Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
30.11.2008 | 11:23
Spáið í Bubba
Meira af kollóttum hetjum.
Einn skemmtilegasti maður allra tíma, Bubbi Morthens, er nú orðinn faraldsspámáður. Morgunblaðið birti grein eftir hann í gær, þar sem hann spáir byltingu á Íslandi: „Gera menn sér grein fyrir því að í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar liggur uppreisn í loftinu," , segir Bubbi, sem er líka að spá í ædólið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sem hann telur framtíðarleiðtoga Sjálfstæðisflokksins. Davíð spákaupmaður í Svörtubjörgum veit nú örugglega meira um það mál, þótt hann vilji ekki láta neitt uppi eins og málin standa..
Þótt Bubbi sé af viðurkenndum sígaunaættum eins og Geir Hilmar, þá leyfi ég mér að efast um spásagnargáfur hans. En maður getur þó aldrei verið öruggur. Hópur vitleysinga með vopnaleyfi er kannski farinn að æfa box með Bubba.
Bubbah thank you for your great contribution
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2008 | 05:46
Steingrímur Jóhann vill öll gögn á borðið ...
í Icesave málunum og er tilbúinn að gera hvað sem er til að fá þau.
Hér fræsir hann upp malbikið fyrir framan Alþingishúsið með öðrum meðlimum úr Vinstri Grænni heilsubótarhreyfingu við mikla hrifningu áhorfenda. Finnur Ulf Dellsen, heimsspekinemi, aðstoðarmaður Steingríms, stýrir bifhjólinu sem er rússneskt.
Ég er alveg sammála Steingrími J. í þessu máli. 11 spurningar ættu ekki að standa í hálsinum á ráðherra, sem m.a. tókst að gera Breta alveg brjálaða.
29.11.2008 | 09:42
Egófónía í Kópavogi
Fréttir hafa farið um þjóðfélagið um að Styrmir Gunnarsson hafi upp á síðkastið mætt reglulega i Seðlabankann, þótt ekki sé sundlaug eða sumarbústaður í húsinu. Menn hafa leitað eftir skýringu á þessu fyrirbæri og tel ég nú að hún sé fundin. Heimsendingaþjónusta "Heimssýnar", sem líka telur falleraðan litningalása og pólitísk bitlingaskáld, hafa sent Styrmi í Seðlabankann til að gefa Davíð Oddssyni andlegt nudd. Nú ætla þeir að flytja Egófóníur og kyrja ættjarðarljóð í Kópavogi.
Heimssýn virðist sundurleitari hópur en ég hélt að hann væri. Legg ég til að Heimssýnarforkólfar velji betur þann hóp egófónista sem þeir nota til að hampa málstað sínum með ættjarðarsöng. Annars er heimsendir á næsta leyti. Einmitt þessi hópur í Kópavogi veldur því, að ég verð að fara að hugsa mitt mál og mína afstöður til klinksins í vasa mínum.
Kannski er evra það sem bjargað getur Íslendingum og stoppað litrófsútbrotin á handlegg Harðar Torfærutrúbadors á laugardögum. Nei, fjandinn sjálfur!! Ættjarðarljóð og misskildir snillingar í Kópavogi eru álíka vitlausar ráðstafanir og óheftir eurótískir misskildingar og „sæla" ESB.
![]() |
Fagna fullveldinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.11.2008 | 14:08
A great little nation is watching her big brother in the Alþingi
Í gær horfði ég á Alþingi í beinni. Það var hreint stórgóð skemmtun. Sturla Bö var eins og útþurrkaður munkur á musterisbjöllunni í Himalaya. Dingdong. Þegar hann fór á klóið settist einhver varaforseti við bjölluna og þá opnuðust gáttir helvítis. Mitt í framsögu Björns Bjarnasonar hrópaði Steingrímur J. rauðglóandi úr neðra að Birni. Bjössi lýsir atburðinum á bloggi sínu, og sú lýsing er ekki falleg. Halda mætti að Steingrímur hafi ætlað að stinga Björn með þríforki, og höggva hann í herðar niður, brytja í þúsund bita og gefa litlu fuglunum.
Þessi atburður kallar einfaldlega á fleiri myndavélar í Alþingishúsið. Þá gætum við séð svona upphlaup frá öllum hliðum og í slowmotion, í beinni. Það miklu skemmtilegra en enski boltinn eða Matador.
Fólk með heiladabba verður nú að fara að leita sér hjálpar. Heiladabbi er hættulegur sjúkdómur, sem getur leitt til dauða. Fólk með dabba á heilanum talar gjarnan ruglingslega og sér sýnir. Ætli Steingrímur J. sé með dabba í skallanum?
Hinir sannanlega seku ganga enn lausir. Það er víst erfitt að sjá það ef maður er með heiladabba.
Vantrausttillögur eru alltaf vitlausar hugmyndir, þegar þær eru ekki vel undirbúnar. Þessi í gær var algjör bömmer. Þjóðstjórn með einum fulltrúa úr hverjum flokki og óflokksbundna sérfræðinga kosna af þjóðinnni hefði verið skynsamlegri krafa. Jafnvel væri hugsandi að hafa kosningar um meðlimi slíkrar stjórnar. Forsetinn gæti nefnilega klúðrað því.
Borgarafundurinn í gær sýnir mér að fjöldi manns er því miður haldinn ólýðræðislegum kenndum og á erfitt með allan skilning og rökhugsun. Dabbinn og meinlokan eru orðin að faraldri.
Brúmm í bílnum, er Geir líka með Heiladabba?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.11.2008 | 12:11
X-G. Pétur er fréttasnápur
Páll Magnússon útvarpsstjóri er búinn að gefa G. Pétri Matthíassyni fyrrverandi fréttamanni sólahrings frest til að skila fréttaupptökum sem hann tók í heimildaleysi frá RÚV og birti á heimasíðu sinni og YouTube. Enn fremur á G. Pétur að biðjast afsökunar fyrir þessa yfirsjón sína innan frestsins. Ef hann gerir það ekki, þá hafa lögfræðingar RÚV samband við G.Pétur. Hlustið hér. Heyrn er sögu fríkaðri.
Mér datt í hug í færslu um daginn, að G. Pétur hefðu hnuplað viðtalinu við Geir Haarde, sem aldrei var birt. Það reyndist rétt ályktað hjá mér.
Nú, G. Pétur, hjólarðu bara upp í Efstaleiti og afhendir þýfið og kyssir Pál Magnússon á kinnina og segir assakaðu að ég er asni.
Nú er líka komið í ljós hvað G-ið í nafni G. Péturs þýðir. Hann var skýrður Geir í höfuðið á Geir Hallgrímssyni. Aðrar heimildir herma að það sé hreinlega G strengurinn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 06:20
Morgunblaðið byrjaði sem straustofa
Ég er alltaf að grafa í gömlum skruddum eins og allir vita. Nýlega fann ég eintak af Was ich in Island sah, efter Adrian Mohr - eintak sem líklegast hefur verið í eigu Adolfs Hitlers og sem ég keypti á fornbókasölu í Berlín.
Í bókinni er mynd sem skýrir hvernig íslenska pressan varð til á straustofum. Ætli Mogginn hafi byrjað sem gufupressa? RÚV byrjaði eins og kunnugt er sem gufuradíó. Hvort þar hafi unnið mörg gufumenni skal ósagt látið. Ég þekki hins vegar marga bolta sem slitu barnsskónum á straustofunni.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.11.2008 | 18:20
Þjóðverjar veita skuldaaflausn
Þjóðverjar veita nú Íslendingum skuldaaflausn vegna milljarða á Kaupþingsreikningum blásaklausra sparifjáreigenda í Þýskalandi sem horfið hafa upp í rassinn á Sigga Einars og hinum sparigrísunum okkar.
Kanslari Þýskalands frétti í dag um alla þá íslensku sjómenn, sem misstu lífið í siglingum á Atlantsálum, þegar Hitler var foringi Þjóðverja. 225 manns og 18 íslensk skip. Hefur einhver gleymt Goðafossi? Hlutfallslega dóu jafnmargir Íslendingar og Bandaríkjamenn í stríðinu.
Miðað við hvað fáir Íslendingar voru 1939-1945 var fórn Íslands mikil vegna mistaka þýsku þjóðarinnar, er haft eftir kanslaranum. Við eigum ekkert inni hjá ykkur, bætti hún við.
Ef frá eru dregnar ókeypis sýningar á áróðursmyndum félagsins Germaníu í Nýja Bíói, eiga Íslendingar frekar inni hjá Þjóðverjum.
Ef þetta kemur flatt upp á Geir og Imbu Sollu, ætti það ekki að gera það. Minnið nú Angelu Merkel á fall Þýskalands, þar sem múgæsing eins og sú sem við sjáum nú á Íslandi leiddi til Ragnarökkurs.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.11.2008 | 09:28
Danski sendiherrann fer með rangt mál í dönskum fjölmiðlum
Danska morgunblaðið Politiken fylgist af áhuga með skrílslátunum á Íslandi. Danski sendiherrann, Lasse Reimann, telur það greinilega í verkahring sínum að gerast heimildamaður fyrir Politiken. Allt er meira eða minna skrumskælt í fréttum blaðsins og sendiherrann segir að mótmælendur á Austurvelli beini ekki mótmælum sínum að ákveðnum persónum. Þekkir hann ekki Davíð, Geir og Sollu?
Það ætti að vera fyrir neðan virðingu danska sendiherrans á Íslandi að gerast fréttasnápur fyrir Politiken, ef hann getur ekki komið efninu rétt frá sér.
Tveir blaðamenn Politiken skrifa: Islandsk politi har affyret peberspray mod hundredvis af vrede demonstranter, som har angrebet politihovedkvarteret i hovedstaden Reykjavik. Þarna stendur að piparúða hafi verið skotið á hundruð reiðra mótmælenda.
Því er haldið fram að fjölmargir úr árásarliði götunnar hafi slasast við lögreglustöðina í Reykjavík. Blaðið lýsir eftir safaríkum myndum af íslenskum löggum að berja líftóruna úr aumingja mótmælendum. Hægt er að senda slíkar myndir til Politiken, sem getur greinilega soðið súpu sína úr hverju sem er. Við þá ósk skrifar Politiken þetta: Islandsk politi har kastet peberspray mod en stor gruppe demonstranter. Fyrst affyret og svo kastet. Blaðamenn í Danmörku eru jafnlélegir og þau mörgu unglömb og æsingamenn sem ráða ferðinni á íslenskum fjölmiðlum í dag. Orðaforðinn er greinilega ekki nægilegur til að lýsa hlutunum rétt. Maður úðar piparúða.
Ekki veit Politiken að Bónusfánabjáninn er fyrrverandi partísan í Palestínu, sem sagði af sér alls kyns frægðarsögur í þjónustu hryðjuverkasamtaka. Ekki veit Politiken heldur að móðir skæruliðans er starfandi norn. Það sem Politiken hefði átt að skrifa um er að rugl, bull og veitleysa leggst í sumar ættir á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
22.11.2008 | 20:54
Skríllinn sér rautt
Dönskum gestum mínum, sem í dag heyrðu lögfræðinemann sem talaði á Austurvelli, varð um og ó. En kvindelig Hitler!, var dómur eins gestsins, sem þótti ræðukonan ógnvekjandi. Út frá röddinni veðjaði fólk á sextuga kommakerlingu sem héldi að draumaríki sósíalismans væri loks að koma. Ég tjáði fólkinu að þetta væri bara yngri stúdína af góðum ættum.
Hörður torfærutrúbador sagðist vera kominn með rautt armbindi. That time of the month. Hann fullvissaði þjóðina um að hann skiptu um liti á bindinu í hverri viku. Tækifærislitir í tækifærisbyltingu? Rauði liturinn hefur greinilega æst einhverja til að ráðast á lögreglustöðina. Víkingasveitin kom til varnar. Ungviðið skemmti sér við að brjóta glugga og láta öllum illum látum. Svo kom fitlarinn af þakinu, fánaberi þeirra svínbeygðu út úr steininum eins og álfur út úr hól, með hulu yfir andlitið eins og ég forðum. Einhver húmanisti hafði bailað hann út, eins og hann Billy the Kid í villta vestrinu. Djöfull eru Íslendingar nú væmnislega dramatískir.
Hvað gerðist fyrir utan allt þetta. Jú, Jón forseti var klæddur i kjól hinn bleika af einhverju kvenfélagi, sem auðvitað fékk tvo stráka til þess verks. Vá, enn listrænt. Drag-byltingin í betlararíkinu Íslandi er greinilega að ná hámarki og ég hlusta nú á „láttu mig vera og farðu svo burt" með Lúðursveit Verkalýðsins. Ágætis lag sem hægt væri að nota þegar 007 verður gagnnjósnari í þágu Norður-Kóreu og moneypeningar fara að streyma til fátæku eyjunnar okkar og við komust á flot i hriplekum evrugondóla.
Þetta var aumur dagur í sögu lýðveldisins. Það væri nær að mótmæla fyrir utan hallir auðmannanna í stað þess að brjóta saklausar rúður við Hlemm.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
22.11.2008 | 08:57
Frumstæður fréttapési
Fyrrverandi fréttamaður RÚV, G. Pétur (Galsa Pési), setur nú gamalt viðtal við forsætisráðherra á YouTube. Visir.is er með þetta sem frétt í boði Samfylkingarinnar. Mér skilst að viðtal þetta hafi aldrei verið flutt í fréttatímum RÚV árið 2007. Hvernig stendur á því að fréttamaður er með afklippur af upptökum Ríkisfjölmiðils í hirslum sínum? Eru ónotuð viðtöl fréttamanna á opinberum miðlum einkaeign G. Péturs? Hefur G.Pétur tekið eignir RÚV með sér heim við starfslok sín, eða hefur hann bara farið inn á fréttastofuna og sótt þetta og sett á YouTube, meðan hin fíflin á fréttastofunni hlógu og hrópuðu: "Áfram Pétur"?
Greinilegt er að fréttamaðurinn hefur hitt Geir Hilmar á slæmum hárdegi, með kolluna skakka, svangan og þreyttan. Ef ég hefði fengið svona yfirgangslegar og ruddalegar spurningar frá einhverjum, hefði ég ekki svarað, jafnvel gefið honum kinnhest með hairpísinu. Það er ekki til í dæminu, að slík viðtöl gætu hafa átt sér stað í öðrum siðmenntuðum löndum. Íslenskir fjölmiðlamenn hafa haft óheftan aðgang að opinberum persónum. Í þessu viðtali gengur G. Pétur einfaldlega of langt. Ef þetta hefði verið í öðru landi, hefðu aðstoðarmenn ráðherra og þingverðir tekið fréttamanninn afsíðis og beðið hann um að stilla sig. Ég skil ekkert í Geir að rökræða við Galsa Pésa.
Þegar ég sá þennan bút úr safni G.Péturs, sem ólst upp á Þjóðviljanum sáluga, kom upp í huga mér blogg Davíðs Þórs Jónssonar, sem ég fann eftir nokkra leit: Vessegú . Fyrirsögnin á vel við.
G. Pétur og aðrir góðir Íslendingar eiga greinilega erfitt með skilning á ESB? ESB hefur svo sem ekki boðið þjóðinni inn i eitt eða neitt. Skyndiupptaka evrunnar þýðir að íslenska þjóðin verður götumella í slitnum netsokkum á horni Evrópustrætis, sem lyktar af slori. Draumsýnir ESB-ista eru tálsýnir masókista. Hafið þið búið í ESB-landi og upplifað „herlegheitin"? Íslendingar eru svo sem í augnablikinu ekki í neinum sérflokki. ESB hefur alltaf sýnt smáþjóðum, og fátækum, að ESB er executive club fyrir útvalda. Ísland er í augnablikinu ekki tækt í neina „fína klúbba". Þakkið skapara ykkar fyrir það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 9
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 1354579
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007