Leita í fréttum mbl.is

A Holy Bridget Jones Co-production

 

Hörmulegir atburðir, sem gerðust árið 2007, sjást á myndbandi, sem nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í að "framleiða" fyrir Wikileaks, samtök sem fyrir hátíðir taldi og hélt fram um allan heim, að íslensk yfirvöld væru að ofsækja þau.

Birgitta Jónsdóttir, sem notar tíma sinn í kreppunni á Alþingi til að vera vikastelpa fyrir Wikileaks, vill nú knýja fram afsökunarbeiðni Alþingis til írösku þjóðarinnar. En hvað gerði Ísland er Saddam og synir hans brytjuðu niður þjóðir þær sem búa í Írak? Hvar er afsökunarbeiðni heilögu Birgittu til Kúrdanna í Halabja fyrir að hafa ekki stutt þá sem steyptu fjöldamorðingjanum Saddam Hussein af stóli?

Myndin, sem Wikileaks lak í gær, sýnir m.a. tvo eða þrjá unga menn með vopn, skjálfvirka AK-47 riffla og hugsanlega hlaðnar RPG-7 sprengivörpur. Því er frekar langsótt, að halda því fram að þyrluskyttan og áhafnir tveggja þyrla hafi verið að fremja stríðsglæpi. Þeir gátu tæknilega séð orðið fyrir skoti áður en þeir skutu sjálif. Ekki er verið að greina frá því að mennirnir með vopnin voru liðsmenn Maehdi-hers Moqtada al Sadr. Myndbandið úr þyrlunni er frá því að leitaraðgerð bandaríska hersins að þeim stóð yfir í Adamiyah hverfinu í Bagdad.

Wikileaks túlkar þetta svona: It appears that a man in this frame is holding something that might be a weapon. He however never appears to mount it or show any attempts to use it.

RpG7
Sprengjuvarpa á svæðinu?

Gæti verið að flugmenn þyrlu bandaríska hersins hafi orðið fljótari til en mennirnir með sprengjuvörpuna?

Framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi gaf sér það í Kastljósi RÚV í gær, að þyrluflugmennirnir hafi séð að börn voru í bláa sendibílnum áður en þeir skutu á bílinn. Amnesty International er vonandi eftir að sanna það. Það var greinilega ekki fyrr en börnin eru tekin særð út úr bílunum, að þeir gera sér grein fyrir því. Flugmennirnir ályktuðu og gáfu sér hluti á svipaðan hátt og fólk sem vinnur fyrir Wikileaks og RÚV gefur sér og ályktar, enda er það fólk líka í stríði, en stundum er erfitt að sjá við hvern eða fyrir hvaða málstað.

Börnin, sem lifðu árásina af, áttu föður, sem bar greinilega litla virðingu fyrir lífi þeirra. Þó svo að hans eina ætlunarverk hafi verið að bjarga tveimur blaðamönnum (sem voru á eigin ábyrgð á svæðinu), þá fer enginn faðir með tvö börn inn á svæði, þar sem skothríð hefur átt sér stað. Eðlilegur faðir fer með börnin í burtu frá slíkum stað og það í miklum flýti. En ekkert er eðlilegt i Írak og það geta menn sem heimta afsakanir í sífellu skrifað á reikning Saddams.

Myndbandið frá WikipLeaks lætur engan mann ósnortinn. En nokkrar geðveikar og/eða hræddar bandarískar þyrluskyttur eru ekki allur bandaríski herinn, og síðan 2007 hefur löglega kosin stjórn í Írak beðið Bandaríkjaher og aðra heri að vera áfram í Írak. Þar ríkir skálmöld, sem ekkert hefur með veru Bandaríkjanna eða annarra herja í landinu að gera.  Vandi Íraks og fjölda annarra þjóða á þessum slóðum eru ekki Bandaríkin eða stjórnmálamenn á Íslandi, sem tóku þátt í að fjarlægja einn versta níðing heimsbyggðarinnar síðan Hitler var og hét. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

''Sjá þessi dauðu kvikindi'', sagði einn skotmannanna. Að þú skulir vera að verja þetta. Hvar læra menn þennan hugsunarhátt nema í hernum? Hann getur auðvitað þrifist annars staðar líka. Hver ert svo þú að geta ákveðið án hiks hvað sé eðlilegur faðir en nýbúinn að sleppa orðinu með það að ekkert sé eðlilegt í Írak. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.4.2010 kl. 16:28

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hefur þú heyrt hvað al Sadr, sem nú er í Íran, segir um okkur á Vesturlöndum?

Alveg sama hvað óeðlilegt ástand er, vernda, eða reyna foreldrar að vernda börnin sín. Blaðamenn, sem vinna meðal "óbreyttra borgura" sem greinilega bera sprengjuvörpur, er ekki mikilvægara að bjarga en börnum sínum.

Vinstri Grænir og Birgitta verða að sanna það, að þeir sem við sjáum fellda í myndbandinu hafi verið venjulegir borgarar. Veist þú Sigurður fyrir víst að þyrluflugmennirnir hafi séð börnin í bílnum?

Dómharkan er óeðlileg miðað við vitneskjuna. Það eru fordómar og hræsni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.4.2010 kl. 18:42

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hver dæmir meira en þú þegar þú tekur þig til? Hver er að kalla menn hræsnara?

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.4.2010 kl. 19:11

4 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Nafni, reyndu ekki rökræður við við VÖV.

Sigurður Sveinsson, 7.4.2010 kl. 04:19

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Elsku Siggarnir mínir, þið getið farið með Árna Þór Sigfússyni og Briget Jones from The Movement alla leið til Bagdad og beðist afsökunar á hnjánum.

Áður en þið farið, þá ber kannski að athuga að yfirvöld í Bagdad, sem eru löglega kosin, hafa beðið Bandaríkjamenn og aðra um að vera í Bagdad. Stjórnvöld í Írak hafa barist við öfgahópa sem vilja koma í veg fyrir lýðræði og t.d. frelsisbaráttu Kúrda, hópa sem vinna fyrir Íransstjórn.

Afsökunarbeiðni frá Íslendingum, hvar svo sem hún verður afhent, er aðeins fjöður í hattinn á hryðjuverkasamtökum.

Ákvörðun íslenskra yfirvalda að styðja stríðið í Írak var réttmæt. Stuðningur við hryðjuverkasamtök í Írak, sem stjórnað er af óvinveittri þjóð í samsulli við trúarofstæki og skálmöld milli tveggja hópa Íslams, er ekki réttlætanleg.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.4.2010 kl. 06:14

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður & Sigurður vilja ekki rökræða og skítkastarar hafa ekki látið sjá sig. Ég var að heyra að 800 manns höfðu fengið vinnu. Kannski voru það skítkastararnir?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.4.2010 kl. 06:22

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir með þér Vilhjálmur að "ákvörðun íslenskra yfirvalda að styðja innrásina í Írak var réttmæt". Það þarf ekki annað en líta til ný yfirstaðinna kosninga til að átta sig á því. Þrátt fyrir yfirgnæfandi fjölda trúaðra Shia í landinu var guðveldi þar hafnað og veraldleg öfl unnu þar sigur. Muqtada al-Sadr situr því áftam í útlegð í Íran.

 Það hefði mátt gera meira úr þessum kosninganiðurstöðum í fréttaflutningi hér heima, jafnvel taka snúning í einum eða tveimur Kastljóssþáttum. Það var hins vegar ekki gert af ótta við að það gæti varpað hagstæðri birtu á Georg W.; sýnt að innrásin var réttlætanleg og líkleg til að hafa áhrif í lýðræðisátt vítt og breitt um gervöll Mið-Austurlönd.

En, true to form, eins og við mátti búast ákvað RÚV og Kastljósið að skipa sér í lið með hryðjuverkaöflum.  

Ragnhildur Kolka, 7.4.2010 kl. 12:10

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Villi minn, hógværi, orðvari og réttsýni Villi minn, ég sagði ekki orð um það að Íslendingar ættu að biðja Íraka afsökunar! Ég var heldur ekki að ræða um réttmæti innrásarnnar í Írak sem slíkrar. Ég var að skrifa um ákveðna aðgerð sem sýnd er á myndbandinu. Og mér finnst einkennilegt að varpa allri ábyrgð á föður barnanna en engri á þá sem skutu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.4.2010 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband