Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: ESB-fantasían

Íslendingar styðja nýnasista í Úkraínu

ukraine-neo-nazi-5_3002183b.jpg

Rússar kaupa líklega íslenskan fisk, þangað til þeir fá ógeð á því að sjá Katrínu Jakobsdóttur og flokksfélaga hennar í Vinstri Grænum sem og aðra blindingja hylla nasista og gyðingahatara í Úkraínu.

Sveitir nýnasista berjast gegn aðskilnaðarsinnum í Austur-Úkraínu (Sjá hér og hér)

Katrín hyllir einnig gyðingahatara í Palestínu, svo hún er ekki að reyna þetta í fyrsta sinn. Hún er heldur enginn nýgræðingur, þegar hún vill að Rússar setji bann á íslenskar vörur eða að ESB-móðurskipið skipi okkur það. Kata hefur verið öflug í að banna og bannfæra. Hún vill banna fólki að kaupa vörur frá Ísrael meðan uppáhalds döðlutertan hennar er búin til úr döðlum frá Íran sem vaxa á pálmum í nánd við byggingakrana þar sem ayatollarnir og dauðasveitir þeirra hengja fólkið fyrir minnstu sakir, t.d. samkynhneigð. Sterku strákarnir með gula fánana í Úkraínu heilla Kötu litlu álíka og sterku strákarnir í Hamas, Hizbollah og IS. Þeir vilja líka banna allt.  Kaldhæðni örlaganna er það vissulega, að SS nútímans ISIS, ISIL etc. hefur tekið upp nafnið IS. 

Ekki þarf að segja af óláni Íslendinga. Myndin neðst er frá mótmælum við Bandaríska sendiráðið í Reykjavík. Þar hefur Davíðsstjörnu verið komið fyrir í stað 50 ríkjastyrnanna.

10544788_10152280301798034_4938175071600590012_n.jpg
Íslenskir gyðingahatarar mótmæla við sendiráð BNA

Wer ist der Brinkmann?

sendiherra_esb_1.jpg
20. mars sl. skrifaði ég um leit mína að upplýsingum um sendiherra ESB á Íslandi, Matthias Brinkmann. Forsætisráðherra Íslands hafði í fjölmiðlum gefið í skyn að sendiherrann hefði greint rangt frá fundi þeirra í milli, og þá fékk ég náttúrulega áhuga á að vita meira um diplómatinn sem að sögn forsætisráðherra var ótrúverðugur. Það er ekki á hverjum degi að maður heyrir af ótrúverðugum diplómata.

Eins og þið getið lesið í fyrri færslu minni kom ýmislegt í ljós, sem sýndi að mikið ósamræmi var á milli þess sem stendur í ferilskrá sendiherrans og því sem ég gróf upp. Ég hnaut fyrst og fremst um þá upplýsingu sendiherrans að hann hefði starfað í ráðuneyti í Danmörku árið 1987-90, ráðuneyti sem var reyndar enn ekki til þegar hann sagðist hafa unnið þar.

Nú er ég einnig búinn að fá þær upplýsingar frá dómsmálayfirvöldum í Hamborg, að Brinkmann hafi verið dómari þar í borg árið 1994. Það þykir mér skondið, en samkvæmt ferilskrá Brinkmanns á vef ESB var hann þá háttsettur yfirmaður ESB-skrifstofunnar í Stokkhólmi og hafði unnið þar síðan 1992. Kannski ók Dr. Brinkmann á milli ESB skrifstofunnar í Stokkhólmi og réttarsalsins í Hamborg á hraðskreiðum Audi til að dæma mann og annan? Það verður auðvitað ekki skafið af Þjóðverjum, þeir eru afkastamiklir á mörgum sviðum. Á leið sinni im Gericht hefur hann kannski komið við í gamla ráðuneytinu sínu í Kaupmannahöfn, sem var nýorðið til árið 1993.

Wo ist der Brinkmann?

Nú kunna vitaskuld að vera náttúrulegar skýringar á öllum því ósamræmi sem ég hef fundið milli ferilskrár Brinkmanns og þeirra upplýsinga sem ég hef aflað.

Þess vegna hafði ég samband við skrifstofu sendiráðs ESB í Reykjavík til að fá betri upplýsingar straight from the horse's mouth. Fyrst talaði ég við rúmenska konu, sem lofaði að rannsaka málið, en heyrði svo ekkert frá henni. 24 mars sl. ritaði ég Klemens Þrastarsyni, (fyrrv. blaðamanni), sem vinnur hjá ESB-sendiráðinu.

Klemens svaraði mér loks þann 7. apríl, en hann hafði verið erlendis og ekki haft aðgang að tölvu. Hann bað mig að senda erindi mitt á ensku eða þýsku til að flýta fyrir svörum. Það gerði ég strax þann 8. apríl - á báðum tungumálunum, kannski ekki á fullkominni Oxfordensku eða Heidelbergþýsku, en það sem ég skrifaði ætti að skiljast. Kom svo ESB-starfsmaðurinn Klemens Þrastarson erindi mínu til sendiherrans, sem hlýtur að vera mjög önnum kafinn, því enn hef ég ekki fengið svör. Er þetta alltaf svona seinvirkt í ESB?

Það hlýtur að vera hægt að fá þær upplýsingar sem ég hef beðið um. Sjáið til dæmis á síðu þýska sendiráðsins í Reykjavík. Þar liggja allar nauðsynlegar upplýsingar um sendiherrann Thomas Herrmann Meister frammi, efst til hægri á síðunni í pdf skjali. Brinkmann gæti bara sent mér slíkt skjal með upplýsingum um sig. Menn verða að eiga slíkt þegar þeir sækja nýjar vinnur. 

Það verður að minnsta kosti að skýra ósamræmið á milli veruleikans og þess sem stendur í ferilskrá sendiherra ESB á Íslandi. Hvernig í andsk.. starfa menn í dönsku ráðuneyti sem ekki var til á þeim tíma sem þeir segjast hafa unnið þar, og hvernig er hægt að vera yfirmaður á upplýsingastofnun um ESB í Svíþjóð um leið og maður starfar sem dómari í Hamborg? Ég spurði sendiherrann einnig um annað.

Sjá fyrri færslu um Brinkmann.


Andri Snær stútfullur af hráskinku

bonus02
 

Það er nú vart að maður þori að birta mynd af hinum hlutlausa Andra Snæ Magnasyni. Síðast þegar ég gerði það hafði hann í hlutleysi sínu (eða af hégóma) samband við Moggabloggið til að láta banna mér að birta ákveðna mynd af sér sem ég hafði fundið á netinu. Allt sem maður veiðir þar má maður vitaskuld ekki nota, sérstaklega þegar gæta á hlutleysis eins og Andri lifir eftir. 

Í pistli í Útvarpinu (RÚV), nánar tiltekið í þættinum Víðsjá, hefur Andri Snær næstum því berrassað sig í ærlega í "hlutlausum pistli". Hann fór úr föðurlandinu, sem hann ber litla virðingu fyrir, en hélt þó þröngum ESB-nærbuxunum sínum til að skýla hlutlausustu nekt sinni. Fyrir utan  gjörsamlega ómerkilega upplýsingar um ættir hans og að hann sé gangkynhneigður 44% karl sem ekur um á óvistvænum jeppa þá fáum við þessar upplífgandi upplýsingar úr sæluríki samfylkynhneigðra:

Ég verð að taka fram að ég var ekki bara á Hornströndum í sumar heldur líka í Evrópusambandinu. Ég var bæði í Danmörku og Þýskalandi. Veðrið var afar gott og í Aldi kostaði eiginlega allt innan við eina evru meira að segja hráskinkupakkarnir. Í Þýskalandi voru margir allsberir á ströndinni. Allt þetta hefur þau áhrif að ég myndi frekar vilja búa í Evrópusambandinu heldur en á Hornströndum.

Evrópusambandið var stofnað eftir að þjóðir Evrópu hættu að murka lífið hver úr annarri eftir síðari heimsstyrjöld. Núna sitja afkomendur þeirra friðsamlega við skrifborð og semja reglugerðir. Áður fyrr fannst þeim auðveldara að kveikja í heilli borg heldur en að setjast saman við skrifborð. Af tveim kostum finnst mér sá síðari skárri. Ég tek það fram að þetta er afar Evrópumiðað sjónarhorn. Í Kína heyrði ég af safni sem kallaði heimsstyrjöldina síðari - stóra evrópska borgarastríðið.

Eins og öllum hlutlausum ESB-áhangendum á Íslandi, er Andra illt í sálinni þessa dagana, nú þegar "ferlið" er hætt að gefa styrki og bitlinga. Hér fáum við "hlutlausa" skoðun umhverfissnillingsins Andra Snæs um að þjóðir Evrópu hafi verið að murka lífið úr hverri annarri.

Þetta er hjákátleg sögufölsun. Sögufölsun er aldrei hlutlaus. Margar þjóðir Evrópu börðust gegn ofurafli nasismans og Bandaríkin og Sovétríkin hjálpuðu til að stöðva forvera ESB í ætlunarverki sínu. Vissulega voru til ríki í Evrópu sem voru viljugri en aðrar til að þjóna hinum morðóða herra. T.d. Dönsk stjórnvöld og margir íbúar Eistlands, Lettlands og Litháen til að nefna einhverja.

Ég  ég ég ég ég er álíka sjálfhverfur og Andri Snær en vitaskuld ekki eins hlutlaus eins og Andri því ég tilheyri ekki , og er ekki komin af fólki eða þjóðum, sem murkuðu lífið úr hverri annarri. Ég þarf ekki að vera hlutlaus til að segja það. Andri hafi gleymt að segja okkur að hann hefur opinberlag þegið skildinga úr sjóði sem stofnaður var af illræmdum nasista sem tók þátt í morðæðinu. Þetta hef ég skrifað um hér, hér og hér .

Það er ekki nema von að Andri vilji vera allsber á þýskri strönd í hinu sanna draumalandi sínu ESB, frekar en á Hornströndum.    

greece-lego_2011355b

Andri Snær leikur sér að Lego

Það undrar mig hins vegar að heyra að Andri hafi sem lítill haft óbeit á Playmobil sem hann í hlutleysi sínu lék sér ekki með í einhverju snemmbúnu Bandaríkjahatri, því Playmobil er þýsk uppfinning og fyrirtæki líkt og ESB.

Með munninn fullan af ALDI hráskinku sem kostar innan við evru er ekki nema von að Andri vilji alls ekki búa á á Íslandi raunveruleikans. Maður verður nefnilega að hafa frjálsan aðgang í hráskinku til að geta kallast menningarþjóð.  Á Hornströndum er hráskinkan eins dýr og hún er fyrir Grikki, sem fyrst var nauðgað af Þriðja Ríkinu og nú af ESB. Þess vegna kostar skinkan undir einni evru í ALDI í Þýskalandi og tvö dagslaun á Grikklandi.

Þess vegna er ESB að fara í hart við 370.000 sálir í tveimur eyríkjum í Norður-Atlantshafi. Elítan í ESB vill líka ódýran fisk. ESB hefur lýst yfir að sambandið vilji Lebensraum úti á sjó og Andra Snæ dreymir um að verða háseti á Kútter ESB. Hluturinn verður rýr og jafnvel er möguleiki á því að Andri verði hlutlaus áfram. 

Hlutlaus

Mismunandi seðlar auka samkeppni

Í Hollandi, háborg ESB, er hræðslan við hrun ESB skýjaborgarinnar farin að gera sumt fólk nokkuð órólegt. Í hollenskum fjölmiðlum, sem ég fylgist öðru hvoru með, sér maður meiri áróður fyrir ágæti ESB og evrunnar en oft áður, sem gæti bent til þess að fólk í Hollandi sé farið at vera í vafa um sinn haag.

gulden

Pólitískt viðrini, Wouter Koolmees frá Rotterdam, sem tilheyrir einhvers konar demókrataflokki sem kallast D 66, og sem mun vera efnahagsmálatalsmaður D66, hefur skrifað skýrslu, þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu, að það muni verða óheyrilega dýrt fyrir Hollendinga að hverfa aftur til gyllina. Koolmees heldur því fram, að það geti kostað hvern Hollending um 4.500 evrur á ári í einhvern tíma að "snúa aftur" eða taka upp það sem hann kallar nevru (Neuro), þ.e. evru fyrir útvaldar þjóðir Norður Evrópu og Skandinavíu (sem er gæluhugmynd sem er í gerjun hjá krötum). Þegar maður skoðar svo "skýrslu" þessa lofbelgs, sér maður að þetta er innantómur hræðsluáróður sem ekki byggir á  fræðilegum rannsóknum. Skýrslan sýnir einnig, að það er töluverð pólitískur taugastrekkingur í rótgrónu ESB-bæli eins og Hollandi. Yfirlýsingar sem þessar hafa svo sem sést áður, eins og t.d. hér, en hvar eru rökin??

Miðað við viðbrögðin geng yfirlýsingum Koolmees og D 66 í dagblaðinu de Telegraaf, þá er nú greinilegt að margir Hollendingar vilja snúa aftur til hinna góðu gömlu daga með gyllini upp á vasann í stað þess að vera með þá efnahagslegu gyllinæð sem nú ríkir í ESB og sem Össur og hinir hálfvitarnir í íslensku ríkisstjórninni vilja líka fá í rassinn til að verða heimsborgarar.

Besta lækningin við atvinnuleysi og vandamálum Evrópu í dag er afturhvarf frá evru og ESB, sem var ekkert annað en þýskt dæmi, sem tókst það sem Hitler tókst ekki.  

werkloosheideuropa

ESB

domino%20europa

ETC


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband