Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Dagur íslenskrar tungu

Það er greinilega kominn Dagur íslenskrar tungu. Konur á Akureyri eru komnar saman til að gera laufabrauð. Þær "gerðu ekki hvorki meira né minna en 2500 kökur í gær" alveg tæpitungulaust. Ég sem hélt að þetta væru brauð en ekki kökur.

Vel má vera að menn "geri pizzu og hamborgara", en laufabrauð eru bökuð eða steikt og slátur tekin, annað er steikt, bakað, soðið og svo framvegis. Svo er nú alveg hægt að búa hlutina til án þess að ofgera hlutunum.

Íslenska tungan er greinilega ekki að gera það gott. Hún er ekki eins lipur og oft áður, en það er auðvitað annað mál. Oft verður tunga fjötur um fót, eins og einhver sagði, ef hún snýst þá ekki alveg um hálsinn á manni.


mbl.is Steiktu 2500 laufabrauðskökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr hundur í Hvíta Húsið af íslenskum ættum

Snati

Barach Obama næsti forseti BNA er búinn að finna sér hund sem ekki veldur ofnæmi. Þetta er alíslenskur hundur, Snati, sem unnið hefur til fjölmargra verðlauna vestra, m.a. fyrir að hafa ofnæmi fyrir fólki.  Að sama skapi veldur Snati ekki ofnæmi hjá mannfólkinu. Snati er mjög greindur hundur. Hann hefur t.d. gefið út skáldsögu. Beinabygging hans þykir um margt svipa til mannfólksins. Hann er meðallanghöfði.

Snati er söngelskur, góður við börn og hefur áhuga á þyrlum. Hann hefur vakið athygli fyrir verk sín í Oregon. Ekki er enn vitað hver þau eru. Hann tilheyrir ekki neinum þrýstihópi. Hann er rólegur, spyr ekki spurninga og tekur sér langan tíma til að gelta. Hann bítur ekki í annað en bein sem otað er að honum. Varast ber þó að láta Snata annast bankaviðskipti.  Þegar hann er kátur á hann það til að offjárfesta og taka lán sem hann getur alls ekki borgað. Hann verður oft mjög hátíðlegur á góðri stundu og telur sig geta gengt hlutverki á meðal bílanna. Sérstakur ráðgjafi verður ráðinn til að annars öll bankaviðskipti Snata meðan hann býr í Hvíta Húsinu.


Á vígvelli siðmenningar MMVIII

 

Halla Gunnarsdóttir

 

Núna, rétt áður en míní-borgarastyrjöldin hefst á Íslandi þar sem réttlætið og sannleikurinn mun vinna, er Björn Bjarnason herforingi greinilega farinn að velta fyrir sér, hvort lýðræðið sé of dýrkeypt fyrir sig og vini sína.

Það er auðvitað af sem áður var, þegar Moggablaðamenn eru farnir að auglýsa múgæsingu í Iðnó og jafnvel verklegar æfingar með spælegg og tómatsalat frá Bónus á Austurvelli. „Halla Gunnarsdóttir (Sigurðssonar)" væri líklega búin að missa vinnuna, hefði Mogginn enn verið málgagn Sjálfstæðisflokksins. Þessi Rósa Luxemborg Íslandskreppunnar sagðist á fundi í Iðnó að hún hefði aðeins krækt sér í örbylgjuofn í íslenska kaupæðinu. Hún á ekki einu sinni sjónvarp stúlkukindin. Er hún ekki Íslendingur?

General Björn er í öngum sínum og skrifar laugardaginn 8. nóvember:

Í dagbókarfærslu í gær velti ég fyrir mér, hvort unnt væri að treysta á óhlutdrægni fjölmiðlafólks í þessari orrahríð allri. Ég hef fengið ábendingar um, að fleiri velti þessu fyrir sér.

Fjölmiðlaliðið, sem Björn Bjarnason er að tala um, er auðvitað gallagripir og fífl upp til hópa (Haarde 2008), dauðadrukknir kommar, menntaðir í Svíþjóð, ef þá nokkuð. Til hvers að hafa fjölmiðla? Þeir gera málið bara flókið með öllum þessum spurningu. Bloggið er enn verra. Þar er fólk með þráhyggju að básúna sig um það sem það veit ekkert um, þegar það er ekki í kaupæði.

Ég veit ekki um hvaða ábendingum vinir Björns eru að gauka að honum, en ég vona að það sé ekki það sem ég held að það sé. Annars held ég ekki að Björn eigi svo marga vini einmitt núna.

Ekki þótti mér þetta nú beysnir byltingamenn sem ég sá í sjónvarpsfréttum frá Iðnó, eða þeir sem spændu upp malbikið fyrir framan Alþingishúsið. Mér er spurn, væri ekki nær að búa til ommelettu og tómatsalat fyrir fátæka fólið, með skyrböku í eftirrétt, í stað þess að vera að sletta mat á friðað og hljóðlátt, gamalt hús?


Hljómsveit íslenskrar alþýðu

 

Betri hljómsveit

 

getur nú sannarlega gefið tónleika nú í kreppunni, fyrst hljómsveitin er ekki í náðinni í hjá Norður Kóreumönnum  - eða svo er okkur sagt, eftir að Norður-Kóreumenn fundu betri og ódýrari hljómsveit (sjá mynd).  Nú er hægt að halda ódýra tónleika fyrir atvinnulausa og ellilífeyrisþega á þeim tíma sem hljómsveitin átti að vera í Norður Kóreu. Núna þegar gjaldmiðill Norður-Kóreu er skráður í stað íslensku krónunnar er auðvitað skiljanlegt að hitt alþýðulýðveldið vilji upphefja sig á kostnað Íslands og telji Íslendinga second class þjóð.

Gaman til hliðar, ef upplýsingar um áhugaleysi Japana á Íslensku sinfóníunni eiga við rök að styðjast, er þetta einfaldlega enn eitt gott dæmi um að PR íslenskra yfirvalda er í lamasessi. Maður sér betri landkynningu hjá ýmsum bloggurum, en það sem íslenskir „ráðherrar" láta út úr sér.


Kundera karlinn, komdu bara til Íslands

Kundera

 

Í fyrra féll Günter Grass, þegar í ljós kom að hann hafði verið meðlimur í SS, og nú er komið í ljós að annar dýrlingur tvískinnungs vinstri elítunnar, Íslandsvinurinn Milan Kundera, var uppljóstrari á 6. áratug síðustu aldar og var valdur því árið 1950, að Miroslav Dvořáček, var dæmdur dauða og síðar í 22. ára fangelsi fyrir njósnir.  Sjá meira um málið hér.

Dvořáček bað námskonu á stúdentagarði að geyma fyrir sig tösku. Unnusti konunnar sagði Kundera frá töskunni og Kúndi hringdi beint í flokkinn sinn, sem kom að vormu spori og misþyrmdi Dvořáček. Fjölmiðlar í Tjekklandi eru nú búnir að birta lögregluskýrslur sem sýna þátt Kundaera í málinu, en hinn áttræði rithöfundur ber við minnis- og sakleysi.

dvoracek11
Samviskufanginn Dvořáček. Kundera hefur hins vegar "góða" samvisku

 

Tvískinnungsháttur er auðvitað ekki nein nýjung eða  tíðindi fyrir Íslendinga á hinum síðustu og verstu tímum. Við horfðum á forseta vorn í Kastljósi í gær, þar sem hann lýsti gömlu útópíusýn sinni og greindi frá skammtímasýkingu sinni af kapítalisma, sem virðist hafa verið eytt með snöggri lyfjameðferð. Mér heyrðist fjandakornið, að hann væri að gera því skóna að fyrirkomulagið í ákveðnum löndum í Suður-Ameríku og Asíu væri okkur gott til eftirbreytni. Var hann að hugsa um Chaves í Venesúela, eða vini sína í Arabí, sem hálshöggva útlendinga sem aldrei fyrr?

Nú, hann Kúndera, sem kúltúrelítan kyssti og kjassaði, þegar hann dvaldi hér á landi, getur bara komið aftur til Íslands, meðan að elítan í Tjekkó kemst yfir þessa nýju, óglæsilegu hlið á hetjunni sinni. Hér á landi eru menn ekkert að erfa neitt. Kundera hefur dæmt sig í útlegð eins og þá, sem hann sjálfur lýsti í franska ritinu Le Nouvel Observateur, þegar hann skrifaði ritdóm um sögu íslensks vinar síns.


Nóbelsverðlaunahafi hefur áhuga á Íslandi

Krugie and his Cat

 

Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði í ár, Paul Krugman, skrifaði fyrr á árinu grein í New York Times, þar sem hann gerði því skóna að Ísland væri fórnarlamb samsæris.    

Nú er Krugman búinn að fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði, en varla fyrir þá athugun sem hann kom með um vanda Íslands.

Kannski gætum við ráðið hann til að leysa fyrir okkur vandann?


Skaðar kreppan?

 
060924boklores

Skaðar kreppan framboð Íslands? spyrja menn sig varðandi áformin um að sitja í Öryggisráði SÞ?

Þjóð, sem ekki gat séð um sitt eigið öryggi í fjármálum og vildi ekki hlusta á aðvaranir annarra þjóða, ætti að hugsa sig tvisvar um.  Framboð Íslands gæti gert kreppuna á Íslandi enn verri en hún er þegar.

Ingibjörgu Sólrúnu heim og höldum henni þar fram að næstu kosningum. Hefja ber rannsókn á ferðaaukningu sendiráða.

Tónlistahúsið er líka hægt að frysta eða nota sem frystihús til að geyma auðlindir okkar: tónlistalúður, menningarþorska og ráðstefnulöngur. Við getum sungið og trallað þrátt fyrir það.

Menn verða að gera sér grein fyrir því, að það er kreppa á Íslandi. Ofurhálaunafólkið er kannski ekki búið að fatta það?


Our Guardian Angel

haarde

 

The heart-warming article by young Ben Murray, our angel at The Guardian, certainly gets him a free ticket for the Icelandic Airwaves Festival. Murray strongly advises Gordon Brown not to go to the festival in Iceland.  Is that necessary?  I would have imagined that Brown and Darling fancied more the Wet Kilt Contest at the Crannóg Inn in Lochlabour near Glen Crushmore Bollocks, which is to be held at the same time as Icelandic Airwaves.

Icelandic Prime, Geir H. Haarde, is a wimp. The Haarders actually don't come any softer. Haarde should have been as vicious towards the Icelandic finance wunderboys, as Brown is towards the Icelanders.

Iceland has laws and legislations which are far superior to the medieval British law codex. Why not use it to ground, investigate, prosecute, sentence and hang (sorry, that is a British custom) the main cause of the crisis in Iceland: the swindlers and conmen presently at large?

Why isn't Prime Minister Haarde hacking up the roots of the weeds, like any sensible leader would do, although not with the primitive Stone Age tools of Gordon Brown and his cronies?

Well, Haarde has always been soft on the Icelandic finance wunderkinds. He believed in their powerful propaganda, and probably they have been filling lot of people's pillows with firm and steady currency for the past years, which prevents any action in the present situation except for pointless sleep walking.


Verðbólgusprengjan

efnahagssprengja

Ég hlakka til að fá rukkunarbréf með þessu frímerki.

Þetta er besta listaverkið sem ég hef séð hingað til, sem sýnir efnahagssprengjuna á Íslandi. Ætli það sé í boði Glitnis, Kaupþings eða Ríkisins?


mbl.is Friðarsúlan á frímerki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf öðrum að kenna

Móðgun

Það er hreint út sagt sorgleg að sjá hve erfitt skussapólitíkusarnir okkar eiga að sætta sig við hrun Íslandssirkusins. Síðastliðinn áratug eru þeir auðvitað búnir að vera í hlutverki hvíta trúðsins, sem alltaf veit allt betur en aðrir. En sirkusinn var ekki lengur skemmtilegur, tjaldið er fallið og fílahirðirinn, áhættufulli ljónatemjarinn og aparnir eru að koma sér burt úr vondum málum. Sirkustjaldið fell bara niður á þjóðina, sem sat sem fastast og bjóst við því að sjóvið myndi halda áfram.

Útfararstjórinn Geir Haarde hélt ræðu sína til þjóðarinnar klukkan fjögur í gær. Því miður byrjaði hann að því að bendla atburði á Íslandi við það sem gerst hefur í Bandaríkjunum og "annars staðar".  Skilja mátti á honum, að við hefðum aldrei verið herrar yfir okkar eigin örlögum. Það er nú ekki efnilegt fyrir "sjálfstæða þjóð".

Össur Skarphéðinsson er greinilega sama markinu brenndur. Hann grenjar og segir "að Bandaríkjamenn hafi gefið Íslendingum fingurinn þegar leitað hafi verið eftir aðstoð bandarískra stjórnvalda við þeim efnahagsþrengingum sem ganga yfir landið". Hann er svo svekktur yfir því hversu fáa vini Íslendingar eiga og hafði búist við meiru frá Bandaríkjamönnum eftir að Íslendingar hefðu verið í áratugagömlu sambandi við þá. Ja, ég var eftir að sjá þann dag að Össur og fólk af sama sauðahúsinu sáu eftir Ástandinu.

Ef bankaliðið og stjórnmálamennirnir halda að þeir afgreiði málin, eða leysi þau, með því að kenna öðrum um, þá leysist enginn vandi.

Syndahafurinn er ódýr lausn, en efnahagur Íslendinga kemst ekki á réttan kjöl þótt Össur sýni BNA óæðri endann.

Lausn á þeim vanda sem Íslendingar eiga við að stríða, er ekki fólginn í því að leita að einhverjum í útlandinu sem maður getur kennt um. Ef horfst er í augu við vandann, er hins vegr mögulegt að Geir og Co fái plástur á meiddið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband