7.10.2008 | 17:46
Alltaf öðrum að kenna
Það er hreint út sagt sorgleg að sjá hve erfitt skussapólitíkusarnir okkar eiga að sætta sig við hrun Íslandssirkusins. Síðastliðinn áratug eru þeir auðvitað búnir að vera í hlutverki hvíta trúðsins, sem alltaf veit allt betur en aðrir. En sirkusinn var ekki lengur skemmtilegur, tjaldið er fallið og fílahirðirinn, áhættufulli ljónatemjarinn og aparnir eru að koma sér burt úr vondum málum. Sirkustjaldið fell bara niður á þjóðina, sem sat sem fastast og bjóst við því að sjóvið myndi halda áfram.
Útfararstjórinn Geir Haarde hélt ræðu sína til þjóðarinnar klukkan fjögur í gær. Því miður byrjaði hann að því að bendla atburði á Íslandi við það sem gerst hefur í Bandaríkjunum og "annars staðar". Skilja mátti á honum, að við hefðum aldrei verið herrar yfir okkar eigin örlögum. Það er nú ekki efnilegt fyrir "sjálfstæða þjóð".
Össur Skarphéðinsson er greinilega sama markinu brenndur. Hann grenjar og segir "að Bandaríkjamenn hafi gefið Íslendingum fingurinn þegar leitað hafi verið eftir aðstoð bandarískra stjórnvalda við þeim efnahagsþrengingum sem ganga yfir landið". Hann er svo svekktur yfir því hversu fáa vini Íslendingar eiga og hafði búist við meiru frá Bandaríkjamönnum eftir að Íslendingar hefðu verið í áratugagömlu sambandi við þá. Ja, ég var eftir að sjá þann dag að Össur og fólk af sama sauðahúsinu sáu eftir Ástandinu.
Ef bankaliðið og stjórnmálamennirnir halda að þeir afgreiði málin, eða leysi þau, með því að kenna öðrum um, þá leysist enginn vandi.
Syndahafurinn er ódýr lausn, en efnahagur Íslendinga kemst ekki á réttan kjöl þótt Össur sýni BNA óæðri endann.
Lausn á þeim vanda sem Íslendingar eiga við að stríða, er ekki fólginn í því að leita að einhverjum í útlandinu sem maður getur kennt um. Ef horfst er í augu við vandann, er hins vegr mögulegt að Geir og Co fái plástur á meiddið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2008 | 11:06
Njet Spasibo, Rossja
Dear Prime Minister Putin,
Happy Birthday President Putin. Who could have imagined that when little Vladimir Vladimirovitch Putin was born in Leningrad on 7 October 1952, he would become the savior of Iceland in 2008, when the Icelanders lost their independence once again. 4000.000.000 Euros. A birthday loan. What a guy! Well, you know what they say, Putins love for humankind heats up the planet by 2.35 degrees annually.
Please Mr. Putin, the money you are lending Iceland, would have been better spent on the paupers of your empire. It's your birthday, treat your people well. Release your enemies from prison and fight crime in your country.
By the way, do you want to buy some nice, Icelandic Jeeps?
Нет спасибо, Россия
![]() |
Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2008 | 06:13
Ísland undir umsjón erlendra sérfræðinga, STRAX!
Nú þegar Geir Haarde hefur birst fólkinu sínu aftur eftir löng og erfið fundahöld í Ráðherrabústaðnum, segir hann að ekki sé þörf á aðgerðapakka eftir að hann fékk aðeins meira andrými.
Geir segir bara hókus pókus simmsalabimm, meðan Danir og Þjóðverjar, já allur heimurinn, gerir ráðstafanir. Ísland ætlar að spyrja hin Norðurlöndin og ESB, og hnuplar svo lífeyri landsmanna.
Eftir kraftaverkið í Ráðherrabústaðnum, er greinilegt að Íslendingar þurfa bráðaaðstoð erlendis frá.
Auðvitað er mjög erfitt að kyngja slíku fyrir þjóð sem alin hefur verið upp í því, að gagnrýni erlendis frá væri frá vondu fólki komin. Síðastliðin ár höfum við séð hvernig allri gagnrýni og aðvörunum frá útlöndum var vísað á bug sem dómadags rugli og vitleysu. Þeir sem tóku undir erlenda gagnrýni voru kallaðir landráðamenn. Eru prófessorar í HÍ og HR, sem gerðu það, starfi sínu vaxnir. Er ekki hægt að spara nokkrar stöður þar? Hvernig í ósköpunum halda menn að þeir fá inngöngu í ESB með slíkan hugsunarhátt?
Mikið er nú annars gott að hafa bloggið. Þetta er hinn besti aðgerðapakki fyrir þjóð í vanda. Hér er alltaf mikið andrými, að minnsta kosti meira en hjá Ríkisstjórn vorri.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.10.2008 | 08:33
Íslendingar eru kaupóðir fíklar
Lengi er síðan að ég sá eins áhugaverða fréttaútsendingu í sjónvarpinu eins þá sem var í gær klukkan 19.
Siggi í Kaupþingi iðraðist einskis og telur mistökin færri en góðan árangur. Hann sagði, eins og hann hefur alltaf sagt, að 12 næstu mánuðir yrðu góðir. Siggi Einars er enginn spámaður. Þetta er bara hann Siggi, sonur framsóknarráðherra. Ég slóst við hann Sigga í barnaskóla. Segðu mér hve margar ferðatöskur Siggi er búinn að pakka í, og þá skal ég segja þér hvort 12 næstu mánuðirnir verði góðir.
Aumingjarnir vilja í ESB en Geir sagði það ekki til umræðu. Ríkisútvarpið er greinilega orðið að fremsta talsmanni þeirra, sem eins og smákrakkar krefjast þess að komast í ESB. Svo virðist að boðskapurinn hjá þessu fólki sé, að ef við sækjum ekki um fyrir mánudaginn, þá fari þau öll í fýlu.
ESB metur auðvitað slíka umsókn, ef hún kemur. Það tekur tíma og ESB hleypir, eins og allir vita, ekki hverjum sem er inn í sínar raðir. Halda menn á Íslandi, að allt sé í sómanum í ESB? Fóru menn út að pissa, þegar fréttin um G-4 fundinn kom?
Lífeyrissjóðirnir ætla að kasta fé í glapkistuna. Þeir um það. Ég hélt að Kaupþing gæti kannski frekar gert það. Þar gengur svo vel næstu 12 mánuðina. Eða er sú velgengni háð því að við verðum leidd inn í ESB til slátrunar?
Svo kom Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor, og talaði eins og félagsráðgjafi á meðferðaheimili fyrir fíkla. Ég hefði haft meira gagn og gaman af því að sjá hvað Gylfi hefur fyrir sér í stöndugheitum þjóðarinnar. Þjóðin er ekki gjaldþrota sagði Gylfi. Á ég að vera sammála honum? Að mínu mati eru þeir gjaldþrota, sem tekið hafa þjóðina í gíslingu og tala um um ESB og Evrur sem lausn á vanda þjóðar, sem virðist upp til hópa vera alvarlega veruleikafirrt.
Já, ég endurtek veruleikafirrt, því svo var farið í verslunarferð í nýja risaverslun, og það var eins og við manninn mælt, og Gylfi Zoëga hefur greinilega rétt fyrir sér, þjóðin er ekkert gjaldþrota. Við opnun nýju þursaverslunarinnar á Krepputorgi virtust þúsundir manna vera að eyða, eyða, eyða, eyða og eyða. Er þetta lúxuskreppa?
Það var loks ein góð frétt, svona til að bæta skapið eftir allt krepputalið og sigur KR í bikarnum. O.J. Simpson er loksins að fara í fangelsi. En hann er auðvitað líka veruleikafirrtur.
Þessi færsla var í boði Andy Rooneys, sem ekki skilur neitt í Íslendingum og leyfði mér því að nota blöðruhálskirtilsstíl sinn. Hann á 20 sparibauka, sem fólk hefur sent honum og hann hefur fyllt þá alla. Hann telur það vera þjóðráð fyrir Íslendinga að fylla sparibauka sína.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.10.2008 kl. 06:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.10.2008 | 09:05
Jón goes to the movies
Nú er komið í ljós að Jón Gerald Sullenberger hefur margt meira en fjármálavit til að bera. Þarna hefur greinilega farið frægur Hollywood producer i glatkistuna. Nýjasta myndband hans, Glitnir í höndum Stoða, eða Sweet Revenge I, telst til hryllingsmynda, nánar tiltekið finance horror geirans. Lýsingin mætti hafa verið betri, en allir leikararnir fengu að þessu sinni vel greitt fyrir ómakið. Ég bíð óþreyjufullur eftir framhaldinu á þessu listaverki Jóns, sem vísir.is og DV.is greina frá.
Ekki undrar það mig að Jón Sulllenberger sé margt til lista lagt. Þetta gengur oft í ættir. Ég man vel eftir afa hans, sem ég tel víst að hann hafi þó aldrei hitt. Hann hét Gunnar (d. 1990) og bjó á Hringbrautinni í Reykjavík. Hann bjó í sama húsi og afi minni og amma. Þetta var ágætis maður, nema þegar hann drakk. Þá gekk ekki svo lítið á. Gunnar var fátækur maður, sem vann á Eyrinni, en var ýmislegt annað til lista lagt. Hann var menntaður járnsmiður og var líka mjög músíkalskur og spilaði oft slagara á slaghörpu/orgel sem hann átti. Ungur vildi hann verða músíkkant en komst oft í kast við lögin og framdi fjölda innbrota sem hann var dæmdur fyrir árið 1946. Á 4. áratug aldarinn gerðist hann laumufarþegi á einu skipi Eimskipa og komst til Leith á Skotlandi með manni sem síðar varð frægur söngvari. Síðar, 1934, laumaðist Gunnar með öðrum félaga til Kaupmannahafnar, þar sem þeir fengu þó ekki að ganga á land. Fjöldkylda hans borgaði fargjaldið fyrir hann (100 krónur), svo hann gæti komist heim og tekið út dóm sinn fyrir innbrot, m.a. hjá Kommúnistafélaginu. Gunnar var aldrei ánægður með hlutskipti sitt í lífinu og þegar hann var drukkinn sagði hann gjarnan mönnum frá því, að hann væri sonur sýslumanns nokkurs í Vestmannaeyjum. Það var dagsatt. Sýslumaðurinn var einnig Alþingismaður um tíma og gæslumaður Landsbankans í níu daga árið 1909. Síðar á ævinni vann langafi Jóns í Fjármálaráðuneytinu. Hann varð allra manna elstur.
Þetta var nú bara ættfræðiútúrdúr um ættir Jóns Geralds, ef einhverjir myndu gera heimildamynd um ættgarð hans og afrek. Upphaflega uppgötvaði ég skyldleika Jóns við afann, þegar ég sá myndir á Jóni í fyrsta sinn. Hann er eiginlega næstum því eins og afinn
Áðurnefnd stuttmynd Jóns er vissulega alveg ágæt. Hún sýnir okkur, hvítt á svörtu, að menn kunnu sér ekki hóf í neinu í þessu útrásarævintýri. Mér þykir nú samt enn betra atriði Fóstbræðra um vandann í bankanum. Ég er á því að Indriði í atriðinu hafi haft rétt fyrir sér. Hann hefur líklega lesið vefsíðu Jóns
Kvikmyndir | Breytt 15.11.2010 kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2008 | 23:13
Kreppa, hvað?
Með hluttekningu og samúð fylgist ég með kreppunni á Íslandi, um leið og ég útfylli umsóknareyðiblöð um ríkisborgararétt í ýmsum löndum sem betur eru stödd en Ísland. Ýmis Afríkulýðveldi heilla. Green Card umsóknin til BNA er auðvitað komin í pappírstætarann.
En nú þegar allir eru líklega farnir að sjá að "útrásin" var bara árás á þjóðina í frumskógarstríði fyrirtækjagamma, langar mig að benda á að kreppa getur leitt af sér góða hluti. Í stað þess að grenja og heimta patentlausnir eins og sterkan mann (sem er ekki til), þjóðstjórn eða Evru, er miklu nær að sérhver Íslendingur sé sterkur og stjórni þjóð sinni í átt að betri tímum. Ég er ekki að tala um neitt alþýðulýðveldi Steingríms J., þar sem dansað verður á líkkistu síðasta kapítalstans með undirspili Bubba Mortensis sveitasönglara og þar sem traktorar verða aðalfararskjótarnir. Eyðsla, bruðl, græðgi og ránseðli það sem einkennt hefur Íslendinga, vinstri menn sem og hægri, síðan um 1980, verður að dempa. Ímyndunarveikina verður að lækna.´
Ísland gegnir ekki hlutverki á meðal þjóðanna og ætti strax að stöðva allt rugl um setu í Öryggisráðinu. Öryggið heima fyrir er miklu mikilvægara en stuðningur við hryðjuverkamenn í öðrum heimsálfum. Flottræflaháttur kostar 300.000 manna þjóð dágóðan skilding. Hægt væri að kaupa olíu fyrir það sem sparast og dálítinn mat fyrir afganginn. Loka ber helmingi allra sendiráða landsins. Safnast þegar saman kemur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.10.2008 kl. 05:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.10.2008 | 16:02
Vive la présidente
"Færa þarf þjóðinni 1. desember á ný".
Svo gæfulega mælti forseti lýðveldisins við setningu hins háa Alþingis í dag.
Þetta mun gera gæfumuninn hjá okkur í vosbúð og á vergangi komandi ára. Ég tel líka nauðsynlegt að hefja 1. desember til æðstu virðingar. Þetta er afmælisdagur danskrar konu minnar, sem ég held mjög mikið upp á.
Legg ég svo til að aftur verði farið í átak til að hreinsa íslensku tungu. Íslenska er málið. Tungan skal vera hrein og vel skrúbbuð. Útlendingar eru búnir að plata okkur, svíkja og hrekkja síðustu árin og við getum aðeins svarað þeim með festu ef við tölum hreina og ómengaða gullaldaríslensku.
Að setja okkur í sveit með Pólverjum. Þvílíkt og annað eins.
Einnig væri hægt að hafa samkeppni um nýjan þjóðbúning kvenna. Það hefur líka alltaf reynst gott á krepputímum þjóðarinnar að hafa slíka samkeppni.
Svo þurfum við að finna einhvern sem við getum kennt um allt, í stað þess að vera að kenna Dabba eða Jóni Ásgeiri um. Ég spyr bara, hvað með gyðingana?
Takið svo endilega slátur í ár, áður en það er um seinan. Hvalveiðar á fullt.
Á ég að taka saltfisk með handa einhverjum næst þegar ég sigli heim að Landi Ísa? Þjóðlegheit eru eina lausnin og svo auðvitað Evran í sauðskinnsskóm. Evran góða Evran......
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.10.2008 kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.9.2008 | 12:02
Einhver heilög Anna
Einhver réttlát Anna, sem lifir á heilagleika skoðana sinna, hefur verið að gera því skóna í athugasemdum við síðustu færslu, að ég hefði látið illa ef menn hefðu rætt um að hella svínaúrgangi á lóð samkunduhúss gyðinga. Þetta er alrangt hjá þessari Önnu. Ég hafði skrifað um viðbrögð mín við þeirri ógeðfelldu aðgerð, sem ég sá stungið upp á hjá einhverri kynsystur Önnu á Íslandi. Svona gubbu- og subbuaðgerðir virðist greinilega sameina marga trúaða og þá sem hafa svissað trúnni út fyrir öfgakenndar stjórnmálastefnur. Gyðingar hafa reyndar alltaf fengið sinn skerf af því hegðunarmynstri yfir sig- og ekki útiloka ég að þeir hafi gert sig seka um eitthvað álíka athæfi. Þeir voru að minnsta kosti ávallt sakaðir um að hafa pissað á sakramentin í kirkjunni hér fyrr á öldum.
Nei, réttláta Anna, áður en Imam Tamimi og hans fjölmörgu sóknarbörn fóru að heimta og grenja, hafði þessi bloggari stungið upp á Mosku í Mosfellssveit:
Ég reit eitt sinn í Moggann, n.t. árið 1994 (14. des.): Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar".
Þegar ég skrifaði þetta, datt mér ekki í hug að múslímar myndu fá eða fara fram á ókeypis lóð. En miðað við að sjálfstæð rannsóknafyrirtæki eru með hús ríkisins undir starfssemi sína fyrir skít á priki, er kannski ekki óeðlilegt að múslímar fái lóð fyrir lítið.
Úrgangi og svartagallsrausi Önnu Réttlátu hellir hún ekki hér á bloggið án þess að það gusist framan í hana sjálfa.
Myndin hér að ofan (eftir Jerry Bergman) birtist í bók eftir mig árið 2005. Myndin var tekin árið 1982 og sýnir veggjarkrot, Jøder ud af Danmark" gegnt samkunduhúsi gyðinga í Krystalgade í Kaupmannahöfn. Þegar þetta var krotað af VINSTRIMÖNNUM, er þeir fóru hamförum um borgina í mótmælagöngu, þar sem þeir helltu m.a. líka svínablóði á félagsheimili og skrifstofur safnaðar gyðinga í Kaupmannahöfn. Ég er fyrir löngu búinn að sjá í gegnum fínar kenndir vinstrimanna. Gef lítið fyrir þær. Hatur styrkir þann rumpulýð, en svo lekur heligslepjan af honum þess á milli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.9.2008 | 07:58
Heimtuðu og fengu klósett sem ekki móðgar Allah
Það er þjónað undir rassinn á herrum heimsins þessa dagana. Hollenska morgunblaðið De Telegraaf hefur eftir fréttamanni sínum í Lundúnum að klósettin á Ólympíuleikunum þar í borg árið 2012 verði öll "Moslim-proof".
Það þýðir, að þegar múslímar fara á klóið, snúa þeir ekki í átt að Mekka. Bænir eru ekki þolanlegar í miðjum hægðum.
Ég sem hélt að Guð væri ekki með nefið niður í hvers manns koppi, en alltaf skjátlast mér. Allt bænahjal mitt á litlakoti og fögur ásjóna mín snýr beint til Svíþjóðar og Rússlands þegar ég aðskil vötnin eins og Móses, og "når jeg laver pølser" gretti ég mig í átt að Bretlandi og Bandaríkjunum. Ekki hafa þessi ríki mótmælt.
Vinur minn var eitt sinn með mynd af Lénin og Stalín á klósettinu hjá sér. Ætli það hafi valdið Perestrojkunni og Glasnostinu.
Djöfulsins rugl er nú í þessum heimi. Sérklósett fyrir herrana. Hvað verður það næsta?
Myndin að ofan er frá sýningu í Beirut fyrr í ár, sem bar heitið "Eru 15 ár í felum í klósettunum ekki nóg?"og á að minna Líbana á borgarastríð þeirra. Listakonan, sem skóp þetta merkilega verk, heitir Nada Sehnaoul. Hún á greinilega framtíðina fyrir sér. Myndin af neðan er af manni af klerkastétt Shííta sem ekki virðist vera skemmt. Það gæti vel hugsast að hann keppi í uppstökki í London árið 2012. Þá er nú eins gott að klósettin snúi rétt og að svartagallið renni rétta leið niður í ána Thames.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
23.9.2008 | 18:41
Mosku hér og nú
Frétt hef ég að á Íslandi séu tæplega 400 múslímar, eða eru það 1000? Fyrr á árinu heyrði ég töluna 1500. Ég held að ég hafi reyndar aldrei heyrt sömu töluna á múslímskum sálum í þau skipti sem þessi blessaði söfnuður múslíma á Íslandi var í fréttunum. Talnaglöggir geta þeir ekki verið, sem eru talsmenn Allah á Íslandi.
Ég hef einnig fylgst með viðbrögðum á bloggum nokkurra Íslendinga við kröfunni um gríðarstóra lóð fyrir mosku í Reykjavík. Þessir öðlingar ætla víst að æla svínaúrgangi ofan í grunn moskunnar eða eitthvað álíka. Það þykir mér nú einum of langt gengið. Er ekki kreppa og öll svínasúpa búin í landinu?
Um leið og ég syrgi það hvernig þeir fáu gyðingar sem búið hafa á Íslandi hafa falið sig í hornunum og auðmjúklega sætt sig við að á Íslandi væri ekki neitt almennilegt samkunduhús, já, og jafnvel gerst búddistar til að leita að guði, fagna ég því að múslímar geti fengið mosku fyrir 12, 20, 400, nei 1000 meðlimi sína. Menn verða bara að passa sig að byggja ekki allt of stórt, því hitinn og rafmagn kostar og það borga ekki skattgreiðendur heldur Allah og þeir sem biðja til hans.
Jú, mosku hér og nú. Það styð ég! Einhvers staðar verða öfgavinstrimennirnir líka að fara til að gera andlegar og líkamlegar æfingar eftir að þeir gátu ekki lengur beygt sig og bugtað í átt að Moskvu .... - borg.
En ef guðshúsið að tarna, verður notað sem boðunarstaður stríðs gegn annarri menningu og trú, eða þar sem hatur er lagt á þjóðir sem ekki beygja sig í átt að Mekka, tel ég enga ástæðu til þess að múslímar fái lóð. Þá geta þeir keypt hana og svo tekið afleiðingum íslenskra laga ef þeir vilja boða stríð og hatur gegn ákveðnum hópum. Það varðar við hegningarlög. Enga lóð ber að gefa fólki sem vill fylgja öðrum lögum en þeim sem hið háa Alþingi í lýðræðisríkinu Íslandi hefur samþykkt.
Ef Imam Tamimi lofar, sver og sárt við leggur, að moska þessa afar misstóra hóps hans verði ekki vettvangur stríðsóps, vona ég að hann fái sem fyrst lóð sína og byggi mínarettu, bænaturn, sem er engu síðri en Hallgrímskirkja, kirkjan sem kennd er við guðsmanninn sem átti konu sem upplifaði bæði moskur og Barbaríið á eigin líkama. Ætli Gudda hefði viljað gefa grunn til Allah? Tjaah?
Þessi fallaga mynd, sem fylgir færslunni, er mér sagt að sé eimitt af Guðríði Símonardóttur þegar hún var upp á sitt besta í Barbaríinu. Njótið þangað til 1001 nætur eru liðnar og veruleikinn blasir við ykkur. Öllu gamni fylgir alvara.
Ensjallah!
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 1355820
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007