Bloggfćrslur mánađarins, október 2010
31.10.2010 | 16:26
A Bad Day for my Bottom
Eins og frćgt er orđiđ međal auđtrúa sósíalista, fékk ég mér nýlega tattú. Ţađ gerđi ég til ađ sýna Reykvíkingum samúđ mína
Ekki vildi betur til en svo, ađ rassinn á mér svarađi svo illa bláa litnum í húđflúrinu, ađ ţađ hljóp ígerđ í allt heila krappiđ. Ég bólgnađi upp og gat ekki setiđ í marga daga. Miklar ţjáningar fylgdu ţessu. Fór ég á bráđamóttöku og pumpađ var í mig lyfjum og settur var megaplástur yfir meiddiđ. Ţegar hann var svo fjarlćgđur um daginn blasti viđ ófögur sjón. Ţetta fína tattú, sem ég var međ af Jóni Gnarr borgarstjóra, var alt bólgiđ og ljótt og vall úr ţví gröftur. Nú ţegar ţetta er rétt fariđ ađ gróa er ljóst ađ tattúiđ af Jóni Gnarr er eyđilagt. Nú er ţarna rauđ sveppasýking og vex út úr sárinu flúrađ hár alt löđrandi í Studio Line hárvörum, frekar vaxkenndum. Lćknar í Danmörku skilja ţetta ekki og segja ađ ţetta hljóti ađ vera séríslenskt fyrirbćri. Báđu ţeir mig vćnstan um ekki ađ setja neitt listrćnt á hćgri rasskinnina, fyrr en ţađ er alveg ljóst hvađa mein vex á ţeirri vinstri.
Klikkiđ á vinstri rasskinnina til ađ sjá meiddiđ í nćrmynd.
30.10.2010 | 15:40
Chaplin alltaf á undan tímanum
Fávís mađur frá Belfast komst loks í ađ horfa á kvikmynd sem sýnir frumsýningu á myndinni Cirkus eftir Charlie Chaplin frá 1928. Ţá mynd sá ég 100 sinnum í Hafnarbíó á unga aldri. Íranaum sýndist hann sjá konu ganga fram hjá Kínverska leikhúsinu í Hollywood, međ gemsa í hendi. Hann gerđi heila heimildamynd um ţetta á YouTube og um leiđ sjálfan sig ađ fífli:
Aumingja Írinn er greinilega ekki nógu vel inni í sögu heyrnartćkja. Áriđ 1924 var komiđ á markađinn heyrnartćki Western Electric Model 34A "Audiphone" Carbon Hearing Aid, sem konan í mynd Chaplin er ađ tala viđ sjálfa sig í. Sem betur fer eru Íslendingar ekki skyldir ţessum Evrópubjánum á Írlandi, sem ekki ţekkja 34A Audiophone-tćki ţegar ţeir sjá ţađ.
Konan hét Sesselía Ţórmundsdóttir og var Vestur-Íslendingur og geđklofi. Hún taldi sig vera á tímaferđ aftur úr framtíđinni. Sessilía, sem í Kaliforníu gekk undir nafninu Sissie Bla Bla, fluttist öldruđ til Íslands og dó á Elliheimilinu Grund. Heyrnartćki hennar er nú á Ţjóđminjasafninu.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
27.10.2010 | 10:14
Fornleifavernd Ríkisins sinnir ekki skyldum sínum
Í síđustu viku var ég á Íslandi og brá mér m.a. í Ţjórsárdalinn til ađ kanna ástand rústanna á Stöng. Í dalnum var snjókoma og ekki var nú glćsilegt um ađ litast á Stöng. Međan Fornleifavernd Ríkisins dreymir um 700 milljón króna framkvćmdir á Stöng, lekur inn í miđaldarústina á ţeim stöđum ţar sem ekki var haldiđ áfram viđ viđgerđir á rústinni eftir 1996. Fornleifavernd Ríkisins ber ábyrgđ á ţessu hrćđilega ástandi, ábyrgđ á ţví ađ fornleifar liggja nú undir skemmdum.
Ég skrifađi nýlega um ćvintýraleg áform Fornleifaverndar Ríkisins, ţar sem dr. Kristín Huld Sigurđardóttir forstöđukona hefur komist ađ ţví ađ ţađ kosti 700.000.000 króna ađ gera fornminjunum á Stöng hátt undir höfđi til frambúđar. Ţessa upphćđ kennir hún nú herskara af fornleifafrćđingum, arkitektum og verkfrćđingum um. Nú er ţetta dćmi forstöđukonunnar, eins og ég taldi mig vita, áform um ađ reisa steinsteypuhöll yfir rústir á Stöng og leggja rústina í ćvarandi vínanda eins og gerst hefur međ rúst eina í Reykjavík. Slíkt er út í hött, og allir vita ađ 700.000.000 kr. eru ekki til í íslensku ţjóđfélagi og verđa ţađ ekki á nćstunni. Ţađ er heldur ekki hćgt ađ reisa ţunga byggingu yfir Stöng. Stöng hvílir ekki á klöpp.
Vandamáliđ er bara, ađ Kristín Huld Sigurđardóttir vill ekki láta 700.000.000 kr. skýrslu allra sérfrćđinganna sinna af hendi. Ég hef beđiđ um skýrsluna, en undirmađur hennar á Fornleifavernd Ríkisins bađ ţá um tvö eintök af skýrslu minni um Stöng, sem menn hafa geta lesiđ hér á blogginu síđan 11. október og sem hefur reyndar líka veriđ í höndum Fornleifaverndar síđan í febrúar í ár. Annar undirmađur Fornleifaverndar Ríkisins sagđi áform Kristínar óraunhćf, en Kristín svarađi loks, án ţess ađ svara erindi mínu á eđlilegan hátt:
Sćll og blessađur Vilhjálmur Örn,
Hér gćtir einhvers misskilnings hjá ţér. Talan 700 milljónir byggir á útreikningum fornleifafrćđinga, arkitekta og verkfrćđinga og snertir ekki bara viđhald á Stangarrústinni, heldur gerđ nýs húss til ađ verja minjarnar, rannsókn sem ţyrfti ađ fara fram í tengslum viđ gerđ hússins, viđhald og skýli yfir fjós og smiđju, gerđ miđlunarefnis, endurbćtur á ađgengi og ađstöđu fyrir ferđamenn og fleira.
Niđurstöđur skođanakannana verđa gerđar ađgengilegar á netinu á nćstu vikum.
mbk,
Kristín Huld Sigurđardóttir
General Director Fornleifaverndar Ríkisins, en svo ţýđa menn virđulegt embćtti forstöđumanns Fornleifaverndar yfir á ensku, segir ađ skođanakannanir sem gerđar voru á Stöng í sumar, verđi gerđar ađgengilegar, en hún svarađi engu ósk minni um ađ fá ađ sjá útreikninga fornleifafrćđinga, arkitekta og verkfrćđinga í einhverju ćvintýraverkefni, ţar sem greinilega er ćtlunin ađ halda mér, sérfrćđingi um minjar í Ţjórsárdal, sem í árarađir stundađi rannsóknir á Stöng, frá verkefninu og frekari rannsóknum á Stöng. (Hér getiđ ţiđ lesiđ ritaskrá mína um fornleifar í Ţjórsárdal).
Ef forstöđukona Fornleifaverndar Ríkisins vill ekki afhenda ţessa makalausu úttekt sérfrćđinga sinna, verđ ég ađ láta reyna á titilinn General Director, en af honum geta menn í siđmenntuđum löndum ekki státađ af, nema ţeir heyri undir hćrra stjórnsýslustig. Ég vill ekki ţurfa ađ hafa samband viđ Katrínu Jakobsdóttur til ađ fá skýrslu, ţar sem komist er ađ ţeirri niđurstöđu ađ ţađ kosti 700.000.000 ađ vernda rústir á Stöng í Ţjórsárdal.
En á međan eru rústirnar látnar grotna niđur! Sjón er sögu ríkari. Eyđileggingin er á ábyrgđ Kristínar Huldar Sigurđardóttur. Allir eiga rétt á ţví ađ sjá 700.000.000 króna skýrslu hennar, međan ađ fornleifar eru virta ađ vettugi á Stöng í Ţjórsárdal. Fornleifavernd Ríkisins er ekki einkabisness frúarinnar.
26.10.2010 | 20:41
Das Amt und die Vergangenheit
Í Ţýskalandi er komin út bókin Das Amt und die Vergangenheit. Bók ţessi er heilar 900 síđur og er skrifuđ fyrir tilstuđlan Joschka Fishers. En hann pantađi rannsókn á fortíđ utanríkisráđuneytisins ţýska, ţegar hann var utanríkisráđherra Ţýskalands.
Helsta niđurstađa fjögurra höfunda bókarinnar er ađ utanríkisráđuneytiđ í Ţýskalandi, Auswärtiges Amt (das Amt), hafi veriđ miklu meira fléttađ inn í atburđaráđs glćpa Ţriđja Ríkisins og í helförina. Einn höfundanna segir ađ allir í ráđuneytinu hafi vitađ um helförina ţegar hún fór fram.
Ég vissi ađ bók ţessi var í smíđum og niđurstöđur hennar koma mér alls ekki á óvart. Ţađ voru einnig góđar fréttir sem ég fékk í gćr, ađ mikiđ vćri fjallađ um ţýska diplómatann g nasistann Georg Ferdinand Duckwitz í bók ţessari. Duckwitz mun eftir stríđ hafa leikiđ ljótan leik í ţýska utanríkisráđuneytinu.
Ţetta taldi ég víst ađ mundi koma í ljós, er ég skrifađi úttekt mína á gerđum Duckwitz í Danmörku fyrir fjórum árum. Hún birtist í Tímaritinu Rambam 15:2006, sem ég ritstýri nú. Greinina hafa lesendur mínir hér á blogginu getađ lesiđ í nokkur ár.
Eftir ađ ég hafđi samband viđ prófessor Moshe Zimmermann, einn af höfundum bókarinnar í gćr í Jerúsalem, er ljóst ađ grein mín um Duckwitz mun verđa nefnd í annarri útgáfu bókarinnar, ţví mínar niđurstöđur um Duckwitz koma heim og saman viđ niđurstöđur fjórmenninganna sem skrifuđu Das Amt und die Vergangenheit. Duckwitz var refur í sauđagćru og hjálpađi víst fleiri nasistum eftir stríđ, en hann nokkru sinni hjálpađi gyđingum í Danmörku.
Mér var hins vegar hugsuđ ţegjandi ţörfin af ýmsum ţegar ég gaf út grein mína í lok árs 2006, og enn situr gamall, fúll sagnfrćđingur í Danmörku og ţykist vera ađ skrifa bók um hinn fráćra mann Duckwitz, launađur af utanríkisráđuneyti Ţýskalands. Hann getur víst lagt ţau skrif á hilluna nú.
Ég hef áđur skrifađ um Duckwitz hér á blogginu: http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1039997/
Sjá einnig: http://postdoc.blog.is/users/3d/postdoc/files/Ducky/ich_weiss_2244.pdf
Sagnfrćđi | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2010 | 21:17
Cher Joly
Dýr var Eva öll. En madame Joly staldrađi nú ekki lengi viđ á Hotel Parodie de la Folie. Frúin skyldi ţó eftir sig dágóđan reikning og skilabođ um ađ 25% allra mála hjá afar sértćkum saksóknara vćru runnin út í sandinn - já og rauđu gleraugun, sem í dag voru til sýnis í hrunasýningu Ţjóđmenningarhússins.
Eins og frúin lét eftir sér í lokasýningu sinni í Ţjóđleikshúsinu: Enginn getur ráđskast međ skynsemi heildarinnar". Hún gleymdi hins vegar lokaorđunum í La farce Islandaise: Nema á Íslandi". Ţađ var enginn suffleur til ađ leiđrétta hana.
Madame Eva, prochain président de la Republique de bon Chance, au reservoir dans lhistorie de lIslande!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2010 | 10:14
700.000.000 króna rúst
Ţekktustu miđaldarústir á Íslandi liggja undir skemmdum og yfirvöldin sem bera ábyrgđ sjá ađeins 700.000.000 kr. lausn á vandamálinu.
Á sama tíma eru rústirnar sagđar vera frá víkingaöld (söguöld), ţótt ţađ sé arfavitleysa og haugalygi. Ábyrgđina á báđu ber Fornleifavernd Ríkisins, sem tekur ţátt í alţjóđlegu verkefni Destination Viking-Saga Lands, sem telur ferđafólki trú um ađ rústirnar sem sjást á Stöng séu frá Söguöld. Gott ef ekki er líka búiđ ađ klína ESB merki á rústina á Stöng.
Miklu fjármagni og mikilli vinnu var variđ í ađ lagfćra rústirnar á Stöng í Ţjórsárdal á árunum 1994-96 (sjá hér, ţađ tekur smá tíma ađ hala niđur). En ţeim viđgerđum var hćtt jafnfljótt og ţeir sem höfđu umsjón međ ţví verki hćttu báđir störfum á Ţjóđminjasafni Íslands áriđ 1996. Algjör stöđvun verksins var menningasögulegt slys, sem hafa veriđ mörg í fornleifavörslunni á Íslandi.
Viđgerđirnar á Stöng fyrir 15 árum síđan gerđu mikiđ gagn fyrir skálarústina á Stöng, sem er varin af skála sem reistur var á 6. tug síđustu aldar. En ţar sem ekki var lokiđ viđ verkiđ áriđ 1996, lekur enn inn í rústina vatn og á vetrum fennir inn í hana vegna ţess ađ skálanum yfir rústinni er ekki lćst. Hestapakkiđ sem ofríđur oft hlutunum utan ţjóđvega, hefur einnig, svo ég hef orđiđ vitni ađ, notađ rústina sem áningarstađ. Lausgangshestar og önnur dýr hafa gert sig heimakomin á Stöng. Ég hef eitt sinn komiđ af hjúum sem notuđu skálann til ástarleikja. Reiđhöll hefur Stöng ţannig einnig veriđ, og menn ganga ţar jafnvel örna sinna. Ţađ sćmir auđvitađ ekki Destination Viking.
Međan miđaldarústirnar á Stöng liggja undir skemmdum, eins og reyndar oft áđur, er nokkuđ furđulegt ađ sjá, ađ rústir á Stöng er auglýstar sem mikilvćgur ferđamannastađur, sem áhugamenn um víkinga eiga ađ sjá. En leiđinlegt er til ţess ađ hugsa, ađ fólk međ söguáhuga ţurfi ađ upplifa ömurlegt ástand rústanna á Stöng, svo ekki sé talađ um ađ Fornleifavernd Ríkisins kynnir rústina og aldur hennar gegn betri vitund.
Enn alvarlegra er ţegar Fornleifavernd Ríkisins kemst ađ ţví, ađ ţađ kosti hvorki meira né minna en 700.000.000 króna ađ gera eitthvađ almennilegt fyrir minjarnar á Stöng. Já ţiđ lesiđ rétt: sjöhundruđ milljónir króna !!!. Síđastliđiđ sumar lá spurningarblađ / viđhorfakönnun fyrir ferđamenn á Stöng međ ţessari tölu, sem er jafnvitlaus, óraunsć og eitthvađ rugl í útrásavíkingum međ deleríum fyrir hrun. Eru menn ekki međ jarđsamband hjá Fornleifavernd Ríkisins? Í viđhorfskönnuninni, sem upplýsti ţessa ćvintýralegu upphćđ, var greint frá ţví, ađ úttekt hefđi veriđ gerđ og ađ viđhald og viđreisn Stangar kostađi 700 millur. Voru menn beđnir ađ svara nokkrum spurningum og stinga ţeim svo í plastkassa frá Ikea. Ég spyr mig ađeins, hvađ kostađi úttektin og hefđi ekki veriđ hćgt ađ gera eitthvađ sem ekki var lokiđ viđ áriđ 1996 fyrir ţessa "glćsilegu" úttekt?
Hér má lesa síđbúna áfangaskýrslu mína um fornleifar á Stöng og ástand rústanna ţar, sem ég skrifađi fyrr á ţessu ári. Ţar geta menn kynnt sér ýmsar helstu niđurstöđur rannsókna á Stöng og réttmćta gagnrýni á Fornleifavernd Ríkisins, sem yfirmađur ţeirrar stofnunar má ţó helst allra taka til sín. Yfirmađurinn er greinilega gefin fyrir töluna 700 eins og í sjöhundruđ milljónum". Áriđ 2003 klagađi hún yfir ţví, ađ ekki vćru til neinir peningar í viđhald 700 minja á Íslandi, sem er líklega rétt. En 700.000.000, (33,6 milljónir danskra króna) er hins vegar tala sem eyđileggur allan framkvćmdavilja og áhuga, sérstaklega nú í kreppunni. Forstöđumađur Fornleifaverndarinnar er augsjáanlega enn í forkreppurugli.
Mig grunar ađ Fornleifavernd Ríkisins vilji vel og sé međ vota drauma um gler- stál og steinsteypućvintýri til ađ innsigla Stöng í í formalíndrullu og spritti, líkt og hefur veriđ gert viđ skála í Reykjavík. Hćgt vćri ađ hafa gluggana eftir Ólaf Elíasson. Stjórnmálamönnum líkar svoleiđis "fornminjar".
Ţessi betliađferđ á skrýtnu skilti, sem var hannađ af Guđmundi Ólafssyni, voru lengi einu skilabođin til ferđamanna á Stöng. Eitthvađ safnađist í baukinn, en einnig var rćnt úr honum, lásinn brotinn upp og greipar látnar sópa. Aldrei tókst mér ađ hafa upp á ţví hvert peningar úr bauki Gauks runnu. Jólaveisla starfsmanna Ţjóđminjasafnsins var ein kenningin sem ég heyrđi. Ađ gefa Gauki á baukinn er nú kannski í viđ betra en ađ gefa Gauki beint á hann međ 700.000.000 reikningi. Gaukur hefđi nú ekki skiliđ slíkt skotsilfur.
Ég held hins vegar, ađ hćgt sé ađ gera eitthvađ fyrir Stöng fyrir minna, og jafnvel hafa ţann fornleifafrćđing, sem líklegast er fremsti sérfrćđingur landsins um Stöng og rannsóknir ţar, međ í ráđum fyrir enn minna. Allt gćti gagnast túrismanum á endanum, sérstaklega ţegar menn fara ađ sćtta sig viđ ađ búsetu lauk á Stöng á 13. öld en ekki áriđ 1104. En ég ţakka ađ sjálfsögđu fyrir hlýhuginn hjá Fornleifavernd Ríkisins međ ţví ađ hugsa svo rausnarlega um ţann stađ, ţar sem fornleifarannsóknir mínar hafa mest fariđ fram. Ég bíđ eftir ţví ađ vera kallađur til starfa, ţegar stofnunin er búin ađ vinna 700 millur í happadrćttinu. En hingađ til hafa menn hjá Fornleifavernd Ríkisins ekki veriđ ađ hafa samband viđ mig, t.d. ţegar ţeir hafa veriđ ađ skrifa ruglingslega texta til ađ telja ferđamönnum trú um hitt og ţetta. En lesiđ nú skýrslu mína, sem ég veit ađ Fornleifavernd Ríkisins gerđi, áđur en hún stakk henni undir stól.
Ég lćt ykkur svo vita, lesendur góđir, ţegar ég er búinn ađ fá vinnu viđ viđreisn Stangar í Ţjórsárdal. Ég ţarf ekki 300.000.000 í árlegar aukagreiđslur, ţví ég er bara atvinnulaus menntamađur - en raunsćr. Svo geta margir af ţeim ungu fornleifafrćđingum, sem búiđ er ađ offramleiđa viđ HÍ líka líka fengiđ vinnu viđ verkefniđ. Kannski er stađa yfirmanns Fornleifaverndar Ríkisins ađ losna fyrir einn ţeirra? Hvasegiđiđkrakkar?
Menning og listir | Breytt 14.10.2010 kl. 09:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2010 | 14:27
Höfuđ borgarinnar
Borgarstjórinn í Reykjavík fékk sér tattú um daginn til ađ sýna borgarbúum samstöđu. Ég fékk mér tattú í gćr til ađ sýna borgarbúum samúđ mína.
Menning og listir | Breytt 7.10.2010 kl. 03:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2010 | 07:31
Hollendingar finna nýjan Rembrandt
Fjölmiđlar í Hollandi greina ţessa dagana frá ţví ađ fundist hafi nýtt málverk eftir Rembrandt. Arfavitlausar fyrirsagnir eru víst ekki einvörđungu skrifađar í íslenskum fjölmiđlum. Ţetta er vitaskuld ekki nýr Rembrandt. Ţađ rétta er, ađ sérfrćđingar á Museum Boijmans Van Beuningen í Rotterdam hafa uppgötvađ ađ málverk sem ţeir höfđu í geymslu var eftir Rembrandt, sem ţó er sjaldgćfara en ţegar ţeir lýsa ţví yfir ađ málverk sem talin voru eftir hann séu í raun eftir einhvern nemanda hans.
Rembrandt málađi ţetta verk áriđ 1659 ofan á málverk annars málara. Slík ofanámálun er venjulega talin vera fölsun á Íslandi, en á Íslandi hafa alrei veriđ til Rembrandtar. Málverkiđ sýnir Tobias, sem var persóna í Biblíunni, og konu hans Söru, ţar sem ţau sitja í stofu sinni í ellinni. Greinilegt er ađ Rembrandt hefur, eins og oft í öđrum myndum sínum, veriđ ađ mála einn af nágrönnum sínum í gyđingahverfinu í Vlooyenburg í Amsterdam, eđa ţar í nágrenninu, ţar sem fađir minn átti heima fyrstu 2 ár ćvi sinnar, n.t. í húsi sem lá ţar sem óperuhúsiđ (Muziektheater) var reist fyrir 23 árum síđan.5.10.2010 | 04:13
Burt međ nasistana og ađra útrunna merkjavöru af Austurvelli !
Fólk sem misst hefur heimili sín, vinnuna og jafnvel vitiđ vegna óstjórnarinnar á Alţingi, verđur ađ koma í veg fyrir ađ nasistafífl séu ađ misnota ţađ. Ekki ćtla ég útiloka ađ á međal nasistanna á Austurvelli séu fólk sem er lemstrađ af kreppunni, en hverjum kenna nasistar um?
Trođiđ eggjum upp í litlu nasistasvínin eđa hendiđ ţeim í höfnina. Ţeir eru tímaskekkja. Nasismi og kommúnismi eru öfgastefnur og fávitahugsjónir, sem eiga ekki viđ Íslendinga. "Kommana" úr Alţingishúsinu og nasistana af Austurvelli.
Ungt fólk sem vill sýna "lit", ćtti ef til vill ađ fá sér tattú á handlegginn eins og borgarstjórinn, sem er međ sama merkiđ á handleggnum og strćtóinn sem pabbi hann ók í forđum var međ á hliđinni. Hollar merkingar eru alltaf góđar, en hamar, sigđ, hakakross og ESB-ţyrnikrónan eru hins vegar óţörf píningarverkfćri á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2010 | 14:04
Gott viđtal viđ Wolfgang Edelstein
Hlustiđ á frábćrt viđtal Ágúst Ţórs Árnasonar og Ćvars Kjartanssonar viđ skóla- og miđaldafrćđinginn Wolfgang Edelstein í Ríkisútvarpinu.
Í viđtalinu segir Wolfgang ćvisögu sína, og međal annars frá ţví, er hann fylgdist međ umrćđu á Alţingi um umsókn sína fyrir ríkisborgararétt. Bjarni heitinn Ben var alfariđ á móti, enda margir í Sjálfstćđisflokknum og Framsókn andsnúnir gyđingum. Jón á Ökrum (Pálmason) mćlti hins vegar međ piltinum, sem hann ţekkti sem góđan smala norđan úr Húnaţingi, ţar sem Wolfgang var löngum í sveit hjá nágrönnum Jóns. Bjarni Ben var hins vegar ekki eins andsnúinn íslenskum ríkisborgararétti fyrir eistneskan stríđsglćpamanns, sem settist ađ Íslandi og sem sótti oft stuđning til Bjarna Ben og síđar til annarra sjálfstćđismanna.
Móđir mín var í gagnfrćđaskóla og menntaskóla samtíma Wolfgang. Hún hefur sagt mér sögur frá ţví hvernig hann eftir nokkur ár á Íslandi skrifađi bestu stílana í skóla og var hrósađ af yfirlýstum nasista, Knúti Arngrímssyni, fyrir ađ vera langtum klárari en íslenskir samnemendur hans. Knútur, var einn ţeirra fáu manna, sem á 4. tug 20. aldar leyfđi sér ađ fara fram á afnám prent- og skođanafrelsis á Íslandi, var uppgjafaprestur sem skrifađi klámvísur um sóknarbörn sín, sjálfstćđismađur og loks einn fremsti talsmađur nasismans á Íslandi.
Hlustiđ á ţetta frábćra viđtal viđ Wolfgang Edelstein, ţar sem nefndir eru til sögunnar Max Horkheimer, Jürgen Habermas, Theodor W. Adorno og ađrir merkismenn sem Edelstein hefur kynnst.
Ţátturinn um Prof. Dr. Dr. Edelstein er kafli í Íslandssöguna. Mikiđ hefđi nú veriđ gott ađ fleiri eins og hann hefđu veriđ til á Íslandi.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Bćkur
Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafrćđi
FORNLEIFUR -
Ţrćlasalar í Norđurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri fćrsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveđskapur -
: Flóttamađurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmćlum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyđingar á Grćnlandi
Fyrri fćrsla og tenging viđ grein eftir mig á dönsku um gyđinga á Grćnlandi -
Flogiđ hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri fćrsla
Líkţráir Íslendingar -
: Lesiđ hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri fćrsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri fćrsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forđum
Fćrsla um óeirđir og lćti í ćsku minni -
Fyrri fćrsla
Ţegar Gúttó varđ samkunduhús gyđinga -
Fyrri fćrsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Fćrsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferđir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblađsins 28.águst 1999. -
Fyrri fćrsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri fćrsla
Pabbi Ţórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um ţjóđarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríđsglćpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyđinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á ađ hafa veriđ potturinn og pannan viđ björgun gyđinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerđ grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfrćđingar hafa gleymt ađ rannsaka. Hlutverk Duckwitz verđur nú ađ endurskođa. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifađ töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er međhöfundur ađ einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jřdiske flygtningeskćbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um međferđ danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu fćrslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síđan í síđustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niđurstađan: KiSS or Bćjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verđur í Fćreyjum nćstu dagana
- Sjúklega svćsinn gyđingahatari er vinsćll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svćsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráđur eins og lús á feldi
- Utanríkisráđherra eyđir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óbođlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri fćrslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007