6.3.2010 | 19:26
Kýs ekki, en safnar skeggi
2.3.2010 | 11:01
Träumeland the play
was staged in Hamburg last Sunday. Then a little prince from the land of dreams on the blue planet received a German tooth gift, Zahngeld *, not to be mixed up with Zahngold, which still seems to be in high demand among some Germanic tribes .
*[Tannfé; From the Norse lit. and mythol.: Tooth gifts was given to children, when they lost their first tooth].
Last Sunday, precisely at eleven o'clock AM, Andri Snær Magnason of Iceland was honoured with the KAIROS Prize, which the Toepfer Foundation in Hamburg presents to intelligent people. The presentation took place in the Deutsches Schauspielhaus in Hamburg and various acompaqneurs from the Dreamland joined Magnason to make his day more memorable.
Alfred Toepfer, whose name this foundation in Hamburg uses, was a fervent nazi, and his story is rather ugly. Toepfer disinfected his own legacy with handing out money to the arts and culture. Earlier, I have told the story of Alfred Toepfer here on my blog, when it was first announced in December 2009 that Andri Snær Magnason had received the Kairos award. See here and here.
Toepfers blood money is clearly a lucky strike for the young Icelandic author, who wants to keep the image of Iceland clean and beautiful. However, the story of the money which Andri Magnason receives is ugly and blood driven. Maybe not every euro or cent of it, but there is a stain on this prize, which cannot be washed off with a German magic soap that contains a handful of some toxic ultra from the wonderland of the soap commercials.
Here you can read a communiqué by French historian Gérard Loiseaux, who is an ardent critic of the Toepfer Stiftung in Hamburg. Dr. Loiseaux sent this communiqué to the Icelandic media. Did they bother print it, or has Le petit Prince of Icelandic literature reached the same level as Nobel laurate Halldór Laxness?
Late last year, Andri Snær tried to get the coordinators of blog.is (the blogosphere attaché to the Icelandic daily Morgunblaðiðd) to restrict my discussion about his prize. I received a warning because he argued that I had used his portrait without a permission. It turned out that Andri wasn't the copyright holder of the photograph, although he had sent it to the Toepfer Stiftung in Hamburg, which published it without the permission of the photographer. Toepfer Stiftung remover the image of Magnason, when they learned this. Since then, I dare not publish images of prophets or phony gurus, but doesn't the boy in the picture above resemble Andri Snær Magnason, just a little bit?
I had hoped Magnason would reject the award in Hamburg, keeping in mind that some money actually smells, and instead remember the victims of Nazism in an appropriate way. That would have been much more in line with his dreams and ideals, or does it not matter where the "sweets" come from?
It is clear that Andri Snær aims far in his dreams when he is quoted saying:
"Yes, it certainly makes a difference. The award comes at a good time for me as an artist: not too soon, not too late! It's good for artists to receive such awards when they need them. The Nobel Prize for Literature, for instance, is rarely awarded to writers until their old age."
The Nobel Prize? Well... how about thinking about the lives of those who were the victims of the killing machine, which Toepfer was a part off, now when Magnason has received the next best thing after the Nobel Prize?
Since Andri Snær Magnason accepted the Kairos Prize in Hamburg, I am sending him three extra gifts, which are definitely not Gold, Francinsence and Myrrh. Criticizing an upcoming icon in Iceland definitely also excludes me as a wise man. That is a small problem compared with the sufferrings you can all see in the three small film fragments 1, 2, and 3 surviving from hell, where one can see what the Utopia of Alfred Toepfer once brought us.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2010 | 21:01
Leikritið Träumeland
verður leikið á morgun. Þá fær litli prinsinn í draumlandinu á bláu plánetunni afhent þýskt tannfé á stórri senu í Hamborg.
Á morgun kl. 11, pünktlich, verður Andri Snær Magnason heiðraður með KAIROS-verðlaununum, sem Toepfer stofnunin í Hamborg veitir vel gefnu fólki. Afhendingin á sér stað í Deutsches Schauspielhaus í Hamborg og eru ýmsir undirleikarar með frá Draumalandinu.
Toepfer sá, sem gjafmilda stofnunin er kennd við, var hins vegar hið versta fól og argur nasisti, og saga hans er ljót. Minningu sína sótthreinsaði karlinn með peningagjöfum. Ég hef sagt sögu Toepfers hér á blogginu mínu, þegar það var fyrst tilkynnt í desember sl., að Andri Snær fengi verðlaunin. Sjá hér og hér.
Blóðpeningar Toepfers eru greinilega happafengur fyrir rithöfund sem vill halda ímynd Íslands hreinni og fallegri. En peningarnir sem Andri þiggur eiga sér bæði ljóta og blóði drifna sögu. Kannski ekki hvert einasta Evra, en það er blettur á þessum verðlaunum, sem ekki verður þveginn af með þýskri undrasápu sem inniheldur handfylli af einhverju eitruðu ultra úr töfralandi sápuauglýsinganna.
Hér getið þið lesið greinargerð eftir franskan sagnfræðing, Gérard Loiseaux, sem lengi hefur deilt á Toepfer Stiftung í Hamborg. Hann sendi þessa greinargerð til íslenskra fjölmiðla. Eru þeir að birta hana, eða er Andri, Le petit Prince, kominn á sama stig og Laxness?
Andri Snær reyndi að fá blog.is til að banna umfjöllun mína um verðlaunin og mér var send aðvörun vegna þess að hann hélt því fram að ég ég mætti ekki nota ljósmynd af sér (Múhameð-heilkenni?). Í ljós kom, að Andri átti bara alls ekki upphafsréttinn að ljósmyndinni, en hafði samt sent hana til Toepfer stofnunarinnar í Hamborg sem birti hana án leyfis ljósmyndarans. Þeir fjarlægðu myndina eins og ég, þegar þeir fréttu þetta. Ég þori ekki að birta myndir af spámönnum og gervigúrúum, en er drengurinn á myndinni hér að ofan ekki líkur Andra?
Ég vona að Andri Snær Magnason afþakki verðlaunin í Hamborg á morgun og minnist í staðinn fórnarlamba nasismans á tilheyrandi hátt. Það yrði miklu meira í samræmi við drauma hans og hugsjónir, leyfi ég mér að halda, eða er sama hvaðan "gottið" kemur?
Það er greinilegt að Andri Snær stefnir langt í draumum sínum:
Nóbelsverðlaunin? Tjah..., hvað með að hugsa um líf þeirra sem urðu drápsvélinni, sem Toepfer var hluti af og græddi á, að bráð, nú þegar maður er búinn að fá næstbesta styrkinn á eftir Nóbelnum?
Menning og listir | Breytt 1.3.2010 kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.2.2010 | 08:16
RÚV - lygar á færibandi
Nokkrir starfsmenn RÚV, sem ekki voru hraktir af spenanum nýlega, eiga virkilega bágt. Fölsun og afbökun á fréttum frá Miðausturlöndum hef ég oft fjallað um áður, og er það iðulega oftast RÚV sem á hlut að máli.
Nú brillerar RÚV aftur. Í gær var RÚV með frétt um að 26 væru í haldi í Dubai, grunaðir um að hafa orðið Mahmoud al-Mahbouh, einum að herstjórum Hamas-samtakanna palestínsku að bana". En þessi frétt RÚV er auðvitað ein löng vitleysa.
Enginn er í haldi út af þessu máli í Dubai, nema líklega einhverjir Palestínumenn sem áttu eitthvað sökótt við hinn snoppufríða Mahmoud, sem sjálfur var með 7 vegabréf á sér þegar hann andaðist. Enginn þeirra, sem eru á lista yfir 26 grunaða sem eyðimerkurleyniþjónustan í Dúbai er að leita að, eru í haldi í Dubai. Snoppufríða, segi ég. Mahmoud, sem líklega pakkaði konu sína heima í Damaskus inn í 200 metra af vaðmáli þar til nefið eitt stóð út um rifu, fór nýlega í fegrunaraðgerð þar sem hann lét mjókka á sér nefið. Kannski kæfði það hann?
Kunna menn ekki að lesa á fréttastofu RÚV, eða er óskhyggjan gengin í samvinnu við þráhyggjuna þegar að fréttaflutningi um Ísrael kemur?
Hér má finna fyrri færslur mínar um afbrigðilegan fréttaflutning RÚV: Sjá hér, hér, hér og hér, hér og hér og hér og hér.
Ég bíð enn eftir svari frá Stjórn RÚV við fyrirspurnum í síðustu færslunni. Mér er sagt að hún verði tekin fyrir bráðlega. Það er ekki einu sinni svo, að RÚV sé að lepja upp rugl eftir BBC eða The Guardian, heldur eru menn þar á bæ farnir að framleiða lygarnar sjálfir. Íslensk framleiðsla.
25.2.2010 | 21:08
Meðaumkvunardráttur
Mikil ósköp, ESB leyfir Íslandi uppáferð með skilyrðum! Auðvitað verður hinn lini íslenski ESB-limur að losa sig við hættulegasta vandamálið á Íslandi, Bandasamtökin. Bændasamtökin eru eins og meinleg blæðandi varta, sem hreinlega gæti orðið ESB að falli, innan frá. Icesave glæpagengi og Eurostyle-bankamenn virðast ekki valda ESB áhyggjum, en uppáferðinni fylgir reyndar líka rausnarleg tilboð um ódýr lán til að borga skuldir með. ESB veit greinilega hverju sumir Íslendingar eru veikir fyrir og hagar sér eins og einhver pusher sem lokkar fíkil, sem vill ólmur komast í ólifnaðinn sem ríkti fyrir kreppu.
Hins vegar hefur ESB greinilega ekki hugmynd um að á Íslandi þrífst flóra stjórnmálamanna í ýmsum stjórnmálahreyfingum, sem styður hryðjuverkasamtök leynt og ljóst og það samtök sem eru á lista ESB yfir hryðjuverkasamtök sem ESB ríki hafa skuldbundið sig til að berjast gegn. Ætlar ESB að leyfa íslenskum hryðjuverkaaðdáendum uppáferðir?
En ekkert er eins og áður var. ESB bjóst við því að Íslendingarnir með pottana, pönnurnar og geðveikisglampann í augunum, sem þeir höfðu séð á BBC, hlypu út á götur borga og bæja til að fagna boðskap þeim sem var látinn út ganga frá Brussell um að íslenska þjóðin mætti ganga í eina sæng með ESB, ef hún afsalaði sér fiskveiðistefnu og öðrum óþarfa gæðum. Pottálfarnir virðast greinilega allir hafa verið úr VG eða af Kleppi, því þeir hlaupa ekki um göturnar nú og fagna boðskapnum frá Brussell með áhöldum sínum. En hverjir gera það? Líkast til ekki aðrir en siðlausir stjórnmálamenn og eitthvað lið sem sér flóttaleið úr undralandi bankadellunnar, sem þeir strönduðu andlega í, yfir í fagran heim ESB, sem þeir ímynda sér að muni redda öllu.
Það eru engar billegar lausnir á vandamálum Íslands. ESB er því ekki góð lausn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2010 | 20:23
Enn um minnisblað sendifulltrúans
Það er óheyrt, að ráðherra í siðmenntuðu landi fari með sorakjaft og dónaskap um starfsmann utanríkisþjónustu annars vinveitts ríkis. Við slíku mætti vitaskuld búast af Hugo Chavez, Ghadaffi eða af böðlastjórninni í Íran. Nú er Össur Skarphéðinsson kominn í sama flokk og þess konar pótintátar með yfirlýsingum sínum um minnisblað sendifulltrúa bandaríska sendiráðsins á Íslandi, Sams Watsons.
Hegðunarmynstur Össurar ætti að kynna fyrir umheiminum.
Býst þjóðin, sem kaus Össur og Co. yfir sig, við því, að það þjóni einhverjum tilgangi að reyna að telja fólki trú um að einn maður í bandaríska sendiráðinu hafi uppdiktað og afskræmt allt sem sendisveinar Össurar sögðu á fundum með bandarískum yfirvöldum?
Össur heldur því fram að minnisblaðið sé ónákvæmt og er búinn að fá atvinnumann í Kanahatri, sjálfan Ögmund Jónasson, til að halda því fram að sendifulltrúinn fái ekki Nóbelsverðlaun í sagnræði". Ætli þetta auki samúð Bandaríkjanna með Íslendingum? Var Ögmundur kannski líka með í bandaríska sendiráðinu, fyrst hann getur staðhæft slíkt?
Sagnfræðingar vita flestir, að minnisblöð sendiráða eru oft nákvæmasta heimildin um það sem gerist í löndum þar sem allt er á öðrum endanum. Og allir vita, af hverju sagnfræðingum er ekki hyglt með Nóbelsverðlaunum. Norðurlandaþjóðirnar þola ekki sannindi í of stórum skömmtum.
Ef tekið er tillit til afrekaskrár Össurar Skarphéðinssonar, og þeirrar ósannsögli sem hann hefur svo oft verið tekinn í, þá veðja ég á Sam Watson. Diplómatar eru ekki stjórnmálamenn (nema á Íslandi og í öðrum álíka vanþróuðum ríkjum). Sam Watson hefur greint málefnalega og hlutlaust frá, eins og atvinnudiplómötum er kennt. Hvernig getur honum, Suðurríkjamanni af gyðingaættum verið akkur í því að umturna því sem sendisveinar Össurar sögðu? Ég treysti bandarískum diplómat betur en Össuri Skarphéðinssyni, og lái mér það hver sem vill.
Hegðun Össurar og ríkisstjórnar hans er farin að teljast til þess sem ég flokka sem despótisma. Þessar yfirlýsingar hans um sendifulltrúa Bandaríkjanna eru örþrifayfirlýsingar frá manni, sem brátt er allur í stjórnmálum.
En segjum þó ekki að Bandaríkin séu orðin algjörlega fráhverf litla landinu í Norðri. Þau láku að minnsta kosti þessu plaggi og vonandi koma fleiri ritaðar heimildir upp á yfirborðið um frumstæða framkomu siðlausra, íslenskra stjórmálamanna. Við verðum að vona að Bandaríkjastjórn eða aðrir dæmi ekki alla þjóðina út frá þessum fáum mönnum, líkt og sumir vilja varpa sök hrunsins yfir á herðar allra Íslendinga. Það verður hlutverk sagnfræðinganna, en ekki Össurar og Ögmundar að segja þá sögu sannasta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.2.2010 | 08:33
Stjórn særingameistara, lygamarða og rógbera
Í engu siðmenntuðu og þróuðu landi myndi ríkisstjórn sitja áfram, eftir að í ljós kemur að utanríkisþjónustan með blessun ríkisstjórnarinnar, lýsir þjóð sinni sem fíflum sem viti ekki hvað þeir gera við útsendara annars lands, og í þessu tilfelli voldugasta lands í heimi.
Í engu siðmenntuðu ríki myndi ríkisstjórn mæta í vinnunna með bros á vör, daginn eftir að slíkt kemur fram, og láta sem ekkert hefði gerst. Slík stjórn hlýtur að hafa gott hreðjatak á stjórnarandstöðu sinni.
Utanríkisráðherra, sem segist vera særingameistari sem var að særa fram samúð voldugustu þjóðar heims, fyrirfinnast ekki í þróuðum ríkjum, nema ef til vill á Ítalíu. Er siðferðið á Íslandi orðið eins og á Ítalíu? Eru menn farnir að nota vúdú og svartagaldur til að særa fram meðaumkvun BNA? Meira að segja vanþróuðustu lönd Afríku, sem Standard og Poors eru að skipa okkur í sveit með, eru fyrir löngu hætt að notast við særingameistara í stjórnsýslu sinni.
Í engu siðmenntuðu ríki þurfa menn að horfa upp á gamalreyndan sendiherra fara með ósóma um þjóðhöfðingja lands síns á vegum ráðuneytis síns, án þess að það hefði afleiðingar fyrir stjórn landsins. Eru fleiri ólíkindatól eins og þessi sendiherra í þjónustu lands síns? Það kemur í ljós.
Það er ekki nema að von að BNA eða Sam Wasserman erindreki í bandaríska sendiráðinu hafi lekið þessu bréfi. BNA kennir greinilega í brjósti um Íslensku þjóðina að hafa slíka vitleysinga yfir sér. BNA er búið að sjá, að á Íslandi er lýðræðið á völtum fótum og að þar stjórna trúðar sem eru hlekkjaði í sína blóðrauðu fortíð, þegar þeir trúðu á vopnaða byltingu og uppreisn öreigalýðs. Núna ljúga þeir að lýðnum og rægja hann við Uncle Sam. Er Ísland siðmenntað land?
- Já, en ríkisstjórnin sem situr er afar vafasöm og hið versta ólíkindatól, og eiginlega óstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2010 | 10:45
Maður kafnar á falaffelsamloku í Dubai
Dubai er griðastaður glæpahyskis. Ég skil ekki af hverju forseta íslenska lýðveldisins og fyrrverandi klyfjahesti hans og særingameistarans, Össuri utan Ríkis, þyki spennandi að heimsækja Dubai. Forsetafrúin sá á ákveðnu tímabili fyrir sér Dubai Norðursins á Íslandi, þegar hún var ekki að skammast út í öryggisgæsluna í Ísrael, sem tók bara ekkert tillit til þess að hún segðist vera First Lady of Iceland.
Ég er hins vegar á því, að Dubai sé ekkert annað en bölvað ræningjabæli, þar sem vopnasalar hafa aðsetur og eiga viðskipti við eftirlýsta hryðjuverkamenn. Einn þeirra var Hamas-leiðtoginn sem haldið er fram að hafi verið kæfður í Dubai um daginn. Dubai er einnig staðurinn, þar sem stórar fjárhæðir Íslenskra prangara hafa verið á ferðinni á síðustu árum. Hver er að rannsaka þau viðskipti?
Heimurinn, sem hatar Ísrael, og auðvitað gamli fréttamaðurinn og skrímslafræðingurinn Þorvaldur á fréttastofu RÚV, er að farast vegna þess að meintir Mossad-liðar fóru til Dubai á fölskum vegabréfum og drápu Hamas-leiðtoga frá Al Quassam sveitunum, Mahmoud al-Mabhouh, sem var að kaupa vopn. Hann var að sögn kæfður með púða á lúxusherbergi sínu í Dubai, sem verður að teljast frekar friðsamleg endalok fyrir mann sem í öðru hvoru orði boðaði dauða og hefnd. Í fyrra tók Al Jazeera viðtal við þennan sakleysingja í Damaskus, þar sem hann sagði m.a.: I am very cautious, thank God. Eventually, only God determines when our lives end. We know the price to going on this path. Vonandi var það vilji Allah sem framfylgt var á hótelinu í Dúbai, þegar Mahmoud kafnaði í falaffelsamloku sinni, var kæfður eða dó úr reiðarslagi með rússneskri vændiskonu inni á herbergi sínu. Einu sinni voru Ísraelar að sækja fjöldamorðingja til Argentínu og út um allar jarðir. Er ekki betra að stoppa þá áður en þeir fremja fjöldamorðin?
Af hverju fagna menn því ekki, að enn einn kaupmaður dauðans er fallinn í valinn? Þetta var maður sem yfirlýst og opinbert vildi útrýma eina lýðræðisríkinu í Miðausturlöndum. Hann var eftirlýstur fyrir hryðjuverk. Hvað er eiginlega að því að leyniþjónusta Ísrael og annarra ríkja ryðji honum úr vegi, ef Dubai tekur hann ekki fastann? Hann hefur vonandi verið eftirlýstur af Interpol eins og meintir banamenn hans eru nú. Hann var meira að segja hættulegur sinni eigin þjóð, sem samkvæmt síðustu fréttum vann með Mossad í því að granda þessum Dúbaifara. En sannanir fyrir því að hann hafi verið myrtur vantar algjörlega. Lögreglan í Dubai er víst líka dálítið dúbíus. Rökin í þessu máli eru eins og í máli týnda drómedarans frá 2006. Engar sannanir og allt rennur út í sandinn. Hverjum er ekki sama um hryðjuverkakaupmanninn Mahmoud al-Mabhouh?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
18.2.2010 | 23:58
Vælandi lándráðamenn hjá Uncle Sam
Uppsagnir manna í íslensku utanríkisþjónustunni eru óumflýjanlegar. Burgeisinn og Einar Gunnarsson verða að skýra út fyrir þjóðinni, hvaða umboð þeir hafa til að lýsa þeirri skoðun sinni að meirihluti Íslendinga sé idjót, sem ekki sé treystandi í kosningum.
Uncle Sam Watson, varasenditík í Rekjavick, sem ekki passar nógu vel upp á póstinn sinn, ætti að gera sér grein fyrir því að Burgeisinn steypir þessa dagana kúlur gegn BNA í kjaftæðinu um hver ber ábyrgð á þátttöku Íslands í stríðinu í Írak. Þátttöku sem við getum verið stolt af, þar sem stríðsglæpamaðurinn og þjóðarmorðinginn Saddam Hussein hóf það stríð. Burgess studdi þann andskota.
Hjálmar W. Hannesson ætti að láta ógert að snúa aftur til Íslands eftir þessi orð sín:
He added that he did not sense a willingness on the part of the opposition to take control of the government. Noting that the President, whom he has known for years, is considered "unpredictable," he hoped that a solution palatable to all sides in Iceland could provide
a way out.
Hér talar Hjálmar um þjóðhöfðingja Íslands í umboði hvers? Hjálmar burt úr diplómatíunni! Þú ert kjaftakerling, en ekki diplómat.
Getur verið að það séu of mörg fífl sem stjórna á Íslandi? Er það nema von, að BNA sendi ekki hingað sendiherra?
P.s. gleymdi Össur. Hann verður líka að pakka í fyrramálið.
![]() |
Minnisblað sendimanns birt á Wikileaks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.2.2010 kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.2.2010 | 21:26
Veislan í skíðaskálanum
Egill Helgason er greinilega orðinn alveg uppiskroppa með efni. Áróðurstarfið fyrir ríkisstjórnina gengur greinilega ekki allt of vel. Madame Joly hefur t.d. snúist dálítið í höndum á spunameistaranum. Nú hefur Egill brugðið á það ráð að birta myndir úr íslenskum veislum sem hann geymir í silfri sínu. Í dag dró hann upp úr hattinum algjöra partí-partí mynd úr skíðaskálaveislu Jóns Ásgeirs frá 2007, sem hann notaði sem sönnunargagn fyrir tengslum Landsbankans og Baugsveldisins. Sigurjón Kúlulán og Banka-Ella eru eins og loftbelgir þarna á meðal fallega og ríka fólksins. En ekki er ég viss um að niðurstaða Egils sé rétt. Menn geta verið í partí án þess að vera að braska eitthvað saman.
Undir áhrifum frá stóra manninum á Eyjunni birti ég einnig eina góða, hörkupartímynd, sem var tekin í febrúar 1964. Myndina er hægt að stækka með því að smella á hana. Allir eru greinilega að djúsa. Þarna er Banka-Ella, Elín Sigfúsdóttir að þamba Sínalcó (efst fyrir miðju). Kúlulánið hefur örugglega leikið við marga á myndinni. Yfirtaka á stórri rjómaköku hefur nýlega farið fram.
En hver annar þekktur maður, fyrir utan Banka-Ellu ætli hafi verið í þessu partí? Jú, hver annar en einn valdamesti maður Íslands, partíkóngurinn sem situr þarna neðst í tröppunum blæs í rör og er með kók og romm í flösku: Ykkar einlægur, eigandi þessa blogs. Vonandi sér Egill Helgason ekki meira út úr myndinni er siðlegt er, en Ella var nágranni.
Myndgreining Egils í dag á Eyjunni er einhver sú skrýtnasta blaðamennsku sem ég hef séð, ef yfirleitt er hægt að kalla slíkt blaðamennsku. Ef einhver á myndir af Agli Helgasyni í partí, mega þeir birta hana hér í athugasemdum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 1355837
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007