Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Stórfurðuleg íslensk minnimáttarkennd

  Konungssteinn

 

Morgunblaðið tjáir okkur að Konungasteinarnir við Geysi í Haukadal séu á ömurlegum stað. Mikið er þetta nú skrítin staðhæfing.

Ég skrifaði í fyrra um Konungssteinana og sýndi myndir af elsta steininum þegar hann var nýr og fallegur. Ég skrifaði líka fyrr í ár um Geysi.

Nú er búið að höggva ofan í gömlu meitilsförin á steinunum þremur til þess að þeir líti betur út þegar tignargesti frá Danmörku ber að garði.

Mönnum hefur væntanlega þótt ömurlegt að þessir merku steinar væru ekki eins og nýhöggnir þegar kóngafólk kemur í heimsókn. En hvað veit ég?

Þessi einkennilega aðför að fornleifum hefur verið gerð með leyfi Fornleifaverndar Ríkisins. Það vekur vissulega furðu mína.

Ég bið þess vegna Fornleifavernd Ríkisins að birta mér skýrslu um efnið, þar sem  ég og bloggvinir mínir getum séð myndir af steinunum fyrir og eftir þessa "andlitslyftingu". Ég bið stofnunina sömuleiðis um að skýra hvaða kenndir og ástæða fengu menn til að höggva ofan í minjar á þennan hátt og hvaðan erindi um þessa aðgerð kom upphaflega.

Vona ég að stofnunin svari mér hér á blogginu.

Haldið þið lesendur góðrir að Danir færu að meitla í Jalangursteina (Jellingsteina/ Jellingestenene) Haralds Blátannar til að gleðja einhverja þjóðhöfðingja.

Ég vona að Frederik erfðaprins og Mary hin tasmanska prinsessa hans hafi verið ánægð með endurgerð hnullunganna við Geysi. En eitthvað held ég að móðir prinsins, sem er eins konar kollega minn, þótt ég sé vissulega ekki "drottning", myndi segja ef þessi vinnubrögð hefðu verið við höfð í Danaveldi.

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, fornleifafræðingur

----

P.s. Eftir að hin eiginlega færsla mín um breytingar á Konungasteinunum var skrifað, hefur höfundur uppgötvað þessi skrif Gísla Sigurðssonar um sögu steinanna. Þar heldur Gísli því fram að steinninn frá komu Kristjáns IX heyri undir Þjóðminjasafn Íslands, þar sem áletrunin ráði því. Þetta er rangt með farið. Áletrunin á steininum telst til fornminja þar sem hún var höggvin árið 1874.  Aldur gripa og minja þarf að vera 100 ár til að þeir teljist til fornleifa samkvæmt lögum. Greinilegt er að aðförin að steininum frá 1907 sé réttlætt með því að hún hafi verið farin rétt fyrir tímamörk. Ég tel nú að steinninn hafi talist til fornleifa er hann var endurhöggvinn.  

Ég furða mig einnig á því að menn kalla steinana Konungssteina. Við erum að ræða um 3 konunga og væri heitið Konungasteinar réttara nafn.

Fornleifavernd Ríkisins leyfði nú manngerðar breytingar á fornleifum og nú er að sjá hvernig stofnunin svarar erindi mínu.  Einnig verðum við að sjá framgangsskýrslu steinsmiðsins sem hjó.

 

P.p.s.  Viðskiptaráð Íslands er með þessa frétt um steinana:

 

Konungssteinar við Geysi

Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa,  heimsóttu Geysi í Haukadal til að vígja lagfærða Konungssteinana, en Dansk-íslenska viðskiptaráðið hefur nýverið gengist fyrir lagfæringu á  áletrunum á þeim. 

Fyrirtækin sem studdu myndarlega við ráðið voru FIH Erhvervsbank sem er í eigu Kaupþings, Samskip, Marel og Rexam Holmegaard.

Konungssteinarnir,  sem eru þrír talsins, bera merki konunganna sem höggvið er í þá, ásamt ártölunum 1874, 1907 og 1921, til minningar um heimsóknir þriggja Danakonunga til landsins.

Heimsókn krónprinshjónanna til Íslands, í boði forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff forsetafrúar, hófst mánudaginn 5. maí en lýkur fimmtudaginn 8. maí.

--- 

Þá höfum við það. Friðrik vígði lagfærða Konungssteina. Konungsefnið setti blessun sína á klámhöggið.


mbl.is Konungssteinar fá nýja ásýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögbann á Jesúsmynd

Fyrir nokkrum mínútum síðan hafði Egill Bjarki Jónsson ljósmyndari samband við mig. Hann krefst þess að ég fjarlægi mynd hans af Véstein Valgarðssyni, sem ég hafði sett við síðustu færslu mína. Ef ég geri það ekki, segist Egill að hafa samband við Myndstef.

Ég fann þessa frábæru mynd Egils á Flickr http://flickr.com/photos/egillbjarki/474886008/in/photostream/

Ég hef ekki notað myndina til að gera mér féþúfu af henni, enda er þetta ekki fallegasti Jesús sem ég hef séð.

Egill skrifar þetta um mynd sína:

"This is my good friend Vésteinn. We worked together at a mental hospital in Iceland. Vésteinn is a very special man, he has many strange hobbies and a very differant view on the world that we live in compared to the rest of us. I made this picture for him to use in a message forum for people against the government funding the church. If you understand Icelandic, here is the page :
http://www.vantru.is/ "

Á þessum síðustu og verstu tímum þegar bannað er að birta myndir af Múhameð, furðar það mig ekki að bannað sé að birta myndir af "Jesús Valgarðsyni".

Ég fjarlægi auðvitað myndina af Jesús, sem notuð var á vantru.is

Það er greinilegt að Jesús Valgarðsson hefur einkaréttinn á myndinni til að storka þjóðkirkjunni með ásjónu sinni (mér finnst annars þessi Jesús mest líkur Katrínu Fjeldsted), og hefur sárnað að trúmaður eins og ég hafi sett myndina af honum á blogg mitt.

Voða er nú lítill munur á Vantrúarfólki og öfgamúslímum. En það var nú ekki nein ný uppgötvun hjá mér. Devil


Fjaðrafok friðarfuglanna - The Sixth Cairo Conference

Haukur í dúfnaham

Miðausturlandaörn, vinur minn góður, sendi mér nýlega línu um flug 33 sjaldgæfra farfugla hvaðanæva úr Evrópu suður á boginn, nánar til tekið til Egyptalands. Þetta var síðbúin farfuglamergð og fuglarnir voru svokallaðar friðardúfur. Blessaðar dúfurnar lentu í hinni fornfrægu borg Kaíró. Tvær útvaldar, íslenskar alþýðudúfur, með hlutverk á meðal þjóðanna, lentu líka á píramídunum í Egyptalandi. Karldúfan hét Vésteinn og var toppdúfa,  kvendúfan Rósa var ósvikin rauðdúfa.

Dúfurnar höfðu verið kallaðar til dúfnaveislu sem kölluð var Sixth Cairo Conference. Þangað voru líka flognar dritdúfur frá fjarlægum einræðisríkjum, t.d. Venesúela, frá samtökum sem berjast með einræðisherranum þar, hitabeltisdýrinu Hugo, gegn Zíonistum og Bandaríkjunum.  Allir gogguðu í sömu vandamálin. Og einu vandamálin í heiminum, sem dúfurnar sáu, voru gyðingar, Bush og vestræn menning.

Þarna í skugga píramídanna kurruðu dúfurnar og samþykktu hjartnæmar friðaryfirlýsingar sem hljóma eins og stríðsyfirlýsingar. Stuðningi var lýst yfir við Íran og stefnu gammanna þar í landi í friðar- og alþjóðarmálum. Einnig bárust stuðningsyfirlýsingar hvers konar við hryðjuverkadúfur úr öllum dúfnakofum veraldar. Á fyrri ráðstefnum höfðu dúfurnar lýst yfir stuðningi við illfyglið Saddam, en eins og allir vita eru friðardúfur hinar mestu skræfur og vilja helst halda friðinn við illfygli.

Á ráðstefnuna í Kaíró í ár tóku einnig þátt útvaldir útsendarar Guðs (Allah) á jörð, Nílargammar frá Bræðrasamtökum Múslíma, (al-ikhwān al-muslimūn). Hér er mynd af þeim á ráðstefnunni. 

Not for public use
Múslímabræðralagið heldur ræðu um Salam í Kaíró

 

Eins og öllum má vera kunnugt um, eru Nílargammar sérlundaðir mjög, og hafa mjög sérstaka útleggingu á friðarhugtakinu. Friður er aðeins réttlátur ef hann er í anda múslíma. Nílargammar neita líka alfarið að Helför gyðinga hafi átt sér stað  og kenna gyðingum um ófrið um allan heim.

Það hlýtur að hafa verið fengur fyrir dúfnadrenginn Véstein, sem flaug alla leið frá Íslandi. Vésteinn hefur nefnilega haldið uppi miklu kurri fyrir því að örlög gyðinga séu sambærileg við örlög Palestínumanna. Hann heldur því fram að sjálfskaparvítið á Gaza sé það sama og hörmungarnar í gettóinu í Varsjá og að Ísraelsmenn feti nú í fótspor Hitlers. Vésteinn dúfa hefur örugglega hitt jafningja sína í Kaíró getað rætt margt við hauka og gamma Múslímabræðralagsins um fjendur friðarins, sem eru víst þeir sömu í huga íslensku dúfunnar Vésteins og öfgamúslíma.

Friðarráðstefnur eru ekki það sem þær voru hérna áður fyrr.

Það voru þó aðeins 33 skrítnir fuglar frá Evrópu með á ráðstefnunni í Kaíró, sem vonandi eru ekkert annað en verstu einfeldningarnir og skósveinar öfgaaflanna, sem lýst hafa yfir stríði á hendur vestrænni menningu.

PS

Mynd fjarlægð vegna hótana ljósmyndara um að hafa samband við Myndstef. Myndina er enn hægt að sjá hér

Ég verð að bæta þessu við. Í ljós er komið að Vésteinn Valgarðsson er líka kominn af gyðingum eins og þeir sem ég greini frá í færslunni hér á undan. Vésteinn er kominn af engum síðri en Jesús Kristi. Það er svo mikill svipur með Vésteini og Kristi að honum hefur verið boðin staða sem altaristafla í Hallgrímskirkju. Gaman til hliðar. Þessi aríski Nútímajesús, sem hittir öfgamenn vegna friðs í Kaíró, hefur verið eilífaður af Agli Spegli, sem er liðtækur ljósmyndari sem ég rakst á á Flickr. Hér, Ladies and Gentlemen, friðardúfan Vésteinn í hlutverki meistarans - Amen:


Íslenskir gyðingar koma út úr fylgsnum sínum

Marx Brothers

 

Skrif mín um gyðingdóm, örlög gyðinga og Ísraelsríki eru um 20% af því sem ég skrifa hér á blogginu. Ekki neita ég því og ekki skammast ég mín fyrir það. Það sem ég skrifa virðist fara í taugarnar á mörgum, enda er stuðningurinn við Ísrael á Íslandi mjög lítill og þekking Íslendinga á sögu gyðinga almennt mjög ómerkileg. Hatur tengist vanþekkingu, og ég hef verið að reyna að benda mönnum á að öfgafullar skoðanir í garð Ísraels og gyðinga sé vanþekking og mjög oft líka lánaðir fordómar.

Að undanförnu hefur það gerst, að upp á yfirborðið koma íslenskir gyðingar, sem ég hafði ekki hugmynd um að væru til. Þeir gefa sig til kynna til að gangrýna mig og skrif mín, sem er ágætt, en taka svo líka eina atrennu gegn Ísraelsríki og réttlæta það með meintum gyðingagenum í sér.

Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðamaður afhjúpaði þannig að hann væri komin af faríseum af Musterishæð og einhver Mangnús IP tala skráð opinberaði í gær að hann væri af ætthvísl skráðra IPsteina (ekki er hann skyldur Einstein, svo mikið er víst). Fyrir nokkrum árum skrifaði maður ættaður af Skagaströnd í DV og réttlætti svæsnar skoðanir sína á Ísraelsmönnum með göfugu gyðingakyni sínu, og taldi sig líka, líklega vegna augljóss skyldleika við Krist, geta gangrýnt gyðinga sem á sínum tíma vildu koma stríðsglæpamanni á Íslandi fyrir dómara.

Óljós ættfræði þessarra þriggja nýgyðinga er notuð til að réttlæta skoðanir þeirra á Ísraelsríki og gyðingum og sem hluti af stuðningi þeirra við málstað Palestínumanna. Þrátt fyrir fáein gyðingagen, eru þessir heiðursmenn afar fráhverfir vitund og þekkingu á meintum uppruna sínum

Nú er hins komið er í ljós að H. Heiðdal er alls ekki kominn af Fiðlaranum á Þakinu heldur bakara af Holtsetalandi, sem var svo heppinn að ekkert gyðingablóð rann í æðum hans. Herra Berndsen ættaður frá Skagaströnd, sem ég skrifaði um í DV 12.7. 2001 vegna þess að hann taldi sig kosher gagnrýnanda Ísraels, var kominn af manni sem á unga aldri þegið te og brauð fyrir að kveikja á ljósum og ofnum gyðinga á hvíldardeginum,og var ekki frekar gyðingur en Egill Skallagrímsson. Berndsen skrifaði um "hina samhljóða rödd gegn ofsóknarbrjálæði Ísraelsmanna".

Nú bíð ég eftir að ættfræði Magnúsar með IP töluna og ljóta orðbragðið komi á hreint. Kannski er hann kominn af Marx bræðrum.

(Meintur) uppruni manna gefur þeim engan rétt til að leika dómara yfir  ætt og þjóð sem forfeður þeirra yfirgáfu í stað þess að styðja og hvetja, þó svo að hjarta þeirra slái fyrir aðrar þjóðir sem geta ekki hætt að lýsa yfir útrýmingu Ísraels.

Ég óska laungyðingum Íslands til hamingju með 60 ára afmæli þjóðríkis þeirra. Gagnrýni sakar ekki, en hún ætti ekki að vera drifin áfram af hatri.


(Nasjónal)sósíalsimi í réttu ljósi

 

HitlerStlinminiatures

Það er ekki lengur óalgengt á Íslandi að maður sjái svona ósóma eftir svokallaða vinstrimenn. Vésteinn Valgarðsson, sem ritar þetta, er að eigin sögn mikill friðarsinni. Mér er ómögulegt að sjá það.

Mig langar að benda á góða grein eftir vin minn Manfred Gerstenfeld, sem stýrir riti sem ég hef skrifað tvær greinar í. Grein hans, sem hann kallar Holocaust Trivialization, kom formlega út í dag. Í henni getur maður getur lesið dæmi um hinar mismunandi aðferðir sem óprúttnir menn og óvitar nota til að gera lítið úr Helför gyðinga, hvernig hún er misnotuð og örlög milljóna manna eru vanvirt  og tengd flatneskju og öðrum málstað eða baráttum, sem ekki kemur örlögum 6 milljón manna við.

Hvað fær menn t.d. til að líkja banni þýskra yfirvalda á hættulegum bardagahundum við helför gyðinga?

Það gerist líka iðulega að fórnalömb Helfararinnar eru vanvirt af fólki sem líkir örlögum gyðinga í Seinna stríði við hryðjuverkamenn, sjálfsmorðssprengjumenn nútímans og örlögum þeirra við lélegan öfgamálstað nútímans. Svo eru til karakterar sem eru í beinu sambandi við ríki og hafa skilning á þjóðhöfðingjum sem afneita Helförinni. Vésteinn Valgarðsson er t.d. nýbúinn að vera í Egyptalandi, sem er einræðisríki þar sem gyðingahatur er sýnt í sjónvarpinu. Vésteinn fór á ráðstefnu um frið í Egyptaland. He he! Mönnum er líka bannað að blogga á Egyptalandi. Ætli Vésteinn hafi mótmælt þessu þegar hann var í skugga píramídanna?

Saklaust fólk, sem allar bjargir voru bannaðar er ekki hægt að líkja við ríki öfgasamtaka, sem hafa útrýmingu gyðinga á dagsskránni líkt og nasistar fyrir 65 árum síðan. Ísraelsríki er ekki hliðstæða Þriðja Ríkisins. Og fyrir þá sem styðja Amadinejad i Íran, þá upplýsist hér með að Helförin átti sér stað.

Hvenær hætta íslenskir vinstrimenn þessum ósköpum? Eru þeir ekki með öllum mjalla? Er arfur nasismans svo lokkandi að þeir þurfi að eftirapa hann, eða er bara svona lítill munur á nasíónalsósíalisma og sósíalisma?

Einn argasti gyðingahatari Íslands eftir Síðari Heimsstyrjöld var kratinn, Alþingismaðurinn og embættismaðurinn Jónas Guðmundsson. Hann gaf út rit sem voru morandi í gyðingahatri. Á heimasíðu Alþingis er ekki minnst einu orði á þessar einkennilegu kenndir Jónasar.  Skrif hans og útgáfa hafa vonandi ekki á sínum talist til góðrar latínu á Íslandi? Margir keyptu tímarit rit Jónasar, Dagrenning, sem út kom í 12 ár, og bókasöfn höfðu fjölda eintaka af ritum hans til láns.

Jónas Guðmundsson

 Jónas Guðmundsson, krati sem gaf út andgyðingleg rit eftir Heimstyrjöldina síðari.

Hvað gerist í kollinum á sumum vinstrimönnum og hvað gerist stundum í kollinum á sumum Íslendingum? Bara að ég vissi það.


Yom haShoah

  Börn bíða dauða síns

Í maí 1944, mánuði áður en Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði sínu og urðu fullvalda þjóð, var verið að slátra gyðingum á fullu í útrýmingarbúðum og fangabúðum um gjörvalla Austur-Evrópu.

Myndin, sem SS menn tóku í Auschwitz, sýnir börn og konur frá ungverska hluta Úkraínu, sem valin höfðu verið til útrýmingar bíða örlaga sinna. Þetta gerðist mánuði áður en Íslendingar fengu sjálfstæði sitt (án þess að úthella svo miklu sem einum blóðdropa). Nokkrum tímum eftir að mynd þessi hafði verið tekin, var þetta fólk dáið. Sumir Íslendingar töldu land sitt hertekið, aðrir höfðu frekar viljað fá Þjóðverja yfir sig en Breta og Bandaríkjamenn.

Árið 1948 varð Ísrael líka af sjálfstæðu ríki, sem fjöldi annarra ríkja og skósveina þeirra hafa viljað feigt allar götur síðan. Mikið fjári eru Íslendingar nú heppin þjóð.

Í dag halda gyðingar minningardag um Helförina, Yom haShoah, og í Ísrael minnast menn hennar með tveggja mínútna þögn kl. 10 að morgni. Menn stöðva alla vinnu og akstur og standa og halda andagt.

Ísraelsríki varð meðal annars til vegna þeirar miklu brennifórnar sem Evrópumenn ákváðu að framkvæma á gyðingum á síðustu öld.

Það er því enginn gyðingur sem getur tekið þá Evrópumenn alvarlega, og minnst af öllu Íslendinga, sem styðja öfgasamtök sem hafa útrýmingu gyðinga og Ísraelsríkis á stefnuskrá sinni.

Maður lætur ekki bjóða sér sama óþverrann tvisvar.


Léleg bók

 
Röndóttur Strákur

Skáldsaga Írans John Boynes, Strákurinn í röndóttu náttfötunum, er komin út á íslensku.

Ég las nýlega bókina á dönsku og þótti lítið til hennar koma.

Bókin er að mínu mati illa rannsökuð unglingabók. Söguþráðurinn er þunnur og ef Boyne hefði rannsakað málin, vissi hann að flest 9 ára börn í Auschwitz voru send í gasklefana við komuna þangað. Smávægileg rannsókn hefði fullvissað hann um að börn böðlanna voru hvergi nærri búðunum. Sjálfur hef ég skrifað sannsögulega bók um örlög gyðinga sem Danir sendu í klær nasista. Margir þeirra enduðu ævina í Auschwitz, þar á meðal þrjú börn. Mér er því kunnugt um flestar villurnar og ruglið sem er að finna í bók John Boynes. Ef 9 ára drengur (Bruno), sonur ímyndaðs yfirmanns í Hitler-apparatinu sem vann við útrýmingar, hefur ekki vitað hvað um var vera, svo hlýtur hann að hafa verið illa gefinn aríi. Boyne bókin lætur Bruno hitta jafnaldra sinn, gyðinginn Shmuel, handan við girðinguna. Það afar ólíkleg atburðarrás.  Girðingar voru ekki einfaldar í Auschwitz og voru þær oftast tengdar við háspennu.

Til að bæta gráu ofan á svart hefur bókaútgáfan Veröld sett mynd af fanga í "röndóttum náttfötum" á kápu bókarinnar. Fanginn er hins vegar ekki gyðingur, heldur pólskur drengur, einn af mörgum pólskum börnum sem rænt var af Þjóðverjum. Hönnuður og útgefandi bókarinnar hefðu getað gert betur. Til eru myndir af gyðingabörnum.

Hér er hægt að horfa á íslenskan bókmenntagagnrýnanda blaðra um bókina. Hún hefur greinilega  ekki komið til Auschwitz. Hún talar um auðnina þar. Auschwitz liggur í blómlegri sveit í Póllandi. Gagnrýnandinn hefur á hinu háa Alþingi flutt ræðu, þar sem hún sagði m.a. þetta: "Allt síðan þá, frá fyrri hluta 20. aldar, hefur innflutningur gyðinga til Palestínu aukist og til ársins 1947 þegar Bretar afsöluðu sér formlega allri ábyrgð á Palestínu og í kjölfar þess var ákveðið af Sameinuðu þjóðunum að skipta landinu í tvennt, í Palestínu og Ísrael, og Jerúsalem yrði undir alþjóðlegri stjórn."  Útrýmingar á gyðingum i Evrópu frá 1940-1945 fækkaði vissulega mjög þeim gyðingum sem flutt gátu til Palestínu. Gleður það eða syrgir það gangrýnandann Katrínu Jakobsdóttur sem gjarnan líkir saman kjörum gyðinga í Evrópu í Síðara stríði og ástandi Palestínuþjóðarinnar í dag? Gaman væri að fá svar frá henni. Hvar voru vopn gyðinganna? Hvar voru eldflaugarnar?

 

 

Ferðataska

Ferðataska Petr Eislers. Hann átti ekki afturkvæmt frá Auschwitz

Ég mæli með því að fólk lesi frekar frásagnir þeirra sem lifðu Helförina af og jafnframt sagnfræðirit um það fólk sem myrt var af nasistum, í stað þess að lesa rugl eftir einhvern írskan hugórasmið, sem gert hefur örlög fólks, sem Írar neituðu að hjálpa á 4. áratug síðustu aldar, að féþúfu. Kannski skrifar hann næst um hvernig Írar lokuðu landi sínu fyrir flóttamönnum á 4. áratug síðustu aldar. Kannski hefði einhver Shmuel geta orðið Íri á þeim árum?  Nei því miður, Írland hleypti færri gyðingum inn en flestar aðrar þjóðir í Evrópu. Nú keppast þeir, eins og Mörlandinn, við að rægja Ísraelsríki.

 

Hier gibt es Blaubeeren

Þýskar (og ef til vill skandínavískar) nasistamellur, svo kallaðar SS Helferinnen, í Solahütte nærri Auschwitz sumarið 1944. Þarna voru þær nýbúnar að borða bláberin sín og sýna tómar skálar sínar því til sönnunar. Það voru engir Þjóðverjar í Auschwitz sem ekki vissu hvað þar fór fram. Þeir skemmtu sér og nutu lífsins þegar þeir voru ekki að myrða gyðinga og aðra fanga í búðunum.


« Fyrri síða

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband