Leita í fréttum mbl.is

Lýst eftir lygnum blađasnápi á Vísi

Var ţessi á vísi

Eins og fram hefur komiđ í fréttum, lét dr. Herdís Ţorgeirdóttir forsetaframbjóđandi hafa eftir sér afar ljótar og ósćmandi skođanir sumariđ 1977. Hún hefur nú reynt ađ ţvo hendur sínar af ţessum ósóma međ ţví ađ segjast hafa vitnađ í George Wallace, sem og ađ orđ hennar hafi veriđ tekin úr samhengi af blađamanni Vísis. Wallace var ţó aldrei eins grófyrtur um blökkumenn og Herdís, sem var reynda sjálf blađakona á Mogganum sumariđ 1977. Hún var spurđ hvađ hún myndi gera ef til landsins kćmu 10.000 negrar. Herdís var sko međ Lokalausn í lagi: Senda ţá á lekum bát út í hafsauga.

Ég furđađi mig á ţví í gćr, ađ enginn hefđi hnotiđ um orđ Herdísar áriđ 1977, og reyndi ađ skýra ţađ um leiđ og ég leitađi svara. Stuđningsmenn Herdísar hafa nú upplýst ađ grein hefđi veriđ í Ţjóđviljanum um ummćli Herdísar. En ţetta er nú allt og sumt.

Eftir stendur ađ Herdís telur sig fórnarlamb skítseiđis úr sömu stétt og hún tilheyrđi sumariđ 1977. Manns sem sneri út úr merkum orđum hennar, ţar sem hún var međ heimspekilegar vangaveltur um George Wallace, sem hún mun hafa veriđ sérfrćđingur í. En eins og menn muna, var sjaldan hćgt ađ birta nema 10 orđi í Svari Dagsins, svo blađamanninum hefur veriđ vandi á höndum. Herdís segir hann ekki hafa stigiđ í vitiđ og lagt orđ Wallace ríkisstjóra henni í munn. Ţetta er auđvitađ ljótt ef satt er. Og ţađ sanna verđur ađ koma í ljós.

Međ svona mál í farteskinu munu erlendir blađamenn sleikja út um ef Herdís nćđi kjöri. Illkvittnislegt heiti eins og Harđbrjósta Herdís mun hugsanlega lođa viđ hana. Og hvađ ćtli Feneyjarnefnd Evrópuráđsins um Mannréttindi segđi um orđ Herdísar, en hún er einmitt formađur undirnefndar í Feneyjarnefndinni og líka sérfrćđingur í frelsi fjölmiđla.

Ef ţú ert einhvers stađar ţarna úti, blađasnápur á Vísiđ sumariđ 1977, sem lagđir snöru um fót Herdísar, ţá gefđu ţig fram og segđu okkur ţína hliđ á málinu. Ef Herdís er hins vegar ađ bera upp á menn ósannindi til ađ bjarga sér fyrir horn, er augljóst ađ hún verđur ađ stöđva frambođ sitt og segja sig úr undirnefnd Feneyjarnefndarinnar um mannréttindi. Kona sem vill senda 10.000 negra á lekum bát út í hafsauga, verđur ekki forseti. 

Hér, hér hér og hér má lesa brot úr sögu svarta mannsins á Íslandi sem ég hefi skrifađ. Ég missti ţó af ţví svćsnasta úr fordómunum, ţ.e.a.s. orđum Herdísar Ţorgeirsdóttur, sem voru ef til vill tekin úr samhengi, ţar til annađ sannast.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţekkir enginn manninn? Getur ţađ veriđ? Kannski man Herdís hvađ kollega hennar hét og sem sneri úr orđum hennar.

Í morgun var síđasti dagurinn í réttarhöldunum yfir hinum geđsjúka Breivik í Noregi.

Er mikill munur á ţvi ađ vilja í huganum senda 10.000 manns á lekum bát út í óvissuna, eđa á sjúku hatri Breiviks í garđ útlendinga, sem endađ međ fjöldamorđum á ungmennum sem Breivik kenndi um ađ útlendingar vćru í Noregi.  Hatriđ er ţađ sama, en sjúkur heili getur gert martröđ úr orđunum. En ţađ er ekki langt á milli orđa og gjörđa ţegar ađ útlendingahatri kemur. 

Herdís verđur ađ gefa betri skýringu, ellegar draga sig í hlé og íhuga sín mál í undirnefnd Feneyjanefndarinnar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.6.2012 kl. 12:08

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kannski er blađamađurinn dáinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.6.2012 kl. 21:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband