Færsluflokkur: Kynning
15.11.2007 | 10:53
Danski stríðsglæpamaðurinn sem enginn mátti heyra um
Í byrjun árs 2005 birtist eftir mig grein í helgarblaðinu Weekendavisen í Danmörku. Greinin, sem hægt er að lesa hér, fjallaði um danskan stríðsglæpamann, Gustav Alfred Jepsen, sem enginn hafði heyrt um áður. Ástæðan fyrir þeirri þögn var að dönsk yfirvöld höfðu klórað mjög vandlega yfir málaferli gegn honum og aftöku hans árið 1947. Þessi danski borgari framdi stærsta glæp Dana í síðari Heimsstyrjöld. Dönsk yfirvöld vildu ekki að mál hans skyggði á "hetjulega" framgöngu þeirra í stríðinu.
Þegar ég sá heimasíðu íslenskra rasista (skapari.is, sem virðist hafa verið lokað), sem mikið hefur verið skrifað um, kom danski fjöldamorðinginn upp í huga mér. Ég held að einstaklingarnir bak við þá síðu eigi bágt eins og danski stríðsglæpamaðurinn. Ég held að þessir menn gætu hæglega leikið sama hlutverk og danski SS maðurinn ef aðstæður væru fyrir hendi.
Ekki voru allir Danir sáttir við grein mína. Fylgismenn þeirrar söguskoðunar, að samvinna við Þriðja ríkið hafið verið vænsti kostur fyrir Dana eru margir. Fyrir utan hótunarbréf og tvö dólgsleg símtöl, skrifuðu nokkrir Danir lesendabréf í Weekendavisen og mótmæltu grein minni. Þeir töldu Gustav Alfred Jepsen hafa verið Þjóðverja, vegna þess að hann tilheyrði þýska minnihlutanum í Danmörku. Gustav Alfred Jepsen leit hins vegar sjálfur á sig sem Dana og var danskur þegn, skráður í SS sem Dani og krafðist þess að tala dönsku við réttarhöld sín. Dönsk yfirvöld litu á hann sem eins konar Dana, lagalega séð, og héldu vörð um þögnina til hins síðasta, eins og fram kemur í grein minni. Dönsk yfirvöld mæltu með því við konu hans og son, að þau færu ekki til að kveðja hann áður en hann var hengdur.
Sumir Danir töldu árið 2005 að Þjóðverjar væru einir færir um að fremja þá glæpi sem Gustav Alfred Jepsen framdi. Ég er á annarri skoðun og tel að einstaklingarnir bak við rasistasíðuna íslensku séu á góðri leið að lenda í sömu sporum og morðhundar Heimsstyrjaldarinnar.
Lögregluyfirvöld og dómskerfið á Íslandi verða að hafa upp á þessum pörupiltum og koma þeim bak við lás og slá eða í meðferð á geðsjúkrahúsi. Þessi síða þeirra er ekkert spaug, heldur endurtekning á morðhótunum sem hafa heyrst einum of oft.
Kynning | Breytt 6.2.2022 kl. 04:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.11.2007 | 19:11
Icelandic supermice
Dr. Ebenezer Henderson, Skotinn sem gerðist prestur í Danmörku og dreifði biblíum út um allt, velti líka fyrir sér veraldlegum fyrirbærum. Hann velti fyrir sér íslenskum músum í ferðabók sinni frá Íslandi árið (1818). Þar skrifar hann á blaðsíðum 417-19 um athuganir Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, sem fyrst komu út í Íslandslýsingu þeirra árið 1772. Rannsóknir þeirra bentu til þess að hagamýs söfnuðu berjum og öðru ætilegu á þurrar kúadellur, sem þær svo roguðust með niður að næsta læk, hoppuðu um borð og stýrðu dellunni með halanum, þangað til þær voru komnar heilu og höldnu á áfangastað.
Hr. Hooker, sem einnig ferðaðist á Íslandi, henti gaman af þessari vitleysu hjá Eggerti og Bjarna og segir okkur að sérhver viti borinn Íslendingur hlægi af þessari upplýsingu Eggerts og Bjarna.
En Henderson var trúmaður og hann tilkynnti lesendum sínum með mikilli andargift í bók sinni Iceland: Or the Journal of A Residence in the Island during the Years 1814 and 1815:
Having been apprised of the doubts that were entertained on this subject, before setting out on my second excursion, I made a point of the account, and I am happy in being able to say, that it is now established as an important fact in natural history, by the testimony of two eye-witnesses of unquestionable veracity, the clergyman of Brjamslæk, and Madame Benedictson of Stickesholm, both of whom assured me that they had seen the expedition performed repeatedly".
Ebenezer Henderson hafði mikil áhrif á skeggtísku Össurar Skarphéðinssonar
Madame Bendediktsson, sem hét Jarþrúður Jónsdóttir (og var kona Boga Benediktssonar faktors og fræðimanns) hafði á sínum yngri árum haft möguleikann á því eina kvöldstund, að virða fyrir sér mýs við strönd lítils stöðuvatns, og sjá hvernig litlu dýrin léku listir sínar sem ferjumenn. Maddaman greindi einnig frá því að mýsnar hefðu notað þurra sveppi sem töskur.
Annað hvort hefur frú Jarþrúður sjálf verið á sveppum þetta sumar, eða að hún hafi verið berdreymin í meira lagi og hefur máski séð fyrir sér Íslendinga árið 2007 fyrir utan Bónusverslun, en ekki getað sett þá sýn í samhengi - ekki trúað sínum eigin draumum.
Þetta athæfi íslenskra músa þótti enn svo merkilegt árið 1832, að alþýðufræðararnir hjá Penny Magazine sögðu frá þessu og bættu við myndinni af íslenskum músum á siglingu.
Nú er vandamálið bara, að ég veit ekki hvort þetta er rétt eða rangt. Ég hef aldrei fylgst með músum. Geta íslenskar mýs siglt á kúadellum og hafa þær yfirleitt leyfi til þess? Sumir íslenskir fjármálasnillingar geta greinilega siglt á hvaða dellu sem er og er þeim trúað fram í rauðan dauðann.
Kynning | Breytt 30.3.2008 kl. 06:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2007 | 09:46
Hötum Lomborg
Ég er einn fárra í Danmörku sem frá byrjun hef haft mikla trú á dr. Birni Lomborg, dönskum stjórnmálafræðingi, sem leyft hefur sér að vera efins gagnvart nýju heimstrúarbrögðunum. Þau trúarbrögð boða allsherjarbráðnun og hraðferð til helvítis. Fylgjendur eru margir og mjög heittrúa. En eins og oft hjá heittrúarfólki, virðist vera sía í heila þess þar sem almenn skynsemi og rökhugsun er skilin frá heilbrigðri skynsemi.
Í dag er Lomborg með áhugaverða grein í Politiken, Før vi panikker, sem ég mæli með því að fólk lesi. Ég set tenginu við hana þegar hún kemur á netið síðar í dag eða á morgun.
Ég krefst þess ekki að neinn trúi, falli fram á hnén og tilbiðji Lomborg og hans skoðanir. En fæstir þeirra sem ég hef rætt við í Danmörku um Lomborg hafa lesið stafkrók eftir hann, aðeins gagnrýni annarra, og ég hef meira að segja hitt fyrir menn sem höfðu "ógeð á manninum, vegna þess að hann er hommi".
Politiken hefur undanfarna daga birt röð af greinum um heim á heljarþröm og loftlagsbreytingar og hefur leyft Lomborg að svara.
Á sömu síðu og grein Lomborgs í Politiken í dag er bréf til blaðsins frá aldraðri konu, sem ég hef einu sinni hitt. Hún heitir Ulla Jessing og er gyðingur sem fæddist í Þýskalandi. Hún skrifar reið: "Ég skil ekki maður vilji leyfa loddara eins og Lomborg að ganga lausum í fjölmiðlaheiminum með yfirlýsingar um að "gróðurhúsaáhrifin séu mjög vafasöm". Og það hefur gerst eftir að loftlagssérfræðingar frá öllum heiminum hafa fengið Nóbelsverðlaunin fyrir vísindalegar rannsóknir sínar á sönnu ásigkomulagi jarðarkringlunnar. Yfirlýsingar Lomborgs eru á sama stigi og yfirlýsingar bandarískra öfgatrúarmanna, sem halda að kenningar Darwins orki tvímælis".
Þessi stutta greining Ullu Jessings lýsir hatri hópæsingarinnar í hnotskurn. Ulla Jessing, sem flýði Þýskalands nasismans og kom ung til Englands, flutti síðar til DDR sem heillaði hana eins og Stalín. Þar giftist hún og settist loks að í Danmörku. Ef hún hefur ekki verið á mála hjá Stazi er ég illa svikinn, og ég sel það ekki dýrara en þegar hún skrifar að Björn Lomborg sé loddari. Konan hefur alla ævi verið handbendi öfgafullrar skoðana og ógagnrýninn borgari í ráðstjórnarríki. Hún vill láta banna Birni Lomborg að tjá skoðanir sínar. Greinilega eru sömu gildin í gangi og þegar hún var Kammerad Ulla i DDR.
Umræðan um loftslagbreytingar er orðið nýja byltingarslagorðið. Í byltingum og öfgastefnubrjálæði virðist heilinn í sumu fólki fara algjörlega úr sambandi og bráðnar.
Kynning | Breytt 29.10.2007 kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
23.10.2007 | 19:30
Sígaunar á "Kopenhagen" í Buchenwald
Fyrrv. fangi og bandarískur hermaður virða fyrir sér safn lífsýna í Buchenwald. Danskir læknar stunduðu rannsóknir í Buchenwald eða í samvinnu við lækna SS í búðunum
Út er komin í Danmörku bók sagnfræðingsins Henriks Tjørnelunds sem ber heitið Medicin uden grænser, eða upp á íslensku: "Lækningar án landamæra". Titillinn er dálítið misvísandi, því bókin fjallar um samskipti dönsku bólefnisstofnunarinnar (Seruminstituttet) við lækna SS í Buchenwald.
Rannsóknir hins unga sagnfræðings hafa leitt í ljós að danskir læknar og vísindamenn þróuðu bóluefni gegn útbrotataugaveiki (Rickettsia prowazekii). Bóluefnið. sem var þróað af lækninum Johannes Ipsen, var kallað Kopenhagen og var notað á 26 sígauna í fangabúðunum Buchenwald árið 1944. Danir bundu miklar vonir við að geta selt bóluefnið til þýska hersins og til SS.
Henrik Tjørnelund hefur einnig komist að sömu niðurstöðu og ég í bók minni Medaljens Bagside um stefnu Dana gegn gyðingum. Hann segir að að samvinnan við nasista hafi haldið linnulaust áfram eftir að samvinnustjórnin féll síðsumars 1943 og fleiri Danir fóru að mótmæla. Mótmælin höfðu engin áhrif á gróðasjónarmið Dana. Dansk bóluefni handa þýskum böðlum var þar engin undantekning.
Hér getið þið lesið um útrbrotataugaveiki á heimasíðu Seruminstituttet i Kaupmannahöfn. Ekki er þar einu orði minnst á bóluefnið Kopenhagen, sem virðist hafa skilað árangri, en fór þó aldrei í framleiðslu.
Sagnfræðingurinn Henrik Tjørnelund rakst á ýmsar hindranir við rannsóknir sínar. Gögn um bóluefnið í skjalasafni Seruminstitutsins sem geymt er í Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn virðast hafa verið fjarlægð á einhverju stigi eftir heimsstyrjöldina.
Danski læknirinn Johannes Ipsen sem þróaði bólefnið Kopenhagen dó árið 1994. Han hélt til Bandaríkjanna árið 1949 en var líka um tíma viðloðandi Árósarháskóla, þar sem honum var ekki sérlega vel tekið. Gætu einhverjir hafa vitað um fortíð hans?
Tíminn læknar öll sár. Á heimasíðu gamla háskólans míns standa þessi fallegu orð um Johannes Ipsen (http://www.au.dk/da/nekrolog/1994ji.htm): Ipsen var en af de store i dansk lægevidenskabelig forskning. Han var også en stor humanist og en god ven med en legendarisk - og venlig - sans for humor. Vi er mange, der vil savne vor store læremester med den klassiske hjertets dannelse.
En ekkert stendur í minningarorðunum um ferðir hans í Þýskalandi nasismans. Hann hefur vart heldur sagt yfirboðurum sínum í Yale og Harvard frá þeim reisum og samvinnunni við SS.
Bók Tjørnelunds kemur út þann 26. október.
Sakaskrá Dana úr stríðinu er orðin löng, sjá t.d. þessa grein, sem var skrifuð áður en bóluefnið Kopenhagen var enduruppgötvað. Vandamálið er að í Danmörku ríkir nú tilhneiging meðal margra sagnfræðinga að frægja samvinnu Dana við Þýskaland nasismans. Slíkir fræðimenn sjá greinilega tilgang í því að Danir sendu gyðinga í klær nasista og þykir væntanlega ekki mikil eftirsjá í nokkrum sígaunum sem notaðir voru í rannsóknir sem gátu eflt Danmörku á erfiðum tímum.
Kynning | Breytt 24.10.2007 kl. 07:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 12:34
Danir voru hræddir við PFLP
Brátt kemur út annað bindið í sögu blaðamannsins Peter Øvig Knudsens um Blekingegade bófana sem árið 1988 frömdu vopnað rán við pósthúsið í Købmagergade í miðbæ Kaupmannahafnar og myrtu þar ungan lögreglumann. Bófarnir voru öfgafullir vinstrimenn, sem höfðu tengsl við svokallaða palestínska frelsisbaráttu. Þó mér hafi fundist fyrsta bindi bókar Knudsens, sem kom út fyrr í ár, vanta margar spurningar og svör, slær hann því föstu í viðtali á forsíðu 2. hluta dagblaðsins Politiken í dag, að dönsk yfirvöld hafi verið hrædd við Palestínska hryðjuverkamenn og þess vegna stöðvað rannsókn á meintum glæpum þessa hóps vitleysinga árið 1984.
Knudsen segir frá því, hvernig lögreglan í Lyngby var komin á sporið eftir bófana árið 1983, þegar þeim var bannað að halda áfram rannsókn á bankaráni sem Blekingegade bófarnir frömdu í Den Danske Bank árið 1983. Skjalagrúsk Peter Øvig Knudsens leiddi í ljós að Dómsmálaráðuneytið danska er nú búið að eyða skjölum um málið!, sem er glæpsamlegt athæfi. Dómsmálaráðherra þess tíma, Erik Ninn-Hansen, ber við minnisleysi, enda orðin elliær, og aðrir eru annaðhvort dauðir eða skindauðir.
Knudsen tókst þó að finna svarið við spurningu sinni um Lyngby ránið í skjölum Utanríkisráðuneytisins. Stjórnvöld vissu að slóði úr bankaráninu í Lyngby teygði sig til Frakklands og að það spor sýndi sambönd við PFLP, palestínska hryðjuverkasamtök. Eftir að frönsk yfirvöld höfðu haft samband við þau dönsku, bárust lögreglunni í Lyngby skipun að ofan (Dómsmálaráðuneytinu) um að stöðva rannsókn málsins.
Árið 1988 var lögreglumaður myrtur af sama genginu sem framdi ránið í Lyngby árið 1983. Þegar gengið hafði ekki verið að ræna og drepa í nafni frelsis Palestínu, söfnuðu liðsmennirnir nöfnum á gyðingum og velunnurum Ísraels i Danmörku og bjuggu til spjaldskrá yfir þá. Ég á marga vini sem voru á þeirri skrá. Hvað átti að gera við þessa spjaldskrá hefur Peter Øvig Knudsen enn ekki sagt okkur sem bara fylgjumst með. Ef lögreglumaður hefði ekki verið myrtur árið 1988, hefði líklega ekkert stöðvað þetta lið í því að fremja hryðjuverk gagnvart saklausu fólki í Danmörku vegna ástar bófanna á ofbeldi þjóðar sem varð til vegna færslu landamæra á korti breskra nýlenduskrumara.
PFLP varð hluti af PLO árið 1968.
Aðstoðin þökkuð? Poul Nyrup Rasmussen og Arafat
Á efri myndinni stendur fyrrum utanríkisráðherra Dana, Niels Helveg Petersen, fyrir aftan rassinn á Arafat heitnum. Helveg Petersen hafnaði árið 1994 ósk Human Right Watch um að Danmörk tæki þátt í réttarhöldum við Alþjóðadómstólinn í Haag gegn Saddam Hussein og ríkisstjórn Írak fyrir fjöldamorð á Kúrdum og aðra glæpi. Hann var hræddur, en hann hefði hugsanlega getað komið í veg fyrir stríð ef hann hefði sýnt kjark. Í bréfi til Kenneth Roths dags. 21.12. 1994, sem ég fékk frá danska Utanríkisráðuneytinu árið 2004, er Petersen hræddur um að málið gegn Saddam gæti tapast við Alþjóðadómstólinn.
Kynning | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.10.2007 | 14:59
Nakinn sannleikur
Ég hlustaði í dag á Kastljós á veltalandi unga konu, Miriam Rose, sem kom til Íslands til að bjarga landinu með því að klifra upp í krana. Hún féll sem betur fer ekki úr honum, en í stað þess fyrir einum af sonum landsins þegar hún var að mótmæla virkjunum, og svo lenti hún í fangelsi. Þegar Rose kom úr steininum hélt löggan sem fastast í vegabréf hennar, sem Miriam Rose þurfti á að halda til að ganga frá sínum málum. Lögreglan hélt ekki bara vegabréfi hennar heldur hótaði að senda hana úr landi, þar sem hún var talin hættuleg íslensku þjóðfélagi. Hún ógnaði grunngildum samfélagsins.
Þetta er nú næstum því eins og þegar löggan var að senda gyðinga úr landi fyrir tæpum 70 árum síðan. Hvers konar rugludallar eru starfandi við löggæslu á Íslandi? En nú er Útlendingastofnun líka búin að sjá hver kyns er í löggæslunni og Rose er búin að fá vegabréf og leyfi til að vera í landinu hreina.
En svo skemmtilega vill til að alnafna konunnar í krananum, hennar Miriam Rose, hefur orðið fræg fyrir það að hjóla nakin á hjólhesti um grösugar sveitir Sussex. Alnafnan í Sussex var Mrs. May Pinup á fyrsta nektaralamanaki háskólans þar í sveit árið 2005. Nafna Rose í Sussex telur að vinnan við almanakið sé hið mesta success og sagði: "It's been really, really rewarding. As a society we do a lot of serious campaigning, but this aimed to show how campaigning can be fun.".
Kannski fáum við svona fínt almanak frá nöfnu Rose í Sussex hér á Íslandi. Almanak með tólf nöktum umhverfisverndunarsinnum sem koma til dyranna eins og þeir voru klæddir í Paradís. Miriam Rose á Íslandi, nú er ég búinn að gefa þér hugmyndina. Mundu orð nöfnu þinnar í Sussex: "Campaigning can be fun".
Kannski var löggan hrædd við að rósin í krananum væri í raun rassbera rósin á hjólinu í Sussex. Hugsið ykkur umferðahnútana. Jú, væntanlega er slík reiðmennska líka ógn við grunngildin!
Kranarósin gæti líka auðveldlega farið að hjóla nakin um miðjan vetur á Íslandi. Ég hef heyrt að það sé orðið svo heitt í heiminum. Er ekki snjallræði að mótmæla því allsber á hjóli?
Kynning | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.10.2007 | 13:54
Eintóm della frá Íslandi
Nú liggja Danir aftur í því. Þeir eru farnir að rífast um uppruna og "sannleiksgildi" ásatrúar á heldur ófræðilegan hátt.
Í grein í danska dagblaðinu Berlingske Tidende i dag er gerð að umtalsefni vantrú manna á ásatrú, eða þó aðallega eins sagnfræðings. Sagnfræðingurinn, Kurt Villads Jensen (sjá mynd) við Syddansk Universitet i Odense (Óðinsvéum), er greinilega búinn að uppgötva að það séu fyrst og fremst Eddukvæði og "Snorre Sturlasson" sem sé heimild okkar, og að við séum þess vegna algjörlega úti að aka eins og Ása-Þór, sem Jensen segir að hafi einungis verið svar víkinga við kristni.
Krossfarinn Kurt Villads Jensen vegur að ásum, hér með tvíeggjuðu tvíhandasverði frá 13. öld. Kenningar hans eru heldur tvíeggjaðar líka og greinilega vantar honum brýni.
Kurt þessi tekur greinilega ekkert mark á íslenskum bókmenntum og álítur þær ekki heimildir frekar en fornleifar. Myndir af Þór og öðrum meintum guðum, Þórshamrar og þvíumlíkt virðist ekki skipta neinu máli í heimi þessa fræðings.
Þessi fræðimaður hefur áður gert sig breiðan um aðra hluti sem hann veit ekkert um. Hér um árið hélt hann því fram að krossferðir kristinna manna á miðöldum væru fyrirmyndir krossferðar Bush forseta í Afganistan og jihads Íslamista. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það. Hvernig svona snillingur fær vinnu við danskan háskóla er mér hulin ráðgáta. En það hefur ekki verið neitt launungamál að það þykja góð fræði og fremjandi við háskóla að hata Kana og afneita trú, nema þá helst Islam.
Kurt Villads Jensen virðist ekki hafa lært muninn á goðafræði (mythologiu), guðfræði og sagnfræði.
Þór að kljúfa kross eða rembast í tæki í Ræktinni hjá Óðni í Valhöll
Kynning | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.10.2007 | 14:33
Kumlarask
Kuml voru rannsökuð í Hringsdal í sumar og fyrrasumar. Alltaf þykir merkilegt þegar kuml finnast á Íslandi og vildu allir Lilju kveðið hafa, þ.e.a.s. allir fornleifafræðingar vildu hafa grafið kuml. Það langaði mig líka að gera hér um árið er ég vann sem sérfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands. Þá var aftur kominn til starfa Þjóðminjavörður sem hafi verið í löngu fríi. Hann tjáði mér að ég mætti ekki grafa kuml, en vildi þó ólmur vita hvar kumlið var. Ég var með doktorsgráðu í greininni, en mátti ekki grafa kuml. Þjóðminjavörður þóttist verðugari til þeirrar iðju en ég.
Sem betur fer hefur verið slakað á slíkum kröfum, enda þjóðminjavörður þessi fjarri góðu gamni, og kuml hafa nú verið rannsökuð á nýjan leik og meira að segja af fornleifafræðingum sem ekki hafa neitt doktorsskírteini í farteskinu.
Ég veit ekki hvort að við kumlrannsóknir eigi að sýna meiri varúð en við aðrar fornleifarannsóknir, en þjóðminjalög eru þó mjög skýr hvað varðar frágang allra staða þar sem fornleifarannsóknir fara fram. Þar sem fornleifafræðingar stunda árstíðabundnar rannsóknir og rask, sem ekki er björgunaruppgröftur vegna yfirstandandi framkvæmda, og ætla sér að snúa aftur til frekari rannsókna, verða að skilja þokkalega við svæði þau sem þeir hafa rannsakað. Ég hélt að það væri venjan og hafði aldrei grunað kollega mína um annað, eða þangað til að ég kom í Hringsdal hér um daginn og sá frekar ljóta hluti.
Þar hefur Adolf Friðriksson hjá Fornleifastofnun Íslands, sem er einkarekið fyrirtæki, grafið merkileg kuml. Þarna er líklega kumlateigur og fleiri kuml í vændum. En svona skildi hann við fornminjarnar fyrir veturinn. Kumlin eru opin eins og gapandi augntótt í landslaginu og rúst, sem er yngri en kumlin, er óvarin. Ljóst er að hleðslur munu springa og eyðileggjast í vetrarveðrum.
Þetta þykir mér illa að verki staðið, sérstaklega ef tekið er tillit til þess að Fornleifastofnun, sem tekið hefur hefur nafn landsins okkar, svo halda mætti að þetta sé ríkisapparat en ekki sjálfseignarstofnun, hefur öll tök á því að gera betur.
Rannsóknin fór síðast fram í júlí í ár, en ekki er búið að verja rúst og kumlin á fullnægjandi hátt. Ábyrgðarmenn rannsóknarinnar í Hringsdal, sem vissulega er merkileg rannsókn, verða að fara á stað í dag og ganga frá fornleifunum fyrir veturinn. Það geta, eins og kunnugt er, verið mikil frost á Vestfjörðum. Minjarnar eru galopnar fyrir hafi og válegum veðrum. Rannsóknarmenn í Hringsdal eiga vart innistæðu fyrir áframhaldandi rannsóknum á þessum stað ef ekkert verður gert til að verja minjarnar betur en nú er gert - nema að menn vilji láta vind og veður sjá um uppgröftinn á órannsökuðum minjum á þessum stað.
Kynning | Breytt 27.12.2014 kl. 07:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2007 | 14:00
Sólarmegin í Auschwitz
Nýlega eru komnar í leitirnar myndir frá Síðari heimsstyrjöld, sem bandarískur dáti geymdi í fórum sínum þangað til í desember í fyrra. Myndirnar, sem eru 116 talsins, gaf hann nýlega U.S. Holocaust Memorial Museum i Washington. Myndirnar sýna hið ljúfa líf í útrýmingarbúðunum í Auschwitz í júnímánuði 1944, þegar útrýmingar voru flestar í búðunum.
Meðan hundruð og stundum þúsundir manna voru myrtar á hverjum degi nutu böðlarnir lífsins eins og ekkert hefði í skorist. Þarna hefur greinilega verið nóg af Mozart og Móselvíni, meðan að Felix Mendelssohn-Bartholdy var í banni. Það verður ekki skafið af germanskri menningu, hún hefur byggst upp á sterku fólki. Maður þarf að vera sterkur til að geta sýnt af sér það rólyndi sem myndin hér að ofan ljómar af, þegar maður er nýkomnir úr vinnunni þar sem þeir kæfðu nokkur hundruð gyðinga- og sígaunabörn með gasi. Ach mein lieber Augustin, sterkt fólk Þjóðverjar ....
Meðal þeirra sem sjást á myndunum sem nú eru komnar í leitirnar eru dauðalæknirinn Josef Mengele og foringinn Karl Höcker, sem andaðist í hárri elli árið 2000.
Hér http://www.ushmm.org/research/collections/highlights/auschwitz/ getið þið skoðað albúm Karls Höckers
Kynning | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2007 | 14:00
Ekki fyrr?
Ekki fyrr en byssurnar hafa þagnað? Ljósmynd Mia Farrow.
Íslendingar taka þátt þegar byssurnar þagna, segir talsmaður Utanríkisráðherra. Þetta eru skilaboð utanríkisráðuneytisins til Darfúr. Hundruð þúsundir manna eru fallnar í herferð sem aðeins er hægt að kalla þjóðarmorð. Íslendingar ætla samt ekki að lyfta litla fingri í Darfúr, fyrr en böðlar Allah í Dschumhūriyyat as-Sūdān hafa drepið enn fleiri. Fyrr þagna ekki byssurnar - verið viss um það.
Það hefur sýnt sig, að allar "munnlegar" aðgerðir gegn hryðjuverkum, sem skráðar eru hátíðlega í alþjóðasamþykktir, duga skammt til þess að stöðva morðæði Íslömsku Þjóðarfylkingarinnar í stærsta landi Afríku. Það er verið að berjast í nafni Allah, og þegar það er gert þagna byssurnar ekki fyrr en allir andstæðingarnir liggja í valnum.
Graf sem sýnir tölu myrtra í Darfúr, sem eykst þrátt fyrir "stóra" vísifingurinn og flottu loforðin. Sjá www.reddarfur.dk
Íslendingar telja það hinn nauðsynlegasta hlut að styðja baráttu Palestínumanna, sem margir hverjir vilja koma eina lýðræðisríkinu fyrir botni Miðjarðarhafs fyrir kattarnef. Miklu nær væri fyrir valkyrjurnar í Utanríkisráðuneytinu að sparka í punginn á Frökkum, Rússum og Kínverjum sem gera böðlunum í Súdan kleift að útrýma aðframkomnu fólki í Darfúr. Rússar selja böðlunum hátæknivopn og Frakkar kaupa olíu af Súdan (sem kann þó að breytast með Sarkozy í embætti forseta).
Þegar byssurnar þagna í Darfúr, eru stjórnvöld í Súdan væntanlega búin að ljúka ætlunarverki sínu. Pútín og pakk hans hafa grætt á tá og fingri og Frakkar aka um á blóði Darfúrbúa og Íslamska byltingin þakkar Íslendingum fyrir aðgerðarleysið.
Íslendingar bíða þangað til og gera ekki neitt. En þangað til geta menn auðvitað skeggrætt um uppáhaldsumræðuefnin sín: þvagleggi, þarmahreinsun og mikilvægi þjóðarinnar á meðal þjóðanna.
Ég leyfi mér svo að minn á, að Íslendingar gerðu heldur ekki neitt til að hjálpa gyðingum í 4. og 5. áratug síðustu aldar. Heldur ekki þegar byssurnar höfðu þagnað.
"To judge by what is happening in Darfur, our performance has not improved much since the disasters of Bosniaand Rwanda," .
"Sixty years after the liberation of the Nazi death camps, and 30 years after the Cambodian killing fields, the promise of never again' is ringing hollow."
Kofi Annan
Kynning | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 82
- Frá upphafi: 1352303
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007