Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Íslenska leynivopnið í makríldeilunni

dildo_bj_rn.jpg

Með titrandi tár í augum las ég um þennan þorsk sem fannst með dildó djúpt í hálsi undan ströndum Noregs. Ljóst má vera að Íslandsþorskur norðan úr Ballarhafi sé farinn að ganga í stímum til Noregsmiða með leynivopn innanborðs sem lokka á grandvaralausa síldina aftur til Íslands.

Þetta er ugglaust eftir að fara illa í gotraufina á ESB og ófullnægðs evruliðsins á Íslandi, sem nú þykjast vita hvað lokkaði hinn norskumælandi en samt svo suðræna fisk makrílinn til Íslands. Það hljóta að hafa verið íslenskar gellur.

Það er ekki nema vona að Norðmenn neiti að senda fleiri jólatré "op i dette lille røvhullet Reykjavík". 


mbl.is Með kynlífsleikfang í maganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir af samlyndum hjónum

07c4a5f1984a02bf1a97a6b42af96f5e.jpg

Ég sé að Bryndís Schram sem er orðin full-time ritari fyrir mann sinn, hinn útskúfaða "prófessor", er farin að rita ferðapistla á Pressunni.  

Nú húka þau hjónin á kvisti í Tartú í Eistlandi í skítakulda og sagga og Bryndís skrifar til að hita sér og öðrum. Það væri bara rómantískt og allt gott og blessað, ef það væri ekki fyrir afar heimskuleg og upplogin skrif konu prófessorsins:

"Um þriðjungur íbúa Eistlands eru Rússar. Þeir voru á sínum tíma fluttir inn í stað þeirra þúsunda, sem hurfu í gulagið. Ég heyrði einhvern tíma Lennart Meri, fyrrverandi forseta Eistlands, segja,  að rússneski björnin [sic] hefði bara fengið sér blund - hann mundi von bráðar vakna aftur.  Björninn skyldi þó ekki vera að skríða úr hýði sínu einmitt núna?  "

Kannski hefur Il piccolo professore logið að Brundísi sinni? Ekkert mál er að googla upplýsingar þær sem Bryndís falsar í ferðapistli sínum. Í Eistlandi búa 320.000 manns af rússnesku bergi brotin. Íbúafjöldi landsins er 1.311,870.  Stærðfræði er greinilega ekki sterkasta hlið Bryndísar.

Rússar hafa síðan á miðöldum búið á því svæði sem nú kallast Eistland. Árið 1992, þegar kallinn hannar Bryndísar studdi  frelsi landsins, urðu allt í einu 32% landsmanna ríkisfangslausir. Flestir þeirra voru náttúrulega Rússar. Margir þeirra fluttu aftur til sinna heima,  t.d. hermenn og fjölskyldur þeirra. Nú eru 7,6% landsmanna sem teljast ríkifangslausir í Eistlandi, flestir Rússar sem njóta ekki sömu réttinda og aðrir borgarar. Mikil gangrýni hefur verið á afstöðu Eista til minnihlutahópa í landinu.  Hún er landinu ekki til nokkurs sóma, þó svo að Rússar hafi einu sinni flutt Eista í Gúlög.

Eistar sjálfir, og þar með talið Íslendingurinn Eðvald Hinriksson (Evald Mikson), sendu stóran hluta gyðinga Eistlands í dauðann áður en Þjóðverjar hertóku landið:  Maðurinn hennar Bryndísar ærðist ekki lítið þegar Simon Wiesenthal Center óskaði eftir rannsókn á máli Miksons árið 1992.

Enn leyfa Eistar göngur og minningarathafnir fyrir SS-liða og nasista í landi sínu og líta á þá sem frelsishetjur sínar. Eistar reyna ólmir að eyða allri umræðu um Helförina og gera allt til að setja sjálfa sig í stöðu fórnarlambsins.  En svo einföld var sagan ekki og ferðalýsingar Bryndísar Schram breyta engu um það.

Schram eða Schramm

Eitthvað held ég að frúnni sé farið að förlast. Hún fjallar náið um kráarflakk sitt og prófessorsins hennar.  Þau hafa komið var við í "Schrams Keller" sem Bryndís segir að einhver Schram hafi stofnað árið 1815. Telur hún vel mögulegt að þarna hafi ættingi hennar verið á ferðinni. En sá sem kráin er kennd við í Tartu hét Schramm (með tveimur emmum) og hann stofnaði ekki krána fyrr en 1826 og ekki á þeim stað sem kráin er nú. Ég séð að það er tilboð á gleraugum í Tartu þessa dagana. Skáldskapargáfuna þarf frú Bryndís ekki að eyða gjaldeyri í.

Ég legg til að hjónin hiti sér við annað en hatur og fordóma á kvistinum kalda í Tartú.


Vorsöngur Villa


 

Þegar vorið byrjar snemma að berjast við veturinn í Danmörku og enginn veit hvort snjóhríð kemur í byrjun apríl, er þægilegt að njóta angurværðar hins unga vorkvölds með góðri tónlist meðan maður dreypir á sterku kvöldkaffinu.

Á undanförnum árum hef ég smám saman verið að uppgötva nýja kynslóð tónlistarmanna, sem eru eftir að gleðja mig á síðari hluta ævinnar og í ellinni. Einn þeirra er ungur Svíi sem kallar sig The Tallest Man on Earth í ungæðislegu lítillæti sínu. Hann er stuttur fyrir Svía að vera og heitir bara því ósköp venjulega sænska nafni Kristian Matsson. Drengur þessi, sem er fæddur er árið 1983, á framtíðina fyrir sér líkt og snillingurinn okkar Ásgeir Trausti og t.d. Jonas Alaska í Noregi. Ég vona að vorið fari brátt að teygja hlýja fingur sína til Íslands. Með kveðju, Vilhjálmur.


Mótmælið !

jews_beaten_to_death_by_lithuanians_with_iron_bars_in_kovno.jpg
Í morgun sendi ég sendiherra Litháens á Íslandi bréf, þar sem ég mótmæli. Takið vinsamlegast þátt í mótmælunum geng hinni árlegu nasistagöngu í Kaunas, sem aftur er haldin í dag. Mótmælið með því að kvitta fyrir ykkur hér, eða senda sendiherranum, Hr. Vytautas Pinkus, kurteis mótmæli á amb.dk@urm.lt

Lithuania's Embassy to Iceland


Att. His Excellency Mr. Vytautas Pinkus


Dear Mr. Ambassador,

Today, and once again, state-enabled neo-Nazi glorification of local Holocaust collaborators is held in Kaunas. It is very sad to witness year after year that neo-Nazis and anti-democratic groups are allowed to march through Lithuanian streets, where Lithuanian's particpation in the Holocaust is practically honoured.

I have, first hand,  witnessed the sick hate of the people who find this glorification of Nazi-collaborators necessary in a EU-member state. (See: http://defendinghistory.com/take-off-your-hat-this-is-not-the-synagogue/36029). I am worried for a country I like and have visited several times.

As an Icelander, a citizen in a country, which promptly supported Lithuania's freedom, I find it impossible to accept the Nazi-glorification in Lithuania.

Dear Ambassador, please ask the government you represent to end the violation of freedom in Lithuania. Glorification of Holocaust collaborators will never be acceptable.


Yours sincerely,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Albertslund, Denmark

Ps. myndin eftst sýnir Litháa berja gyðinga til dauða með járnstöngum í síðari heimsstyrjöld.

Lesið Defendinghistory.com


Andrés önd rekinn

Hinn arabíski Andrés Önd hefur verið rekinn og rödd hans verður aldrei notuð meira eftir að Disney-samsteypan greip Wael Mansour glóðvólgan í því að tísta hatursáróður í garð Ísraelsríkis.
bfz1sumiaaayk17.jpg

 

Andrés er oft skapmikill og uppstökkur, en gyðinghatari er hann þó ekki orðinn enn, og nasisti verður þessi erkiameríska önd aldrei. Þess vegna hefur hin arabíska rödd hans, sem egypski leikarinn Wael Mansour hefur ljáð honum, þagnað.

Það verður vissulega erfitt fyrir Disney að finna nýjan Andrés Önd sem ekki hatar Ísrael og gyðinga á arabísku. 

Hinn æsti og uppstökki Andrés önd, sem á arabísku heitir "búdmút"  sem þýðir bara "önd", höfðar mjög til arabískrar menningar. Arabar eru greinilega mjög miklir Dónaldistar, enda saga Palestínu oft eins og eitthvað sem lesa mætti í Andrésar Andarblaði.

Fyrir ekki svo mörgum árum var vini hans Mikka mús rænt á Gaza, eða réttara sagt þá bjó Hamas til sér Hamasgerð af Mikka mús, sem kallaður var Farfúr. Farfúr var gangandi uppsláttarit í gyðingahatri sem hann kenndi börnum á Gaza með góðum árangri (sjá hér). Farfúr dó auðvitað píslardauða undan höndum gyðinganna. Svo sjúkur er sá heimur sem Ögmundur, Össur og þúsundir Íslendingar styðja.



 

 


Það eru víðar til svín en í Póllandi

mord-rytualny_2_1226343.jpg

Pólverjar eru ekki svo ósvipaðir Íslendingum. Gyðingahatur er æði mikið meðal beggja þjóða, jafnvel þótt að á Íslandi hafi vart búið gyðingar svo heita mætti, og þó svo að gyðingum Póllands hafi verið útrýmt og þeir sem eftir urðu hafi verið flæmdir í burtu af kommúnistum.

Nýleg rannsókn, sem fór fram í Póllandi og gerð var af háskólanum í Varsjá, sýnir að meirihluti Pólverja álíti að gyðinglegt samsæri sé á bak við banka og fjármál heimsins sem og fjölmiðlana. 90% Pólverja segjast hins vegar aldrei hafa hitt fyrir gyðing.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós 8% aukningu síðan 2009 á meira "hefðbundnu" gyðingahatri. 23% Pólverja trúa því nú að Gyðingar hafi myrt Jesús og noti blóð kristinna við ýmsar helgiathafnir.

Gott fólk í Póllandi hefur áhyggjur af þessari þróun, en samt heyrast raddir í pólska þinginu, Sejm, sem telja gyðinga í Póllandi föðurlandssvikara. Lesið greinina í Haaretz. 

Til að bæta svörtu ofan grátt, ofan á allt gyðingahatrið sem er daglegur viðburður í Póllandi, þá ákváðu menn nýlega að hengja upp málverk frá 18. öld í dómkirkjunni í Sandomierz, sem sýna á morðathafnir Gyðinga á börnum fyrr á öldum.  Sjá hér og myndina efst. 

Slík upphenging er kannski ekki mikið verri en þegar menn lesa Passíusálmana á Íslandi. Hvortveggja er ósmekkleg tímaskekkja.

En kommúnistar, nasistar og múslímar léku sér einnig, og leika sér reyndar enn, af ásökunum á hendur gyðingum fyrir barnamorð, þar sem gyðingar eru ásakaðir um að nota blóðið í t.a.m. hin ósýrðu brauð á Páskum sínum. Nú hefur þessi miðaldaóskapnaður verið færður yfir á Ísraelsríki, sem allir fullgildir sérleyfishafar á réttar skoðanir til vinstri vaða í frumstæðum hatursáróðri gegn Ísrael.

images_1226345.jpg
iran-cartoon-gaza4_1226347.png

Kamban og gyðingurinn Thalmay

Kamban og Draeger

Í gær skrifaði ég ritdóm um bók Sveins Einarssonar um Guðmund Kamban og lýsti óánægju minni með það að hann virðist ætla sér með bók sinni að hreinsa nasistann Guðmund Kamban. Sveinn segist þó ekki hafa notað heimildir sem hann fékk aðgang að um morðið á Kamban, því honum, eins og öðrum, voru settar strangar, danskar reglur um birtingu þeirra upplýsinga. Í samtali á ÍNN kom þó í ljós að Sveinn hefur að mínu mati lesið skjöl danska dómsmálaráðuneytisins, þó hann um leið segðist ekki hafa nýtt sér þau. Sveinn gæti vel hafa lýst því sem í skjölunum stendur, án þess að nefna nöfn. En hann velur að láta menn lifa í mýtunni um Kamban, sem veldur því t.d. að starfsmaður lygaveitunnar RÚV kallar "morðingja" Kambans múgæsingarmann. Hvaðan hefur lygaveitan þær upplýsingar?

Þegar Simon Wiesenthal stofnunin krafðist rannsóknar á máli stríðs-glæpamannsins Eðvalds Hinrikssonar árið 1992 brugðust ýmsir einstaklingar heiftúðlega við. Þeir vildu ekki heyra sannleikann, sem þó kom fram að lokum. Leifur heitinn Sveinsson lögfræðingur æsti sig mjög og ritaði dómsmálaráðuneyti Dana bréf , þar sem hann krafðist þess að ráðuneytið svaraði þremur spurningum um dauða Kambans.  Dauði Kambans var greinilega sumum á Íslandi meiri harmdauði en allir þeir gyðingar sem Mikson og félagar hans myrtu í Eistlandi.

Ég bið lesendur mína  vinsamlegast að lesa frásöguna af Jacob Thalmay í ritdómi mínum á Fornleifi í gær. Ég er ekki eins viss um og Sveinn Einarsson í sápuþvætti sínum á Kamban, að Kamban hafi ekki borið blak af nasista-ofsóknum Þjóðverja. Kamban var í félagsskap sem fyrirleit gyðinga. Kamban hefði ekki fengin sýknudóm hefði hann ekki verið skotinn. Svo einfalt er það mál. Lesið einnig um Kamban og Kalkúnann

norgeslexi3

Hans Draeger og Vidkun Quisling

 

Myndin efst sýnir Kamban með Dr.h.c. Hans Draeger (t.h.) sem var yfirmaður Nordische Verbindungs-stelle, sem sá um áróður nasista á Norðurlöndum. Myndin neðst sýnir Draeger med Quisling og enn neðar með landssölu-manninum Scavenius í Danmörku. Einkunnarorð Draegers voru "Evrópa fyrir Evrópubúa". Draeger kom að stofnun Institut zur Erforschung der Judenfrage. Kamban kunni svo sannarlega að velja sér vini við hæfi.

ke018917

Hans Draeger (t.v.) og Scavenius (t.h)

Lesið einnig um

Kalkúna Kambans


Wonderful, wonderful Copenhagen!

Bráðlega kemur út 2ja binda verk um Kaupmannahöfn sem var höfuðborg Íslands í 500 ár. Núna lítur Kaupmannahöfn svona út. 

Þarna eru shíamúslímar að halda upp á Ashura hátíðina, þar sem minnst er píslardauða Imams al Huseins ibn Ali herforingja, sonarsonar Múhameðs, sem einmitt féll á 10. dag í mánuðinum Muharram sem einmitt bar upp á 14. nóvember árið 2013. Hann barðist blóði drifnu stríði fyrir réttlætinu og gegn einræðisherrum. Súnnímúslímar halda t.d. upp á það að Jesús, Adam og Abraham hafi fæðst á þessum degi. Mikið eru jólin stundum svört. (hér og hér má sjá Ashura árið 2011 í Kaupmannahöfn)

Einu sinni var Kaupmannahöfn, fyrrverandi höfuðborg Íslands, öðruvísi:


Dagur B. Eggertsson á Google Earth

Kokkurinn 

Ég hef eins og allir aðrir Íslendingar, sem þykir sæmilega vænt um landið sitt, verið á fullu á Google Jörð eftir að opnað var fyrir Strætaskimið.

Kokkinum á Óðinsvéum finnst mjög vegið að persónulegu einkarými sínu. Er hann var að panta tíma hjá tannlækni í sumar, ók googlebíllinn framhjá og smellti af kokki þessari mynd, þar sem greinilega sést að hann var svo að segja með höndina upp í munni af eintómum verkjum. Svona spreðast kokkarnir.

Dagur með bala

Skammt undan var dr. Dagur sem segir aldrei nei við góðu fótóopportúnitíi og hefur líklega beðið eftir Googlebílnum. Hér er hann að bera balann inn eftir að hafa kastað vatninu. Þetta var greinilega ekki dagur Dags. Hann hefur verið klesstur í framan og hefur kært það til Google. Dagur er greinilega líka búinn að setja rusl út á götu í von um að það verði hirt. Gnarr er búinn að setja á of há gjöld. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

Héðinn

Héðinn slör

Héðinn var lengi vel talinn hættulegur maður, og er víst enn. Einhver verður að segja Google að þetta er ekki stytta af barnaníðingnum á Hringbrautinni sem heldur á gotti í poka.

Where women find a real man in Reykjavík

Þegar erlendar konur koma til Íslands vita þær greinilega vel hvar hægt er að finna sætan gæja.

Ljótasti maðurinn á Íslandi

Þessi slapp við slikjuna þótt hann sé ljótasti maður landsins. Merki bankans sem hann auglýsir fyrir er aftur á móti talið banhættulegt, og er líklega enn á hryðjuverkalistanum.


Getraun hjá Fornleifi

getraun 8

 

Frændi minn Fornleifur er með mjög erfiða en þjóðlega getraun. Sjáið hvort þið getið leyst gátuna.

Nýjustu fréttir kl. 12.20: Gátan hefur veri leyst að mestu, og nú er kominn smá pistill um elsta málverkið af skreið sem til er: http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/1310691/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband