Leita í fréttum mbl.is

Sonardóttir Svanfríđar Torfadóttur á leiđ til Kína

Hafrún Edvards
 

Ţađ er ekki lengur óalgengt, ađ íslenskar píur verđi módel í Asíu. En ţegar sonardóttir Svanfríđar Torfadóttur fer til ađ sitja fyrir í Kína verđur uppi fótur og sundfit.

Fjölskylda hennar vill ekki ađ hún leggi land undir sporđ og telur sig grćđa miklu meira á henni viđ fyrirsćtustörf í Kaupmannahöfn.

Margir Íslendingar hafa lengi vitađ ţađ sem flestir Danir vita ekki, ađ Litla Hafmeyjan á steininum viđ Löngulínu í Kaupmannahöfn er alíslensk í ađra ćttina, ţ.e. í móđurćttina, sem oftast er talin öruggari en hin ćttin. Hafmeyjuna frćgu í Kaupmannahöfn skóp Edvard Erikssen, sonur Svanfríđar Torfadóttur Magnússonar prests á Brekku í Langadal viđ Djúp og fjórđu konu hans sem ég man ekki hvađ hét. Fađir Edvards var bara einhver ómerkilegur skóari í Kaupmannahöfn.

Edvard Andersen 

Íslenski myndhöggvarinn Edvard Eriksen Svanfríđarson. Hárgreiđslan er eftir Brósa.

Margir Danir vilja alls ekki međtaka ćttfćrslu ţessa, eins örugg og hún er, eđa heyra ađ Bertil Thorvaldsen hafi átt íslenskan pabba. Hefur komiđ til handalögmála á milli Íslendinga og Dana út af deilum um fađerni hafmeyjunnar á Löngulínu. Annálađur Íslendingur, sem eitt sinn var handtekinn ásamt Fćreyingi, ţar sem ţeir voru ofurölvi ađ fleygja reiđhjólum í Holmens Kanal, mun einnig hafa komiđ ađ slagsmálum í Nýhöfn, ţar sem Dani nokkur var nefbrotinn vegna deilu um móđerni Edvards Eriksens. Nýlega börđust menn á Biennalinu í Feneyjum vegna deilna um ţjóđerni Ólafs Elíassonar. Íslenskur nýlystamađur hélt kverkartaki á dönskum málara og öskrađi á Ólaf sem ţar var staddur, „sýndu honum ađ ţú ert Íslendingur ... segđu eitthvađ á íslensku Óli". Ólafur svarađi „hva‘ ska jeg si‘?"

Danir sakna Hafrúnar Edvardsdóttur, og í gćr voru lesendur Politiken látnir hlaupa apríl, ţegar blađiđ hélt ţví fram ađ beinagrind hennar hefđi veriđ komiđ fyrir á Löngulínu, međan hún verđur í Kína. 

havfrue_430000y

Ítarefni um Hafrúnu Edvardstóttur má finna í skemmtilegri grein Elínar Pálmadóttur í Lesbók Morgunblađsins frá 1986. Betri ćttfćrslu á Svarfríđi, móđur Edvards Eriksens, er ađ finna í Velvakanda í Morgunblađinu áriđ 1990 í svari til Péturs heitins Péturssonar frćđaţuls, og áđur en  hafmeyjan á pollinum í Reykjavík var sprengd í loft upp um áramótin 1960, varđ Vilmundi Landlćkni umhugsađ um blóđblöndun íslenskrar snilli í Frjálsri Ţjóđ. Litla Hafmeyjan er á leiđ til Kína, ţar sem hún verđur sett upp í sundlaug fullri af fúlu vatni úr Kaupmannahafnarhöfn.

Ćtli Kínverjar viti ađ Hafrún sé íslensk í ađra ćttina frekar en hina?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Aldrei komst upp hverjir sprengdu hafmeyjuna í Tjörninni. Ég er viss um ađ ţađ hafa veriđ menn sem áttu eitthvađ undir sér.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 4.4.2010 kl. 00:27

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég heimta ađ ţeir sem sprengdu hafmeyjuna biđjist afsökunar, ţó svo ađ hafmeyjan hafi veriđ afar lítil list ađ mínu mati.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.4.2010 kl. 06:17

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband