Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar eru kaupóðir fíklar

  The good times

Lengi er síðan að ég sá eins áhugaverða fréttaútsendingu í sjónvarpinu eins þá sem var í gær klukkan 19.

Siggi í Kaupþingi iðraðist einskis og telur mistökin færri en góðan árangur. Hann sagði, eins og hann hefur alltaf sagt, að 12 næstu mánuðir yrðu góðir.  Siggi Einars er enginn spámaður. Þetta er bara hann Siggi, sonur framsóknarráðherra. Ég slóst við hann Sigga í barnaskóla. Segðu mér hve margar ferðatöskur Siggi er búinn að pakka í, og þá skal ég segja þér hvort 12 næstu mánuðirnir verði góðir.

Aumingjarnir vilja í ESB en Geir sagði það ekki til umræðu.  Ríkisútvarpið er greinilega orðið að fremsta talsmanni þeirra, sem eins og smákrakkar krefjast þess að komast í ESB. Svo virðist að boðskapurinn hjá þessu fólki sé, að ef við sækjum ekki um fyrir mánudaginn, þá fari þau öll í fýlu.

ESB metur auðvitað slíka umsókn, ef hún kemur. Það tekur tíma og ESB hleypir, eins og allir vita, ekki hverjum sem er inn í sínar raðir. Halda menn á Íslandi, að allt sé í sómanum í ESB? Fóru menn út að pissa, þegar fréttin um G-4 fundinn kom?

Lífeyrissjóðirnir ætla að kasta fé í glapkistuna. Þeir um það. Ég hélt að Kaupþing gæti kannski frekar gert það. Þar gengur svo vel næstu 12 mánuðina. Eða er sú velgengni háð því að við verðum leidd inn í ESB til slátrunar?

Svo kom Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor, og talaði eins og félagsráðgjafi á meðferðaheimili fyrir fíkla.  Ég hefði haft meira gagn og gaman af því að sjá hvað Gylfi hefur fyrir sér í stöndugheitum þjóðarinnar. Þjóðin er ekki gjaldþrota sagði Gylfi. Á ég að vera sammála honum? Að mínu mati eru þeir gjaldþrota, sem tekið hafa þjóðina í gíslingu og tala um um ESB og Evrur sem lausn á vanda þjóðar, sem virðist upp til hópa vera alvarlega veruleikafirrt.  

Já, ég endurtek veruleikafirrt, því svo var farið í verslunarferð í nýja risaverslun,  og það var eins og við manninn mælt, og Gylfi Zoëga hefur greinilega rétt fyrir sér, þjóðin er ekkert gjaldþrota. Við opnun nýju þursaverslunarinnar á Krepputorgi virtust þúsundir manna vera að eyða, eyða, eyða, eyða og eyða. Er þetta lúxuskreppa?

Það var loks ein góð frétt, svona til að bæta skapið eftir allt krepputalið og sigur KR í bikarnum. O.J. Simpson er loksins að fara í fangelsi. En hann er auðvitað líka veruleikafirrtur.

Þessi færsla var í boði Andy Rooneys, sem ekki skilur neitt í Íslendingum og leyfði mér því að nota blöðruhálskirtilsstíl sinn. Hann á 20 sparibauka, sem fólk hefur sent honum og hann hefur fyllt þá alla. Hann telur það vera þjóðráð fyrir Íslendinga að fylla sparibauka sína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað fórum við öll að kaupa í nýju búðunum. Verðum að klára krónurnar áður en þær brenna allar upp. Gera pláss fyrir evrurnar.

Aumasta skran er meira virði en krónur núna. Svo við kaupum og kaupum meðan eitthvað er til að kaupa. Við eigum fullt af góðum hlutum en krónan er ekki meðal þeirra. Krónan er orðin aumkunarvert skran. Það hefur gerst sem svartsýnismenn um framtíð krónunnar hafa spáð. Allir sem eiga þess kost hætta að nota hana. Fólkið treystir henni ekki. Fólkið forðast hana. Það er af fenginni reynslu. Fólkið er ekki fífl. Og svona er þetta. Ekkert öðruvísi.

Bið að heilsa Andy Rooney.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 10:35

2 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þurfum við ekki að taka þjóðina áfallahjálp. Eitthvað hefur farið úr böndunum, stór hluti fólksins í landinu er alltaf í búðum, alveg ótrúlegt. Það virðist ekki skipta máli hver staða þjóðarinnar er. Fólk er með búðarfíkn.

Var Sigurður Einarsson "sterkur" í barnaskóla ?

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 5.10.2008 kl. 22:38

3 identicon

"Við opnun nýju þursaverslunarinnar á Krepputorgi virtust þúsundir manna vera að eyða, eyða, eyða, eyða og eyða. Er þetta lúxuskreppa?"

Þegar krónan verður einskis virði, verður að eyða henni um leið og hún kemur í hús, það lærðum við þegar við vorum í Menntaskóla, Vilhjálmur. Það er nú einu sinni ekki hægt að éta fljótandi gengið - eða ylja sér við það þegar það fuðrar upp.

Nei, í alvöru, ég hef horft upp á fólk á barmi hungurs vegna skulda reykja út í eitt og rúnta á bílnum í kringum sjálft sig. Þegar fólk er svo skuldugt að það er sama hvað það tekur til bragðs, endar ná samt ekki saman, kemur yfir það einhverskonar klikkun og þá virðist það eingöngu höndla það sem hönd á festir.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 23:35

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jú, Carlos ég get vel skilið það sem þú segir. Ég sit auðvitað í rólegheitunum í Danmörku, en hef haldið í við mig vegna atvinnuleysis og annars mótgangs, lifað eftir efni og tók út síðustu peningana mína í Kaupþing-banka í apríl/maí, fyrir fyrsta verulega hrunið.

En, ég held samt að fólk hafi farið í verslunarferð að gömlum vana.

Guðrún, áfallahjálp er kannski nauðsynleg. En hér fyrr á öldum í hamförum, hjálpaði fólk hvert öðru ef það gat. Það verður líka gert nú. Íslendingar eru ekki nema ca. 300.000. Fiskur í sjónum, sauðir á landi, hiti í jörðinni, vatn í fossunum. Allt bruðl Ingibjargar Sólrúnar (sem ætti að segja af sér hið fyrsta), öll flottheit í byggingum og stofnanabruðli, hjálp til "þurfandi landa" verður hins vegar að hætta í að minnsta kosti 4-5 ár. Nokkrir bílasalar verða að fara á hausinn. Menn verða að láta sér nægja það sem þeir hafa nú.

Nei, Sigurður var ekki sterkur, en hann beitti bellibrögðum. Hann átti það til að slá menn á veika staði. Hann var ágætur í handboltanum sem unglingur, en þar sá maður líka hvers konar fauti hann var. Hann var meistari í því að bregða fyrir menn fæti án þess að dómarinn sæi nokkuð. Það gekk sú saga af honum að hann væri nískur. Fór með út í sjoppu til að sníkja og keypti aldrei neitt sjálfur. Annars var hann góður drengur, sem hjálpaði þeim sem lágu í valnum, og það gerir hann líklega líka nú, ef hann á eitthvað eftir.

Kristján, Evran á líka í vandræðum. Það er staðreynd. Staðreyndin er líka sú, að umsókn Íslendinga í ESB tekur tíma og jafnvel svo langan, að Íslendingar verða líklega komnir upp á kjölinn áður en það gerist.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.10.2008 kl. 04:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband