Leita í fréttum mbl.is

Hugleiđing um danskan dónaskap

 
Politiken 1930

Ţegar ég heyrđi í gćr um enn einn auraapann í dönskum banka sem lýsti frati á íslenskt efnahagslíf og ráđlagđi Dönum ađ fjárfesta ekki á Íslandi, ţá tók ég ţví međ stökustu ró. "Hef ég ekki heyrt ţennan söng áđur?", hugsađi ég međ mér. Ég held ađ Danir hafi hvort eđ er ekki fjárfest svo mikiđ á Íslandi, ađ ţađ sé í frásögur fćrandi. Hvađ ţá heldur ef einvher bankalalli segi viđskiptavinum ađ gera ţađ ekki. Ţađ ćtti vart ađ geta velt íslensku efnahagskerfi.

Ég verđ ađ viđurkenna ađ ég veit í raun ekki svo mikiđ um íslenskt efnahagslíf og hverjar lífslíkur íslenskra banka og fjárfjölleikamanna eru. Mig grunar hins vegar ađ almúginn, ellilífeyrisţegarnir og börnin, sem erfa eiga Ísland, muni fá stćrsta reikninginn ef í ljós kemur ađ Danskurinn hefur rétt fyrir sér og ađ íslenskir stórlaxar eigi stćrri innistćđur í loftkastölum en í veruleikanum.

Fyrir tćpum 78 árum síđan var allt önnur umrćđa í gangi í Danaveldi. Fyrir Alţingishátíđina á Ţingvöllum gaf Politiken út 84 blađsíđna aukablađ um Ísland (sjá mynd efst) . Í blađinu voru auglýsingar nćr flestra fyrirtćkja á Íslandi, smásala svo sem stórkaupmanna og heildsala, svo og greinar um menn og málefni eftir merka Íslendinga. Íslenskir athafnamenn settu stoltir myndir af atvinnutćkjum sínum og húsnćđi, jafnvel af örmustu skemmum og slorbryggjum, í flennistórar auglýsingarnar.  Eimskip međ alla baksíđuna á ţessu aukablađi (sjá mynd neđst). Ekki held ég ţó ađ svona blađ hafi aukiđ viđskipti Dana viđ Íslendinga verulega mikiđ. Politiken hefur líklega grćtt mest á auglýsingunum sem menn keyptu sér í blađinu.

Danir voru, og eru, svo miklar dévítis krambúđarsálir ađ ţeir geta ekki hugsađ sér nýungar. Ţetta er hin versta krataţjóđ. Ţađ ţarf ţví alltaf mikiđ ađ gerast til ađ Danir breyti frá viđteknum hugsunarhćtti. Menn geta til dćmis ekki hćgt ađ reykja í vissum ćttum, ţví "ţađ hefur alltaf veriđ gert".

Íslandsblađ Politikens fyrir nćr 78 árum hefur örugglega ekki flutt nein fjöll, enda sáu örugglega margir íslensku auglýsendanna auglýsingu sína sem áminningu til Dana um ađ Íslendingar gćtu sjálfir gert hlutina, og ţađ án Dana. Kannski er brölt Íslendinga í Danmörku nú einlćg ósk peningamanna ađ sýna Dönum ađ ţeir geti gert hlutina betur en Danir. En ţađ er hćttulegt.

Danir standa á brauđfótum gangvart stórţjóđum, nasistum og öfgaliđi. En friđsamir Íslendingar eru greinilega svo hćttulegir, ađ ţađ er varađ viđ ţeim og mćlt međ ţví ađ eiga viđ ţá engin viđskipti. Ţađ liggur viđ ađ mađur búist viđ ţví ađ íslenski fáninn verđi brenndur og sendiráđiđ vanhelgađ.

Er ekki tímabćrt ađ sýna Dönum ţeirra rétta andlit?

 

Eimskip 1930

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nei, mér sýnist miklu frekar ađ Danir hafi móđgast og séu í svipuđum ađgerđum gegn íslenskum fyrirtćkjum og Múslímar sem hćttu ađ kaupa danskt beikon, nei afsakiđ smjör.

En kannski er hćgt ađ móđgast á móti. Mér finnst bara svo leiđinlegt ţegar menn kveikja í fyrir málstađin. Get ekki mćlt međ ţví.

Saga Max Frisch, Biederman und Die Brandstifter kemur nú upp í huga mér. Ég ţarf ađ lesa hana aftur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.2.2008 kl. 13:30

2 Smámynd: Ólafur Als

Svíar og Norđmenn hafa alla jafna gaman af ţví ađ segjast hafa dálćti á landi og ţjóđ og gerast stundum heldur vćmnir - reyndar er nú stutt í ađ Norđmenn telji sig eiga eyjuna og hetjurnar okkar (kenna börnum svo í skólum) og Svíar gerđu mikiđ af ţví á árum áđur ađ vorkenna okkur fyrir m.a. ađ hafa bandaríkst herliđ og vísuđu ávallt til landsins sem: lilla, lilla Island ... á milli ţess sem ţeir sýndu heimildarmyndir af reykvískum hverfum í uppbyggingu og óreiđu innanum um bandaríska bíla, frásögur af Kanaútvarpi og önnur ćgileg áhrif úr vestri.

Danir hafa alla jafna veriđ ligeglađir yfir brölti okkur - en ég hef komist ađ ţví ađ undir niđri eru ţeir ekki alveg sáttir og vilja helst ekki kannast viđ ađ molbúarnir frá Íslandi geti veifađ seđlum. Enda er kratahugsunin sterk, sbr. Jenteloven...

Ólafur Als, 28.2.2008 kl. 20:18

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband