Leita í fréttum mbl.is

Gýgurin Gígí

 Gýgurin Gigi

Jarðfræðingar hafa oft séð gíg í gígum. En hafa þeir séð gíga(i) í gýginni? Á hinum síðustu og verstu tímum femínismans, sem tröllríður öllu, er við hæfi að benda á, að í Eyjafjallajökli (Iforgottogetthejougurth upp á enska tungu), hvílir tröllskessa ein mikil, sem heitir Gígí (Gigi the Gigant á enska tungu). Trúa þeir sem trúa vilja.

Haraldur Sigurðsson, jarðfræðingur bloggsins, hvað segirðu nú?


mbl.is Nýr gígur kominn í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múhammeð gerir allt brjálað í South Park

Janoob Park 

Múhammeð spámanni brá fyrir í nýjustu gerð South Park teiknimyndaþáttarins. Tekið var tillit til þeirrar miklu leyndar sem hvílir yfir útliti hans og sérkennum. Þess vegna völdu aðstandendur South Park, sem eru vel menntaðir ungir menn a gyðingaættum, það ráð að bregða honum í bjarnarlíki. Múhameð kom því fram sem sætur bangsi, teddybjörn. Ekkert var auðvitað talið óeðlilegt við það. Áður höfðu komið fram í þættinum hann Jesús, Guð faðir hans, Móses frændi hans, Budda frá Indlandi, Fjandinn sjálfur úr Helvíti og aðrir guðir og boðarar þeirra, að minnsta kosti tveir páfar úr Rómi og jafnvel Kári í deCODE... Eða einhver sem líktist honum.  Jón Valur Jensson eða Davíð Oddson hafa þó ekki verið með í þættinum, og er það South Park vart til framdráttar.

Nú vill svo til, að Múhammeð í Bjarnarlíki er jafnmikill glæpur og Muhammeð sem smjörlíki, Múhammeð með bombu í túrbaninum eða rauðhærður Múhammeð sem ég hef einu sinni séð í teiknimyndaseríu. Allt slíkt guðlast við aðalútsendara Allah kallar á allsherjar Jíhatur, Sjaría, Napalm, Eyjafallajökull, og hvað það nú heitir. Öfgasamtök í New York, þar sem útsendarar Múhammeðs felldu tvo turna og 3000 manns í bræði út af einhverju sem þeim mislíkaði, boða nú skyndilegan dauðdaga fyrir aumingja drengina sem teikna og úthugsa South Park í frímínútunum. Fréttastofa Reuters gamla greinir frá því að nafn spámannsins hafi þegar verið fjarlægt úr þættinum.

Ég sé að Mogginn fer fínt í þetta og ætlar ekki að birta neinar myndir af böngsum á næstunni eins og oft áður, og Björn Bjarnason, sá gamli jæjatolli, er hættur að skrifa af hræðslu við að enda eins og van Gogh.

Nú veltur allt á Wikileaks. Wikileaks verður, með hjálp nokkra nothæfra idjóta á Íslandi, að birta það sem South Park hefur nú bíbað í burtu. Hvar ertu nú Birgitta? Hvernær kemur upphaflega gerðin af nýjasta þætti South Park um Múhammeð á Wikileaks? Við eigum rétt á því að vita allan sannleikann!! Hvað var sagt? Er Múhammeð bangsi?

Múhammeð spámanni hefur svo sem áður brugðið fyrir í South Park. Hvað eru menn að æsasasig?


EU über alles - aber noch nicht über 0,7% - Island

Þann 22. apríl lýsti Bundestag, þýska Sambandsþingið, blessun sinni yfir ESB-umsóknarbeiðni lesbíska forsætisráðherrans og líkþráa utanríkisráðherrans okkar (sjá hér). Greinin á vef Bundestag er ekkert minna en móðgun við lýðræðið á Íslandi.

Ég var þá nýkominn heim frá Berlin, og hefði ég vitað þetta hefði ég ef til vill kveikt í Reichstag. Eftir að ég skrifa þessi orð, fer ég líklega beint á hryðjuverkamannalista ESB eins og ýmsir íslenskir stjórnmálamenn, sem hafa lýst stuðningi við Hamas og önnur hryðjuverkasamtök. Verið er að undirbúa mál gegn þessum stjórnmálamönnum og öðrum Íslendingum, ef vera skyldi að Íslandi yrði potað inn í ESB-samkunduna án vilja meirihluta íslensku þjóðarinnar.

Smáþjóðir hafa áður verið troðnar í svaðið af Þjóðverjum með svokölluðum "viljayfirlýsingum". Yfirgangurinn í stóru ESB-þjóðunum er ófyrirleitinn og óhemjulegur. Þær leggja allan sinn þjóðernislega þunga í að pressa smáþjóðir. 

Græningjarnir og Die Linke (Die alte DDR-Kammeraten) sjá fram á mikilvægasta mál á þeirra heilum, hvalveiðibann, leysist með inngöngu Íslands í ESB. Hinir, sem enn eru ekki komnir úr grænu einkennis- og þjóðbúningunum, sjá fram á Ísland sem hluta af hernaðarlegri heild ESB. Í greininni á Bundestag stendur: Außerdem habe die EU auch ein strategisches Interesse: "Island ist das Tor zu Arktis, gerade mit Blick auf die dortigen Rohstoffe sollte die EU hier präsent sein". Þetta er haft eftir Dr. Andreas Schockenhoff, varaformanni þingflokkssambands CDU/CSU. Schockenhoff, sem er dr. í rómanistík, bætir svo þessu orðagasi við: Trotzdem müsse die Atlantikrepublik auch die politischen und wirtschaftlichen Kriterien für eine Aufnahme erfüllen. Island dürfe nicht nur aus finanziellen Gründen Mitglied werden. "Es muss auch die Grundidee einer immer tieferen Integration mittragen", forderte der Politiker.

ISLAND DÜRFE NICHT NUR AUS FINANZIELLEN GRÜNDEN MITGLIED WERDEN. Vonandi hefur sú lesbíska og sá líkþrái séð þetta og skilið. Ég skil hins vegar ekki alveg síðari setningu Scohkenhoff, sem virðist vera eintómt orðgas, en gas hefur áður verið notað til að drepa þjóðir. Kannski getur málaséníið Jóhanna sagt okkur hvað hvað það þýðir?

Es muss auch die Grundidee einer immer tieferen Integration mittragen??? Með 0,7 % atkvæðismátt í ESB, mun Ísland svo sannarlega bera þunga byrði sameiningar í ESB? Land og þjóð, sem hefur akkúrat ekkert að segja um framtíð sína í ESB, ber miklar byrðar á herðum sér.

Þó Þjóðverjar séu leiðir á því að vera Þjóðverjar og ungir Þjóðverjar vilji helst kalla sig ESB-borgara en ekki Þjóðverja, er það ekki vandi Íslendinga. Íslendingar ættu ekki að ímynda sér að þeir geti haldið í gömul þjóðernisgildi sín í ESB. Íslendingar missa alla sérstöðu sína sem þjóð, vegna vondrar samvisku Þjóðverja og óþols þeirra í eigin líkama.

Efst má sjá skoðun andhófsmannsins Vladimirs Bukovskys og neðst lofræðu góða um ESB, sem Hitler hefði örugglega diggað.


Refur komst í bleikt

Bleikur refur

Það slær alltaf óhug að manni þegar fréttir berast frá Finnlandi. Hér nægir að nefna nokkrar fyrirsagnir: "1500 manns með niðurgang eftir að hafa borðað of mikið af gölluðum Panda lakkrís", "1000 manns með harðlífi vegna þess að þeir hafa borðað of mikið Fazer súkkulaði", "hnífar á útsölu" og "14 með bráðaastma eftir sauna-maraþon í Tuurku".

Þessi nýjasta frétt frá Finnlandi um rebba, sem drap 16 flamingóa, er hins vegar upplífgandi. Til að halda bleika litnum á flamingóum er þeim gefið bleikt fóður, m.a. rækjuúrgang og annað bleikt. Eftir að hafa drepið og jafnvel étið eitthvað af bleiku illfygli, tel ég ótvírætt að rebbi hafi tekið gýfurlegum litabrigðum.

Samkvæmt fréttastofu Rauða Refsins, taldi rebbi sig hafa myrt í sjálfsvörn. Hann fann þefinn af kjúklingum en mætti "leggjalöngum, skrækjandi og flagrandi hommapútum", svo notuð séu hans eigin orð. Hvað getur refur gert við slíkar kringumstæður? - Æi, nú er best að hætta, annars fæ ég örugglega athugasemdir herskara reiðra, samkynhneigðra flamingóa það sem eftir er dags.


mbl.is Refurinn komst í feitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjum er ekki alltaf treystandi

Brown Dukwitz

Í dag er sorgardagur í Danmörku og Noregi. Menn minnast innrásar Þjóðverja, enda er enn góð ástæða til þess. Ein þjóðanna er í ESB. Nú eru 70 ár síðan að svínin þrömmuðu í land hjá nágrönnum okkar. Stríðið er líka enn erfiður biti að kyngja fyrir Dani, og það virðist vera langt er í það að þeir geti horfst í augu við allar staðreyndir, t.d. að þeir fóðruðu Wehrmacht, sáu drápsvél nasista fyrir mat og græddu vel á því. Nú ríkir sú skoðun á meðal margra danskra sagnfræðinga, að samvinnupólitík Dana hafi verið blessun og snilligáfa. Þeir sem ekki fylgja þeirri söguskoðun eru úthrópaðir sem móralistar. Það á víst við fólk eins og mig, og aðra sem flett hefur óvart eða skipulega ofan af skítverkum Dana í stríðinu.

Einn nasistinn, sem Danir hafa hafið til skýjanna í samvinnu við þýsk yfirvöld, var Georg Ferdinand Duckwitz. Hann var á sínum tíma heiðraður fyrir að hafa lekið upplýsingum um fyrirætlanir Þjóðverja með danska gyðinga til stjórnvalda í Danmörku í lok september 1943.

Vasabækur Duckwitz
Vasabækur G.F. Duckwitz

Lengi var ekki hægt að fá aðgang að skjölum um Duckwitz i utanríkisráðuneytinu í Þýskalandi. Aðeins einn danskur sagnfræðingur mátti vinna með efnið. Ég gat sýnt fram á einkennileg vinnubrögð þessa sagnfræðings. Ég barðist í nokkur ár fyrir því að fá að sjá skjöl um Duckwitz og með hjálp álþjóðlegra stofnana féllst þýska utanríkisráðuneytið loks á að leyfa mér að sjá hvað Duckwitz hafði skrifað. Sat ég í nokkra daga á skjalasafni utanríkisráðuneytisins í fyrrverandi Stasí-bíósal í Berlín haustið 2005 og rannsakaði undarlega dagbók hans, sem ég tel vera skrifaða löngu eftir stríð, og vasabækur hans sem menn vildu helst ekki láta frá sér. Lítið af því sem Duckwitz sjálfur sagði samtímamönnum sínum virðist vera rétt. Skýrsla um hann hjá útlendingaeftirliti ríkislögreglunnar í Danmörku skoðaði ég einnig fyrstur óbreyttra borgara. Þar kom margt í ljós, sem ekki var vitað áður og sem ekki passar við það sem Duckwitz og Krataráðherrar í Danmörku sögðu okkur um samvinnu þeirra í milli. Allt þetta getið þið lesið um hér ( í danska tímaritinu RAMBAM 15, 2006) og um leið æft ykkur í dönsku (greinin er væntanleg á ensku).

Í  dagbókina sína frá stríðsárunum, færði hann upplýsingar um tilræði gegn Hitler þann 19. júlí, daginn áður en tilræðið átti sér stað. Það verður að teljast vel af sér vikið.

Nazi Adlon
Hótel Adlon þegar foringinn var hetja Þýskalands

Eitt af því sem þessi vafasama hetja hélt fram eftir stríð, var að hann hefði verið í Kaupmannahöfn 9. maí 1940 og horft sorgmæddum augum á landa sína þramma um götur Kaupmannahafnar. Tárin virðast hafa runnið alla leið til Berlínar, því í vasabók hans frá 1940 kom í ljós, að Duckwitz sat á Hótel Adlon í Berlín þann 9. apríl 1940 og hitti ýmsar vænar konur á kvöldin og toppnasista á daginn. Hann skemmti sér konunglega og vart hefur verið nokkur tími til að fella tár fyrir dönsku þjóðina, þar sem hann skemmti sér með germönskum glæsikvendum á dýrasta hóteli Þýskalands. Spurningin er, hvort hann hefur ekki einfaldlega tekið þátt í undirbúningi innrásarinnar í Danmörku?

Hetjum er ekki alltaf treystandi. Myndin af Duckwitz efst er úr skrá þýska nasistaflokksins, þegar Duckwitz sótti um að gerast félagi í flokknum á unga aldri.


Bónusfeðgar opna verslun á Fimmvörðuhálsi

Bonusfell

Top Gear var á gosinu á Fimmvörðuhálsi í dag með jarðvísindamönnum og öðrum stjörnum. Ef þetta heldur svona áfram, hverfur fréttagúrkan algjörlega úr höndum fornleifafræðinga. Hverjum er ekki sama um nýtingu lands fyrir landnám, eða að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi verið skápshommi? ... Var hann þaaað?

Jóhannes í Bónus og Jón Ásgeir Smile opna í næstu viku verslun á Fimmvörðuhálsi. "Umferðin þarna er alveg brjáluð", sagði Jóhannes í dag og Jón Ásgeir tekur undir það. "Þetta er eins og Drive-Inn bío á miðjum Laugaveg" segir Jón.

"Ef þeir fá að opna Bónus á hálsinum kemur Sullabúð líka, og líka uppi á Heklu", segir Jón Kerald Sullenberger Bandit í viðtali við vísir.is

Allir eru sammála um að þetta sé hinn besti staður til að græða á daginn og til að verða grillaður á kvöldin.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja toll á eldgos og skatta á eldvirkni. Bresk blöð hafa þegar skrifað um femínístíska gosið í heiminum - þetta er hörkulesbískt gos í sleik við íkveikjufíkla. 


Er Kristinn Hrafnsson á röngu horni ?

Kristinn on the corner

Í fréttum Sjónvarps kl. 19.00 sl. mánudagskvöld stóð Kristinn Hrafnsson á horni í Bagdad. Hann sagði okkur, að þetta væri hornið sem skotið hafi verið við í júlí 2007. Þ.e.a.s. hornið sem sjáist í þeirri mynd, sem hann, Wikileaks og Birgitta Jónsdóttir birtu umheiminum um daginn, eftir að íslensk yfirvöld höfðu ofsótt þau - en svo sagði foringi Wikileaks.

Eftir nákvæma skoðun á myndbandinu læðist að manni sá grunur, að Kristinn Hrafnsson sé ekki við sama hornið og þyrluárásin í myndinni var gerð á. Við götuna, sem þar sem skotið var á menn, sem m.a. báru vopn, eru nokkur hlið. Yst (austast) við hornið, þar sem ljósmyndarinn kíkti til þyrlunnar er hlið, sem Kristinn Hrafnsson segist standa við. (Sjá myndina efst).Gate

Svona er hornið í myndinni sem lekið var. Ekki sýnist mér þetta vera sama hliðið eða hornið. Gæðin eru reyndar ekki góð í stolna myndbandinu. Þetta geta menn skoða og borið saman við hliðið sem Kristinn stóð við. Gæti verið að gæði myndbandsins séu ekki nógu góð til að útiloka, að t.d. vopn hafi verið munduð?

On the Corner Stóð Kristinn á þessu horni um daginn?

Still_11 

Reuter-Ljósmyndarinn sem var felldur á ferð með vopnuðum mönnum kíkir hér fyri hornið, nokkrum sekúndum fyrir hræðilegan dauða sinn. Því er haldið fram á Wikileaks.com, að hann hafi þarna myndað Hummer-jeppa bandaríska hersins, sem var staddur þarna í nágrenninu. Kunnugt er og frægt, að ljósmyndarar Reuters t.d. í Líbanon hafa falsað ljósmyndir. Síðasta myndin sem ljósmyndarinn tók við götuna sem Kristinn stóð við um daginn er ekki fölsuð, en næstsíðasta myndin í vélinni er ekki af Hummer.

Last photo Síðasta mynd Namir Noor-Eldeens

1 

Samkvæmt Wikileaks er þetta næstsíðasta ljósmynd Noor-Eldeens. Hvar var þessi mynd tekin? Hvaða rúða er þetta? Hvaða konur eru þetta og hvað eru þær að biðja ljósmyndarann um? Hvar er myndin af Hummernum sem haldið er fram að Noor-Eldeen hafi ljósmyndað? Samkvæmt Reuter var hann með tvær myndavélar, en Wikileaks talar aðeins um eina.

Spurningin sem óneitanlega leita á mann, er hvort einhverjir fleiri séu á röngu horni í þessu máli, eða er Kristinn Hrafnsson bara rangur maður á röngum stað, sem hefur tekið rangan vinkil? Kannski hefur eigandi hliðsins á horninu skipt því út nýlega? Þá er ástandið ekki alslæmt í Bagdad. Mér finnst undarlegur munur á hliðinu í sjónvarpsfréttinni og hliðinu á horninu í austurhluta Bagdad. Afsakið fyrirfram að ég leyfi mér að gera það og spyrja allra þessara spurninga.

Kristinn skýrir þetta kannski fyrir okkur í Kastljósi í kvöld.

Viðbót 8/4: Auðvitað var Kristinn á réttum stað. Menn geta líka lesið bloggið Errata Security eftir Robert Graham, sem ég er hjartanlega sammála.

Í Kastljósi í gærspurði aðstoðarmaður bróður bílstjórans sem átti börnin sem lifðu af, hvort bróðir hans væri einn af vopnuðu mönnunum. Það eru víst fleiri en ég sem sjá vopnaða menn ... Aðstoðarmaður Kristins, Ali, spurði drenginn nærgöngulla spurninga um hvað faðir hans var að gera á svæðinu. Er ekki búið að segja okkur það? Hann var að hjálpa.  Af hverju er verið að pína drenginn meira en nauðsynlegt er?  Menn gætu hins vegar spurt, af hverju faðir hans var í hvítum slopp? Er það einkennisbúningur leigubílstjóra í Bagdad?

Ég tók eftir því, að haldið var fram af Kristni, að litla stúlkan sem var í bílnum hafi sprengjubrot í höfðinu. Íslenski læknirinn, sem spurður var álits, greindi ekki frá þessu sprengjubroti í höfði barnsins, þegar hann hafði lesið læknaskýrslur. Allur heimurinn er hins vegar búinn að fá að vita með hjálp RúV og Wikileaks, að barnið hafi sprengjubrot í höfðinu. Er ekki betra að fara rétt með Kristinn Hrafnsson, í stað þess að búa til drama í stað frétta?

Og hvernig hefði verið að Kristinn og Wikileaks hefði leyft fólki að sjá skýrslu Bandaríkjahers.

blog-collateral2  

Óbreyttir borgarar með vopn? Kannski eru þetta kústar, eða menn með þrjár fætur, eða langmyndavélar eða borkjarnar úr Grænlandsjökli?

HVERNIG VÆRI EF WIKILEAKS og RÚV SÖFNUÐU PENINGUM TIL STYRKTAR BÖRNUM SENDIBÍLSTJÓRANS Í BAGDAD?


A Holy Bridget Jones Co-production

 

Hörmulegir atburðir, sem gerðust árið 2007, sjást á myndbandi, sem nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í að "framleiða" fyrir Wikileaks, samtök sem fyrir hátíðir taldi og hélt fram um allan heim, að íslensk yfirvöld væru að ofsækja þau.

Birgitta Jónsdóttir, sem notar tíma sinn í kreppunni á Alþingi til að vera vikastelpa fyrir Wikileaks, vill nú knýja fram afsökunarbeiðni Alþingis til írösku þjóðarinnar. En hvað gerði Ísland er Saddam og synir hans brytjuðu niður þjóðir þær sem búa í Írak? Hvar er afsökunarbeiðni heilögu Birgittu til Kúrdanna í Halabja fyrir að hafa ekki stutt þá sem steyptu fjöldamorðingjanum Saddam Hussein af stóli?

Myndin, sem Wikileaks lak í gær, sýnir m.a. tvo eða þrjá unga menn með vopn, skjálfvirka AK-47 riffla og hugsanlega hlaðnar RPG-7 sprengivörpur. Því er frekar langsótt, að halda því fram að þyrluskyttan og áhafnir tveggja þyrla hafi verið að fremja stríðsglæpi. Þeir gátu tæknilega séð orðið fyrir skoti áður en þeir skutu sjálif. Ekki er verið að greina frá því að mennirnir með vopnin voru liðsmenn Maehdi-hers Moqtada al Sadr. Myndbandið úr þyrlunni er frá því að leitaraðgerð bandaríska hersins að þeim stóð yfir í Adamiyah hverfinu í Bagdad.

Wikileaks túlkar þetta svona: It appears that a man in this frame is holding something that might be a weapon. He however never appears to mount it or show any attempts to use it.

RpG7
Sprengjuvarpa á svæðinu?

Gæti verið að flugmenn þyrlu bandaríska hersins hafi orðið fljótari til en mennirnir með sprengjuvörpuna?

Framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi gaf sér það í Kastljósi RÚV í gær, að þyrluflugmennirnir hafi séð að börn voru í bláa sendibílnum áður en þeir skutu á bílinn. Amnesty International er vonandi eftir að sanna það. Það var greinilega ekki fyrr en börnin eru tekin særð út úr bílunum, að þeir gera sér grein fyrir því. Flugmennirnir ályktuðu og gáfu sér hluti á svipaðan hátt og fólk sem vinnur fyrir Wikileaks og RÚV gefur sér og ályktar, enda er það fólk líka í stríði, en stundum er erfitt að sjá við hvern eða fyrir hvaða málstað.

Börnin, sem lifðu árásina af, áttu föður, sem bar greinilega litla virðingu fyrir lífi þeirra. Þó svo að hans eina ætlunarverk hafi verið að bjarga tveimur blaðamönnum (sem voru á eigin ábyrgð á svæðinu), þá fer enginn faðir með tvö börn inn á svæði, þar sem skothríð hefur átt sér stað. Eðlilegur faðir fer með börnin í burtu frá slíkum stað og það í miklum flýti. En ekkert er eðlilegt i Írak og það geta menn sem heimta afsakanir í sífellu skrifað á reikning Saddams.

Myndbandið frá WikipLeaks lætur engan mann ósnortinn. En nokkrar geðveikar og/eða hræddar bandarískar þyrluskyttur eru ekki allur bandaríski herinn, og síðan 2007 hefur löglega kosin stjórn í Írak beðið Bandaríkjaher og aðra heri að vera áfram í Írak. Þar ríkir skálmöld, sem ekkert hefur með veru Bandaríkjanna eða annarra herja í landinu að gera.  Vandi Íraks og fjölda annarra þjóða á þessum slóðum eru ekki Bandaríkin eða stjórnmálamenn á Íslandi, sem tóku þátt í að fjarlægja einn versta níðing heimsbyggðarinnar síðan Hitler var og hét. 


Sonardóttir Svanfríðar Torfadóttur á leið til Kína

Hafrún Edvards
 

Það er ekki lengur óalgengt, að íslenskar píur verði módel í Asíu. En þegar sonardóttir Svanfríðar Torfadóttur fer til að sitja fyrir í Kína verður uppi fótur og sundfit.

Fjölskylda hennar vill ekki að hún leggi land undir sporð og telur sig græða miklu meira á henni við fyrirsætustörf í Kaupmannahöfn.

Margir Íslendingar hafa lengi vitað það sem flestir Danir vita ekki, að Litla Hafmeyjan á steininum við Löngulínu í Kaupmannahöfn er alíslensk í aðra ættina, þ.e. í móðurættina, sem oftast er talin öruggari en hin ættin. Hafmeyjuna frægu í Kaupmannahöfn skóp Edvard Erikssen, sonur Svanfríðar Torfadóttur Magnússonar prests á Brekku í Langadal við Djúp og fjórðu konu hans sem ég man ekki hvað hét. Faðir Edvards var bara einhver ómerkilegur skóari í Kaupmannahöfn.

Edvard Andersen 

Íslenski myndhöggvarinn Edvard Eriksen Svanfríðarson. Hárgreiðslan er eftir Brósa.

Margir Danir vilja alls ekki meðtaka ættfærslu þessa, eins örugg og hún er, eða heyra að Bertil Thorvaldsen hafi átt íslenskan pabba. Hefur komið til handalögmála á milli Íslendinga og Dana út af deilum um faðerni hafmeyjunnar á Löngulínu. Annálaður Íslendingur, sem eitt sinn var handtekinn ásamt Færeyingi, þar sem þeir voru ofurölvi að fleygja reiðhjólum í Holmens Kanal, mun einnig hafa komið að slagsmálum í Nýhöfn, þar sem Dani nokkur var nefbrotinn vegna deilu um móðerni Edvards Eriksens. Nýlega börðust menn á Biennalinu í Feneyjum vegna deilna um þjóðerni Ólafs Elíassonar. Íslenskur nýlystamaður hélt kverkartaki á dönskum málara og öskraði á Ólaf sem þar var staddur, „sýndu honum að þú ert Íslendingur ... segðu eitthvað á íslensku Óli". Ólafur svaraði „hva‘ ska jeg si‘?"

Danir sakna Hafrúnar Edvardsdóttur, og í gær voru lesendur Politiken látnir hlaupa apríl, þegar blaðið hélt því fram að beinagrind hennar hefði verið komið fyrir á Löngulínu, meðan hún verður í Kína. 

havfrue_430000y

Ítarefni um Hafrúnu Edvardstóttur má finna í skemmtilegri grein Elínar Pálmadóttur í Lesbók Morgunblaðsins frá 1986. Betri ættfærslu á Svarfríði, móður Edvards Eriksens, er að finna í Velvakanda í Morgunblaðinu árið 1990 í svari til Péturs heitins Péturssonar fræðaþuls, og áður en  hafmeyjan á pollinum í Reykjavík var sprengd í loft upp um áramótin 1960, varð Vilmundi Landlækni umhugsað um blóðblöndun íslenskrar snilli í Frjálsri Þjóð. Litla Hafmeyjan er á leið til Kína, þar sem hún verður sett upp í sundlaug fullri af fúlu vatni úr Kaupmannahafnarhöfn.

Ætli Kínverjar viti að Hafrún sé íslensk í aðra ættina frekar en hina?


Iceland, the greatest Smorgasbord ever

Smorgasbord
 

Eitt sinn var til forláta veitingastaður á Broadway í New York, þangað sem norrænir menn og aðrir streymdu til að fá eitt annálaðasta Smorgasbord (Smörgåsbord/Smørrebrødsbord) sem sögur fara af.  Staðurinn bar auðvitað nafnið ICELAND, hafði 3 show á hverju kvöldi og tvær hljómsveitir. Ekki var ýkt þegar því var haldið fram, að þetta væri stærsti næturklúbbur á Broadway.

Þarna var svaka bar, og í miðjum salnum blakti fáni Fullveldisins Íslands, og síðar lýðveldisins, yfir öllum herlegheitunum.

Iceland Broadway

Nýlega rakst ég á þessa auglýsingu í einu blaði Dana í Bandaríkjunum í síðara stríði, sem hét Nordlyset, og vildi ég vita hvernig stóð á því að veitingastaður á Broadway státaði af þessu fallega nafni. Ég er engu nær um eigendur, en ég veit að Michael Larsen, danskur maður, rak staðinn.

Bar Iceland
Barinn á Iceland

Nú er Iceland ekki lengur merkilegt land, og ekki þykir einu sinni ástæða að hafa almennilegan bandarískan ambassador á Íslandi. Smorgasbordið er ekki lengur það sem stjörnurnar á Broadway sóttu í, en líklegt tel ég þó að Harrison Ford myndi hafa þótt barinn á Iceland gjaldgengur. Hann er nú líka svo gamall, að hugsast gæti að hann hafi jafnvel setið þarna og borðað heilt smorgasbord.

Ef einhver man eftir þessum stað og getur deilt með okkur minningunum, eru þeir velkomnir að setja hér inn athugasemdir. Einhvern veginn hef ég þó á tilfinningunni, að ég hafi misst af þeirri kynslóð. Nú er það sushi og eitthvað enn fínna sem fær fólk til að dansa.

Fróðir menn telja að orðið smorgasm hafi orðið til þarna á 680 Broadway. Nú heitir þessi staður ROSELAND. Væri það ekki ágætt nafn í stað Íslands eftir allsherjargjaldþrot?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband