Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Frumstæður fréttapési

Fyrrverandi fréttamaður RÚV, G. Pétur (Galsa Pési), setur nú gamalt viðtal við forsætisráðherra á YouTube.  Visir.is er með þetta sem frétt í boði Samfylkingarinnar. Mér skilst að viðtal þetta hafi aldrei verið flutt í fréttatímum RÚV árið 2007.  Hvernig stendur á því að fréttamaður er með afklippur af upptökum Ríkisfjölmiðils í hirslum sínum? Eru ónotuð viðtöl fréttamanna á opinberum miðlum einkaeign G. Péturs? Hefur G.Pétur tekið eignir RÚV með sér heim við starfslok sín, eða hefur hann bara farið inn á fréttastofuna og sótt þetta og sett á YouTube, meðan hin fíflin á fréttastofunni hlógu og hrópuðu: "Áfram Pétur"?

Greinilegt er að fréttamaðurinn hefur hitt Geir Hilmar á slæmum hárdegi, með kolluna skakka, svangan og þreyttan. Ef ég hefði fengið svona yfirgangslegar og ruddalegar spurningar frá einhverjum, hefði ég ekki svarað, jafnvel gefið honum kinnhest með hairpísinu.  Það er ekki til í dæminu, að slík viðtöl gætu hafa átt sér stað í öðrum siðmenntuðum löndum. Íslenskir fjölmiðlamenn hafa haft óheftan aðgang að opinberum persónum. Í þessu viðtali gengur G. Pétur einfaldlega of langt. Ef þetta hefði verið í öðru landi, hefðu aðstoðarmenn ráðherra og þingverðir tekið fréttamanninn afsíðis og beðið hann um að stilla sig.  Ég skil ekkert í Geir að rökræða við Galsa Pésa.

Þegar ég sá þennan bút úr safni G.Péturs, sem ólst upp á Þjóðviljanum sáluga, kom upp í huga mér blogg Davíðs Þórs Jónssonar, sem ég fann eftir nokkra leit: Vessegú . Fyrirsögnin á vel við.

G. Pétur og aðrir góðir Íslendingar eiga greinilega erfitt með skilning á ESB? ESB hefur svo sem ekki boðið þjóðinni inn i eitt eða neitt.  Skyndiupptaka evrunnar þýðir að íslenska þjóðin verður götumella í slitnum netsokkum á horni Evrópustrætis, sem lyktar af slori.  Draumsýnir ESB-ista eru tálsýnir masókista. Hafið þið búið í ESB-landi og upplifað „herlegheitin"? Íslendingar eru svo sem í augnablikinu ekki í neinum sérflokki. ESB hefur alltaf sýnt smáþjóðum, og fátækum, að ESB er executive club fyrir útvalda. Ísland er í augnablikinu ekki tækt í neina „fína klúbba". Þakkið skapara ykkar fyrir það.


Alþingi er óstarfhæft

 

Jón grætur

 

Í stað þess að ræða lausnir fyrir almúgann í landinu, skapa ný störf og sjá nýjar lausnir í kjölfarið á þeim lánum sem brátt fara að berast þrotabúi fáránleikans, er háttvirt Alþingi komið á annan endann. Allir eru komnir í rýtingsstungur á göngunum.

Vantrauststillaga er komin frá Glundroðaflokki vinstri snúinna græningja, Örflokki riðu- og klaufaveikra og Slysaflokki lauslyndra.  Tvö hrakmenni úr Samskotshreyfingunni munu líklega taka þátt í áramótateitinu. Einn þeirra er í byltingarham eins og sjá og heyra má hér. Það er ekki við hæfi að Össur hirðfífl steyti hnefann framan í alþjóð og segi „lifi byltingin". Nú vantar frekar byltingu til að koma honum í burtu úr stjórnmálum.

Sirkusinn hefur nú gengið fram úr öllu hófi, og það sýnir sig að það „mannaval" sem situr á Alþingi getur ekki leyst vanda landsins. Þar rífast menn um eiginhagsmuni, en gefa skít í þjóðina sem vonar bara að þetta fólk vinni fyrir laununum sínum, líka eftir að þau verða lækkuð.

Metsölubókahetjan á Bessastöðum ætti að sýna burði sína og setja á laggirnar góða og vitsmunalega hæfa þjóðstjórn sem í sitja sérfræðingar og fáeinir ábyrgir stjórnmálamenn, en ekki pólitískir ævintýramenn, gleiðgosar eða sundrungarpésar eins og sumir þeirra sem kosnir voru á Alþingi þegar allt lék í lyndi og menn héldu að við værum rík.


Enginn afber hungur með stolti

Hungur

ekki einu sinni Íslendingar. En stolt, oflátungsháttur, græðgi og ofmetnaður lítillar elítu getur leitt til niðurlægingar heillar þjóðar.


mbl.is Íslendingar verða að endurheimta virðinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saga um dreng og kóng í kreppu

mát eða kóngur G 8
 

Í gær, þegar Davíð Oddsson minntist gerða flestra annarra en sjálfs sín á síðasta ári, kom upp í huga mér saga....

Það var svo sem svo með minnið hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar eftir ræðu Davíðs. Ingibjörg Sólargeisli mundi reyndar eftir sex fundum, sem sýnir að aðgerðin í New York hefur gengið vonum framar.  En hún telur Davíð þó réttdræpan. „Vandamálið er trúverðugleiki" segir Ingibjörg. Hennar eða hans?  Gamlir skósveinar Dabba kóngs,  Árni Matt og Geir Haarde, klóruðu  sér í kollinn. Þeir mundu  eftir einhverju í  febrúar af hreinni skyldurækni við Davíð,  en „það kom ekkert nýtt fram". Aðrir segja að Davíð hafi gert lítið úr hlutverki Seðlabankans.  Bjöggi á Skarði og Össur á Barði komu algjörlega af fjöllum eins og oft áður. Þessir samfylkingarbræður Ingibjargar Sólrúnar kannast ekki við neitt. Þeir sátu enga fundi og fengu ekkert frá Seðlabankanum eða Davíð.  

Jú, áður en ég gleymi því, hér kemur  sagan sem kom upp í huga mér þegar ég hlustaði á Dabba kóng. Eitt sinn var Björgvin G. Sigurðsson að vinna hjá Landsvirkjun sem sumarstrákur í Búrfelli. Ég var þar vondi vísindamaðurinn í nágrenninu, að grafa upp fornmenjar á Stöng í Þjórsárdal. Ég hafði fengið húsnæði í Búrfelli fyrir mig og mitt rannsóknarfólk í boði Landsvirkjunar, sem alltaf voru mjög rausnarlegir. Í Búrfelli var sumarvinna fyrir krakka. Mjög fljótlega tók maður eftir þeim unglingum sem voru fremri öðrum að andlegu atgervi. Björgvin var greinilega einn þeirra. Ég hélt að hann væri framsóknargemlingur.  Hann ólst upp í Búrfellsvirkjun, eins og hann sjálfur orðar það og hafði því meiri réttindi en aðkomukrakkar.  Mjög fljótlega sá maður að Bjöggi púlaði ekki mikið við vinnu sína og var sjaldan skítugur. Hvernig hann fór að því? Það var ráðgáta sem rannsóknarfólkið á Stöng velti mikið fyrir sér eins og svo mörgu öðru.

bjorgvin-gsig2

Eitt sumar var Björgvin G. Sigurðsson búinn að fá hvítflibbastarf og var framtíð hans þá ráðin. Hann var orðinn umsjónarmaður og bóndi í Þjóðveldisbænum, þar sem hann rukkaði ferðamenn fyrir aðgangseyri til að sýna þeim endurgerð á húsakynnum Íslendinga á Þjóðveldisöld. Menn greiddu Björgvin glaðir 500 krónur til að sjá endurgerð, sem er algjörlega út í hött og á ekki við nein rök að styðjast.

Björgvin spurðist mikið fyrir um niðurstöður rannsókna brjáluðu vísindamannanna á Stöng, þar sem ýmislegt fannst sem menn höfðu útilokað eftir að jarðfræðingar aldursgreindu eyðingu Þjórsárdals til 1104. Björgvin spurðu mig oft, „því hann vildi segja útlendingum rétt frá". Ég sagði honum í stórum dráttum frá helstu niðurstöðum mínum (okkar). Það helsta var, að bærinn Stöng fór ekki í eyði árið 1104, heldur að minnsta kosti 100 árum eftir hið stóra eldgos í Heklu árið 1104. Sjá hér . Bað ég Björgvin að segja það ferðamönnunum.

Skömmu síðar fór kunningi minn og hlustaði á ferðaskýringar Björgvins. Hann hafði allt á hreinu. Hann sagði ferðalöngum sömu, gömlu söguna, að Þjórsárdalur hefði farið í eyði árið 1104 í miklu gosi og að þjóðveldisbærinn væri alveg eins og húsakynni manna hefðu verið fyrir 1104 - burtséð frá plastinu í þakinu. Hann hafði annað hvort gleymt því sem ég sagði honum, eða ekki þótt það nógu merkilegt.

Kannski hefur Björgvin líka gleymt því sem Davíð sagði honum um bankana fyrr í ár. Pólitíkusar gleyma eins og annað fólk, stundum miklu meira.  Það er líklega spurning um trúverðugleika eins og Ingibjörg Sólrún segir.

Af hverju var Björgvin G. Sigurðsson alltaf hreinn í unglingavinnunni? Ég held að hann hafi haldið að sér höndum, en hann hefur örugglega gleymt því í dag, nú þegar hann er sokkinn í sora stjórnmálanna. Ætli Davíð hafi líka verið svona hreinn í unglingavinnunni?


Limaskapur í ES

Limafáninn

 

Samkvæmt Pól á Kletti í Dimmalætting, eru Íslendingar að fara að sækja um limaskap í ESB. Maður vonar bara að amstrið á ríðingavelli ES valdi Íslendingum ekki of miklum trupleikum og þetta verði ekki aðeins fátækralimaskak.

Hér að ofan sést ESB fáninn. Limaskapur i ES gæti að mínu mati gefið Íslendingum linan lók og lekanda um síðir.


Það jafnast á við morð, að senda menn til Íran

 

edam-tehran-5

Mehdi Pour lendir í fangelsi ef hann verður sendur úr landi. Þar verður hann pyntaður. Íran er sjúkt land og ef mönnum sem flýja þaðan er ekki hjálpað, er það viðurkenning á þessu versta böðlaríki Íslamismans.

Ísland verður að hætta að fara að ráðum Dana, helstu ráðgjöfum sínum varðandi íranska flóttamenn. Danir halda úti verslun og stórfelldum samskiptum við Íran og hafa gert það lengi í óþökk ESB. Danir hafa ávallt talið hagsmuni danskra fyrirtækja koma á undan mannréttindum. Hengingar koma ekki í veg fyrir góðan díl. Danir eru kaupahéðnaþjóð, sem m.a. hefur á sakaskránni að hafa sent börn í dauðann í síðustu heimsstyrjöld. Danir voru með framkvæmdir um alla Evrópu nasismans frá 1940 til 1944. Þeir græddu heilmikið á því. Í dag eru þeir enn með framkvæmdir í Íran, þar sem fólk er hengt á götum úti. Slík þjóð er ekki dómhæf á hve hættuleg írönsk stjórnvöld eru.

Sumir Íslendingar eru auðvitað spenntir fyrir að því eltast við morðingja í Íran og ef peningar yrðu bornir í skuldahylinn íslenska af Írönum, Þá yrði örugglega gjammað glaðlátlega um "vini í raun", sest upp á afturfæturna og bitið slefandi í bein morðingjanna.

Ég hjálpaði árið 2005 feðgum frá Íran, sem dönsk yfirvöld vildu senda til þess lands sem þeir höfðu flúið frá. Þeir heita Reza og Ramiar. Ég skrifaði stóra grein í Politiken og málið fór í fyrirspurn á danska þinginu. Hér getið þið lesið fyrirspurn og svar. Danski utanríkisráðherrann laug alla fulla. Skömmu síður var feðgunum leyft að vera, eftir að ráðherrann fékk viðbótarbréf frá mér. Ég taldi það ekki persónulegan sigur fyrir mig, að feðgunum var leyft að vera áfram í Danmörku, heldur smá sigur fyrir danskt lýðræði. Því miður halda Danir þó áfram að reyna að senda fólk í dauðann vegna eiginhagsmunastefnu og græðgi.

Hvað fær Íslendinga til að halda manni í óvissu í fjögur ár? Slavnesk glæpagengi koma til Íslands á vegum græðgisverktaka. Í versta falli nauðga þeir, limlesta, rupla eða drepa. En maður sem flúið hefur eitt versta hryðjuverkabæli heimsins er geymdur í limbó suður í Njarðvíkum.

Skammist ykkar, Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þið sem eyðilagt hafið líf Mehdi Kavyan Pours í fjögur ár. Þið eruð ekki fólk með hlutverk á meðal þjóðanna.

Hér er stutt mynd sem þið ættuð að horfa á hróin mín. Lesið einnig www.iranfocus.com.


mbl.is Vill frekar deyja en snúa aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í byltingarfötin

ESB og EVRA og DAVÍÐ BURT 

Ef ég hefði haft ráð á því, þá hefði ég verið á Austurvelli í gær. Ég hefði farið í gömlu byltingarfötin og tekið þátt í Íslensku Nóvemberbyltingunni í 10 stiga gaddi og norðanroki.

Fyrir utan eggjakast og analisma (klósettpappír og súkkulaðisósu) hefði verið gaman að vera einn af þúsundum með þunga brún, sem hugsuðu valdsmönnum þegjandi þörfina meðan hlustað var á trúbadúra, skáld og einhverja ung-Lenínista.  Það er enginn vafi, yfirvöld eru nú orðin hrædd við fólkið.  En ekki nógu hrædd, því þau vita að það sem fólk hrópar á, evrur og aðild í Efnahagssambandi Evrópu, er tálsýn sem ekki getur orði að veruleika í bráð. Efnahagslaus lönd eru ekki velkomin í ESB. Fatta menn það ekki?

Mótmælastöður eru ekki nægilegar til breytinga. Hugarfarsbyltingar er þörf. Það verður aldrei aftur sem áður var á Íslandi, þrátt fyrir lán og bitlinga frá öðrum þjóðum. Óskin um að halda uppi uppteknum hætti, sömu neysluvenjum, sömu velmeguninni fyrir suma, er út í hött.  ESB er óraunhæf lausn. Sjáið yfirganginn, sjáið ástandið í Evrópu. Það eru ekki bara Íslendingar, sem eru á hvínandi kúpunni. Upphrópanir um að "við þurfum að fá evruna og ganga í ESB", eru rugl. Enginn vill þetta land í selskapinn. Verum því feginn. Landið tilheyrir okkur enn, sárfátækum, en ekki einhverjum hryðjuverkakapítalistum með mikilmennskubrjálaði eða embættismönnum í Brussell.  

Landið tilheyrir heldur ekki einhverjum aflóga marxistum, sem vitna í rit hugóramanna, sem notuð voru til að nauðga þjóðum í áratugi. Gamlir íslenskir kommar sjá stærsta glæpinn í því að haldið hafi verið í íslensku krónuna. Hvenær hefði verið hægt að losa sig við hana?  Gamla byltingakynslóðin hefur engar lausnir í stað vitleysunnar sem ríkt hefur.  Vitleysan deyfði þá algjörlega og þeir lifðu góðu lífi í sæluríki  sjónhverfingarkapítalistanna og þjófanna, með hlutverk á meðal þjóðanna, eins og lítil sníkjudýr, svo myndmál þeirra sjálfra sé notað. Börn sumra þeirra unnu í bönkunum, því þau höfðu svo mikla ímugust á lífinu í blokk æsku sinnar og á strætóferðum.

körfulán Leníns í Evrum
Körfulán Leníns henta ekki Íslendingum

Það  er því engin bylting í gangi og þessir útifundir á Austurvelli eru aðeins skammgóður vermir fyrir fólk í losti og góður félagsskapur fyrir Jón Sigurðsson fastan á stallinum sínum. 

"Höfuð þurfa að fljúga". Það þarf að rannsaka bankadrengina og ævintýramennina, sem eyðilögðu íslenska lýðveldið.  Þeir stálu Íslandi. Þjóðin þarf að fá landið aftur og lýðræðið.  Fyrr kemst þjóðin ekki úr lostinu og ESB-evru draumórunum.  Ríkisstjórnin þarf að segja af sér og þjóðstjórn að taka við.  Reka ber þá sem bera ábyrgð á falli lýðveldisins. Fangelsa ber þá sem stálu Íslandi. Menn hafa verið settir í steininn fyrir minna. Þeir seku eru landráðamenn og þeir eru alíslenskir. Þeir ættu að vera að leita sér að vinnu og flýja land, en ekki saklaus almenningur. Þeir kostuðu landið sjálfstæðið á allan hátt. Höfuð hafa flogið frá bol fyrir minni sakir á Íslandi.


Norska kjaftakerlingin og forsetinn

Tveiten og Grimsson

Ólafur Ragnar Grímsson gasprar of mikið. Það er víst auðvelt að vera sammála um það. Hann hefur hins vegar hitt ofhjarl sinn í hádegisverðarboði í danska sendiráðinu í Reykjavík.  Hádegisverðarboð í danska sendiráðinu hafa oft verið hættuleg íslenskum embættismönnum og hef ég skrifað færslu um það áður, sem ég hvet menn til að lesa. Vinsæll réttur í sendiráðinu var "tunga í gelé".

Norska senditíkin á íslandi, Margit Tveiten, er líklega komin af sama stofni og Gróa á Leiti. Óli og Tveiten á Leiti voru boðin í veislu í danska sendiráðinu, og andstætt því sem gengur og gerist í diplómatíu er þessi Tveity lady frá Norge hálfgerð fréttastöð á stuttbylgju. Ef Tveiten veit það, þá veit öll sveitin það.

Ég mæli með því að Óli loki rifunni meira en hann er vanur og að norsk yfirvöld kalli kvendiplómatann heim í endurskólun. Ég er persónulega á móti því að konur gegni háum stöðum í utanríkisþjónustu. Ingibjörg Sólrún er greinilega ekki sammála því. Nú þegar hún er að "spara" í ráðuneytinu, ræður hún stelpuna sem hún hélt úti í New York til að fremja gjörninga svo sem pönnukökubakstur, svo að Íslendingar gætu komist í Öryggisráðið.  Pönnsubakarinn frá New York er nú orðinn sendiherra fyrir að eyða hundruðum milljóna í ekkert. Flott!


Vaselín- og Vodkadraumur

 

Russia!Putin

 

Þótt fréttir af hádegisverðarfundi Ólafs Ragnars á föstudaginn var séu afar óljósar og óstaðfestar, er auðvitað einkar athyglisverð tenging rússaláns við herstöðina á Miðnesheiði.  Vonandi er ekki komið kalt stríð í miðri alheimshitnuninni. Menn spyrja sig náttúrulega, hvor slagorðið verði , Ísland úr NATÓ og rússneska herinn upp á Völl.

Þeir sem vilja gerast rússamellur, ættu kannski að fara að taka fram vaselínið og vodkann. Rúblureikninga og vodkaverðbréf. 10% þjóðarinnar getur lagst í vímu eins og góðum Rússum er einum lagið.

Nei, þetta er martröð í svarthvítu, með rússneskum herstöðvum og olíuvinnslum, stóriðnaði og gaffalbitum í matinn. Ef ég væri sálfræðingur, sem ég er sem betur fer ekki, myndi ég kalla þessi meintu viðbrögð Ólafs Ragnars Post Traumatic Stress. Þeir sem hafa valdið þessu ástandi hjá Óla eru gamlir kunningjar hans og ganga þeir enn lausir. Líklega er orðið tímabært að hneppa slatta af þeim í varðhald, þangað til málin verða rannsökuð niður í kjölinn.

Danir hafa verið mjög harðir við nokkra fjárglæframenn eins og Riskjær og Thorsen. Á Íslandi urðu á nokkrum árum til 200 karakterar af sömu gerð og þessir dönsku glæpamenn. Danir notuðu engin vettlingatök á þá og vörpuðum þeim í fangelsi. Við verðum að beita sömu aðferðum. Það ganga menn lausir sem eyðilagt hafa Íslenska lýðveldið svo mikið, að menn eru að rausa um nána vináttu við Pútín-Rússland. Er hægt að leggjast lægra?

Myndin efst er af ríkum fasista, sem nú er verið að sleikja upp, og myndin hér að neðan gæti verið af íslenskum þjóðernissinnum og Ólafi Ragnari í skrúðgöngu á 1. maí eftir nokkur ár, ef menn hugsa sig ekki tvisvar um.

Ísrússneskir .þjóðernissinnar

Það er greinilega engin hugarfarsbreyting í gangi

Meðan beðið er eftir "láninu", sem lofað hefur verið, svo Íslendingar geti haldið uppteknum hætti og neysluvenjum, er lítið annað að gera en að minnka við sig. Menn geta gengið í vinnuna eða tekið strætó.

Svo væri líka hægt að boykotta vörur frá Stóra Bretlandi og Hollandi; Hætta að rápa til London og Amsterdam. Margir eru vanir slíku og hafa hætt að kaupa allt frá Ísrael, vegna þess að stuðningurinn við hryðjuverkasamtök er talin til dyggða.

Boykot

Union Jackoff

Boykot

Nederland

Bretar, Hollendingar og aðrar þjóðir sýna nú gamla nýlendutakta. Það er ekki við öðru að búast.  Það gengur heldur ekki vel hjá þeim. Þetta eru gömul heimsveldi, þar sem peningar hafa ávallt skipt meiru máli en mannslíf. Við þekkjum sögu Breta. Saga Hollendinga er líka blóði drifin líkt og Breta og þetta eru meiri nasistaskinn en þeir segjast vera. Af hverju haldið þið að helmingur þeirra 10% gyðinga frá Hollandi sem lifðu helförina af hafi yfirgefið landið 5-10 árum eftir stríð?

Svo er annar lærdómur, sem hægt er að draga af þessu: Nú verður að fá nýja ríkisstjórn. Eyðsluklóin, okkar í utanríkisráðuneytinu, sem ætlaði sér að stjórna öryggi heimsins frá New York, sem ekki sá hvernig sirkustjaldið féll yfir hana og sem ekki getur á fljótan hátt bjargað öryggi þjóðarinnar með pólitískum aðferðum, ætti að fara að leita sér að starfi hjá Póstinum. Forsætisráðherrann ætti að fara á námskeið í persónulegu öryggi. Hann er eins og feitu og duglausu persónurnar í Latabæ.  Af hverju þarf maðurinn alltaf að koma fram með einhvern við hliðina á sér? 

Fyrrverandi auglýsingastjóri FL Group, einhver Kristján, sem síðast hefur starfað fyrir Latabæ, hefur reyndar þegar verið ráðinn í Stjórnarráðið. Betra væri að senda stjórnarráðið eins og það leggur sig í æfingar hjá þeim ofurhressa, og kannski eina sanna útrásarvíkingi sem við eigum, Magga Scheving. Hann hefur að minnsta kosti svitnað á því að græða milljónirnar sínar. Hinir hafa bara safnað snekkjum eða fitnað eins og þessi framsóknarvíkingur er gott dæmi um:

Buddah

Gleðifrétt gærdagsins: Bjarni Harðarson er farinn, og er það vel. Vonandi fer Valgerður líka hið fyrsta. Skrílslæti Framsóknamanna í hinu háa Alþingi eru ekki á allt hitt bætandi.


mbl.is Afgreiðslu umsóknar frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband