Leita í fréttum mbl.is

Gyðingar á Grænlandi

Pesach i Thule-zoom2lille

Frá páskahátíð gyðinga í Thule

Það hljómar vissulega framandi, en það var engu að síður tilfellið. Þeir voru líka þar. Það var þó ekki stofnaður nasistaflokkur á Grænlandi til að stemma stigu við veru þeirra, líkt og gerðist meðal ýmissa dáindisdrengja á Íslandi, sem vildu Nýtt Ísland líkt og menn vilja í dag, enda Grænlendingar sjálfir fórnarlömb þjóðar sem telja sig betri en alla aðra. Já, ég á við Dani, sem höfðu mikið samneyti við Þýskalands nasismans, bæði nauðugir, en aðallega þó viljugir.

Fyrir fáeinum árum skrifaði ég grein á dönsku, sem má lesa hér í tímaritinu Rambam (12:2003), sem ég ritstýri nú, um þá gyðinga sem dvalið höfðu á Grænlandi í lengri eða skemmri  tíma fyrir 1970. Þeir voru margir þegar Bandaríkjamenn voru enn með stórar herstöðvar á Thule Air Base og í Søndre Strømfjord. Nyrstu guðsþjónustur gyðinga, sem sögur fara af, voru líklega haldnar á Thule Base fyrir 40-50 árum. Ég komst í samband við manninn sem fyrstur stóð fyrir helgihaldi meðal gyðinga í bandaríska hernum í Thule.

GR3
Fritz Löwe tálaus i snjóhúsi á Grænlandsjökli

 

Einn þeirra gyðinga er dvaldi á Grænlandi, áður en bandaríkjamenn komu, var Fritz Löwe (1895-1974), sem var samstarfsmaður jarðfræðingsins fræga Alfred Wegeners, þess sem setti fram landrekskenninguna. Fritz Löwe lenti í hremmingum á Grænlandjökli veturinn 1930-31 og kól á tám. Skera varð flestar tær hans af með vasahníf, og þurfti Löwe að kúra í snjóhúsi á Grænlandsjökli þar til voraði. Wegener dó hins vegar á ísnum í þessum rannsóknarleiðangri ásamt grænlenskum aðstoðarmanni. Síðar, er Löwe slapp frá Þýskalandi Hitlers, gerðist hann þekktur jarðfræðingur í Ástralíu.

Þetta og margt annað getið þið lesið um í grein minni um gyðingana á Grænlandi. Góða skemmtun.

 

Kosher selur

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ágæti Vilhjálmur.

Við sem stundum tölum um nauðsyn þess að endurvekja Nýtt Ísland leggjum þá merkingu í hugtakið eins og Páll Skúlason fyrrv. háskólapróffesosr, lýsti svo ágætlega að endurvekja gömul gildi um heiðarleik, samábyrgð og samvinnu.  Við viljum draga úr spillingu og samþættingu peningavalds og stjórnvalda. Þetta á ekkert skylt við nasisma og ég afþakka að vera spyrtur við þá stefnu og treysti því að þú virðir það.

Sigurður Þórðarson, 22.1.2009 kl. 10:12

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvernig er Nýtt Ísland þess fólks sem ræðst á þing þjóðarinnar?

Peningavald og stjórnvöld er ekki hægt að skilja að, ef fólk vill góðu tímana aftur. Velferð byggir á fjármunum. Viltu kannski það sem Steingrímur J. kallar á? Skila þeim smáaurum sem okkur hefur verið lánað til að reisa á rústunum.

Það er því miður minni munur en þú heldur á grunnum óskum þeirra sem krefjast nýs Íslands í dag, og þeirra nasistahræja sem kröfðust nýs heims á 4. og 5. áratugnum.

Efnið er Grænland, ekki Nýtt Ísland!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 10:30

3 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Þú ættir nú að vita að danir björguðu flestum dönskum gyðingum. Földu suma heima en komu öðrum yfir sundið til Svíþjóðar. Og þeir tóku þeim líka fagnandi við heimkomuna eftir stríðið.Flestar þjóðir evrópu voru miklu samvinnuþýðari við nasistana en danir. Það nægir t.d. að nefna frakka, ungverja og slóvaka.

Sigurður Sveinsson, 22.1.2009 kl. 15:24

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Síst af öllu myndi ég vilja líkjast nasistum. Ég hef á síðunni minni og annarsstaðar talað gegn ofbeldi er ekki tengdur VG og tek þetta ekki til mín og trúi því heldur ekki að það sé þannig meint.  Greinin þín er hins vegar bæði fróðleg og skemmtileg. Takk kærlega fyrir að deila henni með okkur.  Strax sem barn las ég allt sem ég komst yfir um Grænland en það voru einkum danskar ferðasögur og hef síðan verið heillaður af því landi án þess að hafa komið þangað þó skömm sé frá að segja. Ég á það sameiginlegt með þessum nágrönum okkar að ég er alinn upp á selkjöti og selspiki. Feðgarnir Róbert og Tumi (Grétar) fengust aldrei til að borða þennan ágæta mat þó Róbert borðaði flest. Nafni, mér þykir gott að heyra þetta um Dani sem bætir það góða álit sem ég hafði á þeim. 

Sigurður Þórðarson, 22.1.2009 kl. 16:47

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Siggarnir tveir, þið ættuð kannski að fá bókina mína Medaljens  Bagside að láni á einhverju Bókasafni á Íslandi eða kaupa hana. Þetta er mikil bók, sem leiddi m.a. til þess að danskur forsætisráðherra baðst opinberlega afsökunar á aðild fyrrverandi danskra stjórna og embættismanna í Helförinni.

Þetta var ekki eins rósarautt eins og Danir vilja oft segja heiminum.

Danir björguðu ekki flestum gyðingum í Danmörku. Flestir gyðingar í Danmörku björguðu sér sjálfir, þeir komu sér yfir til Svíþjóðar og borguðu sumir með aleigu sinni. Þjóðverjar héldu einnig að sér höndum. Þetta var miklu flóknara en svo, að Danir geti leyft sér að segja að þeir hafi bjargað. Sumir halda því fram, að þjóðverji hafi bjargað gyðingunum, en það er líka óundirbyggð óskhyggja, sem ég hef líka skrifað um:

Lestu grein mína í ársritinu Rambam 15:2006 http://postdoc.blog.is/users/3d/postdoc/files/Ducky/ich_weiss_2244.pdf

Lestu grein mína og Bent Bludnikows. http://www.jcpa.org/phas/phas-vilhjalmur-f04.htm

Eins eru nýlega komnar út niðurstöður rannsókna, sem sýna í raun, hvernig var tekið á móti gyðingum, sem sneru aftur frá Svíþjóð. Það fer tvennum sögum af því. Annars vegar hefur fólk ekki þorað að segja frá þessu, því meðal sumra gyðinga ríkti óskrifað samkomulag um að "vera þakklátir og sleikja sögufölsun danskra Krata". Hins vegar hafa sagnfræðingar fyrst verið að fá aðgang að lokuðum skjalasöfnum og áhuga á því að sagan var ekki einsleit og hún hefur verið framreidd í marga áratugi.

Það tekur mjög mikinn tíma að breyta þeirri ímynd og rangfærslum um stórmennsku Dana, ekki minnst vegna þess "orðspors" sem Dönum tókst að skapa í BNA. Það hef ég líka skrifað um lærða grein í Ritinu Denmark and the Holocaust (2003), http://www.diis.dk/graphics/CVer/Personlige_CVer/Holocaust_and_Genocide/Publikationer/holocaust_DK_kap_5.pdfog sýnt að ýmsum sögum var komið á kreik af áróðurssveit Dana í BNA á stríðárunum.

Svo Sigurður Sveinsson, þú ert víst að segja manni sem hefur rannsakað þetta meira en flestir, að þú þekkir söguna betur hann. Eða misskil ég þig.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 18:48

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk, ég ætla að skoða þetta um helgina.

Ég verð að viðurkenna að þetta hljómaði betur hjá nafna mínum. Maður finnur mannlega breskleika hjá öllum þjóðum þegar þær eru undir einræði. Það eru alltaf einhverjir til að vinna skítverk og níðast á samborurum sínum. Annars veit ég ekki hvað manni er hollt að taka inn á sig svona löngu liðna atburði? Ég kannast við mann (við vorum reyndar skipsfélagar) sem fór yfirfum við að lesa átakanlega sögu eftir Martin Gray en hann hefur áreiðanlega verið tæpur fyrir.

Sigurður Þórðarson, 22.1.2009 kl. 19:54

7 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Ég hef ekki haldið því fram að ég sé einhver sérfræðingur í þessum efnum. Ég hef þó í áratugi lesið mikið um þriðja ríkið, helförina og seinni heimsstyrjöldina. Það er bara svo að það eru ekki allir sammála þér. Og ég verð nú að segja að mér finnst umfjöllun þín um morðæðið á Gaza sem hófst undir lok síðasta árs vera ákaflega einhliða.

Sigurður Sveinsson, 22.1.2009 kl. 20:49

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hér kemur þá þriðji Sigginn en hann getur aldrei sagt neitt af viti! En hann kann stundum að hlusta.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 22:57

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður Þór, þetta er ekki satt. Þú ert að mínu mati einn vitrasti maðurinn hér á blogginu. Hef ég heyrt, að áður en allt fór í klessu út af bankavíkingunum, voru þeir að spá í að greiða nokkrum bloggurum laun fyrir vitrar færslur. Mér er sagt að þú hafi verið meðal þessara vitringa. Ég trúi því.

Sigurður Þórðar. Ef þú ert eins tæpur og vinur þinn sem fór yfirrum á að lesa Martin Gray, ættir þú kannski ekki að lesa bók mína. Margar konur hafa tjáð mér að bók mín hafi valdið gráttúrum hjá þeim. Ég grét líka stundum þegar ég skrifaði hana.

Sigurður Sveins, ég er alltaf einstrengingslegur þegar kemur að baráttu við hryðjuverkasamtök. Obama er eftir að sjá eftir því að hann lokar Guantanamóa, nema að hann sé Messías eða Súpermaður. Pyntingarnar í Guantanamóa hef ég ekki séð neinar sannanir fyrir og einn fanginn hér frá Danmörku, sem sagði að hann hefði verið pyntaður, kom heim, lýsti því yfir að hann væri enn á beljandi Jihad, gerðist svo póstur undur nýju nafni og rændi greiðslukortum og vegabréfum fyrir baráttuna fyrir Kalífatið, og er nú aftur í steininum. Líkast til pyntar danska lögreglan hann líka.

Efni þessa bloggs voru Gyðingar á Grænlandi. Hefur einhver einhverju við það að bæta? Þekkið þið ekki Cohen i Kulusuk eða Diamond í Disko-flóa?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 23:20

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú er ég ekki að hlusta!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.1.2009 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband