Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
9.11.2008 | 16:25
Á vígvelli siðmenningar MMVIII
Núna, rétt áður en míní-borgarastyrjöldin hefst á Íslandi þar sem réttlætið og sannleikurinn mun vinna, er Björn Bjarnason herforingi greinilega farinn að velta fyrir sér, hvort lýðræðið sé of dýrkeypt fyrir sig og vini sína.
Það er auðvitað af sem áður var, þegar Moggablaðamenn eru farnir að auglýsa múgæsingu í Iðnó og jafnvel verklegar æfingar með spælegg og tómatsalat frá Bónus á Austurvelli. Halla Gunnarsdóttir (Sigurðssonar)" væri líklega búin að missa vinnuna, hefði Mogginn enn verið málgagn Sjálfstæðisflokksins. Þessi Rósa Luxemborg Íslandskreppunnar sagðist á fundi í Iðnó að hún hefði aðeins krækt sér í örbylgjuofn í íslenska kaupæðinu. Hún á ekki einu sinni sjónvarp stúlkukindin. Er hún ekki Íslendingur?
General Björn er í öngum sínum og skrifar laugardaginn 8. nóvember:
Fjölmiðlaliðið, sem Björn Bjarnason er að tala um, er auðvitað gallagripir og fífl upp til hópa (Haarde 2008), dauðadrukknir kommar, menntaðir í Svíþjóð, ef þá nokkuð. Til hvers að hafa fjölmiðla? Þeir gera málið bara flókið með öllum þessum spurningu. Bloggið er enn verra. Þar er fólk með þráhyggju að básúna sig um það sem það veit ekkert um, þegar það er ekki í kaupæði.
Ég veit ekki um hvaða ábendingum vinir Björns eru að gauka að honum, en ég vona að það sé ekki það sem ég held að það sé. Annars held ég ekki að Björn eigi svo marga vini einmitt núna.
Ekki þótti mér þetta nú beysnir byltingamenn sem ég sá í sjónvarpsfréttum frá Iðnó, eða þeir sem spændu upp malbikið fyrir framan Alþingishúsið. Mér er spurn, væri ekki nær að búa til ommelettu og tómatsalat fyrir fátæka fólið, með skyrböku í eftirrétt, í stað þess að vera að sletta mat á friðað og hljóðlátt, gamalt hús?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2008 | 13:31
Way to go
Núna þegar hinn fíni, "aríski" kynstofn á Íslandi er búinn að sýna alheiminum að góðu genin hans Kára í deCode eru aðeins nothæf í ömurleg fjárglæfrashow, ölmusubetl og undirgefni, er gott til þess að vita að blökkumaðurinn Bragi O'bama fyllir Hvíta Húsið af dansandi gyðingum, negrum, Mexíkönum, Pólverjum og jafnvel vestur-Íslendingum með Rambógen. Þeirra tíma er kominn. Mér lýst bara vel á Obama. Ég er viss um að hann er ekki af íslenskum ættum.
Annars langaði mig bara að segja, að þýðingablaðamaður Moggans ættu kannski að hafa betri sögumenntun en sá sem sullað hefur þessari frétt saman. Irgun (Etzel), samtök þau sem faðir Rahm (Lofts) Emanuels var með í, stefndu ekki að stofnun Stór-Ísraels, heldur Eretz Israel, landsins Ísraels. Stór-Ísrael er eiginlega ekkert annað en eitthvað heilaæxli í fólki sem hatar Ísrael. Irgun-samtökin stefndu að stofnun Ísraelsríkis og börðust mest við breska lygalaupa og löðurmenni sem reyndu að koma í vef fyrir stofnun þess.
Það er nú líka of mikið sagt að tala um strangtrúaðan uppruna Rahms Emanuels. Strangtrúaðir gyðingar senda ekki syni sína í balletttíma.
Guðmundur bloggari Magnússon, fyrrverandi yfirmaður minn, leitaði um daginn að íslenskum Obama. Ég leita að íslenskum Rahm. Nú væri ég alveg til í veislu með einum slíkum, þar sem nöfn ýmissa karla yrðu þulin upp og hnífum stungið í borðið um um leið og sagt væri "Litla-Hraun, Litla-Hraun, Litla-Hraun" og jafnvel "dauður".
Myndin hér að ofan er ekki frá balletttímabili Rahms litla.
![]() |
Rahm-bo" mun stýra Hvíta húsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.10.2008 | 18:37
Bloggpíslavættir Íslands
Síðan ógæfan hellti sér yfir Ísland, hefur borið dálítið á sjúklegri sjálfsmeðaumkun, þar sem hræðilegum örlögum annarra þjóða er líkt við það óvenjulega ástand sem nú ríkir á Íslandi. Enginn hefur dáið vegna þessa ástands á Íslandi, en samt sér maður fólk lýsa því eins og heimsendir sé í nánd. Einnig er í gangi sjúkleg tilhneiging til að kenna útlendingum um ástandið. Eftir feitu árin, þar sem flestir trúðu á bankasnáðana og mátt þjóðarinnar á meðal þjóðanna, er veruleikaflóttinn farinn að grípa um sig.
Hér koma þrjú dæmi, sem ég ætla mér að skrifa um í erlendu tímariti, vegna þess að mér þykir það sem fram kemur í hæsta máta óeðlilegt. Ef þessar skoðanir eru almennar, og það veit ég ekki enn, þá lýsa þær afar sjúkri þjóðarsál.
Farið á blogg Páls Vilhjálmssonar blaðamanns, sem skrifaði mjög góða grein, sem hann kallaði Samsærið gegn Íslandi og lauk henni með þessum góðu orðum: Í útrásarandrúmsloftinu kafnaði dómgreind þjóðarinnar. Samsærið er innlent, ekki útlent."
Þessi grein Páls fékk allmörg viðbrögð, en flestir virtust hafa misskilið hana. Hún kallaði t.d. á greiningu hins fjölbreytta karakters Jóns Steinars Ragnarssonar. En þegar einhverjir heita: Salomon, David, Green, Lipsky, Bear eða Stern, þá sér Jón Steinar eitur og telur slíka menn vera á bak við allt sem miður fer á Íslandi og víðar. Davíð í Seðlabankanum og gulldrengirnir í bönkunum fá greinilega syndaaflausn hjá netpáfanum Jóni Steinari gegnum hatur hans á ákveðnu fólki.
Skýringuna á Mósaiískum (gyðinglegum) vanda heimsins deilir Jón greinilega með jafnaldra mínum Gunnari Th. Gunnarssyni, leigubílsstjóra m.m. austur á Reyðarfirði, sem oft bloggar mjög skemmtilega. Í miðri sálarkreppu íslenskrar þjóðar, sýndi hann nýja hlið á sér og fann sig knúinn til að skrifa færslu sem hann kallar Gyðingar stýra 75%. Þar skrifar Gunnar þetta, en dregur reyndar í land í svörum við athugasemdir við færsluna:
"Sagt er að Gyðingar í veröldinni, sem eru um 6% mannkyns, ráði yfir 75% alls fjármagns sem er í umferð. Þegar þetta hlutfall minnkar niður fyrir 75%, þá setji þeir atburðarrás í gang til að rétta kúrsinn."
Ég get bara sagt eitt. Maður sem er leigubílstjóri á Reyðarfirði, hlýtur sjálfur að vera gyðingur.
Aðrir leita á náðir gyðinganna í stað þess að trampa á þeim, og líkja ástandinu á Íslandi við verstu reynslu gyðinga. Á bloggi umhverfisefnafræðingsins Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur, eru Íslendingar komnir í gettó og svo að segja á leið í gasklefana - og samkvæmt henni er þetta allt útlendingum að kenna, fyrst og fremst Bretum og IMF. Í grein sem Ingibjörg skrifar á (lélegri) ensku, og sem hún kallar The latest news from the icelandic ghetto!, er notast við samlíkingu við örlög gyðinga í stað þess að hata þá eins og venjan er. En slík samlíking og relativismi er reyndar næsta stig við afneitun helfararinnar. Ætli Ingibjörg viti að Þjóðverjar ætluðu gyðingum að lifa af 184 hitaeiningum á dag? Hvað ætli bíllinn hennar Ingibjargar gæti hafa fætt marga gyðinga í gettóum Evrópu? Ég skrifaði líka grein á ensku um daginn, en hún var ádeila á þetta hugarfar sem fram kemur í rausi réttlátu rauðliðanna Þar lét ég meistara Bob Dylan kyrja minni örmu þjóð hentuga þulu. Hlustið, lesið og skammist ykkar ef þið getið.
Þeir þrír sem hafa verpt athugasemdum sínum hjá frústreraða efnafræðingnum, eru þrír af verstu siðvöndurum íslenskra bloggheima (fyrir utan mig). Nú eru þau ekki að fárast yfir Tíbet og Palestínu, dægurverkefnum hinna réttlátu. Nú eru örlög þeirra sjálfra aðal dægradvölin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.10.2008 | 06:56
Nýtt myndband frá bin Laden
23.10.2008 | 14:49
Heilög Jóhanna af Reikniörk og bankaellur
Mikið er ég hjartanlega sammála Jóhönnu Sigurðardóttur varðandi laun nýju bankastjóranna.
Þau eru einfaldlega of há. Laun forsetans og ráðherra eru það líka. Voru menn ekki að tala um að þjóðin ætti að sýna samstöðu og sameiginlegt átak. Ég sé ekki ábyrga stefnu til að taka á málum blásnauðrar og snuðaðrar þjóðar, með því að greiða gæðingum í ríkisbönkum óeðlilega há laun miðað við aðstæður.
Jóhanna fær fimm trukka fyrir þennan reiðilestur sinn yfir hálaunafólki kreppunnar. Hlusti þeir sem talað er til!
Myndin efst sýnir Jóhönnu á hárgreiðslustofu við Ísafjarðardjúp á yngri árum. She wasn't always a Platinum Blonde. Myndin hér að neðan er hins vegar af Bankstjóra Landsbankans, þegar ein kók var alveg nóg til að gera hana ánægða. Núna er hýran hennar barasta hernaðarleyndamál - leyndó eins og það hét í dentíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.10.2008 | 07:30
Mismunað sem Íslendingi
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, er að leita að haldbærum tilfellum á mismunun . Jæja, lesið þið þá þetta:
nýlega var ég síðla sunnudags staddur í sjoppu Pakistana hér í hverfinu mínu í Danmörku. Þar hef ég oft verslað. Ég er alveg viss um að hann grunaði mig um að vera Íslending og sá efnahagshrunið fyrir. Ég þurfti að kaupa "krem fress" í skyndingu, sem kostaði 14 DKK. dollan. Þá segir hann "Du kobe fur havtruds (50) krunner". Hann meinti að lágmarks kaup í versluninni væru 50 krónur. Ég hváði og varð svo móðgaður og spurði hvort hann væri með plön um að eyðileggja reksturinn hjá sjálfum sér. Ég beindi síðan kaupum mínum til Shell bensínstöðvar sem selur matvörur og fékk meira að segja lífrænt krem fress á hagstæðu verði. En mig grunar auðvitað að Pakistaninn hafi gert þetta vegna þess að ég er Íslendingur. Pakistanar voru lengi í umsjá Breta og hafa auðvitað lært dónaskapinn af þeim.
Langsótt, en ég nú einu sinni Íslendingur.....
Fyrir um það bil tveimur árum sótti ég um stöðu á Þjóðminjasafni Dana. 8 sóttu um og dómnefnd var sett á laggirnar. Ég var einn þeirra þriggja sem "dæmdir" voru, og heldur harkalega að því er mér finnst. Ég fékk afrit af umsögninni eins og hinir þrír, án þess að geta séð hverjir þeir væru. Í umsókninni um mig var allt gott og blessað, ég var meira að segja með hærri prófgráðu en sú sem fékk stöðuna. En það sem mér var lastað fyrir var þetta. "Han har i de senere år mest beskæftiget sig med jøder". Þar var líklega átt við, að ég hef skrifað bækur og greinar um afdrif gyðinga og annarra sem dönsk stjórnvöld sendu úr landi 1940-43, og starfa í ýmsum félögum innan gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn. Trú mín og önnur störf er auðvitað ekki mikið tengt þeirri fræðigrein sem ég er menntaður í og því starfi sem ég sótti um. Þetta kalla ég mismunun. Fyrrverandi þjóðminjavörður Dana, Olaf Olsen, er reyndar gyðingur, en hann hefur aldrei haft sig mikið í frammi sem slíkur. Hann hefði nú örugglega ekki úthýst mér með fyrrnefndum rökum.
Haldið ykkur enn fastar: Þegar ég missti stöðu mín á Þjóðminjasafni Íslands árið 1996, upplýsti fyrrverandi þjóðminjavörður þetta. "ekki er framvegis óskað eftir störfum þínum á Þjóðminjasafni Íslands" . Ætli "sök" mín hafi verið í samræmi við þann Stóradóm, sem kveðinn var upp af manni sem aðeins kunni að stýra fjármálum safnsins í strand? Ég held ég sé eini Íslendingurinn, sem settur hefur verið í ævilangt ("framvegis") atvinnubann, m.a. vegna skoðana minna á hæfileikalausum stjórnanda, sem síðar var settur af. Það kalla ég líka mismunun.
Vita Íslendingar hvað mismunun er? Þeir ættu nú að gera það, þar sem þeir hafa sumir hverjir stundað hana sjálfir í mörg ár.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
15.10.2008 | 17:49
Ráðherrann okkar í New York
Utanríkisráðherrann er enn að leika forsætisráðherra, fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og viðskiptamálaráðherra, og heldur blaðamannfundi á götum úti í New York.
Hún vill enn ólm í Öryggisráðið og segir meira að segja að Brown hafi hjálpað okkur til að komast þar inn.
Er Ingibjörg ekki í þeirri ríkisstjórn, sem ráðlagði breskum sérfræðingum að stinga skýrslu undir stól?
Ef svo er, ættum við að krefjast afsagnar utanríkisráðherrans, því hún heldur því staðfast fram, að það sé "samflokksmaður" hennar, kratinn Gordon Brown, sem hafi komið Kaupþingi á hné.
Öll kurl eru ekki komin til grafar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.10.2008 kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.10.2008 | 07:20
Greiningardeild Glitnis segir....
Nei, nú er best að greiningardeild Glitnis þegi.
Það fór hrollur um mig í gær þegar ég sá frétt um að Ingólfur Bender hjá Glitni væri enn að, og hefði sent frá sér stóran spádóm. Hann er enn með vinnu, þessi mikli spámaður sem mesta af öllu líkist fermingardreng í sparifötum frá Hugo Boss. Nú spáir hann öðrum Íslendingum 4-7% atvinnuleysi - væntanlega í boði Glitnis.
Árið 2006 voru breskir og danskir sérfræðingar með hrakspár um íslenska gufupeningakerfið. Þá sagði Ingó Bender rogginn:
"There has not been any financial crisis," says Ingolfur Bender, head of research at Glitnir, formerly Íslandsbanki. "The fall in equity prices was only a correction and was expected. This is far from a financial crisis." Sjá hér
Fyrr í ár kom þessi dómur á Eyjunni: Ingólfur Bender segir verðbólguna komna til af erlendum þáttum, það er lánsfjárkreppunni og hækkun hrávöruverðs. "Seðlabankinn hefur engin áhrif á þessa tvo þætti". Annað sögðu yfirmenn hans nú, þegar þeir höfðu skitið á sig.
Mig langar ekki til að heyra hann Ingólf segja okkur neitt um hrunið nú, því hann var hluti af því. Haltu þér til hlés litli spápési. Spár frá Glitni hafa fallið í gengi. Fáðu þér almennilega vinnu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.10.2008 | 17:20
Hljómsveit íslenskrar alþýðu
getur nú sannarlega gefið tónleika nú í kreppunni, fyrst hljómsveitin er ekki í náðinni í hjá Norður Kóreumönnum - eða svo er okkur sagt, eftir að Norður-Kóreumenn fundu betri og ódýrari hljómsveit (sjá mynd). Nú er hægt að halda ódýra tónleika fyrir atvinnulausa og ellilífeyrisþega á þeim tíma sem hljómsveitin átti að vera í Norður Kóreu. Núna þegar gjaldmiðill Norður-Kóreu er skráður í stað íslensku krónunnar er auðvitað skiljanlegt að hitt alþýðulýðveldið vilji upphefja sig á kostnað Íslands og telji Íslendinga second class þjóð.
Gaman til hliðar, ef upplýsingar um áhugaleysi Japana á Íslensku sinfóníunni eiga við rök að styðjast, er þetta einfaldlega enn eitt gott dæmi um að PR íslenskra yfirvalda er í lamasessi. Maður sér betri landkynningu hjá ýmsum bloggurum, en það sem íslenskir ráðherrar" láta út úr sér.
13.10.2008 | 07:20
Þjóðarsjálfsmorð?
Dr. Þórólfur, er þetta Þjóðarsjálfsmorð? Líklegast er það nú ekki, en myndin hér af ofan lýsir ágætlega ástandinu fram að grein þinni, eða er þetta það sem koma skal?
Ég er að reyna að koma frá mér bók um afdrif fjölskyldu í gettóinu í Varsjá 1940-42, sem byggir á fjölda bréfa til sagnfræðingsins Stefans Glücksmans sem kom til Danmörku árið 1939 frá Varsjá en var síðar myrtur í Póllandi með hjálp danskra yfirvalda, sem sendu hann úr landi af þjóðhagslegum ástæðum. Danir eru alltaf svo nøje regnende.
Ég skammast mín dálítið, eins og Jónas Kristjánsson, fyrir þjóð mína, og líka þegar ég leyfi mér að gera samanburð á Íslendingum og gyðingum í gettói. Það er óréttlátt gagnvart báðum hópum. Íslendingar eru ekki í hers höndum og standa ekki frammi fyrir útrýmingu. Þeir geta aðeins sjálfum sér um kennt ef þeir gera ekki algjört eignarnám á eigum þeirra sem sköpuðu vandann. Skuldir þeirra höfum við erft, en lausafé þeirra er verið að smygla burt úr landinu af kerlum og börnum glæpamannanna.
![]() |
Ástandið verra en þjóðargjaldþrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007