1.11.2019 | 12:49
Forhúðarverndarinn er nú orðinn forseti Norðurlandaráðs
Silja Dögg Gunnarsdóttir var kosin forseti Norðurlandaráðs í gær. Það verður hún á meðan Ísland stjórnar ráðinu árið 2020. Óska ég henni innilega til hamingju með embættið, sem hún sest líklega í vegna verðleika sinna. Ja, hvers annars?
Silja lýsir því nú hátíðlega yfir á vef Norðurlandaráðs að:
Island har valgt at fremhæve tre prioriterede områder: at stå vagt om demokratiet, blandt andet ved at bekæmpe "fake news", at værne om den biologiske mangfoldighed og at styrke kundskaberne i de nordiske sprog.
Hvað varðar falsfréttir segir Silja:
Når det gælder "fake news", vil Island blandt andet søge svar på, hvordan myndigheder, politikere, civilsamfundet og andre samfundsinstitutioner kan agere i forhold til spredningen af vildledende information. Island vil også se på, hvilken rolle det nordiske samarbejde kan spille, når det gælder bekæmpelse af falske nyheder og beskyttelse af demokratiet.
Mikið eru þetta líka góðar fréttir. Silja getur hæglega byrjað á því að fá gerða rannsókn á því hvernig íslenskur unglingur, sem "að sögn" hafði samband við Umboðsmann Barna til að fá upplýsingar um umskurð, varð að "múslíma sem var óánægður með umskurn sína" þegar umboðsmenn barna á Norðurlöndunumm tóku "málið" og fleyttu því inn í eina sóðalegustu umræðu ´æa sem sögur fara af eftir Síðari heimsstríð. Umræðan, sem Silja tók ógagnrýnið þátt í, innihélt oft á tíðum fordómafulla fordóma í garð bæði gyðinga en sér í lagi múslíma.
Var núverandi forseti Norðurlandaráðs undir áhrifum frá falsfrétt? Staðfesting á bréfi "umskorna unglingsins" hefur aldrei fengist og hefur embætti umboðsmann haldið því fram að það tengist persónuvernd. Ég tel að bréfið hafi aðeins verið fyrirspurn , þar sem leitað var fræðslu, og að það hafi ekki komið frá umskornum, ungum múslíma á Íslandi líkt og umboðsmenn barna á Norðurlöndum héldu síðar fram.
Þegar Ísland áformar að leggja svo mikið kapp á "fake news" árið 2020 væri kannski líka áhugavert að vita hve marga "dóna" Silja stefndi út af umræðu í forhúðarmálinu sem hún vakti máls á þegar hún hélt því fram að hún hefði fengið hótanir út af málinu. Kannski missti ég af dómsmálinu??? Við vitum auðvitað vel hvernig flokkur Silju hefur hagað sér í varðandi moskumálið. Þótt Miðflokkurinn hafi klónast út úr Framsókn er þar með ekki sagt að hinir hefðbundnu Framsóknarfordómar og útlendingahræðsla sé ekki enn að grassera.
Hér er svo ágæt, stutt og laggóð grein eftir Dan Meyrowitsch um mýtur og sögusagnir varðandi umskurð drengja sem mikið voru notaðar af anstæðingum gyðinga og múslíma sem umskera drengi. Íslendingum væri hollt að lesa þessa grein
En ég leyfi mér því miður að hafa allan varann á hvað varðar háfleyg varnaðarorð Silju Daggar um lýðræði. Árið 2018 tilkynnti þessi lýðræðiselskandi kona heiminum í sambandi við tillögu sína um bann við umskurði:
I don´t see it as a religious matter
(sjá hér) og taldi þar með enga ástæðu fyrir sig að hafa samband við gyðinga né múslíma áður en hún fór í samningu umskurðabanns sem myndi fyrst og frems beinast gegn þeim. Það sýnir nú ekki beint ást á lýðræðinu að starfa á þann hátt, þegar maður vill ekki ræða við minnihlutahópa þá sem maður ætlar að banna að hafa í frammi trúarlegar hefðir. Vonandi veit Norðurlandaráð þetta um nýjan forseta sinn.
5.9.2019 | 07:40
As Nice as Ninepence
Aye, aye, how good it was to get General Pence, the Second Gunner in Command, to Little Iceland, instead of the Great Orange One and Top Gun, Donald. Even the gesticulations and body language of Pence was very similar to Saint Catherine, the Prime Mam of Iceland. Their common ancestry in Ireland was obvious to everyone.
After listening to Iceland´s secretary of State skinless speech for 40 minutes, Pence said: Is there a dermatologist in the house?
With a busy seven hour schedule in Iceland, Mike wasted no time. He mentioned Enemy # 1, not less than 28 times and Enemy # 2, 27 times. China seems to be the only thing on his Indiana mind.
We can thank 2d Gunner´s short visit to the fact that The Great Orange Leader is not of Icelandic extraction (thank Gott in Himmel für that). Donald never bought an estate in Iceland. Just arriving from the Emerald island of his ancestors, 60 year old Mike Pence, had no place to sleep at in Iceland. Saint Catherine modest home was not big enough for him, and after all some terrorist live in the block just across the street from Saint Chatherines Convent. During his stay in Ireland Mike insulted the Old country by insisting he wanted to stay on the Great Orange Leaders estate in County Balagan (see here). A sleep-over in Iceland was thus an impossibility.
The terrorist accross the street resently showed Saint Catherine some Pence self-defence tricks.
Well, to sum it up: It is so sad that Pence is not the president of the US. But who knows, he might turn to his Democrat roots in Columbus Indiana, when Big Orange fires him for blocking the filters in the huge jacuzzi at the Orange castle in County Balagan - with his balls - golf balls that is.
![]() |
Pence ávarpar fjölmiðla: myndskeið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 07:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2019 | 06:27
Looney British Politicians are still at large in the the EU - Please complete the Brexit!
British Liberal Democrat politician, Chris Davies, most notorious for his his blatant anti-Semitism, now chairs the Commission of Fisheries in the EU. On the eve of British EU-membership, Mr. Davies engages in bashing Iceland and Greenland for fishing mackerel.
Mr. Davies now threatens a new Cod-war against Iceland and uses similar hate-speech as he did in his Jew-hating heydays, ornate with gutter language and primitive threats of a cod-war against Iceland and Greenland (interestingly not against Russia).
In 2006 this sad and angry man from England was forced to resign as the leader of the British Liberal Democrat party in the European Parliament. The reason for the degradation was a series of anti-Semitic attacks:
Davies war forced to resign in 2006 due to the tone of multiple emails he exchanged with a Jewish constituent. Davies accused the Jewish constituent of "wallowing in your own filth"; accused Israel of "posing as a victim" while pursuing "racist policies of apartheid" and had written "I shall denounce the influence of the Jewish lobby that seems to have far too great a say over the political decision-making process in many countries." Party Leader Sir Menzies Campbell called his comments "unacceptable".
Davies statements now, regarding renewed British cod-war against Iceland is also totally "unacceptable". A politician, who is ready to start a war against a fellow NATO member-state because of fisheries, is a blowfish gone totally mad.
Now, after Chris Davies´ anti-Semitism, (not only bound to the Labour Party if someone ever believed that) Mr. Davies is mackerel bashing Iceland, Greenland and Russia. According to Mr. Chris Davies twisted fish-racism, the mackerel is supposed to be an all-European Union species, which probably travels the sees on a British passport, speaking Norwegian, but is also fluent in Danish and knows the art of Faroese deception.
Anti-Semite Davies is brexiting any time soon. His time as the cod-father of the EU commission on fisheries is over.
a
Does the EU want to maintain its totally destructive fishery policy and engage in a war with a 350.000 large populations which traditionally makes large part of its livelihood from fisheries? Is the luck of a still smaller nation, the Greenlanders, when the all-European fish mackerel dares to swim into Greenland waters, to be attacked by the EU in a cod-war. If so, let the British anti-Semites and mackerel-bashers loose and show us again the true face of the EU - expressing the only thing the EU seems to be good at in its enormous hypocricy: GREED.
![]() |
Reiðubúinn að beita Ísland þvingunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2019 | 06:38
Nú er það svart aftur, maður!
Ef "kerfið" á Íslandi hefur verið að flokka fólk sem "negríta", og hefur skráð hörundsdökkt fólk frá Afríku í þann flokk, er það bara enn eitt dæmi um furðulélega menntun á Íslandi, en einnig pólitíska rétthugsun sem farin er út fyrir allar villigötur.
Kona frá Suður-Afríku, eins og sú sem kvartaði yfir flokkun á sér í íslensku heilbrigðiskerfi, getur ekki verið negríti (Negrito), sem er flokkun á þjóðflokkum í Asíu, af mismunandi uppruna, sem sem eru dekkri á hörund en flestir aðrir á svæðunum umhverfis þá. Stundum eru negrítar í Asíu flokkaðir í mannfræðinni sem pygmear.
Illa menntað lið í læknastétt á Íslandi, sem þarf ekki lengur að læra latínu, hefur líklega ætlað sér að nota íslenskaða mynd af Negroid (negróíð) til að hitta á hinn rétta lit.
Aftur á móti er útí hött að banna sér og öðrum að nota ýmis lýsingarorð til að lýsa fólki sem er ættað eða frá Afríku og er dökkt á hörund.
Negrus á latínu og negros á grísku eru lýsingarorð sem fengin hafa verið að láni í fjölda tungumála. Ef menn vilja ekki að það orð sé notað um fólk frá Afríku, er til nóg af orðum sem enn er hægt að nota án þess að eiga á hættu málsókn. Annars endar þetta þannig:
Hann Óli er með konu, þú veist, sem er ekki eins bright og hann sjálfur.
Því miður hefur brunnið við, að amast sé yfir orðum sem hægt er að lýsa Afríkumönnum með. Einhvern tíma sá ég mikinn æsing hjá fólki sem ekki þoldi orðið þeldökkur. Það er hins vegar ekki hægt að nota einvörðungu fyrir fólk með Afríkuuppruna, því Indverjar og aðrir geta líka verið þeldökkir.
Konunni sem vitanlega leiddist að hún var orðin að negríto, þó hún sé bara frá Suður-Afríku en sé ekki pygmei frá Asíu, heitir upphaflega Surprise Manamela. Ætli það nafn hafi verið henni svo mikill fjötur um fót að hún varð að Evu Þóru Hartmannsdóttur? Mína svörtu sál grunar ýmislegt.
Ef ég er hvítur eða bleikur, er Eva Þóra Hartmannsdóttir Manamela svört, eða brún. Ég er hvítingi, hún er svertingi. Ég vil þó ekki láta kalla mig blanco frekar en hún vill kallast negro.
En er ekki hægt að slappa dálítið af, þegar N-orðið er annars vegar og hægt er að segja Fuckin´ N, ef maður er sjálfur hörundsdökkur?
Nú vill svo til að ég er með 3% subsaharan gen. Ég heyrði einu sinni af manni einum sem "sá svart" og byrjaði á N-orðaæði er hann fékk að vita það sama um uppruna sinn og ég. 3% subsaharan genamengi, sem ekki var villa í raðgreiningunni, urðu til þess að hann fór að hlusta á jazz og bannaði svö öllum að kalla sig negra, enda rauðhærður með gegnsæja húð.
Eins gott að ég þurfi ekki að fara í sykurþolspróf, þó ég sé ó léttur.
Svarthöfði, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, reyndi eitt sinn við asíata, eða var það mongólíti (mongoloid)? Reyndar var Svarthöfði vatnshöfði (hydrókeflvíkingur, samvæmt íslenska læknakerfinu). Plakat i eigu ritstjóra Fornleifs.
![]() |
Kölluð negríti í kerfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fáfræði | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.6.2019 | 14:36
Altin Türk tuvalet fircasi
Erdogan, hinn mikilfenglegi leiðtogi hins frjálsa og lÿðræðislega Tÿrklands, hefur lengi verið ásakaður um að vera með klósettsetur úr gülli í höll sinni. Hann hefur svarið og sárt við lagt, að það sé lÿgi, en neitar því hins vegar ekki að Tuvalet Fircalari, hina gylltu tyrknesku náðhúsabürsta, sé að finna í försetahöllinni í Ankara sem gárungar kalla Gÿllta Náðhúsið.
Í risahöll Erdogangs í Ankara eru hvorki meira né minna en 1000 herbergi, en ekki öll með gyllta klósettbürsta. Ütlendingar verða að skilja og virða, að þegar türkneskir karlar sjá uppþvottabürsta, þá krössa þeir sig þrisvar, því uppþvottabürstar eru einnig notaðir til að hreinsa klósett. Hvoruga þá iðju stünda türkneskir karlar eins og kunnugt er. Konur sjá einar um eldhússtörf og klósettvask í Türklandi.
Þegar einhver drüllusökkür frá Kömmúnistaflokki Kürda eru að göntast með klósettbürsta í Leifstöð, er fjondinn vitaskÿld laus. Menn eru skotnir eða pyntaðir fyrir að minnast á güllta klósettbürsta í türknesku forsetahöllinni. Svo ekki sé minnst á gÿlltu klósettseturnar sem geta valdi þjóðernishreinsunum.
Íslensk yfirvöld verða að ná í hrüðjuverkamanninn sem mundaði kürdískum klósettbürsta (tuvalet fircasi) og framselja hann til Ankara hið fÿrsta. Hann hefur móðgað hinn gyllta leiðtoga Erdogand með klósettbursta úr plasti. Allir vita að slíka bursta hefur Erdógan aldrei notað.
Fyrir þá Öslendinga sem vilja klósettbÿrsta eins og þá sem notaðir eru í höll Erdós, þá má kaupa þér hér.
Güllið líkneski af Erdógan í borginni Wiesbaden í Vestur-Türklandi.
![]() |
Málið til skoðunar hjá ráðuneytinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2019 | 09:33
Hvað ungur nemur, gamall temur
27. maí 2019 birti Morgunblaðið mjög endasleppta frétt, sem ekki sýnir mikla þekkingu á efninu eða tilburði blaðmanna til að kynna sér hvað hefur verið að gerast í Þýskalandi þegar kemur að nýlegri umræðu um gyðingahatur þar í landi.
Vitaskuld er gyðingahatur vandamál, en ekkert meira í Þýskalandi en í öðrum löndum. Gyðingahatur í Evrópu í dag kemur frá mjög mismunandi hópum: öfgamúslímum, vinstri mönnum, frá öfgahægrinu og fleirum.
Allir reyna að kenna einum aðila um og flestir gyðingum sjálfum. Gott dæmi um slíkar afsakanir eru háheilagar skoðanir eins fyrrverandi prófessors við HÍ, sem í ofanálag kallar sjálfan sig gyðingavin - og hann er hvorki öfgahægrimaður né íslamisti.
Greinin í Mogganum, sem athugasemd er gerð við hér, segir ekki frá orsökum nýjustu umræðunnar í Þýskalandi um vandamálið gamla, hatrið á gyðingum. Ástæðan er 40 bls. skýrsla sem Bundesamt für Verfassungsschutz í Þýskalandi gaf nýlega út. Hún er að mínu mati ekki nein algild skýrsla og verulega fræðileg er hún nú ekki. Hún bendi aðeins á vandamál, sem er gyðingahatrið á meðal Íslamista og þeirra sem styðja slíka hópa. Skýrsluna er hægt að hlaða niður hér og lesa. Hugsanlega geta sumir blaðamenn Morgunblaðsins ekki lesið þýsku. Fákunnátta skapar líka fordóma, eins og sumir við vitaum.
Skýrslan frá Bundesamt für Verfassungsschutz fór svo sannarlega strax fyrir brjóstið á íslamistum í Þýskalandi, jafnvel þeim sem kalla sig frjálslynda (liberal), því í Þýskalandi búa svo sannarlega öfgamenn sem nota trú sína sem afsökun fyrir öfgum og hatri.
Liberal-islamische Bund e. V./Ibis Institut für interdisziplinäre Beratung und interkulturelle Seminare gáfu út 178 bls. skýrslu nokkrum dögum eftir að skýrsla Bundesamt für Verfassungsschutz kom út. Hun ber heitið Empowerment statt Antisemitismus og er gefin út með stuðningi frá Bundesamt für Migration und Flüchtlinge (Federal Office for Migration and Refugees, BAMF). Hún er löng, og sýnist fræðileg, en full af villum og rökleysum, og ber þar að auki titil með hinu óþolandi tísku-nýyrðaskrípi "enpowerment". Hlaða má ritið niður hér.
Skýrslan frá Liberal-islamische Bund hefur hlotið mikla gagnrýni í Þýskalandi. Nefna má að Alan Posener stjórnmálarýnir hjá Die Welt, ritaði að gyðingahatur meðal ungra múslíma séu gamlir fyrirliggjandi fordómar, en ekki svar við múslímaótta og hatri (Islamófóbíu) líkt og skýrsla líberala múslíma heldur fram án nokkurra fræðilegra raka.
Stjórnmálafræðingurinn Hamed Abdel-Samad hefur einnig andmælt því að gyðingahatur múslíma sé komið til vegna múslímahaturs. Ef það væri tilfellið, skýrir Abdel-Samad, væri heimur Íslams laus við Íslamisma og gyðingahatur, einfaldlega vegna þess að múslímahatur er ekki til í löndum Íslams. Já, stundum hittir maður blessunarlega á múslíma sem hugsa rökrétt, með fullri virðingu fyrir öllum hinum (kannski var þetta einum of fordómafullt hjá mér, hhmmm?). Sjá viðtalið við Hamed Abdel-Samad hér.
Morgunblaðið þarf að ráða betra fólk til að skrifa fréttir um eins háalvarleg málefni og lægstu kenndir mannsins, Gamla hatrið. Þýskukunnátta er lágmárk.
![]() |
Sýna samstöðu með gyðingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt 29.5.2019 kl. 06:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2019 | 05:31
Brot úr kynningu íslenska síonistasambandsins á Hatara
Síonistasamband Íslands hefur á undanförnum vikum verið að kynna Ísraelsvinina í Hatara sem syngja munu Íslandi til sigurs á Eurovision í Ísrael. Benni Netsokkur-Jahoo, svindlmálaráðherra Ísraels, vinnur að sigri Hatara eftir skemmtilega íslenska glímu á bakgarðsknæpu í Netanya. Hér eru nokkur vel valin brot af síðu Síonistavinasambandsins:
Kynning á Hatara I
Í dag kynnum við Sturlaug Knút. Sturlaugur er sonur sendiherra Íslands á Englandi. Það er líklega þess vegna sem hann segir aldrei neitt. Það er best að halda kjafti, þegar þannig stendur á. Reyndar er sagt að hann sé hugmyndafræðingurinn á bak við allt gyðingahatur Hatara. Það er ekki rétt. Það er móðir hans. Takið eftir því að hann hefur fengið viðhafnarbúning föður síns lánaðan. Myndin hér fyrir ofan, lengst, lengst til hægri er úr ökuskírteini Sturlaugs. Sturlaugur er í bandalagi við Matta Broddason og Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman.
Kynning á Hatara II
Í dag er dagur Matta Broddasonar. Hann þekkti ekki muninn á Apartheid og Apartment fyrr en í nóvember 2018. Sólin er of sterk fyrir hann í Ísrael. Hann hefur fengið 3 stigs sólbruna og þurfti á húðgjöf að halda frá palestínskum albínóa (slíkt blæti er kallað Graft og skylt íslenska orðinu gröftur) Matti verður því aðeins klæddur gervihúð þegar hann gengur á svið í Tel Aviv og bjargar heiðri Íslands.
Þess verður að geta, at Matti er nú þegar orðin fyrirmynd barnahljómsveita víða um heim. Hér er síðasta afurðin frá Bandaríkjunum. Hatrið sigrar:
Kynning á Hatara IIIÍ dag kynnum við svo til sögunnar Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman, írskættaðan þrælablætisiðkanda. Finnur er sagður hafa vitið fyrir liðsmönnum sínum sem hafa laus málbein, enda er Finnur Klemman beislaðri en flestir. Mossad er fyrir löngu búið að sjá að Finnur Flannigan þolir illa að Matti Broddason troði sér alltaf fram í sviðsljósið og segir alls kyns rugl sem þeir höfðu bara ekkert fyrirfram planað. Planið var að Klemman hefði vit fyrir Matta. Sambandi Klemmans og Matta mun því eiginlega nú þegar vera lokið. Þeir tala aðeins við í síma. Þeir munu sækja um skilnað, en fyrst eftir að þeir eru komnir heim. Í Jaffa heyrðist Finnur GKB Klemman öskra á eftir Matta rétt eftir miðnætti 2. maí sl.: "Geturðu ekki skafið þetta yfirborðskennda aulalúkk af þér Matti Broddason, Sviðahaus. Ég hringi í Pútín". Matti glápti bara á hann með hangandi neðri vör. Matti ætlar sko ekki að eyða ævikvöldinu í Moskvuborg með Finni KGB Klemman í blokk með hommanjósnurum.
Ættfræðirannsóknir síonistasambandsins hafa sýnt að Klemman og Matti eiga ættir að rekja til sömu zýsku ömmunnar. Hún var í Hitler-Jugend. Mossad telur ömmuna vera afgerandi þátt í uppeldi Matta og Finns Kamban. Hún getur verið stolz.
Þegar allt lék í lyndi og rússnesku gallarnir voru aðalblætið.
Kynning á Hatara IV
Þetta er svo Glen Reimar Ramirez. Glen er blætisdrottning að sunnan. Hann fæddist með undravelsmurð liðamót, en er vita mállaus. Hann heyrir samt allvel. Slíkt blæti er kallað kraftaverk. Blætið er nú orðið aðalstarf Glens, en þrjá tíma í viku bindur Glen rúllupylsur hjá SS. Hann kann þá list. Hann er því eini liðsmaður Hatara sem hefur verið í röðum SS. Það veldur náttúrulega titrara í Tel Aviv, að SS-maður gangi þar á svið.
Það halda engin bönd Glen. Leyniþjónustu Ísraelshers grunaði að Glen væri hugsanlega tikkandi sjálfsmorðssprengjuatriði. En svo kom nú aldeilis annað í ljós. Glen snerist til gyðingdóms í síðustu viku, er hann hitti gay rabbína á hafnarknæpu í Hæfæ. Rabbi Sá(l) kenndi Glen Reimar að binda tefillin. Þetta er algjörlega ný nálgun á leðurböndin, sagði Glen Reimar í einkaviðtali við Gay and Jewish í fyrradag. Ef einhver er að velta því fyrir sér hvaða kjól Glen er í, já þá er þetta óhefðbundinn brúðarkjóll frá Ramalla. Fimm lítrar af hrágúmmíi fóru í gerð hans og einn hamborgari??. Hann er litaður með smokkfiskableki.
Alvitað er að gyðingdómur er trú leðurfíkla og blætis, eiginlega trú á öllu nema Gullkálfinum og Jesse litla Jósefssyni.
Kynning á Hatara V
Pálína Pisk og Gurrí Smæld eru gógópíur Hatara. Þær eru lausar í reipunum, enda báðar að Norðan, nánar tiltekið frá Akureyri eins og dönsk ættarnöfn þeirra gefa til kynna. Þær eru búnar að finna sér "GIMP" í Ísrael. Með því hugtaki kom Síonistasambandið af Fjöllum. En þetta mun vera nýyrði á Íslandi og mannanafnanefnd hefur samþykkt nöfnin Gimpi og Gimpa. Upphafleg þýðing orðsins er "viljugur leðurþræll" og er orðið komið úr perversku, Al Ghimpa. Gimp Pálu og Gurríar stundar apartheid í frístundum sínum. Hann gengur undir nafninu Trevor Spankovitz í borgarlegu starfi sínu, þar sem hann er njósnari hjá Mossad. Pálína og Gurrí vilja einnig eignast lítinn hund frá Gaza, en þeir hafa verið uppteknir við grimmilegar flugeldasýningar upp á síðkastið. Þeim lauk reyndar í bili, því ekki voru til fleiri gervilimir frá Íslandi
Kynning á Hatara VI
Umma Maja Nurraedda framleiðir sumt af því snakki sem hatari dreifir í Tel Aviv þessa dagana. Snakkið er ekki vita-kósjér, enda með svínsbragði og sýrðum raggeitarrjóma. Umma er með leðurböndin undir blæjunni. En í raun er þetta hún Leonice, indverska prinsessan. Hún fer í mál við alla á sviðinu.
Kynning á Hatara VII
Prófessor Baldur búktalari úr HÍhíhí og Konni dúkkan hans eru mikilvægir fyrir Hatara. Prófessor Baldur fór að hafa áhyggjur af því að Konni væri orðin að allrahandagagni á leðurbörum Tel Aviv. Í afbrýðiskasti þaut Baldur búktalari til landsins hans Helga og hefur nú raðgreint Eurovisjón númer Hatara fyrir RÚV og Konna. Niðurstaða Baldurs er sú að "öll utanríkisstefna Íslands sé innifalin í boðskap Hatara", ekkert meira né minna. Þá vitum við það. Prófessor Baldur, sem einnig telur launverslun við Ísland á 17 öld vera leiðarvísi að inngöngu Íslands í ESB, sér íslenska utanríkisstefnu í atriðið beislunga. Gott er að vita að maðurinn hans Baldurs hefur töglin og hagldirnar í þeirra sambandi. Spank on Konni! Sem aftanfrá hljómar betur: ! Innok no knaps, sem er reyndar bölvaður dónaskapur á litháísku. En það er alltaf gaman af honum, strákar.
Baldur og Jón Baldvin að kenna búktal, selshljóð og rassklípur við Sorbonne. Ljósmynd: Kölski.
Kynning á Hatara VIII
Jón Væni frá Patró er mest aftan sviðs, með kústinn langa. Jón var eitt sinn leðurþræll og skaufaskækja í klassískum blætismyndum í BNA, það sem kýrrassar fóru með stór hlutverk, en nú er hann mestmegnis í innflutning á gæðaleðurlíki og beislum í Þýskalandi. Hann hefur gert sér far um að að reyna að frægja Hatara. Það var því gustukaverk að ráða ræfilinn hann Jón.
Kynning á Hatara IX
Fan-klúbbur Hatara var formlega stofnaður í desember 2018 og heitir einfaldlega Hatari-Fan Club. Meira er ekki um það að segja.
Beltadýr Íslands munu nú sýna alheimi, hve vel beisluð og gegnsæ utanríkisstefna Íslands er. Heima á Íslandi bíða hins vegar annaðhvort flengingarólar í næstu viku eða Júróvisjón í Reykjavík að ári. Þá verður allt bandvitlaust og reimandi ruglað. Við verðum aldeilis að herða ólarnar ef svo illa vill til að Hatrið muni sigra. Þá verður líklega ekki ósniðugt að vera smokkainnflytjandi til að bæta kjör sín.
Menning og listir | Breytt 19.5.2019 kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.4.2019 | 06:19
Nautheimska
Þetta (opnið hlekkinn) er það sem ég kalla NAUTHEIMSKU: Jóhann Þórsson hjá Landgræðslu og Ólafur Ragnar Grímsson eru greinilega farnir að stunda skinheilagt nautaat. Ef Jóhann þessi ferðaðist minna á ráðstefnur erlendis og Óli hefði flogið minna á ævileiðinni, og þeir báðir ferðuðust með strætisvagni, væru þeir ekki bolast í nautpeningi sem aðalorsök losunar. Arfavitleysa í annars skynsömu fólki er stundum til vandræða.
Vel mætti minnka við sig í nautaati og græðgislegu hamborgaraáti, en heimsendaakstur Íslendinga og grillæði þeirra og annarra velmegandi þjóða er miklu verri en prumpið úr fjórfætlingum. Vitaskuld er unnið graslendi fyrir nautpening á CO2 eyðandi landsvæðum og skógum er eytt fyrir parketið ykkar. Það er mikið vandamál. Menn geta einfaldlega hætt að borða nautakjöt sem framleitt er á þann hátt og gengið út í búð til að kaupa naut, í stað þess að sendast á bílnum.
Óli og Jóinn hjá Landgræðslunni leysa einnig vind. Aukin grasafæða þeirra, þegar þeir eru hættir í wagyu nautakjötsátinu og gúllasinu, mun óefað auka metanlosun og valda heimshitnun. Tvískinnungur geldneytis í heimshitnunarbissnessinum er bölvað prump - og til vandræða.
Metan og önnur losun við nautakjötsframleiðslu, í t.d. aðalkapítalistalandinu BNA, er aðeins 2,3% af allri losun BNA. Ef slík framleiðsla er svo mikið til vandræða, er þá ekki best fyrir Óla og Jóa að hætta að drekka mjólk og éta skyr. Beljur reka álíka mikið við og þau naut sem verða að kjöti.
Mannskepnan ætti líklega að hugsa um að fækka sjálfri sér (á skynsamlegan hátt), því það er hún, en ekki nautið sem veldur heimshitnuninni.
Myndin efst er tekin af sökunautum undir eldfjalli. Er ekki best að banna eldfjöllin líka, fyrst nautheimskan er við völd - helvítis útgeldingana og túrhestana sem flykkjast til "hreina landsins" okkar í flugvélum og þeytast um í rútum og á bílaleigubílum. Það eru skepnurnar sem valda losuninni.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 06:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.3.2019 | 08:15
Nýtt flugfélag - VÖV air
Ágætu Íslendingar!
Ég leyfi mér að kynna hér stofnun nýs flugfélags sem (f)lýgur um allan heim, hvert á land sem er og með nóg rými fyrir höfuð, herðar, hné og rass, hné og rass. Flug félagsins er algjörlega vistvænt.
VÖV air er framsækið og háfleygt flugfélag sem notar 100% hreina orku, hugarorku. Hugarorka skapar hugarflug;(einnig er notast við örlítið danskt kartöflumjöl).
Flugfélag unga fólksins
Á tímum heimshitnunar og græðgi vex úr grasi ung kynslóð sem krefst þess að hún fái heiminn í sínar hendur í heilu lagi og betri en við skiljum við hann. Þessi kynslóð leggur áherslu á að lögð séu gjöld á þotueldsneyti eins og allt annað eldsneyti. Unga fólkið sem mótmælir of- og misnotkun auðlinda heimsins hefur talað. Hún vill ekki taka bílpróf eða fara í 5+ utanlandsferðir á ári líkt og foreldrar þeirra (eigingjarna og sjálfselska kynslóðin). Unga kynslóðin krefst hugarflugs. Það fær hún ódýrt hjá VöV air.
Hugarflug fer oftast fram á nóttunni, en þó geta menn einnig látið hugann fljúga með VÖV air á daginn, þegar það situr í strætisvagninum á leið til vinnu. Góð bók er ávallt góður félagi í flugferðum með VÖV air. En ein teskeið af kartöfluméli í glas af kranavatni fyrir svefninn eykur hugarflug. Kartöflumjöl er vistvænt flugeldsneyti. Það eykur upplifelsið í draumaferðum VÖV.
Meðan verið er að gera smálagfæringar á WOW vélunum, sem við fengum fyrir slikk, svo á þeim standi VÖV, er verið að búa til verðskrá. 97% skyndihækkanir á fargjöldum Icelandair, aðalsamkeppnisaðila VÖV air, verða skammvinnar ef Flugdólgsfélagið Icelandair vill vera samkeppnishæft. Icelandair mun vart geta hamlað gegn lágu verðlagi VÖV air.
Matur um borð
Vinir mínir í ferðaiðnaðinu hafa spurt mig, hvaða matur verður í boði í flugvélun VÖV. Því er auðsvarað. Fólk tekur bara kvöldmatinn sinn með sér heiman frá sér og skilar úrgöngum af sér eftir ferðina.
Mikið hefur þegar verið spurt um flugfreyjustörf hjá VÖV air. Atvinnulausum flugfreyjum er bent á að gera það sama og farþegar VÖV. Þær eiga að láta sig dreyma og muna að taka ekki of stóran skammt af kartöfluméli. Það er þó nóg pláss á milli sætaraðanna ef þær tækju upp á því að leggja sig út í draumaferðum VÖV air. Allt flug er Judy free flug. Vitaskuld leiðinlegt fyrir Judy, en svona er það bara einu sinni.
Aðeins einn flugmaður starfar hjá VöV Air. Hann er spænskur og heitir Don Emmanuel Delasonar.
Ég lofa ykkur svo myndum af innréttingum í íbúð minni, t.d. af sófaborðinu og útsýninu úr klósettglugganum. Ég er ekki með krana úr gulli, en alla úr platínum.
Flugfreyjur, taka ber fram: Ég er á föstu með með gömlu módeli, og henni verður ekki svo auðveldlega skipt út um sinn, enda væri það algjörlega andstætt stefnu VÖV air um endurnotkun auðlinda og 0-losun.
Flug VÖV eru Flugdólgalaus. Flug framtíðarinnr.
Flug unga fólksins
Útlendingum er ekki vísað úr landi með VÖV air.
Flugfélagið VÖV - Hugarflug - Engin losun eða losaraháttur
LÁTIÐ YKKUR DREYMA eða lesið góða bók.
FEEL THE VÖV FACTOR
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2019 | 09:24
Katrín give's a kiss!
Mikið er nú gott að Bjarni Ben er ekki forsætisráðherra Íslendinga. Ég segi ekki annað. Ég efast um að nokkur vilji gefa honum kinnkossa í ESB á tveggja daga broddana, nema kannski Macron.
Fréttaflutningur RÚV af ESB-stórfundi Katrínar sýnir óguðlega hræðslu Meðalíslendinga við alla líkamlega snertingu. Slíkt kemur ekki mjög á óvart í landi þar sem menn vildu senda prest í rafmangsstólinn fyrir að kyssa sóknarbörnin sín óhæfilega. Slíkt kalla sumir barnaníð. Sjálfur er ég ekki mikið gefinn fyrir kossaflens, en skil þó konur sem sækjast eftir því að faðma mig. Ég veit þó að í sumum sveitum landsins var hver koss talinn og færður til bókar þegar fylgst var með úr eldhúsgluggum. Kossar hafa alltaf verið sjaldséðir á Íslandi. Nóg er hins vegar til af öfund í alls kyns gerðum.
Ekki til í Tusk
Hæfæv við stýrimanninn frá Lúxemborg er bara tímans tákn, og Macron hinn franski hefði fengið lélegt fyrir heima hjá mömmu sinni, ef hann hefði ekki gefið fallegum forsætisráðherra frá Islande innilega kinnkossa. Konan mín segir að fréttaflutningur RÚV sé hrein öfund, og að hún vildi ekki fúlsa við kossi frá gríska sjarmörnum, en bætti því við hún yrði bara að sætta sig við það sem hún gæti fengið og átti víst við mig.
Hatursáróður gegn Katrínu sem nú sést mjög hjá Samfylkingarmönnum er mjög sjúklegur. Sjálfskipaður verndari allra góðra dyggða, Illugi Jökulsson, skrifar vart um nokkuð annað en um svik Kötu á Fésinu sínu og fjasar yfir greinilegum yfirburðum Katrínar eins og karlremba með pungsig.
Reyndar heyrðist þetta í þýðendabúrinu í ESB: Who is that intern sucking up to all the leaders? Kventúlkurinn sem sagði þetta hefur nú verið send heim fyrir karlrembutakta.
Öfund er leiðinleg og fer sérleyfishöfum íslenska réttlætisins illa.
Macarone, that cookie!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 4
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 1355359
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007