Leita í fréttum mbl.is

Stuðningskona hryðjuverka í boði utanríkisráðherra

 

Í síðustu viku hélt Utanríkisráðuneytið fund  þar sem aðalræðuhaldarar voru ísraelski blaðamaðurinn Anat Saragusti og mjög náin vinkona hennar palestínsk, Maha Abu Dayyeh Shamas. Þær kalla sig baráttukonur fyrir frið og eru femínistar með stóru F-i.

Maha Abu-Dayyeh Shamas er þekkt fyrir þessa yfirlýsingu, sem að mínu mati gerir hana að stuðningsmanni hryðjuverka:

"Palestinian society regards female suicide bombers the same way as they regard the men, which is they are heroines," Maha Abu-Dayyeh Shamas, director of the Women's Centre for Legal Aid and Counselling in Jerusalem told IPS. "They have sacrificed their lives for the public good. They have made a statement about the inhuman and intolerable situation.  Most people feel sad that young people have to pursue this approach, she said, "but the situation is so difficult that people understand why a young person has to do this. It's so frustrating. It's so de-humanising. It's so hopeless."  Sjá nánar hér .

 

Morðkvendi eða hetja

Hetja samkvæmt sérfræðingi í boði íslenska utanríkisráðuneytisins. Þessi 29 ára kona myrti 19 manns í Haifa árið 2003, þar á meðal börn. Átti hún ekki annarra kosta völ?  Hún var að sögn femínisti, hetja, og sjálfsmorðsmorðingi í tengslum við írönsk samtök.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Innlitskvitt, ég er svo sammála þér Einar. Eitt orð, Sorglegt. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Vilhjálmur, eins og ég les þetta, þar það sem samantektin sem þú  last þetta í gengur út á er að skýra ástæður (mótiv) kvenna sem gerast "sjálfsmorðssprengjarar", þá sýnist mér konan þarna vera að koma með álit á því hvernig hún telur að palestínska þjóðfélagið (palestinian (society) almennt líti á þessar konur, ekki að lýsa sínu eigin áliti.

Hún lýsir því að fólki finnist sorglegt að allar hörmungarnar allt í kring leiði til þess að ung kona taki þessa afstöðu, sem sé að drepa sjálfa sig til þess að ná fram markmiðum þjóðar sinnar, og þess vegna séu þessar konur hetjur í þeirra augum. Auðvitað er þetta grimmilegt, en þær tilheyra þó þessari þjóð og berjast fyrir hana.

Finnst þér líklegt að kona sem sjálf væri á þeirri skoðun að það sé góð þróun og jákvæð að ungar konur grípi til örþrifráða sem þessari í nafni trúar sinnar kæmi hingað í fylgd ísaraelskrar konu til að segja frá baráttu þeirra til að finna leiðir til samkomulags?

Ég skil ekki hvernig þú ferð að því að fá það út úr því sem stendur þarna að þetta sé hennar eigin skoðun. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 00:52

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hún segir líka:

" It's so frustrating. It's so de-humanising. It's so hopeless"

Þetta er svo frústrerandi (man ekki eftir góðu íslensku orði). Þetta gerir manneskjurnar svo litlar. Þetta er svo vonlaust.

Hvað telur þú hana vera að tjá í þessum orðum?

Ég myndi kalla það sorg. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 00:58

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég get nú ekki lesið í þessum texta að umrædd kona hvetji til hryðjuverka.  Og mér finnst full djúpt í árina tekið að hún sé stuðningsmaður hryðjuverka út frá þessum texta.

Sigurður Þórðarson, 24.2.2008 kl. 01:41

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ef þú hlustar á það sem þær stöllurnar segja í þessu viðtali á RÚV, þá sérðu hvað það er rangt að kalla Maha Abu-Dayyeh Shamas stuðningskonu hryðjuverka.

Þetta sagði hún m.a. í viðtalinu: "Bæði samfélögin hafa áttað sig á því að það er engin önnur leið til en að samið verði um frið. Það eru ríkisstjórnirnar og leiðtogarnir sem ekki eru tilbúin."

Mér finnst það mjög ámælisvert að reyna að gera þessar konur tortryggilegar.

Getur verið að þú sért í heilögu stríði, en ekki þær?

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 02:17

6 identicon

Þið mannskepnurnar eruð stórskrýtnar,  alveg stórskrýtnar.

Brúnkolla (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 02:29

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Einar...kallar hún hryðjuverkamann hetju?

Ég skal viðurkenna að hún er þarna á mjög gráu svæði, og að með skammti af illvilja má túlka orð hennar eins og Villi gerir, en hún er að tala um landa sína sem hafa fórnað lífi sínu, að vísu til að drepa "óvininn", sem oftar enn ekki eru saklausir borgarar, en ekki hermenn, sem eru náttúrulega "réttdræpir" (eða hvað, hvað álitu hryðjuverkamenn af hinum ýmsu þjóðernum í seinni heimsstyrjöldinni um það?), en landa sína samt, sem berjast fyrir málstað sem þeir trúa á að réttlæti þessar aðferðir  - sem mér sýnist augljóst að hún geri ekki, fyrst hún er komin til Íslands á ferð sinni um heimin til að koma friðarboðskapnum áleiðis og fá stjórnvöld hér og annars staðar í heiminum til að þrýsta á stjórnvöld á heimaslóðum hennar um að semja um frið, sem hún telur einu leiðina að koma í veg fyrir að fleiri slík ódæði verði framin

Var þetta nógu skýrt til að þú getir núna vitað þetta eins vel og ég, Einar minn? 

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 04:23

8 identicon

Male shauvinism is wrong and so is feminism.

Sara (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 07:14

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Greta í alvöru!

Er hún Maha Abu-Dayyeh Shamas kannski ekki hluti af "Palestinan Society" eða the "Palestinian People" sem hún talar um? "but the situation is so difficult that people understand why a young person has to do this". Þetta er ekkert annað en femínísk dýrkun á hryðjuverkum gegn saklausum borgurum. 

Shamas er hræsnari að verstu tegund. Hún hefur skilning orsökum á hryðjuverka og kemur til Íslands og boðar frið og segir að stjórnmálamenn geti ekki gert hlutina, að femínistar séu betri til þess. Ég hef heyrt þennan söng áður.  Hvar er Kvennalistinn?

Stjórnmálamennirnir hennar (Palestínumenn), sem líka telja nokkrar reifaðar konur, dýrka líka hryðjuverkamennina og "skilja þá" og álíta þá vera hetjur. Þetta er Palestínskt þjóðfélag í hnotskurn. 16% þeirra kvenna sem fremja ódæðin eru taldar vera femínistar af rugludöllum eins og Maha Abu-Dayyeh Shamas .

Við stofnun IWC (International Women's Commission for a Just and Sustainable Palestinian-Israeli Peace) og á fundi  hjá Woodrow Wilsons International Center for Scholars árið 2006 var þetta haft eftir Shamas: "Shamas noted that negotiators cannot and must not separate themselves from the agendas and sentiments of communities they represent. Therefore, a dedicated, proactive, and less emotionally-involved third party is crucial for the peace process to continue".  Þetta hlýtur líka að eiga við um hana. Ég held ekki Shamas sé að tala um IWC sem the "Third party".

Kona þessi vítti alþjóðasamfélagið fyrir að einangra Hamas og þetta var haft eftir henni árið 2007: "Shamas lamented the international community's isolation of Hamas and said, "Hamas is starting to have a split in their ranks -- the pragmatists versus the idealogues." This split could prompt Hamas to acknowledge Israeland open the door to negotiations".

Þessar frekar kyndugu/eða frekar kynlausu systur, sem Ingibjörg Sólrún á nú samreið með, segja að flestir Palestínumenn sjái ríki þeirra samhliða Ísrael "living side by side with Israel". Þetta er bara ekki rétt. Flestir Palestínumenn vilja samkvæmt könnunum að Ísraelsríki hverfi. Palestínumenn beita sér meira að segja fyrir því að Ísrael sé útrýmt úr spilinu Monopoly (og hefur nú tekist það).

Annars staðar hefur Shamas útskýrt gerðir Hamas gegn konum: "Radicalization is a very natural outcome of societies that go through prolonged military conflict, says Maha Abu Dayyeh Shamas, director of the Women's Center for Legal Aid and Counseling in Jerusalem". Ekki vissi ég til þess að öfgar Þýskalands nasismans hefði t.d. orðið til vegna "prolonged military conflict".

Þessi kona er greinilega ekki sérfræðingur í einu eða neinu og femínisti er ekki sérfræðigrein. Hún heldur að femínismi og skilningur hans og jafnvel stuðningur hans við hryðjuverk sé einhver haldbær lausn fyrir friðarferlið í Miðausturlöndum. Þvert á móti. Femínistarnir hafa stuðað íslamistana og þá heittrúuðu, jafnvel meira en Ísraelskir stjórnmálamenn, og fá þá til að fylgja Sharíalögum og annarri kvenfyrirlitningu enn fastar eftir en skyldi.

Shamas vissi heldur ekki hvað hún talaði um þegar hún í sjónvarpsfréttum RÚV fræddi Íslendinga um 100 ára stríðið í Evrópu. Að líkja 100 ára stríðinu við deiluna við botn Miðjarðarhafs er algjör smekkleysa og sýnir að Shamas er lýðskrumari. Vandamálið í Miðausturlöndum verður ekki leyst af þessari konu og einhverju kvenfélagi sem þykist skilja allt betur um leið og þær lýsa frati á stjórnmálamenn sem standa með vandamálin.  Jóhönna af Örk leysir engin vandamál á 21. öld. Skilningur á öfgum og samtökum sem vilja lýðræði feigt er alger tímaskekkja.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.2.2008 kl. 10:24

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þakka þér fyrir þessa greinargerð, Vilhjálmur, ég sé að þú hefur mikið til þíns máls.

Það sem hún segir í því sem þú vitnar í um að palestínska þjóðin líti á þessar konur sem hetjur er vissulega í þversögn við það sem hún segir í fréttinni um að almenningur í landinu sé tilbúinn til að samið verði um frið.

Þessu hjó ég reyndar eftir í gær þegar ég hélt uppi vörn fyrir hana, þó ég hafi lúllað þeim bakþanka í svefn.

Þegar þú segir að femínistar hafi stuðað íslamista, áttu þá við á sama hátt og blaðamenn hafa gert með myndbirtingunum, það er að segja með því að ota að þeim hugmyndum sem ekki eiga upp á pallborðið hjá þeim? 

Viðurkenni að ég var ekki mjög áhugsöm þegar kom að 100 ára stríðinu í Evrópu á skólaárunum, en fannst þessi samlíking reyndar líka hljóma dálítið einkennilega. Þarf greinilega að lesa mér betur til. 

Þér tekst ágætlega til að vekja mann til umhugsunar, Vilhjálmur...

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 11:31

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég hef ekkert á móti femínistum, nema að mér finnast konur sem skilgreina sig þannig of frekar líkar kreddukörlum í röksemdafærslu og skoðunum.

Þær eru tímaskekkja í þjóðfélögum þar sem kvenréttindi eru eins og þau voru fyrir hundruðum ára í Vestur-Evrópu. Þær eru "overdosis" á slík þjóðfélög. Geta því gert illt verra.

Það er að minnsta kosti mín skoðun, Greta.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.2.2008 kl. 12:14

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, ætli ég sé ekki bara sammála þér um þetta tvennt, Vilhjálmur.

Femínístar eru oft öfgafullir í skoðunum og ekkert betri en margir karlar í því tilliti.

Sígandi lukka er best og maður útrýmir ekki fáfræði og fordómum með ögrunum, þá er betra að hafa í huga að dropinn holar steininn.

Ég held að jákvæður húmor og það að kunna að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega sé til góðs og geti áorkað miklu, eins og í þessum brandara:

2006-02-09 Cartoon Muhammed Christian Jew Muslim joke 550

Því eins og Indira Gandhi benti á þá getur fólk ekki tekist í hendur með hnefana kreppta, og ég held að það sé ekki til í dæminu að maður geti haldið þeim krepptum á meðan maður hlær að góðum brandara! 

Hins vegar tel ég að sá óvægni "head-on" húmor sem kemur fram í skopteikningunum af Múhameð, sem svo margir kalla grín, en er í rauninni óvægin pólitísk ádeila - sem er það sem fer mest fyrir brjóstið á mörgum múslimum, þar sem þeim finnst þeir allir dregnir í einn bás með þeim, - geri illt verra, rétt eins og sú firra að ætla sér að prédika feminisma yfir íslamistum. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 12:54

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Bakþanki:

Þetta með ögranirnar ekki alls kostar rétt hjá mér - það hefur oft gefist vel hjá feministum að ögra aftruhaldssömum karlpungum, sbr. bresku súfragetturnar

- en ég held að í þessum efnum gegni töluvert öðru máli þegar kemur að vopnuðum og yfirspenntum íslamistum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 13:11

14 identicon

Ég segi nú bara eins og er, feminismi á ekki rétt á sér í landi eins og íslandi og fleiri vestrænum ríkum.  Feministar beita kröftum sínum ekki á rétta staði. þeir hamra á einhverjum réttindum kvenna hér á vesturlöndum og eru í einhverri ímyndaðri herferð kúgaðra kvenna á vesturlöndum, þe. kraftar þeirra og spjót eru öll í rangri stefnu.  Ef gerð yrði rannsókn á því hvar feministar eyða kröftum sínum mest þá held ég að það kæmu sláandi ljótar tölur út úr því.   Sem dæmi um framlag íslenskra feminista til baráttu kvenna í mið austurlöndum má nefna að Kolbrún Halldórsdóttir fór nú til Sádi Arabíu minnir mig í fyrra og sleikti upp furstana með slæðu á hausnum og þorði ekki að minnast einu orði á ójafnrétti kynjanna við þessa menn í landi þar sem virkilega er þörf á að bæta rétt kvenna.  Nei heldur flýtti hún sér til íslands og las yfir okkur körlunum hér, og allur feministakórinn kóaði með og eftir sátum við karlarnir með sárt ennið.  Ég krefst þess að feministar beiti sér af fullum þunga og krafti í mið austurlöndum til bjargar og upprisu kvenna í þeim heimshluta.

Jafnrétti á íslandi er til fyrirmyndar og bundið í lög og það er bara sóun á vinnuframlagi að vera atast í þessu hér á landi.  Ég vil skilja framgöngu Anat Saragusti og Maha Abu Dayyeh Shamas sem ákall til feminista á vesturlöndum um að beina öllum kröftum sínum að heimshluta mið austurlanda til bjargar reisn kvenna.

Þetta orðatiltæki á vel við í okkar heimshluta:

Male shauvinism is wrong and so is feminism.

En feminismi á fullan rétt á sér í mið austurlöndum.

Róbert (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 08:23

15 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Róbert, feminismi á auðvitað rétt á sér í Mið-Austurlöndunum,; spurningin er hins vegar sú hvort skynsamlegt sé að "keyra áfram" með hann eins og við getum leyft okkur hér á Vesturlöndum, vegna þeirrar lýðræðishefðar sem við búum við, eða hvort það kalli aðeins fram harkalega andstöðu og mótaðgerðir að gera slíkt og þar með enn verri kjör fyrir konur í þessum löndum. Skilurðu?

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.2.2008 kl. 12:23

16 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég held að það sé alltaf mikilvægt að þjóðfélagsbreytingar komi innan frá, úr þjóðfélögunum sjálfum. Við höfum alltof mörg átakanleg dæmi um hvað gerist þegar utanaðkomandi aðilar vilja vera með puttana í stjórn annarra ríkja. Ég tel það vænlegri leið að vinna að því að jákvæðir menningarstraumar fái að berast inn í samfélögin og gera sitt gagn, en að reyna að ná hlutunum fram í gegnum þvinganir eða ögranir. Það er það sem ég á við þegar ég minni á máltækið "dropinn holar steininn".

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.2.2008 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband