Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stjórn særingameistara, lygamarða og rógbera

Grámygla

Í engu siðmenntuðu og þróuðu landi myndi ríkisstjórn sitja áfram, eftir að í ljós kemur að utanríkisþjónustan með blessun ríkisstjórnarinnar, lýsir  þjóð sinni sem fíflum sem viti ekki hvað þeir gera við útsendara annars lands, og í þessu tilfelli voldugasta lands í heimi.

Í engu siðmenntuðu ríki myndi ríkisstjórn mæta í vinnunna með bros á vör, daginn eftir að slíkt kemur fram, og láta sem ekkert hefði gerst. Slík stjórn hlýtur að hafa gott hreðjatak á stjórnarandstöðu sinni. 

Utanríkisráðherra, sem segist vera særingameistari sem var að særa fram samúð voldugustu þjóðar heims, fyrirfinnast ekki í þróuðum ríkjum, nema ef til vill á Ítalíu. Er siðferðið á Íslandi orðið eins og á Ítalíu? Eru menn farnir að nota vúdú og svartagaldur til að særa fram meðaumkvun BNA? Meira að segja vanþróuðustu lönd Afríku, sem Standard og Poors eru að skipa okkur í sveit með, eru fyrir löngu hætt að notast við særingameistara í stjórnsýslu sinni.

Í engu siðmenntuðu ríki þurfa menn að horfa upp á gamalreyndan sendiherra fara með ósóma um þjóðhöfðingja lands síns á vegum ráðuneytis síns, án þess að það hefði afleiðingar fyrir stjórn landsins. Eru fleiri ólíkindatól eins og þessi sendiherra í þjónustu lands síns? Það kemur í ljós.

Það er ekki nema að von að BNA eða Sam Wasserman erindreki í bandaríska sendiráðinu hafi lekið þessu bréfi. BNA kennir greinilega í brjósti um Íslensku þjóðina að hafa slíka vitleysinga yfir sér. BNA er búið að sjá, að á Íslandi er lýðræðið á völtum fótum og að þar stjórna trúðar sem eru hlekkjaði í sína blóðrauðu fortíð, þegar þeir trúðu á vopnaða byltingu og uppreisn öreigalýðs. Núna ljúga þeir að lýðnum og rægja hann við Uncle Sam. Er Ísland siðmenntað land? 

-  Já, en ríkisstjórnin sem situr er afar vafasöm og hið versta ólíkindatól, og eiginlega óstjórn.


Maður kafnar á falaffelsamloku í Dubai

lítil mynd af litlum karli
 

Dubai er griðastaður glæpahyskis. Ég skil ekki af hverju forseta íslenska lýðveldisins og fyrrverandi klyfjahesti hans og særingameistarans, Össuri utan Ríkis, þyki spennandi að heimsækja Dubai. Forsetafrúin sá á ákveðnu tímabili fyrir sér Dubai  Norðursins á Íslandi, þegar hún var ekki að skammast út í öryggisgæsluna í Ísrael, sem tók bara ekkert tillit til þess að hún segðist vera First Lady of Iceland.

Ég er hins vegar á því, að Dubai sé ekkert annað en bölvað ræningjabæli, þar sem vopnasalar hafa aðsetur og eiga viðskipti við eftirlýsta hryðjuverkamenn. Einn þeirra var Hamas-leiðtoginn sem haldið er fram að hafi verið kæfður í Dubai um daginn. Dubai er einnig staðurinn, þar sem stórar fjárhæðir Íslenskra prangara hafa verið á ferðinni á síðustu árum. Hver er að rannsaka þau viðskipti?

Heimurinn, sem hatar Ísrael, og auðvitað gamli fréttamaðurinn og skrímslafræðingurinn Þorvaldur á fréttastofu RÚV, er að farast vegna þess að meintir Mossad-liðar fóru til Dubai á fölskum vegabréfum og drápu Hamas-leiðtoga frá Al Quassam sveitunum, Mahmoud al-Mabhouh, sem var að kaupa vopn. Hann var að sögn kæfður með púða á lúxusherbergi sínu í Dubai, sem verður að teljast frekar friðsamleg endalok fyrir mann sem í öðru hvoru orði boðaði dauða og hefnd. Í fyrra tók Al Jazeera viðtal við þennan sakleysingja í Damaskus,  þar sem hann sagði m.a.: I am very cautious, thank God. Eventually, only God determines when our lives end. We know the price to going on this path. Vonandi var það vilji Allah sem framfylgt var á hótelinu í Dúbai, þegar Mahmoud kafnaði í falaffelsamloku sinni, var kæfður eða dó úr reiðarslagi með rússneskri vændiskonu inni á herbergi sínu. Einu sinni voru Ísraelar að sækja fjöldamorðingja til Argentínu og út um allar jarðir. Er ekki betra að stoppa þá áður en þeir fremja fjöldamorðin?

Af hverju fagna menn því ekki, að enn einn kaupmaður dauðans er fallinn í valinn? Þetta var maður sem yfirlýst og opinbert vildi útrýma eina lýðræðisríkinu í Miðausturlöndum. Hann var eftirlýstur fyrir hryðjuverk. Hvað er eiginlega að því að leyniþjónusta Ísrael og annarra ríkja ryðji honum úr vegi, ef Dubai tekur hann ekki fastann? Hann hefur vonandi verið eftirlýstur af Interpol eins og meintir banamenn hans eru nú. Hann var meira að segja hættulegur sinni eigin þjóð, sem samkvæmt síðustu fréttum vann með Mossad í því að granda þessum Dúbaifara. En sannanir fyrir því að hann hafi verið myrtur vantar algjörlega. Lögreglan í Dubai er víst líka dálítið dúbíus. Rökin í þessu máli eru eins og í máli týnda drómedarans frá 2006. Engar sannanir og allt rennur út í sandinn. Hverjum er ekki sama um hryðjuverkakaupmanninn Mahmoud al-Mabhouh?

 

Ferðamenn
Ferðamenn í Dubai ?

Vælandi lándráðamenn hjá Uncle Sam

uncle-sam-stop-whining

Uppsagnir manna í íslensku utanríkisþjónustunni eru óumflýjanlegar. Burgeisinn og Einar Gunnarsson verða að skýra út fyrir þjóðinni, hvaða umboð þeir hafa til að lýsa þeirri skoðun sinni að meirihluti Íslendinga sé idjót, sem ekki sé treystandi í kosningum.

Uncle Sam Watson, varasenditík í Rekjavick, sem ekki passar nógu vel upp á póstinn sinn, ætti að gera sér grein fyrir því að Burgeisinn steypir þessa dagana kúlur gegn BNA í kjaftæðinu um hver ber ábyrgð á þátttöku Íslands í stríðinu í Írak. Þátttöku sem við getum verið stolt af, þar sem stríðsglæpamaðurinn og þjóðarmorðinginn Saddam Hussein hóf það stríð. Burgess studdi þann andskota.

Hjálmar W. Hannesson ætti að láta ógert að snúa aftur til Íslands eftir þessi orð sín:

He added that he did not sense a willingness on the part of the opposition to take control of the government. Noting that the President, whom he has known for years, is considered "unpredictable," he hoped that a solution palatable to all sides in Iceland could provide
a way out.

Hér talar Hjálmar um þjóðhöfðingja Íslands í umboði hvers? Hjálmar burt úr diplómatíunni! Þú ert kjaftakerling, en ekki diplómat.

Getur verið að það séu of mörg fífl sem stjórna á Íslandi? Er það nema von, að BNA sendi ekki hingað sendiherra?

P.s. gleymdi Össur. Hann verður líka að pakka í fyrramálið.


mbl.is Minnisblað sendimanns birt á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veislan í skíðaskálanum

Rosa Partí

Egill Helgason er greinilega orðinn alveg uppiskroppa með efni.  Áróðurstarfið fyrir ríkisstjórnina gengur greinilega ekki allt of vel.  Madame Joly hefur t.d. snúist dálítið í höndum á spunameistaranum. Nú hefur Egill brugðið á það ráð að birta myndir úr íslenskum veislum sem hann geymir í silfri sínu. Í dag dró hann upp úr hattinum algjöra partí-partí mynd úr skíðaskálaveislu Jóns Ásgeirs frá 2007, sem hann notaði sem sönnunargagn fyrir tengslum Landsbankans og Baugsveldisins. Sigurjón Kúlulán og Banka-Ella eru eins og loftbelgir þarna á meðal fallega og ríka fólksins. En ekki er ég viss um að niðurstaða Egils sé rétt. Menn geta verið í partí án þess að vera að braska eitthvað saman.

Undir áhrifum frá stóra manninum á Eyjunni birti ég einnig eina góða, hörkupartímynd, sem var tekin í febrúar 1964.  Myndina er hægt að stækka með því að smella á hana. Allir eru greinilega að djúsa. Þarna er Banka-Ella, Elín Sigfúsdóttir að þamba Sínalcó (efst fyrir miðju). Kúlulánið hefur örugglega leikið við marga á myndinni. Yfirtaka á stórri rjómaköku hefur nýlega farið fram. 

En hver annar þekktur maður, fyrir utan Banka-Ellu ætli hafi verið í þessu partí? Jú, hver annar en einn valdamesti maður Íslands, partíkóngurinn sem situr þarna neðst í tröppunum blæs í rör og er með kók og romm í flösku: Ykkar einlægur, eigandi þessa blogs. Vonandi sér Egill Helgason ekki meira út úr myndinni er siðlegt er, en Ella var nágranni. 

Myndgreining Egils í dag á Eyjunni er einhver sú skrýtnasta blaðamennsku sem ég hef séð, ef yfirleitt er hægt að kalla slíkt blaðamennsku. Ef einhver á myndir af Agli Helgasyni í partí, mega þeir birta hana hér í athugasemdum.

1737-svhv1
Partímynd Egils

 


Skuldabaggi Hollendinga

Razzía gegn gyðingum 1942

Er hægt að kenna öllum Hollendingum um þá glæpi sem sumir Hollendingar, (ja, nokkur þúsund Hollendinga), frömdu í Síðari heimsstyrjöld? Nei. Það er heldur ekki hægt að kenna öllum Íslendingum um þá glæpi sem nokkrir Íslendingar frömdu í Hollandi í nafni Icesave, sjúklegrar íslenskrar sjálfsánægju og ofmetnaðs.  

Ég hef tekið eftir því að Hollendingar vilja ekki heyra sannleikann um sjálfa sig, frekar en sumir Íslendingar. Á fjölmörgum umræðusíðum, hollenskum, hef ég bent á hve skuld Hollendinga við gyðinga Hollands var seint greidd og af hverju Hollendingar greiddu ekki út eignir og innistæður gyðinga sem myrtir höfðu verið. Skuld Hollendinga verður vissulega aldrei greidd að fullu. 90% allra gyðinga í Hollandi voru myrt og áttu Hollendingar vissulega þátt í því, beint og óbeint. Þótt margir Hollendingar hafi hjálpað löndum sínum af gyðingatrú- eða ættum og jafnvel misst líf sitt vegna þess, voru þó flestir tilbúnir að líta til hliðar og jafnvel að hjálpa til við morð og ofsóknir á nágrönnum sínum. Í Hollandi var stærsti nasistaflokkurinn utan Þýskalands. Þetta var skrítið land. Jafnvel voru til fjölskyldur, þar sem menn, sem voru kvæntir gyðingakonum, voru einnig nasistar. Þeim var refsað fyrir það eftir stríð, jafnvel þó að þeir hefðu bjargað fjölskyldmeðlimum af gyðingættum. En þeir sem stunduðu skipulagt rán úr húsum og íbúðum gyðinga sem sendir höfðu verið til Westerbork, Vught, Amersfoort og víðar, og áfram í dauðann til Theresienstadt, Sobibor og Auschwitz, gengu margir hverjir níðingslega fram við samlanda sína.

Hrottaskapur í Vught
SS-liði og hollenskur lögreglumaður tuska fanga (gyðing?) til í fangabúðunum í Vught í Hollandi árið 1944. Já, slíkt gerðist ekki bara í Póllandi og Rússlandi. Myndin efst er frá 1942 og sýnir þýska hermenn og hollenska lögreglumenn að loka af hverfi í Amsterdam til að smala saman gyðingum.

 

Í dag er búið að heilaþvo Hollendinga og heiminn með Önnu litlu Frank. Það voru til þúsundir stúlkna eins og Anna Frank í Hollandi. Anna Frank friðþægir vonda samvisku Hollendinga. Hollendingar gleyma hins vegar Puls (Pulsen) vögnunum, frá fyrirtæki A. Puls, sem óku um götur Amsterdam og Haag og tæmdu íbúðir gyðinga sem sendir höfðu verið í búðir eða voru í felum, eftir að hollenska lögreglan var búin að leita það upp og stinga byssustingjum sínum í gegnum gólfin til að fullvissa sig að engin fæli sig í íbúðunum. Þá kom flutningafyrirtækið Puls sem tæmdi hús gyðinga.

Puls
Flutningafyrirtæki nasistans Abrahams Puls tæmdi íbúðir gyðinga í Hollandi

 

Hollendingar eru nú búnir að vera með Þjóðverjum lengi í ESB, en samt heldur Þýskaland hlífðarhendi yfir hollenska böðlinum Klaas Karel Faber sem gekk í raðir SS og myrti gyðinga og aðra í fangabúðunum Westerbork í Hollandi. Hvað gera Hollendingar til að fá hann framseldann? Lítið sem ekkert. Níðingurinn Faber lifir í vellystingum í ESB-Þýskalandi. Hvað gerir ESB til að lögsækja gyðingamorðingjann Klaas Karel Faber? Ekkert!

Í hvert sinn sem ég skrifa um þessa skuldseigu þjóð, Hollendinga, sem átti erfitt að borga skaðabætur fyrir þær eignir sem hollenska ríkið nældi sér í eftir að gyðingar höfðu verið myrtir, þá hefur athugasemdin ekki verið birt, eða fjarlægð á hollenskum rabbsíðum. Það var nefnilega þannig að Hollendingar byrjuðu ekki að greiða skuldir sínar aftur og skila eigum gyðinga, sem bankar höfðu tekið traustataki, fyrr en upp úr 1994, og það tók nokkur ár. Nóg var rausað og sumir stjórnarliðar vildu minnka upphæðina. Minnst af þeim greiðslum sem loks voru inntar af hendi fóru til þeirra sem lifðu af eða ættingja þeirra, mest í als kyns sjóði fyrir gyðingasöfnuðu í Hollandi, söfn, rannsóknarverkefni og þvíumlíkt.

130160-hi

 Gyðingabörn frá Hollandi, sem myrt voru í Helförinni. Þetta er ekki Anna Frank til hægri.

01338

 Gyðingum frá landsbyggðinni í Hollandi smalað í lestir til fangabúðanna í Westerbork.

Hollendingar eru annálaðir fyrir ráðsíu og jafnvel nísku. Það er jafnvel hægt að segja að um þjóðareinkenni sé að ræða. Ekki var laust við að hún kæmi í ljós þegar ríkisstjórn landsins, sem á síðustu 60 árum hefur oftast verið undir stjórn krata, ætti erfitt með að greiða skuld sína. Það tók þá 50 ár að hefja greiðslur. Ekki nóg með það, engin ríkisstjórn Hollands hefur nokkru sinni haft manndóm í sér til að koma með opinbera afsökunarbeiðni til gyðinga Hollands fyrir þá meðferð sem þeir fengu á stríðárunum og eftir stríð. Slíkan nánasahátt er vart hægt að finna annars staðar á byggðu bóli.

Það er alveg hægt, og ekki siðlaust að líkja Icesave skuldinni við skuld Hollendinga við gyðinga. En vert er að benda á tvennt: 90% gyðinga í Hollandi voru myrtar. Icesave varð víst engum, hollensku áhættufíklunum sem á eigin ábyrgð vildu setja fé sitt í hendur Icesave-glæpamannanna að bana. Icesave-bankamenn frá Íslandi voru í raun ekki ósvipaðir nasistum í hugsunarhætti. Flaskaðir upp á þeirri meinloku að Íslendingar væru bestir í heimi og gætu yfirstigið allt. Það er eina, sameiginlega synd margra Íslendinga, þetta helvítis ofmat á getu sína og hæfni.

Íslendingar eru fórnarlömb græðgi, ekki kapítalisma, heldur græðgi, sem ekki er flokksbundinn eiginleiki eins og menn sjá vonandi vel á Íslandi. Nú er hin venjulegi Íslendingur líka orðinn fórnarlamb taumlausrar græðgi okurlánara á Hollandi, sem sjálfir hafa aldrei gert almennilega upp við söguna og sína skuldunauta.

66085-hi

Setella Steinbach, sígaunastúlka frá Hollandi, á leið í dauðann. Þessi mynd var eitt sinn notuð af manni á Vestfjörðum á bloggi sínu til að lýsa eymd byggðarlags síns vegna kvótamála á Íslandi, og það var vel að merkja fyrir hrun. Hvernig ætli sé fyrir vestan nú?


Femínisti eða karlrembusvín í moldviðri?

Misuse your vote

Hér er komin heldur aum skýring frá Silju Báru Ómarsdóttur á aðgerðum hennar í þágu vinkonu sinnar í prófkjöri VG : http://siljabara.eyjan.is/2010/02/syndajatning-i-moldviri.html .

Greinilegt er, að pólítbýróið og efsta sovétið í VG eru búin að viðurkenna, að kosningar hjá þeim eru hlægilegur sirkus og á skjön við allar lýðræðishefðir í siðmenntuðum ríkjum. Þessi flokkur á meira skylt við eitthvað rotið bákn í Úkraínu eða Hvíta Rússlandi. En kemur þetta á óvart?

Silja og "stjórnmálasaumaklúbbur" VG telja sig hafa allt á hreinu. Gaman er að sjá, að EKTA femínisti eins og Silja Bára hafi þótt kosningarfyrikomulagið, sem hún lýsir á bloggi sínu, eðlilegt. 

Það svínslegasta er, að Silja dregur inn í málið stúdínu, sem greinilega ekki var nógu mikill kvenskörungur til að geta klára hjá Silju MA verkefni, sem hún byrjaði á fyrir 3-4 árum. Þá lét stúdínan sig hverfa. En allt í einu hringir Silja í hana og býður henni miða í sirkus VG.

Silja dregur  meira að segja inn í málið föður konunnar, sem Silja hefur ekki séð í 3-4 ár, (því vondir karlar eru alltaf á bak við allt). Hvað er kennari við HÍ að angra fyrrverandi nemanda sinn eftir 3-4 ár með símtali úr saumaklúbbi úti í bæ, (hugsanlega án þess að kynna málstaðinn sem hún berst fyrir), og bjóða heimsendingu kjöreðla í prófkjöri VG, líkt og þeir væru Dómínó pizza? Hér blandar háskólakennari hlutunum illa saman. Háskólakennarar eiga ekki að blanda saman áhugamálum í einkalífi sínu, stjórnmálastandi og viðskiptum við fyrrverandi nemendur sína. Það kemur málinu ekkert við, að konan sem Silja hringdi í, hafi byrjað á MA verkefni fyrir 3-4 árum og að Silja hafi ekki séð hana síðan! Silja skrifar hér eins og versta gerða af karlrembusvíni.

HÍ verður að taka á máli Silju. Kennari hringir ekki í fyrrverandi nemanda sinn og býður honum heimsendingu kjörseðils. Kennari greinir ekki síðan frá námsárangri nemanda sína á bloggi á Eyjunni vegna þess að stolt kennarans hefur lent í "moldviðri". Eina moldviðrið sem hefur geisað í þessu máli hefur komið úr svínastíu VG. Siðleysi vinstri manna er mikið og þeir eiga erfiðast allra með að viðurkenna galla sína.

Female chauvinist

Kjósa krakkar, ef þið viljið ekki falla

election_fraud

Ekki er öll vitleysan eins á Íslandi, eða kannski er hún það? Prófkjör VG ... Guð minn góður! Ef satt er, að Silja Bára Ómarsdóttir kennari í stjórnmálafræði við þá merku stofnun HÍ, Eyjubloggari og forfallinn upplýsingafíkill sé að bera kosningaseðla á nemendur sína, sem svo er skilað í kjörkassann hjá VG, þannig að Sóley Tómasdóttir vinkona Silju fær fyrsta sætið, þá er spillingin örugglega alíslenskt fyribæri.

Hvað gera nemendur Silju Báru, sem ekki vilja taka við kjörseðlum? Falla þeir á prófum? Eftir að hyllingar kommúnistaríkjanna féllu, virðast þeir sem heilluðust að veruleikafirringunni jafnvel hafa tekið upp þá spillingarsiði sem Austantjaldsríkin fyrrverandi eru orðin svo annáluð fyrir. 

Silja Bára stjórnálafræðingur getur auðvitað ekki haldið stöðu sinni við HÍ eftir svona lagað. Hún getur ekki kennt ungmennum um lýðræði, eðlilegt kosningarferli eða góða stjórnsýslu. Þetta er svo ósiðlegt hjá henni, ef satt er, að það nálgast eðli útrásasvínanna. Bókina á myndinni efst gæti hún kennt þangað til hún hættir.

Silja Báran Stök

Sérferð til helvítis

Berrassó, Beroddson og Allsber

Sumir velta því fyrir sér hvar PR-ið í leynifundi Jóhönnu Sigurðardóttur í Brussell var. Aðrir vita auðvitað, að Grána hefur ekkert vit á PR og flækist bara fyrir spunamönnum sínum. Við erum svo nokkur sem sjáum, að hún er heldur enginn pólitíkus, né embættismaður. Það leynir sér þó ekki að hún var eitt sinn mjög fær flugfreyja. Hún flaug hátt og seldi hanastél á Saga-Class. Síðan þá hefur hún byrlað ýmislegt, en nú síðast mest launráð. Það á ekki beint við hana, því hún er hreinskilin, en stundum of seint.

521774A
Outro escravo Islandes. Ela é um pouco apresentável. Ela so fala Islandês. O lance alto ?

 

Nú er flugið lægra og allt er orðið að stóru leyndarmáli, eins og öll hin firran og sukkið á Íslandi. Samkvæmt ríkisstjórninni eru Íslendingar ekki nógu greindir til að skilja samhengi hlutanna. Síðasta ferð Gránu gömlu var strictly private (leyndó) og varðaði fyrst og fremst það lausafé (bargeld) sem Hollendingar og Bretar segja að Íslenskir lygalaupar skuldi þeim. Svona svallferð í einkaerindum er auðvitað algjört prívatmál Samfylkingarinnar, sem aldrei fær náð fyrir augum Stórevrópu ef henni tekst ekki að ryðja skuldinni yfir á herðar almennings á Íslandi, meðan Össur og Co. græðir á tá og fingri í sukkinu, án þess að vita af hverju.

Þessi ferð Gránu var svo sannarlega einkaferð, til Helvítis, þangað sem hún ætlar þjóð sinn að enda. Einhvers staðar verða Össur og Guy Burgess auðvitað að fá vinnu, þegar Grána og þý hennar verða sett á nauðungaruppboð.

Kollega Jóhönnu, yfirbarþjónninn hjá ESB, Jose Manuel Berrassó, tók víst allranáðugast á móti Gránu gömlu, eftir að hún hafði sent fjórar beiðnir þar að lútandi. Berrassó kemur sem kunnugt er frá landi, þar sem konur sem búa með konum eru réttdræpar, eða nunnur. Honum er einnig hlýtt til DO (eins og myndin hér að ofan sýnir greinilega). Þess vegna vildi hann ekki í fyrstu láta mynda sig með hinni syndugu intendentende cabin da Ihla Islandia. En með hjálp túlks í stuttu pilsi mýktist allt viðhorf Berrassós til Íslands, og heimurinn, og sérstaklega Íslendingar það ómyndarpakk, fékk óskýra mynd af prívatferð Gránu gömlu, en aðeins ljósmynd.

Grána hefur örugglega getað gefið Berrassó góð ráð um hvernig hægt er að styðja við bakið á breskum og hollenskum eiturbyrlurum,  enda sérfræðingur í því. Í staðinn fyrir uppskriftirnar af frekar bitrum og  séríslenskum drykkjum eins og No Icesave  og Shaken and stirred, fékk Grána kokkteil Berrassós, First you pay, then you  pay again and again and again and again.


Goggað í Samfylkingar-Burgeis og forsetann

Black Adder in Himalaya

Smáfuglarnir og sérstaklega snjótittlingarnir á AMX, en einnig hvítir hrafnar HÍ eins og Hannes Hólmsteinn, munu örugglega ekki hætta skrifum sínum um tengsl forsetans og ýmissa framagosa í Samfylkingunni við hið nýja vísindahneyksli Himalayagate. Enda engin ástæða til þess. Öll loftslagsumræðan eru að mínu mati ekkert annað en ný auðtrúarbrögð, þar sem miklir peningar eru í húfi. Spekúlasjón í bráðnandi jöklum er gott dæmi um græðgisöldina, þar sem þeir „hreinu" segja að allt sé að bráðna, og þeir einir þéna á því í þokkabót. Vitleysingar eins og Íslendingar borga svo ólmir í kassa indverskra sjónhverfingavísinda, því þeir sækjast eftir hlutverki á meðal þjóðanna.

Einhverjir svartir sauðir, kollóttar ær og ruglaðar rollur frá Íslandi voru greinileg komnar á þá skoðun, að ísinn væri að bráðna á þaki heimsins, og þess vegna runnu tugir milljóna frá Íslandi eins leysingavatn út í sjó, vegna þess að einhver kaldur gæi sem heitir Burgeis, var á þeim brókunum að spandera og spreða kringum sig eins allir vinir hans í útrásinni gerðu. Eini munurinn var sá, að Burgeis tók peninganna beint úr ríkiskassanum. Hinir höfðu þó æruna og stálu þeim annars staðar og ætluðu ríkiskassanum að borga þetta síðar.

Þegar ég heyri orðið Himalaya, minnist ég ávallt Menntaskólans við Hamrahlíð, þegar Teitur heitinn Benediktsson latínukennarinn minn hélt skemmtilegasta fyrirlestur sem ég hef hlustað á um orðsifjafræði, etymólógíu, þar sem hann tengdi saman orð á íslensku gegnum flest aðaltungumál Evrópu, eða við frum-indóevrópsku, mál sem Teitur virtist vera meira en mellufær í. Svo bað hann okkur þrjá latínuláka sem vorum í fornmáladeild hjá honum, að skýra orðið Himalaya. Vöflur komu á okkur. En Ásgeir Erlingsson, sem var innfæddur Rómverji, sá að laya væri kannski eitthvað skylt sögninni að liggja. Teitur tók lítil hopp af gleði á pallinum uppi við töflu. Þar sem við vissum að H í upphafi orða á indóevrópsku varð oft orðið að  G-i í upphafi orða, gat ég mér til orðin Gimli og gimbur. Það leið næstum yfir Teit. En ég gat samt ekki á neinn hátt skýrt þessar tillögur mínar. Teitur fullvissaði okkur um að gimburlömbin hvítu væru af sama stofni og snjórinn á sanskrít (hima). Himalaya þýðir því einfaldlega:  Þar sem snjórinn (hima) liggur (laya). Þar heldur hann örugglega áfram að halda sig eftir 2035, þegar snjólaust átti að vera orðið á þaki veraldar, en hins vegar allt í rúst og skálmöld á hæðunum fyrir neðan, samkvæmt hugdettu einhvers óprúttins Indverja.

Er ekki öruggleg hægt að kalla Burgess burgeis á íslensku, eða breytist þetta nafn í kommísar hér norðurfrá? Ég hef enn áhuga á orðsifjafræðinni, eins og þið sjáið. Í eina tíð var maður sem hét Guy Burgess sem var njósnari. Við þurfum víst einn svoleiðis til að vita hvernig Burgess íslenski bruðlaði með fórnargjafir til Shiva.


Á flótta

  India 2010

Greinilegt er að flótti Íslendinga eru kominn í hámark vegna Icesave-skuldarinnar. Aldrei hafa fleiri Íslendingar flykkst úr landi ............. í sólarlandaferðir. Það er greinilega ekki kreppa hjá öllum, enda flestir Íslendingar ekki búnir að sjá botninn eins og hann er hjá okkur sem búum í ESB.

Fólk er kannski að flýta sér sem mest það má í þjóðargjaldþrotið, sem er kannski ekki alvitlaust, ef það er rétt sem hagfræðiprófessor á Íslandi segir: að Ísland sé enn eitt ríkasta land í heimi. Þangað til að hann segir eitthvað annað í boði ríkisstjórnarinnar í næstu viku.

Annar flótti sækir líka á suma Íslendinga. Það er veruleikaflótti. Menn fara undan í flæmingi þegar þeir eru spurðir um einföldustu hluti, eins og t.d. Steingrímur J. Sigurðsson ráðherra, sem hefur verið spurður hvað ráðherrar Norðurlandanna hafa eiginlega sagt við hann varðandi Icesave á síðustu tveimur vikum. Sigurður Líndal krefur Steingrím um svör við því sem fjármálaráðherrar Norðurlandanna hafa sagt. Steingrímur færist undan að svara, enda grunar mann að Steingrímur hafi engin svör á takteinum.  

Er Össur var spurður hvaða stórmenni  hann hefði guðað á til að milda álit manna á Íslandi, svaraði hann: Það mun koma í ljós. Er þetta ekki  flóttalegt svar?

Það eina sem er líkt með  þingi og þjóð er að menn eru á flótta.

Þið sem erum komin til vits og ára og sáuð Flóttamanninn, dr. Kimble, sem David Janssen lék svo listavel: Eru íslendingar ekki að verða eins konar saklausir flóttamenn í eigin landi í leit að einhenta morðingjanum og á flótta undan sjálfskipuðum sheriffum heimsbyggðarinnar?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband