Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.6.2008 | 08:35
Gagnrýnum stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar
Ingibjörg Sólrún hefur enn einu sinni verið í sólarlandaferð í botnlanga Miðjarðarhafs. Nú er nefnilega sumar á Sýrlandi. Þar hefur hún eins og nýflegin ýsa rætt við ribbalda um stuðning þeirra við Ísland til setu í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna.
Human Rights Watch hefur þetta að segja um ástand öryggis á Sýrlandi:
"Any engagement with Syria must include an open discussion of human rights concerns, including the fate of political prisoners and other Syrians who suffer abuse," said Sarah Leah Whitson, Human Rights Watch's Middle East and North Africa director. "The authorities in Damascus are still harassing anyone who dares criticize them." Hér er frekari lesning.
Þegar Ingibjörg Sólrún var í Ísrael gerði hún ekkert annað en að tala um mannréttindabrot Ísraela. En hjá Assad var hún þæg stelpa og hélt kjafti, enda getur verið hættulegt að gagnrýna hann.
Sendið Assad eftirfarandi bréf og krefjist þess að hann komi Sýrlandi í lag, strax í dag, því Ingibjörg Sólrún gleymdi því þegar hún var í hallarheimsókn hjá honum nýverið.
Dear President Bashar al-Assad,
I am an Icelandic citizen, who followed the resent visit of Icelandic Foreign Minister Ingibjörg Sólrún Gísladóttir to Syria. In the press releases from your meeting, I can see no mention of the Icelandic Foreign Minister addressing the human rights violations, which take place in Syria under your rule nor your rule's support of terrorist activity in Lebanon and elsewhere. I, as a democratic Icelander, do not recognize Syria's support for Iceland's candidacy for the United Nations Security Council when fundamental human rights are violated in Syria.
Sincerely yours,
Undirskrift þín
Þótt Assad sé forseti tölvusambands Sýrlands, eru nokkuð erfitt að ná í hann eða ráðuneyti í landi hans með tölvusambandi. Bréfið má senda til fastanefndar Sýrlands hjá Sameinuðu Þjóðunum syriainfo@syriaun.org og einnig til sýrlenska þingsins help@parliament.gov.sy og afrit til postur@utn.stjr.is
Þessi ræða um Assad er áhugaverð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2009 kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
24.6.2008 | 08:00
The Bessastadir Peace Summit
Ástþór Magnússon er aftur úti að aka. Maðurinn kvartar yfir því á einni af heimasíðum samtaka sinna, Friðar 2000, að menn hafi kallað hann "þorpsfífl". Ekki ætla ég að kalla Ástþór neitt, enda hefur hann unnið sér til gullkross í Grikklandi og allir muna eftir jólasveininum í Bagdad eftir að Ástþór flaug með hann þangað. Góðar gerðir eru alltaf stór afrek í þessum vonda heimi, nema ef góðgerðamennirnir geri sér þær að féþúfu.
En nú er Ástþór alveg úti að aka. Vísir.is hefur eftirfarandi frétt undir fyrirsögninni Dorrit með lykilinn að friði.
"Ástþór Magnússon skoraði á Dorrit Moussaieff forsetafrú í formlegu bréfi í gær að vinna að friðarmálum í Mið-Austurlöndum.
Hann segir í bréfinu að lykillinn að friði sé í hennar höndum vegna þeirrar sérstöku aðstöðu sem hún hefur á Bessastöðum. Í bréfinu varar Ástþór við stríði Ísraelsmanna og Palestínumanna og segir að mögulega sé kjarnorkustríð og þriðja heimsstyrjöldin yfirvofandi. Ástþór segir samtökin Frið 2000 vera tilbúin að styðja við þetta friðarátak ef af því verði."
Sanktaklás er ættaður af þeim slóðum sem Ástþór segir ófriðinn vera. Klás var kominn af góðu fólki og bjó ekki fjarri þeim borgum þar sem forfeður Dorritar voru kaupmenn.
Hvað með að senda Jólasvein Ástþórs til Jerúsalem með lykil, eða bara beint til Gaza með fleiri leikföng?
Mín kæra þjóð. Er ekki orðið fullljóst að Ísland gegnir engu hlutverki meðal þjóðanna. Ekki einu sinni forseti og utanríkisráðherran, þótt ferðagleðin sé óhemju mikil. Það eina sem þjóðin fær út úr víðförli þeirra er stór reikningur. Það kemur nú ekki mikið meira út úr viðleitni Ástþórs.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2008 | 09:28
Er fótbolti uppbyggileg íþrótt ?
Einn af þeim sem yngist allur upp ef knattspyrna er annars vegar er stríðsglæpamaðurinn Milivoj Asner, sem framdi hræðilega glæpi gegn mannkyninu í Króatíu í síðari Heimsstyrjöld. Asner sem býr í Klagenfurt í Austurríki er 95 ára, en það aftrar honum ekki frá því að fara á völlinn, þar sem lið Króatíu hefur haft aðsetur meðan að Evrópumótinu í knattspyrnu fer fram.
Breska blaðið SUN náði í karlinn þar sem hann spókaði sig um götur borgarinnar með frú Edeltraud upp á arminn. Hann gekk meira en mílu án stafs og stoppaði á kaffihúsum og ræddi við menn um leikinn, drakk vín og kaffi.
Blaðamaður Sun fylgdi eftir og filmaði glæpamanninn og hér má lesa um það. Þegar blaðamaðurinn spurði hann til nafns, staðfesti karlinn að hann væri Milivoj Asner, en sagðist aldrei hafa snert hár á höfðu nokkurs mann. Það er er þekkt viðkvæði hjá stríðglæpamönnum
Dr. Efraim Zuroff forstöðumaður Simon Wiesenthal Stofnunarinnar í Jerúsalem, segir:
"Austurríki hefur lengi verið annáluð paradís fyrir stríðsglæpamenn. Ef maðurinn [Asner] er nógu hraustur til að labba í bæinn og drekka vín, er hann nógu hraustur til að standa reikningsskil gerða sinna"
Zuroff mun nú enn einu sinni krefjast þess að Asner verði framseldur.
Við verðum að vona að Íslenska sendinefndin í Vín, sem oft hefur tekið þátt í ráðstefnum um Helförina og skilda hluti, mótmæli nú stefnu Austurríkis. Sendiráðið getur fengið Ingibjörgu víðförlu í lið með sér. Þess má geta að húsið sem sendiráðið er í í Vín var einu sinni í eigu gyðinga. Í húsinu beint á móti sendiráði Íslands í Vín voru höfuðstöðvar SS-Sonderinspektion IV sem stjórnað var af SS hershöfðingjanum og stríðsglæpamanninum Hans Kammler, sem aldrei sást til eftir 1945. Ætli hann hafi lifað óáreittur í Austurríki eins og svo margir aðrir morðingjar og fylgst með fótboltanum?
Í dag gengur Asner undir nafninu Georg Aschner og býr beint á móti menningarmiðstöð Króata í Klagenfurt og allir vita hver hann er og hvað hann hefur gert af sér. Króatar, sem eru búsettir á þessum slóðum, eru frekar stoltir af karlinum.
Það er glæpsamlegt athæfi, að Austurríki hafi látið þennan óþokka lifa óáreittan í landi Vínarvalsanna. Það eru of margar feilnótur An der schönen blauen Donau
18.6.2008 | 16:02
Hvítabjörn til Katar í boði Bessastaða
Alveg eins og við manninn mælt. Emírinn (Amírinn) í Katar er vitaskuld búinn að heyra um hvítabirni á Íslandi og vill fá feldi í kvennabúrið sitt. Nú ættu menn að vera aflögufærir og geta tekið pantanir.
Ég greindi frá grimmum áhuga araba á hvítabjörnum hér fyrr á öldum í færslu í gær:
Skemmtilegar eru upplýsingar um hvítabjörninn sem egypski súltaninn Malik al-Kamil (sem var Kúrdi að uppruna) fékk frá Friðriki II keisara og konungi Sikileyjar. Dýrið kom til Damaskus árið 1233 eða 1234 samkvæmt annálaritaranum Kitab al-Wafi, sem einnig var kallaður Safadi. Fyrir hvítabjörninn fékk keisarinn gíraffa. Súltaninn á Egyptalandi hafði í byrjun 13. aldar fengið forláta skinn af hvítabjörnum samkvæmt Ibn Said al Maghribi.
Heinrekur III Englandskonungur átti líka hvítabjörn samkvæmt heimildum góðum sem Hákon IV Noregskonungur mun hafa gefið honum. Hákon gaf líka Friðriki II keisara björn. Heinrekur III tjóðraði björninn í Tower of London og á tyllidögum fékk björninn að synda í Thamesá og veiða sér fisk. Henrý var mikill dýravinur og átti líka fíl.
Hákon Hákonarson, sem varð konungur Íslands árið 1262, var mikill diplómat og sendi meðal annars sendimann til Túnis.
Nú er Ólafur forseti að leika Hákoni listina eftir, og ekkert væri sjálfsagðara en að gefa furstanum frá Katar hvítabjarnarskinn, eða hvítan fálka um hálsinn, enda er Amírinn mjög orðuglaður.
Reynandi væri að biðja hvítabirni um að biðjast afsökunar á Múhameðsteikningunum.
Í landi þessa Amírs eru hvítir birnir skotnir
![]() |
Sendinefnd frá Katar heimsækir forseta Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2008 | 15:05
Ríkislygavarpið
Í fréttum var þetta helst: "Ísraelsmenn gerðu sér árás á land þeirra að átyllu til að hefja stríð"
Fréttamenn RÚV eru annað hvort afar illa gefnir eða erindrekar öfgahópa á Íslandi, svo sem Hamas og Hizbollah, nema hvortveggja sé og ég hallast nú mest að því síðasta.
RÚV lýsir þessu yfir í dag:
Þegar RÚVverjar hefja sögufalsanir tæpum tveimur árum eftir að atburðurinn sem þeir falsa átti sér stað, sýnir hvað auðvelt er að heilaþvo fólk.Hizbollah réðst á tvo brynvarða vagna Ísraelshers innan landamæra Ísraels, drap þrjá hermenn, særði þrjá og tók tvo gísla, Ehud Goldwasser og Eldad Regev. Hizballah hóf stríðið.
Villimönnunum sem réðust inn í Ísrael var veitt eftirför, sem ekki tókst betur en svo að skriðdreki, sem veitti Hizbollah hryðjuverkamönnunum eftirför, var sprengdur og fjórir hermenn um borð voru drepnir. Hermaður, sem reyndi að bjarga félögum sínum í skriðdrekanum, var einnig drepinn af Hizbollah.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem RÚV hallar á Ísrael í fréttaflutningi og stundar fréttafalsanir, enda vita menn hvers konar lið baulandi framsóknarmanna og vælandi vinstrimanna hefur safnast saman á fréttastofu ríkisbáknsins í gegnum árin, með örfáum undantekningum þó.
Á fréttastofu RÚV er það alltaf Ísrael sem er skúrkurinn. Það er víst óumflýjanleg staðreynd. Því það má endalaust ráðast á Ísraelsríki án þess að kalla það stríð, en ef Ísraelsríki svarar er það næstum því heimsstyrjöld samkvæmt sérfræðingum lygavarpsins í Efstaleiti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.6.2008 | 07:04
Íslendingar eiga ekki Ísland
Ef einhverjir halda að Íslendingar eigi Ísland, þá skjátlast þeim hrapalega. Allir aðrir sem leggja leið sína til Íslands eiga líka Ísland. Danir eiga Ísland, Norðmenn eiga verulega mikinn hluta af Íslandi, Pólverjar eiga að sjálfsögðu Ísland og jafnvel hollenskir eiturpésar sem koma með húsbílinn hlaðinn af eitri handa frumbyggjunum, er líka Íslendingur og velkomnir að eyða almannafé í yfirfullum fangelsum landsins.
Við verðum að vera opin og gera okkur grein fyrir því, að þegar því var lýst yfir á sínum tíma, að Ísland væri íslenskt ríki fyrir Íslendinga, var það lykillinn að endalokum Íslands.
Þegar forseti vor talar í sífellu um hlutverk Íslands á meðal þjóðanna, er hann að sjálfsögðu að tala um að Ísland tilheyri öllum. Við skuldum líka allt sem við "eigum", svo það er best að sætta sig við að við eru í sameign.
.........Vonandi hef ég sært einhvern með þessum orðum mínum, móðgað fjöldann, kallað yfir mig hatur og fyrirlitningu.
Það gerði fjölmiðlatrúðurinn Avraham Burg í Ísrael nýlega , þegar hann lýsti því sama yfir um Ísrael. Burg er aflóga stjórnmálamaður á ísraelska vinstrivængnum, sem vinstri menn á Íslandi vitna gjarnan í. Hetja mikil.
Skrítið er, að til eru Íslendingar og aðrir, sem telja allt í lagi að Ísrael sé einhver sameignarkólónía alls heimsins undir stjórn Palestínumanna, sem ekki virðast vita eða geta gert sér grein fyrir því hvað lýðræði er. Þeim þykir heldur ekkert athugavert við það að Palestínumenn banni gyðingum að búa í "Palestínu".
En þessir sömu Íslendingar ærðust örugglega líka, þegar þeir lásu orðu mín um að Ísland sé ekki íslenskt ríki fyrir Íslendinga. Því ef einhverjir Íslendingar eru "hardcore" þjóðernisfasistar, þá eru það vinstri menn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
13.6.2008 | 08:16
Spámaðurinn sameinar oss - í lyginni
"Spámaðurinn sameinar oss" heitir ört stækkandi hópur í Jórdaníu undir stjórn 17 þekktra, vel menntaðra manna, þ.á.m. lögfræðinga, fjölmiðlafólks og þingmanna. Hópur þessi beitir sér fyrir banni , "Boykotti" og öðrum aðgerðum gegn dönskum vörum í Miðausturlöndum. Þessi hópur hefur góðan aðgang að fjölmiðlum og hefur á stefnuskrá sinni að breiða út boðskap sinn í gjörvöllum heimi múslíma.
Danir hafa auðvitað miklar áhyggjur af þessu, enda hafa þeir einblínt mikið á markaði í Miðausturlöndum og gloprað þeim niður annars staðar. Danskt efnahagslíf hefur verið í einhverju 1001 nætur ævintýri.
Danska utanríkisráðuneytið sendi nýverið danskan Palestínumann, Fathi El-Abed, sem búsettur er í Danmörku, á svokallaða "fact finding mission" til Amman til að rannsaka ástandið.
En ég hef líka verið í heimildaleit varðandi Fathi El-Abed, sem sendur var, og sem ég hef reyndar hitt. Ég vissi þó nokkuð um hann fyrir. Fahti sem er formaður Danska Palestínuvinafélagsins, hefur margoft lýst því yfir að Hizbollah séu góðgerðarsamtök sem aðeins beini réttmætum hernaði sínum að Ísrael.
Fathi El-Abed stendur hér á bak við sómamann sem ég þekki vel
Niðurstaða Fathi El-Abeds er, að Danir eigi ekki að sniðganga samtökin "Spámaðurinn sameinar oss". Ekki furðar það mig, að Fahti El-Abed taki þessa hæð í pólinn. Hann hefur verið spyrtur við flokksmenn í Radikale Venstre, sem höfðu mottó í Síðari styrjöld. Það var "samstarf og samvinna" við nasistana sem hertóku Danmörku.
En Fathi hefur reyndar einnig sýnt okkur að menntun og völd í Miðausturlöndum tryggi ekki visku. Forsvarsmaður samtakanna "Spámaðurinn sameinar oss", Dr. Zakaria Al-Sheik, hafi samkvæmt Fathi El-Abed ranghugmyndir um hvað gerst hafði í Danmörku í kjölfar annarrar birtingar Múhameðsteikninganna.. Dr. Al-Sheik greindi Fahti frá því að Mjólkurvörusamsteypan ARLA ætlaði eitt kvöldið sem hann var í Amman í apríl sl., að biðjast opinberleg afsökunar á teikningunum í dönskum sjónvarpsfréttum. Fahti fór heim á hótelið og horfði spenntur á fréttirnar í Danmörku í tölvunni sinni, en enginn frá ARLA lagðist í svaðið. Þetta útlagði Dr. Al-Sheik daginn eftir sem að Anders Fogh Rasmussen hefði gripið í taumana og bannað ARLA að setja fram afsökunarbeiðni til múslíma. Fathi segir múslímaprest í Danmörku senda þessar lygafréttir til Amman. Ef það er rétt, er það ekki nein ný frétt.
Þetta sýnir okkur líka, að "menntað" fólk í Miðausturlöndum gengur út frá því að forsætisráðherra geti hringt í Sjónvarpsstöð og bannað fyrirtæki og sjónvarpsstöðinni að birta efni. Einræðisherrar Jórdan hafa auðvitað slík völd. T.d. þurfti ekki annað en símhringingu frá Hússein konungi 1970-71, þegar hann var búinn að fá nóg af róstursmönnum Palestínumanna í Jórdaníu. 7000 þeirra voru plaffaði niður af herjum Jórdana. Þetta hlýtur Fahti El-Abed, formaður Vinafélags Palestínu í Danmörku, að vita. Hatur sumra Palestínumanna í garð Jórdaníu er mikið.
Þegar dagblaðið Information (I) hringdi til Dr. Zakaria Al-Sheik og spurði hann um söguna um forsætisráðherra Dana sem átti að hafa hindra afsökunarbeiðni ARLA, og Al-Sheik (A) sagði reiður:
A: The prime minister should not have prevented it. You limit freedom of speech, who do you do that?
I: Do you still believe that the prime minister prevented Arla from going on Danish TV and apologizing for the reprinting of the Muhmmad cartoons?
A: I'm not certain about that.
I: But you got this story from your source in Denmark?
A: Yes, we have our sources in Denmark, because we are journalists.
I: But do you still believe the story?
A: I don't know that, says Dr. Zakaria Al-Sheik and smiles, Do you want to work for us?
I: Yes, I would.
A: So tell me if it's correct.
I: The story is not correct.
A: We work with Danish media people
I: Can you tell me who they are?
A: No, unfortunately. As a journalist I can't reveal my sources,
Svona var nú samtal það. Dr. Zakaria Al-Sheik, er ritstjóri blaðs og vefblaðsins factjo.com , sem er hægt að lesa á ensku.
Að lokum er hér tvö lítil dæmi um fréttaflutning Factjo, sem sýnir hið anstyggilega gyðingahatur, sem er á bak við allar gerðir þessa hóps, sem nú ræðst á Danmörku:
http://www.factjo.com/factjo_en/fullnews.aspx?id=393
http://www.factjo.com/factjo_en/fullnews.aspx?id=383
http://www.factjo.com/factjo_en/fullNews.aspx?id=279
Ég legg til að miljarðamjólkurspeninn ARLA setji á markaðinn milk shake, (mjólkurhristing), sem kallaður verður Dr. Al-Sheik í höfuðið á Dr. Zakaria hinum öfgafulla. Sheik sem hristir allan heiminn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
11.6.2008 | 11:43
Doktor Prime Minister
Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Dana var nýlega á ferð í Ísrael. Þar var hann meðal annars sæmdur heiðursdoktorsnafnbót þann 28. maí sl. við háskólann í Haifa. Ráðherranum var boðið til Ísraels í tengslum við 60 ára afmæli Ísraelsríkis og titilinn og hattinn fékk hann fyrir störf sín að sviði umhverfismála og friðar.
Ekki veit ég hvort Fogh Rasmussen hefur stuðlað meir að umhverfismálum eða friði en aðrir. Ég tel að hann hefði getað fengið nafnbótina fyrir öllu merkilegra afrek. Árið 2005 baðst hann afsökunar fyrir hönd þjóðar sinnar og fyrri ríkistjórna á þeirri meðferð sem dönsk yfirvöld gáfu flóttafólki, gyðingum og öðrum, á 4. og 5. áratug síðustu aldar. Hann bað gyðinga afsökunar á því að gyðingar höfðu verið sendir í klær nasista fyrir tilstuðlan danskra yfirvalda. Rúmri viku áður en hann kom með þessa afsökun, hafði ráðuneyti hans beðið um bók mína Medaljens Bagside, og hjólaði ég stoltur með hana og afhenti hana á skrifstofu Anders Fogh Rasmussens.
© Jerry Bergman, Copenhagen
Danir vilja helst ekki heyra um þennan dökka kapítula í sögu sinni og dvelja frekar við, og stæra sig af, björgun gyðinga til Svíþjóðar í október 1943, þó svo að sú björgun hafi nú fyrst og fremst verið möguleg vegna þess að æðstu Þjóðverjarnir í Danmörku ákváðu að líta í aðra átt og gera minna úr aðgerðinni gegn dönskum gyðingum en upphaflega stóð til. Það gerðu þeir til að bjarga eigin skinni, því þeim var ljóst að stríðlukkan hafði snúist gegn Þjóðverjum.
Í Ísrael hafa menn enn ekki fengist til að meðtaka, að það var ekki bara giftusamleg björgun gyðinga árið 1943 sem hægt er að skrifa á sameiginlega sögu gyðinga og Dana. Sú saga inniheldur marga ljóta kapítula.
Anders Fogh Rasmussen hefur, mér vitandi, ekki gert neitt sérstakt á sviði umhverfismála fyrir utan langtímaáætlun fram til 2025. Áætlun ríkisstjórnar hans í umhverfismálum er yfirveguð og raunsæ. Stjórnarandstaðan í Danmörku, eins og stjórnarandstöður víða annars staðra, virðist hins vegar halda að hægt sé að frysta norðurpólinn og stöðva alheimshitnun ef vinstri menn komast til valda. Málið er ekki svo einfalt. Hér áður fyrr var þó mjög oft kalt í Gúlaginu, þar sem vinstri menn réðu öllu.
Fogh Rasmussen er einnig meðal þeirra leiðtoga sem sent hefur herlið til Írak og Afganistan. Menn geta lengi rætt hvort það er til góðs eður ei. Sjálfur tel ég það manninum til sóma. Friður kemst ekki á í þessum löndum meðan hryðjuverk eru faðirvorið.
Afsökunarbeiðni Anders Fogh Rasmussens árið 2005 var nægileg ástæða til að gefa honum doktorsnafnbót og sakna ég þess afreks í jarteiknaskrá Anders Fogh Rasmussens sem Háskólinn í Hafia hefur gefið út. Það hefði verið fullnóg ástæða til að gefa honum ferkantaða hattinn.
10.6.2008 | 19:40
Bless Johnny
Leiðinlegur skratti, sem kallaði sig "Johnny Rebel", hefur nú verið fjarlægður af stjórnarmönnum bloggsins eftir að þeir höfðu samband við lögmann sinn, enda voru skrif hans brot á 233. grein a í hegningarlögum nr. 19/1940, aukinheldur sem þau voru brot á reglum blog.is.
Johnny þessi, sem setti fram nasistaáróður í sífellu, en átti samt bloggvini meðal frelsuðustu vinstri manna á blogginu, sem höfðu sameiginlegar skoðanir á málefnum Miðausturlanda. Gyðingar og Ísraelsmenn voru líka verstu óvinir "nýnasistans" Johnny, sem mig grunar nú frekast að sé vinstrimaður.
Í einni af síðustu færslum Johnnys útúðaði hann Barack Obama fyrir að sýna Ísraelsríki stuðning. Annar bloggari kallaði hann "litla" og utanríkisráðherra Bandaríkjanna var kölluð "skjáta". Gyðingum var kennt um allt annað sem miður fer.
Ég blandaði mér í umræðuna, eins og ég gerði t.d. líka hjá Jóhannesi Ragnarssyni sem einnig hafði brugðist illa við frétt Morgunblaðsins um Obama og Ísrael. Meðan að kommar æstu sig yfir Obama og mér hjá Jóhannesi í Ólafsvík, kom einhver Skúli, sem felur sig á bak við IP-tölu, við hjá Johnny Rebel og skrifaði m.a.:
"Þú ert ágætur, Villi littli, og einhvern tímann munu hendur mínar umlykkja þig
Skúli (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 21:35 "
Hvað hótunina frá "Skúla" varðar þá er hann falinn á bak við IP-tölu og samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar gæti reynst erfitt að fá það upp gefið hver sé með þá IP-tölu eða hafi verið með hana þegar þessi hótun var skrifuð enda þarf víst dómsúrskurð til.
En sjúkleikinn hjá sumum hér á blogginu er greinilega kominn á alvarlegt stig. Kannski svo alvarlegt, að dómskerfið og lögregluyfirvöld ættu að fara að hafa eftirlit með verstu vitleysingunum og þeim sem lýsa yfir stuðningi við hryðjuverkasamtök.
Ég hef oft skrifað það, og endurtek það hér, að margt er líkt með frændum. Kommar og nasistar hafa ákveðin gildi og skoðanir sem falla vel saman. Við getum öll lifað vel án þessara gilda, sem aðeins hafa leitt af sér dauða og hörmungar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Danir eru nú farnir að ræða það sín á milli hvenær danskan deyr út. Eftir 20 ár segja sumir.
Það er ekki lengur graðhestaenska sem vinstrimenn töldu myndi ríða ilhýru dönskunni að fullu fyrir nokkrum árum. Það er heldur ekki franska sem Danir elskuðu að skreyta málið með. Það er ekki þýskan sem hefur gegnumsýrt dönsku. Arabíska er það heillin, sem nú tekur dönskuna aftanfrá að sögn sérfræðinganna.
Ætli Vigdís Finnbogadóttir myndi sætta sig við að innflytjendur á Íslandi myndu útrýma tungunni okkar með "Wallah billu" og öðru kjaftæði frá framandi löndum sem ekki virða réttindi kvenna?
Þegar norrænir menn þröngvuðu sér upp á íbúa Bretlandseyja á Víkingaöld (Söguöld), þá höfðu þeir ekki mikið fram að færa menningarlega. Þeir voru frekar ribbaldalegir. Kannski var helsta boð þeirra stærð ballarins eins hjá aumingja leigubílsstjóranum í Árósum, sem er svo vel í álnum að hann bíður ungu konum upp á heimatilbúið kebab og ferð upp í mínarettu, í stað borgunar. Aldrei hefur mér verið boði slík herlegheit að loknum leigubílstúr og er ég feginn því. Ég er líklega ekki nógu tungulipur eða of allt of kokhraustur.
Þótt víkingar hafi aldrei verið fjölmennari en heimamenn á Bretlandseyjum, (en ef til vill með stærri typpi), höfðu þeir á mjög skjótum tíma afgerandi áhrif á tungumálið, örnefni, staðarnöfn, you name it. Tungan er sleip ef typpið er stórt, samanber örnefnin Rutherford, Tipperary , Ballamory, Limmerick og Gu(a)ndale. Þess bera að geta að orðið typpi virðist náskylt arabíska orðinu zibbi, sem þýðir það sama.
Hér er hægt að læra og vera með í þróuninni.
Ef það sem víkingunum tókst, tekst meðal innflytjenda, sem sumir hverjir vilja meira segja sjá Dunimark sem hluta af Kalífatinu sínu, þá eru eins viðbúið að við munum sjá ný nöfn á danska landakortinu eftir 20-30 ár. Sívali turninn verðu þá líklega orðinn veitingastaðurinn Shawarmahtårnet eða bænakallturn, sem hann reynar var lengi vel. Ég held ég flytji bara í burtu áður en það gerist og ég verð kallaður Ibn haram we sharmuta.
En áður en ég flý af hólmi ætla ég ekki að missa af Miss Hijab keppninni, sem menn með skrítnar kenndir efna til hjá Danska Ríkisútvarpinu. Körlum, eða konum, sem þykja konur sexí, þegar þær eru huldar með klút, slæðum og kuflum, hljóta að vera masókistar og perrar eða inti mafish mukh, svo ég noti nú orð þeirra sem nú í frá ráða dönskunni.
Myndin að ofan sýnir ferð upp í Sívala Turninn, en utan á honum stendur JHWH með gylltum stöfum. Ætli það verði þolað eftir 20 ár, þegar hér verður töluð arabeska.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 1356181
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007