Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fæðingarvottorð Jesús

INRI

er ekki til. Ekki er þó hægt að leyfa sér að draga tilvist hans í efa, ekki síst vegna jólanna, en sér í lagi vegna þess að  menn hafa drepið svo grimmt í nafni Jesús. Dauði hans orkar enn tvímælis og er opið sakamál, þar sem líkið hvarf af vettvangi. Miðað við hvað margir hafa þurft af missa líf sín fyrir dauða þessa manns, er ég sáttur við að hann hafi verið til, enda trúa milljarðar manna á hann. Þeir eiga hins vegar erfitt með að sjá hann í þeirri mynd sem hér er gefin af Jesús. Myndin sýnir dæmigerðan samtímamann Jesús, eða höfuðkúpu hans, sem BBC klæddi "holdi" og "blóði" með hjálp vísindamanna. Ég leyfði mér að bæta við algengu erfðaeinkenni gyðinga. Sjá, þetta er vissulega ekki Jesús Drottinn í Dómkirkjunni.

Mikið ber á því að menn séu að reyna að falsa fæðingarland Jesús. Ýmsar kenndir reka menn áfram. Íslenskir prestar ganga um og opinbera þá fávisku sína að að Jesús hafi fæðst í landi sé hét Palestína. Ég hef greint frá því áður. Í útvarpinu er lyginni fylgt ötullega eftir, eins og Jesús hefði alltaf verið kammerat Jesús Kristur frá Palestínu, uppreisnarmaður og eins konar frummarxisti. Þetta er orðið að þráhyggju hjá sumu fólki.

Blessuð mannkindin sem hefur „þýtt" eða endursamið grein um "Palestínu" á Wikipedia hefur einnig átt erfitt með sig, því þar stendur þetta:

Um það bil sem Jesús er talinn hafa fæðst, var ókyrrð í rómversku Palestínu og beinni stjórn Rómverja var aftur komið á. Kristnir menn voru kúgaðir og þó flestir tækju upp siði Rómverja voru margir, þá sérstaklega gyðingar, sem þoldu illa að vera undir stjórn þeirra.

Voru kristnir menn til þegar Jesús fæddist?  Nei, auðvitað ekki, enda var Palestína heldur ekki til þegar Jesús fæddist, hvort sem það var í Betlehem í Galíleu eða í Túristabetlehem nútímans, sem fjölmiðlar kalla hina palestínsku Betlehem. Nafnið Palestína var ekki notað opinberlega sem nafn á landsvæði því sem Jesús er talinn hafa fæðst á fyrr en um 390 e. Kr.

arch_titus_relief_lg
Myndin er af Títusarboga í Róm.

Þegar menn segja Jesú hafa fæðst í Palestínu, er það álíka mikil firra og ef einhverjir héldu því fram að Jón Sigurðsson forseti  hafi fæðst á Eyri við Arnarfjörið í ESB. Því verður nú örugglega logið upp á Jón hvort sem er, ef landsvikamenn og búskussar nútímans fá vilja sínum framgengt.

Ég hef beðið Biskupsstofu um að skýra afstöðu sína til þess lands sem Jesús fæddist í. Ég fékk þetta svar frá séra Kristjáni Vali Ingólfssyni:

Þessu má sem best svara svo: Kristnir menn leggja mismikið upp úr landafræði og staðháttum í Biblíutextum, en yfirleitt láta þeir duga að lesa bara það sem stendur í  Lúk. 2.4 og hafa það fyrir satt:

Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem.

Það er engin önnur kenning um fæðingarstað Jesú í Þjóðkirkjunni heldur en hinn biblíulegi vitnisburður.

Mér sýnist, þrátt fyrir skoðanir afvegaleiddra íslenska presta með afar lélega söguþekkingu, að Þjóðkirkjan kalli fæðingarland Jesús Júdeu, eða það sem sem blessuð Biblían kallar Ísraels land, og reyndist sannspá. Því það heitir landið nú og höfuðborgin er hin helga borg Jerúsalem, en ekki Al Quds. Al Quds hét borgin meðan musteri gyðinga og kirkjur kristinna voru vanvirtar af trúarbrögðum sem enn á sér fylgismenn sem eiga erfitt með að sætta sig við tilvist Kristni og Gyðingdóms. Tími Palestínuoksins er löngu liðinn.


Öfgaráðstefnan í Kaupmannahöfn

 

Það er skammt öfganna á milli. Skrítið að Jesús skyldi ekki kvarta yfir heimshitnun af völdum vondra manna og ríkja, eins og sumir fylgismenn hans gera nú. Hitastigið nú er nefnilega mun lægra en það var á tímum Jesús, og Vatnajökull var þá ekki svipur hjá sjón. En hvíthærð tófa var þó líka kona ársins i den tid.

Það er reyndar ekki svo skrítið að sumir kristnir ofstækismenn ætli að hamast á kirkjuklukkunum í nafni vafasamra vísinda. Loftslags- og bráðnunarrausið í dómsdagtrúarmönnum minnir óneitanlega mikið á frelsuð trúarbrögð. Kristnir, sem ætla að dingla í kirkjuklukkunum fyrir loftslagið, sjá sér greinilega færi á því að hita aðeins upp í kirkjunum með því að hoppa með á heimshitnunargufuvagninn, þó það gætu orðið einhverjir árekstrar við boðorðin 10.

Íslendingar, með verndara þjóðkirkjunnar í fararbroddi, gerðu, eins og kunnugt er orðið, heitan díl við öfgastjórnina í Teheran núna í vikunni. Íran ætlar fyrir tilstuðlan gufuvélstjórans á Bessastöðum að fara að kynda undir heiminum með "hreinni" orku, með Íslands sem fyrirmynd. Ríki, sem situr á ómældum auðlindum af gasi og olíu og sem ætlar sér að byggja 8-10 kjarnorkuver, er nú tilbúið í að nýta jarðhita. Þessi gleðiboðskapur var kallaður 350 sinnum úr bænaturnum Teherans í gær, og Óla ó Achbar bætt við. Það er ekki nema von að fólk hengi sjálft sig umvörpum af eintómri gleði í Íran.

Myndbrotið sem fylgir sýnir sumt af því sem fer fram á frelsunarsamkomunni í Kaupmannahöfn. Lesið gott blogg hér um sama mál.

Ahmedinejad, aðalkyndarinn í orkufyrirtækinu, sem Ólafur kyndari á Bessastöðum dílaði við, er á leið á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn eins og aðrir stórir umhverfisverndunarsinnar. Ætli hann tilkynni okkur ekki að helsta ástæðan fyrir heimshitnun séu gyðingar? Það hentar hinum sértrúarhópnum, vinstrimönnum, vel. Alltaf einherjum öðrum að kenna. Margt tengir trúarbrögðin saman!

Fyrir þá sem vilja mótmæla veru Ahmedinidaddys í Kaupmannhöfn á friðsamlegan hátt, er hægt að skrá nafn sitt á http://copenhagen.stopthebomb.net/sign-now/  og gera meira fyrir loftslagið en dingla í kirkjuklukkum umhverfi sínu til ama. Einnig er hægt að mótmæla með því að skrifa til office@zionist.dk og biðja um að fá nafn sitt á listann: www.vendryggentil.dk/navne.html


Gufuvélin frá Bessó

Óli Gufa

Forseti vor er iðinn við kolann. Hann er alveg gufaður upp frá ættjörð sinni og landsmönnum, sem líður eins og föngnum þjófi sem er verið að leiða að höggstokknum, og sem heldur að Gufumaðurinn frá Bessastöðum sé dómari sem muni koma í veg fyrir aftökuna á síðustu stundu. En gufumaðurinn er bara gamall flokksskiptingur og draugur sem finnst gaman að fljúga og ganga í tweedi og tvíhnepptum jökkum með lóða strikum. Seint fattar þjóðin.

Nú síðast sást til Ólafs á fljúgandi teppi  í fylgd með böðlum frá Íran yfir Vín. Fréttastofa böðlaríkisins Íran greinir frá nýjum tengslum sínum við Ísaland.

Nú bíðum við eftir því að óþarfa Íranar verði hengdir í krönum sem eru drifnir áfram af hreinni orku a la (gr)Islande. Það er nefnilega hægt að drepa þjóð sína með gufu. Um tíma var víst líklegt að íranski ráðherrann sem Ólafur gufaði á í Vín yrði fyrsti maðurinn sem hengdur yrði með hreinni orku, en hann hefur góð sambönd og er nú að díla við gufumanninn frá Íslandi.

Hrein ímynd Íslands smitar frá sér... Lengi lifi forsetinn og allt það sem hann gerir fyrir þjóð sína!


Heiladabbinn nú kominn í útlendinga

Boyes' tumor
 

Roger nokkur Boyes, blaðamaður, sem í mörg á hefur þjösnast á Þjóðverjum með því að segja þeim „sannleikann" um sjálfa sig með hinni heimsfrægu "jolly good British superiority-minnimáttarkennd", hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Reykjavík eftir að hafa fengið heiftarlegan heiladabba í beinni útsendingu í dag.  

Nýlega gaf Roger Boyes út bók um Ísland með hjálp íslenskra ástmanna sinna og skuggapenna, þar sem hann hélt því fram að á Íslandi hefði verið njósnari, sem vissi allt um hættuna sem stafaði af Dabbameini íslensku þjóðarinnar. Í ljós er komið að þessi breski spæjari gekk undir heitinu 000, license to lie.  Svona sögur þykir Íslendingum svo svaka fínar. Njósnari að njósna um Ísland, Vá maður. Sumir kalla Boyes jafnvel fræðimann.

Þrátt fyrir stóran skammt af þynningarlyfjum virðist Boyes hafa fengið svo gríðarlegan skammt af feitum íslenskum lygasögum, að honum var vart hugað líf um tíma. Egill Helgason reyndi þá mouth to mouth, eins og hann hafði gert svo oft áður, og bjargaði Boyes fyrir horn.

Euromenn, -konur og aðrið heiladabbsjúklingar flykkjast nú til spítalans þar sem Boyes liggur í dabbísku sjokki. Þeir biðja í kór fyrir sínum manni, því enginn af þessu fólki vill viðurkenna nokkra sök í útafkeyrslu sinni. Það var bara Dabbinn, og ekkert annað en Dabbinn sem olli vandanum og kannski dálítið HINir 29 veirustofninn, sem kom í kjölfar Dabbans.

Þegar Boyes braggast á Grensásdeildinni, og Dabbinn leysist upp, öðlast hann ef til vill nægilega þekkingu á Íslendingum til þess að getað séð annað en Dabbann á heilanum á sér. Því það er líkt með skilning Boyes á Íslendingum og Þýskurum, sem Boyes hefur skrifað svo mikið um. Hann hefur ekki hundsvit á þeim frekar en fallegum konum.


Til hamingju með nasistaverðlaunin Andri Snær

Ljósmynd af Andra Snæ, sem í upphafi prýddi þessa færslu, hefur verið fjarlægð að ósk aðila sem hafa haft samband við www.mbl.is. Ég hef rætt við ljósmyndarann sem reyndist eiga myndina, en ekki hafði hann samband við Morgunblaðið og heldur ekki rit það, gefið út af Iceland Express, sem keypt hefur myndina af honum (en ekki einkaréttinn). Greinilegt er að færsla mín hefur farið fyrir brjóstið á einhverjum. Þessum "einhverjum", sem eru búnir að skíta í leðurbuxurnar, og Andra Snæ til heiðurs birti ég nú mynd af ekta þýskum náttúruverndarmanni sem er ekki ósvipaður Andra í Draumalandinu: Ljósmyndin er einnig notuð í leyfisleysi af Alfred Töpfer Stiftung.

 

lederhosen

Andri Snær hefur fengið KAIROS-verðlaunin frá Töpfer Stiftung i Hamborg. Er ekki óborganlegt að forystumaður landverndar á Íslandi þiggi bitling úr sjóð sem fjöldi manns hefur afþakkað verðlaunin frá?

Og vitið þið af hverju:

Nazi Toepfer

Alfred Töpfer(1894-1993) var illræmdur nasisti. Hann var félagi í SS. Hann var m.a. foringi í gagnnjósnadeild í París. Hann komst í álnir vegna starfa sinna fyrir SS. Starf hans var að ræna. Hann stórgræddi á stríðinu. Seldi meðal annars kalk til Lodz gettósins, sem notað var til að hella yfir líkhrúgurnar. Eftir stríð hafði hann í þjónustu sinni stríðsglæpamenn eins og  Edmund Veesenmeyer sem vann með Adolf Eichmann við morð á 400.000 ungverskum gyðingum. Hjá honum starfaði einnig Hans-Joachim Riecke, sem var viðriðin útrýmingu á rússneskum föngum.  Allt fram til 1970 studdi Töpfer nasistann Thies Christoffersen fjárhagslega, (Christoffersen bjó um tíma bjó í Danmörku), Christoffersen gaf síðar út ritið "Lygarnar Um Auschwitz" (Die Auschwitzlüge).

Til hamingju Andri Snær. Þú ert greinilega kominn í góðan félagsskap!

Það er ekki nema von að fanatísk umhverfisvernd minni mig stundum á nasisma.

Íslenska þjóðin og þeir sem fagna verðlaunum Andra Snæs, ætlar einfeldnin aldrei að yfirgefa ykkur?

Sjá frekari upplýsingar hér


Gleðileg nasistajól

187

Það eru ekki allar bókakápur eins fallegar og vel fótósjoppaðar og kápa Viggu forseta. Bókaútgáfan Skrudda auglýsir stíft endurútgáfu bókarinnar Berlínarblús. Raðmyndaauglýsing fyrir þessa skruddu á visir.is. er bæðir ljót og nasísk. Í auglýsingunni er hægt að sjá son fyrrverandi forseta lýðveldisins í SS-úníform, hakakrossfána Þriðja ríkisins og þýska örninn. Maður gæti haldið að það væri komið stríð. Þetta er frekar ósmekkleg og æsingsleg auglýsing. Kannski er þetta talið nauðsynlegt til að selja vöruna? Maður verður að vona að hin háaríska söluherferð á bókinni Berlínarblús beri árangur. Ég bíð þó með að kaupa hana þangað til að ég veit að hún inniheldur eitthvað verulega nýtt.

Maður leyfir sér einnig að vona að þessi endurbætta útgáfa Ágústs Guðmundssonar á bókinni Berlínarblús, sem fyrst kom út árið 1996, innihaldi t.d. leyfi frá Rigsarkivet (Þjóðskalasafninu) í Danmörku fyrir birtingu skjala, sem Ágúst birti í algeru leyfisleysi árið 1996. T.d. skjöl um mann, íslenskan nasista í Danmörku, sem ekki var látinn, þegar skjöl um hann birtust í bókinni. Slíkt er brot á dönskum lögum og er víst hægt að dæma menn í fangelsi fyrri það. Flest þau skjöl sem Ágúst birti úr Rigsarkivet fékk hann aldrei  leyfi til að birta. Hann fékk leyfi til að rannsaka þau (aktadgang), en ekki til að birta þau. Það er tvennt ólíkt í dönskum skjalalögum.

Ýmislegt nýtt er komið út um Íslending í Noregi, sem er söguhetja í bók Ágústs. Maður þessi, Ólafur Pétursson, var valdur að dauða norðmanna og jafnvel fangelsun og fangabúðavist Íslendinga. Arnfinn Haga gaf árið 2007 út bókina Angiveren, sem fjallar um Ólaf, sem eftir "afrek" sín í Noregi, bjó á Íslandi og starfaði við endurskoðun. Væntanlega er það allt með í nýrri útgáfu Berlínarblúss. Bókin fjallar annars mest um Saklausa Sveitastráka, sem af ýmsum ástæðum urðu nasistar.

Mikið af villum var í fyrstu útgáfunni af Berlínarblús og hef ég hér á blogginu sýnt fram á nokkrar í tengslum við Jón Leifs og Halldór Laxness. En sá síðastnefndi var af einhverjum óskiljanlegum ástæðum með í bók Ágústs (þá líklega sem fórnarlamb) og Jón var nú ekki eiginlegur nasisti eins og maðurinn á forsíðu Bókarinnar. Ég skrifaði um það Berlínarboogie.

Þrátt fyrir galla er engin ástæða til að banna bókina, líkt og var í tísku í DDR og nú HÍ.  En sagnfræðingar verða þó að fylgja þeim reglum sem settar eru. Einnig í öðrum löndum. Þeim ber þó ekki að fylgja duttlungum einhverra prívatpersóna sem heimta lögbann.

Ekki er nóg með að bókaútgáfan Skrudda selji Berlínarblús með glóandi hakakrossi og undir ásjónu SS-liða. Útgáfan markaðssetur einnig skáldsögu Elíasar Snælands Jónssonar, Rúnagaldur, sem líka er mjög nasísk í allri hönnun.  

Heil jól lesendur góðir!

200_180

Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót...

Austurlanda Óli

Það er varla að maður hafi þurrkað bloggpennann vegna frétta af veruleikaflótta Ólafs Ragnars til Abu Dhabi, að maður verður að dýfa honum aftur í  stafrænt blek til að fárast yfir fyrirhugaðri ferð hans og fjölda hirðfífla til Indlandsí janúar, þangað sem hann fer til að taka á móti Nehru- verðlaunum fyrir frábærlega vel unnin störf. Ja, ekki fær hann lof á Íslandi, svo mikið er víst.

Ég efa þó að Ólafur Austurlandafari hafi unnið mikið og þarflegt verk fyrir hinar hungruðu sveitir Indlands. Indverjar þurfa meira ein gufu og orðin tóm. Ekki hefur hann leyst óhreina og erfðalausa úr ánauð. Ekki hefur hann bjargað andliti kvenna sem hafa verið afskræmd af sýru. Ekki hefur hann komið í veg fyrir að Indland er komið á barm borgarastyrjaldar og að yfirstéttin nærir með sér drauma um að verða herraþjóð heimsins með Kínverjum. Ekki hefur hann gert neitt sem breytir óréttlætinu og hræsninni sem ríkir nafni ímyndaðrar helgimyndar Mahatma Ghandis. Hvað hefur Ólafur forseti gert fyrir stærsta gettó heimsins, Indland? Þaðan sem þrælar eru keyptir til að byggja útópíuborgir kamelriddaranna sem forsetinn okkar heimsótti í síðustu viku í Arabí? Ólafur Ragnar getur ekki einu sinni verið eigin þjóð innan handar eða til gangs.

Er viðurkenning til Ólafs Ragnars á Indlandi virkilega þess virði, að hann þurfi að ferðast Indlands með hirð, meðan ekki eru til nægilegt fjármang til að reka spítala og dagheimili á Íslandi? Ætli einhverjum á Indlandi þætti það ekki áhugavert? Einn þriðji þeirra sér auðvitað aldrei spítala eða dagheimili og þeir eru svo þaulvanir óréttlæti, spillingu og ósiðlegu framferði heldrimanna í nafni lýðræðis að þeir deyja vegna þess. Kannski eru Óli og Össur að sækja hugmyndir á Indlandi til þess að hægt sé að byggja upp sem mest óréttlæti og ójöfnuð í vosbúðinni í nýrri verbúð ESB, þar sem menn borga leigusölum sínum Bretum og Hollendingum fyrir tilveruréttinn?

Aumingja Dorrit að eiga svona mann!

Viðbót: 

Forsetaritari fullvissar nú alla um að Indlandsferð Ólafs og Össurar muni ekki kosta íslenska skattgreiðendur svo mikið sem einn grænan eyri. Fátæklingarnir á Indlandi borga ferðina, upphald, dagpeninga allt. Lágt er lagst!

poverty_india
THANK YOU INDIA
for paying everything for
Ólafur Ragnar and Össur

Hann lifir í öðrum heimi en við

475590249

Ólafur á Bessastöðum mun ekki beita sér gegn Icesavefrumvarpinu eða hafna því. Þið megið bóka það. Ólafur er of upptekinn úti í heimi með prinsum, emírum og kamelum.

Það hefur vakið verðskuldaða athygli heimsbyggðarinnar að drómedaradraumar hans, um að Ísland yrði að Dubai norðursins og að Skúlagatan yrði sólarströnd alsælunnar, rættust fyrr en við mátti búast. Frú Dorrit glopraði nýlega út úr sér heitustu haremsdraumum manns sín. En Ólafur reyndist þó sannspárri en flestir. Ísland fór fyrr á hausinn en Dubai.

Hann er spámannlega vaxinn hann Ólafur, en aldrei verður hann spámaður í eigin landi ef hann stoppar ekki Icesave vitleysuna.  

AbbasGrimsson

 


Kona verður forseti

Vigdis-175x249

... en var það ástæðan fyrir því að Forlagið ákvað að "airbrusha" hana áttræða á kápumynd ævisögunnar.

Við höfum mismunandi álit á Viggu. Það batnar ekki né versnar úr þessu. Og ekki með mynd af konu sem greinilega neitar að verið sigruð af Elli kerlingu (og kannski er hún það ekki?). Kápumyndin gæti verið vísir að innihaldi bókarinnar, en vonandi er það ekki loftburstað og ofsniðið að aðstæðum.

Höfundur ævisögunnar Páll Valsson, fæddur 1960, fáeinum mánuðum yngri en ég og samferða í MH á sínum tíma, virðist eldri en söguhetjan (dæmið sjálf). Aldurinn og sagan fara misjafnlega með fólk.


Ari Jón stal peningunum mínum frá Skaupþingi

Bankabækur Arions

Við val á nafni á banka, ber að varast að nota nafn á grísku skáldi sem samdi drykkjuvísur. Það er ekki traustvekjandi. Þegar þekktasta afurðin á markaðinum sem ber heitið ARION er hundafóður, og nafnið er tengt lélegum hótelum í Eyjahafi, grunar mann hvað Arion Bank muni standa fyrir. 

Þegar menn gleyma, að ein tegund lindýra, skógarsniglar, ganga und heitinu Arion, er hugsanlega líka verið að senda út röng skilaboð. Morðsnigillin Arion Lucitanicus er nafni þessa nýja banka okkar. Arion Islandicus, er það sjálfsmorðssnigillinn?

Arion rufus
Arion veitir aðhald. Sigurður skógræktarstjóri brenndi sig illilega á því.

 

Tímarit um klassísk fræði í Bandaríkjunnum heitir líka Arion. Íslenska er vissulega einnig klassísk, en nokkrum dögum eftir Dag Tungunnar fæðist banki með nafnskrípið Arion.

Hvar er málagestapóið. Mannanafnanefnd bannar stúlkum á Íslandi að heita Aisha (Aisha var sú sex ára stúlka sem gefin var Múhammað spámanni). Spáið í það, hægt er að skíra banka Arion í Mammonskirkjunni.

Nú á ég tvo tóma reikninga í Arion. Kaupthing Banki, sem nú er dauður, var ekki að hafa fyrir því að senda mér tölvupóst um að hann myndi fæðast á ný sem Arion. Algjört Skaupþing.

In memoriam

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband