Leita í fréttum mbl.is

Hryðjuverkakanína

 

Killer rabbit

 

"Ef þeir gera það aftur mun ég drepa þá, bara. Ég mun bíta þá bara, og drepa þá", segir bleika kanínan Assud við hrjáðu börnin á Gaza.

Það eru Danir og teiknarinn Kurt Westergaard, sá er leyfði sér að teikna Múhameð, sem blessuð börnin eiga að bíta og drepa. Bleikar kanínur víst ekki lengur eins velkomnar og áður í Danmörku.

Kanínan Assud er meðlimur í hryðjuverkasamtökunum Hamas og hans æðsta ósk er að verða hryðjuverkakanína og píslavottur. Hann hefur sagt börnunum á Gaza að hann verði brátt hjá Allah í Paradís og að tígrisdýr muni leysa hann af í heilþvættinu. Sjá meira hér.

Ég veit ekki hvert þið munið eftir músliminum Farfur sem starfaði fyrir Hamas áður en hann dó. Reyndar urðu ævilok hans alveg gazaleg. Börnunum var sagt að hann hefði dáið píslardauða. Mýslupíslavotturinn Farfur var nefnilega, að sögn Hamassjónvarpsins, hnepptur í fangelsi af Ísraelum, og þar var hann auðvitað myrtur af vondum Gyðingum.

Svona er nú barnaefnið á Gaza. Þetta er einhver sjúkdómur.

Einhverjar athugasemdir frá Hamas-verjum og stuðningsmönnum á Íslandi? 


Nú fer hver að verða síðastur

kosovo-urine

Nú fer hver að verða síðastur, segir Ingibjörg Sólrún mannalega.  Hlustið.

Myndin sýnir ungan Kosovobúa (múslíma) taka mynd af félaga sínum sem kastar af sér vatni í gátt kirkjurústar í bænum Prizren í Kosovo. Múslímar voru nýbúnir að brenna kirkjuna til kaldra kola. Myndin var tekin 22.3.2004.

Þetta er bara lítið dæmi um frelsisbaráttu Kosovo á síðustu árum. Margt ljótt gerðist á þessu svæði fyrir rúmum 10 árum. Enn er um 7000 Kosovo albana saknað eftir útrýmingarherferð Serba.  Margt ljótt gerðist einnig á þessu svæði í 2. heimsstyrjöld. Þáttur Kosovo-albana í SS var ógeðfelldur.

 

Kosovo SS

 

Hvernig haldið þið, góðir Íslendingar, að 40 síðustu gyðingunum í Kosovo í Prištinu hafi verið innanbrjósts árið 1999, þegar þýskir NATO [KFOR] hermenn flæmdu þá burt úr héraðinu ásamt öðrum ekki-albönskum íbúum héraðsins? "Ausweis, AUSWEIS, -- raus, RAUS".

Hér eru aðrar myndir af ungum múslímum í kirkjunni, sem þeir höfðu rústað,  og af gröf heilags Jóhannichusar. Jarðneskar leifar þessa dýrlings frá 15. öld voru rifnar upp úr gröfinni og brenndar af múslímum. Yfir 30 kirkjur og klaustur í Kosovo urðu meiri eða minni eyðileggingu að bráð 17. og 18. mars 2004. NATO gat "ekkert" aðhafst. Hvernig verður það í frjálsu og NATO-lausu Kosovo.

Hlegið í kirkjunni

 

Gröf Heilags Jóanichiusar

 

Að sögn utanríkisráðherra Íslands er mjög brýnt að samþykkja sjálfstæði Kosovo héraðs.

Að mínu mati er stundum hægt að flýta sér of mikið.

Ég held stundum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi ekki hugmynd um hvað hún er að gera. Hver ætli sér fræðilegur ráðgjafi hennar í málefnum Kosovo?


Dagbók Debóru

 
bighiwis06

 

Dagbókarbrot ungrar stúlku, Debóru, hafa nú verið birt. Enginn veit hver Debóra var, en hún var enn á lífi í gettóinu í Varsjá í janúar árið 1943. Þá hafði flestum föngum í gettóinu verið smalað í dauðann í útrýmingarbúðum.

Dagbókarbrotin fundust í rústum Varsjár árið 1945 og voru geymd í áratugi af annarri stúlku sem komst lífs af. Dagbókin var ekkert annað en brenndar og samanlímdar tætlur, sem varla var hægt að lesa stafkrók í. Árið 1998 var dagbókin afhent United States Holocaust Memorial Museum í Washington til varðveislu. Forvörður við safnið í Washington uppgötvaði, þegar hún var að leysa í sundur brenndar og samanlímdar síður með vatni, að hægt var að lesa textann að einhverju leyti þegar blaðsíðurnar voru blautar. Hún tók því myndir af vatnsósa blaðsíðunum og kom þeim til þýðenda.

dagbókin

Hér hægt að lesa textann á ensku. Hér og hér eru blaðafréttir um dagbókina.

Eigið það við ykkur sjálf, ykkur sem finnst þessi dagbókarbrot eitthvað sem þið þurfið að líkja saman við "ástandið" á Gaza. Mikið eigið þið þá bágt.

Ghetto Börn

 


Belgurinn er lentur

 

Belgurinn er lentur

 

Fæst í næstu búð í Sagan Öll, tímaritinu hans Illuga Jökulssonar.

Sagan öll

Það má auglýsa á blogginu, er það ekki? Ef þið viljið ekki þessa auglýsingu fyrir Sagan Öll, getið þið bara sent mér 300.000 krónur og hana nú!


Stuðningskona hryðjuverka í boði utanríkisráðherra

 

Í síðustu viku hélt Utanríkisráðuneytið fund  þar sem aðalræðuhaldarar voru ísraelski blaðamaðurinn Anat Saragusti og mjög náin vinkona hennar palestínsk, Maha Abu Dayyeh Shamas. Þær kalla sig baráttukonur fyrir frið og eru femínistar með stóru F-i.

Maha Abu-Dayyeh Shamas er þekkt fyrir þessa yfirlýsingu, sem að mínu mati gerir hana að stuðningsmanni hryðjuverka:

"Palestinian society regards female suicide bombers the same way as they regard the men, which is they are heroines," Maha Abu-Dayyeh Shamas, director of the Women's Centre for Legal Aid and Counselling in Jerusalem told IPS. "They have sacrificed their lives for the public good. They have made a statement about the inhuman and intolerable situation.  Most people feel sad that young people have to pursue this approach, she said, "but the situation is so difficult that people understand why a young person has to do this. It's so frustrating. It's so de-humanising. It's so hopeless."  Sjá nánar hér .

 

Morðkvendi eða hetja

Hetja samkvæmt sérfræðingi í boði íslenska utanríkisráðuneytisins. Þessi 29 ára kona myrti 19 manns í Haifa árið 2003, þar á meðal börn. Átti hún ekki annarra kosta völ?  Hún var að sögn femínisti, hetja, og sjálfsmorðsmorðingi í tengslum við írönsk samtök.

 


Ormagryfjan í Valhöll

 

Vilhjálmur í Valhöll

 

Nú er Vilhjálmsfóbían komin á hættuleg stig í Sjálfræðisflokknum. Nafni minn má nú ekki sjást í ýmsum hverfum borgarinnar. Fólk er hætt að tala við hann. Eitthvað hverfafélag vill ekki sjá hann sem borgarstjóra og fólk er hægt að skíra börnin sín Vilhjálm.

Hverfafélag. Það hljómar nú annars eins og eitthvað úr Moskvu á 6. áratugnum. "Hverfafélagið Stjarnan harmar að Samfylkingin sé í fýlu" og "hverfafélagið Hvöt hvetur hverfiskonur að láta Vilhjálm hverfa hvað í hverju, Kveðja Hanna". 

Nú er orðið opinbert, það sem svo sem áður var vitað, að það er kvennabylting, einhvers konar hystería, í gangi í Sjálfstæðisflokknum eins og annars staðar í þjóðfélaginu. "We can do it without a Willy".

Hanna Birna - eina blondínan í boði. Ekki er ástandið gott. Ætla konur virkilega að gera gamlan gaflara að borgastjóra í Reykjavík?

Innri baráttan í Sjálfstæðisflokknum er greinilega miklu eitraðri en 1000 flokksbundnir blaðamenn í Vinstri Grænum.

 


mbl.is Hverfafélag vill ekki Vilhjálm sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísindavefurinn svarar

 

Gyðingur

Tvo menntskælinga langaði árið 2006 mjög mikið til að fræðast um uppruna og aldur orðsins gyðingur. Þeir sendu þess vegna spurningu um það til Vísindavefs HÍ.  

Spurningunni var beint til Guðrúnar Kvarans prófessors, forstöðumanns Orðabókar Háskólans.

Guðrún greindi ekki frá heimildum fyrir notkun orðsins gyðingur, en hafði aftur á móti þessa skýringu fram að færa:

"Neikvæða merkingin í júði á líklegast rætur að rekja til þess að gyðingar sem stunduðu viðskipti víða um heim á síðari öldum, þóttu erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar og efnuðust oft vel. Þetta litu aðrir hornauga og farið var að nota jew, jøde, júði í neikvæðum tón um kaupsýslumenn af gyðingaættum. Hin neikvæða merking sem Jude fékk í Þýskalandi á árunum milli stríða og í síðari heimsstyrjöldinni er af öðrum toga og var tímabundin. Hún náði yfir allt fólk af gyðingaættum, ekki aðeins kaupsýslumenn"

Ég hef áður séð fræðilegar strandsiglingar á Vísindavefnum, en þetta svar Guðrúnar Kvarans er eitt svæsnasta dæmið sem ég hef séð.

Hin neikvæða merking Jude, sem nasistar gáfu orðinu, lifir góðu lífi, meðal annars á Íslandi. Á Íslandi hefur orðinu gyðingur líka verið núið um nasir danskra kaupmanna sem illyrði, þó svo að  þeir væru ekki hið minnsta gyðinglegir. Svo sér maður meira að segja nokkra kolruglaða afkomendur þessara dansk-holsteinsku ætta gagnrýna Ísrael með þeim rökum að þeir megi það vegna þess þeir séu af gyðingaættum.

Þegar 80% Austurríkismanna nútímans líkar ekki við gyðinga (Juden), er víst ekki mikið sem hefur breyst frá tímum Hitlers og þeirra sem heilluðust af honum. Þegar arabar og aðrir múslímar tala enn um Yahudi og tyrkir um Musavi sem asna, svín og apa og vilja útrýma þeim er ekkert nýtt undir sólinni. Löngu áður en orðin Jude, Juif eða Jew voru tengd okurkörlum, voru kirkjufeður,  biskupar og páfar búnir að kjöldraga gyðinga, svína þá til og ljúga öllu illu upp á þá í nafni trúar sinnar og heilagrar kirkju.

Það er kannski ekki nema von að velkristinn prófessor orðabókar á Íslandi sýni fullkomið þekkingarleysi á menningarsögu álfu þeirrar sem hún býr í, þegar hún er á þeirri skoðun að notkun orðanna gyðingur og júði hafi mótast af því að gyðingar hafi þótt "erfiðir viðfangs, verið nískir okurkarlar sem efnuðust vel". "Aðrir litu gyðinga hornauga" fyrir þetta segir Guðrún Kvaran. En ætli einhverjir kristnir menn hafi ekki líka verið erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar sem efnuðust vel. Get ég nefnt nokkrar alíslenskar ættir sem ættu þess vegna að vera gyðingar, þó þær séu nú fyrst og fremst komnar af hestaþjófum úr Húnavatnssýslu og hafi jafnvel í ættgarði sínum forystumenn í Flokki íslenskra Þjóðernissinna (nasista).

Ríkir gyðingar

"Það stendur hér Moshe, að það eigi að drepa okkur vegna þess að við erum svo nísk"

 

Margir þeirra sem litu gyðinga hornauga voru haldnir sjúklegri öfund í þeirra garð. Það var kennd sem taldist til erfðasyndanna. Það hefur hins vegar alltaf farið ofsögum af auð gyðinga og alla jafna voru 95% gyðinga í löndum Evrópu mun fátækari en kristnir borgarar álfunnar. Flestir gyðingar í Póllandi á 20 öld voru undir fátækramörkum. Í Hollandi var prósentan mjög há upp úr aldamótunum 1900.

Hindranir sem lagðar voru í götu gyðinga af ríkjum og kirkju, ásamt hatri og ofsóknum eru skýringarnar á því hvernig fólk talar enn á ógeðfelldan hátt um gyðinga. Þær ofsóknir ásamt kór vinstri öfgamanna, sem í raun kalla á eyðingu Ísraelsríkis þótt þeir þykist tala um frið í Miðausturlönd, valda því að eins ágætt orð og gyðingur er orðið skammaryrði meðal unglinga í ofeyðslu- og allsnægtaþjóðfélaginu á Íslandi. Ekki hjálpar það þegar Háskóli Íslands getur ekki gefið svar við einföldum spurningum án þess að framreiða gamlar rasistaklisjur.


Hátt upp í himininn, fljúga skal ... belgurinn

Le Tomate Reykjavík 1957

 

Í fyrra voru liðin 50 ár síðan flugbelg var fyrst flogið yfir Íslandi. Fyrsta lofbelgsflugið á Íslandi fór fram 23. júní 1957.

Loftbelgir hafa ekki orðið stór dilla meðal Íslendinga.  Sennilega er mjög erfitt að fljúga loftbelg á Íslandi vegna óstöðugleika í veðri. Það er líklega ástæðan fyrir því að Ómar Ragnarsson valdi að fljúga flugvél og flýta þannig fyrir heimshitnuninni margumtöluðu.

Ég her aldrei flogið í loftbelg og mun aldrei gera það til neyddur, vegna þess að ég er lofthræddur og lafhræddur ef mér er lyft hærra en tvo metra frá jörðu. 

Þó svo að ég hafi ekki einu sinni verið fæddur árið 1957, hef ég nú samt sagt frá fyrsta ballónfluginu á Íslandi í máli og myndum. Það geri ég í febrúarheftinu af hinu ágæta tímariti Sagan Öll sem er nýútkomið að því er Illugi ritstjóri sagði mér í dag.

Allir flugáhugamenn, sem og frímerkjasafnarar og fagrar konur verða að kaupa Söguna Alla, ef þau vilja vita allt um belgflugið árið 1957. Þar er víst að finna ýmis konar annan fróðleik sem ætti að höfða til allra hinna.

Sagan Öll, í bomsurnar og út í næstu búð og kaupa, kaupa, kaupa....


Skrifuðu íslensk skáld um helförina?

  
Nazi Iceland

 

Ég fékk nýverið bréf frá stúdent í Vín, sem lesið hafði bók mína. Hann vinnur að doktorsverkefni um helför (gyðinga) í bókmenntum (þ.e.a.s. fagurbókmenntum og ekki í fræðiritum) eftirstríðsáranna, sérstaklega á Norðurlöndunum.

Ég mun vísa honum á sérfræðinga á Norðurlöndum sem ég þekki, sem ég veit að geta svarað spurningu hans varðandi Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland miklu betur en ég get. 

En þegar ég fór að reyna að muna hvort einhverjar íslenskar skáldsögur, ljóð og aðrar listir hefðu fjallað um helförina, þó það væri ekki nema lína eða eitt málverk, reyndist minni mitt ekki vera hjálplegt.  Ég veit að Einar Hákonarson listmálari fór ungur til Auschwitz og varð fyrir miklum áhrifum af þeirri ferð. En hvort hann hefur beinlínis skapað verk sem tengjast þeirri för, veit ég ekki.

Einar heitinn Heimisson skrifað hina ágætu bók "Götuvísa gyðingsins", sem var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Svo eru auðvitað til aðrir sem misþyrma listagyðjunni og kalla sig listamenn og nota listina eins og menn gerðu forðum í Sovét.

Eysteinn heitir ungur maður fyrir austan. Eins og er, er hann sjóari og hugsuður og meira að segja bloggari. Hann hefur skrifað þetta á Ljóð.is.

Kæri Adolf sárt vér söknum þín
Senn er mál að efla hreina stofninn
Úr Jerúsalem rek
ja júðasvín
Og
jafnvel byrja að kynda gamla ofninn

Get ég sent þessa "ljóðlist" að austan til Vín? Er ekki eitthvað annað til?  Hvað með þig Þórarinn Eldjárn, eða Arnaldur Indriða? Eða eruð þið bara í frumskógarferð í kuskinu í naflanum á sjálfum ykkur?

Ég get auðvitað sent austurríska stúdentnum glás af íslenskum lofsöng og listsköpun um hryðjuverkastarfsemi í Palestínu, en ég held hann hafi ekki áhuga á því.

Hjálpið mér, þið sem eruð betur lesin á íslenskar bókmenntir en ég.


Brennum skólana !

 
Tingbjerg Skole

 

Að sögn yfirvalda í Danmörku hafa að minnsta kosti 10 skólar orðið eldi að bráð síðustu daga. Í gærkvöldi og í nótt hefur Tingbjerg Skole í Kaupmannahöfn brunnið og dagheimili í Árósum, svo eitthvað sé nefnt. Svo var líka kveikt í handan við hornið, þar sem ég bý.

Myndin hér að ofan er frá Tingbjerg Skole í Brønshøj. Börnin er greinilega flest innflytjendabörn.

Hér getið þið séð kynningarmynd nemendanna um skólann. Bakgrunnstónlistinn er gangsterrap innflytjendahljómsveitar sem kallar sig Block 27. Meðlimirnir hljómsveitarinnar eru allir fæddir í Danmörku og hafa verið í Tingbjerg Skole. Lagið sem þeir syngja "Nu er det min tur at kommet til tops" inniheldur t.d. þetta:  "for os er der ikke nogen lov" (engin lög gilda fyrir okkur), "det er os der har magten" (það erum við sem erum við völd) og "vi er på vej til tops" (við erum á leið á toppinn).  Hvaða aðferðir ætla þessir ungu menn að nota til þess að komast á toppinn. Menntun eða lögleysu?

Danska sjónvarpið sýndi í gær bókasafn í dönskum skóla. Brotist hafði verið inn í bókasafnið og bensíni hellt yfir þorra bókanna. Reynt var að kveikja í, en eldurinn var slökktur áður en hann náði að breiðast út. Fjöldi bóka var eyðilagður með bensíni. Þegar bækur eru brenndar, hugsa ég til bókabrenna nasista.

Múhameðsteikningar, lélegt uppeldi, danska þjóðfélagið eða eiturlyfjastríð? Mér er alveg sama hver ástæðan er. Bókabrennur og skólabrennur eru verk villimanna, sem ekki vilja skóla, menntun og lýðræði.

Gyðingar voru einu sinni flóttamenn/innflytjendur í Danmörku. Ekki fóru þeir um og kveiktu í. Víetnamar voru fyrir skemmstu flóttamenn í Danmörku. Ekki fara þeir um og brenna. Ungverjar voru til friðs og það sama er hægt að segja um Tamíla, og svo framvegis. Íslam er samnefnari þeirra sem nú brenna skóla í Danmörku.  Ekki útiloka ég að aðrir þættir séu fyrir hendi. En meginástæðan sem nú er gefin, þótt hún hafi verið önnur í byrjun, er birting mynda af Múhameð.  

Bókabrennur Bókabrennur nasista 

Þegar gyðingar voru flóttamenn í Danmörku á 4. og 5. áratug síðustu aldar voru ekki einu sinni til stjórnmálaflokkar sem heils hugar reyndu að koma í veg fyrir að þeim yrði vísað úr landi.

Nú er hins vegar öldin önnur. Allt ætlar að verða vitlaust þegar tveir Túnismenn eru handsamaðir. Handtaka þeirra er vegna meintrar tilraunar til að myrða skopmyndateiknara. Konur þeirra sem þeir hafa klætt í svarta poka í nafni trúarinnar, segja að þeir séu alsaklausir. En þær vissu víst ekki að þeir lifðu tvöföldu lífi meðan að útsýnið þeirra var skert undir kuflinum. .

Radikale Venstre, sá flokkur sem á heiðurinn að samvinnu Dana við nasista í síðari heimsstyrjöld, berst nú fyrir því að mennirnir frá Túnis fáið að vera áfram í Danmörku. Hryðjuverkamenn nasista voru líka boðnir velkomnir af Radikale Venstre.

Gyðingar hafa reyndar á síðustu árum verið lagðir i einelti í þeim hverfum þar sem óeirðirnar eru verstar nú. Mig minnir að stjórnmálamaður í flokki Radikale Ventre hafi mælt með því að gyðingar "ættu ekki að ögra með því að ganga með kollhúfur sínar" um götur borgarinnar. Er einhver sem leggur til múslíma með hnífi vegna þess að þeir ganga í fötum sem sýna trú þeirra?

Er verið að brenna danska skóla fyrir tvo vafasama karaktera frá Túnis eða ásjónu Múhameðs?

Hvað mynduð þið Íslendingar góðir, sem eruð svo skilningsríkir og eruð að eigin sögn svo góðir við útlendinga, gera ef skólarnir ykkar væru brenndir til kaldra kola vegna teikninga í dagblaði - eða bara einhvers annars????

HVAÐ MYNDUÐ ÞIÐ GERA? 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband