Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Aumingja (karl)maðurinn

Lektor Lucy HR
Karlmennskuspjall er hópur pungþungra karla í opinberu leynifélagi á Facebook. Þeir óttast mjög um hag sinn, því þeir hafa uppgötvað of seint að konur eru líka menn og að og fáeinar þeirra eru bara nokkuð klárar - þótt hægt sé að deila um allar hinar. Konan mín er t.d. klárari en ég, og þá er nú ekki mikið sagt.

Þessi hópur karla, í klípu og sálarkreppu í leynisellu á FB, hefur í mikilli leynd sagt sína skoðun á "veikara kyninu". Því kom þeim á óvart að einn í sniglavinafélaginu þeirra var hankaður í einstakri karlmennsku sinni og stóryrðum og rekinn af Háskóla í Reykjavík fyrir óvægileg orð um stúlkubörnin þar. Einhver laumukarl (kona) hafði nefnilega laumast inn á þessa harðlokuðu leynisellu spældra og önugra karla, Karlmennskuspjallið. Slík vinnubrögð sýna vitaskuld útsjónarsemi og lymskulegheit kvenna og jafnfram heimsku og afdalahátt karla í hinni endalausu baráttu kynjanna.

Nú er einn lögfræðinganna sem tókst að gera dæmda skáta úr morðingjum fenginn til að verja einn félagann í leynisamtökunum Karlmennskuspjall sem fór yfir strikið. Það sem sá reglubróðir gerði er náttúrulega miklu verra en nokkuð morð. 

Ég kenni í brjósti um karla sem telja konur vera vandamál fyrir sig. Vitaskuld er til nóg af vitavonlausum konum í mikilvægum stöðum sem karlar gegndu áður með mismunandi árangri. Málefnaleg gagnrýni á slíkar konur, sem minna á karla, á að vera leyfileg líkt og það er leyfilegt að karlar séu gagnrýndir fyrir léleg vinnubrögð. Konum leyfist hins vegar að halda sínum stöðum án þess að svara gagnrýninni, eða eru greindari en karlar því þær segja ekki neitt, svara ekki, halda kjafti. Karlar láta ávallt karlalega, en konurnar vita upp á sig skömmina, enda aldrei eins vissar í sinni sök (sakleysi) og karlar.

Ég hef alltaf haft einstaklega gaman af konum í þrívídd eða fleiri víddum, og konur með mikið í farteskinu (les heilabúinu) hafa heillað mig mest, sérstaklega ef ég skil þær ekki og þær skilja mig alls ekki.

Karlmenn skil ég hins vegar miklu verr en konur og þykja þeir flestir leiðinlegir, sjálfselskir, sjálfsuppteknir og sjálfhverfir. Takið orðið sjálf (sem fundið var upp af konu en stolið af karli) - og bætið hvaða orði sem er við - og það passar við karla.  Þeir eru með stór egó. Svo vel vill þó til að sjálfsöruggir menn með stór egó heilla flestar konur og þar með er mannkyninu við haldið, með öllum göllunum.

Ég er fyrir löngu búinn að gefast upp fyrir kvennaveldi framtíðarinnar, þar sem mikill friður mun ríkja á ströndinni í  heimshitanum. Ég fer brátt að heimta meiri virðingu af konu minni sem er útivinnandi, meðan að ég er heimavinnandi karl, kokkur, eldhúsrella, hreingerningamaður og málari svo fáeitt sé nefnt.  "Hann Vilhjálmur hélt svo fallegt heimili fyrir konuna sína" verður vonandi sagt um mig.

En ég þori bæði, get og vill - Og nú heimta ég heimshitnunarbætur.

Billedresultat for Freddie mercury cleaning gif

Efst er mynd af elsta femínistanum sem sérfræðingar hafa fundið. Hún er lagin við að troða sér alls staðar inn. Myndin mun hafa verið tekin á ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík í vor.


Nýskipaður sendiherra BNA á Íslandi er fyrrverandi umskurðalæknir

DrGunter

Ólíkindadýrið Trump hefur ráðið nýjan sendiherra BNA á Íslandi. Hann heitir Jeffrey Ross Gunter og er frá Kaliforníu. Sjá hér.

Gunter er húðlæknir en einnig gyðingur og hefur á fyrri árum starfað við að framkvæma umskurði. Nú fjarlægir hann mest vörtur og krabbaæxli sem hvítir menn fá í of mikilli sól.

Sumir segja að Trump sé óútreiknanlegur, en í þessu tilfelli læðist að mönnum sá grunur að val Trumps á sendiherranum hafi verið mjög ígrundað vegna þess að umskurðarbann var til umræðu á Íslandi. Það tel ég persónulega ólíklegt. Portkonur þær sem lélegi lögfræðingurinn Cohen borgaði, segir að Trump sé ekki umskorinn sjálfur og dýrki forhúð sína. Ég trúi því að hæfileikar Cohens i fjarlægingu kýla muni brátt koma í ljós.

Áður en Gunter missir sólbrúnkuna í Reykjavík, legg ég til að Dr. Gunter fjarlægi vörtuna sem vex umhverfis rassgatið á forsetanum  í Washington. Í Reykjavík getur hann fjarlægt brúna blettinn á nefi þeirra Íslendinga sem ekki halda vatni yfir Trump og dýrlegheitum hans.

Vinur minn einn í Los Angeles sem er heilaskurðlæknir, skrifaði mér:

Gunter is the only dermatologist in the US who doesn´t think Trump is a wart.


Mótmæli til Lettlands

Ráðherrarnir

Til að mótmæla dýrkun á nasistum og gyðingahöturum sem færst hefur mjög í vöxt í Eystrasaltsríkjum, hef ég ritað utanríkisráðherra Lettlands bréf, sem ég hef sent sendiráði Lettlands á Íslandi (sem hefur aðsetur í Osló) og beðið um að erindi mínu verði komið til Riga.

Hér efst sjáið þið Utanríkisráðherra Lettlands með utanríkisráðherra Íslands er sá síðastnefndi leiddi þing Eystrasaltsráðsins á júní 2017 í Hörpunni:  Þar sem Ísland er með í Eystrasalsráðinu, ásamt löndum sem leyfa árlegar göngur nasista, tel ég mig til neyddan til að mótmæla og vona að lesendur mínir geri það einnig. Hægt er að senda mótmæli sín til lettneska sendiráðsins í Osló: embassy.norway@mfa.gov.lv. Þið megið nota mín mótmæli óbreytt, en setið ykkar nafn undir. Til að lesa ykkur til um hvernig Eystrasaltsríki leyfa göngur nasista og fólks sem afneitar helförinni getið þið lesið ykkur til á þessari síðu.

 

Dear Ambassador of Latvia to Iceland, H. E. Judite Dobele

Is it “the new normal” for Latvia´s foreign minister Edgars Rinkevics - a foreign minister in a EU and NATO member  state - to publicly recommend for high honours a book that spews anti-Semitism and expresses “understanding” for various aspects of the genocide that all but wiped out Latvia´s Jewish  community?

Mr. Edgars Rinkevics has recommend a new book on a pre war Latvian diplomat, Ludwig Seya.  Please read here information for the reason for my question : http://defendinghistory.com/did-latvias-foreign-minister-just-honor-a-nazi-cheerleader-and-proven-antisemite/93928.

I certainly do not hope the recommendation of your countries foreign minister of a book that honours the ugliest form of anti-Semitism is the normal in Latvia. Annual Nazi marches in Latvia´s major cities in later years, where Latvian Nazi collaborators are praised as heroes is enough an insult to citizens of countries that supported Latvian independence in 1991. 

As an Icelandic citizen, a citizen of a nations who supported Latvia´s freedom in 1991, I see Latvia´s foreign ministers praise of a book on a an Latvian anti-Semite as an strange attack on democracy and minorities.  It is an act, which I hope the EU will soon realise is much too common in you good country. An anomaly which I think the Latvians could very well live without. When I supported your independence in 1992. I didn´t expect  free Latvia´s politicians to praise anti-Semites who since 1998 gather in huge annual marches in major cities, and where former Latvian Waffen-SS members,  neo-Nazis and other extremist, who praise murders of Jews and racism, gather on the main streets of Riga. I didn´t support such a state in 1991!

Dear  Ms. Ambassador, please forward these views and my question to your foreign minister in Riga. I hope he will respond to my question. My views will also be published on different websites, where I will publish the response of Mr. Edgars Rinkevics if I receive one.

Yours Sincerely,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
An Icelandic citizen living in the EU

JBH til Janis Jurkans


100 % kvennaþing takk eða Alþingislás

Alþingislás

Hörmulegar eru þessar lýsingar. Halda mætti að besefinn á stórum hluta íslenskra karla sé alltaf úti að kíkja eða fastur í rennilásnum. Þeir eru gramsandi á hvaða konu sem er, en helst ekki sinni fallegu eiginkonu.

Ég hafði aldrei ímyndað mér að stjórnmál gætu gert karla svona óskaplega graða og vitstola og að greðjan væri aladrifkrafturinn í pólitík. Getur hugsast að einhverjar konur hafi hagað sér á sama hátt? T.d. ráðherrar sem héldu framhjá á fundum erlendis? Varla.

Þetta vandamál er auðvitað ekki aðeins til á Íslandi, sem vitaskuld afsakar ekki nokkurn skapaðan hlut. Karlar hafa alltað notað kyn sitt og fallþunga til að halda konum niðri.

Ekki eru þetta eintómir órar í konunum? - fjandakornið nei!

Dagpeningarnir á vinnufundum hins opinbera virðast fara í drykkju, kynsvall og alls kynsofbeldi. Maður hugsar með hryllingi til þeirra kvenna sem létu undan hinu opinberu kynæði.

Orð eins og drekka, fullur, brjóst og klof virðist vera það sem konurnar sem skrifa minningar sínar úr stjórnsýslu muna best frá fundum og starfi sínu.

Er nema von að allt hafi farið á hausinn á Íslandi? Stjórnlaus typpi eru ekki vænleg til árangurs.

Lausnin er Alþingislásinn, sjá ofar. Hann fæst aðeins í small og extra-small, sem smellpassar á íslenska stjórnmálamenn, forstjóra, yfirmenn og aðrar karlrembur. Setjið Lilla undir lás og slá.


mbl.is Sagðist bara þurfa að fá að ríða henni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir úr skordýrabúi

Skarni leikur listir sinar

Eftir að fráfarandi skordýrafræðingur Pírata, sem er hin versta eiturpadda, greindi skordýraflóru íslenskra stjórnmála, vakti það furðu mína að skordýralæknir einn, sem er mikil og feit fiskifluga samkvæmt eiturpöddunni,  hafi boðið býflugum (S), mýflugum (P) og maurum (V) út í sveit. Kakkalakkar (D), Hrossaflugur (M), Drekaflugur (?) og Dægurflugur (Svört fortíð) voru ekki velkomnar að skordýrabúinu Stóru-Langloku á Hrunamannaafrétti - einhvers staðar fyrir austan fjall.

Eins og lengi hefur verið vitað í fornvistfræði, eru fiskiflugur, sem buðu í partíið, gleiðopnar í báða enda og bjóða stundum býflugum, mýflugum og maurum að leggja egg í afturendann á sér. Vel fór á með smádýrunum og voru allir þreifiarmar á fullu. Stóra geitungabúið í Evrópu (VESPA) var rætt lítillega og suðuðu býflugurnar vægt um að komast þangað inn.

Svo vildi til að ein býflugan, hunangslaus að öllu leyti, bar með sér tíkarþef að Norðan að skordýrabúinu. Þetta uppgötvaði hundurinn á bænum, Skarni Vænstan, og lagðist strax á fót býflugunnar og reið honum kátt. Þetta hátterni hundarins fór fyrir brjóstin á maurunum og mýflugunum sem reyndu að stilla Skarna með því að kalla hastarlega að honum: Ussu svei, Weinstein

Haft er eftir öðrum sérfræðingum að MacSkýto byssufluga hafi verið heppinn, þar sem Skarni, sem er fyrrverandi eiturlyfjahundur, hafi ekki fundið á honum róandi töflur.

Haft er eftir Kötu brosmaur, að ekki sé svo mikill munur á fiskiflugum og maurum; Öll sé óværan ættuð úr sveitinni úr mykjuhaug eða gömlu, votu heyi.

Greinilega var þetta skordýraþing vel lukkað fyrir utan aðfarir Skarna, sem hefur greyið fengið svo gott pólitískt uppeldi að hann sýnir strax vilja eigenda sinna í einu og öllu, slefandi og glaður. Sérfræðingar telja sig hins vegar sjá mjög glögglega, að Skarni fór fyrst að sýna atlot að býflugunni þegar hún fór að minnast á evrópska geitungabúið. 

Það verður aftur suðað í Hrunahrepp á morgun, þegar afstaða Íslands í utanríkismálum (þ.e. til Ísraelsríkis og Palestínumanna verður rædd). Búist er við mikilli samstöðu. Ef eitthvað sameinar fyrrnefnd skordýr er það hatur þeirra á gyðingum. Leitt að hrossaflugurnar gætu ekki verið með.

Vinnumaurar og fiskiflugur munu örugglega hrifla saman heyi, hestaskít og kúadellu og kalla það ríkisstjórn.


Rauð ýsa er kosningarspá í boði náttúrunnar

Rýsa

Rauða ýsan sem landað var á Skagaströnd er sending og fyrirboði guðanna til Íslendinga um það sem koma skal í pólitík. Nú er það rautt maður - og sala landsins til ESB gæti verið yfirvofandi.

Trúðafiskarnir í Bjartri Framtíð, furðufiskarnir í Pírötum og hvalirnir í Viðreisn eiga sér ekki von. Bláhvalurinn er orðinn að náhveli og rekinn rotinn í land. Nú draga menn rauðar ýsur sem vilja á markað í Brussellu.

Ýsan er rauð okkur til aðvörunar. Því ef að Íslendingar selja sig í ESB, hverfur allur fiskur af Íslandsmiðum ofan í ofurgráðugar þjóðir ESB, sem sjálfar eru búnar að eyða og útrýma fiskistofnum sínum.

Hlustið á náttúruna. Ferðamenn og flóttamenn koma aldrei í stað freðfisks og rauð ýsa er aðeins afar sjaldgæft rannsóknarfyrirbæri.


mbl.is Óvenjulegri ýsu landað á Skagaströnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndaregistur Sólrúnar

Einræðisfruin

Ingibjörg Sólrún er algjörlega óhæf manneskja í stöðuna hjá OSCE (ÖSE). Hvaða brestur er það eiginlega í íslensku þjóðinni sem fær hana (réttara sagt yfirvöld hennar) til að verðlauna óhæft fólk og skussa?

Ingibjörg Sólrún er konan sem leitaði til Assads eftir stuðningi þegar hún vildi koma Íslandi í Öryggisráðið. Ætlunin var að gera Ísland að verkfæri Palestínuöfgamanna. Þegar stuðningur einræðisherra og fanta var ekki viss bakaði hún pönnsur í New York. Hún var með lélega uppskrift eða fúlegg. Sjá hér og hér.

assadasaassadcanbe

Ræðum Osama bin Laden var frestað á Al Jazeera þegar Sólrún heimsótti Egyptaland árið 2008.

post-5051-1113458248

Haldið var upp það með hjólbörum af kampavíni er Ingibjörg Sólrún varð 50 ára. En hver keypti kampavínið? Það voru víst aðeins hjólbörurnar sem greiddar voru af íslenskum skattgreiðenda. Eitt sinn var danskur ráðherra rekinn, því honum (ritara hans) varð það á að láta ráðuneyti greiða fyrir einn vindlakassa.

Ingibjörg Sólrún er konan sem sagði að efnahagurinn á Íslandi væri í fínu lagi – rétt fyrir hrun.

happy_old_days

Ingibjörg Sólrún er konan sem studdi stríðsglæpamanninn Eðvald Hinriksson og ásakaði Ísraelsríki fyrir að standa á bak við tilraunir Simon Wiesenthal Stofnunarinnar í Jerúsalem til að fá íslensk yfirvöld til að rannsaka mál Eðvalds Hinrikssonar (Miksons), sem Eistlendingar hafa nú lýst yfir að hafi verið stríðglæpamaður. Alltaf jafn vís hún Sólrún. Meira hér.

Ingibjörg Sólrún er líka ein af þeim þóttafullu íslensku stjórnmálamönnum sem ekki vildi hitta Shimon Peres þegar hann kom til Íslands. Sjón er sögu ríkari. Sólrún er nasistasleikja og verndari stríðsglæpamanna. Síðar var hún hrjáð að alvarlegu minnistapi - eða er hún bara tækifærissinni?

Imba

Ingibjörg Sólrún hefur sent milljónir króna til Hamas. Geri aðrir betur.

Abba et Imba

Ingibjörg Sólrún ritaði hálfsturlað bréf til Tzipi Livni og ásakaði Ísraelsríki fyrir það sem Palestínumenn aðhafast. Annað pólitískt viðrini hefur leikið sama leikinn (sjá hér). Líklegast er of snemmt að koma honum í embætti erlendis. Menn muna hann enn.

Munið þið þegar Sólrún vildi verða mannsalsfulltrúi ÖSE? Hér er smáupplýsing handa þjóð með Alzheimer.

Munið að Sólrún er ein þeirra kvenna á Íslandi sem hefur liðist það að stunda einræðisherratakta. Er það eitthvað sem við viljum?

Í hlutverki friðardúfunnar sem opinskátt styður PLO og Hamas er Sólrún eins og reitt illfygli. Greinilegt er að ÖSE hefur ekki unnið heimavinnuna sína, enda gólfið þar fullt af sams konar lukkuriddurum, sem kenna í brjósti um hryðjuverkamenn og líkja þolendum nasisma við nasista.

fri_ardufan2_1008182

Friðardans Sólrúnar er krampakenndur og mun það verða ljóst er hún hefur störf hjá OECD.


Aldrei aftur Sigmund Davíð!

anna-sigurlaug-pa_769_lsdo_769_ttir-740x400.jpg

Þessi moðsuða Moggamannsins Stefáns E. Stefánssonar er fyrir neðan allar hellur.

Thorvaldsensfélagið hvað...? Hún amma mín var einnig í Torvaldsensfélaginu og "stóð vaktina" þar árum saman. En hvað kemur það gamla góðgerðarfélag málinu við, þegar maður þessarar konu, sem var forsætisráðherra, sagði öllum að velja íslenskt því krónan væri góð, meðan þau hjónin földu evrurnar sínar og annan gjaldeyri á pálmaeyju?

Svo kenndi maðurinn hennar gyðingnum Soros um allt heila klabbið hér um daginn. Af hverju dregur hún Thorvaldsensfélagið, stofnað í nafni frænda míns Thorvaldsens, hið gamla góða félag hennar ömmu minnar og Thorvaldsensbazarinn inn í þennan skítabisness sinn ?

Eru Framsóknarburstar á Morgunblaðinu að reyna að hreinsa Sigmund Davíð með vítissóta fyrir kosningar? ER ÞAÐ YFIRLEITT HÆGT? Viljum við mann sem kennir gyðingum um fjármálaóreiðu sína í embætti forsætisráðherra Íslands????  Vitaskuld ekki. Það er örugglega nóg til af góðu fólki í Framsókn sem ekki þarf að skera í tilfallandi gyðinga til að ná athygli flokksmanna sinna.

Guð hjálpi okkur ef allur flokkurinn er á sömu skoðun. Þá hefur ekki mikið breyst síðan á 4. áratug síðustu aldar. Flokkurinn verður að losa sig við meinið.


mbl.is Staðreyndirnar virtust litlu skipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

... þótt fyrr hefði verið

143630_xtremecoleections_2015-06-10t130712z_2027441714_gf10000122808_rtrmadp_3_greece-distomo.jpg

Þjóðverjar skulda ekki bara Grikkjum. Vestur-Þjóðverjar gerðu afar lítið til að leita að og lögsækja stríðglæpamenn eftir síðari heimsstyrjöld. Dómar böðla voru styttir og menn sem myrt höfðu tugi þúsunda gyðinga og annarra lifðu til æviloka í lystisemdum. Það er fyrst nú, á síðustu mánuðum lífs sumra böðlanna, að farið er að skoða mál morðingjanna. Hingað til hafa þeir verið hylltir á sama hátt og Hitler af Þjóðverjum, annað hvort með þögninni, en oftast ljóst og opinberlega.

Í bókinni Das Amt, sem út kom fyrir nokkrum árum má lesa hvernig skítseyði úr nasistakerfinu byggðu upp Utanríkisþjónustu Vestur-Þýskalands sem gerði allt til að komast hjá því að finna og lögsækja menn eins og t.d. Adolf Eichmann.

Það sem menn vita kannski ekki er að fasistar og kommúnistahatarar í BNA gerðu þetta kleyft. Stjórnvöld í BNA ákváðu að Þjóðverjar með rófuna á milla fótanna yrðu besti og tryggasti samstarfsaðilinn í Evrópu. Þýskaland varð kjölturakki BNA. Þar skýrir saga NATÓ í hnotskurn. Furstar ESB upplifðu efnahagsundur og framgang vegna þess að þeir tóku aldrei afleiðingum gerða sinna! Vinna og elja Þjóðverja er mýta. Íbúar morðveldisins voru bornir á gullstólum til ríkidóms sem þeir stálu af öðrum.

Íslendingum ber siðferðileg skylda til að styðja kröfur Grikkja um bætur frá Þýskalandi. Þýskalandsslepja margra Íslendinga er óholl og nærri því sjúkleg. Grikkland er ein af vöggum menningar okkar, það er Þýskaland ekki. Þýskaland var hins vegar svínstrog öfga sem nær eyðilögðu menninguna - og nærri því heilu þjóðirnar með.

nazi.jpg

Lágmenning Evrópu fyrir 70 árum síðan á rústum menningar sem færði okkur ljós. Í dag er fólk, t.d. á Íslandi, farið að eltast við dauðamenningu Íslams á sama hátt og feður þeirra gældu við nasismann. Það kennir meira að segja sama fólkinu um "ófarir" sínar og heimsins. Sjálfeyðingarhvöt sumra Evruþjóða er skiljanleg í ljósi þess hlutverks sem þær léku á 20. öld við að eyðileggja Evrópu og í morðum á 6. milljónum gyðinga - sem og við nauðgunina á löndum eins og Grikklandi.


mbl.is Vilja stríðsskaðabætur frá Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband