Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sagnfræði

Var fyrsta íslenska fegurðardrottningin njósnari nasista?

Lolo1

Fornleifur frændi var um daginn með langa grein, þar sem hann bætti aðeins í eyðurnar á sögu Thorsaranna.

Thorsaranir, afkomendur Thors Jensens, dansks kaupahéðins sem rak á fjörur Íslands, hafa lengi verið "grunaðir" af íslenskum gyðingahöturum um að vera af "gyðingakyni". Því fer nú heldur betur fjarri.

Það rekur Fornleifur í nýrri grein sinni, bætir við nýjum upplýsingum um George Lincoln Rockwell tengdason Thorsaranna sem gerðis nasistahöfðingi i Bandaríkjunum, sem og bróður Thors Jensens, Alfred Jensen Raavad, sem var framarlega í samtökum gyðingahatara í Danmörku.

Nú minnir Fornleifur á enn einn nasistann í þessu merkilega ætt Thorsaranna, en það var hugsanlega fyrsta fegurðardrottning Íslands. Einn af fyrstu ritstjórum Morgunblaðsins, Vilhjálmur Finsen, síðar sendiherra, ritaði um unga konu, "Guðrúnu", sem gekk í lið með þýskum njósnurum í Kaupmannahöfn, og það frekar lágrétt. Lýsingar Vilhjálms Finsen passa furðulega vel við ævisögu Lóló, fluggreindrar stúlku úr Reykjavík og fyrstu fegurðardísarinnar á Íslandi, sem giftist Thorsara árið 1942.

Fornleifur leitar fleiri upplýsinga um þessa konu. Lesendur þessa bloggs, sem eru oftast fleiri en Fornleifs, gætu kannski haft einhverja hugmyndir eða upplýsingar sem þeir gætu deilt með mér og Fornleifi og fróðleiksfúsri þjóð.

Myndin efst er af Lóló, og heldur hún á bikar sem hún fékk til eignar eftir að hún hafði unnið fegurðarsamkeppni sem Vikan stóð fyrir (sjá hér og hér).

Var fyrsti íslenska fegurðardrottningin flagð undir fögru skinni eða blásaklaus stúlka af útgerðamannsheimili?

Farið á Fornleif


Syndaregistur Sólrúnar

Einræðisfruin

Ingibjörg Sólrún er algjörlega óhæf manneskja í stöðuna hjá OSCE (ÖSE). Hvaða brestur er það eiginlega í íslensku þjóðinni sem fær hana (réttara sagt yfirvöld hennar) til að verðlauna óhæft fólk og skussa?

Ingibjörg Sólrún er konan sem leitaði til Assads eftir stuðningi þegar hún vildi koma Íslandi í Öryggisráðið. Ætlunin var að gera Ísland að verkfæri Palestínuöfgamanna. Þegar stuðningur einræðisherra og fanta var ekki viss bakaði hún pönnsur í New York. Hún var með lélega uppskrift eða fúlegg. Sjá hér og hér.

assadasaassadcanbe

Ræðum Osama bin Laden var frestað á Al Jazeera þegar Sólrún heimsótti Egyptaland árið 2008.

post-5051-1113458248

Haldið var upp það með hjólbörum af kampavíni er Ingibjörg Sólrún varð 50 ára. En hver keypti kampavínið? Það voru víst aðeins hjólbörurnar sem greiddar voru af íslenskum skattgreiðenda. Eitt sinn var danskur ráðherra rekinn, því honum (ritara hans) varð það á að láta ráðuneyti greiða fyrir einn vindlakassa.

Ingibjörg Sólrún er konan sem sagði að efnahagurinn á Íslandi væri í fínu lagi – rétt fyrir hrun.

happy_old_days

Ingibjörg Sólrún er konan sem studdi stríðsglæpamanninn Eðvald Hinriksson og ásakaði Ísraelsríki fyrir að standa á bak við tilraunir Simon Wiesenthal Stofnunarinnar í Jerúsalem til að fá íslensk yfirvöld til að rannsaka mál Eðvalds Hinrikssonar (Miksons), sem Eistlendingar hafa nú lýst yfir að hafi verið stríðglæpamaður. Alltaf jafn vís hún Sólrún. Meira hér.

Ingibjörg Sólrún er líka ein af þeim þóttafullu íslensku stjórnmálamönnum sem ekki vildi hitta Shimon Peres þegar hann kom til Íslands. Sjón er sögu ríkari. Sólrún er nasistasleikja og verndari stríðsglæpamanna. Síðar var hún hrjáð að alvarlegu minnistapi - eða er hún bara tækifærissinni?

Imba

Ingibjörg Sólrún hefur sent milljónir króna til Hamas. Geri aðrir betur.

Abba et Imba

Ingibjörg Sólrún ritaði hálfsturlað bréf til Tzipi Livni og ásakaði Ísraelsríki fyrir það sem Palestínumenn aðhafast. Annað pólitískt viðrini hefur leikið sama leikinn (sjá hér). Líklegast er of snemmt að koma honum í embætti erlendis. Menn muna hann enn.

Munið þið þegar Sólrún vildi verða mannsalsfulltrúi ÖSE? Hér er smáupplýsing handa þjóð með Alzheimer.

Munið að Sólrún er ein þeirra kvenna á Íslandi sem hefur liðist það að stunda einræðisherratakta. Er það eitthvað sem við viljum?

Í hlutverki friðardúfunnar sem opinskátt styður PLO og Hamas er Sólrún eins og reitt illfygli. Greinilegt er að ÖSE hefur ekki unnið heimavinnuna sína, enda gólfið þar fullt af sams konar lukkuriddurum, sem kenna í brjósti um hryðjuverkamenn og líkja þolendum nasisma við nasista.

fri_ardufan2_1008182

Friðardans Sólrúnar er krampakenndur og mun það verða ljóst er hún hefur störf hjá OECD.


An instant president in a cup

ar-160509227_1281889.jpgIcelandic first-lady-to-be, Eliza Reid, is a woman who knows what she wants - but I am buying the movie-rights for the film 'President in a cup - an Oxford-romance'?

The following is from a great interview on Hit Iceland (not too hard I hope, although a quite a lot of Icelanders need a thorough spanking):

"Our names were drawn together for a blind date," says Eliza. "Well, that is the short version. Guðni was studying for his doctor’s degree in history and I for my master's degree. At the time, we were having a fundraiser for the rowing team – where we were both rowing. The guys on the team all had these cups with their names on them, all arranged in a row. The girls got tickets with their names and were supposed to put them in different cups. The guys would then draw one ticket from their cup and ask the lucky girl out on a date. I had ten tickets and instead of putting them into ten different cups I put eight of them into Guðni's. I liked him a lot and thought I would tilt the balance a little in my favor. I refrained from putting all ten of my tickets into his cup, as I didn't want him to think I was some crazy stalker. Well, he drew one of my tickets and took me out to this very nice Italian restaurant the very next day. I was duly impressed. I had expected a kebab or something simple. We were, after all, students." (More in an interview here).

Fancyeeee Guðni, an Italian restaurant! This proves that student's loans in Iceland are were far too generous.

    Cut!


Illugi Jökulsson gerist gleyminn

illugi_2_1254206.jpg

Illugi Jökulsson tekur sér það bessaleyfi að skrifa blogg um feisbókarfærslu mína. Það er auðvitað hið besta mál. Illugi gleymdi því miður að setja hlekk í FB mína eða í færsluna á Morgunblaðsblogginu sem FB athugasemdin byggði á. Illugi leggst ekki svo lágt að vitna i Moggablogg frekar en aðrir á Eyjunni.

Illugi gleymdi enn fremur að upplýsa lesendur sína um, að áður en ég skrifaði bloggið/FB færsluna sem hann skrifa um án þess að vitna drengilega i hana, þá var mér varpað út af FB-síðunni Gamlar Ljósmyndir. Þar þola menn greinilega ekki að sjá ljósmyndir af Gunnari Gunnarsyni nasista, manninum sem heimsótti Hitler. Réttara sagt eru skyldmenn Gunnars við stjórnkerfið á Gömlum Ljósmyndum.

Illugi gleymdi þar að auki segja lesendum sínu, að ég get ekki svarað fyrir mig a bloggi hans á Eyjunni. Það er vegna þess að Egill Helgason lét loka á mig á Eyjunni, án nokkurra raka. Ég hef aldrei skrifað neitt ljótt á Eyjunni, nema hvað ég hef einhverju sinni bent á að annar íslenskur nasisti en Gunnar hafði líklega ekki þau próf frá þýskum háskólum sem hann hefur puntað sig með og sem hjálpaði honum að verða seðlabankastjóri. Svo illa vildi til, og það vissi ég ekki, að þessi nasisti var "stjúpafi" Egils.

Gleymska eins þekktasta sérleyfishafa mannréttinda á Íslandi, sýnir vel að grundvallamannréttindi eins og ritfrelsi og skoðanafrelsi eru alls ekki öllum gefin. Menn eru ritskoðaðir og úthýstir fyrir að nota ekki "dempaðan stíl", eins og einn vinur minn kallar venjulega íslenska umræðu. Í DDR menn voru menn líka beðnir um að dempa stílinn, áður en þeir voru reknir úr vinnu eða skóla.

Illugi leyfir svo manni einum að fjasa um að ég hafi líka skrifað að Guðmundur Kamban hafi verið "slefandi nasisti". Jú, en ég get ekki skýrt það út á bloggi mannréttindamannsins, Írans- og Hamasvinarins Illuga Jökulssonar. Illugi veit þó líklega ekki frekar en fjasandi já-maður hans, að Guðmundur Kamban var mjög líklega valdur að handtöku gyðings í Kaupmannahöfn. Gyðingurinn missti lífið í Helförinni. Nú veit hann það. Illugi ætti að lesa Moggabloggin aðeins oftar til að gleyma ekki, þó svo að við séum öll stimpluð "fasistar", "rasistar" og annað ljótt sem sérleyfishafar á réttar og heilnæmar hugsanir undir vinstra vængbrotinu nota óspart á andstæðinga sína í skoðanaskiptum.


Flogið hátt, lotið lágt

Loftur Billjónair og vopnasali
 

Eins og hefur örugglega farið fram hjá flestum í ólifnaðinum nú yfir dauðahátíð kristinna manna, var Rússinn Viktor But (Bout) dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum um daginn. But, sem er rússnesku útrásarvíkungur árgerð 1967, en betur þekktur sem „Kaupmaður Dauðans", fékk þennan harða dóm fyrir vopnasölu. Saksóknarinn vildi gefa honum 40 ár.   

Mér sýnist að það sem Viktor But hefur sér til saka unnið, sé afar svipað því sem Íslendingur nokkur, Loftur Jóhannesson, hafði lífsviðurværi af hér um árið. Ég rakst á hann við tilviljun í leit á tímarít.is,sama dag og dómur féll í máli Rússans But, þegar ég var að skrifa um greinina um Iceland Food Center í London sjá hér.

Myndin hér að ofan er úr einni af veislum íslendingafélagsins í London, n.t.t árið 1963. Veislurnar voru gjarna haldnar á dýrasta hótelinu í London, Dorchester. Minna mátti það auðvitað ekki vera. Sjármörinn Loftur Jóhannesson, sem síðar gerðist kaupmaður dauðans, sést hér á tali við dömu sem virðist éta hann eins og forrétt með augunum.

Flugkappi og vopnasali
Loftur vopnasali

Loftur fór á 7. áratugnum út í "íslenskt útrásarævintýri". Hann kom að mörgum fyrirtækjum sem fóru á hausinn, en auðgaðist að lokum á skítabisness á kanti laga og mannlegrar virðingar.

Sunday Times birti árið 1994 grein með upplýsingum um Loft Jóhannesson. Greinin var kölluð "British companies funded Stasi ": Loftur Johannesson, a businessman who lives in Victoria, central London, allegedly used the London firm to organise the shipment of 12 Soviet-made T-72 tanks to Saddam Hussein's army in Iraq. The British-based arms dealer used IMES, a Stasi arms company, to help facilitate the $26m deal in January 1987.

Þessi íslenski flugkappi dauðans þénaði einnig feitt á stríðinu í Biafra og fyrirtæki hans flaug með vopn til Gaddafís. Spiegel, Vikublaðið Pressan og Mogginn birtu um 1992 1994 og 2000 greinar um vafasöm viðskipti þessa íslenska ævintýramanns. Þessi íslenski captain from hell, les: íslenski athafnamaður á erlendri grund) var líklega haldinn sama brestinum og bankadrengirnir sem settu Ísland á hausinn. Hann stundaði áhættu og var heltekinn af græðgi. Bankadrengirnir gerðu það með fé saklaus fólks, Loftur með peninga fjöldamorðingja.  

Fer leynt - kannski dauður?

Fyrri kona Lofts, Irmgard Toft, dóttir Tofts kaupmanns í Reykjavík sagði frá aröbum á miður huggulegan, en hreinskilinn hátt, á sínum tíma. Í dag væri ekki hægt að skrifa þetta um araba á Íslandi. Irmy Toft skrifaði einnig á sínum tíma um ballett í Moggann. 

En eins og menn vita skipta flugmenn út konum eins og þeir skipta um flugvélar. Önnur kona Lofts flugkappa er franska aðalsdaman Sophie Dumas Jóhannesson (f. 1947). Hún gerðist íslenskur ríkisborgari, en er líka í vopnabransanum. Léttum vopnum þó, en hún var  var af einhverjum ástæðum í nefnd skylmingasambands Íslands sem sótti fundi Heimssambands skylmingamanna árin 2004 og 2008 í París. Sjá hér. Ætli vopnapeningar hafi farið til Skylmingasambands Íslands? Það væri nú aldeilis En Garde.

Spurningin er, hvort Loftur Jónsson hryðjuverkaflugmaður sé enn með viðskipti á Íslandi, kominn á tíræðisaldurinn? Fraktflug, fyrirtæki sem hann var skráður fyrir árið 2000 er enn hægt að finna á ja.is, en ef til vill er það ekki sami bisnessinn og hann var með. Hann situr situr líklega sem aflóga gamalmenni við sundlaugina í Maryland eða í höll í Frakklandi og lætur nudda úr sér gigtina með fyrir morðfé. Hann hefur á 21. öldinni verið örlátur á smáaura í kosningarsjóði Repúblíkana frá heimili sínu í við hina fallegu vík Shaw Bay (Bruffs Island Road) í Easton í Marylandfylki í BNA.

En hefði ekki átt að sækja svona íslenskan siðleysingja til saka, sem flaug um heiminn með vopn fyrir annan hvern einræðisherra arabaheimsins? Að sjálfsögðu!

Sjá einnig hér, hér og hér


Vitnisburður Landakotsbarna í molum ?

Skólinn var strauborð2
 

Í Fréttatímanum 24.6.2011 var greint frá því að fórnarlamb séra Georgs, Iðunn Angela Andrésdóttir, hafi verið í sumarbúðum í Riftúni áður en faðir hennar gekk á fund kaþólska biskupsins Hinrik Frehen og heimtaði að séra Georg yrði sendur til Hollands. Fréttatíminn greindi svo frá:

Kaþólska kirkjan keypti sumardvalarstaðinn Riftún á þeim tíma sem Iðunn var í skólanum. Hún var því send þangað ásamt skólasystrum sínum. „Séra Georgs og Margrét Müller sögðu alltaf að klósettið væri bilað þannig að við þurftum að pissa úti. Svo stóðu þau yfir okkur á meðan. Ég man að ég þoldi þetta ekki. Og hann þóttist aldrei neitt vera að horfa. En í Riftúni þorði hann aldrei að kalla á mig."

Fljótlega var gerð athugasemd við að faðir Iðunnar hefði gengið á fund Hinriks Frehens áður en Iðunn fór í gagnfræðaskóla, þar sem Frehen kom ekki til Íslands fyrr en 1968. Þá var Iðunn reyndar í Ungverjalandi.

Ég gerði athugasemdir við þessa frásögu Iðunnar í síðustu færslu minni (sjá neðar á síðunni) og skrifaði m.a. :

  • Iðunn Angela er fædd 1951.
  • Faðir hennar fer á fund biskupsins árið 1963, ("sumarið áður en Iðunn byrjaði í gagnfræðaskóla"), og skömmu eftir að Iðunn segir foreldrum sínum frá hræðilegri reynslu sinni (heimild Fréttatíminn).
  • Sumardvalarheimilið Riftún opnar fyrst árið 1964, (heimilið var vígt 7. júní 1964).
  • Iðunn Angela er samt send þangað af foreldrum sínum (heimild Fréttatíminn). Kannski til að vera með séra Georg, kvalara sínum?

Ég bað jafnframt blaðamann Fréttablaðsins um að skýra þessar mótsagnir. Hún svaraði í dag:

Sæll Vilhjálmur!

Þú vekur athygli á að Riftún opni ekki fyrr en 1964.

Samkvæmt frásögn viðmælanda míns var hún í Landakotsskóla þegar Riftún var keypt og var send þangað þá. Á þeim tíma var Riftún bóndabær og meðal þess sem viðmælandinn segist hafa gert á meðan dvölinni þar stóð, var að rífa veggi í fjósi og hjálpa til við framkvæmdir. Hennar dvöl í Riftúni var því áður en sumarbúðirnar voru standsettar og komnar í gagnið. 

Vonandi svarar þetta spurningu þinni.

bestu kveðjur,

Þóra Tómasdóttir blaðamaður á Fréttatímanum

 

Aftur hvái ég og bendi blaðmanni Fréttatímans og heimildamanni hans á að jörðin Riftún var keypt af kaþólsku kirkjunni haustið 1963. Bóndinn í Riftúni, Kristján Teitsson (1915-1990), brá búi haustið 1963 og það var ekki farið að breyta neinu á bænum fyrr en hann flutti þaðan. Þessu greinir dóttir hans, Hrafnhildur, sem býr í Danmörku, mér frá og sömuleiðis sonur hans Einar. Einar var 16 ára, þegar hann tæmdi hið þriggja ára gamla fjós og tók m.a. milliveggi úr því sem fóru á annan bæ í grenndinni. Þá var fyrst farið í að breyta nýbyggðu fjósinu eftir að Kristján Teitsson flytur frá jörðinni, og það er haustið 1963.

Ef Iðunn, sem upphaflega var sögð hafa verið á sumardvalarstaðnum Riftúni hefur í raun verið þar við verkamannastörf, þar sem hún mátti ekki pissa nema að það væri vaktað af konu frá Þýskalandi og presti frá Hollandi, þá hefur það verið frá haustinu 1963 til og með 6. júní 1964 þegar svefnskálinn var vígður. Þó svo að Iðunn hafi verið þarna 1963 eða snemma árs 1964, hafði faðir hennar þegar farið á fund biskups áður en hún fór í gagnfræðaskóla.

Hver sendir eiginlega barn sitt 13 ára gamalt sem orðið hefur fyrir nauðgun prests til að vinna með nauðgaranum við að rífa veggi í fjósi? Reyndar keypti kaþólska kirkjan fyrst Riftún eftir að Iðunn var hætt í Landakotsskóla og það voru samkvæmt samtímaheimildum nunnur og iðnaðarmenn sem unnu við að breyta fjósinu í Riftúni í svefnskála veturinn 1963-64.

Ég spyr, er Fréttablaðinu stætt á því að halda fast í frásögu sína og Iðunnar Angelu Andrésdóttur?

Vígsla Riftúns 1964 2
Frá vígslu svefnskálans í Riftúni 6. júní 1964. Jóhannes Gunnarsson biskup gengur frá húsinu og séra Georg, meintur nauðgari, gengu í humátt á eftir með vígt vatn (Mbl. 11. júní 1964) Myndin af ofan birtist í Fálkanum síðla árs 1964 í grein um Kaþólsku kirkjuna á Íslandi.

 


Saga meints níðings og eins fórnarlamba hans

Georg
 

Ég hef í fljótheitum tínt það saman sem ég hef fundið í dagblöðum og öðrum heimildum um geranda og þolanda í máli um misnotkun á börnum sem á að hafa átt sér stað undir þaki kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Öll þau gögn sem ég vitna í eru aðgengileg á netinu eða annars staðar. Ég set þessar upplýsingar ekki fram til að leika einhvern rannsóknarblaðamann. Ég hef skrifað töluvert um málið og varð sjálfur fyrir illmennsku Margrétar Müller í Riftúni er ég var barn. Því lýsti ég fyrst árið 2009, en ekki vegna þess að ég ásaka kaþólsku kirkjuna um neitt. Minn kvalari var ekki kaþólska kirkjan, heldur kona sem aldrei hefði átt að vinna með umönnun barna. Ég held að margt af því sem ég greini frá hér að neðan hafi ekki verið þekkt af þeim fjölmiðlamönnum sem matreitt hafa þetta mál frekar klunnalega ofan í gúrkusoltna Íslendinga.

Guus (August) George

Það blasir strax við að séra Georg (upphaflega Guus George, f. 5.4.1928) var oft nefndur í fjölmiðlum áður en hann dó, og aldrei nema af góðu einu. Erfitt hefur verið að fá upplýsingar um hann frá Hollandi. Hann var bara prestlingur úr sveitinni, fæddur í einhverju krummaskuði í Limburg-sýslu sem heitir Wijlre, en þar býr fólk sem er líklega meira belgískt en það er hollenskt. Hann var einn sjö systkina og fjölskyldan var erkikaþólsk. Hann var óskrifað blað áður en hann kom til Íslands. Sjálfur sagði hann sögu sína í Degi árið 1998. Árið 1991 gerði Sigmar B. Hauksson heimildarmynd um séra Georg sem ber heitið Perla í Vesturbænum (í þáttaröðinni Fólkið í landinu, "perlan" er væntanlega Landakotsskóli). Sumir eiga jafnvel fallegar minningar úr Landakoti, sjá hér.

GCRIAU95
Er þetta flírlegt bros eins og Illugi Jökulsson hélt fram nýlega?

 

Er séra Georg  andaðist árið árið 2008 birtist þessi minningargrein um séra George eftir frekar þekktan bloggara á Moggablogginu. Í henni og annarri grein í Morgunblaðinu er ekki hægt að lesa neitt misjafnt um manninn. Þannig vill það verða í minningargreinum. Þær eru ekki birtar til að ófrægja fólk.

Séra Georg leit alls ekki út eins og skólabókadæmið um barnaníðing, sem venjulega er sagður ósköp venjulegur og snyrtilegur meðlimur eða vinur fjölskyldu fórnarlambsins. Georg var þvert á móti strangur og óaðlaðandi maður, ellegar eins og Illugi Jökulsson lýsti því, með flírubros [fleðurlegt] undir prestkraganum (hvernig sem það er hægt). Sömuleiðis var hann sköllóttur með yfirgreiðslu, reykingafingur og kartneglur og hjólbeinóttur og jafnvel kafloðna bringu?

Sótti hann í viljalítil og veiklynd börn, sótti hann í börn útlendinga, sem ekki töluðu góða íslensku, eða börn foreldra sem sjálf voru viljalitlir, veikir og kúgaðir? Þessu er ekki hægt að svara með því að lesa minningargreinar sem mæra manninn. En þessu geta fórnarlömbin hugsanlega svarað, þegar mál þeirra og þau sjálf verða rannsökuð.

vi1036

Eftir detox árið 2010

 

Iðunn Angela Andrésdóttir

Iðunn er fædd árið 1951, og ef eitthvað lítur hún út fyrir að hafa yngst örlítið frekar en hitt, síðustu 13 árin. Sæmilega undómleg kona um sextugt gæti kannski þakkað detoxinu þessa "gullhamra" mína, en það hefur Iðunn fengið í tvígang hjá Jónínu Ben, og rómaði það mjög í Vikunni í september árið 2010.

Iðunn 2
Iðunn um það leyti sem séra Georg níddist á henni

 

Faðir Iðunnar var útlendingur og hét  Andrés Alexandersson (1900-1986), eftir að hann fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1954. Hann var Ungverji og hét áður András Kecskés (ekki Kesckes eins og hann hefur verið tilgreindur á Íslandi; Kecskés þýðir geitahirðir). Hann var kallaður Bandi. Andrés fæddist í þáverandi Serbíu, sem varð hluti af Ungverjalandi árið 1918. Enn býr í Serbíu stór minnihluti Ungverja og bjó amma Iðunnar í smábænum Mohol (Mol) í Serbíu árið 1953. Þeir sem hafa langt minni muna eftir Andrési við afgreiðslu í sjoppu Eymundsson og síðar í tóbakssjoppunni London í Austurstræti. Hann var oft nefndur til sögunnar í sambandi við komu landsmanna sinna til Íslands árið 1957.

Andrés AlexanderssonNanna Snæland2
Hjónin Andrés Alexandersson (András Kecskés) og Nanna Snæland (á tíma kallaði hún sig Nancy)

 

Móðir Iðunnar, Nanna Snæland (1912-1991), var frá Hafnarfirði. Hún hét Nanna Snæland og var talin glæsilegust kvenna á sínum yngri árum. Hún giftist ung ungverskum manni dr. Denés (Dennis) Zakál (f. 1900 í bænum Csáktornya), þekktum tónlistarmanni, sem var með hljómsveit sinni, Dr. D. Zakál og Ungverjunum, á Hótel Borg frá 1934-35, og fluttist Nanna Snæland til Ungverjalands og giftist dr. Zakál í  Búdapest árið 1935. Denés Zakál, sem var lærður klassískur tónlistamaður, sem skildi eftir sig sinfóníur og píanóverk, sneri sér að dægurlagatónlist um miðbik 4. áratugarins. Einn kennara hans í tónlistakademíunni var Jenő Zador, sem náði miklum frama í Hollywood. Denés Zakál samdi m.a. kvikmyndatónlist fyrir 6 ungverskar kvikmyndir á árunum 1939-44. Meðal annars fyrir kvikmyndina Ó, þú hefur lagst svo lágt. Titillagið má heyra á tónlistaspilara mínum ofarlega í dálkinum til hægri.  

Zakál var greinilega frábær tónlistarmaður. Samkvæmt kvikmyndasafninu í Búdapest var Zakál einnig frægur fyrir að verk hans var fyrsta verk ungversks tónskálds sem var leikið í útvarpi. Það gerðist í den Haag í Hollandi 26. Júní 1924, þar sem Zakál vann um tíma.

egerap
Úr ungversku bíómyndinni Ó, Þú hefur lagst svo lágt

 

Íslensk kona, og kaþólikki, Sólveig Guðmundsdóttir sem fór á kirkjuþing í Ungverjalandi árið 1938 og lýsti síðar þeirri ferð og kynnum sínum af Nönnu, sem 1938 kallaði sig Nancy von Zakal. Menn á Íslandi stóðu í þeirri meiningu að Zakal hefði verið barón. Denés Zakal dó árið 1943 í miðju stríði. Nanna/Nancy þjáðist af berklum og gekkst undir uppskurð á lunga í miðju stríði. Meðan á bardögum á milli Þjóðverja og Rússa stóðu sem hæst, hafðist hún fyrir í kjallara og giftist þar í sprengjuregni András Kecskés, sem var 11 árum eldri en hún.  Þau fluttust til Íslands árið 1949. Komust út, með því að segjast ætla í ferðalag til ættingja. Það var því ekki furðulegt að borðað hafi verið mikið gúllas heima hjá Iðunni.

Török
Ivan Török

 

Ung að aldri fór Iðunn til Ungverjalands og giftist 1968 ungverskum manni, hinum litríka Ivan Török (Szabó) (1941-2001), sem margir muna eftir úr leiklistar- og myndlistaheiminum, sem og frá fríríkinu Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Sagan segir að hann hafi átt þar hengirúm um skeið. En það var löngu eftir að Iðunn og Ivan skyldu (1973). Iðunn hefur sjálf sagt okkur frá því að eiginmenn hennar hafi verið þrír.

Ivan & IdunnIðunn og Árni

Iðunn og Ivan 1969. Iðunn og Árni 2004

 

 

 

Fyrirtækin sem hún hefur rekið hafa verið enn fleiri en eiginmennirnir. M.a. Boutique 1928, Fornsalan Fornleifur, 1928, Húseign á Fjölnisvegi 16 og jafnvel tómt hús á Freyjugötu 16.  

Heimildir eru til um Iðunni, þar sem hún er sögð fyrir litla hunda og átti hún að minnsta kosti einn kjölturakka sem gekk undir nafninu Eros. Dóttir hennar varð fegurðardís og að draumahúsið hennar er ungverskt, fyrir utan bæinn, með rauða veggi og hátt til lofts.

Idunn & Eros
Bros dagsins árið 24.3. 1999

 

Fyrir utan hinn hræðilega glæp sem Iðunn varð fyrir í Landakoti, af hendi séra Águsts Georgs, sem hægt var að lesa um í Fréttatímanum, þá er saga hennar og foreldra hennar litríkari en gengur og gerist. Út að til virðist Iðunn ekki hafa vera ósæl og bæld manneskja, eins og fórnarlömbum barnaníðinga er oft lýst, þegar þau komast á fullorðinsár. Hún var í sviðsljósinu.

Flestar ofangreindar  upplýsingar er hægt að finna í íslenskum dagblöðum eða á netinu. Þetta eru ef til vill ekki upplýsingarnar sem þarf til að þekkja fórnarlambið, og sömuleiðis eru fyrirliggjandi upplýsingar um séra George ef til vill ekki upplýsingarnar til að komast að því sanna um meintan barnaníðing. Ég býst hins vegar við því að rannsóknarnefnd Kaþólsku kirkjunnar fari enn betur í saumana á sögu fórnarlambsins en ég geri, því sú saga er mikilvægust í þessu máli. Fórnalambið er á lífi og getur gefið upplýsingarnar. Gerendur eru hins vegar komnir undir græna torfu, hafa ásökun yfir höfðinu, og geta ekki varið orðstír sinn.

Eftirmáli

Meðan að þessi færsla var skrifuð, braust maður nokkur fram á sjónarsviðið. Hann heitir Valgarður Bragason og segist hafa áttað sig á því að séra Gerorg hafi einnig brotið á sér. Þetta varð honum ljóst eftir að hann las frásögn Iðunnar Angelu í Fréttatímanum. Hann fann sig þess vegna til knúinn að fara og brjóta 21 rúðu í húsakynnum presta og biskups kaþólsku kirkjunnar. Það virkar óneitanlega sem frekar óvenjuleg aðferð til að sigrast á vanda sínum. Hann kynnir sig hér sjálfur, mjög svo frumlega, en er greininga ekki maður margra orða, enda gjörningalistamaður.

Einni mínútu og fjórtán sekúndum inn í myndina, fær Valgarður skitusting og spasma og segir "Fuck you". Ég hélt upphaflega að gluggaárás listamannsins Valgarðs Bragasonar væri líka nýlist, en hann er þormikill maður, sem segir sögu sína alla með grjótkasti og undir fullu nafni. Sá sem syndlaus er kastar grjóti...

Viðbót 1.7.2011

mig langar að vekja athygli  á eftirfarandi punktum, sem valdið hafa mér heilabrotum:

  • Iðunn Angela fædd 1951
  • Faðir hennar fer á fund biskupsins árið 1963 ("sumarið áður en Iðunn byrjaði í gagnfræðaskóla") eftir að Iðunn segir frá hræðilegri reynslu sinni (heimild Fréttatíminn)
  • Riftún opnar fyrst árið 1964, (heimilið var vígt í snemma í júní 1964), og Iðunn Angela er samt send þangað af foreldrum sínum til að vera með séra Georg.

Getur einhver skýrt þetta ósamræmi? Er ég að misskilja eitthvað?


Papar komu aldregi til Íslands

Fucking Papi or a Saint
 

Þjóðernisrembingur, frá þeim tíma er sumir Íslendingar leituðu þjóðernisímyndar í sjálfstæðisbaráttunni með því að vilja vera "keltar" ættaðir frá Írlandi, er enn mjög sterkur. Ekkert styður þessar draumóra nema þvældar frásagnir úr Landnámu og Íslendingabók um einstaka landnámsmann, sem vafalaust komu nokkrir með svarthærðar konur og búalið ættað frá Írlandi eða skosku eyjunum.

Fyrr á árum voru gamlir læknar með ABO blóðflokkakerfið til að sýna fram á „keltneskan" uppruna Íslendinga (Les hér). Þær túlkanir stóðust ekki. Á síðari árum hefur Íslensk Erfðagreining (deCode) gert keltomaníakana enn æstari með tölfræðilegum oftúlkunum, þegar þeir komust að þeirri niðurstöður að flestar konur á Landnámsöld hafi verið ættaðar frá Bretlandseyjum, meðan karlpeningurinn var frá Norðurlöndum. DeCode er með öðrum orðum að halda því fram, að Bretlandseyjar hafi verið eins og Tæland í dag, gósenland afdalaaumingja, (með allri virðingu fyrir tælenskum konunum), sem þá gátu ekki náð sér í almennilegar norskar konur til að setjast að með þeim á eyðiey í norðurhöfum.

Það versta er hins vegar, þegar menn eru að rugla um einhverja Papa og halda því fram að Ari fróði hafi verið að hylma yfir heila byggð þeirra fyrir landnám norrænna manna á seinni hluta 9. aldar.

Ari skrifaði í Íslendingabók: Þá voru hér menn kristnir, þeir er Norðmenn kalla papa. En þeir fóru síðan á braut, af því að þeir vildu eigi vera hér við heiðna menn, og létu eftir bækur írskar og bjöllur og bagla. Af því mátti skilja, að þeir voru menn írskir".  Út frá þessu fara keltómaíakar hamförum. Papar eru samkvæmt Ara norsk skilgreining, (sem enginn Norðmaður fyrr og síðar kannast þó við), og þegar menn ganga um með bagla, bjöllur og bækur eru þeir sem sagt Írskir. Ari var mytóman, en það er einnig amadáninn (gelíska fyrir idjót) sem skrifar um Papa á Wikipeda:

"The Papar (from Latin papa, via Old Irish, meaning "father" or "pope") were, according to early Icelandichistorical sources, a group of Irish or Scottish monksresident in parts of Iceland at the time of the arrival of the Norsemen. Their existence is yet to be confirmed by archaeology." Maður spyr sig: vantar litninga fyrir heimildagagnrýni í það fólk sem eru papistar?

Þetta litla rugl sem Ari fróði skrifaði um Papa veldur miklum hugarórum og sést í alls kyns afbökunum fólks sem jafnvel heldur að það sé keltneskt vegna þess að þar er rauðhært eða drykkfellt. Þessi litla frásögn Ara veldur því að rammnorskútlítandi Nútímaíslendingar stofna hér á landi keltnesk bönd, opna írskar krár og kalla börnin sín Melkorku, Brján, Niál og Mýrkjartan og bíða eftir því að Írar snúi aftur til að taka Ísland frá óhæfum útrásarvíkingum.

Ari Þorgilsson var örugglega að lýsa írskum dýrlingum þegar hann skrifaði ofangreint smælki um papa, því eins fróður og hann var og víðlesinn, hefur hann lesið eða heyrt um ferðir helgra manna á Norðurslóðum, t.d. til eyju sem reyndist vera hvalur. Hann trúði örugglega sjálfur mátulega á slíkar furðusögur, en gæti hins vegar vel hafa lesið írskar heilagra manna sögur, sem segja frá heilögum einsetumönnum á eyjum á norðurslóðum. Írskir dýrlingar í þessum sögum virðast hafa getað lifað án nokkurs annars en bóka, bjallna og bagla.  Þannig voru þeim einnig gerð skil á írskum steinkrossum, eins og sést hér að ofan. Myndin er af heilögum McTail og er frá Old Kilcullen, í County Kildare. 

Ari lagði tvo og tvo saman og vildi ekki láta neitt vanta í landnámslýsingu sína, um það sem hugsanlega gæti hafa verið, fram yfir landnám forfeðra hans. Þess vegna lét hann einsetumennina í heilagra manna sögum, sem skrifaðar voru á 8. og 9. öld, hafa verið á Íslandi og skilja þar eftir bjöllur, bagal og bók. Því miður varðveittust þessi óskilamunir ekki og kenna samsærisheilar þar um eyðileggingarhvöt ljóshærðu imperíalistanna úr Noregi. Langt er seilst.

norskættaða boybandið papar

Norskættaða boybandið Paparnir

Ari var sama marki brenndur og margir síðari tíma Íslendingar sem velta fyrir sér aldri landnáms á Íslandi. Hann hafði gaman af að skálda í eyðurnar og í hugarheimi 12. alda manns voru eyður óhugsandi. En vöntun á sönnunargögnum er ekki sönnun, en seint lærist það sumum. Sumir hafa ekki hvatt 12. öldina á Íslandi. Ari var þó ekki að blanda erfðafræðirugli og háralit í þetta. Rauða hárið frá Írlandi er, svo greitt sé úr þeirri flækju, hverfandi lítið miðað við dökkt hár (les hér).

Meðan "keltar" finnast ekki í jörðu á Íslandi, og þaðan af síður papar, og fornleifarnar eru allar frá 9. öld og kolefnisaldursgreiningar eru í miklu rugli, eða er ruglað af fornleifafræðingum sem ekki geta skilið takmarkanir greininganna, geta menn stutt sig við sinn bagal út á næstu írsku krá og hlustað á Maríu O´Gubban kyrja; Drekkt þar sorgum sínum með lítra af Guinness meðan þeir éta grjúpán sem reykt eru á Patreksfirði, og einfaldlega sætt sig við að vera komnir undan einvala liði sem flýði frá Noregi vegna þess að þar var komið til valda óþolandi fólk, sem fannst þeir sem fluttu til Íslands algjörlega óferjandi. Og er svo enn.

Papar voru hugarfóstur Ara fróða, en þróuðust mest í kolli þeirra minna fróðu sem oftúlkað hafa orð Ara.

Internet_Leprechaun
Ari fróði var létt keltómanískur

68 % óvissa í íslenskri fornleifafræði

Kvarnarsteinn í Vogi

Svo flottri prósentu geta hefðbundnir landnámsáhangendur ekki hamlað gegn. Eða hvað?

Hér er kollega minn dr. Bjarni F. Einarsson örugglega að vitna í niðurstöðu á kalíbreringu (leiðréttingu/umreikun) á einni (1) niðurstöðu úr kolefnisaldursgreiningu (frá Beta rannsóknarstofunni, rannsóknarstofu sem ég myndi halda mig frá) við ein staðalfrávik (68%), og þá er breidd aldursgreiningarinnar 770-880 e. Kr (skv. Beta). En við 2 staðalfrávik er breidd aldursgreiningarinnar auðvitað nokkuð meiri. Það fer að sjálfsögðu eftir mælingarniðurstöðunni, C14 aldrinum, sem í þessu tilviki er 1220 ± 40 ár, hve ónákvæm kolefnisaldursgreining svo verður, því C14 kúrfan er ekki Bell-kúrfa eins og flestir vita.

C-14 var mjög mismikið á jörðinni á hinum mismunandi tímum. Við tvö staðalfrávik (95%) er niðurstaðan á mælingarniðurstöðunni samkvæmt WinCal25 forritinu frá háskólanum í Groningen 688-890 e.Kr. Cal. Sjá leiðréttinguna á niðurstöðu aldursgreiningunni frá Vogi við 2 staðalfrávik (2 sigma) með því að klikka hér. Aldursgreiningin frá Vogi styður að mínu mati, að landnámið hafi átt sér stað á 9. öld, eða fyrr, en aldursgreiningin er alls ekki heimild sem gefur ástæðu til að lýsa yfir byltingu í íslenskri sögu.

Svo verðum við auðvitað að vita hvaða efni Bjarni lét greina, til að skilja niðurstöðuna. Hvað er það "charred material", brennda efni???, sem Beta Laboratories i Bandaríkjunum fékk frá Bjarna F. Einarssyni? 

68%in hans Bjarna eru mér því jafn óskiljanleg og 68 kynslóðin.

Vogur-nr_-31-kopia

Ef skáli Bjarna í Vogi í Höfnum, hefur verið verstöð veiðimanna sem komu til Íslands eftir rostungstönn, fugli og eggjum, þá er mér hulin ráðgáta af hverju þeir voru að hafa fyrir því að vera með kvarnarstein úr íslenskum steini, sem ég sá í Vogi þegar ég kom þar við sumarið 2009. Tóku veiðimennirnir með sér korn, og hjuggu kvarnarstein úr íslensku grjóti meðan þeir voru á veiðum? Kvarnarsteinninn er líka mjög eyddur og sýnir það mér að búsetan í Vogi gæti hafa verið nokkuð löng - áður en menn fundu sér minna vindrassgat að búa á. Mér finnst tilgáta Bjarna um mikilvægi Íslands til veiða á 8. öld langsótt og sýna kannski óskhyggju ESB-sinnans í dag meira en nokkuð annað. ESB-sinninn heldur að Ísland sé ómissandi fyrir þjóðir Evrópu.

Bjarni er meðal hæstu fornleifafræðinga á Íslandi og fremstu og miklu skemmtilegri fræðimaður en sagnfræðingurinn sem fyrir slysni ? var gerður að prófessor í fornleifafræði við HÍ. Bjarni er alltaf til í að ræða niðurstöður og er alþýðlegur fræðimaður. En þessa skýringu Bjarna kaupi ég ekki gangrýnislaust, enda er Bjarni mun varfærnari á heimasíðu fyrirtækis síns, Fornleifafræðistofunni.

Mynd: 

Þessi mynd var tekin er Bjarni stökk á Stöng, með heilabúið tæpra 6 metra yfir landnámi. Bjarni hjálpaði mér dyggilega þar á lokasprettinum síðla sumars árið 1992, þegar ég átti eftir mikilvæg verkefni og hjálparfólkið mitt var að hverfa úr landi í nám eða í próf við HÍ. Á Stöng fundum við landnám rétt ofan á landnámslaginu svokallaða, og er ég 100% klár á því.

Bjarni stekkur á Stöng

mbl.is Segir kenningum um landnám hrundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Murder she wrote...

esther

 

Kona, sem var sögð dáin árið 1987, er árið 2011 talin hafa horfið ættingjum sínum og jafnvel verið myrt? Hvernig getur maður útskýrt slíkt?

Nú leitar fjölskylda, eða réttara sagt maður á Íslandi að ættmenni sínu, konu sem giftist Bandaríkjamanninum Emerson Gavin í Dómkirkjunni árið 1946. Sá sem leitar, telur nú að konan og tvö börn hennar hafi verið myrt í Bandaríkjunum. Það mun vera bróðursonur Rögnu Esther, sem reynir að hafa upp á ættingjum sínum. Hann býr á Ísafirði. Hægt er að fylgjast með leit hans að hluta til á netinu.

Þetta er auðvitað mjög merkileg frétt og fjölskyldusaga, en mest vegna þess að RÚV er með fréttina og þá er aldrei að vita hvort sagan sé sönn eða hvort rétt sé með farið.

Ragna Esther Sigurðardóttir, sem leitað er að, er í afmælisgrein um bróður hennar sjötugan árið 1987 sögð látin. Ekki er greint frá þessu í frétt RÚV, þar sem vangaveltur dóttur Bandaríkjamannsins sem kvæntist Rögnu Esther eru aðalefnið. Sú kona, Melissa Gavin, sem er dóttir mannsins úr öðru hjónabandi hans, eftir að hann var skilinn frá Rögnu Esther Sigurðardóttur, telur að faðir hennar hafi myrt Rögnu og börn hennar árið 1955.

Reyndar er Ragna einnig talin látin árið 1970, ef dæma má út frá minningargrein um föður hennar, Sigurð Pétur Klemenzson Íshólm, er lést að völdum eldsvoða á heimili sínu á Njálsgötur árið 1970, og var jarðsunginn 1. ágúst 1970. Eitthvað hefur þessi „dauði" Rögnu Sigurðardóttur farið fram hjá ættmennum hennar, sem nú íhuga að fá gerða rannsókn á hugsanlegu morði á Rögnu og börnum hennar tveimur.

Við smávægilega netleit fann ég, að sá sem leitað hefur mest af afdrifum Rögnu, hefur einnig leitað að Rögnu undir ættarnafninu Smith. Það kemur heldur ekki fram í fréttum RÚV.

Ragna Esther, sem sögð var látin árið 1987, og sem ættingjar hennar halda nú að hafi verið myrt í Bandaríkjunum á 6. tug síðustu aldar, gæti því hafa heitið Smith, eftir að hún skildi við málarann Emerson Gavin sem hún giftist í Dómkirkjunni í Reykjavík 4. Janúar 1946. Hann var hrotti hinn mesti samkvæmt skjölum og upplýsingum sem ættingjar konunnar hafa undir höndum. Það þýður þó ekki að hún hafi verið myrt af honum, eins og dóttir  Emersons Lawrence Gavin telur, og skrifar í bréfi sem birt er í sjónvarpsfrétt RÚV, en sem ekki er vitnað rétt í:

From Melissa Gavin

Ég googlaði meira, og í ljós kemur, að hinn meinti morðingi, Emerson L. Gavin, lést árið 2009 í Jacksonville i Florida. Hann var á einhverju tímabili eftir 1955 kvæntur Helen Janis Baker. Hann kom frá Portland í héraðinu Multnomah í Oregon og mun einnig hafa búið í Klamath. Hann kvæntist aftur í Nevada.

En ef íslensk kona og tvö börn hennar hverfa árið 1955, hvers konar íslensk fjölskylda lætur það viðgangast að leita ekki að henni og velur að skrifa hana af í afmælisgreinum um aðra ættingja? Var það fátækri, barnmargi fjölskyldu í Reykjavík um megn að hugsa um afdrif ættingja síns? Það er afar líklegt. T.d. átti fjölskyldan, faðir hennar, yfir höfði sér nauðungaruppboð árið 1955, um svipað leyti sem tengslin við Rögnu rofna. Kreppan nú er barnaleikur miðað við erfiðleika lífsins þá.

Gæti verið, að börn Rögnu Esther hafi verið komið fyrir á barnaheimili og að þau hafi verið ættleitt líkt og dóttir Emersons af öðru hjónabandi, Melissa, segist hafa heyrt árið 1955? Einnig verður maður að spyrja sig mikilvægrar spurningar: Hvað var Melissa litla Gavin eiginlega gömul, þegar hún heyrði það sem hún greindi ættingja Rögnu Esther frá árið 2010? 3ja ára? Hvernig gat hún munað eftir gerðum föður síns á þeim aldri?

Sá möguleiki er fyrir hendi, að börn Rögnu Esther Sigurðardóttur (Gavin/Smith?), sem hétu Raymond Leslie og Donita, hafi endað á barnaheimili. Þann möguleika er ekki er hægt að útiloka áður en RÚV hellir frétt yfir þjóðina með hræðilegum vangaveltum um mann sem á að hafa myrt konu sína og börnin þeirra. Það getur auðvitað verið rökréttur möguleiki, ef tekið er mið af upplýsingum um eðli mannsins, en möguleikarnir eru nú fleiri. T.d. að Ragna hafi gifst Mr. Smith.

Og af hverju töldu þeir sem skrifuðu minningargreinar um bróður og föður Rögnu, að hún væri fallin frá? Höfðu ættingjar hennar á Íslandi þetta bara á tilfinningunni eða bárust af því staðfestar fréttir, sem hafa farið fram hjá þeim ættingja sem nú leitar að föðursystur sinni og börnum hennar?

Þetta mál verður að leysa.


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband