3.3.2008 | 07:27
Medvedev
Mikil tíðindi berast okkur austan úr Kreml. Dimtry Medvedev, sem er meira eða minna meðvitaður hluti af Pútín, sigraði í forseta.......
Medvedev sést hér þegar Pútín óskaði honum innilega til hamingju með sigurinn í gærkveldi.
Medvedev segist fylgja stefnu Pútíns í einu og öllu. Kannski ætlar hann í enn eina útrýmingarferð til Tétjeníu?
Flugsýningar gamalla herflugvéla við Ísland eru líka ofarlega á óskalista hins mjög meðvitaða forseta rússneska lýð.....
Á Wikipediu stendur þetta um Medvedev:
"He is a fan of an Internet slang dialect common among Russian youth, Olbanian (Russian: олбанский язык, transliteration: olbansky yazyk), and has said he believes it should be studied in schools to promote greater literacy in the Internet and modern culture in Russia. He has said he believes in the legitimacy of alternative languages used on the Internet".
Medvedev skilur því örugglega þessa færslu mína og líka sendimenn hans í rússneska sendiráðinu.
Поздравляю вас!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.3.2008 | 19:57
Hvað ungur nemur gamall temur
Þeim sem gráta börnin sem deyja á Gaza langar mig að tjá hluttekningu mína. Ég samhryggist ykkur en þykir miður að sum ykkar styðjið samtök sem misnota börn.
En jafnframt tel ég ástæðu til að minna á að:
Sameinuðu Þjóðirnar og aðrir aðilar hafa margoft ráðlagt Hamas og íbúum Gaza að
- virða friðarferlið
- viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og
- hætta árásum á Ísrael.
Hamas og íbúar Gaza hafa ekki viljað fara að ráðum alþjóðasamfélagsins.
Mér þykir leitt að sjá hvernig nú er komið fyrir íbúum Gaza. Mér þykir leit að sjá hvernig þeir eyðilögðu húsnæði og atvinnutæki, sem skilin voru eftir þegar þegar ísraelskir landnemar voru fluttir nauðugir frá Gaza fyrir 2 árum. Mér þykir leitt að sjá hvernig íbúar Gaza vilja kalla hernað og eyðileggingu yfir sig, þegar þeir gætu þess í stað byggt upp þjóðfélag sitt. Mér þykir leitt að sjá marga stuðningsmenn Hamas sem virðast vera drifnir áfram af hatri forfeðra sinna í garð gyðinga frekar en umhyggju fyrir Palestínumönnum.
Þeir ætla Ísraelmönnum að kljást við óferjandi andstæðinga í "einn á móti einum hernaði". Þannig virka engin stríð og ekki er hægt að biðja Ísrael, eitt ríkja heims, að fara eftir öðrum reglum en allir aðrir. Hernaðarmáttur Ísrael hefur orðið til vegna hótana, hættu og ógnar frá umhverfinu. Hamas vill eyða Ísrael, en þeir hafa reiknað dæmið rangt.
Það sem við sjáum nú á Gaza er afleiðing haturs. Þar býr þjóð, sem síðan 1948 hefur talað um eyðingu Ísraelríkis og útrýmingu gyðinga og sem ekki fer að ráðum alþjóðasamfélagsins.
Þeir sem ekki virða tillögur og tilmæli Sameinuðu Þjóðanna og annarra samtaka til íbúa Gaza og Hamas, styðja hryðjuverk, afneita tilverurétti Ísraelsríkis og vilja áframhaldandi árásir á Ísrael.
Af hverju styðja sumir Íslendingar þjóð og samtök, sem ekki virðir friðarferlið, sem ekki virðir tilverurétt Ísraels og ekki vilja hætta árásum á Ísrael?
Svarið er einfalt: Þeir Íslendingar vilja ekki frið. Afleiðing stuðnings þeirra við Hamas sjá þeir nú. Lausnin er hins vegar einföld: Virðið friðarferlið, hættið árásum ykkar á Ísrael og standið við viðurkenningu Íslands á tilvist Ísraelsríkis. Annars getið þið, landar mínir sem er annt um friðinn, farið að byggja ný Auschwitz eins og ættingjar ykkar annars staðar í Evrópu gerðu fyrir mannsaldri síðan.
Vegna grófra persónulegra árása á mig á bloggi mínu og í tölvubréfum síðustu daga, leyfi ég ekki athugasemdir við þessa færslu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.3.2008 kl. 07:42 | Slóð | Facebook
1.3.2008 | 23:18
Hver er maðurinn?
Þetta er:
- hryðjuverkamaður í Brigade Rosso
- klámmyndaleikari í Hollywood (hvaða myndum "lék" hann í ?)
- þjónn á Torremolinos
- söngvari
- ekkert af ofangreindu
Er hann frá:
- Grikklandi?
- Ísrael?
- Hornafirði? (þá er hann klámmyndaleikari)
- Osló?
- Ekkert af því ofangreinda
Hvenær er myndin tekin?
- 1972
- 1980
- 1986
- 2007
- Myndin er tilbúningur
Og loks einföld spurning fyrir konur:
- er hann ekki sætur?
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
1.3.2008 | 18:59
Closed to import
Í mars árið 1924 tóku Íslendingar á það ráð að setja á innflutningsbann og hömlur á ýmsar "óþarfar" vörutegundir. Menn höfðu á Alþingi lengi verið ósáttir við hve óstöðugt gengi krónunnar hafði verið í bönkum landsins. Eitthvað varð að gerast. Gengi krónunnar var meira að segja hækkað!
Ég kannast ekki við áhrif þessa innflutningsbanns og eins árs gengishækkunar, enda kom þessi "kreppa" ekki niður á mér. Hins vegar bárust fréttir um allan heim af þessum ráðstöfunum Íslendinga.
Blað nokkuð í New York, The Knickerbocker Press í Albany, þótti þessi ákvörðun Alþingis mjög merkilegt og skrifuðu menn þar á bæ heila opnu um hana og Íslendinga undir yfirskriftinni Back to Primitive Caveman Life, og undirfyrirsögnin var:
"Isolated People of Iceland Decide to Prohibit Importation of Effete Modern Luxuries, to Scramble, Robinson Crusoe Fashion, for Existence the Next Two Years as Did Their Eearly Ancestors".
Þetta var hin undarlegasta grein og myndirnar og teikningarnar, sem voru með greininni, voru sér í lagi merkilegar. Dæmi um það sést hér að ofan.
Öll þau ár sem ég hef komið í mína árlegu heimsókn til Íslands (eða oftar), og þau rúm þrjú ár sem ég bjó þar, 1993-96, hefur mér blöskrað kaupæði Íslendinga og hirðuleysi um eigur sínar og eyðsluþörf þeirra og flottræfilshátt.
Eitt sinn kom ég á bóndabæ í Borgarfirði. Þar átti bóndinn risastóra skemmu, fulla af ónytsömum "leikföngum" mótordrifnum, og þvíumlíku. Helmingurinn var reyndar í lamasessi og hafði líkast til þess vegna verið hent út í þessa risastóru skemmu. Inni hjá bónda í eldhúsinu, þar sem mér var boðið í kaffi með samstarfsmanni mínum, var hins vegar allt frekar hrörlegt.
Ég hef ekkert á móti kapítalisma, enda tel ég að ofeyðsla og ofneysla séu ekki samferðar"konur" kapítalismans. Hins vegar er óheft ofurneysla og loftkastalabygging eins og sést á Íslandi dæmi um að menn geta orðið fórnarlömb kapítalismans.
Er ekki kominn tími til að rifa seglin? Annars er ég hræddur um að ástandið á Íslandi verði eins og á teikningunni af Íslendingum í Knickerbockers Press árið 1924, nema að því leyti að enginn verður báturinn sem siglir að landi með varning.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.3.2008 | 08:37
Kryddsíld og kryddaðar fréttir
13. janúar 1981 greindi Morgunblaðið frá því í rammagrein á baksíðu, að Vigdísi Finnbogadóttur hefði verið boðið í kryddsíld af Margréti Þórhildi Danadrottningu, með 200 blaðamönnum þeim til yndisauka við síldarátið. Heimildin var Berlingske Tidende.
Eitthvað blaðamannagrey á Morgunblaðinu var ekki sleipari í dönsku en það, að hann þýddi "krydsild" með kryddsíld og taldi Íslendingum trú um að Vigga væri að fara í kryddsíldarveislu með snaps og hele molevitten. Magga drottning hafði vissulega ekki boðið Viggu í síldargilli, heldur í "krydsild", sem nú á dögum er oft notað um blaðamannafundi, þótt upphafleg merking orðsins sé úr hernaði, þar sem menn gátu lent í því sem þýtt hefur verið tvíeldar á íslensku. Þessi vitleysa Moggans var auðvitað leiðrétt og hörmuð. Þessi meinta kryddsíldarveisla hennar hátignar Margrétar Danadrottningar þótti mér afar fyndin (ég var þá nýfluttur til Danmerkur haustið 1980) og segi ég þessa sögu alltaf þegar ég er með kryddsíld á borðum. Ég þarf ekki einu sinni að krydda hana.
Í gær greindi mbl.is frá því að Ísraelsmenn hótuðu Palestínumönnum helför á Gaza. Heimildin var BBC og fréttin var vel krydduð.
Ég benti á það í gær í athugasemd við frétt netmoggans að frétt BBC hafði verið breytt, að minnsta kosti í tvígang. Í ljós er komið að fréttamenn BBC þekkja ekki notkun og margar merkingar orðsins "shoa" á hebresku. Það orð notaði ráðherra í Ísrael um hugsanlegar aðgerðir á Gaza ef Hamas léti ekki af árásum sínum á saklaust fólk í Ísrael.
Mbl.is er ekki ekki búið að leiðrétta villuna í fréttinni, sem sopin var upp af BBC í gær meðan BBC hélt því enn fram að ísraelski ráðherrann væri að hóta Hamas helför. BBC hafi nú breytt frétt sinni svo varla er hægt að þekkja hana lengur. Mbl.is hefur greinilega ekki fylgst með.
Íslenskir nasistabloggarar, vinstrimenn og aðrir sjúklingar flykktust að til að setja athugasemdir sína við fréttina á mbl.is, og sömuleiðis til að lýsa veiklyndri skoðun sinni á gyðingum og Ísrael. Og það er ekki lítið sem sagt var. Ég fékk m.a. þessa athugsemd við leiðréttingu mína á frétt moggabloggsins í gær:
"Af hverju gat Hitler ekki klárað dæmið og beðið með innrásina í Sovétið á meðan hann hreinsaði betur til í þeim löndum sem hann hafði?????
Nú er reyndar tími fyrir okkur hin að redda þessu"
Ef hægt er að dæma mann í 800.000 króna sekt fyrir einhver afar ómerkileg ummæli um annan mann á moggabloggi, eru svona ummæli þá ekki góð ástæða til þess að benda umheiminum á að Ísland á ekkert erindi í Öryggisráð SÞ. Landið er nefnilega fullt af fólki með meiriogminnimáttákend, svo sem nasistum og kynþáttahöturum. Kveðjurnar sem menn fá við komuna til Nazíslands eru orðnar afar kaldar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.3.2008 kl. 07:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
29.2.2008 | 16:41
BBC breytti sömu frétt kl. 14:58 og 15:36
Eftir að Mbl.is sauð þessa vafasömu frétt saman eftir frétt á fréttavef BBC, hafa gerst undur og stórmerki.
Frétt sem upphaflega bar heitið:
Gaza militants risking holocaust
breyttist kl. 14:58 í Gaza militants 'risking disaster'
fréttinni var síðan breytt verulega enn á ný kl. 15:36 og ber nú yfirskriftina:
![]() |
Ísraelar hóta Palestínumönnum helför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 12.1.2009 kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.2.2008 | 09:02
Nám í menningarstjórnun
Næsta sending fyrir Bifröst
Einhver sveitaskóli í Borgarfirði hefur þörf fyrir að auglýsa á blog.is. flestum til lítillar ánægju. Auglýsingu skólans er klesst hér til hliðar og blikkar í kapp við auglýsingu frá einhverju símafíkilsfyrirtæki.
Nú er ég farinn að skilja af hverju þessi skóli þarf að auglýsa svona mikið. Þetta er bölvað eiturlyfjabæli, þar sem stúdentar eru í hassi og óþverra og jafnvel með vopn.
Er þessi óregla kannski hluti af því námi sem kallast menningarstjórnun, sem mun vera kennd í þessum drive-inn skóla, einhvers staðar á leiðinni norður í land? Það er greinilegt að of margir ganga í skóla, sem ekkert erindi eiga þangað.
29.2.2008 | 08:20
NAZÍSLAND
Visir.is greinir frá nokkuð frumstæðu myndmáli sem blasti við þreyttum farþegum Iceland Express við komuna til landsins í fyrrakvöld. Hafa einhverjir listrænir þjóðernissinnar leikið sér í snjónum?
Vísir túlkar þetta svona: "Einhverjum farþegum fannst þetta heldur óblíðar móttökur en svo virðist sem nokkrir hressir starfsmenn flugvallarins hafi leiðst biðin eftir vélinni".
Enginn kannast við neitt í Keflavík og benda menn á flugvellinum á hvern annan. Alþjóðsamtök gyðinga krefjast svara en lögreglan lét því miður fenna í sönnunargögnin.
Myndin talar hins vegar sínu máli. Augljóst er að fyrrverandi starfsmaður Eimskipafélagsins saknar gamla vinnustaðar síns. Eða er Eimskip komið í flugbransann?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2008 | 13:02
Hugleiðing um danskan dónaskap
Þegar ég heyrði í gær um enn einn auraapann í dönskum banka sem lýsti frati á íslenskt efnahagslíf og ráðlagði Dönum að fjárfesta ekki á Íslandi, þá tók ég því með stökustu ró. "Hef ég ekki heyrt þennan söng áður?", hugsaði ég með mér. Ég held að Danir hafi hvort eð er ekki fjárfest svo mikið á Íslandi, að það sé í frásögur færandi. Hvað þá heldur ef einvher bankalalli segi viðskiptavinum að gera það ekki. Það ætti vart að geta velt íslensku efnahagskerfi.
Ég verð að viðurkenna að ég veit í raun ekki svo mikið um íslenskt efnahagslíf og hverjar lífslíkur íslenskra banka og fjárfjölleikamanna eru. Mig grunar hins vegar að almúginn, ellilífeyrisþegarnir og börnin, sem erfa eiga Ísland, muni fá stærsta reikninginn ef í ljós kemur að Danskurinn hefur rétt fyrir sér og að íslenskir stórlaxar eigi stærri innistæður í loftkastölum en í veruleikanum.
Fyrir tæpum 78 árum síðan var allt önnur umræða í gangi í Danaveldi. Fyrir Alþingishátíðina á Þingvöllum gaf Politiken út 84 blaðsíðna aukablað um Ísland (sjá mynd efst) . Í blaðinu voru auglýsingar nær flestra fyrirtækja á Íslandi, smásala svo sem stórkaupmanna og heildsala, svo og greinar um menn og málefni eftir merka Íslendinga. Íslenskir athafnamenn settu stoltir myndir af atvinnutækjum sínum og húsnæði, jafnvel af örmustu skemmum og slorbryggjum, í flennistórar auglýsingarnar. Eimskip með alla baksíðuna á þessu aukablaði (sjá mynd neðst). Ekki held ég þó að svona blað hafi aukið viðskipti Dana við Íslendinga verulega mikið. Politiken hefur líklega grætt mest á auglýsingunum sem menn keyptu sér í blaðinu.
Danir voru, og eru, svo miklar dévítis krambúðarsálir að þeir geta ekki hugsað sér nýungar. Þetta er hin versta krataþjóð. Það þarf því alltaf mikið að gerast til að Danir breyti frá viðteknum hugsunarhætti. Menn geta til dæmis ekki hægt að reykja í vissum ættum, því "það hefur alltaf verið gert".
Íslandsblað Politikens fyrir nær 78 árum hefur örugglega ekki flutt nein fjöll, enda sáu örugglega margir íslensku auglýsendanna auglýsingu sína sem áminningu til Dana um að Íslendingar gætu sjálfir gert hlutina, og það án Dana. Kannski er brölt Íslendinga í Danmörku nú einlæg ósk peningamanna að sýna Dönum að þeir geti gert hlutina betur en Danir. En það er hættulegt.
Danir standa á brauðfótum gangvart stórþjóðum, nasistum og öfgaliði. En friðsamir Íslendingar eru greinilega svo hættulegir, að það er varað við þeim og mælt með því að eiga við þá engin viðskipti. Það liggur við að maður búist við því að íslenski fáninn verði brenndur og sendiráðið vanhelgað.
Er ekki tímabært að sýna Dönum þeirra rétta andlit?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.2.2008 kl. 07:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2008 | 07:21
Ekki lengur
Borgarstjórinn í Árósi (Århus) er búinn að stöðva brottvísun eiginkonu Westergaards. Borgarstjórinn, Louise Gade (myndin), tekur ekki svona undirmálsákvörðun í mál.
Margir Danir hafa átt það til þegar á reynir, að beygja sig og bjóða rassgatið til afnota fyrir alla. Þetta gerðu þeir þegar nasistar þrömmuðu yfir landamærin árið 1940.
Nú er greinilega til fólk sem ætlar að láta íslamista og íslamófasista stjórna því hver fær vinnu og hver ekki í Danmörku.
Louise Gade er kona á réttum stað.
![]() |
Eiginkona Westergaard missir vinnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 1356185
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007