Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Kynning

Með lögum skal land byggja - Iran style

  Íranskar löggur

Smellið hér til að sjá íranskar löggukonur að leik

Í dag eru tvær greinar í danska, helgar- og menningarsnobbblaðinu Weekendavisen, sem ég hef gerst svo frægur að skrifa nokkrar greinar í í lífsleiðindunum mínum, enda menningarsnobbari á köflum.

Ein greinin, "Østen og Vesten" er eftir cand. mag. í írönsku og trúarbragðasögu, sem virðist komin á mála hjá stjórninni í Íran. Fjallar greinin um fréttaflutning á vesturlöndum af lögreguaðgerðum gegn konum í Íran, sem ekki bera hulinshettur á réttan hátt. Gerir sérfræðingurinn því skóna að gjörvallir fjölmiðlar, sem birt hafa þessar fréttir og sýnt hafa fatagínur sem írönsk yfirvöld hafa sagað brjóstin af, í samræmi við lög landsins, og aðra upplýsingar um aðgerðir gegn konum á götum úti sé tilbúningur og útúrsnúningur með rangar áherslur. Candmaginn telur greinilega að fjölmiðlar eigi að vera siðapostular.

Hin greinin, "Kvindekamp", sem fyllir heila baksíðu í fyrsta hluta blaðsins, er eftir ágæta blaðakonu á Weekendavisen, Pernille Bramming. Hún leggur fram 10 myndir til stuðnings fréttunum um aðgerðir siðgæðislöggunnar í Íran, og bendir jafnframt á heimasíðu kvenna sem hafa mótmælt siðgæðislögum þeim sem komið hefur verið á í Íran. Greinin sýnir fram á það sem candmagagreinin dregur í efa.

Ekki er því hægt að kvarta undan því að Weekendavisen sýni ekki báðar hliðar á málunum, enda stórmerkilegt blað. En grein candmagans Mette Hedemand Søltoft sýnir hins vegar vel hvernig vinstri-menntamenn eru smáhrifnir af mannréttindabrotum í hinum íslamska heimi.

Býð ég nú lesendum mínum aftur í bíó. Ef þið klikkið hér, þá getið þið séð íranska lögreglu handtaka konu, sem ekki var klædd eftir dresskóti ógnarstjórnarinnar í Íran. Kannski var handtekna konan bara bankastarfsmaður í Teheran á allt of háum launum?  

Hér eru annað myndskeið. Þetta minnir dálítið á Apaplánetuna.


Mínu Mús hefur líka verið rænt

mína mús

Nýjustu fréttir herma að Mínu Mús hafi verið rænt. Hún hefur sést á götu í Teheran, en ekki er hægt að staðfesta þessa frétt, þar sem okkar maður í Teheran hefur verið fangelsaður fyrir að taka myndir af konum í klæðnaði sem er þóknanlegur Allah. Daman á myndinni sagðist heita Mína retta.


Mikka Mús hefur verið rænt í Gaza

Hamas mús með lim 

Mikka mús hefur verið rænt í Gaza. Hann hefur verið neyddur til að vera með í "Stundinni Okkar" og kenna palestínskum börnum að verða sjálfsmorðingjar í Ísrael, að lýsa yfir sigri yfir Ísrael, BNA og Danmörku, að drepa alla gyðinga og lýsa yfir heimsyfiráðum Íslams. Ímyndið ykkur Mikka, með sína skræku rödd hrópa: "Lifi íslamska byltingin, dauði yfir trúleysingjana".

The Guardian tókst að túlka þetta svona: "Palestinian TV uses Mickey Mouse to promote resistance".  Að drepa gyðinga er nú orðið andspyrna. Hitler var væntanlega í andspyrnuhreyfingunni, að minnsta kosti samkvæmt einfeldningunum á Guardian.

Ætli Hamas krefjist lausnargjalds? Ætli Mikki verði hálshöggvinn? Allt er óvíst. Ég finn ekkert um kröfur Hamas fyrir Mikka á heimasíðu Hamasvinafélagsins á Íslandi.

Hugsanlegt er að Michael Moore hafi verið víðar en á Kúbu og hafi þegar hálshöggvið Mikka.

mickeyhead

Eitt er hins vegar víst, það er ekki auðvelt að vera mús og sérstaklega mús með lim eins og Mikki.


Vers um Per

Per

Þetta er hann Per. Hann er enn utanríkisráðherra Dana. Hann vildi ekki, af siðferðilegum ástæðum, hitta Paul Wolfowitz á Íslandi í síðustu viku og bað Valgerði Sverrisdóttur að skrifa Wolfowitz bréf þar sem það var tilkynnt. Wolfie er í vondum málum.

En í dag tók Per á móti utanríkisráðherra Írans í Kaupmannhöfn. Hvaða ástæður eru fyrir því veit ég ekki, en vart geta þær verið siðlegar. Líklegast vilja Danir selja meira til Íran. Hefð er fyrir slíku í Danmörku. Danir seldu mikið til nasista á stríðsárunum. Þeir seldu frelsi sitt.

Utanríkisráðherra Írans, Manouchehr Mottaki kennir í sífellu Bandaríkjamönnum og Ísraelum um all það sem miður fer í heiminum. En hvernig er ástandið í Íran?

Danir reyna allt sem þeir geta að senda flóttamenn til Íran. Ég hef barist fyrir því að írönskum feðgum var bjargað frá því óðs manns æði. Ég fór í spurningartíma í danska þinginu, þar sem baunað var á Per vegna greinar sem ég skrifaði í Politiken. Per sat þar og laug alla fulla! En yfirvöldum tókst samt sem áður ekki að senda mennina úr landi.

Per langar ekki að hitta Wolfowitz, en han hittir ólmur Mottaki yfirböðul frá Íran. Það verður líklega Per verst á endanum að hafa móttekið Mottaki.


Ferðafólkið er í bráðri hættu!

Norskir tatarar 

Tónelska ferðafólkið, sem allir eru að tala um, eru Roma, þ.e.a.s. sígaunar. Áður fyrr voru sígaunar og tatarar oft sjómenn í Noregi. Sumir komu til Íslands.

Norðmenn eru vanir að senda sígauna úr landi. Þeir lokuðu á þá árið 1927 og boluðu mörgum burt. Seinna var þetta fólk í flestum tilfellum myrt í útrýmingu nasista á fólki sem minnti þjóðverja á mannlegt eðli. Sígaunar og tatarar (Sinti), sem enn voru í Noregi, átti að koma fyrir kattarnef árið 1943, en því var sem betur fór aldrei komið í verk. Eftir stríð reyndu norsk yfirvöld að sundra tatarafjölskyldum og þvinga þær til fastrar búsetu. Norskar sígaunakonur voru vanaðar með valdi og börn voru tekin frá fjölskyldum sínum og nauðgað. Norðmenn eru enn ekki búnir að bæta fyrir þessar hörmulegu aðfarir að þessum minnihlutahópi í landi sínu. Norðmenn ætluðu sér líka að setja peninga og eignir þeirra 769 gyðinga sem voru sendir til Auschwitz í ríkiskassan.

Ég beini þeim óskum til íslenskra yfirvalda: Frelsið það fólk sem þið senduð úr landi úr klóm Norðmanna. Sagan sannar að þeim er ekki treystandi í meðferð sinni á farandsfólki.

Hér getið þið lesið örlítið um LOR, Landsorganisasjonen for Romanifolket í Noregi


mbl.is Norska útlendingastofnunin í viðbragðsstöðu vegna Rúmena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rúmenskir spilimenn – Saga sígauna á Íslandi

Vísað burt

Sígaunar sem líka var vísað burt. Myndin er tekin í útrýmingabúðum nasista í Belzec

Mikið varð nú stutt saga rúmensku sígaunanna á Íslandi, sem vísað var úr landi fyrir að spila á nikku við Bónus og frjósa í almenningsgörðum. Hvað kom til? Borgaði tónlistarfólkið kannski ekki STEF-gjöldin? Eða voru þetta bara hin venjulegu, íslensku viðbrögð við fátækum útlendingum, sem allir eru að reyna að klína á Frjálslynda flokkinn.

Ég efast um að Roma fólkið frá Rúmeníu hafið komið hingað til lands til að leita uppi ættmenni sín, dansk- og norskættaða sígauna, sem ekki hafa haft hátt um uppruna sinn. Hver veit, lögreglan gæti einnig farið að skutla þeim út á Keflavíkurflugvöll á bye-bye miða. Best er að gefa ekkert upp um ættir íslenskra sígauna.

Hér í Albertslundi, þar sem ég bý, eru sígaunar (Roma) frá Rúmeníu að spila í öllum veðrum. Leita sumir þeirra skjóls í undirgöngum undir lestarstöðinni okkar. Þessa dagana er maður um fimmtugt að spila og spilar hann reyndar listavel. Ég læt alltaf gljáðan skilding falla í nikkukassan, þegar ég kem þar hjá. Han spilar fyrir mig jazz, kletzmer, sígaunavalsa og tarantellur og er farinn að gefa mér extra númer. Albert, sá sem bæjarfélagið heitir í höfuðið á, var franskur maður af ætt Roma, sem varð læknir Danakonunga á 19. öld. Átti hann hér sumarhús, eða frekar stóran húsvagn.

Í vetur sá ég hins vegar ljóta sjón. Ég kom hjólandi á leið í búðir og ætlaði að fara niður í göngin fyrrnefndu. Þá stóð þar Benz bíll á sænskum plötum og sígaunar tveir, vel klæddir, að kljást við þann þriðja og hentu honum svo að segja út úr bílnum með nikkuna. Ég stöðvaði til að sjá ósköpin, en maðurinn með nikkuna forðaði sér í burtu og hinir velklæddur óku á brott. Síðar sá ég manninn, sem var verið að tuska til, þenja nikkuna nokkuð eymdarlega. Ég er viss um að þetta fólk á ekki sjö dagana sæla, en það er oft þeirra eigið ættfólk sem eru þrælahaldararnir.

Mér finnst gaman af ákveðinni nikkumúsik og sérstaklega af leikni sígauna með nikkuna. Fyrir svona 7-10 árum síðan voru hér í Kaupmannahöfn rússar, hálærðir músíkantar, sem spiluðu á nikkur og balalækur í öllum stærðum. Þeir kunnu líka að betla. Þeirra tónlist var ekki nærri því eins skemmtileg og músík rúmensku sígaunanna. Rússarnir eru nú farnir. Vonandi þénuðu þeir vel.

Ég skil ekkert í fólki á Íslandi, eða löggunni, að vilja ekki njóta góðrar tónlistar aðeins lengur. Menn gætu hafa beðið með að senda sígaunana úr landi eftir gott nikkusumar. Tekið þetta sem viðbót við Listahátíð og hýst fólkið í vinnuskúrum.  En svona eru nú Íslendingar, kaldir og ómúsíkalskir.

 

Leitin að beinum Egils (2. hluti)

Pagets1D_CR 

 

"The skull gradually fills in with densitites, as shown here, and the skull thickens and softens"

Þessa skýringu á framskriðnum Paget's sjúkdómi er að finna á síðu Stanfords háskóla um sjúkdóminn.  Ekki urðu meint bein Egils "soft", smkv. Egils sögu og Byock, eða hvað?

Leit Jesse L. Byocks að beinum Egils eru náttúrulega tálbeita. Byock notar álíka aðferð til að fá fjármagn til rannsókna sinna og þegar Kári í DeCode dáleiðir menn með "ættfræðirannsóknum", sem sýna eiga ættir manna aftur til sagnapersóna í miðaldabókmenntunum. Það hjálpar greinilega fjársterkum aðilum að létta á pyngjunni. Góð saga selur alltaf vel.

En Byock hefur farið óþarflega fram yfir það sem sæmilegt er í þessari sölumennsku í fræðunum. Að minnsta kosti yfir það sem leyfilegt er í fornleifafræði. En fornleifafræðin fjallar um allt annað nú á dögum en það að leita uppi ákveðnar persónur. Það virðast íslenskufræðingar enn vera að gera, líkt og þegar þeir eru að leita uppi höfunda Njálu og annarra fornrita.

Til þess að gera Mosfells-verkefnið kræsilegra telur Byock mönnum trú um að Egils saga lýsi Agli með sjúkdómseinkenni Paget´s disease. Hann trúir því greinilega einnig á söguna sem sagnfræðilega heimild. Hann hefur vinsað það úr af einkennum sjúkdómsins, sem honum hentuðu í greinum sínum um efnið í Viator (Vol 24, 1993) og Scientific American  (1995). Menn geta svo, þegar þeir hafa lesið greinar hans, farið inn á vef Liðagigtarsamtaka Kanada (The Arthritis Society ) eða á þessa síðu til að fá aðeins betri yfirsýn yfir sjúkdómseinkenni hjá þeim sem hrjáðir eru af þessum ólæknandi sjúkdómi. Þau einkenni eru langtum fleiri en þau sem Byock tínir til og flóknari en hausverkurinn og höfuðskelin á Agli. Byock hefur ekki sagt lesendum sínum alla sjúkdómssöguna; til dæmis að þeir sem eru hrjáðir af sjúkdóminum geti einnig liðið af sífelldum beinbrotum og verði allir skakkir og skelgdir fyrir neðan mitti. Hryggurinn vex saman og mjaðmagrindin afmyndast.  Byock heldur því fram að Agli hafi verið kalt í ellinni vegna þessa sjúkdóms. Annað segja nú sérfræðingarnir: "The bone affected by Paget's disease also tends to have more blood vessels than normal. This causes an increase in the blood supply to the area, and as a result the area may feel warmer than usual". Læknisfræði er greinilega ekki sterkasta hlið Byocks og óskandi er að hann stundi ekki lækningar í aukavinnu, líkt og þegar hann gengur fyrir að vera fornleifafræðingur á Íslandi.

Í greinum þeim um verkefnið, sem birtar hafa verið opinberlega, er heldur ekki verið að skýra hlutina til hlýtar. Eins og til dæmis að tæmda gröfin að Hrísbrú sé undir vegg kirkjunnar sem þar fannst. Það þýðir að gröfin eða gryfjan er eldri en kirkjan sem samkvæmt kolefnisaldursgreiningu er frá því um 960. Kannski er erfitt fyrir bókmenntafræðing eins og Byock at skilja svona flókna hluti. Hann átti líka erfitt með að skilja grundvallaratriði í fornleifafræði árið 1995 og þurfti að hafa íslenskan fulltrúa sér innan handar. Mér skilst að þetta sé nú mest orðið norsk-bandarísk rannsókn og gerir Margrét Hermannsdóttir skiljanlega nokkuð veður úr því í grein sinni í Lesbók Mbls. 5.5.2007. Þegar sótt var um rannsóknarleyfi og fjárveitingar árið 1996 var greint frá því að samvinna yrði höfð við fáeina Íslendinga "for ethical reasons".

Hvað varðar fjármögnun rannsóknarinnar, var alveg ljóst frá byrjun, að Byock hafði báðar hendur niður í íslenska ríkiskassann. Hann greindi mér hróðugur frá því, er hann reyndi að fá mig með í rannsóknina, að Björn Bjarnason væri "verndari" rannsóknarinnar og hefði lofað stuðningi, tækjum, fæði og þar eftir götunum. Björn bóndi hefur greinilega ekki brugðist  Byock og hafa eftirmenn hans á stóli menntamála verið álíka gjafmildir. Að Björn Bjarnason er meiri aufúsugestur á Hrísbrú en ég og kollegar mínir, sést á þessari og annari færslu í dagbókum dómsmálaráðherrans.

Þegar íslenskir fornleifafræðingar með doktorsgráðu geta ekki starfað við grein sína sökum fjárskorts og aðstöðuleysis og einn þeirra vinnur sem póstburðardýr í Danmörku, vantar mig orð yfir þá fyrirgreiðslu sem prófessor Byock hefur fengið á Íslandi til að leita beina persónu úr Íslendingasögunum. Eins og ég skrifaði í greinargerð minni árið 1995 um leit hans af Agli: "Það er í sjálfu sér sams konar verkefni og leitin af beinum Jesús Krists og gröf hans eða leitin að hinum heilaga kaleik (The Holy Grail)".

En riddari nútímans leitar ekki að gylltum kaleik eða brandinum Excalibur , heldur Agli Skallagrímssyni. Riddarinn heitir Byock og atgeir hans heitir "Spin and PR". Riddarinn er reyndar búinn að afneita sér þeim óþægindum sem það virðist vera að vera Bandaríkjamaður í brynju. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2004 (væntanlega á eðlilegri hátt en tendadóttir ráðherra umhverfismála um daginn). Hver veit, kannski er Byock líka orðinn tengdasonur eftir langa búsetu á íslandi. Hann er að minnsta kosti orðinn "fornleifafræðingur", en það geta víst nær allir kallað sig á Íslandi sem kaupa sér skóflu.

Gárungarnir segja mér, að næsta verkefni Byocks sé að leita uppi Loðinn Lepp. Nafnið eitt bendir eindregið til þess að þessi norski erindreki á 13. öld hafi verið með sjúkdóm, sem lýsir sér í óhemju hárvexti, ekki ósvipað og á þessum kappa:

Loðinn leppur

 

 


Leitin að beinum Egils (1. hluti)

Egill 

Í gær birti kollega minn merka grein í Lesbók Morgunblaðsins. Ég frétti af grein Margrétar Hermanns-Auðardóttur gegnum Morgunblaðsbloggið. Við dr. Margrét erum kannski ekki lengur starfsfélagar, því hvorugt okkar hefur haft sérstaklega góð tök á því að vinna við fræðigrein þá sem við notuðum fjölda ára til að sérhæfa okkur í. Ég hef þurft að leita á önnur mið eftir að mér var vísað úr starfi og ég settur í ævarandi atvinnubann á Þjóðminjasafni Íslands (Það er víst einsdæmi á Íslandi). En Margrét hefur alla tíð verið útundan í greininni, einatt vegna öfundar og óskammfeilni ýmissa kollega hennar og aðila, sem hafa reynd að hefta framgang fornleifafræðinnar á Íslandi.

Grein Margrétar fjallar á gagnrýninn hátt um fornleifarannsóknir Jesse L. Byocks í Mosfellsdal; um leitina að beinum Egils Skallagrímssonar, rannsóknir á haugi hans; um kirkju þá sem menn telja að haugbúinn Egill hafi verið greftraður í eftir að haugurinn var rofinn, svo og rannsóknir á Mosfelli, þar sem bein kappans munu hafa verið flutt til hinstu hvílu.

Jesse L. Byock er ekki fornleifafræðingur, en hefur samt stjórnað fornleifarannsóknum á Íslandi í rúm 10 ár. Það sem Margrét Hermanns- Auðardóttir skrifar um rannsóknir hans í grein sinni í Lesbók Morgunblaðsins, get ég í alla staðið tekið undir. Hvet ég fólk til að ná sér í Lesbókina og lesa greinina gaumgæfilega. Þar er einnig hægt að lesa um vinnubrögð í Háskóla Íslands, sem eru fyrir neðan allar hellur.

Ég skrifaði 9 blaðsíðna greinargerð þegar umsókn um leyfi til rannsóknarverkefnisins "The Mosfell Archaeological Project"barst Fornleifanefnd árið 1995. Ég sat þá í Fornleifanefnd tilnefndur af Háskóla Íslands. Það varð uppi fótur og fit. Lektor einn í háskólanum kvartaði fyrir hönd Jesse Byocks til Fornleifanefndar (með bréfi og greinargerð) og til menntamálaráðherra, sem kallaði strax formann nefndarinnar á teppið. Formaðurinn reyndi svo með öllum mætti að fá mig til að draga greinargerð mína til baka. Ég neitaði, því hún stangaðist ekki á við neitt í Þjóðminjalögum. Ég var bara að vinna fyrir nefndarlaununum og ég sá líka óhemjumarga galla á umsókninni. Rannsókninni var síðan veitt leyfi og það reyndar gefið fornleifafræðingi er heitir Timothey Earle (sem ekki er lengur viðriðinn rannsóknirnar í Mosfellsdal), þar sem Byock uppfyllti ekki skilyrðin til að stjórna rannsókninni. Ég ákvað að sitja hjá við leyfisveitinguna. Í greinargerð minni frá 1995 sýnist mér, í fljótu bragði, að ég hafi reynst nokkuð sannspár.

Margrét telur Byock og starfsfélögum hans það til lasts, að þeir hafi ekki einu sinni vitnað í rannsóknir mínar á Stöng í Þjórsárdal. Það er líka rétt hjá Margréti. Það er ekkert nýtt eða neitt sem ég kippi mér upp við. Ég er harla vanur fræðilegri sniðgöngu eða að aðrir geri mínar uppgötvanir að sínum (mun ég skrifa um það síðar). Þegar Byock og aðstoðarmenn hans sóttu um leyfi til rannsóknanna árið 1995, var þó lögð áhersla á mikilvægi rannsókna í Mosfellsdal í ljósi niðurstaðna rannsókna minna á Stöng. Síðan þá hafa þær ekki verið nefndar á nafn af Mosfellsmönnum. Kirkjurústin á Stöng, sem ég hef ekki getað stundað rannsóknir á síðan 1995, er líklega frá svipuðum tíma og kirkjan á Hrísbrú sem Byock og félagar hafa rannsakað. Úr kirkjugarðinum á Stöng hafa bein verið flutt í annan kirkjugarð eftir ákvæðum Grágásar. Sjá Lesbókargrein um rannsóknina.

Ef menn hefðu tekið tillit til greinargerðar minnar frá 1995, þar sem ég fjalla t.d. um tilurð sögunnar um haug Egils í Tjaldanesi, hefðu þeir ekki fyrir nokkrum árum asnast til að grafa í náttúrumyndun, þar sem ekkert fannst nema ísaldaruðningur. Hvers kyns "haugurinn" í Tjaldanesi er, kom einnig fram við fornleifaskráningu Þjóðminjasafnsins á svæðinu árið 1980. Árið 1817 könnuðust lærðir menn ekkert við þennan haug, þegar Commissionen for Oldsagers Opbevaring var að safna upplýsingum um fornleifar, fastar sem lausar, á Íslandi. Haugurinn er því rómantískt hugarfóstur frá 19. eða 20. öld, eins og svo margt annað í tengslum við The Mosfell Archaeological Project. Verkefnið teygir vissulega rómantíkina í fræðimennsku fram á 21. öld.


Réttlæti handa Jonathan Pollard!

Allir með einhverja söguþekkingu vita hver Alfred Dreyfus var og af hverju hann var dæmdur í ævilanga þrælkun. Ákæran hljóðaði upp á landráð og njósnir, en gyðingahatur var afgerandi ástæða fyrir því að hann var dæmdur til dvalar á Djöflaeyju. Við vitum einnig hvernig Frakkar í endalausri sjálfumgleði sinni hafa síðan "framreitt" Dreyfus: eins og franskan hana með einglyrni og vaxað yfirvaraskegg. En svona leit hann nú út í raun og veru, karlgreyið, árið 1895:

Dreyfus sviptur tign

Miklu líkari skagfirskum heiðabónda en frönsku stertimenni, ekki satt? Dreyfus fékk uppreisn æru með hjálp góðra manna. 

Allir bloggarar á Íslandi hafa örugglega lesið framhaldsöguna af fangelsun Snorra G. Bergssonarsem grunaður var um hryðjuverk á flugvelli í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Það tók einhverjar klukkustundir fyrir bandarísk yfirvöld að taka sönsum í því máli og leysa Snorra úr prísundinni. En í máli Jonathans Pollards hefur ekkert gerst í tæp 22 ár. Jonathan Pollard fékk lífstíðardóm fyrir njósnir í þágu Ísraelsríkis, vinaríki Bandaríkjanna. Njósnir Pollards komu í veg fyrir hryðjuverk.  Um sekt hans og málsbætur er hægt að lesa á heimasíðu stuðningsmanna hans og í stuttu máli í samantekt konu hans.

Það sem er ógeðfellt við mál Pollards er þyngd refsingarinnar miðað við þá refsingu sem aðrir njósnarar hafa fengið i BNA. Bandarískur maður, sem hefur njósnað fyrir Sádí Arabíu gengur laus. Sá maður er ekki gyðingur eins og Pollard. Er það tilviljun, eða er glæpur Pollards stærri en glæpur njósnara Sádi Araba?

Það er við hæfi hér að minnast þess að þeir sem dæmdir eru fyrir njósnir fyrir Ísraelsríki í Arabaríkjum fá ekki lífstíðardóma! Pollard hefði fyrir löngu verið kominn úr fangelsi ef hann hefði lent í steininum í einhverju nágrannaríki Ísraels.

Free Pollard

Þú lesandi góði getur gert þitt til að fá Jonathan Pollard leystan úr haldi með því að senda bréf til Bandaríkjaforseta og beðið hann um að náða Jonathan Pollard.Er ekki kominn tími til að senda bréf til Bush?


Valgerður Sverrisdóttir verður sendiherra í Palestínu

Sendiráð Íslands í Palestínu

Sendiráð Noregs og Íslands í Palestínu?

Valgerður Sverrisdóttir gæti í ljósi kosningarspánna hæglega orðið fyrsti sendiherra Íslands í Palestínu og haft skrifstofu í fyrirhuguðu sendiráði Norðmanna (rætt hefur verið um húsið hér að ofan). Mæli ég með því að hún fái sér lífvörð, sem þekkir inn á allar hreyfingar á Gaza og Vesturbakkanum (að neðan).

Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína, segir að "það sé fagnaðarefni ef Ísland fylgir fordæmi Noregs og taki upp eðlileg samskipti við þjóðstjórn Palestínumanna. Bendir hann á að það sé í samræmi við yfirlýsta stefnu Alþingis um að viðurkenna bæri sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar og tilvistarrét Ísraelsríkis". Þetta má lesa á Vísir.is.

En Sveinki hefur líklega ekki fylgst með í tímanum. Palestínumenn virða ekki tilvistarrétt Ísraealsríkis. Ber Íslendingum að viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt Palestínuríkis, sem stjórnað er af hryðjuverkamönnum sem m.a. afneita Helför gyðinga í Evrópu í viðleitni sinni að afneita Ísrael? Ég leyfi mér að vitna í grein Sveins Haukssonar, sem að því leyti virðist alveg með á nótunum. Hann kallar grein sína "Israel, Israel über alles" http://www.palestina.is/greinar/archive/gr021.htm.

Sveinn Rúnar gæti örugglega líka fengið starf í sendiráðinu. Góða ferð!

Heil Hamas

Lífvörður Valgerðar?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband