánablóð sem hún erfði frá föður sínum. „Þegar verið var að flytja Cherokee-indíánanna á verndarsvæðin 1838 sluppu einhverjir þeirra á leiðinni, þar á meðal forfeður mínir, og settust að hjá landnemum. Og þar hófst sifjaspelllið til þess að halda kynstofninum hreinum. Þetta þróaðist svo kynslóð eftir kynslóð og hefur náð skelfilegu hámarki í föður mínum."

Ekki veit ég hvort þetta kemur fram í bókinni sem á að selja á Íslandi í óþökk dóttur myrta "fórnalambsins" í bókinni. En þetta er skelfileg yfirlýsing. Ef Melissa Gavin telur að sifjaspell sé til þess fallið að halda "kynstofni hreinum", hefur hún varla stundað hrossrækt eins og hún heldur fram.

Nú er búið að loka Facebook Rögnu myrtu, en hér er mynd af henni þegar hún varðaði enn ekki við lög. Hægt er að stækka með því að klikka á myndina:

Ragna Facebook fyrir lokun

40 ár frá því að Palestínumenn sýndu hvað þeir vildu

40 years
 

Það var erfitt fyrir RÚV/Sjónvarp að minnast hryðjuverka Palestínumanna á Ólympíuleikunum í München árið 1972. Fréttin var send sem íþróttafrétt í lok kvöldfrétta Sjónvarpsins þann 5. september 2012.

Árið 1972 notuðu óþekku börn heimsins, sem Össur Skarphéðinsson og aðrir öfgaástarmenn hafa nú tekið ástfóstri við, vettvang friðar og helsta íþróttaviðburð jarðarbúa til að koma framfæri baráttumáli sínu: Útrýmingu Ísraelsríkis.

Fyrst í gærkvöldi, á 40 ára „afmæli" hryðjuverkanna, sá RÚV ástæðu til að minnast þeirra.

Fjölmiðlar um allan heim hafa minnst atburðanna og greint frá þeim í beinum tengslum við Ólympíuleikana í London. Á ríkisfjölmiðli Íslendinga er þessi frétt hins vega sett aftast í íþróttafréttum, meðan frændurnir Stuart Cornfeld og Ben Stiller fá að lýsa frábæru veðri og ágæti Íslendinga í heilar tvær mínútur. Þeir vita ekki hvaða skíthælar stjórna RÚV.

Á Íslandi vilja menn heyra það sem þeir vilja heyra.

Ice Stu
Stillirinn

Illugi sér rautt

Illugi 2
 

Siðapostulinn Illugi Jökulsson skrifaði pistil um daginn á blogg sitt sem hann kallaði bara Ísrael. Þessi fallegi og látlausi titill hans var næg ástæða fyrir mig til að vera viss um að ekki væri allt með felldu, og það sem fyrir neðan stæði væri vart ægifagurt, enda Illugi enginn sérstakur vinur Ísraelsríkis. Ég hafði rétt fyrir mér. Ég setti því þessa athugasemd hjá Illuga: 

Til skamms tíma var mikil ásókn Íslendinga til hinna "yndislegu" ríkja al-Assads, Ghaddafís og Amadinejads. Íslenskir ellilífeyrisþegar flykktust þangað undir skeleggri stjórn konu nokkurrar sem minnir mig alltaf ógurlega mikið á Illuga Jökulsson.

Í þessum löndum er útrýming Ísraels orðið að skólaefni. Í skólaatlösum landanna er þegar búið að útrýma Ísraelsríki af öllum kortum. Það var gert fyrir löngu.

Vinsælustu sjónvarpsseríurnar eru svo ógeðslegar í garð Ísraelsríkis og gyðinga, að þær skjóta óþverra 3. Ríkisins og gjörvöllu gyðingahatri kaþólsku kirkjunnar ref fyrir rass.

Í Palestínu þeirri, sem sumir Íslendingar hafa gert að gæluverkefni, eru slíkar sjónvarpsseríur afar vinsælar. Skrílslegar og rasískar skopteikningar í garð gyðinga og Ísraelsmanna hafa þar verið aðal skemmtiefnið allar götur síðan á 4. áratug síðustu aldar. Það voru þær líka í kommúnistalöndum Austur-Evrópu, þar sem óþverrinn úr Der Stürmer var endurunninn í Prövdu og Izvestia.

Hamas, sem Ísland er komið í stjórnmálasamband við með hjálp ofstækismannsins, Palestínupáfans og ESB-mógúlsins ÖS, hefur útrýmingu Ísraels á dagsskránni. Styðja óhugnanlega margir múslímar, sama hvaðan þeir koma, þann hatursboðskap.

Illugi Jökulsson verður að gera sér grein fyrir því, eins sögufróður maður og hann er, að gyðingahatur var til staðar í miklum mæli í löndum múslíma í Miðausturlöndum fyrir stofnun Ísraelsríkis - og það var það líka á Íslandi, eins og Illugi veit manna best.

Gaman var að fá að vita, hvaða sjónvarpsseríur Illugi Jökulsson "fílar", en skrítið að sjá mann sem ekki fílar Ísrael  þótt hann hafi sjálfur ferðast ógagnrýnið  með fyrrnefndri konu til landa fjöldamorðingjanna al-Assads, Ghaddafís og Amadínejads og þótt þar fínt og sætt.

Er ekki kominn tímt til að Illugi fari til Ísraels og uppgötvi sannleikann. Illugi er nefnilega haldinn blindu ofstæki í garð Ísraels eins og margir samflokksmenn hans á Íslandi.

Segðu mér eitt, Illugi, er ríki sem veitir yfir 100.000 Palestínumönnum frá Vesturbakkanum og Gaza læknisþjónustu sl. ár stjórnað af ofstækisfólki? Systir og mágur Ismails Hanyeh, foringja Hamas á Gaza, sóttu sér t.d. lækningu á sjúkrahúsi í Petah Tikva fyrr í þessum mánuði. Og þú talar um ofstæki... 


Fréttastofa Írans í Efstaleiti

ahmajinedad_nuclear
 

Hvernig má það vera að fréttamaður á RÚV telji sig vita að Ísraelsmenn hafi drepið íranska kjarnorkusérfræðinga? Hefur fréttamaðurinn eitthvað máli sínu til stuðnings?

Í sjónvarpsfréttum í gær kom það fram í framsetningu Gunnars Hrafns Jónssonar, sem er stjúpsonur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að talið sé að síendurtekin hryðjuverk gegn Ísraelsmönnum um heim allan séu að undirlagi Írans og að Írans sé að „hefnd fyrir ítrekuð morð ísraelsku leyniþjónustunnar á írönskum kjarnorkuvísindamönnum". Hlustið og horfið hér á enn eina fréttasköpun Gunnars Hrafns.

RÚV hefur greinilega mikilvægar upplýsingar sem fréttastofan ætti vitaskuld að miðla af. Eða kannski er vandamálið bara að RÚV er með fréttamann sem ekki getur greint á milli raunveruleikans og ævintýranna í 1001 Nótt, þegar kemur að fréttaflutningi þeirra af Miðausturlöndum.

Engin sönnun eða viðurkenning hefur borist fyrir því að Ísraelsmenn hafi staðið á bak við dráp á írönskum kjarnorkusérfræðingum. Aðeins er um að ræða getgátur og stundum illkvittnar sögusagnir, sjá hér

Íranar kenna Ísraelum og gyðingum um allt sem miður fer í heimi hér, og lítill fréttasnápur á RÚV virðist vera á mála hjá Íransstjórn, með því að greina frá því gagnrýnislaust að Íranar hafi með morðum sínum á saklausu ferðafólki í Búlgaríu verið að hefna sín fyrir nokkra kjarnorkusérfræðinga. Slík fréttamennska er ekkert annað en hryðjuverk.

Hefur Gunnari Hrafni, Íranskrummar, og hinum álfunum á RÚV aldrei dottið í hug, að í Íran sé að gerjast öfl sem ætli sér að steypa ógnarstjórninni þar af stóli, líkt og við höfum séð annars staðar í heimi öfganna, þó með misjöfnum árangri. Fólk er búið að fá nóg undir járnhælnum á Amajinidahd og öfgaklerkanna. Sama má með vissu segja um fólk á Íslandi undir járnrassi Jóhönnu stjúpmömmu Gunnars Hrafns. Fólk er búið að fá nóg á lygum stjórnarinnar og fréttastofu hennar.

En hverju er hægt að búast við í landi þar sem flóttamenn frá Íran eru ekki teknir alvarlega?


Pussubarningur í Reykjavík

Pussi Riot Reykjavík 6
 

Rússland er glæpaveldi sem óhemjumargir Íslendingar vilja hanga í pilsfaldinum á. Það er því ógeðfellt að verða enn einu sinni vitni að skítlegri framkomu íslenskra löggæslumanna, sem starfa alveg eins og kollegarnir í Pútín-Rússlandi, að minnsta kosti þegar þeir berja á mótmælendum við rússneska sendiráðið í Reykjavík. Aðfarir löggunnar að mótmælendum við rússneska sendiráðið um daginn var ljótt dæmi um vinnubrögð íslenskrar löggæslu. Ekki er útilokað að á vakt hafi verið sérstaklega óstilltir og illa gefnir einstaklingar innan lögreglunnar, en framkoma sú sást í frétt RÚV bendir til þess að enn fylkist illa gefnir aðilar í þessi mikilvægu og illa launuðu störf í þjóðfélaginu.

Það má einnig undra, að Íslendingar taki fyrst við sér í mótmælum gegn ógnarstjórn rússneska KGB-keisarans Pútíns, þegar brotið er á mannréttindum meðlima Pussy Riot, femínístískrar pönkhljómsveitar með sýningargirnd. Er aðeins mótmælt þegar atvinnu- og uppákomufemínistum er illt í pussunni? Eðlilegra hefði verið ef stöðugar mótmælastöður hefðu verið við sendiráð Pútu-zarsins í Reykjavík. Rússland er eitt versta  glæpaveldið í heiminum í dag, sem heldur verndarhendi yfir ógnarveldum eins og Íran og Sýrlandi.

Ekki er lengi síðan að ungt fólk, og það sem telur sig réttsýnna en annað fólk, sá hjá sér þörf að sigla á bátum til Gaza. En nú virðist enginn vera að undirbúa sig í úlfaldareisu til Damaskus til að berjast við gamlan vin og bandamann Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, al Assad, sem virðist lifa eftir mottóinu: Eitt fjöldamorð á dag kemur skapinu í lag. Enginn talar heldur um að slíta stjórnmálasambandi við Sýrland eða hjálparkokkinn í Moskvu.

Eitraði zarinn í Moskvu er helsti stuðningsmaður morðingjans á Sýrlandi, og vænt væri að sjá íslensk ungmenni mótmæla við rússneska sendiráðið vegna þess, en ekki bara vegna handtöku Pussy Riot. Ég ætla líka að vona, að Pussy Riot sé einnig að mótmæla stuðningi Pútíns við þjóðarmorð í Miðausturlöndum eins og svo mörgu öðru, sem og að Pútín haldi þeim ekki í dýflissunni eins og þúsundum öðrum, sem ekkert hafa til saka unnið en að minna kvikindið á, að hann er skriðdýr úr forarpytt sovétmorðveldisins.


Íslenskir hryðjuverkamenn í Mónakó

3895889638
 

Nú er íslenska ógæfustjórnin aftur farin að senda frá sér skilaboð. Ekki þó til Íslendinga, heldur alla leið til Palestínu og Ísraels. Þegar maður getur ekki leyst vandamálin heima fyrir, er auðvitað ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur. Stjórnin er með „stórt hlutverkið á meðal þjóðanna" og ætla sér að leysa öll heimsins vandamál, áður en hún leysir vandann heima fyrir. Allir vita jú, að réttur Hamas á Gaza til að útrýma Ísraelríki, og eigin þjóð í leiðinni, er mikilvægari en vandi atvinnuleysingjans á Íslandi.

Það var ekki nóg að sækja stuðning fyrir setu Íslands í Öryggisráði SÞ hjá óbótamönnum sem sérhæfa sig í fjöldamorðum á eigin þjóð. Örvingluð og ráðalaus ríkisstjórn hefur nú sent tvö hirðfífl sín á ÖSE-ráðstefnu í Mónakó til að leika af sér í spilavítisborginni. ÖSE stendur reyndar ekki fyrir Össur Skarphéðinsson Europe (þ.e.a.s. ESB), heldur hið gagnstæða. Stofnunin ber heitið OSCE, Organization for Security and Co-operation in Europe. Verkefni þessarar stofnunnar er ekki hægt að misskilja, nema að menn séu rauðklæddir sveinar frá Íslandi.

Guð blessi Ísland

Palestínubjörn

Róbert Marshall og Björn Valur Gíslason voru sendir á þing OSCE í Mónakó sem lauk í dag. Þar sýndu þeir alheiminum að Íslendingar eru meistarar í rússneskri rúllettu. Eina málið sem brann á íslensku útsendurunum var óbein OSCE-aðild Palestínumanna og Palestínuríkis, sem Íslendingar og nokkur önnur öfgaríki hafa viðurkennt.

En hafa trúðarnir Marshall og Björn Valur ekki séð, að hlutverk OSCE er t.d. að berjast gegn hryðjuverkastarfssemi, sem og  fyrir eftirliti með vopnasmygli, eða fyrir lögmætum kosningum sem aldrei hafa þekkst í Palestínu? Allt það sem OSCE á að berast fyrir, er brotið á bak aftur af Palestínumönnum. Í landinu Palestína mega til að mynda ekki búa gyðingar. OSCE berst gegn slíku kynþáttahatri og mismunun.

Spurningin er, hvort Marshallinn, sem setti fram tillöguna í Mónakó, vilji ekki líka fá ræfilstuskuna hann Assad inn í OSCE? Hann var að minnsta kosti nógu góður fyrir Samfylkinguna þegar hún leitaði til hans hér um árið og hélt pönnukökuveislu í New York til að koma Íslandi inn í Öryggisráðið, svo Imba gæti kosið Ísraelsríki út af landakortinu með öðru öfgafólki heimsins.

Imba abbast
ISG_og_Assad_edited-1

Naumur meirihluti kom sem betur fer í veg fyrir morðárás íslensku hryðjuverkasinnanna, með því að stöðva aðild Palestínumanna að OSCE.

Þátttaka „Palestínuríkis" nú væri alvarlegt slys og tímaskekkja, enda er Palestína ekki ríki nema á Íslandi. Meirihlutinn sem hafnaði tillögu Marskálks, veit að óskir hans verða ekki að veruleika í Palestínuríki, þar sem slíkt ríki á svo fátt sameiginlegt með ríkjum þeim sem eiga aðild að OSCE.

Nú, þegar íslamska vorið er að snúast í heitasta sumar sem sögur fara af, er einkennilegt að sjá vinstri menn frá Íslandi ganga erinda öfgaríkja. Það sama hvaða öfgafylking það er, í löndunum umhverfis Ísrael sameinast menn í að traðka á mannréttindum eigin borgara, kvenfrelsi, trúfrelsi og alþjóðlegum lögum og stráfella borgara í sínu eigin landi. Allar þessar stríðandi fylkingar kringum eina lýðræðisríkið á svæðinu geta þó sameinast um eitt: að vilja útrýma Ísraelsríki og gyðingum. Hitler hefði líklega verið kátur ef hann hefði upplifað að sjá heilu þjóðirnar, með stuðningi Íslands, ljúka því sem hann byrjaði á.

Marshall og Björn Valur reyndu sitt besta til að auka á sundrungu og glundroða í Miðausturlöndum. Þeir ætla sér að gera nýtt áhlaup að ári til þess að efla öfgastefnur og hryðjuverk sem gæluverkefni í OSCE. Við þurfum þó ekki að horfa upp á fleiri mistök ríkisstjórnar sem styður helstefnur hryðjuverkastjórna. Hægt er að koma veg fyrir að Marshall og Bjössi bolla verði sendir á OSCE-þing í Albaníu að ári. Kosningarétturinn er enn í gildi á Íslandi.


Ótakmarkað vald Sigurðar Líndals

Bokahilla Líndals

Samfylkingin ærist nú mikinn eftir sigur Ólafs Ragnars í forsetakosningunum. Svo mikið er fárast, að sumir telja sig til knúna að hafa samband við hinn alvitra.

Hvernig menn treysta mati manns sem stolið hefur upphafrétti á ljósmyndum í bækur sem hann ritstýrði, skil ég ekki?* Ég treysti ekki smákrimmum sem stilla sér upp fyrir framan bókahillur og þykjast fullir af hinum endanlega sannleika. Veit ég að Líndal hefur nærri fellt afburðastúdenta á munnlegum prófum í réttarsögu, ef stúdentinn leyfðir sér að minnast ekki á ómarktækar niðurstöður Sigurðar. Ég gef nú ekki mikið fyrir álit slíkra hégómlegra smásála.

Hve lengi á að leita álits Sigurðar Líndals? Tjah, ég er hræddur um að jafnvel eftir að Líndal er allur muni ákveðnar týpur ganga um og tala um hvað  „Sigurður Líndal hefði álitið" og hvað "Líndal hefði sagt". Líndal er orðinn stofnun hjá fólki sem getur ekki hugsað sjálfstætt. „Líndal segir, „Líndal álítur", "Líndal hér og Líndal þar".

Maður, sem lýsir því yfir, að þjóðin skilji ekki mál sem stungið er upp á að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu, er andstæðingur lýðræðis. Mönnum, sem treysta ekki fólkinu, er ekki treystandi fyrir lögunum sem vernda eiga fólkið.

Á ekki einhver helgan stein sem Sigurður getur sest í?

*Myndir sem ég keypti fyrir eigið fé til að nota við fræðigrein eftir mig voru notaðar í leyfisleysi í Sögu Íslands, án þess að ritstjórn þeirrar ritraðar fengi leyfi eða greindi frá uppruna myndanna og höfundarétti.

Þóruhelgi og listfræði framboðsins

island3_jpglille_638863a

Nú er er mikið Þóru-branding í gangi. Þórupylsur sá ég auglýstar. Er það ein með allri Samfylkingunni? 

Fyrir skömmu sá ég þessa ljósmynd á vef Politikens í Danmörku. Mér fannst ég hafa séð hana áður, en vissi þó ekki hvar. Í gær benti sjónminnugur maður mér hins vegar á, hvaðan kompósisjónin er komin eða ættuð, þótt ekki sé útilokað að um tilviljun sé að ræða (sjá neðst). 

Hið frjósama Kreppu-Ísland getur óneitanlega oft líkst innstu óskum Þriðja ríkisins um frjósemi æðsta kynstofnsins. Þetta er ekta bænda- og verkamannarómantík sem kommar dýrkuðu líka. Hún er greinilega enn nokkuð rík í Íslendingum.

Eru annars SS-pylsur í Þóru-pylsum? Maður spyr bara. Ólafspylsur eru víst enn bæjarins bestu enda með hráum lauk.

hist_women_hitler

Prófessor í ánægjukasti á Eyjubloggi

Stefán á Eyjunni
 

Nýjustu  kannanir mínar sýna, að Stefán Ólafsson prófessor er lýðskrumari. Stefán er orðinn bloggari á Eyjunni og byrjar „vel".  Hann gerir ánægjumælingu ESB (Eurobarometer) að sínu fyrsta umtalsefni, og menn éta það hrátt eftir prófessornum.

Stefán er greinilega líka frístundaveðurfræðingur, og segir að góða veðrið hafi ekki haft áhrif á „niðurstöðurnar", því rannsóknin hafi verið gerð í dumbungi nóvembermánaðar. En er það ekki einmitt þá sem Íslendingar stunda kynlíf að mestu kappi? Konur voru heldur ekki eins ánægðar og karlar í könnun Eurobarometers.

Geta prófessorar hjá HÍ ekki lengur heimilda? Stefán Ólafsson er ekki að hafa fyrir því á bloggi sínu. Þessi fyrst bloggfærsla Stefáns á Eyjunni er ein versta demógógía (skýring fyrir ánægða og vitlausa alþýðuna: lýðskrum) sem ég hef séð nýlega hjá fræðimanni. Þótt lærður maður á framfærslu Evrustjórnarinnar byrji að blogga fyrir alþýðuna, þýðir það ekki að alþýðan sé vitlaus þótt hún sé yfir sig ánægð í nóvember 2011. Engir borða meira af lukkupillum og einmitt Danir og Íslendingar, sem eru í efstu sætunum í ánægjukönnum Eurobarometer.

Hér er grein sem Stefán Ólafsson hefði kannski átt að kynnt sér: áður en hann setti þessa Pollýönnufrétt sína á Samfylkingarbloggið.

Svo mætti prófessorinn minnast á, hver lætur framkvæma þessa vitleysu. Það er ESB.

Fyrst prófessorinn er svo slakur í aðferðafræði, þá verð ég líka að minnast á að menn leggja misjafnt mat á orð eins og ánægja í hinum mismunandi löndum.

Einnig verður að minna lukkupilluprófessorinn í HÍ á, að Íslendingar eru ekki með í ESB og þess vegna eru þeir kannski glaðir og ánægðir. Danir eru í ESB en ekki með evru, þess vegna eru þeir lykkelige, en þeir eru líka ímyndunarveikasta þjóðin í Evrópu. Þeir halda enn að þeir hafi einir unnið Síðari heimsstyrjöld og hafi gert heimsfriðinum gagn með því að liggja undir Þjóðverjum og selja þeim landbúnaðarafurðir á spottprís. Þær afurðir fæddu morðsveitir nasista í Austur-Evrópu. Búr dauðans var í Danmörku - en Danir vilja helst ekki heyra það og eru ánægðir með það. Sjá hér.

Mér sýnist að Stefán Ólafsson sé að falast eftir því að honum verði greidd prófessorshýran í evrum og að hann sé álýka bjartsýnn og ánægður með lífið og hirðfífl ríkisstjórnarinnar sem nú stappar stálinu í daufar Evruþjóðir. Össur getur notað Stefán sem geltandi kjölturakka á Eyjunni fram að næstu kosningum, svo heilaþvegnir samfylkingarmenn hafi eitthvað uppbyggilegt að lesa, meðan Össur fer í gegnum síðustu kaflana á ESB leiðbeiningabókinni. 

Ánægjurannsókn ESB er einfaldlega góður mælikvarði á óáreiðanleika ESB.


Lýst eftir lygnum blaðasnápi á Vísi

Var þessi á vísi

Eins og fram hefur komið í fréttum, lét dr. Herdís Þorgeirdóttir forsetaframbjóðandi hafa eftir sér afar ljótar og ósæmandi skoðanir sumarið 1977. Hún hefur nú reynt að þvo hendur sínar af þessum ósóma með því að segjast hafa vitnað í George Wallace, sem og að orð hennar hafi verið tekin úr samhengi af blaðamanni Vísis. Wallace var þó aldrei eins grófyrtur um blökkumenn og Herdís, sem var reynda sjálf blaðakona á Mogganum sumarið 1977. Hún var spurð hvað hún myndi gera ef til landsins kæmu 10.000 negrar. Herdís var sko með Lokalausn í lagi: Senda þá á lekum bát út í hafsauga.

Ég furðaði mig á því í gær, að enginn hefði hnotið um orð Herdísar árið 1977, og reyndi að skýra það um leið og ég leitaði svara. Stuðningsmenn Herdísar hafa nú upplýst að grein hefði verið í Þjóðviljanum um ummæli Herdísar. En þetta er nú allt og sumt.

Eftir stendur að Herdís telur sig fórnarlamb skítseiðis úr sömu stétt og hún tilheyrði sumarið 1977. Manns sem sneri út úr merkum orðum hennar, þar sem hún var með heimspekilegar vangaveltur um George Wallace, sem hún mun hafa verið sérfræðingur í. En eins og menn muna, var sjaldan hægt að birta nema 10 orði í Svari Dagsins, svo blaðamanninum hefur verið vandi á höndum. Herdís segir hann ekki hafa stigið í vitið og lagt orð Wallace ríkisstjóra henni í munn. Þetta er auðvitað ljótt ef satt er. Og það sanna verður að koma í ljós.

Með svona mál í farteskinu munu erlendir blaðamenn sleikja út um ef Herdís næði kjöri. Illkvittnislegt heiti eins og Harðbrjósta Herdís mun hugsanlega loða við hana. Og hvað ætli Feneyjarnefnd Evrópuráðsins um Mannréttindi segði um orð Herdísar, en hún er einmitt formaður undirnefndar í Feneyjarnefndinni og líka sérfræðingur í frelsi fjölmiðla.

Ef þú ert einhvers staðar þarna úti, blaðasnápur á Vísið sumarið 1977, sem lagðir snöru um fót Herdísar, þá gefðu þig fram og segðu okkur þína hlið á málinu. Ef Herdís er hins vegar að bera upp á menn ósannindi til að bjarga sér fyrir horn, er augljóst að hún verður að stöðva framboð sitt og segja sig úr undirnefnd Feneyjarnefndarinnar um mannréttindi. Kona sem vill senda 10.000 negra á lekum bát út í hafsauga, verður ekki forseti. 

Hér, hér hér og hér má lesa brot úr sögu svarta mannsins á Íslandi sem ég hefi skrifað. Ég missti þó af því svæsnasta úr fordómunum, þ.e.a.s. orðum Herdísar Þorgeirsdóttur, sem voru ef til vill tekin úr samhengi, þar til annað sannast.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband