Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Styðjum mosku í Langjökli

achinesenewyearitinerary4grouptourchina-55011245328438_800_600_1236931.jpg

Ég er mikill stuðningsmaður Mosku í Langjökli. Farið á Facebook og lækið "Moska í Langjökli" eða gerist félagar í stuðningshóp við "Mosku í Langjökli".

Ég skil ekkert í mönnum að gleyma mosku og öðrum trúarhofum í Langjökli. Verða ferðamennirnir í jöklinum bara harðfreðnir og kaldrifjaðir Lúterstrúarmenn? Hvað var Ari Trausti eiginlega að hugsa? Eins miklu og gyðingar hafa eitt í íslenskan ferðamannaiðnað, er líka það minnsta sem hægt er að gera að ráða rabbí Eisberg til að þjónusta í jöklinum.

Svíar kunna sig. Þeir tilkynntu fyrir nokkrum árum að þeir ætluðu að reisa mosku úr ís. En einhver trúfræðileg túlkunarvandamál hafa komið upp, því moskur mega ekki bráðna.

saenskismoskaeftirleysingar.jpg
Sænsk ísmoska eftir leysingar í vor.

Íslenskt þjóðfélag er skopmynd

getfile_php.jpg

Allt er að verða vitlaust út af Ku-Klux-Klan teikningunni í Fréttablaðinu. Vissulega er þetta frekar klén teikning. Dagur er líka illa teiknaður og líkist mest Bryndísi Skram án brjósta. Hægra megin við Sveinbjörgu stendur maður sem stutt hefur Hamas. Enginn hefur sett hann í Hamasbúning á skrípamynd, þó hann styðji samtök sem beita sér fyrir eyðingu Ísraels og gyðinga, líkt og Hitler. Erfiðleikar Sóleyjar Tómasar við að eignast karlkyns afkvæmi vegna þess að hún ólst upp við eintóman kvennafans, var víst líka tilvalin skrípamynd sem aldrei birtist.

Palestíslendingar
Gott ef Georg Bjarnfreðarson er ekki líka orðinn Palestínumaður.
Nei, þessi í bláa jakkanum við hliðina á Hamasmanninum er líklega tvífari hans ... eða hvað, er þetta mákse nýja lookið hans Jóns Gnarrs?
 
Versti rasistinn í íslenskri pólitík, fyrr og síðar, var líklega Jónas Guðmundsson, sem var STÓRKRATI. Aldrei var teiknuð skopmynd af honum í gervi Ku-Klux-Klans. Enginn hefur teiknað ljótar myndir af Hermanni Jónassyni, sem persónulega beitti sér fyrir útvísun gyðinga frá Íslandi.
mynd_jonas_gu_mundsson.jpg
Jónas gaf út andgyðingleg rit í áraraðir og var jafnframt Krati, sat á Alþingi og var embættismaður í Reykjavík og sat í alþjóðlegum nefndum fyrir Íslands hönd. Logið er um sögu hans á síðu Alþingis. Yrði ekki allt vitlaust ef ég skellti lítilli hormottu a la Hitler á yfirvörina á Nasa?
 

Jú, skopmyndin af Framsóknarkonunni sem komst til "áhrifa" með hjálp Allah er afar óvönduð, sama hvaða skoðun maður hefur á mosku. Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins verður að gera sér grein fyrir því að aumkunarverðu lýðskrumi Sveinbjargar er ekki hægt að líkja við Ku-Klux-Klan. Kanahatur vinstrimanna hér um árið var líka kynþáttahatur að hluta til, þegar þeir sungu í kór um blessuð börnin sem fæddust uppi á Miðnesheiði:  "Ekki plagar okkar þjóð, vakkfódedillafodædódey, úrkynjun né gamalt blóð, því börnin fæðast brún og létt, með boginn fót og trýnið grett, sem Filippseyjafólkið nett".

Gleymum heldur ekki, að Sveinbjörg Slæða hefur reyndar áður gengið með eins konar slæðu. Hún vann fyrir Air Atlanta í Jeddah. Ekki kvartaði hún þá yfir múslímum, þegar þeir borguðu henni laun.

Er ekki vandamálið einfaldlega það að Íslendingar hafa upp til hópa verið útlendingahatarar og eiga erfitt með að viðurkenna að þeir eru nýlosnaðir úr hlekkjum fortíðarinnar?

Ruben og Felix 3
Af hverju var fjölskyldu Felix Rottbergers vísað úr landi? Felix var fyrsti gyðingurinn sem fæddist á Íslandi. Hermann Jónasson sá um að koma fjölskyldunni úr landi. Við tóku miklar hörmungar fyrir fjölskylduna í Danmörku, sem lesa má um í bók minni Medaljens Bagside. Myndin er tekin af syni mínum Ruben og Felix, þegar Felix heimsótti mig hér um árið til að tala í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn. Honum hefur hins vegar aldrei verið boðið til Íslands, landsins sem losaði sig við hann og fjölskyldu hans.

Píratar falla í sjóinn

bean-pirate-of-the-caribbean_1236801.gif

Nú er Jón Þór Ólafsson á förum úr pólitík og Píratar höfða ekki til fólksins í minni plássum landsins. Það hefur alltaf verið grunnstefna Pírata að þeytast yfir höfin á hriplegu skipi; Að ræna fólki, selja það í ánauð og krefjast lausnagjalds- og fara svo á tréfætinum í malbikun á strætum Barbarísins og drekka romm með páfagauknum Pollý á kvöldin. Það er öllu skemmtilegra en að vinna á geðveikrahæli þar sem menn eru við það að hengja sig í bindum. Ship ahoy.

Eftir að moskan hefur verið notuð sem tromp af Framsókn er engin leið að bjarga þessum flokki.

Gaman verður þó að sjá boðaða reynslusögu sjóræningjans úr höll fáránleikans við Austurvöll.

Bless Short Jón Silver.


mbl.is Hyggst hætta á Alþingi eftir ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nye tegn i latten

Ny latte i Island

Kære Radikale Venstre,


I har et problem.  Op til det islandske kommunevalg i 2014, som afholdes den 31. maj, fører jeres søsterparti i Island, Framsóknarflokkur, politik i forhold til muslimer, som ikke kan siges at være forenelig med de principper som Radikale Venstre følger.  Partiets spidskandidat i Reykjavík har bebudet, at hun ønsker en beslutning fra det nuværende bystyre i Reykjavík omstødt. Bystyret havde givet en matrikel til Reykjavíks knapt 400 muslimer så de kan bygge sig en regulær moske. Blandt islandske ekstremister førte det til primitive aktioner med grisehoveder som blev placeret på matriklen og griseblod stænkedes på grunden.  Nu ønsker jeres søsterparti, at muslimer i Island ikke får den lovede byggegrund, og ser derved ud til at øge sin popularitet som før denne sag var næste lige med nul.

Én kandidat, blandt partiets kun to kandidater som har trukket sig ud af kandidaturet til bystyret, har oplyst, at partiets øvrige medlemmer bruger nedværdigende betegnelser for muslimer til partiets lokalafdelings møder. Der kalder man muslimer konsekvent for "muslemmer" (múslimir).

Ganske vist har Framsóknarflokkur en dyster fortid som det parti som mest førte sig frem mod statsløse jøder der kom til Island i 1930erne. Partiets ministre var selv aktive i udvisning af jøderne. I 1930erne, da Framsóknarflokkur var Venstres søsterparti, ville det ikke have været unaturligt for partiet at stå de Radikale Venstre nærmere, men Danmark besattes af tyskerne og de Radikale samarbejdede så flot med det Tredje Rige mens Briterne kom til Islands, hvor Framsóknarflokkur og andre i Island surmulede over at Hitler ikke bankede på hos dem.

Er Framsóknarflokkur værdig som det Radikale Venstres søsterparti, når de ikke deler det syn på ligeret og religionsfrihed som søsterpartiet i Danmark har? Bør Radikale Venstre ikke tage kontakt med sit søsterparti, for at undersøge, hvad der foregår i Island? Bør Radikale Venstre ikke afslutte sit søstervenskab med partiet Framsóknarflokkur?  Er det virkelig Radikal Venstres "søsterpolitik",  at modsætte sig religionsfrihed og bruge hadet mod et religiøst mindretals gudsshus som stemmesluger ved et kommunevalg?

Med venlig hilsen,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, ph.d.

Albertslund


Er Egill Helgason sorry ?

ilkrsbuc1qjzi.gif

Kennari einn sem heitir Hilmar, sem oft veður upp á bloggsíðum manna með hræðilegum gífuryrðum, æstist mjög um daginn þegar ég skrifaði um moskusvik Sveinbjargar framsóknaroddvita.

Ég er reyndar fyrsti Íslendingurinn, sem ég veit um, sem í riti hefur stungið upp á mosku, en ekki Illugi Jökulsson eða Egill Helgason. Ég reit í Moggann í svari til íslensks kynþáttahatara, n.t. 14. des. 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

egill_i_brotajarni.jpg

 

Hinn ofsafengni kennari, Hilmar, sem á stundum er stuðningsmaður Hamas og yfirlýstur gyðingahatari kallaði mig öllum illum nöfnum. Hann hefur t.d. kallað mig "gyðingaósóma".  Eftirá, þegar æðið rennur af honum,  neitar hann því að heita Hilmar og þvertekur fyrir að hann sé kennari. Hann er þó enn ekki búinn að neita því að hann sé Lionsmaður.

Ég fer ekki ofan af því að andstaða við mosku, sérstaklega mosku sem gefin hefur verið lóð, sem svo á að taka aftur frá söfnuðinum, sé ekkert annað en einhvers konar fordómar. Andstaða sjálfs míns við moskur birtist aðeins þann dag þegar þar verður boðað það hatur sem margir vinstrimenn eru haldnir, en því miður er sögufölsun orðin hluti af trúariðkunum íslensk múslíma (sjá hér). Ég hef þegar látið í ljós skoðanir mínar á síendurteknum kynþáttafordómum þjóðkirkjunnar sem birtast í Passíusálmunum og ég vona að ég þurfi ekki að gera það með múslíma.

Egill Helgason, sem nú biðst auðmjúklega afsökunar fyrir að kalla saklausa konu "rasistakellingu", skeit mig reyndar einnig út á áföllnu Silfrinu árið 2005 með röð lyga. Hann skrifaði m.a. : "Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson komst í fjölmiðla í Danmörku fyrir nokkrum árum þegar hann reyndi að fletta ofan af framgöngu Dana gegn gyðingum. Eins og kunnugt er voru danskir gyðingar ferjaðir yfir sundið til Svíþjóðar haustið 1943 og björguðust flestir með þessum hætti. Vilhjálmi taldi að þessir atburðir hefðu tekið á sig mynd goðsagnar og vildi fá að komast í skjöl útlendingaeftirlitsins til að sanna að í Danmörku hefði verið rekin andgyðingleg stefna. Úr þessu varð talsverð rekistefna." (sjá hér)

Egill birti líka þessa andgyðinglegu óþverragrein sína á visir.is og í DV þann 2.5. 2005.

Hálfum mánuði eftir að Egill Helgason níddist á mér og reyndi að gera lítið úr starfi mínu og rannsóknum, kom út í Danmörku tæplega 500 síðna bók mín Medaljens Bagside. Bók mín, sem fjallaði um flóttamenn af gyðingaættum og aðra sem Danir vísuðu úr landi, fékk mikið lof, reyndar svo mikið að sumir danskir sagnfræðingar, sem reynt höfðu að setja stein í götu mín til að hindra að ég gæti rannsakað efnið, reyndu síðar að ræna heiðrinum af uppgötvunum mínum.  Þegar dönsku dagblöðin fóru að greina frá bókinni, áður en hún kom út, bað forsætisráðherra Dana um eintak af henni, og hjólaði ég sjálfur með bókina í ráðuneytið. Ráðherrann vitnaði svo í hana í Mindelunden 4. maí 2005 við árlega minningarathöfn um lok þýska hernámsins í Danmörku, þar sem hann bað gyðinga afsökunar á þeim glæpum sem fyrirrennarar hans höfðu framið og sem ég greindi frá í bók minni. Egill hefur aldrei beðið mig afsökunar fyrir að svína mig til.

Egill er, eins og allir vita, einn af aðalsérleyfishöfunum á sannar og réttar skoðanir á Íslandi. Slíkir menn biðjast sjaldan afsökunar, og ef þeir gera það, meina þeir ekkert með því.

Einhverju sinni sagði ég frá því á Silfri Egils, að blússöngvarinn Bill Bourne í Kanada væri frændi minn. Bill er afkomandi Stephans G. Stephanssonar og Stephan G. og langafi minn Þórður Sigurðsson voru systrasynir (sjá hér). Viðkvæði Egils var: Aumingja Bill að eiga svona leiðinlegan frænda". Sjá hér.  Egill fór svo í að fjarlægja ónotin af Silfrinu, en það var um seinan eins og sjá má hér fyrir neðan. Dónaskapurinn hafði verið afritaður. Enga afsökun sendi Egill til mín eða Bills.

egils_rau_aritsko_un_1236157.jpg
 
Látum Bill frænda ljúka þessum pistli 


Morðin í Brussel varða Íslendinga


Gyðingahatur er í sókn í ESB, líka á Íslandi, eins og sjá má í umræðunni við þetta blogg. Stundum eru múslímhatarar líka gyðingahatarar og múslímar er það líka oft á tíðum. Á Íslandi þykir það greinilega allt í lagi að Íslendingar séu kallaði gyðingaósómar.

Næstkomandi þriðjudag átti ég að hitta danskan fræðimann sem búið hefur lengi í Bandaríkjunum. Við höfðum mælt okkur móts á Dansk Jødisk Museum í miðborg Kaupmannahafnar. I gærkvöld gat hann allt einu ekki komið á safnið á þriðjudegi, og spurðu hvort ég hefði tíma á mánudegi. Þar sem Dansk Jødisk Museum er alltaf lokað varð ég að stinga upp á öðrum stað til að hitta manninn. Ég geri mér grein fyrir því að maðurinn var vitanlega dauðhræddur við þau tíðindi sem í gær bárust frá Höfuðborg ESB, Brussel. ESB landið Belgía er ekki öruggt og það er ESB landið Danmörk heldur ekki.

media_l_6768401.jpg

Þar hljóp ódæðismaður inn á safn um sögu gyðinga í Brussel og skaut einu eða fleiri skotum í höfuð og háls fórnarlamba sinna. Hjón frá Ísrael voru meðal hinna myrtu, einnig tveir starfsmenn safnsins. Aðalfréttin í dag í Belgíu er samt ESB kosningarnar, þótt evrópska Helförin haldi áfram.

Gyðingahatur er enn landlægt í Evrópu og ESB gerir t.d. ekkert við þeim ofsóknum sem menn verða fyrir í Litháen, þar þeir sem benda á óeðlið í að stjórnvöld í Litháen dýrka gyðingamorðingja sem þjóðhetjur, eiga það á hættu að vera ofsóttir af lögregluyfirvöldum í landinu.

Á Íslandi starfar kennari sem kallar íslenska ríkisborga gyðingaósóma. Maðurinn sem það gerir er barnaskólakennari og virkur í Lionshreyfingunni. Yfirvöld gera ekkert. Gyðingahatarar fá hæli og landvist á Íslandi meðan fólk í lífshættu er sparkað út í hafsauga.

Ætli eðlileg spurningin sé ekki  hvenær gyðingar verða myrtir á Íslandi? Er utanríkisráðherra búinn að senda samúðarkveðjur til Brussel? Nei, en hann styður öfgamenn í Úkraínu sem hata gyðinga, enda er utanríkisráðherra Íslendinga Framsóknarmaður. Framsóknarmenn vilja einnig hefta réttindi múslíma.


Dauðakrampar Framsóknar ?

xbmtyrn.jpg

Aumkunarvert er að sjá oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík höfða til öfgafólks (framsóknarmanna?) með því að lofa að hætta við að úthluta lofaðri lóð fyrir mosku við Mörkina í Reykjavík. Trúfrelsi á nú að hefta til veiða nokkur atkvæði frá svínablóðssletturum.

Framsóknarflokkurinn fór forðum fremstur í atlögu að flóttamönnum af gyðingaættum. Þess vegna er enn ekkert samkunduhús í Reykjavík. Vinstri menn, sumir hverjir komnir af góðum framsóknarheimilum, hafa hjálpað til í því hatri og Sjálfstæðisflokkurinn innbyrti úrval nasistagerpanna og gerði þá að flugmálastjóra, lögreglustjóra, og meira að segja próflausan fánabera að seðlabankastjóra.  

Moska mun rísa, og framtíðin mun svo sýna okkur, hvorir verða öflugri í hatrinu, örvinglaðir framsóknargosar gegn múslímum ellegar múslímar gegn gyðingum og Ísrael.

Augljóst er að íslensk pólitík er og verður á lágu plani. Ef menn eru ekki í því að banna moskur, er darraðardansinn fyrir græðgina hafinn aftur með aðstoð (tæmingu ríkiskassans) til þeirra sem minnst þurfa á henni að halda. Nokkrum árum eftir hrun heimta svo allir launahækkanir, og vitaskuld mest þeir sem ekki þurfa á henni að halda. Aðrir vilja stórspítala sem verður  1/10 af miðbænum í Reykjavík. Samfélagið er sjúkt.

Hvar á að fá fjármagnið? Sumir telja það fundið í veskjum kínverskra súperskálda. Eru Íslendingar ekki búnir að fatta að peningarnir falla ekki af himnum ofan. Eiga fleiri að verða atvinnulausir? Það telja vitaskuld sérleyfishafarnir á réttar skoðanir og hreinar sem allir vilja í ESB, því þar fást bestu dílarnir samkvæmt heilaþvottastöðinni RÚV. Ísland er enn ekki komið með tærnar í fjölda atvinnuleysingja þar sem ESB hefur hælana.  Íslenskir stjórnmálaflokkar velja sem fyrr taumlausa vitleysu sem stefnu sína. Lýðinn þarf að seðja, og greinilegt er að hann hefur ekki vitkast mikið síðan 2008.

Þess ber að geta að Sveinbjörg sem gekk í Álfó, Versló og Háskó og vill banna moskó, vann hjá Atlantó í Jeddó. Ætli hún hafi gengið með slæðu? Ég spái því að hinir krakkarnir vilji ekki lengur með henni í brennó og kíló, því hún er svaka púkó. Hún getur þá alltaf spilað Dr. Mario við sjálfa sig:

"Hvað viltu vita? Ég á þrjú börn, ég er fráskilin, ég lærði lögfræði í Háskóla Íslands, starfa sem lögmaður. Var í Verzló og Álfó. Fannst gaman að fara út í brennó, kíló og yfir þegar ég var ung. Uppáhaldstölvuleikurinn minn er Dr. Mario. Mér finnst gaman að ferðast. Hef unnið hjá Atlanta í Jeddah og Madrid, kokkur og túlkur í fjallaferðum, Deloitte, Ernst&Young, bjó í Luxembourg og naut lífsins þar meginhlutann atvinnulaus. Rek nú Lögmenn Hamraborg 12."


mbl.is Kosið verði um lóð undir mosku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamenn háloftanna

greed_pilot_icelandair.jpg

Það undraði mig alla æsku mína og uppvaxtarár á Íslandi, af hverju íslenskir flugmenn voru alltaf í "stéttabaráttu". Menn, sem byggðu sér dýrustu villurnar í Garðabæ, sem fóru í endalaus sumarleyfi til Hawaii, áttu sumarbústaði á undan öllum öðrum, en þurftu alltaf meira, og meira og enn meira en aðrir í samfélaginu.

Nú þegar ég hef horft upp á aðgerðir flugmanna í heilan mannsaldur er mér ljóst, að flugmenn eru ekki stétt. Þeir eru hryðjaverkamenn græðginnar. Þetta eru menn, og konur, sem tekið geta samfélagið í gíslingu og eyðilagt ferðamannaiðnaðinn, sem er víst orðinn meira virði fyrir íslenska þjóðarbúið en að draga fisk úr sjó eða gefa amerískum fyrirtækjum upplýsingar úr erfðamengi þess einsstaka stofns sem landið byggir. (Ætli Kári Spaði sé búinn að finna græðgisgenið?).

Græðgi íslenskra flugkappa, sem vitaskuld lifa lífinu hættulega með okkur um borð, er ólýsanleg.  Fyrir hönd Marx og Engels leyfi ég mér sem atvinnuleysingi að lýsa því yfir, að eyðileggjandi aðgerðir flugmanna eru ekki hluti af stéttabaráttu.

Flugfreyjur eru kannski annað mál. Við vitum að sumar þeirra geta ekki lifað án Saga-butique og heyrt hefur maður af freyjum sem stela eggjandi undirfatnaði í verslunum erlendis. Þá er vitanlega þörf á stéttabaráttu. Flugfreyjur verða að hafa ráð á eggjandi undirfatnað, það eru bara lágmarks-kvenréttindi. Hér er smá pakki fyrir strandaglópa í verkfallinu, sem sýnir nýja tísku Icelandair eftir verkfallið og alla baráttuna.

Önnur stétt, sem ekki getur talist vera í stéttabaráttu, nema þá helst við aðrar stéttir, þegar hún tekur sér meira en hún þarf og vel ríflega það, er þessi:

toothfairy.jpg
Lengi lifi byltingin !

mbl.is 100 flugferðir í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréf frá forsætisráðherra

atlas_of_creation_1234326.jpg

Það getur borgað sig að þekkja einhvern sem bloggar, því í gær fékk ég svar frá Forsætisráðuneytinu vegna fyrirspurnar minnar um skrifstofu Menningararfs þar á bæ, eftir að erindi mitt, sem ekki hafði verið svarað á hefðbundinn hátt innan eðlilegar tímamarka, var sett á blogg vinar minns Fornleifs.

Ekki stóð á svörum eftir að Fornleifur var kominn með málið, en ekki kom svarið þó frá skrifstofustjóra Menningararfsskrifstofu Forsætisráðuneytisins, sem fyrirspurninni hafði verið beint til, heldur frá yfirmanni hennar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, en Ágúst Geir Ágústsson, sem er skrifstofustjóri Skrifstofu yfirstjórnar eins og það heitir svo glæsilega í Forsætisráðuneytinu ritaði mér fyrir hönd ráðherra:


"tilvísun í mál: FOR14040066

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, ph.d.

Vísa til neðangreindar fyrirspurnar þinnar varðandi nýja skrifstofu menningararfs í forsætisráðuneytinu. Eins og fram kom í fréttatilkynningu ráðuneytisins þann 17. desember sl. var ný skrifstofa menningararfs sett á fót í forsætisráðuneytinu 1. febrúar sl. og henni falið að annast verkefni á sviði menningararfs sem nú heyra undir forsætisráðuneytið, sbr. 2. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálaefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sjá nánar: http://www.althingi.is/lagas/nuna/2013071.html

Skrifstofan sinnir almennri stjórnsýslu og stefnumótun á málefnasviðinu og fer með málefni Minjastofnunar Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og Þjóðgarðsins á Þingvöllum í samvinnu við aðrar skrifstofur í ráðuneytinu. Margrét Hallgrímsdóttir er settur skrifstofustjóri en auk hennar starfar Hildur Jónsdóttir sérfræðingur á skrifstofunni.

Beðist er velvirðingar á því hve dregist hefur að svara fyrirspurn þinni.

F.h. ráðherra
Ágúst Geir Ágústsson" 


Ekkert kemur fram í bréfi ráðherra sem ég vissi ekki áður. Ég hélt í einfeldni minni að meira lægi á bak við stofnun nýrrar deildar í stjórnarkerfinu en þetta. Ég geng því út frá því að undirbúningsvinna fyrir þessa deild ráðuneytisins hafi verið frekar lítil og vanhugsuð.

Er ráðuneytið farið út fyrir lagarammann?

Ég vona að skrifstofustjóri Menningararfsskrifstofu hafi ekki haft of mikið að gera í tengslum við breytingu á nafni Þjóðmenningarhússins í Safnahúsið fyrst hún gat ekki svarað mér. Líklega mun það mál sliga, því í upplýsingum ráðherra og Ágústs Geirs Ágústssonar kemur mjög greinilega fram að skrifstofan sinni almennri stjórnsýslu og stefnumótun á málefnasviðinu og fari með málefni Minjastofnunar Íslands, Þjóðminjasafns Íslands, Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Í fréttatilkynningu um Safnahúsið sýndist mér hins vegar, að ráðuneytið væri með fingurna í málefnum annarra stofnanna sem ekki heyra undir ráðuneytið, m.a. Náttúruminjasafns Íslands og Stofnun Árna Magnússonar.

Eins og alþjóð veit, hefur myndast mikil hola við Bændahöllina/Hótel Sögu, þar sem gert var ráð fyrir Húsi Íslenskra Fræða. Meðan að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs þarf að nota alla peninga í að borga skuldir skussa, verður greinilega ekki fyllt upp í holu fyrri ríkisstjórnar við Bændahöllina. Það hefur Sigmundur Davíð alveg gert skiljanlegt. Í vetur fjarlægði Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar handrit úr Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu, því Þjóðminjavörður, Margrét Hallgrímsdóttir, sem þá var enn var ekki orðin skrifstofustjóri Menningararfsskrifstofu Forsætisráðuneytisins gat ekki séð til þess að næturvakt var á handritaarfinum í húsinu, sem heyrði undir Þjóðminjasafn.

Því hlýtur næsta spurning mín til ráðherra og Skrifstofu Menningararfs að vera. Er skrifstofan þegar farin út fyrir starfssvið sitt? 


Fyrri færslur um málið:

Beðið eftir Skussaráðuneytinu

Menningararfspizzan 

Aths: Atlasinn í bókahyllu ráðherra á myndinni efst er líklega úr tíð fyrri ríkisstjórnar, en hver veit?


Wer ist der Brinkmann?

sendiherra_esb_1.jpg
20. mars sl. skrifaði ég um leit mína að upplýsingum um sendiherra ESB á Íslandi, Matthias Brinkmann. Forsætisráðherra Íslands hafði í fjölmiðlum gefið í skyn að sendiherrann hefði greint rangt frá fundi þeirra í milli, og þá fékk ég náttúrulega áhuga á að vita meira um diplómatinn sem að sögn forsætisráðherra var ótrúverðugur. Það er ekki á hverjum degi að maður heyrir af ótrúverðugum diplómata.

Eins og þið getið lesið í fyrri færslu minni kom ýmislegt í ljós, sem sýndi að mikið ósamræmi var á milli þess sem stendur í ferilskrá sendiherrans og því sem ég gróf upp. Ég hnaut fyrst og fremst um þá upplýsingu sendiherrans að hann hefði starfað í ráðuneyti í Danmörku árið 1987-90, ráðuneyti sem var reyndar enn ekki til þegar hann sagðist hafa unnið þar.

Nú er ég einnig búinn að fá þær upplýsingar frá dómsmálayfirvöldum í Hamborg, að Brinkmann hafi verið dómari þar í borg árið 1994. Það þykir mér skondið, en samkvæmt ferilskrá Brinkmanns á vef ESB var hann þá háttsettur yfirmaður ESB-skrifstofunnar í Stokkhólmi og hafði unnið þar síðan 1992. Kannski ók Dr. Brinkmann á milli ESB skrifstofunnar í Stokkhólmi og réttarsalsins í Hamborg á hraðskreiðum Audi til að dæma mann og annan? Það verður auðvitað ekki skafið af Þjóðverjum, þeir eru afkastamiklir á mörgum sviðum. Á leið sinni im Gericht hefur hann kannski komið við í gamla ráðuneytinu sínu í Kaupmannahöfn, sem var nýorðið til árið 1993.

Wo ist der Brinkmann?

Nú kunna vitaskuld að vera náttúrulegar skýringar á öllum því ósamræmi sem ég hef fundið milli ferilskrár Brinkmanns og þeirra upplýsinga sem ég hef aflað.

Þess vegna hafði ég samband við skrifstofu sendiráðs ESB í Reykjavík til að fá betri upplýsingar straight from the horse's mouth. Fyrst talaði ég við rúmenska konu, sem lofaði að rannsaka málið, en heyrði svo ekkert frá henni. 24 mars sl. ritaði ég Klemens Þrastarsyni, (fyrrv. blaðamanni), sem vinnur hjá ESB-sendiráðinu.

Klemens svaraði mér loks þann 7. apríl, en hann hafði verið erlendis og ekki haft aðgang að tölvu. Hann bað mig að senda erindi mitt á ensku eða þýsku til að flýta fyrir svörum. Það gerði ég strax þann 8. apríl - á báðum tungumálunum, kannski ekki á fullkominni Oxfordensku eða Heidelbergþýsku, en það sem ég skrifaði ætti að skiljast. Kom svo ESB-starfsmaðurinn Klemens Þrastarson erindi mínu til sendiherrans, sem hlýtur að vera mjög önnum kafinn, því enn hef ég ekki fengið svör. Er þetta alltaf svona seinvirkt í ESB?

Það hlýtur að vera hægt að fá þær upplýsingar sem ég hef beðið um. Sjáið til dæmis á síðu þýska sendiráðsins í Reykjavík. Þar liggja allar nauðsynlegar upplýsingar um sendiherrann Thomas Herrmann Meister frammi, efst til hægri á síðunni í pdf skjali. Brinkmann gæti bara sent mér slíkt skjal með upplýsingum um sig. Menn verða að eiga slíkt þegar þeir sækja nýjar vinnur. 

Það verður að minnsta kosti að skýra ósamræmið á milli veruleikans og þess sem stendur í ferilskrá sendiherra ESB á Íslandi. Hvernig í andsk.. starfa menn í dönsku ráðuneyti sem ekki var til á þeim tíma sem þeir segjast hafa unnið þar, og hvernig er hægt að vera yfirmaður á upplýsingastofnun um ESB í Svíþjóð um leið og maður starfar sem dómari í Hamborg? Ég spurði sendiherrann einnig um annað.

Sjá fyrri færslu um Brinkmann.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband