Leita í fréttum mbl.is

17. júní kveðja austur á land

gunnar_i_koningsberg_1238128.jpg
 

Í dag sendi ég Skúla Birni Gunnarssyni á Skriðuklaustri þjóðhátíðarkveðju:

Sæll Skúli og gleðilega hátíð í þessu fína veðri sem verður fyrir austan í dag!

Í dag hef ég ritað Harold Rhenisch vegna þess að hann notaði myndir af bloggi mínu, myndir sem ég tók á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn árið 2012. Ég ritaði einnig um þetta á smettiskruddu minni:

"I commented on Harold Rhenisch blog about Gunnar Gunnarsson. His blog was written when he was an author in residence at Skriðuklaustur in 2013:

Hi Harold, you have lifted photographs from my article on my blog:
http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/1257968/ the photograph in your article in 2013 has this name gunnar_hittir_hitler_1a_lille_1172715 which is the name I gave it in 2012 after I photographed it in a Nazi magazine at a Danish library.

gunnar_hittir_hitler_1a_lille_1172715.jpg

The SS officers on the left side of Gunnar Gunnarsson where neither Werner Best nor Otto Baum!!!

Please refer to my blog. The comparison between the "Zoo" in Buchenwald and the cheep fold of Gunnarsson in another of your entries
http://afarminiceland.com/.../gunnar-gunnarsson-and-the.../ is malicious and shows me that you have something to work on. Possibly your family's past."

Það syrgir mig að sjá hve erfitt er fyrir Gunnarsstofnun að segja rétt og satt frá hrifningu Gunnars af nasismanum. Hvenær birtið þið þessar myndir úr lífi skáldsins?

Þið megið vel nota allar myndirnar af Gunnari á bloggi mínu, sumar þeirra höfðu ekki verið notaðar á Íslandi síðan þær birtust í Þýskalandi árið 1940.

Bestu kveðjur,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

gunnar_in_gera.jpg
"Nú ætla ég að segja SS sögu af einföldum, íslenskum lömbum."

Einangrunargildi menningararfsins

b8b14cd6f3faf96f160992e243df0447

Þótt ýmsir telji björgun "Bergmannsbókasafnsins" sýna væg einkenni "hoarding disorders", tel ég að hún sýni frekar mikinn vilja og útsjónarsemi háttvirts menningararfsráðherra til að varðveita hlutunina, og það á ólíklegustu stöðum. Aðferðin í Efstaleiti er samt vonandi ekki sú sama og Menningararfsráðherrann ætlar að beita í núverandi starfi. En þegar þessi ríkisstjórn fellur einhvern tíma er líkast til best að leita skjala í öllum skúmaskotum.

Ef Sigmundur Davíð hefði getað troðið einhverju af því sem Þjóðminjasafnið kastaði út hér um árið sem einangrun í skúmaskot, ranghala og út á þekju hjá RÚV, hefði menningin verið ríkari.

"Samtíminn á erfitt með að meta virði hlutanna" eru vís orð Ómars Ragnarssonar, en þegar Þjóðminjasafnið hendir út nær 100 ára efni, sem hefur verið eigu Þjóðminjavarðar, á nútíminn enn erfiðara að skilja til hvers Þjóðminjasafnið eiginlega er.

Sigmundur Davíð menningararfsráðherra, sem á heiður skilinn fyrir góða einangrunarviðleitni sína á RÚV í Efstaleiti, er nú búinn að biðja Þjóðminjasafnið um skýringar á því sem gerðist þegar hluti af persónulegu söfnunarstarfi Matthíasar Þórðarsonar var kastað á öskuhaugana árið 1992.


mbl.is Sigmundur: Kassarnir voru 55
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moskan og ruglið

47787_590_415_0_0_0_0_3.jpg

Í umræðunni um moskuna í Sogamýrinni,  hafa fjölmiðlar og ákveðnir aðilar gegnið mjög langt til ná athygli og með furðulegustu staðhæfingar. Framsóknarflokkurinn fékk tvær konur inn í borgarstjórn vegna haturs sem greinilega ríkir í þjóðfélaginu.

Um daginn dró blaðamaður á DV meira að segja fyrrv. arabískan prins sem áður hét Abdallah inn í umræðuna. Hann átti að geta sagt eitthvað um Framsóknarflokkinn, sem hann var í kjöri fyrir. Nú er komið að Sigþrúði hjá Kvennaathvarfinu. Hún dregur inn sundurbarðar "múslímakonur". DV vitnar svo í athyglissjúkan ítalskan félagsfræðing sem heldur því fram að múslímar séu gyðingar 21. aldarinnar, að samfélagsleg staða þeirra sé sú sama og á meðal gyðinga á 19. öld. Langt er seilst!

Sigþrúður er væntanlega að tala um allar thailensku konurnar á Íslandi sem sumir íslenskir karlar fara vissulega illa með.

Margar þeirra eru múslímar. Ég hef einhvers staðar lesið að stór fjöldi kvenna í kynlífskössum Pattaya og Phuket séu múslímar og þangað sendar/seldar af fátækum foreldrum eins og aðrar konur, t.d. þær sem eru Búddatrúar. Dætur ríkra múslíma vinna einnig í þessum "iðnaði" og hafa valið þann veg til að komast hjá að bera hijab eða annan klæðnað. Sýn þessara kvenna á Íslam er líklega ekki sú sama og þeirra múslímsku karla sem í skynheilagleika heima í Arabíu eru góðir feður og eiginmenn, en á Phuket eru þeir kynlífsfantar sem ætlast til þess að þrælar þeirra séu múslímar og undir lögaldri.

Þegar konan er svo orðin "of gömul" fyrir kjötmarkaðinn er hún stundum seld útlendingum, t.d. Íslendingum sem gat ekki náð sér í íslenska konu, m.a. vegna fátæktar eða annarra samfélagslegra eða persónulegra vandamála, sem m.a. hefði hugsanlega gert að verkum að hann hefði barið hvaða konu sem var, íslenska eða múslímska. 

Ég efast um að margar sundurbarðar thailenskar konur sem eru á pappírnum múslímar komi í bænahús múslíma á Íslandi í dag. og þess vegna þykir mér mjög leitt að sjá forstöðukonu kvennahvarfsins skora "billeg" stig í hinni sýktu umræðu sem hefur verið um moskumál á Íslandi. Moskan rís og þar mun verða boðuð skoðun Íslam á konum

Íslensk lög veita mönnum rétt til að reisa mosku, lóð hefur verið lofað og það loforð er ekki hægt að taka til baka. Á Íslandi gilda íslensk lög, Ef Íslendingar hatast út í mosku og múslíma eru þeir í vissum tilfellum að brjóta gegn ákvæðum í hegningarlögum og ef Múslímar gera það sama þegar þeir koma með hatursfullar yfirlýsingar í garð ákveðinna þjóða, verða múslímar á Íslandi að búa sig undir að fylgja íslenskum lögum. Ef heiðursdráp verða framin á Íslandi, líkt og þau hafa verið framin á öðrum Norðurlöndum, eru  það íslensk lög sem dæmt er eftir, en ekki eftir skoðunum Sigþrúðar.

Sundurbarða múslímska konan á Íslandi er múslími að nafninu til, en þegar hún verslar í matinn í búð í Reykjavík er hún bara "tæja". Einu sinni heyrði ég íslenska konu á sextugsaldri segja í Hagkaupum í Kringlunni, svo allir kringum hana heyrðu mætavel "Sjáiðið helvítis tæjurnar, nú er kjöt á tilboði".

Myndin efst ef frá Danmörku og sýnir upptöku á heimildakvikmynd um Ghazala Khan sem tekin af lífi af bróður sínum eftir samantekin ráð fjölskyldu þeirra árið 2005. Aftakan fór fram fyrir framan lestastöðina í Slagelse á Sjálandi. Sök Ghazölu var að verða ástfangin af og giftast manni frá Afganistan. Ghazala var ættuð frá Pakistan (sjá hér).  Það er nefnilega ekki sama hver múslíminn er. Ég hef sjálfur heyrt múslímska menn tjá sig um þeldökka og austurasíska múslíma eins og þeir væru annars flokks fólk. Það er nefnilega til gott "Framsóknarfólk" víðar en á Íslandi, sem stundar skyldleikarækt á fullu í nafni óskrifaðra laga og trúar.


mbl.is Íslenskir karlar beita ofbeldinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styðjum mosku í Langjökli

achinesenewyearitinerary4grouptourchina-55011245328438_800_600_1236931.jpg

Ég er mikill stuðningsmaður Mosku í Langjökli. Farið á Facebook og lækið "Moska í Langjökli" eða gerist félagar í stuðningshóp við "Mosku í Langjökli".

Ég skil ekkert í mönnum að gleyma mosku og öðrum trúarhofum í Langjökli. Verða ferðamennirnir í jöklinum bara harðfreðnir og kaldrifjaðir Lúterstrúarmenn? Hvað var Ari Trausti eiginlega að hugsa? Eins miklu og gyðingar hafa eitt í íslenskan ferðamannaiðnað, er líka það minnsta sem hægt er að gera að ráða rabbí Eisberg til að þjónusta í jöklinum.

Svíar kunna sig. Þeir tilkynntu fyrir nokkrum árum að þeir ætluðu að reisa mosku úr ís. En einhver trúfræðileg túlkunarvandamál hafa komið upp, því moskur mega ekki bráðna.

saenskismoskaeftirleysingar.jpg
Sænsk ísmoska eftir leysingar í vor.

Nótt í Moskuborg


Eitt sinn einn ég gekk yfir Lækjartorg,
og mér fylgdi undarleg sorg.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í moskuborg.

Seinna sat ég einn grænum garði í,
fuglar sungu dirrindídí.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í moskubý.

Allt í einu ég unga stúlku sá,
sem þar stóð og starði mig á.
Bak við burkuna, með sinn rósamunn.
Það var maíkvöld við mosku þá.

En tálsýn var það, Sveinbjörg var sú sprund,
heltekið hafði mig um stund.
Bak við slæðuna, með sinn sóðaskap.
Þar var svínshaus á moskugrund.


Íslenskt þjóðfélag er skopmynd

getfile_php.jpg

Allt er að verða vitlaust út af Ku-Klux-Klan teikningunni í Fréttablaðinu. Vissulega er þetta frekar klén teikning. Dagur er líka illa teiknaður og líkist mest Bryndísi Skram án brjósta. Hægra megin við Sveinbjörgu stendur maður sem stutt hefur Hamas. Enginn hefur sett hann í Hamasbúning á skrípamynd, þó hann styðji samtök sem beita sér fyrir eyðingu Ísraels og gyðinga, líkt og Hitler. Erfiðleikar Sóleyjar Tómasar við að eignast karlkyns afkvæmi vegna þess að hún ólst upp við eintóman kvennafans, var víst líka tilvalin skrípamynd sem aldrei birtist.

Palestíslendingar
Gott ef Georg Bjarnfreðarson er ekki líka orðinn Palestínumaður.
Nei, þessi í bláa jakkanum við hliðina á Hamasmanninum er líklega tvífari hans ... eða hvað, er þetta mákse nýja lookið hans Jóns Gnarrs?
 
Versti rasistinn í íslenskri pólitík, fyrr og síðar, var líklega Jónas Guðmundsson, sem var STÓRKRATI. Aldrei var teiknuð skopmynd af honum í gervi Ku-Klux-Klans. Enginn hefur teiknað ljótar myndir af Hermanni Jónassyni, sem persónulega beitti sér fyrir útvísun gyðinga frá Íslandi.
mynd_jonas_gu_mundsson.jpg
Jónas gaf út andgyðingleg rit í áraraðir og var jafnframt Krati, sat á Alþingi og var embættismaður í Reykjavík og sat í alþjóðlegum nefndum fyrir Íslands hönd. Logið er um sögu hans á síðu Alþingis. Yrði ekki allt vitlaust ef ég skellti lítilli hormottu a la Hitler á yfirvörina á Nasa?
 

Jú, skopmyndin af Framsóknarkonunni sem komst til "áhrifa" með hjálp Allah er afar óvönduð, sama hvaða skoðun maður hefur á mosku. Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins verður að gera sér grein fyrir því að aumkunarverðu lýðskrumi Sveinbjargar er ekki hægt að líkja við Ku-Klux-Klan. Kanahatur vinstrimanna hér um árið var líka kynþáttahatur að hluta til, þegar þeir sungu í kór um blessuð börnin sem fæddust uppi á Miðnesheiði:  "Ekki plagar okkar þjóð, vakkfódedillafodædódey, úrkynjun né gamalt blóð, því börnin fæðast brún og létt, með boginn fót og trýnið grett, sem Filippseyjafólkið nett".

Gleymum heldur ekki, að Sveinbjörg Slæða hefur reyndar áður gengið með eins konar slæðu. Hún vann fyrir Air Atlanta í Jeddah. Ekki kvartaði hún þá yfir múslímum, þegar þeir borguðu henni laun.

Er ekki vandamálið einfaldlega það að Íslendingar hafa upp til hópa verið útlendingahatarar og eiga erfitt með að viðurkenna að þeir eru nýlosnaðir úr hlekkjum fortíðarinnar?

Ruben og Felix 3
Af hverju var fjölskyldu Felix Rottbergers vísað úr landi? Felix var fyrsti gyðingurinn sem fæddist á Íslandi. Hermann Jónasson sá um að koma fjölskyldunni úr landi. Við tóku miklar hörmungar fyrir fjölskylduna í Danmörku, sem lesa má um í bók minni Medaljens Bagside. Myndin er tekin af syni mínum Ruben og Felix, þegar Felix heimsótti mig hér um árið til að tala í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn. Honum hefur hins vegar aldrei verið boðið til Íslands, landsins sem losaði sig við hann og fjölskyldu hans.

Píratar falla í sjóinn

bean-pirate-of-the-caribbean_1236801.gif

Nú er Jón Þór Ólafsson á förum úr pólitík og Píratar höfða ekki til fólksins í minni plássum landsins. Það hefur alltaf verið grunnstefna Pírata að þeytast yfir höfin á hriplegu skipi; Að ræna fólki, selja það í ánauð og krefjast lausnagjalds- og fara svo á tréfætinum í malbikun á strætum Barbarísins og drekka romm með páfagauknum Pollý á kvöldin. Það er öllu skemmtilegra en að vinna á geðveikrahæli þar sem menn eru við það að hengja sig í bindum. Ship ahoy.

Eftir að moskan hefur verið notuð sem tromp af Framsókn er engin leið að bjarga þessum flokki.

Gaman verður þó að sjá boðaða reynslusögu sjóræningjans úr höll fáránleikans við Austurvöll.

Bless Short Jón Silver.


mbl.is Hyggst hætta á Alþingi eftir ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í tísku að vera hreinræktaður

ilkrsbuc1qjzi.gif

Egill Helgason er ekki hreinræktaður. Það fullvissaði hann lesendur sína um nýlega. Eftir að hafa athugað ættir Egils, finn ég hins vegar enga löglega útlendinga, síðustu 25 ættliðina. Ég hringdi í Kára klón, sem gat staðfest þetta. Rauði liturinn í hárinu á Agli er frá Schwartzkopf en genin undir í gráa hárinu eru öll komin frá Noregi. Ekkert keltakyns fannst í vessum Egils.

Sem útlærður Mischlingseksperte skoðaði ég málið nánar, og tel nú ljóst að Egill sé mjög blandaður, þrátt fyrir allt. Þegar maður skoðar fingra og handapat Egils sér maður glögglega frönsk einkenni. Svona handapat er afar óskandínavískt og gerir það að verkum að ég gef hér með Agli "Keinarierattest". Egill er algjör blöndungur af 1. gráðu.

Ef Framsókn á að eiga sjens á því að fá mann inn á Íslandi í dag, verða menn að læra að tala svona með höndunum.

Egill, vais vous envoyer la facture la semaine prochaine.


Nye tegn i latten

Ny latte i Island

Kære Radikale Venstre,


I har et problem.  Op til det islandske kommunevalg i 2014, som afholdes den 31. maj, fører jeres søsterparti i Island, Framsóknarflokkur, politik i forhold til muslimer, som ikke kan siges at være forenelig med de principper som Radikale Venstre følger.  Partiets spidskandidat i Reykjavík har bebudet, at hun ønsker en beslutning fra det nuværende bystyre i Reykjavík omstødt. Bystyret havde givet en matrikel til Reykjavíks knapt 400 muslimer så de kan bygge sig en regulær moske. Blandt islandske ekstremister førte det til primitive aktioner med grisehoveder som blev placeret på matriklen og griseblod stænkedes på grunden.  Nu ønsker jeres søsterparti, at muslimer i Island ikke får den lovede byggegrund, og ser derved ud til at øge sin popularitet som før denne sag var næste lige med nul.

Én kandidat, blandt partiets kun to kandidater som har trukket sig ud af kandidaturet til bystyret, har oplyst, at partiets øvrige medlemmer bruger nedværdigende betegnelser for muslimer til partiets lokalafdelings møder. Der kalder man muslimer konsekvent for "muslemmer" (múslimir).

Ganske vist har Framsóknarflokkur en dyster fortid som det parti som mest førte sig frem mod statsløse jøder der kom til Island i 1930erne. Partiets ministre var selv aktive i udvisning af jøderne. I 1930erne, da Framsóknarflokkur var Venstres søsterparti, ville det ikke have været unaturligt for partiet at stå de Radikale Venstre nærmere, men Danmark besattes af tyskerne og de Radikale samarbejdede så flot med det Tredje Rige mens Briterne kom til Islands, hvor Framsóknarflokkur og andre i Island surmulede over at Hitler ikke bankede på hos dem.

Er Framsóknarflokkur værdig som det Radikale Venstres søsterparti, når de ikke deler det syn på ligeret og religionsfrihed som søsterpartiet i Danmark har? Bør Radikale Venstre ikke tage kontakt med sit søsterparti, for at undersøge, hvad der foregår i Island? Bør Radikale Venstre ikke afslutte sit søstervenskab med partiet Framsóknarflokkur?  Er det virkelig Radikal Venstres "søsterpolitik",  at modsætte sig religionsfrihed og bruge hadet mod et religiøst mindretals gudsshus som stemmesluger ved et kommunevalg?

Med venlig hilsen,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, ph.d.

Albertslund


Er Egill Helgason sorry ?

ilkrsbuc1qjzi.gif

Kennari einn sem heitir Hilmar, sem oft veður upp á bloggsíðum manna með hræðilegum gífuryrðum, æstist mjög um daginn þegar ég skrifaði um moskusvik Sveinbjargar framsóknaroddvita.

Ég er reyndar fyrsti Íslendingurinn, sem ég veit um, sem í riti hefur stungið upp á mosku, en ekki Illugi Jökulsson eða Egill Helgason. Ég reit í Moggann í svari til íslensks kynþáttahatara, n.t. 14. des. 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

egill_i_brotajarni.jpg

 

Hinn ofsafengni kennari, Hilmar, sem á stundum er stuðningsmaður Hamas og yfirlýstur gyðingahatari kallaði mig öllum illum nöfnum. Hann hefur t.d. kallað mig "gyðingaósóma".  Eftirá, þegar æðið rennur af honum,  neitar hann því að heita Hilmar og þvertekur fyrir að hann sé kennari. Hann er þó enn ekki búinn að neita því að hann sé Lionsmaður.

Ég fer ekki ofan af því að andstaða við mosku, sérstaklega mosku sem gefin hefur verið lóð, sem svo á að taka aftur frá söfnuðinum, sé ekkert annað en einhvers konar fordómar. Andstaða sjálfs míns við moskur birtist aðeins þann dag þegar þar verður boðað það hatur sem margir vinstrimenn eru haldnir, en því miður er sögufölsun orðin hluti af trúariðkunum íslensk múslíma (sjá hér). Ég hef þegar látið í ljós skoðanir mínar á síendurteknum kynþáttafordómum þjóðkirkjunnar sem birtast í Passíusálmunum og ég vona að ég þurfi ekki að gera það með múslíma.

Egill Helgason, sem nú biðst auðmjúklega afsökunar fyrir að kalla saklausa konu "rasistakellingu", skeit mig reyndar einnig út á áföllnu Silfrinu árið 2005 með röð lyga. Hann skrifaði m.a. : "Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson komst í fjölmiðla í Danmörku fyrir nokkrum árum þegar hann reyndi að fletta ofan af framgöngu Dana gegn gyðingum. Eins og kunnugt er voru danskir gyðingar ferjaðir yfir sundið til Svíþjóðar haustið 1943 og björguðust flestir með þessum hætti. Vilhjálmi taldi að þessir atburðir hefðu tekið á sig mynd goðsagnar og vildi fá að komast í skjöl útlendingaeftirlitsins til að sanna að í Danmörku hefði verið rekin andgyðingleg stefna. Úr þessu varð talsverð rekistefna." (sjá hér)

Egill birti líka þessa andgyðinglegu óþverragrein sína á visir.is og í DV þann 2.5. 2005.

Hálfum mánuði eftir að Egill Helgason níddist á mér og reyndi að gera lítið úr starfi mínu og rannsóknum, kom út í Danmörku tæplega 500 síðna bók mín Medaljens Bagside. Bók mín, sem fjallaði um flóttamenn af gyðingaættum og aðra sem Danir vísuðu úr landi, fékk mikið lof, reyndar svo mikið að sumir danskir sagnfræðingar, sem reynt höfðu að setja stein í götu mín til að hindra að ég gæti rannsakað efnið, reyndu síðar að ræna heiðrinum af uppgötvunum mínum.  Þegar dönsku dagblöðin fóru að greina frá bókinni, áður en hún kom út, bað forsætisráðherra Dana um eintak af henni, og hjólaði ég sjálfur með bókina í ráðuneytið. Ráðherrann vitnaði svo í hana í Mindelunden 4. maí 2005 við árlega minningarathöfn um lok þýska hernámsins í Danmörku, þar sem hann bað gyðinga afsökunar á þeim glæpum sem fyrirrennarar hans höfðu framið og sem ég greindi frá í bók minni. Egill hefur aldrei beðið mig afsökunar fyrir að svína mig til.

Egill er, eins og allir vita, einn af aðalsérleyfishöfunum á sannar og réttar skoðanir á Íslandi. Slíkir menn biðjast sjaldan afsökunar, og ef þeir gera það, meina þeir ekkert með því.

Einhverju sinni sagði ég frá því á Silfri Egils, að blússöngvarinn Bill Bourne í Kanada væri frændi minn. Bill er afkomandi Stephans G. Stephanssonar og Stephan G. og langafi minn Þórður Sigurðsson voru systrasynir (sjá hér). Viðkvæði Egils var: Aumingja Bill að eiga svona leiðinlegan frænda". Sjá hér.  Egill fór svo í að fjarlægja ónotin af Silfrinu, en það var um seinan eins og sjá má hér fyrir neðan. Dónaskapurinn hafði verið afritaður. Enga afsökun sendi Egill til mín eða Bills.

egils_rau_aritsko_un_1236157.jpg
 
Látum Bill frænda ljúka þessum pistli 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband