Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Áður en Ísland verður meðlimur í Öryggisráði SÞ

Póstkort frá Íran

Póstkort frá Íran?

Meðan íslenski utanríkisráðherrann dratthalaðist um Miðausturlönd og sagði þarlendum öfgamönnum það sem þeir vildu helst heyra, mótmæltu kollegar hennar á Norðurlöndum aftökum í Íran , þar sem fólk er hengt á götum úti og konur grýttar í hel. Skora ég hér með á undanríkisráðherra okkar að gera það sama og norrænir kollegar hennar.

Það er ekkert mál að afla sér upplýsinga um óöldina. Horfið á þetta á eigin ábyrgð: http://www.iranfocus.com/modules/news/article.php?storyid=11929

Það er engin Menningarnótt í Íran! Þar ríkir alnætti. 

Ingibjörg Sólrún fór því miður ekki til Íran í annálaðri ferð sinni. Mér skilst að hún telji helst að vandamál vandamálanna liggja í Ísrael. Ferðaglaði ráðherrann hefði líklegast gott af því að fara til Teheran og sjá hvernig það er að vera kona í umhverfi heiftarklerkanna sem eyðilagt hafa merka þjóð og sem hafa gert Íran að ljótum bletti á mannkynssögunni.

Reporters Without Borders  (RSF) hvöttu 15. águst framkvæmdastjóra SÞ, Ban Ki-moon, að blanda sér í mál 11 blaðamanna sem nú sitja í fangelsum í Íran, en tveir þeirra eiga yfir höfði sér snöruna. Hvar eru íslenskir blaðamenn? Ég hef ekki séð neitt eða heyrt um þetta í íslenskum fjölmiðlum. Síðan árið 2000 hafa 4000 fjölmiðlamenn misst störf sín í Íran.

Íslendingar vilja ólmir í Öryggisráð SÞ. Er ekki kominn tími til fyrir utanríkisráðuneytið að sýna í raun hvað í þjóð okkar býr og fyrir lýðræðissinnaða stjórnmálamenn á Íslandi að beina sjónum sínum að versta krabbameinskýlinu í Miðausturlöndum - það er að segja ef menn meina eitthvað með rausi um frelsi, mannréttindi, kvenréttindi, frið og öryggi. Íranska þjóðin hefur ekkert af þeim fríðindum og fasistastjórnin í landinu styður hryðjuverk og eyðileggingu. Eins og Hitler lýsir "leiðtogi"  Írana því yfir að gyðingar og Ísrael sé rót alls vandans í heiminum. Ég er hræddur um að litli Hitler í Íran eigi ansi marga skoðanabræður á Íslandi miðað við yfirlýsingar sem ég hef séð hér á Moggabloggi.

Á Ísland erindi í Öryggisráð SÞ? Ef svo er, þá verðum við að fara að standa okkur.


Fær Ingibjörg Sólrún líka koss á mallakútinn?

 Putin kyssir strák á magann

Pútín blæs í nafla ljóshærðs drengs sem heimsótti hann í Kreml. Hann átti erfitt með að skýra þetta ástríki sitt, en hvað gerir hann við Ingibjörgu Sólrúnu?

Pútín, Pútín, Pútín, Vladimir Vladimirovich Pútín! Þetta litla stertimenni og fyrrverandi KGB spíra er nú farinn að senda aflóga flugvélar Sovétveldisins í loftið. Vitanlega heyrir maður sem minnst um þennan superdespót frá fólki, sem er með Bush á heilanum. En Pútín er verulega hættulegur náungi ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum.

Það má teljast nokkuð öruggt að einhverjir breyti stjórnarskrá Rússlands svo hann geti haldið keisaradæmi sínu eftir 2008. Þetta er ekki lýðræðissinni, heldu ótíndur óþokki (lögfræðingur) sem er orðinn einræðisherra.

Það verður spennandi að sjá hvað Ingibjörg Sólrún gerir í dag. Miðað við það hlutverk sem hún vill leika í Miðausturlöndum og fyrir öryggi í heiminum, þá ætti hún umsvifalaust í dag að fara til Moskvu og leita uppi Pútínus og eiga við hann orð um rellurnar sem hann er að senda að álum Íslands og skipa honum að stöðva framgang nýnasista í landinu hans, stöðva barnaklám o.s.fr.

Við fáum að sögn Utanríkisráðuneytisins að vita hvað Ingibjörg gerir í dag. Fer hún í ferðalag, eða situr hún heima og fer í hárgreiðslu?

Takið þátt í atkvæðagreiðslunni hér á blogginu. HVAÐ GERIR INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Í DAG?


Hundurinn var barn þeirra

Arki allur

Arki allur. Ljósmynd lögreglan í Køge.

Ekki er lengur mikið skrifað um kjölturakkann Lúkas frá Akureyri eftir að hann náðist af fjöllum. Sumarævintýri Lúkasar var skemmtilegt, en enn skemmtilegra var að sjá hvernig mannfólkið á Íslandi elskar hundinn sinn meira en náungann.

Hér í Danmörku, þar sem menn tíndu sakleysi sínu og trú fyrr en Íslendingar, koma hundar ekki af fjöllumeftir ævintýri sumarsins. Tíndir, danskir hundar finnast dauðir og jafnvel myrtir.

Einn þeirra, hann Arki, fannst stunginn til bana á hrottalegasta hátt nærri íþróttamannvirki í Køge.

Hann tíndist seint í gær og fannst myrtur í morgun. "Foreldrum" sínum harmdauði og forsíðufrétt á Dönskum blöðum á morgun. Mynd af líkinu og allt.

Nú leitar danska lögreglan af ódæðismönnunum, sem stungið hafa hundinn með skrúfujárni að sögn lögreglu. Arki var annars hinn vinalegasti hundur, samkvæmt matmóður hans frú Grethe Jespersen i Køge. Hann átti það til að fylgja öllum slefandi sem kölluðu á hann.

Drengir, auðvitað drengir með innflytjendabakgrunn, hafa víst sést gera eitthvað misjafnt og er þeim lýst sem 16-18 ára gömlum og dökkklæddum. Svo margir geta komið til greina.  

Við verðum að vona að allir 16-18 ára Aliar og Muhammeðar í Køge verði ekki lagðir í einelti eins og íslenski pilturinn, sem var ákærður af hundingjaeðlinu hjá löndum vorum. En það er munur á þessum tveimur málum. Lúkas fór til fjalla og Arki fór götóttur til Guðs beina og Pedigree Pals.

Lögreglumaðurinn Søren Sørensen lofar því í Nyhedsavisen (sem blað í eigu Íslendinga, sem vita ekki enn hve lélega blaðamenn þeir hafa ráðið), að allt verði gert til að ná í þá seku "ef þeir eru sekir" (hann gefur sér ekki neitt hann Søren), og leggur afar mannúðlegt mat á málið, enda var Arki eins og "barn" Jespersen hjónanna, segir þessi vinur fjórfætlinganna hjá dönsku lögreglunni.


Póstsaga

Slimy Hajd 

Póstmaðurinn fingralangi og fyrrverandi hermaður Allah

Fyrrverandi danskur fangi í Gvantanamóa fékk vinnu sem póstmaður, þegar honum var sleppt úr haldi Bandaríkjamanna. Meintir hryðjuverkamenn eru taldir gjaldgengir sem póstmenn í Danmörku. Hinn 34 ára Slimane ABDERRAHMANE, frá Árósum, sem er hálfur Dani og hálfur heittrúarmaður, hefur nú verið hnepptur í varðhald fyrir að hafa rænt og ruplað pósti sem hann átti að bera út. Slimane er kærður fyrir að hafa stolið greiðslukortum og stolið með þeim meira en 100.000 dönskum krónum frá saklausu fólki. Hann er einnig ásakaður fyrir að hafa stolið vegabréfum, sem í Danmörku eru ekki send í ábyrðarpósti til móttakenda.

Almenningi í Danmörku kom á óvart að Slimane hefði starfað sem póstmaður í tæp tvö ár. Líklega hefur póstþjónustan í Danaveldi líka orðið dálítið bylt við. Því dags daglega gekk hinn skeggjaði ofsatrúarmaður Slimane til starfa sinna á pósthúsinu undir dönsku nafni. Áður var hann var opinberlega búinn að lýsa því yfir, eftir að hann kom heim frá tveggja ára dvöl í Gvantanamóa, að hann ætlaði að fara til Tétjeníu til að berjast við trúleysingja í nafni Allah. Að stela vegabréfum og greiðslukortum vantrúaðra í Danmörku er greinilega það næstbesta sem hryðjuverkamenn geta tekið sér fyrir hendur.

guantanamo postal training center

Er þetta enn ein æfingastöðin fyrir danska póstmenn? Starfið getur oft gefið Gvantanamóskar tilfinningar

Eins og flestir lesenda minna vita er ég líka starfandi póstmaður og er fúlskeggjaður eins og Slimane. Ég hef þó ekki verið í Gvantanamóa ásakaður um hryðjuverk. Þó leyfi ég mér að benda á að ég hef tekið þátt í minni háttar "hryðjuverkum" á Íslandi. Glæpur sá er varð til þess að ég er póstmaður er hins vegar miklu verri en þær gömlu syndir. Ég er nefnilega með doktorsgráðu í fornleifafræði.

"Vinnan göfgar manninn" stendur í einhverri skruddu. En því fer nú fjarri hjá danska póstinum og því hætti ég á næstunni í þessu starfi mínu, sem ég neyddist til að vinna við vegna þess að fólk með doktorsgráðu í fornleifafræði fær ekki vinnu í Danmörku. Ég neyddist líka til að yfirgefa ættjörð mína árið 1996 og góða stöðu og hef síðan ekki fengið starf í minni fræðigrein. Árið 1996 framdi ég það hryðjuverk að ég leyfði mér að segja skoðun mína á yfirmanni mínum, sem átti Íslandsmet í framúrkeyrslum á fjárlögum. Miklu hærri upphæðir en þær sem póstmaður Allah í Danmörku hefur rænt hurfu eins og sandur á haf út. Reyndar var Sturla Böðvarsson þá formaður ráðs sem ráðskaðist með Þjóðminjasafnið og brottvikningar manna sem leyfðu sér að segja sannleikann. Stulli tók enga ábyrgð frekar en fyrri daginn.


A la Carte og skål !

 Danish Menu for Icelandic politicians

Danir eru heimsþekktir fyrir að vera góðir heim að sækja. Íslendingar kannast við þetta og hafa lært ýmislegt af frændum sínum. Veislur danska sendiráðsins voru rómaðar hér áður fyrr. Þannig var það að minnsta kosti á 4. áratug síðustu aldar.

Fína fólkið í Reykjavík vildi ólmt komast í þessar veislur og þar gerðist ýmislegt frásagnarvert í kytrum og kammerum hvíta kastalans við Hverfisgötu. Það losnaði verulega um málbeinið á íslenskum stjórnmálamönnum í þessum veislum sendiráðsins, og þær voru líka sumpart haldnar til þess arna. Mismunandi vökvi var notaður til að fá upplýsingar upp úr annars fámæltum Íslendingum.

Hér er ein að uppskriftum sendiráðsins til að afla upplýsinga sem ekki var hægt að fá með símhringingu.

 

Lax með röræg

Carlsberg

Skildpaddesuppe

Amontillado

Tunge i Gelée

Rhinskvin

Lammeryg

Champagne

Gaaseleverpostej

Bourgogne

Nougat-Is

Amontillado

Mokka

Cognac

Ætli maður hafi ekki farið pakksaddur úr svona veislum? Og hugsið ykkur öll ættfræðilegu slysin sem gátu átt sér stað á dívönum og sessilongum sendiráðsins. Ég á því miður engar myndir eða blóðsýni því til sönnunar.


The Freud Watch

freud_watch

Á síðustu 30 árum hefur vinnumarkaðurinn í Evrópu breyst mjög. Konur fóru út á markaðinn og nú þarf tvö laun til að framfleyta venjulegri fjölskyldu. Ekki get ég skýrt út þær hagfræðilegu breytingar, en hugsanlega skýrir hún líka af hverju neyslan er meiri nú en þegar maður var barn fyrir 40 árum síðan. Jafnmargar konur og menn á vinnumarkaðnum er auðvitað mannréttindi og ég vil ekki láta skilja mig þannig að það hafi ekki verið góð þróun.

Nú er hins vegar landlæg ný bylgja eða fyrirbæri á vinnumarkaðnum. Hún hefur reyndar verið að krauma í nokkur ár, án þess að ég hafi velt þessu mikið fyrir mér. Það er hin öfgafulla ungviðisdýrkun vinnumarkaðarins.

Í Danmörku hefur það verið þannig í mörg ár, að maður gat ekki komið inn í bakarí án þess að afgreiðslustúlkurnar væru á barnsaldri, helst ljóshærðar, laglegar og ekki sérlega sleipar í reikningi. Engin tilviljun er heldur að þær voru kallaðar bagerjomfruer. Það sama gilti í ýmsum illa launuðum atvinnugreinum. Þar voru aðeins ráðnar ógiftar konur. Þetta voru einu störfin sem þeim stóð til boða á vinnumarkaðinum, áður en þær giftust smiði, lækni, tæknifræðingi eða öðrum lögnum handymönnum og eignuðust mörg börn.

Ef Freud karlinn hefði verið á lífi nú, hefði honum þótt gaman að sjá hvað var að gerast. Allar ungu konurnar sem voru að farast úr hýsteríu og penisöfund á hans tíma eru orðnar vinsælasta vinnuaflið. Því yngri, því betri. Freud hefði örugglega haft söftuga skýringu á þeim atvinnurekendum sem útiloka fólk ef það er orðið 40 ára og gagnrýnið.

"Vinnuafl sem orðið 40 ára er ekki lengur sexý" las ég eitt sinn í grein, og tók til mín. Ég er því miður ekki spengileg, ljóshærð blondína, 28 ára og nýskriðinn út úr undirstrikuðum kennslubókunum. En ég verð að bíta í það súra epli að 28 ára blondínur eiga meiri möguleika á því að fá vinnu sem fornleifafræðingar en ég í Danmörku. Doktorspróf og reynsla skipta engu máli. Hipparnir, sem fengu vinnu sem safnstjórar ár 8. áratug síðustu aldar, eru mest fyrir stelpur og ekki hafa ófáir þeirra fengið sér nýjar yngri konur úr hópi þeirra sem þeir réðu.

Hjá danska Póstinum, þar sem ég starfa enn, er líka óhugnanlega ungdómsdýrkun. Allar yfirlýsingar og bæklingar sem fjalla um jafnræði og tillitssemi á vinnustaðnum eru þverbrotnar. Post Danmark vill fyrst og fremst ungt fólk sem getur hlaupið hratt. Gamlar konur með slitgigt, eins og maður sér bera út póst í Reykjavík, yrðu ekki ráðnar hjá danska Póstinum. Vinnustaðurinn er oft eins og unglingaskóli. Launin eru líka fyrir unglinga. Ég rétt slapp inn þar sem ég skoraði 98% á gáfna- og lestrarprófi sem ég fór í.

Mig grunar einnig, að yfirmenn og fyrirtækjaeigendur hugsi oft með honum litla sínum og líbidóinu, þegar þeir ráða starfsfólk. Þegar yfirmennirnir eru karlar er þetta náttúrulega fínt fyrir konur undir þrítugu en ekki gamlingja á fimmtugsaldri. Af hverju ráða ekki kvenyfirmenn karla með vömb og skalla?

Auðvitað hef ég skýringu á þessu eins og öllu. Því yngra liðið er, því auðveldara er að móta leirinn og stjórna liðinu eftir sínu höfði. Eitt sinn vann ég með hópi amerískra fornleifafræðinga. Þeir höfðu tekið með sér ungar stúdínur, sem voru eins og gengilbeinur. Ég spurði eina þeirra af hverju hún hagaði sér eins og barpía og segði í sífellu "Yes boss, oh boss og ah boss" við prófessorinn. Hún trúði mér fyrir því að þetta væri lenska í BNA, og ef hún væri ekki sæt við prófessorinn fengi hún aldrei gráður. Henni hefur gengið vel.

Þessi áhugi á bruminu og nýgræðinum fram yfir reynslu og öryggi er skrítin þróun og ekki til farnaðar fyrir vinnumarkaðinn frekar en önnur lög þjóðfélagsins.


Þörf sýning í Berlín

Denkmahl 2005 

Minnismerki fyrir fórnarlömb helfararinnar í Berlín

Nú stendur yfir sýning í anddyri utanríkisráðuneytis Þýskalands í Berlín . Sýningin fjallar um gyðingahatur og leggur áherslu á að gyðingahatur er ekki bara eitthvað sem gerðist í Evrópu fyrir 60-70 árum síðan.

Þegar Ariel Sharon er teiknaður með horn er teiknarinn gyðingahatari. Þegar George Bush teiknaður, þar sem hann er umkringdur rabbínum frá "Fjórða ríkinu Ísrael"er það einnig gyðingahatur. Þegar læknir í Reykjavík, sem er talsmaður vina Palestínumanna í Íslandi, skrifar grein sem hann kallar "Israel, Israel über alles", er einnig um svæsið gyðingahatur að ræða. Hef ég fyrir því orð prófessors Wolfgangs Benz, sem er aðalráðgjafi sýningarinnar í Berlín. En hann var staddur á Akureyri í apríl í fyrra, þar sem fyrirbærið var rætt á ráðstefnu við háskólann þar í bæ. Nýbúinn Róbert Fischer er líka svæsinn gyðingahatari og kemst upp með það, þótt hann brjóti með því íslensk hegningarlög. Skrifstofublók hjá saksóknara Ríkisins svaraði með dónaskap þegar ég bað embættið um að rannsaka mál Bobba. Það var ekki hlutverk embættisins. Lögreglan taldi það heldur ekki til verka sinna. Íslensk lögregla og saksóknari sendu gyðinga úr landi á fjórða tug síðustu aldar.

Það væri ekki alvitlaust fyrir íslensk yfirvöld að fá sýninguna í þýska utanríkisráðuneytinu að láni.

Það er óneitanlega mikil þörf fyrir slíka sýningu á Íslandi.

Hvað segir Ingibjörg Sólrún?


Eyðilegging Jerúsalems - mun aldrei takast

 Istanbuli2

Ég á gamla stálstungu sem ég held mjög mikið upp á. Hún sýnir gyðinga í Istanbuli samkunduhúsinu í Jerúsalem árið 1825. Istanbuli var reist árið 1764 á gyðingum frá Tyrklandi. En fljótlega var húsið einnig notuð af gyðingum frá Kúrdistan, Norður og Vestur-Afríku og meira að segja frá Hollandi.

Eitt af því sem einkennt hefur hersetulið í Jerúsalem, hefur verið skipulögð eyðilegging þeirra á samkunduhúsum og musterum gyðinga. Allir borginni óviðkomandi reyndu að útrýma menningu þeirra og tilvist. Musterið í Jerúsalem var fyrst eyðilagt af Babýloníumönnum árið 586 f. Kr. Annað musterið var eyðilagt af Rómverjum árið 70 e. Kr. Á musterishæð hafa síðan á 7. öld e. Kr. staðið helgar byggingar múslima, sem gyðingar mega ekki nálgast. 

Grátmúrinn í dögun

Árið 1948 brenndu og eyðilögðu arabar fjögur forn samkunduhús sefardískra gyðinga í Jerúsalem.

Emtzai

Hurva samkunduhús Askenasa var sprengt í loft upp árið 1948.

destrhurva

Svona leit Hurva út áður en það gerðist. Nú er verið að endurreisa samkunduhúsið í sinni upphaflegu mynd eftir gömlum teikningum og ljósmyndum. Hurva var hér áður aðalguðshús fræga rabbína frá Litháen. Það voru nefnilega líka gyðingar í Palestínu. Þeir voru þar alla tíð og líka á undan þeim fjölleita og -lynda hópi sem kalla sig Palestínumenn.

Árið 1967 níddust Jórdanar á Yochanan ben Zakai sýnagógunni, sem er frá 17. öld. Þar voru máski að verki sömu jórdönsku hermennirnir sem myrtu þúsundir Palestínumanna hinn skæða svarta septembermánuð árið 1970 og mánuðina á eftir. Heilög bygging er ekki eins mikils virði og mannslíf, en hvorki líf gyðinga né guðshús hafa verið hátt skrifuð meðal araba. Það sýnir sagan okkur. Síðast í fyrra, er Ísraelsmenn yfirgáfu Gaza, réðust Palestínumenn á samkunduhús þeirra, báru að þeim eld og eyðilögðu. Slíkt virðingarleysi skapar ekki frið.

Nú þegar Fatah segist vera horfin frá stuðningi við vopnaða baráttu, eru þeir komnir miklu lengra en leikhópurinn í stuðningsfélagi Palestínumanna á Íslandi. Ef treysta má Fatah, er orðið meira sennilegt að eyðilegging Jerúsalems muni ekki takast á næstunni.


Mein Crampf

Þýðingar á krampaköstum Hitlers hafa verið seldar grimmt í heimi múslima til fjölda ára. Bókin hefur til að mynda selst vel í Tyrklandi og eins er hún metsölubók í Gaza.

Mein K á arabísku

Það er svo skrítið, að ef mönnum er gert erfitt fyrir að fá eitthvað, sækjast þeir enn meira í það. Það sama gildir um gallið í Mein Kampf. En þegar fræðimenn vilja fara að gefa verkið út með neðanmálsskýringum á óþverra, sem heilvita fólk getur séð í gegnum, þá er einnig verið að mikla það sem lítið og ómerkilegt er.  Ég tek undir það sem Wofgang Benz, prófessor í Berlín, hefur sagt: Best er að láta nýnasista og aðra um útgáfur á ruglinu. Fólk, sem hefur áhuga á þessum óskapnaði, mun frekar kaupa bókina á 4 evrur hjá nýnasistum í stað þess að kaupa hana með skýringum eftir fræðimenn á 100 evrur.

Fólk sem kaupir Mein Kampf eru oftast fasistar og fræðimenn og gagnrýnin hugsun eru einatt fyrstu fórnarlömb þess konar lýðs.


mbl.is Verður Mein Kampf endurútgefin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dies caniculares

snataspark 

Sannkallaðir hundadagar.

Hér færi ég sönnur fyrir því, að hundaspark er gömul og góð norsk íþrótt, sem snemma þróaðist í fótbolta og múgæsingu. Sparkaðir hundar leituðu einatt til fjalla og gerðust vitanlega styggir.

Talið er víst að íþróttin hafi borist frá Afríku með hvíta manninum þegar hann fór til Evrópu. En sumir vísindamenn harðneita þessu og telja víst að fólk í Afríku hafi aðeins stundað hundakast.

Hundakast

Hundakast í Afríku

Franskur ferðamaður sendi mér þessa mynd af hundi í kirkju á Akureyri. Hann uppgötvaði fyrst hundinn þegar hann setti myndirnar inn á tölvu sína heima í Avignon.

Lúkas

 


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband