Leita í fréttum mbl.is

Framtíð Egyptalands er ekki björt

image allah murderes
 

Þó svo að öldungurinn Mubarak sé hrumur eins og einhver stráklingurinn á RÚV lýsti honum í gær, þá eru víst margir fréttamenn RÚV meira hrumir en Hosni gamli. Nú, þegar Faraóinn er farinn út í eyðimörkina og fylgifiskar hans er syntir burt úr glundroða Egyptalands, er enginn sem getur haldið því fram að vandamál landsins séu leyst. Í versta falli mun Egyptaland nú sjá fram á tíma óvissu og meiri glundroða en áður, þar sem ýmsir hópar munu berjast um völdin undir hæl herforingja landsins. Ekki ósvipað og á tímum faraóanna.

Mikilvægur hópur í því uppgjöri sem nú fer í hönd, þar sem þeir vinna í happadrættinu sem geta unnið með hernum, eru íslamistar, sem eru síðari tíma meinsemd.

Íslamistar hata BNA og þeim er alveg sama hvort leiðtoginn sé einþykkur krossfari eða bláeygður Núbíumaður, sem ekki getur sagt neitt nema í viðtengingahætti framtíðar.

Hosni hrindi í gær í gamlan vin sinn í Ísrael, Binyamin Ben-Eliezer fv. ráðherra,  og sagði meðal annars:  "'They may be  talking about democracy but they don't know what they're talking about and  the result will be extremism and radical Islam,'". 

Íslamistar eiga einn fjandmann sem þeir hata mest af öllum þeim sem þeir hata og hafa útgefið fötvur fyrir eða lýst jihad á hendur. Íslamistarnir í Egyptalandi eiga ásamt fjölda kjána á Vesturlöndum sameiginlegan óvin. Hatur þetta sýnir sig fyrst og fremst í garð gyðinga og Ísraelsþjóðarinnar í þjóðríkinu Ísrael. En það endurspeglar líka hatur þessa bræðralags öfgamanna á öllu því sem vestrænt er, þar með talið á trúarbrögðum þeim sem algengust eru á Vesturlöndum. Enginn Útópía verður til án einhvers sem verður að hata. Kommúnismi og nasismi eru svipuð trúarbrögð og íslamismi. Þau sameinast í hatrinu. Trúarbrögð sem boða byltingu og fórnir.

Þó svo að meirihluti Egypta sé ginnkeyptur fyrir ameríska draumnum, er birtingarmynd gyðingahaturs og fyrirlitningar á kristnum ekkert öðruvísi en hún hefur ávallt verið í heimi múslíma. „Byltingin" í Egyptalandi hefur ekki farið varhluta af því, eins og meðfylgjandi myndir sýna. "Bylting" kjánanna fær kraft sinn úr þess konar hatri.

Egyptaland er nú verr statt en fyrir rúmum hálfum mánuði síðan. Hér má lesa um rótgróið gyðingahatur á Egyptalandi.

2749697829


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað er alltaf möguleiki að allt fari á versta veg, eins og þú gefur glöggt til kynna, en þessi "bylting" snérist ekki um hatur og óvirðingu heldur um trú á fólkinu og mátt fólksins. Ef þú trúir ekki á aðra hlítur að vera erfitt að trúa á sjálfan sig.

Auðvitað getur komið til þess að allt snúist upp í glundroða og óvissu, enda er það skiljanlegt. Bræður okkar og systur í Egyptalandi hafa barist fyrir réttindum sínum í langan tíma og verða vonandi vel á varðbergi gegn spilltum öflum sem sækjast í völd og auðlindir. Nú stendur verkefni þeim fyrir höndum, og okkar allra í heiminum, að standa upp fyrir sjálfum okkur og  berjast fyrir betri heimi.Klassískur good vs. evil bardagi.

Ég vona svo sannarlega að þú hafir ekki rétt fyrir þér en við verðum að hafa trú á að mannkynið vinni stórfyrirtækin og gróðamaskínurnar, við eigum það skilið.  Ef ekki þá stefnum við ótrauð áfram í þrælahald stórfyrirtækja,efnahagsins og valdhafa, og þrælahaldið verður bara verra og meira með tímanum ef við vöknum ekki frá ljótum draum og stöndum upp fyrir nýjum mannlegum gildum.

Ekki einbeita þér svona mikið af hatrinum og illu öflunum, við erum öll fólk og erum öll saman í þessu. Kraftur lífsgleðinnar og mannlegs siðferðis er mun sterkari en kraftur haturs og illinda, það fer bara eftir því hvernig við höldum á spilunum.

Davíð Alexander Östergaard (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 13:18

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Því miður er þekking hér eins og víða á Vesturlöndum afar bágborin um sögu Islam og Miðausturlanda. Þeir sem tjá sig um þessi mál styðjast mest við afskræmdar upplýsingar og beinlínis rangar. Í menntaskóla fékk ég aldrei orð af viti að vita um þessi mál. Um átök Islam og kristinnar menningar í Evrópu var ekki eitt einasta orð.

Svokallaðir Miðausturlandafræðingar halda oft fram hreinu bulli og komast upp með það. Þeir sem andmæla eru kallaðir ofstækismenn og þaggað niður í þeim. Til allrar gæfu er vaxandi fjöldi múslíma að stíga fram á sjónarsviðið og vaxandi fjöldi fræðimanna sem eru að tjá sig af þekkingu og góðri dómgreind.

Íslenskir fjölmiðlar hafa nánast enga þekkingu á þessu sviði en virðast stjórnast af einhvers konar gyðingahatri. Lýsing á málefnum Israel og Palestínumanna eru nánast ávalt á haus samanber Mavi Marmara málið.

Ég sé að þú ert einn af þeim. Vonandi lætur þú fljótlega aftur í þér heyra. Ég vek athygli þína á mínu bloggi í dag um þessi mál.

Valdimar H Jóhannesson, 12.2.2011 kl. 14:05

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ég á við að þú ert einn af þeim sem lýsir málum af dómgreind, þekkingu og viti. Ég bætti við kaflanum um íslenska fjölmiða eftir að ég var búinn að skrifa athugasemdina. Þess vegna gæti athugasemd mín misskilist.

Valdimar H Jóhannesson, 12.2.2011 kl. 14:09

4 identicon

Þekking er ansi vítt hugtak. Dómgreind líka. Þú öðlast ekki einungis þekkingar með því að lesa sögubækur eða með því að læra hvernig fortíðin spann sinn vef. Það er hin andlega þekking eða vitund sem er ljósberi framtíðarinnar. Sú þekking eða "enduruppgötvun" að í grunninn erum við öll eins og hatur, trúarbrögð og menningarádeilur eru að mestu leiti komnar til vegna yfirvalda og gráðugra einstaklinga sem hafa í gegnum tíðina mótað skoðun fólks og sagt þeim hverja á að hata og hverja á að elska. Fólk fordæmir heilu þjóðirnar án þess að þekkja einn einasta einstakling sem býr þar, bara vegna þess að Bush, eða álíka valdagúrú, sagði þeim að gera það. Þegar við fæðumst er þessi andstyggð og hatur ekki til í okkur, en við höfum ámyndað okkar þessar ranghugmyndir vegna utanaðkomandi áreitis fjölmiðla og valdhafa. Einnig finnst mér erfitt að viðurkenna að þessi pistill sé skrifaður af dómgreind þegar textinn er yfirfullur af fordómum og alhæfingum.

Ég vona að þekking fólks í heiminum öðlist þessa andlegu vakningu og líti til framtíðar en ekki í gamlar skruddur. Núna höfum við tækifæri til að lifa í öðruvísi heim ef við bara stöndum öll saman.

Davíð Alexander Östergaard (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 15:40

5 identicon

Annars er ég engan veginn að útiloka eða gera lítið úr spánni að allt geti fari nú til fjandans. Aðeins að koma því á framfæri að framtíðin og þróunin veltur á hvort yfirvaldið haldi valdinu og geti áfram kúgað heilu þjóðirnar og heilaþvegið þær af ranghugmyndum eða hvort fólkið í heiminum öðlist sjálfstæða rökhugsun og standi upp fyrir nýrri heimsmynd. Við höfum kraftið til þess, spurnig hvort við nýtum okkur hann eða hvort við höldum áfram þrælahaldi okkar í þágu gróðamaskína.

Davíð Alexander Östergaard (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 15:52

6 Smámynd: Einar Karl

Sæll Vilhjálmur.

Eitt sinn skrifaðir þú bloggpistill til stuðnings bloggaranum egypska Kareem Amer, sem dæmdur var í fangelsi fyrir bloggskrif á móti stjórnvöldum.

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/130188/

En nú syrgir þú brotthvarf einræðisherrans Mubarak.

Einar Karl, 13.2.2011 kl. 11:08

7 Smámynd: Davíð Bergmann Davíðsson

Ekki er ég hissa að fólkinu í Egyptalandi líki ekki utanríkisstefnu ísrael, eins og þeir hafa haga sér með aðstoð Bandaríkjanna í gegnum tíðina. Mér sýnist líka að sú staðreynd og fleiri ríki sem líkar ekki við utanríkisstefnu Ísrael ætla að rísa upp og sækja sitt sjálfsagða freilsi. Þannig að einangrun Ísrael verður en meiri en hún er nú þegar. Sem verður vondandi til þess að ítökum Bandaríkjanna og Ísrael ljúki í eitt skipti fyrir öll í miðausturlöndum og afríku.

Davíð Bergmann Davíðsson, 13.2.2011 kl. 12:19

8 Smámynd: Davíð Bergmann Davíðsson

þetta eitthvað sem þú ætti að sjá Vilhjálmur Örn: Davíð Alexander góð skrif núna er tími breytinga.

http://topdocumentaryfilms.com/louis-theroux-ultra-zionists/

Davíð Bergmann Davíðsson, 13.2.2011 kl. 13:05

9 identicon

http://www.gagnauga.is/index.php?Fl=Straumar&ID=697

Davíð Alexander Östergaard (IP-tala skráð) 13.2.2011 kl. 18:41

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Einar Karl,

Kareem Amer var leystur úr haldi í fyrra. Takk fyrir stuðninginn.

Kareem tilheyrir stétt ungra menntamanna, sem ekki fá vinnu vegna pólitískrar spillingar. Hann er trúleysingi. Hans líkir munu ekki sigra í egypsku "byltingunni". Sigurverararnir verða öfgaöflin.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.2.2011 kl. 21:20

11 Smámynd: Einar Karl

Mér þykir þú svartsýnn, Vilhjálmur.

Ekki voru það öfgaöflin sem stóðu fyrir mótmælunum á Tahir-torgi.

Hvernig sérð þú helst fyrir þér framtíð Egyptalands, ef ekki með lýðræðislegum kosningum t.d. nú í haust, knúðum áfram með mótmælunum síðustu 18 daga?

Heldurðu virkilega ekki að ungt fólk eins og Kareem Amer sé bjartsýnna nú en fyrir tveimur vikum?? 

Einar Karl, 13.2.2011 kl. 22:59

12 Smámynd: Davíð Bergmann Davíðsson

http://topdocumentaryfilms.com/shape-future/

þetta er eitthvað sem ég mæli með fyrir þig Vilhjálmur Örn. Sjónarmið Írael og Palestínumanna. Það er til fólk bæði í Ísrael og Palestínu sem trúa því að það hægt semja um frið.

Davíð Bergmann Davíðsson, 14.2.2011 kl. 00:23

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka þér fyrir Davíð Bergmann Davíðsson. Ég þekki mætavel allt það sem þú sendir mér. Friðarvilji Palestínumanna hefur ekki sýnt á sér trúverðuga hlið. Því miður.

Einar Karl, skrifaðu Amer og spurðu hann. Ég er viss um að hann er mjög svartsýnn. Herinn og lögreglan barði hann í plokkfisk þegar hann var látinn laus úr fangelsi. Herinn og lögreglan í Egyptalandi breytir ekki um andlit vegna "byltingar" fólks sem fætt er eftir 1980. Herinn hefur völdin og velur það stjórnmálaafl sem helst vill þjónusta hann. Vegna efnahagsástands í Egyptalandi má telja nær víst að íslamistar hafi "mest" að bjóða hernum. Her og íslamistar hugsa líkt þegar á að leysa vanda: Drepa fólk sem er með eitthvað múður.

Mubarak hafði hemil á öfgaöflum innan hersins. Óvíst er hvort sá hemill er lengur fyrir hendi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.2.2011 kl. 07:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband