Leita í fréttum mbl.is

Refur komst í bleikt

Bleikur refur

Það slær alltaf óhug að manni þegar fréttir berast frá Finnlandi. Hér nægir að nefna nokkrar fyrirsagnir: "1500 manns með niðurgang eftir að hafa borðað of mikið af gölluðum Panda lakkrís", "1000 manns með harðlífi vegna þess að þeir hafa borðað of mikið Fazer súkkulaði", "hnífar á útsölu" og "14 með bráðaastma eftir sauna-maraþon í Tuurku".

Þessi nýjasta frétt frá Finnlandi um rebba, sem drap 16 flamingóa, er hins vegar upplífgandi. Til að halda bleika litnum á flamingóum er þeim gefið bleikt fóður, m.a. rækjuúrgang og annað bleikt. Eftir að hafa drepið og jafnvel étið eitthvað af bleiku illfygli, tel ég ótvírætt að rebbi hafi tekið gýfurlegum litabrigðum.

Samkvæmt fréttastofu Rauða Refsins, taldi rebbi sig hafa myrt í sjálfsvörn. Hann fann þefinn af kjúklingum en mætti "leggjalöngum, skrækjandi og flagrandi hommapútum", svo notuð séu hans eigin orð. Hvað getur refur gert við slíkar kringumstæður? - Æi, nú er best að hætta, annars fæ ég örugglega athugasemdir herskara reiðra, samkynhneigðra flamingóa það sem eftir er dags.


mbl.is Refurinn komst í feitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Reiðu flamingóarnir eru örugglega ekki vaknaðir, svo þú getur hallað þér aftur á koddann framyfir hádegi.

Ragnhildur Kolka, 11.4.2010 kl. 09:13

2 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Haaa skemtilegur lestur.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 11.4.2010 kl. 13:59

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað er annars að frétta af Jahve gamla? Er hann ern? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.4.2010 kl. 14:05

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er þetta tekið af Fox news?

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2010 kl. 16:35

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ragnhildur, þú hefur hrætt alla flamingóa í burtu. Ég er þér ævinlega þakklátur.

Sigurbjörg, viele Küsse, en þetta er reyndar bölvað rugl sett saman á óguðlegum tíma í algjöru óráði, enda bý ég í ESB landi.

Siggi, gott að þú ert ekki of upptekinn í að granda páfanum og hafir smá tíma hér á þessu guðlega bloggi. Því er að svara um Jahve, Siggi, að hann er bæði ern og hefur aldrei verið sterkari og erfiðari þjóð sinni. Hann verður ekki bældur niður eins og hinn kristni Gvöð, þótt einstakir musterisþjónar hans níðist á börnum. Það er víst engin sæla að vera barnaníðungur og rabbí. Slíkir karakterar eru ofsóttir til enda jarðarinnar og þar troðið í Gehenna. Milljarður þjóna svo hinum þriðja Stórguði, honum Allan, sem er svo vinsæll á fréttastofu RúV. Þessi fólksfjöldi telur það fínt að spámaðurinn, hvers minning sé ávallt blessuð, hafi gifst 6 ára stúlku. Eru nógu mörg fangelsi í Englandi til að halda fólki inni fyrir að leggja blessun á slíkt óeðli og barnaníð? Eru til nógu mörg tugthús fyrir alla Íslendinga, sem troða súkkulaðieggjum í börn sín meðan þau eru látinn horfa á hálfnakinn gyðingsræfil á krossi. Slíkt myndi Jahve aldrei láta viðgangast, aldrei. Hrakin börn Jahve minnast þess hvernig forfeður Houdinis, Copperfields og Uri Gellers léku á Faraó og hvernig Davíð lét umskera Filisteana.

Já, trúarbrögð veita okkur skemmtan og sálustyrk. En af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá. Sum trúarbragðanna eru einfaldlega betri en önnur, og ég held Siggi, að það sé farið að renna upp fyrir þér. Þú sérð hvað er gert við perverta í Gamla Testamentinu?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.4.2010 kl. 16:47

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er farinn að gleyma en endilega segðu mér hvað er gert við perverta í Gamla testamentinu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.4.2010 kl. 19:23

7 identicon

Ég er nú á því að trúarbrögð líkist mest brögðum í fjölbragðaglímu. Sem mér finnst ljót sjón og leið. Þó skyldi ég horfa ef þeir mættu í hringinn Jahve gamli og Allan (já, veri hann ævinlega sæll) og tækju eina rimmu. En halda með hvorugum. Onei.

Ósmekklegasta musteri trúar sem ég hef nokkru sinni séð var guðahús kaódista í Tælandi. Þar trónaði svastika á turntoppi. Þó ríkti friður inni fyrir, þrátt fyrir að alls kyns óskapnaði ægði saman. Mér hlýnaði um hjartarætur við að sjá að hálfnakti gyðingsræfillinn á krosstrénu hafði verið skreyttur með blikkandi ljósaseríu og blikkaði hann auðvitað til baka, enda er hann gamall kunningi. Það var eitthvað næstum því íslenskt og þó sérstaklega Reykjavíkurlegt við þetta ornament. Samt voru ekki jól.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 23:38

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki er það nú alveg samkvæmt bókinni að áar þínir og Gellers hafi snúið á faraóinn.  Það var almættið alsjáandi, sem kaus að herða hug hans gegn þeim í stað þess að mýkja hann, sem hefði verið ennþá þrifalegra. Fyrir það fékk hann tækifæri til að murka lífið úr öllum frumburðum dýra og manna í landinu nema náttla þeirra sem voru í klíkunni.´  (Hafði raunar drepið allan búfénað tvisvar áður í plágunum á undan).

Hann var þó eitthvað glámskyggn þann daginn, svo hann varð að láta áana merkja hjá sér dyrastafina með lambsblóði til að hann tæki nú ekki feil á morðrúntinum.

Merkilegast finnst mér að þessir þjáðu þrælar skyldu eiga dyrastafi og lömb, og líklegast hurð og hús, sem voru ekki greinanlegri en svo frá húsum kvalaranna að það þurfti að merkja þá sérstaklega svo hann gæti skippað yfir þær.  Hvað hét nú hátíðin Yom Skippúr?

Úr þessum lúxus flúðu svo menn í 40 ára auðnargöngu, þar sem almættið algóða gerði allt sem í hans valdi stóð til að gera lífið sem líkast helvíti á jörð, en áarnir lofuðu hann þó fyrir miskun hans þegar hann ákvað að hætta við plágur og pyntingar ef menn lofuðu hann og prísuðu nógu mikið. Alltaf verið svolítið hégómlegur kallinn.

Held að það hefði verið betra að hann hefði haldið sig til hles eins og hann gerði í 34 milljarða ára fram að þessu, þegar hann fann það skyndilega hjá sér að hjálpa nokkrum hræðum óumbeðið til að flytjast úr 3 herbergjum og eldhúsi í hella í gróðurlausu klungri án nokkurra landgæða. Jafnvel uppgötvaðist síðar að þetta er eini flekkurinn á öllu svæðinu sem ekki hefur dropa af olíu í jörðu. Innflutt blý er þó þarna nóg í jörðu að mér skilst.

Þetta meikar allt fullkominn sens er það ekki?

Jón Steinar Ragnarsson, 12.4.2010 kl. 02:50

9 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvur skrambinn, er ég svona skelfileg?

Ragnhildur Kolka, 14.4.2010 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband