28.2.2011 | 07:17
Bílstjóri Assange aðalblaðamaðurinn á Íslandi
Kristinn Hrafnsson, sem fékk 1. verðlaun Blaðamannafélags Íslands, er að mínu mati ekki neinn blaðamaður. Matreiðsla hans á myndbandinu frá Bagdad á nefnilega ekkert skylt við blaðamennsku. Kristinn Hrafnsson tók eineygða afstöðu til þess sem maður sá á myndbandinu.
Fyrir utan blákaldar staðreyndir stríðs mátti á myndbandinu sjá vopnaða menn á jörðu niðri. Menn þessir, sem gengu með svo kölluðum blaðaljósmyndara, báru vopn sem grandað geta þyrlu. Assange viðurkenndi þetta og sagði: "Based upon visual evidence I suspect there probably were AKs and an RPG, but I'm not sure that means anything". Þannig var það afgreitt, ekki ósvipað og þegar Assange viðurkennir að hann notaði ekki smokka við samfarir í Svíþjóð þótt hann hafi verið beðinn um það. En hann skilur ekki af hverju hann, þessi guðlega vera, þurfi að gera það sem einhver kona biður hann um í landi, sem hann heldur nú fram að sé lögfræðilega vanþróað. Fróðlegt væri að vita, hvort hin íslenski skósveinn Assange hafi sömu skoðun á konum og sprengjuvörpum og Assange.
Í hugarheimi Kristins Hrafnssonar mega allir skjóta á bandarískan her, en bandarískur her má ekki skjóta á menn sem tilheyra hópum sem vilja ala á glundroða og eymd í Írak. Kristinn er að mínu mati ekki blaðamaður. Hann er miklu frekar hermaður í liði þeirra afla sem sakna Saddam Hussein. Hann er uppvartari Assange - og leiðinlega öfgafullur ameríkanahatari.
Að gera mann, sem vinnur sem kúskur og hjálparkokkur gúru-fyrirbæris eins og Assange, eftirlýsts nauðgara og þjófs, að blaðamanni ársins á Íslandi, sýnir í sjálfu sér að það er eitthvað mikið að á Íslandi. Sú ákvörðun að veita Kristni verðlaun er og verður hneisulegur dómur blaðamannstéttarinnar á Íslandi yfir sjálfri sér.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
25.2.2011 | 11:52
Gudda Americana, La prima mama bianca in America
C´era una volta in Islanda, il presidente era bianco - molto bianco - i suoi capelli più bianchi del bianco. La popolazione interna era bianca. Dato che i Norvegesi sono sempre rubando Leifur Heppni (il fortunato) e Snorri Sturluson (il meno fortunato) dalla nazione islandese innocente e bianco, la povera gente del nord ha deciso di presentare il Papa a Roma con un grande capolavoro d´arte. Vedi qui.
I islandesi voluto dare una statua al Papa a Roma. Che cosa di meglio di una statua della prima donna bianca nelle Americhe e il figlio Snorri, suo figlio con Þorfinnur Karlsefni. Questa donna straordinaria di nome Guðríður Þorbjarnardóttir, era chiamato anche Gudda Americana. Ha vissuta mille anne fa.
Un regalo perfetto per un Papa tedesco a Roma. Un papa che appartienava alla razza bianca, che indossava sempre abiti bianchi, come Elvis.
Il Papa è immediatamente andando ad ammettere, che la Santa Chiesa cattolica non ha trovato l´America. Le prove islandese sono insindacabili.
Tuttavia, gli Islandesi dimenticato una piccola cosa. La prima mama bianca in America è stata effettivamente Freydís, la figlia di Erico il rosso (che era anche bianco/era rosa). Freydís è stata anche la prima bianca assassina di massa in America, e anche odiata gli aborigeni in America, che i bianchi chiamati Skrælingjar.
La prima madre bianca in America aveva seni così grandi e pendenti che poteva spaventare un orde di guerrieri indiani da spruzzi le sue tette su una spada vichinga. Quello era uno spettacolo che si rivelò il più rosso indiano completamente bianco.
Secondo DeCode, un DNA-laboratorio islandese in grande difficoltà finanziaria, Freydís trafficate donne indiane a Islanda, dove sono stati trattenuti come schiavi del sesso per uomini bianchi islandese in Suðursveit (Campagna a Sud).
Così, secundo bianco buffone grande di DeCode, Kari di Stefano, i geni indiani sono gondolandi nel sangue dei bianchi d´Islanda.
Per i molti lettori italiani del mio bloggo, voglio confermare che Cristoforo Colombo, il primo uomo semi-bianco in America non era Italiano, né lo Spagnolo, né Portoghese. Colombo era in realtà un Ebreo transsessuale.
Ma, una femminista fortissima e bianca da Islanda scoperto l´America. Gli Uomini islandesi, che sono tutti fantasmi e truffatori, non avrebbe mai potuto scoprire nulla.
Menning og listir | Breytt 14.4.2022 kl. 07:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.2.2011 | 15:16
Ólafur er sannur forseti
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.2.2011 | 06:38
Býr Hómer á Bessastöðum?
Sumir Íslendingar eru farnir að ruglast á veruleikanum og teiknimyndafjölskyldunni Simpson í Springfield og halda að allir sem vilja kjósa gegn Icesave-samningnum séu loddarar eins og þeir sjálfir. Við getum bara beðið og vonað að forsetinn á Bessastöðum sé ekki eins ginnkeyptur og Hómer Simpson er fyrir kleinuhringjum frá ESB, þegar hann tekur ákvörðun sína um Icesave-samninginn.
Auðvitað fylgir Ólafur ekta fólki, sem er búið að sannreyna þrisvar, og krefst kosninga með því að neita að undirskrifa skussalögin frá Galþingi. Annars er Óli bara einhver Hómer, aumur larfur án viljastyrks.
![]() |
Þrenns konar prófanir gerðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.2.2011 | 15:51
Icesave = Gulag
Utanríkisráðherrann er að setja sig inn í hlutina. Vonandi er, að hann og hinir 43 labbakútarnir á Alþingi séu borgunarmenn fyrir Icesave-skuldinni. Líklegra er þó að hann ætli að verða kapó í íslenska gúlaginu, þar sem saklaus almenningurinn verður útþrælkaður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.2.2011 | 07:19
Framtíð Egyptalands er ekki björt
Þó svo að öldungurinn Mubarak sé hrumur eins og einhver stráklingurinn á RÚV lýsti honum í gær, þá eru víst margir fréttamenn RÚV meira hrumir en Hosni gamli. Nú, þegar Faraóinn er farinn út í eyðimörkina og fylgifiskar hans er syntir burt úr glundroða Egyptalands, er enginn sem getur haldið því fram að vandamál landsins séu leyst. Í versta falli mun Egyptaland nú sjá fram á tíma óvissu og meiri glundroða en áður, þar sem ýmsir hópar munu berjast um völdin undir hæl herforingja landsins. Ekki ósvipað og á tímum faraóanna.
Mikilvægur hópur í því uppgjöri sem nú fer í hönd, þar sem þeir vinna í happadrættinu sem geta unnið með hernum, eru íslamistar, sem eru síðari tíma meinsemd.
Íslamistar hata BNA og þeim er alveg sama hvort leiðtoginn sé einþykkur krossfari eða bláeygður Núbíumaður, sem ekki getur sagt neitt nema í viðtengingahætti framtíðar.
Hosni hrindi í gær í gamlan vin sinn í Ísrael, Binyamin Ben-Eliezer fv. ráðherra, og sagði meðal annars: "'They may be talking about democracy but they don't know what they're talking about and the result will be extremism and radical Islam,'".
Íslamistar eiga einn fjandmann sem þeir hata mest af öllum þeim sem þeir hata og hafa útgefið fötvur fyrir eða lýst jihad á hendur. Íslamistarnir í Egyptalandi eiga ásamt fjölda kjána á Vesturlöndum sameiginlegan óvin. Hatur þetta sýnir sig fyrst og fremst í garð gyðinga og Ísraelsþjóðarinnar í þjóðríkinu Ísrael. En það endurspeglar líka hatur þessa bræðralags öfgamanna á öllu því sem vestrænt er, þar með talið á trúarbrögðum þeim sem algengust eru á Vesturlöndum. Enginn Útópía verður til án einhvers sem verður að hata. Kommúnismi og nasismi eru svipuð trúarbrögð og íslamismi. Þau sameinast í hatrinu. Trúarbrögð sem boða byltingu og fórnir.
Þó svo að meirihluti Egypta sé ginnkeyptur fyrir ameríska draumnum, er birtingarmynd gyðingahaturs og fyrirlitningar á kristnum ekkert öðruvísi en hún hefur ávallt verið í heimi múslíma. Byltingin" í Egyptalandi hefur ekki farið varhluta af því, eins og meðfylgjandi myndir sýna. "Bylting" kjánanna fær kraft sinn úr þess konar hatri.
Egyptaland er nú verr statt en fyrir rúmum hálfum mánuði síðan. Hér má lesa um rótgróið gyðingahatur á Egyptalandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
6.2.2011 | 14:47
Sannir Evrópumenn borga brúsann
Það gerðu Neanderthalsmenn líka, en þeir dóu drottni sínum fljótlega eftir að þeir punguðu út. Hér eru nokkrar myndir af þeim íslendingum sem ætla að borga skuldir annarra. Það er svipur með þeim og aumingja Neanderdalamönnunum, sem misstu allt og hurfu við það af sjónarsviðinu.
Bjarni Ben er hér afar brúnaþungur, í bakgrunninum sést Þorsteinn Pálsson. Ekki laust við að hann sé kominn á hærra stig.
Össur er glaður
Eiríkur Bergmann, sem fann upp grautinn og þvæluumræðuna, þar sem öllu er blandað saman, borgar líka.
Hér er aðeins betri mynd af Eika.
Náttúrukvendið Svavarsdóttir hefur allt á spjótum sér, ef maður borgar ekki eins og pabbi hennar segir.
Steingrímur og Jóhanna, eru borgunarfólk, alveg inn að beini. Takið eftir brosinu. Falskt segja sumir.
Þessi vinstrigrænu hjón í Fellahverfinu hlakka til að borga, með lífi sínu.
Óli kúlupungur, formaður Icecavemanna, er auðvitað þakklátur fyrir að Evrópufólkið ætlar að borga fyrir hann skuldirnar.
Meðlimir VG og Samtyppinga borga alltaf að fullu.
Ríkistjórnin er öll sammála, en á nálum í málinu
Prófessor á Akureyri lýsir hér Hannesi Hólmsteini af eintómri öfund
Og nú skil ég af hverju Ögmundur vill halda í búrkuna -
- og Gnarr fær sér meira Múmínskraut.
Jón Jónsson hinn ríki, thalsmaður Neandertalsmanna, sem hafði ráð á því að greiða skuldir annarra. Margur verður af aurum api.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.1.2011 | 12:15
Er Amína Valsdóttir góð heimild?
Meðan erlendir fjölmiðlar leita skýringa á því sem nú er að gerast í Egyptalandi hjá sérfræðingum eða stjórnmálamönnum, þá er Sigrún nokkur Valdsóttir (f. 1976), sem gengur undir nafninu Amína (til vinstri á myndinni hér að ofan), orðin ein aðalheimild Ríkisútvarpsins um ástandið í Egyptalandi.
Menn, sem hafa gagnóða þekkingu á Egyptalandi, vita vel, að ekki er Hosni Mubarak neinn lýðræðissinni enda hefur hann setið lengur en Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Jóhanna Sigurðardóttir til samans. En hann nýtur enn mjög mikilla vinsælda í sveitum landsins. Hann er hins vegar hataður meðal íslamista sem seilast eftir völdum í Egyptalandi. Þegar sumir vinstrisinnaðir stjórnmálamenn á Vesturlöndum eru farnir að hlakka yfir endalokum Mubaraks, eins og hann sé einhver Saddam Hussein, er heldur langt gengið. Menn munu sakna Mubaraks ef íslamska Bræðralagið kemur í hans stað og byrjar að útdeila fötwum sínum gegn frelsi og lýðræði um heim allan.
Amína Valsdóttir, aðalheimild RÚV um Egyptaland, kemur nú orðið fram í trúarlegum einkennisbúningi, sem þó hvergi er lýst í trúarritum þeim sem hún fylgir. Hún var eitt sinn bara venjuleg íslensk Ella í rúllukragapeysu, en nú er hún á vegum Allah, hins almáttuga og miskunnsama, sem men drepa fyrir þegar spámaður hans, "M", verður fyrir minnstu gagnrýni.
Amína hefur opinberlega sagt sögu umbreytingar sinnar, frá því að vera kristinn íslendingur sem aldrei hefur séð stríð og óeirðir til að vera í forsvari fyrir trú sem notuð er til að lýsa yfir dauðadómum yfir fólki sem segir réttmæta skoðun sína. Trú, sem því miður er notuð til illra verka um víða veröld.
Stutt heimsókn á heimasíðu Amínu sýnir mér að hún aðhyllist öfgastefnur. Hún tengir sig t.d. við http://www.fatwa-online.com/ og þar má lesa ýmislegt ljótt
Það sem Amína (Sigrún) Valsdóttir aðhyllist er eitt að aðalvandamálum Egyptalands. Amínu Valsdóttur má vera það ljóst að bókaverslun sú sem hún rekur með vinkonu sinni, Mandy Bush í ríku hverfi í Kaíró á sér ekki langa lífdaga, ef landið verður lamið aftur á steinöld Múhameðs og hersveita hans. Bækurnar í bókabúðinni hennar Amínu eru öruggleg margar hverjar hættulegar Íslam og verða rifnar í tætlur líkt og múmíurnar á Þjóðminjasafni Egypta um daginn.
Mér er nokkuð sama um hvað Amína segir um stjórnvöld í Egyptalandi á RÚV, og hún er í mínum augum ekkert miklu betri en sumir sjálfskipaðir útsendarar Hezbollaah og Hamas sem vinna á fréttastofu RÚV. Allir sem þekkja sögu Egyptalands vita, að fátæktin þar er ekki einvörðungu til orðin vegna þess að fáeinar fjölskyldur stjórna landinu og raka til sín öllum gróða. Vandamál Egyptalands er að þjóðinni sem þar býr nú, hefur ekki tekist að komast fyllilega inn í nútímann og eignast hinn "ameríska draum" sem 90% Egypta dreymir um. Fátæktin, eymdin og hatrið er fyrst og fremst vegna öfga trúarinnar sem gegnumsýrir allt þjóðlífið. Offjölgunarvandmálið og fátækt Egyptalands er alls ekki komið til vegna 30 ára stjórnar Mubaraks. Hana má rekja til þess þjóðernislega "sósíalisma" sem Gamal Abdel Nasser framfylgdi, þar sem þjóðvæðingin gekk að einkaframtakinu dauðu. Nasser atti landinu út í vonlaus hatursstríð gegn Ísrael, og tapaði. Síðan sátu Egyptar uppi með vonlausa bandamenn, Sovétríkin, svo ekki var að spyrja að áframhaldandi óförum, þangað til að friður komst á við Ísrael og Bandaríkin árið 1979. Mubarak hefur þrátt fyrir allt tekist að snúa ástandinu í Egyptalandi til betri vegar.
Amína Valsdóttir er ekki trúverðug heimild um það sem gerist og mun gerast í Egyptalandi. Kona sem rekur bókabúð, en sem líka er hlynnt fötwum, er ótrúverðug. En hverju mátti annars búast við af fréttaflutningi á RÚV?
Egyptar eru dálítið seinir að fatta. Það tók forðum 10 plágur áður en þeir gáfu gyðingum fararfrelsi. Nú eru þeir augsjáanlega tilbúnir að fara í gegnum fleiri plágur til að uppgötva að þeir hafa þegar meira frelsi en flestar þjóðir undir oki trúaröfga í Miðausturlöndum. Egyptar hafa ekki ráð á því að skjóta sjálfa sig í fótinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
29.1.2011 | 17:47
Hollensk kona hengd í Íran
Ef til vill eru það hengingar sem "róttækir" Íslendingar sækja í, þegar þeir halda á vit menningarinnar í Íran. Jóhanna Kristjónsdóttir er ein af þeim sem miðlar menningu núverandi Íransríkis til Íslendinga og rekur ferðamiðlun fyrir fólk sem af einhverjum ástæðum, frekar sjúklegum, vill til Írans og annarra ríkja þar sem mannréttindi eru fótum troðin. Maður spyr sig, hvort kvenfyrirlitningin í Íran sé ekki nægileg til að það eineygða fólkið í fjölmenningardisneyworldinu, sem ferðast með Austurlanda-Jóhönnu haldi sig frekar heima við en akkúrat að vera að álpast þangað sem fólk er hengt eða grýtt fyrir hið minnsta andóf. En kvalarlosti gamalla komma þekkir víst engin landamæri.
Hollensk kona, hin 46 ára Zahra Bahrami, sem var fædd í Íran, var í gær hengd í Íran. Hún tók þátt í mótmælum í Íran fyrir rúmu ári og var fangelsuð. Svo var hún, eins og margir óvinir Íranskra stjórnvalda, ásökuð um að hafa verið bendluð við smygl á eiturlyfjum og er sögð hafa verið með kókaín í fórum sínum. Eins og þið vitið líklegast öll, er Íranstjórn sjálf stærsti útflytjandi á eiturlyfjum í heiminum.
Legg ég til að hóparnir hennar Jóhönnu Kristjónsdóttur heimsæki í staðinn eina landið í Miðausturlöndum sem ekki vanvirðir grundvallarmannréttindi. Já, Ísrael, elskurnar mínar, landið sem þið hatið.
Svipmynd frá Tehran:
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.1.2011 kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.1.2011 | 12:50
Siðleysi Ögmundar á sér forsögu
Auðvitað axlar Ögmundur Jónasson enga ábyrgð. Það hefur hann aldrei gert. Hann hefur ævilangt verið heillaður að mannfjandsamri stefnu, sem í sumum ríkjum heimsins olli dauða milljóna manna. Því skyldi einhver fauskur á Íslandi, sem aðhylltist tálsýnir kommúnismans, iðrast eða bera ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut?
Það er lítilmótlegt að sjá Ögmund Jónasson taka sér þann rétt að gagnrýna Hæstarétt úr pontu á Alþingi. Þegar lýðskrumarar eins og Ögmundur byrja að gera lítið úr æðsta stigi dómsvalds á Íslandi, er illa komið fyrir lýðræðinu, og reyndar líka almenningi sem löglega kaus þá fulltrúa, sem samþykktu þau lög sem dómstóllinn dæmir löglega eftir. Ögmundur gerir einfaldlega sekan um að vera kominn á 1. hættustigið í tilurð einræðisríkisins. Það gerist nefnilega þegar öfl í þjóðfélaginu lýsa frati á löglegar stofnanir þjóðríkis og gefa í skyn að þeim sé ekki treystandi, þó svo þær fari að lögum. Að dómsmálaráðherra og mannréttindaráðherra leyfi sér svo afbrigðilega hegðun er enn alvarlegra, ekkert minna en óforkastanleg hegðun.
Ögmundur ber ekki virðingu fyrir lýðræðinu þegar hann segir að það sé réttur sinn að gagnrýna Hæstarétt í máli, þar sem dómstóllinn hefur komið að einhljóða niðurstöðu um að undirbúningur og framkvæmd kosninga til Stjórnlagaþings hafi verið ólöglegur. Ábyrgðin á þeirri handvömm og lélegum undirbúningi kosninganna liggur hjá Ögmundi og ríkisstjórninni. Stjórn sem sýnir tilburði til sovétískra stjórnahátta, þar sem dómstólar, stofnanir fólk og hópar eru settir út af sakramentinu ef þeir er með eitthvað múður.
Hvernig er hægt að komast í veg fyrir slíka stjórn? Það er einfalt. Krefja ber þess, að hún segi af sér og að fram fari kosningar. Virðir þessi stjórn slíkar kröfur? Varla, og því erum við komin á 2. hættustig fyrir einræði. Við erum komin með ráðsstjórn, enda er ekki lengi síðan að meðlimir ríkisstjórnarinnar voru aðdáendur stórvelda sem frömdu þjóðarmorð. Reyndar eru við komin á 3. hættustig, þegar ráðherrar neita að axla tvímælalausa ábyrgð, líkt og Ögmundur Jónasson gerir. Sekur og siðlaus er hann, líkt og ismar þeir sem einkennt hafa líf hans.
Ísland úr ESB og Ögmund burt!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 1355794
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007