Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016
27.8.2016 | 15:44
Aldrei aftur Sigmund Davíð!
Þessi moðsuða Moggamannsins Stefáns E. Stefánssonar er fyrir neðan allar hellur.
Thorvaldsensfélagið hvað...? Hún amma mín var einnig í Torvaldsensfélaginu og "stóð vaktina" þar árum saman. En hvað kemur það gamla góðgerðarfélag málinu við, þegar maður þessarar konu, sem var forsætisráðherra, sagði öllum að velja íslenskt því krónan væri góð, meðan þau hjónin földu evrurnar sínar og annan gjaldeyri á pálmaeyju?
Svo kenndi maðurinn hennar gyðingnum Soros um allt heila klabbið hér um daginn. Af hverju dregur hún Thorvaldsensfélagið, stofnað í nafni frænda míns Thorvaldsens, hið gamla góða félag hennar ömmu minnar og Thorvaldsensbazarinn inn í þennan skítabisness sinn ?
Eru Framsóknarburstar á Morgunblaðinu að reyna að hreinsa Sigmund Davíð með vítissóta fyrir kosningar? ER ÞAÐ YFIRLEITT HÆGT? Viljum við mann sem kennir gyðingum um fjármálaóreiðu sína í embætti forsætisráðherra Íslands???? Vitaskuld ekki. Það er örugglega nóg til af góðu fólki í Framsókn sem ekki þarf að skera í tilfallandi gyðinga til að ná athygli flokksmanna sinna.
Guð hjálpi okkur ef allur flokkurinn er á sömu skoðun. Þá hefur ekki mikið breyst síðan á 4. áratug síðustu aldar. Flokkurinn verður að losa sig við meinið.
Staðreyndirnar virtust litlu skipta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.8.2016 | 12:34
L'Unita for breakfast
Eins og allir vita er ég gamall laumukommi og byltingaseggur og les aldrei annað en málgögn þeirra er ég er á ferðalögum um útlönd. Sama hvort það er lygi eða ekki. Á morgungöngunni minni í Cori í morgun keypti ég mér L'unita til að hafa það sem andlegt meðlæti með morgunbrauðinu á veröndinni í 400 metra hæð yfir hausamótunum á lýðnum. Blaðasalinn í Cori er einn af fáum vinstrimönnum í bænum. Hér er hins vegar allt fullt af ítölsku framsóknarfólki, sem er ekki ósvipað því íslenska, en vinalegra þó. Þegar ég bað um þetta málgagn sósíalista tendruðu augu blaðasalans og hann dró fram eitt eintak sem falið var undir bunka af knallrómönum.
L'Unita er ekki sett á hillurnar með Corriere della Sera eða t.d. blaðinu LATINA sem er bölvað Berlusconiblað samkvæmt blaðasalanum sem nær fussaði yfir því, þegar ég spurði hvort það vær kannski líka gefið út á latínu. Ég las grein um "Vladimir (Putin) d'Arabia" sem ítalskir vinstri menn hata álíka mikið og þeir elska ISIS. Í dag fann ég ekkert gyðingahatur í L'unita en hins vegar algjért smér um Robert Redford. "Redford quel bravo ragazzo progressista". Morgunmaturinn var skemmtilegur. Nú skal haldið til Rocca Massima í 800 metra hæð. Þar er svalt og þar búa margir milljónamæringar og kapítalistasvín sem hafa keypt sér íbúðir í bæ það sem á vetrum búa 5 gamlar ekkjur í elsta hlutanum og 10 sjálfmenntaðir bifvélavirkjar og fjölskyldur þeirra í yngri hluta bæjarins. Á vetrum er þarna oft allt á kafi í snjó.
17.8.2016 | 05:36
... þótt fyrr hefði verið
Þjóðverjar skulda ekki bara Grikkjum. Vestur-Þjóðverjar gerðu afar lítið til að leita að og lögsækja stríðglæpamenn eftir síðari heimsstyrjöld. Dómar böðla voru styttir og menn sem myrt höfðu tugi þúsunda gyðinga og annarra lifðu til æviloka í lystisemdum. Það er fyrst nú, á síðustu mánuðum lífs sumra böðlanna, að farið er að skoða mál morðingjanna. Hingað til hafa þeir verið hylltir á sama hátt og Hitler af Þjóðverjum, annað hvort með þögninni, en oftast ljóst og opinberlega.
Í bókinni Das Amt, sem út kom fyrir nokkrum árum má lesa hvernig skítseyði úr nasistakerfinu byggðu upp Utanríkisþjónustu Vestur-Þýskalands sem gerði allt til að komast hjá því að finna og lögsækja menn eins og t.d. Adolf Eichmann.
Það sem menn vita kannski ekki er að fasistar og kommúnistahatarar í BNA gerðu þetta kleyft. Stjórnvöld í BNA ákváðu að Þjóðverjar með rófuna á milla fótanna yrðu besti og tryggasti samstarfsaðilinn í Evrópu. Þýskaland varð kjölturakki BNA. Þar skýrir saga NATÓ í hnotskurn. Furstar ESB upplifðu efnahagsundur og framgang vegna þess að þeir tóku aldrei afleiðingum gerða sinna! Vinna og elja Þjóðverja er mýta. Íbúar morðveldisins voru bornir á gullstólum til ríkidóms sem þeir stálu af öðrum.
Íslendingum ber siðferðileg skylda til að styðja kröfur Grikkja um bætur frá Þýskalandi. Þýskalandsslepja margra Íslendinga er óholl og nærri því sjúkleg. Grikkland er ein af vöggum menningar okkar, það er Þýskaland ekki. Þýskaland var hins vegar svínstrog öfga sem nær eyðilögðu menninguna - og nærri því heilu þjóðirnar með.
Lágmenning Evrópu fyrir 70 árum síðan á rústum menningar sem færði okkur ljós. Í dag er fólk, t.d. á Íslandi, farið að eltast við dauðamenningu Íslams á sama hátt og feður þeirra gældu við nasismann. Það kennir meira að segja sama fólkinu um "ófarir" sínar og heimsins. Sjálfeyðingarhvöt sumra Evruþjóða er skiljanleg í ljósi þess hlutverks sem þær léku á 20. öld við að eyðileggja Evrópu og í morðum á 6. milljónum gyðinga - sem og við nauðgunina á löndum eins og Grikklandi.
Vilja stríðsskaðabætur frá Þjóðverjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.8.2016 | 07:53
Für Ómar
Nú þegar Ómar Ragnarsson er orðinn hæsti hæstiréttur rennusteinsins, og maður sér sífellt að "Gestapo-maður" hafi yfirheyrt þá dæmdu í Geirfinns og Guðmundar-málum, langar mig að minna á gamla færslu mína um téðan "Gestapómann" sem séra Guðjón Skarphéðinsson laug vísvitandi og andstyggilega um í viðtali við Óttar inn auðtrúa (Mayday) Sveinsson. Sjá hér:
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1387842/
9.8.2016 | 09:32
Nýjar, gamlar Íslandsmyndir
Fornleifur hálfbróðir minn birti í gær tvær áður nær óþekktar myndasyrpur sem innihalda kvikmyndir frá Íslandi á síðari hluta 4. áratugar síðustu aldar. Kvikmyndirnar eru úr ferðum nasistasamtakanna KdF og eru frá 1936 og 1939.
Eva Braun heitkona og að lokum eiginkona Hitlers (í tæpar 40 klukkustundir) fór í KdF- ferð til Íslands í júlí árið 1939, og kvikmynd hennar þekkja menn vel. En nú eru tvær aðrar kvikmyndir úr skemmtiferðum vel stæðra nasista komnar í leitirnar.
Sjá frekar og betur hér.
2.8.2016 | 19:58
Hallelúeliza
Í morgun hóstaði ég bókstaflega kaffi og brauði yfir morgunverðarborðið er ég skoðaði afrek FB-vina frá kvöldinu áður. Þar sá ég að einn þeirra boðaði þann gleðiboðskap að ný forsetafrú, Eliza Reid, væri gyðingur. Vitaskuld fagnaði þessi vinur og fjöldinn allur af öðrum vinum hans með honum.
Gyðingakonur eru hörkukonur eins og Dorrit, Lilith, Gertrud og Barbara Streisand hafa sýnt okkur. Hallelúja í hæstu hæðum fyrir þær. En um tíma í dag var Íslandi borgið því (auð)trúað fólk hafði frétt að kona Guðna forseta væri af ætt Abrahams. Gat verið að fólk væri farið að fagna fjölmenningunni með forseta vorum?
En ef ég hefði ekki vitað betur, þá hefði ég trúað öllu eins og nýslegnum dúkat. Þessa miklu "gleði" var að finna hjá fólki sem margt viðrar "kristilegan" stuðning sinn við Ísraelsríki og ári oft til að réttlæta hatur sitt á öðrum minnihlutahópum eða öðrum vandæðatrúarbrögðum en Kristni, þ.e. Íslam. Vitanlega eiga Íslam og Fjölmenning gyðingahatur og ofsóknir á hendur gyðingum á samviskunni - líkt og Kristni fyrrum. En stuðningur við Ísraelsríki og Gyðingdóm eflist ekki við hatur á öðrum. Því er fjölmenningarhugsjónin ekki rík hjá þeim sem samgleðjast yfir fagnaðarerindinu um að það sé kominn ný gyðingakona í stofurnar og eldhúsið á Bessastöðum (og nú setjast rauðsokkur og femínistar klofvega yfir mig).
Eins og alltaf þegar menn hafa gyðinga á milli tannanna, komu mismunandi skoðanir á ágæti þess að Eliza á Bessó sé af ætt Abrahams, og jafnvel andgyðingleg krampaköst, t.d. frá einum manni sem skrifaði: Ég er í 6 daga ferð með gyðingahjónum. Þau tíma engu. Hversu gott er það?? :) Ég spyr: Eru Skotar ekki nískasta þjóðin? Vonum að það komi ekki að sök á Bessó.
Ég tók skjámyndir af umræðunni fyrir "flór" minn um hatursræðu gegn gyðingum, sem inniheldur meira og alvarlegra hatursrugl en þann skít sem safnast hefur í kúkasandkassa Gunnars Waage. En er ég ætlaði að skrifa um þessi undur á Bessastöðum hér á bloggið, var hins vegar búið að fjarlægja fagnaðarerindið og neðanstætt merki kom upp á síðu FB-vinar míns. Söguburður hans um ættir frú Elizu hans Guðna forseta var vitaskuld klámhögg og hefur höfundurinn slegið hamrinum á þumal sinn í staðin fyrir naglann. Á, æi, andskotans - ekki er öll dellan eins, en það er mikið af henni á Íslandi og ekki síst á Fésbókinni. En ef fólk trúir á meyjarfæðingar, þá er víst ekkert sjálfsagðara en að Eliza Reid á Bessó sé kosherkona frá gresjum Kanada. Menn mega trúa því svo ef þeir vilja. En satt er það ekki. Eliza er samt örugglega alveg boðleg þrátt fyrir að hún sé ekki alveg eins skyldleikaræktuð og maður hennar.
Amen.
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007