Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Á

Antoin_Sevruguin_12_Falak_Whipping_the_soles_of_a_criminal

Ég ætla ekki að dæma friðartrúarbrögðin Íslam, sem sumir leyfa sér meira að segja að kalla Múhameðstrú. Þau dæma sig nefnilega sjálf og þeir seggir sem misnota trúarbrögðin til skítverka.

En lýðurinn fær það sem lýðurinn vill. Þeir styðja það sem vilja það. Þeir vesturlandabúar sem lýsa stuðningi við öfgaíslam, eins og þeir sem styðja Hamas og Hizbollah og mæla Íranstjórn bót, eru meðsekir að hrottalegum limlestingum. Ég vona að engin sé eftir að rassskella heilaga fábjána á Íslandi fyrir að fá sér kollu af öli. En kannski væri í lagi að kaghýða og raðflengja þessa kjána fyrir stuðning þeirra við verstu fjendur lýðræðis á byggðu bóli.

Múslímar í löndum sem ekki eru enn undir oki Íslam, vilja að sharíalög séu jafngild landslögum. Kannski erum við á Vesturlöndum eftir að sjá fleiri opinberar flengingar og hýðingar eins og aftur í forneskju, og það allt í nafni skilnings. En það verður aldrei á Íslandi. Alkinn Grýla og bjórbumban Leppalúði mun flengja alla sharíaböðla með vendi áður en þeir geta sagt sh..

Þessi tók vendina í eigin hönd á ráðstefnu sem útrásavíkingarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Össur Skarphéðinsson sátu nýlega í Qtar. Respect:

teez

mbl.is Verður hýdd vegna bjórdrykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV eyðileggur fréttirnar

Tape-Spaghetti

og viðurkennir það fúslega. Fréttatími RÚV frá byrjun kreppunnar hefur verið eyðilagður, en menn náðu mynd af Davíð á rauðu ljósi, þar sem hann vinkar og hagræðir krullunum. Mikið var það nú frábært.

Að RÚV skrumskæli fréttir, eru ekki nýjar fréttir. En nú er RÚV líka farið að eyðileggja fréttir.

Eru myndir af Davíð að strjúka hárið merki um kreppu? Ég hefði frekar haldið, að ef að hann hefði borað í nefið, hefði það verið ástæða til aðvstaldra við. Hor er fylgifiskur kreppu.

Er Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður? Ég leyfi mér að draga það í efa eftir að hafa séð þessa "fréttaskýringu" hennar í sjónvarpsfréttum kl. 19. í gær.

Getur RÚV upplýst hvað var í þessum eyðilagða fréttatíma, og hvað margir aðrir fréttatímar hafa eyðilagst hjá stofnuninni frá t.d. aldamótum?

Nú tel ég víst að réttur dagsins í Efstaleiti verði : Kreppufréttir með rauðri sósu.


Ætli Jóni hefði...

haft ráð á því að kaupa Moggann
líkað við Davíð Oddsson eða sagt upp áskriftinni á Morgunblaðinu?
Ég hef bara ekki hugmynd um það.

Melchior Lorck

sultan
 

Út er komið í Danmörku stórverk fyrir fagurkera og aðra sem hafa áhuga á menningarsögu 16. aldar eða Ottómanskri menningu. Þetta er fimm binda verk um danska listamanninn Melchior Lorck (1526- ca.1588) http://www.melchiorlorck.com/.

Lorck fæddist i Flensborg og var sonur ráðsmanns þar í bæ. Hann vann við list sína fyrir danska konunga, en mestan hluta ævi sinnar bjó hann utan Danmerkur og gekk t.d. í þjónustu Þýskalandskeisara. Hann starfaði þrjú og hálft ár í þýska sendiráðinu í Konstantínópel og þar safnaði hann upplýsingum og teiknaði teikningar í eitt merkasta verk sitt sem gengur undir nafninu Tyrkerværket, (Tyrkjaverkinu). Það samanstendur af 128 myndristum. Myndirnar voru fyrst gefnar út löngu eftir dauða Melchiors, eða árið 1626. Myndir Melchiors Lorcks frá Tyrklandi er mjög mikilvæg heimild um lífið þar í landi á 16. öld. Skoðið myndina af sultaninum Suliman (Süleyman) Lagabæti (Kanuni), hér að ofan. Klikkið tvisvar á myndina til að stækka hana.

Það er Forlaget Vandkunsten sem gefur verkið um Melchior Lorck út. Fyrir utan fræðilega samantekt aðalsérfræðings Dana um Lorck, Erik Fischer (f. 1920), og þriggja annarra fræðimanna, er eitt bindið yfirlit yfir verk Lorchs, annað ný útgáfa á Tyrkjaverkinu og enn eitt facsimile útgáfa af yfirlitsmynd Lorcks af Konstantínópel, sem varðveitt er í Leyden í Hollandi. Myndin er um 12 metra löng. Unun er á að líta. Sjá smáhluta af henni hér

Hið góða bókaútgáfa Forlaget Vandkunsten hefur gefið út margar aðrar góðar bækur, t.d. þessa, og aðrar eru á leiðinni. Ef til vill er þetta ein besta bókaútgáfa í Danmörku í dag, því þar er borin virðing fyrir frágangi og fegurð bóka til jafns við gæði innihaldsins. Þegar um meistara eins og Lorck er að ræða hefur verið lagt mjög mikið í verkið. Allt verkið er því mjög dýrt, heilar 300 evrur, en þeim peningum er vel varið, því þetta verk er eftir að hafa mikið söfnunargildi og enn meira menningargildi. Fjárfesting í menningu er það eina sem dugar.  


Einsleit þjóð

510191

Þegar erlendir ferðalangar heimsóttu Ísland fyrr á tímum höfðu margir það oft að orði hvað Íslendingar væru líkir hvorir öðrum. Glöggt er gests augað. Menn tóku sérstaklega eftir kubbslegu höfuðlagi margra Íslendinga. Grái húðliturinn kom einnig til tals og sumir ferðalanganna sögðust ekki hafa séð slíkan húðlit nema á meðal Sama í Norður-Noregi og Íslendinga. Síðar uppgötvuðu menn að þetta var allt vegna vægrar skyldleikaræktar. Skyldleikinn og klíkuskapur gerði að einn „stofn" hreinræktaðra íslenskra karla fékk með tímanum samanrekið og kubbslegt útlit, lítil og stutt nef og mörg kvenleg einkenni. Jón Steffensen heitinn, læknir og mannfræðingur sagði mér eitt sinn, að hauskúpur íslenskra karla væru mjög kvenlegar og að það væri stundum erfitt að sjá hvors kyns var.

Myndin hér að ofan sýnir þetta í hnotskurn. Fjórir menn á sviði Iðnó. Sama höfuðlag (kubbahaus; einnig kallaður þverhaus í eldri ritum), sama holdafar, sama barnslega ennið, hakan, sama litla, krúttlega nefið, sami hárliturinn, sömu litlu eyrun, sama jakkasettið, sömu augnabrýrnar, sama hesið undir hökunni, sami svipurinn, já og sjáið hnakkann. Bindin eru þó mismunandi. Eru þetta fjórburar, bræður úr afdölum austanlands, eða vel heppnuð tilraun langhöfðans Kára Stefánssonar til klóna hagfræðimonster?  Svarið er Nei og aftur nei. Þetta er árangur 1135 ára ræktunarstarfs.

storaplanid02

Þessi mynd sýnir hinn virta, ítalska mannfræðing Manfred Quephallo Mesochrani frá Hunter Ketchup College i New York, sem hefur stundað rannsóknir á Íslandi á áratugi á styrkjum frá Birni Bjarnasyni fyrrv. menntamálaráðherra, sem um tíma sótti námskeið á Ketchup College. Hér er Mesochrani að rannsaka dæmigerðan íslenskan mann með kubbahaus. Tekið eftir nefinu og enninu og hesinu. Eftir miklar rannsóknir Manfreds Mesochranis er einnig komið í ljós að Elton John er greinilega af íslenskum ættum.


Spurning til forsætisráðherra

Þú lokar munninum svona

Jóhanna, er framtíð þjóðarinnar trúnaðarmál?

Jóhanna, opnaður þig nú, leystu frá skjóðunni, beraðu málbeinið og notaðu tunguna. Vertu dálítið frökk. Segðu okkur allt af létta í stað þess að vera í þjónustu erlendra stórvelda sem krefjast trúnaðar um leið og þau hlekkja okkur við staur. Þú ert ekki embættismaður í Hollandi, Bretlandseyjum, þú ert þjónn okkar, en ekki þeirra. Þú getur ekki sagt NEI við okkur (eða Egil Helga) eða vænt umboðsmenn meira en helmings Íslendinga á Alþingi um trúnaðarbrest. Þú ert ekki yfirmaður á ríkisstofnun sem ávítar starfsmenn sína fyrir gagnrýni. Þú er forsætisráðherra og ættir að geta tjáð þig öðruvísi en með hótunum við þína eigin þjóð þegar á móti blæs.

Við sitjum uppi með óstjórn. Ekki er þetta félagshyggjustjórn. Það vottar ekki fyrir neinu slíku á Íslandi, nema ef menn kalla setu forseta ASÍ í skúffufélagi á Tortólu félagshyggju.

aframisland

Nei, vinstrimenn sem eru svekktir yfir trúbræðrum sínum í ríkisstjórn og öðrum stjórnunarstöðum, verða að gera sér grein fyrir því, að það er ný gerð af fasisma sem núverandi ríkisstjórn er heltekin af. Nú verður þjóðin nefnilega barin til hlýðni af manneskju sem virðist vera ólæknanlegur sósíófób. Það er ekki nóg að vera "openly gay", þegar maður er snigill sem hefur harðlæst kuðunginum. Það er engin ástæða að halda um pung þegar maður er ekki með neinn. 

Jóhanna er hrædd við að segja þjóð sinni allt af létta í einu vandasamasta máli sem þjóðin hefur komist í. Þess vegna er hún farin að hóta okkur, þá sjaldan að hún talar.

Forsætisráðherra landsins og ríkisstjórn hennar eru orðnir að landráðamönnum, því þeir ganga erinda erlendra ríkja, sem vilja hneppa saklausa þjóð í þrældóm. Ríkisstjórnin vinnur gegn þjóðinni vel vitandi að kröfur erlendra ríkja varða aðeins þá sem ollu fjármálakreppunni. Þeir einir eru sekir! Við höfum stjórn sem ætlar sér að skella skuldinni á þjóð sína, án þess að þjóðin hafi stofnað til skuldarinnar. Það er landráð. Heilvita maður setur ekki þjóð sína í vanda. En fasistar eiga það til. Það er þannig stjórn sem er á Íslandi nú.


mbl.is Trúnaðarbrestur stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir á sýningu

Blomsterlandet

Ég fór á ferniseringu í dag. Eggert málari Pétursson opnaði sýningu á blómamyndum sínum á jarðhæð Nordatlantiske Brygge á Christianshavn í Kaupmannahöfn. Hann sýnir þar lyng svo litrík, að ég hef aldrei séð neitt eins blómlegt nema í garði móður minnar. Myndirnar voru svo kræsilegar, að mann langaði hálfpartinn að leggjast í berjalautir og sortulyng Eggerts, umvafinn íslenskum mó- og skógarplöntum, ljónslöppum og fíflum ... þangað til maður fann línolíulyktina, sem var enn megn af sumum myndunum. Sumar voru alveg frískar úr fabrikkunni. Þarna var ekki annar stíll hjá Eggert en á fyrri  blómamyndum hans og stundum fær maður á tilfinninguna að hann haldi mikið upp á Kjarval. En það var meiri litadýrð en áður. Sumar myndirnar minntu jafnvel á teppi frá Isfahan.  

Mannavalið á sýningunni var nú líka fjölbreytt flóra. Vinir vors og blóma, íslenskar og íturvaxnar grænlenskar blómarósir, íslenskir kúlturnjólar og Sveinn Einarsson fyrrverandi þjóðleikhússtjóri var þarna líka og gamall kennari minn í listasögu í MH, Halldór Björn Runólfsson. Eggert málari var einna litminnstur fyrir utan mann með sólgeraugu, áttpensarahatt og menningarvömb sem gekk þarna um og þefaði af myndunum. Þarna var líka mættur bókaútgefandi með þungan lykil da Vincis um hálsinn. En flest átti þetta fólk það sameiginlegt að að vera ættað úr afdölum á Íslandi, þar sem gróðinn getur aldrei orðið eins yfirgengilegur og í myndum Eggerts. En þetta er ekta íslenskur gróði hjá Eggert, ekki neinar útrásavíkingafalsanir.  

Sonur minn 6 ára sýndi ekki myndlist hinn minnsta áhuga frekar en fyrri daginn. Blóm hvaaaaað? Hann drakk í staðinn 4 glös af appelsíni og var með mannalæti við yngri snáða sem voru þarna líka með foreldrum sínum.

Svo þegar búið var að dásama fallegar myndir og velta því fyrir sér hvað þær myndu kosta og hvað þær pössuðu vel á veggnum heima, var haustsólin sleikt við kajann.  Þegar hún var byrjuð að stinga þægilega í húðina var hugsað til heimferðar. Hver kemur ekki þá ekki ríðandi í hlað á blökkum járnfák. Jú sjálfur sendiherrann. Sá sem var framlengdur fyrir afrek sín í ICESAVE málinu? Já, sá sem var framlengdur. En það var sko enginn framlengdur Trabant sem hann var á, heldur hápunktur þýsks ofurkapítalisma. Hann ók dólgslega og snarhemlaði fyrir framan íslenska sendiráðið og setti silfurgráa frúna af, og ók síðan drossíunni á sinn stað bak við pakkhúsið. Ég sleppti því að sjá sirkusinn sem fylgdi. Ég er ekki fyrir óþarfa framlengingar. Svavar hefur örugglega keypt mynd, ekki trúi ég öðru.  

Það er hægt að mæla með því að fara á Nordatlantens Brygge og sjá sýningu Eggerts, Blomsterlandet. Maður fær heimþrá og löngun til að fara í gönguferð út í íslenska náttúruna til að sannreyna hvort það sem hann er með á striganum sé þar í raun og veru. Það er engin kreppa í litum Eggerts.


KRANTAI

krantai 2

Nýlega fékk ég sent tímaritið Krantai 2009 (1), sem er litháískt menningartímarit. Því miður get ég ekki lesið þetta fallega tungumál, en maður sér þótt ólæs sé, að efnið er afar vandað.

Ekki er heldur við öðru að búast. Vinur minn, dr. Svetlana Steponaviciene bókmenntafræðingur, er í ritstjórn þessa heftis. Hún hefur þýtt ýmis íslensk ritverk yfir á rússnesku og litháísku, og hún er mörgum á Íslandi vel kunn. Svetlana er með grein í Krantai um hinn íslenskættaða Åge Meyer-Benediktssen, sem er þjóðhetja í Litháen. Ég hef skrifað um hann hér á blogginu og einnig hér, og á í handriti grein um ættir hans á Íslandi og í Danmörku, sem ég verð að koma frá mér.

Einnig er mikil minningargrein eftir Svetlönu um hinn merka fræðimann og vin hennar, Jörund Hilmarsson  (1946-1992), sem hún kallar á íslensku: Jörundar saga Hilmarssonar Lithaugalandsfara. Jörundur var einn helsti sérfræðingur heimsins í tokkarísku. Ég var mjög forvitinn er ég sá þetta tungumál nefnt í fyrsta sinn. Það var í tilkynningu um styrkveitingar frá íslenskum sjóð, sem ég sótti einnig um fé í. Ég reyndi að kynna mér hvers kyns þetta dularfulla tungumál var, en það tókst ekki fyrr en seint og síðar meir er ég ræddi þetta við góðan vin, sem vissi ýmislegt um þetta tungumál. Hér má lesa um tokkarísku.

Krantai um Frón. Krantai þýðir strendur. Þetta er vandað rit og góður reki, sem ég get því miður ekki nýtt mér frekar en tokkarísku, en ég er ekki í vafa um gæðin, því ég veit að Svetlana Steponaviciene hefur séð til þess að þau voru mikil. Hún er einn af þessum ekta Íslandsvinum.

Þess má geta að skrifaði nýlega um tyrkneskt tímarit, sem var helgað Íslandi að hluta til. Sjá hér.


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband