Færsluflokkur: Bloggar
3.7.2007 | 13:40
Vér morðingjar
Síðastliðin ár hef ég oft rekist á fólk í öllum löndum, af öllum stéttum, sem talar og skrifar um sjálft sig sem morðingjana í Írak og sína miklu ábyrgð þar. Þetta fólk tekur að mínu mati allt of mikið á herðar sínar. Flestir aðrir eru samkvæmir mannlegu eðli og kenna bara Bush, Blair og já auðvitað Ísrael, um ástandið í Írak. Þeir sem borða hangikjöt bæta íslensku ríkisstjórninni við þuluna.
Ég er ekki með beina línu til Herrans, en ég get sagt við ykkur öll, sem hafið fínar taugar og mikla sektarkennd varðandi Írak: Þið eruð öll syndlaus, nema þegar þið akið full og þvíumlegt.
Þið eruð syndlaus, og þurfið ekki að syngja 30 Ave Maríur á leið úr skriftarstólnum, þótt nokkrir (allmargir), fleiri og fleiri læknar múslima endi læknaferil sinn með því að myrða sig í tilraun til að brjóta niður breska móral. Læknastéttin er svo sannarlega líka syndlaus, þó svo að nokkrir örvinglaðir læknar velji að eyðileggja líf sitt í eldhafi haturs og fordóma.
Blaðamenn bera alltaf mikla ábyrgð. Af Agli Helgasyni undanskildum. Þeir eru þó oftast ekki morðingjar. Sjáið Alan Johnston, hann talaði máli Hamas og hinna "kúguðu" í mörg ár. Nú er hann fangi þeirra (ekki lengur 4.7.2007). Blaðamenn eru vissulega líka saklausir. Ef til vill ekki eins saklausir og þú og ég, en saklausir samt.
Ég hef mikið skoðað fréttir í Evrópublöðunum eftir læknasprengjurnar á Bretlandseyjum. Margir blaðamenn áttu erfitt með sig. Sumir þeirra eru greinilega haldnir djúpri sektarkennd vegna veru vestrænna herja í Írak.
Blaðamaður Nyhedsavisen, sem er íslenskt blað í höndum frekar lélegra danskra blaðamanna, var greinilega enn ekki farinn að trúa því á sunndag að hryðjuverkalæknarnir væru múslimir af ýmsum uppruna. Í mánudagsblaðinu upplýsti hann: "Jagten på britiske terrorister fortsætter". Voru þetta breskir terroristar? Daginn eftir var blaðamaður Nyhedsavisns líklega búinn að fá lesningu yfir hausamótunum, því hann skýrir á bls. 29, þ.e.a.s. aftarlega í blaðinu, að "Arabískir læknar séu grunaðir um hryðjuverkatilraun". Og fyrirsögn fréttarinnar frá fyrri deginum um breska hryðjuverkamenn hefur verið breytt á netútgáfu Nyhedsavisens.
Óttalega er blaðamaðurinn Nis Kielgast hjá Nyhedsavisen nú einfaldur. Læknarnir voru ekki "arabískir". Það eina sem gæti verið samheiti fyrir þá eru "öfgafullir múslimir", kannski "Al Qaeda" og örugglega "Íslamistar" og það sem þeir framkvæmdu voru hryðjuverk. Þeir voru bara of lélegir í sprengjugerð. Þetta voru morðingjar, sem tókst sem betur fór ekki að drepa saklaust fólk.
Þið sem bara lesið The Guardian hafið fengið réttari mynd en oft áður. The Guardian er nokkuð laust við fordóma í garð "okkar sjálfra" í tengslum við þessi hryðjuverk. En the human ashtrey, háðfuglinn David Wilson, er með undarlega grein sem hann kallar "Medical Attention". Í henni getur hann ekki staðist mátið og verður að líkja sprengjulæknunum við morðingja í breskri læknastétt, t.d. fjöldamorðingjann Harold Shipman. Wilson kemst loks að þeirri niðurstöðu að breska heilbrigðiskerfið sé hættulegra en sprengjuóðu læknarnir. Blaðamenn eins og David Wilson eru sekir, sekir um lélega dómgreind.
Breskir háskólamenn settu nýlega Ísrael í sóttkví, (skoðið þessa stuttu kvikmynd), vilja ekkert við Ísraela saman að sælda. Greinilegt er að því er öðruvísi farið með sambandið við lækna frá múslimaríkjum, sem vilja drepa saklaust fólk á Bretlandseyjum.
Maður fær oft það sem maður biður um.
Bloggar | Breytt 4.7.2007 kl. 06:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.7.2007 | 17:23
The Guardian 1713
Ég þekki ýmsa menn, sem sækja mest af sínum sannleika í The Guardian. Mér þykir það hins vegar leiðinlegur og fordómafullur bleðill, fullur af barnalegu, bresku Ameríkanahatri og margir blaðamenn The Guardians eru mjög frelsaðir. Miðausturlönd eru þeirra sterka hlið, það er að segja þegar blaðið skítur Ísrael út. Margir blaðamenn, líka bloggarar, halda reyndar að þeir hafi sérstöku hlutverki að gegna meðal þjóðanna og fyrir heimsfriðinn. Því miður hafa of margir blaðamenn komist til valda og metorða, en bloggarar ættu ekki að gera sér neinar grillur. Við erum bara kjaftaskar, sem ybbum kjaft inn í einhverja vél sem sendir kjaftæðið á skerminn hjá öðrum kjaftöskum. Á meðan sprengja ofstækismenn sprengjur sínar hvar sem þeim sýnist.
Hvernig var þetta á Lundúnablaðinu The Guardian, (sem ekki má rugla við The Manchester Guardian sem er forfaðir The Guardians nútímans) mánudaginn þann 20. júlí árið 1713, fyrir tæpum 300 árum. Blaðið á ég í hirslum mínum. Þá skrifaði þar pistla maður sem kallaði sig Ironside. Þrælfyndinn eins og Bretum einum er lagið. Hann gerði fyrrnefndan dag grín af mönnum sem íhuguðu möguleikann á því að menn gætu flogið í framtíðinni. Hann nefnir til sögunnar biskupinn John Wilkins (biskup af Chester, sem uppi var 1614-1672):
"Bishop Wilkins was so confident of Success in it, that he says he does not question but in the next Age it will be as useful to hear a Man call for his Wings when he is going a Journey, as it is now to call for his Boots."
Wilkins biskup var greinilega nokkuð á undan sínum tíma, og jafnvel okkar. Eitthvað annað en afturhaldsseggurinn Ironside á The Guardian. Hann var bara eins og seinni tíma blaðamenn á The Guardian afturhaldstík, sem var á móti frjálslegri hugsun og framförum.
Blaðið, sem var tvær blaðsíður árið 1713 (menn þurfa ekki að byrja stórt), hafði einnig eftirfarandi auglýsingu (auglýsingar voru jafn nauðsynlegar þá eins og nú).
"Robert Norris, on Snow-Hill, having had many Years Experience and good Success in the Cure of Lunatics, is removed to the Pestle and Mortar neas the the middle of Hatton-Garden, where he hath a very convenient large House and Garden, Airy and fit on recieve Persons of the best Rank of either Sex, with suitable Attendance. Any Person applying themselves as above, may there be satisfied, that the Cure shall be industrially endeavoured (and by God's Blessing effected) on reasonable Terms".
Allt var greinilega vitlaust að gera á vitleysingahælinu í Hatton Garden, líklega vegna þess að menn lásu léleg blöð eins og The Guardian, og gátu hvorki bloggað né flogið eins og við.
Þið sem hafið flogið til London og þekkið Hatton Garden i London nútímans vel, vitið að þar er sannarlega allt á ferð og flugi og mikið selt af geimsteinum og gulli. Ætli verði líka sprengt þar í nafni Allah? Það verður máske hægt að lesa ritskoðaða greinagerð um það í The Guardian á morgun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2007 | 08:41
Hætt við dv.is?
Nýjustu upplýsingar PostDocs, danska hasarblaðsins (á blog.is) í stíl DV, herma, að hætt hafi verið við allt hjá Dv.is.
Generalprufan sem fannst á slides.com í gær er horfin og dv.is vill ekki láta neitt eftir sér hafa.
Talið er að netterroristar séu að verki. Það rannsakar PostDoc nú með hjálp Víkingasveitarinnar.
PostDoc hefur dregið verðlaun sín til dv.is til baka. "Svo óstöðug netsíða er engra verðlauna verð" segir ritstóri PostDocsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2007 | 15:22
"Sjálfstæðisflokkurinn eyðilagði húsið mitt"
Þetta er ekki húsið mitt, en ef þið klikkið á myndina í síðustu færslu minni hér að neðan, af nýju hönnuninni á DV.is, þá sjáið þið þessa yfirlýsingu efst á síðunni.
Það hefur örugglega gerst hjá einhverjum að Sjálfstæðisflokkurinn hefur eyðilagt húsin þeirra. Flokkar eiga það til að eyðileggja hús. Þetta er alþekkt.
Hið nýja dv.is (30.6.2007, kl. 9.38, að staðartíma í Kaupmannahöfn er búið að fjarlæga prufur DV.is af Slide.com) fær verðlaunapening Postdocsins fyrir spennandi, en gamlar fréttir. Verðlaunin sýna grimmd Sjálfstæðisflokksins eða einfaldlega fálka éta börnin sín.
Bloggar | Breytt 30.6.2007 kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.6.2007 | 11:36
www.dv.is
Ef einhverjir fara enn inn á http://www.dv.is/index.php er ekki mikið um að vera frekar en fyrri daginn. Sama gamla rauðtuggan.
en
hér hjá Guðmundi Magnússyni virðist svo sem verið sé að slá smiðshöggið á nýjan búning vef-DVs.
Nokkuð nett.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2007 | 14:30
Sönnunargagn frá 1699
Sigið músinni á myndina til að sjá hana betri og stærri.
Ýmsir Íslendingar gera sér þær grillu, að landamæri Ísraelríki sé til umræðu eins og þorskkvótinn á Íslandi. Maður fær oft á tilfinninguna að þessu fólki sé næst að halda að Ísraelsmenn eigi að yfirgefa land sitt og fara eitthvað út í buskann. Hvert skal halda? Til Madagaskar, Patagóníu eða Alaska, eins og fyrrum var stungið upp á? Þessi veruleikafirring hjá Íslendingum, sem vilja bjarga heimsfriðinum með því að minnka og skera niður Ísraelsríki, og jafnvel hjálpa til við eyðingu þess með Hamas, byggir á hatursveilu sem margir vinstri minn hafa þróað með sér. Ísraelsríki er fyrir marga eitthvað sem ber að hafa fyrirlitningu á líkt og á Bandaríkjunum. Þetta er eins og hjá heilaþvegnum lýðnum á miðöldum, sem fylgdu hatursdoktrínum kirkjunnar. Þótt að gyðingar væru ekki til staðar í sumum löndum, voru þeir samt innilega hataðir, fyrir morðið á Kristi og fyrir flest annað sem miður fór um álfuna.
Tillögur um að koma gyðingum burtu úr Evrópu eða Palestínu hafa verið margar, sumar meira að segja settar fram af gyðingum til að friðþægja lýðinn. En þetta er gömul lausn, sem er greinilega miklu eldri en þær tillögur um brottflutning gyðinga sem settar voru fram i kjölfarið á ("fræðilegu") bíólógísku gyðingahatri 19. aldar.
Ég á í fórum mínum gamalt dagblað frá 17. júlí árið 1699. Cornelis van Bynkershoek, útgefandi dagbleðilsins Nieuwe Oprechte Haegse Mercur, sem gefinn var út í den Haag í Hollandi, skrifaði þann dag á forsíðu blaðsins um óskir sínar um að losa sig við gyðinga til nýja landsins í vestri, Ameríku. Hann heldur því meðal annars fram að gyðingar sitji á fjórðungi allra eigna í Evrópu. Van Bynkershoek var mikils metinn lögfræðingur og dómari. Lögfræði er handverk sem greinilega getur ekki læknað gyðinghatur. Hér sjáið þið lesendur góðir, að hin siðmenntaða Evrópa var orðin til og gyðingahatrið var hluti af Evrópu árið 1699, og það í ríkasta landi álfunnar. Þá, eins og í dag, leystu menn vandamál sín og geðræna kvilla með því að reka gyðinga í burtu og kenna þeim um alla heimsins kvilla.
Hollendingar stæra sig oft af því að vera það ríki í Evrópu, sem fyrst gaf gyðingum borgararéttindi og trúfrelsi og halda þess vegna að þeir hafi verið betri við gyðinga en flestir aðrir. Gyðingar í Hollandi voru oft taldir vera óhemjuríkir. Það er stór mýta. Í lok 18. aldar voru 54% gyðinga undi fátækramörkum og árið 1840 voru 60% gyðinga undir fátækramörkum. Í byrjun 20. aldar var ástandið ekki miklu betra. Þá voru hinir annars velstæðu, gyðingar ættaðir úr Portúgal orðnir armari en þýskættaðir gyðingar.
Gyðingahatur hefur ekki farið fram hjá hinu frjálslynda Hollandi í lok 20. aldar. Á síðustu árum hefur skítkastið og hatrið komið jafnt frá fótboltabullum sem kalla Ajax gyðingalið, sem frá ungum marokkönskum múslimum, sem gera aðsúg að gyðingum á leið til samkunduhúsa. Það hef ég sjálfur upplifað árið 1975 í den Haag. Ég leyfi mér aftur að mæla með ritgerð eftir Manfred Gerstenfeld
Þrátt fyrir morðæðið gegn gyðingum i Evrópu fyrir 60 árum, er ekkert fararsnið á gyðingum frá Ísrael. Fáir eru á leið til Madagaskar, Úganda eða Patagóníu, enda er land þeirra ÍSRAEL og það verður ekki aftur tekið.
Bloggar | Breytt 29.6.2007 kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.6.2007 | 16:48
GRÍSLAND
Ísland er dauður grís með garnirnar úti, að minnsta kosti samkvæmt frönskum teiknara, sem teiknaði ástand Evrópu á "leiðrétt Evrópukort" árið 1876: L'EUROPE EN 1876, A LA PORTÉE DES GRANS ESPRITS, sem var til sölu hjá gyðingnum HEYMANN, á Rue du Croissant 15 í París fyrir 15 Cent. Teiknarinn var Yves & Barret Sc.
Ísland varð, sem sagt, að dauðu svíni í augum franska listamannsins, og er lýst á þennan hátt: ISLANDE: Ni situation, ni habitants. Sem útleggst getur: Hvorki ástand né íbúar.
Danmörk er teiknað eins og froskur á hausnum og skrifað stendur: Það er mjög slæmt ástand í Danmörku. Íbúarnir hafa þó ekki lélega siði. Um Grikkland skrifar gárunginn franski: Grikkland er án ástands. Íbúarnir eru fátækir, en grískir. Ekki eru Ítalir heldur hátt skrifaðir: Ástand Ítalíu er eins og stígvéls, sem bíður eftir því fyrir utan hótelherbergi að þjónn pússi það. Íbúarnir eru annaðhvort lassarónar eða ábótar. ... Mannasiðir og venjur:. Eftir að hafa étið fylli sína af makkaróní, hafa Ítalir fyrir sið á fara í gervi stígamanna til að eiga erindi við ferðamenn.
Frakkar eru, og hafa alltaf verið bestir, og ekki þorði gárungurinn annað en að lýsa þjóð sinni öðruvísi en svona: Það sem einkennir Frakkland er, Regla - Vinnusemi - Frelsi. Oui-oui!
Kort þetta, einblöðungur, sem er prentað á þunnan dagblaðapappír, átti Matthías Þórðarson þjóðminjavörður einu sinni. Þegar skjalasafn hans var skráð á Þjóðminjasafninu fyrir um það bil 15 árum var ákveðið að farga ýmsu úr því, sem ekki þótti ástæða til að geyma á Þjóðminjasafninu. Matthías safnaði öllu, t.d. öllum aðgöngumiðunum sínum í Tívolí til fjölda ára. Þeir var einnig meðal þess sem þjóðminjavörður ákvað að farga í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Matthías fékk líka mikið af rituðu máli frá háttsettum nasistum í Þýskalandi. Svo mikið var af þannig bleðlum í því sem Þjóðminjasafnið henti út á tveimur pöllum, að vart verður í framtíðinni hægt að sjá að Matthías hafi verið hallur undir hakakrossinn.
Þegar söfnunargleði Matthíasar var kastað á haugana var ég kominn með annan fótinn inn á Þjóðminjasafnið, og fékk leyfi þjóðminjavarðar í snarheitum að tína smáræði úr því "rusli", sem hent var úr geymslum Matthíasar Þórðarsonar, áður en því var hent inn í sendibíl. Meðal þess sem ég tók var dýrakortið (samanbrotið) á milli auglýsingaplakata úr Tívolí frá aldamótunum 1900. Kannski ætti ég að segja "dýra kortið".
Ef til vill hefði verið réttara hefði textinn á kortinu við Ísland verið: Hvorki ástand, íbúar, né menning.
Vive l'Islande
Bloggar | Breytt 15.6.2008 kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 18:53
Indónesía, fjölmennasta ríki múslima
Frændi minn (til vinstri) á Súrabaju ca 1935. Hjónin með börnin lentu í fangabúðum Japana.
Nýlega var haldin ráðstefna á eyjunni Bali í Indónesíu. Ráðstefnan var eins konar mótmælaráðstefna við ráðstefnur og sýningar þær sem haldnar hafa verið í Íran til að afneita helför gyðinga (Holocaust) í Annarri Heimsstyrjöld.
Samkvæmt tímaritinu The Jerusalem Report (9. júlí 2007, bls. 44) var fyrrverandi forseti fjölmennasta ríki múslima, Abdurrahman Wahid viðstaddur ráðstefnuna og hann viðurkenni alfarið að helförin hafi átt sér stað. Hann sagði við blaðamenn: "Þótt ég sé góður vinu Ahmedinejad, verð ég að segja að hann hefur rangt fyrir sér. Ég heimsótti safnið í Auschwitz og sá marga skó sem tilheyrt hafa fólki sem er dáið. Þess vegna, trúi ég því að Holocaust hafi átt sér stað."
Góð byrjun, og við getum vonað að fleiri í heimi múslima hætti að bendla gyðinga við helvíti og skilji einstaka vinstri menn á Íslandi eina á eftir með þær sjúku kenndir.
Ráðstefnan á Bali var haldin með þátttöku hindúa, búddista, kristinna, múslima og meira að segja rabbína. Gyðingdómur er ekki lengur viðurkennd trúarbrögð í Indónesíu og landið viðurkennir ekki tilvist Ísraelsríkis. Betur má ef duga skal!
Gyðingar voru þegar komnir til Indónesíu á 7. öld e. Kr., þ.e.a.s. 400 árum áður en Íslam hóf innreið sína á eyjurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 02:58
Er ekki nóg komið?
Barak í egypska dagblaðinu Al-Akhbar
Ég hef fengið nokkra gesti í heimsókn á bloggið mitt, sem eru miklir stuðningsmenn Palestínumanna. Ein helstu rök þessara manna eru samlíkingar þeirra á Ísraelsríki við Þýskaland nasismans.
Mig langar að benda þeim á að EUMC (European Monitoring Centre on Racism and Xenophobia) hefur sett ákveðna staðla á hvað gyðingahatur er. Samkvæmt reglum EUMC eru þessir tveir- þrír gestir mínir, sem sí og æ líkja Ísraelum og gerðum þeirra við nasista og óyndisverk þeirra, gyðingahatarar (rasistar). Síðast í fyrradag þegar ég birti opið bréf til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, kom einn af þessum gyðingahöturum í heimsókn.
Niðurstöður EUMC varðandi gyðingahatur sem tengist Ísrael eru þessar:
- Denying the Jewish people their right to self-determination, e.g., by claiming that the existence of a State of Israel is a racist endeavor.
- Applying double standards by requiring of it a behavior not expected or demanded of any other democratic nation.
- Using the symbols and images associated with classic anti-Semitism (e.g., claims of Jews killing Jesus or blood libel) to characterize Israel . . . .
- Drawing comparisons of contemporary Israeli policy to that of the Nazis.
- Holding Jews collectively responsible for actions of the state of Israel.
Bendi ég mönnum á að lesa þessa ágætu grein eftir Dr. Manfred Gerstenfeld til að fræðast um skilgreiningu EUMC á gyðingahatri.
Ef ég sé fleiri landa mína líkja Ísraelsríki við Hitler-Þýskaland, hef ég samband við EUMC, ECRI (European Commission against Racism and Intolerance) og SÞ og bið stofnanirnar að hafa samband við dómsmálaráðuneytið í Reykjavík til að biðja það að hefja viðeigandi ráðstafanir gegn gyðingahatri á opinberum vettvangi á Íslandi.
Vinsamlegast lesið dæmi um gyðingahatur, sem ég safnaði saman á einni kvöldstund í fyrra, hér til vinstri á síðunni eða hér
Bloggar | Breytt 27.6.2007 kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.6.2007 | 17:23
Opið bréf til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
Virðulegi ráðherra,
Það hefur ekki fari fram hjá neinum, að eitt af þínum hjartans málum er stjórnmálasamband við Palestínumenn, löglega kosna leiðtoga þjóðarinnar, bæði úr röðum Hamas og Fatah.
Nýlega hafa málin þróast þannig á Gazaströndinni, að Hamas, sem opinberlega hvetur til eyðingar Ísraelsríkis, hefur sagt sig úr lögum við hefðir þeirra manna sem kosnir eru í löglegum og lýðræðislegum kosningum, og hrakið þjóðkjörna leiðtoga Fatah í burtu frá Gazaströndinni. Nú eru í raun tvö ríki Palestínu, sem þú getur væntanlega ekki gert upp á milli.
Mig langar að biðja þig, þegar þú ferð til Gaza að beita þér í einu máli:
Á skjön við allar alþjóðareglur rændu liðsmenn Hamas ungum Ísraelsmanni, Gilat Schalit, inni í Ísrael fyrir réttu ári síðan. Tveir félagar hans voru myrtir. Honum hefur síðan verið haldið föngnum og notaður til að krefjast lausnar hundruða glæpamanna sem sitja í fangelsum Ísraels og annarra landa.
Þú hefur áður hvatt til þess að Íslendingar einangri þjóðir sem brjóta alþjóðasáttmála og sagt það vera siðferðilega skyldu Íslendinga að gera slíkt. Palestínska þjóðin kaus Hamas og hefur lagt blessun sína yfir mannrán á Ísraelsku yfirráðasvæði. Palestínska þjóðin kaus Hamas, sem hefur útrýmingu Ísraelsríkis á stefnuskrá sinni. Er ekki siðferðileg skylda þín að einangra Palestínumenn ef þeir gera ekki það sem þú biður þá um?
Virðulegi ráðherra, valdið er í hendi þinni. Þú kemur frá þjóð í norðri sem getur leyft sér að "einangra aðrar þjóðir siðferðislega".
Áður en þú situr heilu þjóðirnar í einangrun, væri á hinn bóginn mikill heiður af því fyrir Ísland, ef þér tækist að koma því verk, að hinn tvítugi Gilat Schalit yrði frelsaður og um leið komið Palestínumönnum í skilning um, að þeir nái engu fram með áframhaldandi árásum á saklausa borgara í Ísrael og annars staðar eða með stuðningi við hryðjuverk um heim allan.
Virðulegi ráðherra, ég hlakka til að sjá ferðaáætlun þína til Palestínu.
Virðingarfyllst
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Bloggar | Breytt 27.6.2007 kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 1352308
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 55
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007