Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Hallgrímur Pétursson sýknaður af HÍ og tölvan biluð hjá Páli

Svarar ekki

 

RÚV heldur því fram, að ekkert gyðingahatur sé að finna í Passíusálmunum. Þetta gerir RÚV, þó svo að Páll Magnússon segist ekki hafa fengið bréf frá Simon Wiesenthal stofnuninni í Los Angeles, þar sem því er haldið fram af gyðinglegum guðfræðingi, að gyðingahatur sé í Passíusálmunum.

Föstudaginn 24.vfebrúar kl. 18:35 hélt  RÚV því fram að Páll Magnússon hafi ekki fengið margumrætt bréf SWC, sem hefur verið svo umtalað í dag, að neðri helmingurinn af Ísraelshataranum og ungviðisdýrkandanum Jóni Baldvini hefur fengið stundarfrið. En þetta er afar furðulegt, því kl. 15:47 að íslenskum staðartíma í dag, sendi SWC bréf sitt aftur til Páls á netfang hans pall.magnusson@ruv.is . En tölvan hjá Páli Magnússyni segir greinilega "lok lok og lás og allt í stáli, lokað fyrir Páli".

Dr. Margrét Eggertsdóttir, sérfræðingur í Hallgrími, „útgefandi" hans og formaður listafélags Hallgrímskirkju tjáði Íslendingum frá því í síðdegisútvarpinu á RÚV, að það væri ekkert gyðingahatur í Passíusálmunum. Haft er eftir þessari fræðikonu að: „Hallgrímur er að segja þessa sögu á sinn hátt og mér finnst þetta mjög ómaklegt vegna þess að hann túlkar hana einmitt þannig að hann setur sig í spor margra sem þarna koma við sögu," segir Margrét. Skáldið setji sig meðal annars í spor gyðinga. „Þannig að það er alls ekki í anda Hallgríms að fara að skella skuldinni á einhvern hóp eins og gyðinga."

Margrét, sem greinilega veit ekki hvað skrifað hefur verið um gyðingahatur (antijúdaisma) lúterskrar guðfræði á 17. öld, sem Passíusálmarnir eru hluti af, telur að Hallgrímur hafi sett sig í skó gyðinga meðan gyðingar líta svo sannarlega öðruvísi á málin. Kannski er Margrét Eggertsdóttir ein af þeim sem veit betur hvað gyðingahatur er, en þeir sem verða fyrir því?

Ætli Páll svari SWC? Hann er búinn að fá póstinn frá Rabbi Cooper tvisvar. Kannski er tölvukerfið bilað hjá honum Páli Magnússyni, sem skýrir kannski hvernig tekið er á kvörtunum yfir fréttaflutningi RÚV.


Simon Wiesenthal Stofnunin hefur samband við RÚV

Rabbi Abraham Cooper

Rabbi Abraham Cooper hjá Simon Wiesenthal Center í Los Angeles hefur haft samband við Pál Magnússon útvarpsstjóra vegna Passíusálmanna. Sjá hér

Ég hef svo ritað um forynjuhátt og ómenningu Passíusálmanna á Fornleifi. Sjá hér

PLL_MA~1

Hreðjamikill geithafur fyrir neðan mitti

Satyrical Jón
 

Þannig er hún víst íslenska hetjan í Eystrasaltslöndunum. Þegar hann var i Vilníus og gat ekki riðið skógardísinni sinni í hægum takti, þá kallar hann á 69 á stöðinni og lét keyra sig á gáfumannapöbb þar sem sem gáfulegar konur voru á hverju strái. Þegar hann var á Eistlandi fékk hann kipp í punginn og fór á fínan veitingastað og fékk forrétt frá Úkraínu. Í Ríga hittir hann Rítur á næturklúbbi sem ekkert skömmuðust sín fyrir vinnu sína. Allt var þetta á reiknings íslensku þjóðarinnar. 

Alls staðar, þar sem hann hefur komið til að styðja frelsi þjóða, hefur hann í raun stutt ungar stúlkur, hina slavnesku fegurð úr föllnum sósíalistaparadísum, þar sem þjóðfélagið borgar þeim bara „skid og ingenting". Þá er nú gott að hafa svona sugardaddyman frá hreinasta landinu í heimi.

Og þegar hann var ekki önnum kafinn við mannbætandi hjálparstarf sitt í þróunarlöndunum, var hann enn meira en upptekinn í að skrifa diplómatapóst með lýsingum á sínum innra manni. Hann var nefnilega í frístundum sínum graður satír (sem hann kallaði reyndar satyricon) og er það skjalfest á bréfsefni diplómatíunnar á Íslandi sem vill ólm í skógarleiki í ESB. Satírinn að arna heitir Jón fyrir ofan mitti og er minni hetja en neðri helmingurinn sem virðist hafa stjórnað honum vel og dyggilega, og hefur sá hluti jafnvel hugsað ýmislegt fyrir hann.

Ég skrifa þessa færslu erlendis og munið að satírar eru ekki friðaðir, ekkert frekar en aðrir graðir, gráðugir og rotnir pólitíkusar.

Greddubréf sendiherrans

Enginn verður óbarinn biskup

 
Örn Bárður var með
 

en það sakar ekki að kunna biblíusögurnar sínar.

Örn Bárður Jónsson biskupsefni telur sig hæfan til að gegna embætti Biskups Íslands. En verða menn ekki að þekkja Biblíuna sína til að teljast hæfir til að gegna svo vandasömu starfi?

Örn Bárður Jónsson hefur í líkræðu sem hann hélt um árið sagt: „Forðum daga voru Ísraelsmenn í útlegð, höfðu verið herleiddir frá Palestínu til Babýlóníu þar sem nú er Bagdad í Írak." (Sjá hér ). Ég get upplýst biskupsefnið, að orðið Palestína varð ekki til fyrr en á 5. öld f. Kr. á Grikklandi en Gyðingar voru herleiddir til Babýlon á 6. öld f. Kr.. Ísraelsþjóðin var ekki herleidd frá Palestínu heldur úr konungsríkinu Júda (Yehud). Palestína var enn bara draumur og sá misskilningur sem það land hefur ávallt verið.

En ef menn berjast fyrir Palestínu nútímans með því að búa til Palestínu á 6. öld f. Kr. og gera það fyrir Palestínumenn sem flestir vilja útrýma Ísraelsríki á skitinn hátt, eins og margir háheilagir á Íslandi vilja reyndar líka, þá er það vegna þess að tilgangurinn helgar meðalið.

Biskupefnið Örn var í göngunni sem þið sjáið myndina af hér fyrir ofan. Hann gerði enga athugasemd við frumstætt táknmál meðgöngumanna sinna, táknmál sem er vinsælt í Palestínu, þar sem menn lesa líka Mein Kampf eftir Hitler.


Mismundandi vannæring

Hungur

300 börn deyja í heiminum á hverri klukkustund, meðan ég og þú lifum vel eða í vellystingum. Össur Skarphéðinsson, hinn þéttvaxni utanríkisráðherra næstfeitustu þjóðar heims, gaf um daginn Barnaheill á Íslandi stuðning sinn allan í umslagi. Stuðningurinn er vonandi pappírsins virði sem hann er skrifaður á. Jú, á árinu 2012 verður 175 milljónum króna úr íslenska ríkiskassanum varið til starfsemi allra hjálparstofnanna. Deila mætti um hvort það er mikið miðað við velmegun Íslendinga og það sem Össur eyðir í ESB-ferlið svokallaða. Þetta örlæti sitt tilkynnti ráðherra í tengslum við útkomu skýrslu Barnaheillar um hungur, en skýrslan ber heitið Life free from hunger.

RÚV gerði þessari vá heimsins og gjafmildi ESB-umsækjandans skil eins og vera ber, en á einstaklega ósmekklegan hátt. Fréttamenn RÚV höfðu fyrir framan sig skýrslu UNICEF, Barnaheilla og annarra stofnanna, um vinnu gegn vannæringu og öðrum vandamálum milljóna barna í heiminum. En þrátt fyrir það setti erlenda deild fréttastofunnar afar furðulegar myndir við fréttina, myndir sem gefa alranga mynd af hungri og vannæringarástandinu í heiminum.

RÚV sullaði saman myndum af raunverulegri neyð og hungri í Afríku við myndir sem voru teknar fyrir fyrir tveimur árum í Írak, þegar íslenskur meðreiðarsveinn frelsarans Assange var þar á ferð í tengslum við opinberun Wikileaks á upptökunni af árás herþyrlu BNA sem fór úr skorðum. Myndirnar frá Bagdad sýna hvorki hungur né vannæringu, en frekar hinn mikla sóðaskap sem sums staðar er ríkjandi í þessum heimshluta - sem vissulega þarf einnig að berjast gegn.

Vannærð börn jeppar og amerískir kaggar
Bagdad

Í frétt um vannæringu í heiminum sendir RÚV 15.2.2012 út myndir (sjá frétt hér) frá hverfi í Bagdad þar sem gervitungladiskar eru á flestum húsþökum  og þar sem foreldrar "vannærðu" barnanna aka um í jeppum og amerískum bílum. RÚV er eins og ég hef margoft sýnt lúaleg lygaveita. Hvað hugsa starfsmenn fréttastofu RÚV, ef þeir hugsa þá yfirleitt? Hvernig er hægt að birta myndir frá Bagdad til að sýna Íslendingum vannæringu í heiminum? Kaupir fólk svona falsanir

Börn voru vannærð í Írak á dögum einræðisherrans Saddams, sem hélt andstæðingum sínum fyrir neðan fátækramörk. En börnin á myndunum, sem RÚV birtir við frétt um alheimsvandamálið vannæringu, eru börn fólks sem býr í hverfi öfgamanna sem reynt hafa að brjóta á bak stöðuleika þann sem reynt hefur verið ð byggja upp í Írak eftir fall Saddams.Ef fréttamenn RÚV kynntu sér skýrslu UNICEF og Save the Child um vannæringu og hungur, þá kemur í ljós að í Írak er vannæring ekki lengur neitt vandamál. Þjóðir heims hafa hjálpað Írak með góðum árangri síðan Saddam var steypt af stóli. Börn deyja ekki lengur úr hungri í Írak eins og þau gerðu undir ofríki Saddams, sem margir Íslenskir vinstri menn studdu.

Ef þið skoðið myndirnar, sem sýndar voru í fréttum sjónvarps miðvikudaginn 15.2.2012 , sjáið þið að hin vannærðu börn RÚV búa í hverfum Bagdad þar sem allt er fullt af gervihnattadiskum á húsþökunum. Foreldrar þessara "vannærðu" barna aka um á jeppum og amerískum bílum. Hvað er RÚV að reyna að segja Íslendingum með slíkum fréttaflutningi? Að við séum fífl?

Er eitthvað að fréttamönnum RÚV? Eru þeir andlega vannærðir eða heilaþvegnir? Eftir að hafa tekið þann fréttamann tali sem ber ábyrgð á þessu myndavali, tel ég víst að heilþvegin kynslóð fólks hafi hlammast upp á stofnun sem á að gefa Íslendingum sem réttastar og hlutlausasta lýsingar á því sem gerist í heiminum, en sem því miður er orðin hluti af áróðursráðuneyti skinheilagleika og hræsni vinstrimanna, þar sem menn eru að segja sínar skoðanir og greina frá sínum pólitíska heilagleika.

Vannæring

Að mínu mati er allt tal um vannæringu í arabaheiminum nærri því eins mikil hræsni og þegar ég með fullan munninn að súkkulaði set skildinga í bauk söfnunar til að berjast gegn vannæringu. Ég veit mætavel að helmingurinn eða meira af krónunum mínum fer í skrifstofukostnað hjá Barnaheill, Rauða Krossinum, Hjálparstofnun Kirkjunnar eða hvað sem blessuð hjálpastofnunin nú heitir. Heimur múslíma er vissulega mjög fátækur, en aðallega menningalega vegna trúarofstækis og öfga, en einnig í flestum tilfellum vegna endalausra átaka, innbyrðis eða við aðra. Í hinum arabíska heimi býr líka ríkasta fólk heimsins og þar er einnig að finna mikilvægustu auðlindir heimsins. En í þessum volæðisheimi araba/múslíma, sem RÚV vildi blanda inn í fréttina um vannæringu, eru auðinum líka mest misskipt í heiminum.

Telur RÚV, með myndafölsun sinni, að það sé hlutverk okkar á Vesturlöndum að hjálpa fólki sem getur hæglega hjálpað sér sjálft, en reisir í staðin hyllingar úr gulli í eyðimörkinni, meðan bræður þeirra eru vannærðir samkvæmt UNICEF? Telur RÚV að skyndimyndir frá hverfum öfgamanna í Írak, sem ala á deilum og ósætti, séu til þess heppilegar að sýna Íslendingum afleiðingar vannæringar? Ef eitthvað er, þá sýnir þetta andlega vannærða staðla fréttamanna á RÚV.

Hinar myndirnar af vannærðum börnum, sem við sáum í frétt RÚV um gjafmildi ESB-ráðherrans, voru af vannærðum börnum voru frá Afríku. Það eru eru réttmætar myndir í fréttaflutningi um eitt alvarlegasta mál heimsins. Í Afríku eru börnin í öðru hvoru landi vannærð og í mörgum löndum hrynja þau niður í sulti ef þau eru ekki höggvin í spað af múslímum eins og í Súdan. Afríka er enn vandamál heimsins en arabalöndin skapa fyrst og fremst sjálf sín vandamál vegna ójöfnuðs og öfgastjórnarfars. Börn í arabalöndum eiga auðvitað bágt að búa í slíkum ríkjum.

Það er til margs konar vannæring, einnig andleg, og get ég mér til að andleg vannæring hrjái ýmsa fréttamenn RÚV. Andleg vannæring lýsir sér einnig þegar Össur Skarphéðinsson og ríkisstjórn hans sér sóknarmöguleika fyrir Íslendinga með peningum einhvers rotins kommaapparatníks frá Kína. Vissuð þið að 128 milljónir manna í Kína lifa undir fátækramörkum? Börn eru vannærð í stórum hlutum Kína. Og svo kemur einhver pótintati til Íslands, sem segist heita Núbó Púbó og vera skáld og náttúrudýrkandi, og vill fjárfesta í heilum og hálfum öræfum. Ætli stolnu peningarnir hans væru ekki betur komnir í vasa kínversku fátæklingum sem hann hefur arðrænt? Hvað finnst ykkur?

desnutrido_china

Þessi landi Núbós er víst ekki aflögufær fyrri Íslendinga. Þessi maður er einn þeirra milljarða manna sem Össur íturvaxni Skarphéðinsson talaði um að færu svangir að sofa, ef hann er þá ekki dáinn. Ætli hann viti að sumir Íslendingar vil ólmir fá eins mikla kínverska peninga og mögulegt er til verkefna uppi á öræfum Íslands? Kannski hefur hann í einni af hungursmartröðum sínum séð Íslendinga sníkja fé af kínverskum flokksgæðingum, sem fengið hafa frímiða til arðráns og græðgisútrásar.


ESB-Stjórnin, vélarvana og aflalaus með stolinn kvóta

Enginn fótur

Forsætisráðherra fór ekki á Viðskiptaþing. Er nokkur þörf á því? Þar stjórna sjóræningjar á staurfótum sem hjálpuðu dyggilega til við að setja þjóðina á hausinn. Einn þeirra vel stæðu vill ólmur fá sér evrustoð svo hann fari ekki höllum fæti í verðbréfahöllinni í Kaupmannahöfn. Þeir ríku vilja evru í stað þess á ganga á síðustu aurunum á krónustubbunum. Þarf forsætisráðherrann nokkuð að fara á Viðskiptaþing meðan viðskiptajöfrar gera sér ekki grein fyrir því hvað evran er?  

Alveg staur

Steini gamli sjóari, drukkinn í landi, er greinilega ýmsu vanur. Það er orðið aðal viðkvæði hans í hvert skipti sem mótbára skellur á skútunni leku. Hann ætlar sér þó ekki að fara í land þótt að þjófnaðarlög messadrengsins Árna Páls prestssonar hafi verið drekkt í Hæstarétti. Fyrr kaffærði Steini Hæstarétti - já og haldið svo kjafti.

Svangur

Akfeitur yfir- og utanríkisbátsmaður, sem  rær í því alla daga að auka hag næstfeitustu þjóðar heims (og sjálfs síns), vill nú bjarga hungrandi börnum heims. Góðhjarta er hann undir öllu spikinu, enda ráðherra í ekta norrænu velferðaríki. Þetta getur hann karlinn meðan hann stefnir að því að fá fleiri kínversk veitingahús upp á öræfi og að lifa skriffinnskusníkjulífi í ESB, þar sem litlu, grísku börnin svelta. Það verða hvorki soltnu börnin í Langtiburtistan né þau grísku sem fá íslenskan fiskinn, þegar boðið verður upp Ísland í ESB.

sheik jer Assad

Meðan maður er í skipafréttunum, er gott að gæta að þeim gömlu sem ættu að vera á Hrafnistu, en eru að skellast í sólarlandaferðir með Heimsferðum. Æi já, aftur er rafmangslaust í tjaldinu hjá Imbu í Kabúl. Tímarnir voru betri hér áður fyrr hjá henni og öðrum. Eins og einn vinur hennar sagði „Kosningar fáið þið, en fyrst mun ég drepa ykkur". Ætli það verði örlög Íslendinga, þeirra sem ekki verða flúnir til Noregs eftir auglýsingaherferð RÚV? Margir eru þegar dauðir úr leiðindum vegna núverandi áhafnar Stjórnarskútunnar, og sumir meðlimið áhafnarinnar viðast vera nær dauða en lífi.

Ég frétti af stjórnlausu skipi á reki í gærkvöld. Ætli það hafi verið strandhöggsskipið ESB-Stjórnin, vélarvana og aflalaust með stolinn kvóta og slitna nót?


Framlag Azerbaijans til Eurovision 2012

 

Vá, þetta er glæsilegt, og nú á að fara að hylla lögregluríkið Azerbadijan, alveg eins og þegar meira eða minna nasískir Íslendingar fóru glaðir og hýrir á Ólympíuleikana í Berlín árið 1936, þaðan sem sígaunar og annað "pakk" var flutt á brott úr borginni fyrir leikana.

Nasistar sáu þó til þess, að lög þeirra varandi glæpsemi samkynhneigðar væru ekki i gildi fyrir útlenska gesti Ólympíuleikana (sjá hér). Mikið vona ég að Azerbaijanar hafi einni innleitt slíka slökun á lögum sínum, en í Azerbaijan er reyndar venjan að væna pólitíska andstæðinga og gangrýnisraddir um að vera kynvillinga.

Auðvitað á Ísland ekki að taka þátt í þessum skrípaleik. Ekki bara hommanna vegna. Það er nóg annað hægt að gera við peningana en að nota hana í þessa stertiveislu og tímaskekkju. Þetta er orðið þjóðernissöngvalagakeppni fyrir uppblásna diskórembusöngva frá lýðræðislega vanþroska löndum.  

Nei takk, ekki meira Eurovision.


Krummafréttir

Zawad
 

Það er logið miklu að fólki í fréttum RÚV, m.a. vegna þess að fréttastofan er aðalmálgagn óvinsællar ríkisstjórnar og fréttamennirnir flestir í sama svínsbleika samfestingnum og ríkisstjórnin. Einn fréttamannanna er meira að segja stjúpsonur forsætisráðherrans. Fréttum varðandi Miðausturlönd er alls ekki hægt að treysta á RÚV, þegar þær varða Ísrael. Fréttamenn á RÚV eru að farast úr pólitískri rétthugsun, tilbúnir að hliðra til sannleikanum eins og við sáum t.d. í saltmálinu, sem var stormur í vatnsglasi, en hefur skilið eftir sjúkt fólk sem ekki eru enn búið að ná sér eftir salteitrun fjölmiðlanna.

Í gær laug fréttamaðurinn Gunnar Hrafn Jónsson enn einu sinni, og það gerði hann með glæsibrag er hann krunkaði á léttu nótunum í Síðdegisútvarpinu. Ég hef margoft skrifað um glannalegan fréttaflutning þessa unga fréttammanns og annarra kollega hans. Vegna rangfærslu hans og vanþekkingar þeirra sem hann bar opinberlega á torg ritaði ég umsjónarmönnum Síðdegisútvarpsins, Halla Thorsteins, Lindu og Guffa:


Vegna ummæla Gunnars Hrafns Jónssonar fréttamanns í Síðdegisútvarpinu fyrir rúmum 15 mínútum um Black Cobras glæpagengið í Danmörku, sem eru glæpasamtök innflytjenda með múslímskan bakgrunn, þá  er mjög einfalt að benda á réttar upplýsingar um þessi samtök: http://da.wikipedia.org/wiki/Black_Cobra.

Gunnar gerði lítið úr því hve hættuleg þessi samtök eru. En þau eiga mannslíf á samviskunni.

Gunnar sagði "gamansögu" af einhverri fyllibittu sem kom til Malmö og vildi klippingu, og eins frá þjófnaði á bakkelsi úr sendiferðabíl. Glæpir Black Cobras eru hins vegar miklu alvarlegri en þessi dæmi Gunnars gætu gefið til kynna og hefur hann ekki unnið heimavinnuna sína - enn einu sinni.

Maður verður undrandi vegna lélegrar rannsóknarvinnu þessa unga fréttamanns sem mér virðist alveg vera að farast úr pólitískri rétthugsun
.

Gunnar Hrafn sagði í Síðdegisútvarpinu, að hann hefði átt erfitt með að finna eitthvað um Black Cobras gengið. Er fært að fréttamaður á fullum launum hjá RÚV geti ekki googlað og fundið lágmarksupplýsingar? Ég hef enga trú á því að hann geti ekki fundið neitt um glæpi „skrýtna glæðagengisins Black Cobra" eins og hann kallaði það. Ef til vill er tölva stjúpsonar Jóhönnu Sig. með einhverja stillingu sem síar allt ljótt um múslíma í burtu, eins og vírus og hvað annað barnaklám.

Hvað á maður að halda? Hvernig getur fréttamaður sem sér um erlendar fréttir talað á léttum nótum um glæpagengi í Danmörku sem á mannslíf á samviskunni. Black Cobras er glæpagegni sem keppir við Hells Angels og Bandidos rokkara í eiturlyfjasölu og öðrum glæpum. Það eru til önnur gengi svipuð Black Cobras, t.d. "Ghetto Outlaws" sem er stjórnað af »Múhameð málara« – Mohammed Figuigui, sem einnig var meðlimur í Hizb ut Tharir, öfgasamtökum múslíma í Danmörku, þar sem talsmenn hafa verið dæmdir fyrir að hvetja til að drepa gyðinga hvar sem þá er að finna. Figuigui er nú vel geymdur í steininum, en árið 2010 reyndu fylgismenn hann að "frelsa" hann þegar ekið var með hann á milli fangelsa..

Farið nú að segja fréttir á RÚV, en ekki ykkar afbökuðu persónulegu skoðanir sem allt of oft eru allar ataður út í fáránlegri pólitískri rétthugsun æsingamannsins. Allir vita, að margir í stétt blaða- og fréttamanna er fólk sem hefur óhemju stórt álit á að það sé að bjarga heiminum og málunum í gegnum fréttaflutning sinn. Er lygi og vanþekking rétta leiðin til þess að segja fréttir? Til hvers þarf fréttamaður á RÚV að vera með grínfrétt um eitt hættulegasta glæpagengi Norðurlanda?

Myndin efst er af Zahed Mawad palestínskum meðlimi Black Cobras (sem nú er hættur) Myndin neðst er af bróðurómyndinni hans sem slasaðist er hann fauk af mótorhjóli á 190 km á klukkustund  í íbúðarhverfi. Þegar lögreglan skóf hann upp sagði litli karlinn þetta.

 »Fucking löggusvín«

»Mamma þín er mella«

»Komdu bara og slástu við mig«

Rami Mawad var heppin og var útskrifaður af spítala 14 dögum eftir slysið, þá lét hann þessa skoðun í ljós við lærisveina sína: 

»Það er einn þarna uppi sem heldur yfir mér hlífðarhendi.«

Greinilega eru fleiri "þarna uppi", því á Fréttastofu RÚV á Íslandi er mönnum fyrirmunað að segja sannleikann um hardcore múslímsk glæpagengi í Danmörku. Á ríkisrekinni fréttastofu á Íslandi er gert lítið úr vandanum og sagðar skemmtisögur af vínabrauðsstuldi Black Cobras.

Réttast væri að senda RÚV reikning fyrir leiðréttingar þessar, en heillasamlegast væri fyrir RÚV að losa sig við ónýta fréttamenn.

Rami
Rami Mawad, Palestínudani og kókaínsali, nú til heimilis í fangelsi fyrir alvarlega glæpi. Efst má sjá bróður hans á jólasýningu danska hersins. Górillan efst, sem er ólæs, teiknaði félagsmerki Black Cobra.

Hvað gera stórmennin í Háskóla Íslands nú?

 

Nú er engin undirskrifasöfnun í gangi í Háskóla Íslands eins og árið 2003 þegar 81 háskólaborgari skrifaði undir það, að Ísraelsríki væri líklegt til að fremja þjóðernishreinsanir meðan að órói væri yfirstandandi í hinum múslímska heimi. Meðal þeirra sem skrifuðu undir árið 2003 voru sagfræðiprófessorar eins og Gísli Gunnarsson, Helgi Þorláksson og Gunnar Karlsson, og sömuleiðis mannfræðiprófessorinn Unnur Dís Skaptadóttir og einhver starfsmaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Sjá hérhér og hér getið þið séð nöfn sumra hatursmanna Ísraels sem vinna eða hafa unnið, og hatað, hjá Háskóla Íslands.

Nú er hins vegar mjög rík ástæða til að safna undirskriftum gegn fyrirhugaðri þjóðernishreinsun og þjóðarmorði, því æðsti trúarlegi leiðtogi Mullastjórnarinnar í Íran ajatollinn Khamenei hefur enn einu sinni lýst því yfir  í ræðu, að Ísraelsríki sé krabbamein sem þurfi að fjarlægja (sjá hér). Þar að auki hefur á írönsku vefsíðunni Alef, sem stýrt er af rannsóknarstofnun ajatollans, verið birt nákvæm lýsing á því sem gera skal samkvæmt Khamenei. Ísrael skal eytt og gyðingar, hvar sem þá er að finna, skulu drepnir. Þessi ræða og þetta hatur er auðvitað ekkert nýtt. Hún hefur heyrst áður í hinum múslímska heimi, áður meðal nasista og sumir vinstri menn virðast hallir undir svona morðhjal og tilbúnir í "krabbameinslækningar" Írans.

Nú hefur Íran opinberlega birt Wannsee áætlun sína varðandi útrýmingu gyðinganna. Kjarnorku- og Íslamveldið Íran ætlar sér að gera það sem Hitler mistókst.

En ætla heilagir gyðingahatarar í HÍ að styðja Íran eða mótmæla fyrirhuguðu þjóðarmorði Írans? Geta sagnfræðiprófessorarnir Gísli, Gunnar og Helgi og allir hinir hatursmennirnir í fílabeinsturninum ekki komið sér saman um almennilega undirskrifasöfnun, eða ætla þeir að taka þátt í þjóðernishreinsunum með Khamenei frænda?

Kannski er það sem mig grunar rétt, að í Háskóla Íslands hati menn Ísrael, og kannski Hannes Hólmstein, mest, og hafi því ekki tíma eða andlega getu til að mótmæla fyrirhugaðri útrýmingu eina lýðræðisríkisins í Miðausturlöndum og öllum gyðingum?

Ef til vill er bara best að setjast á sófann með þjóðarmorðingjum og ræða Palestínuvandamálið (sjá hér). Enginn verður dreginn fyrir landsdóm fyrir slíkar öfgar, öfugt við þá sem sáust með Hitler á sínum tíma.

Er ekki við hæfi að senda eina vinsælustu írönsku kvikmyndina á síðustu árum í Sjónvarpinu. Ég hef sett kynningu efst. Myndin styður greininga stefnu utanríkisráðherrans og ríkisstjórnarinnar á Íslandi sem er í góðu stjórnmálasambandi við Íran, en hefur hins vegar margoft rætt um/hótað að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.

Imba og Assad

Fólk sem hagar sér eins og svín - 3. hluti

 

Í hópi þeirra sem skrifuðu undir þessa einkennilegu yfirlýsingu 81 háskólaborgara á Íslandi árið 2003, sem ég fjallaði um í síðustu færslu, er íslenskur prófessor í mannfræði. Það gerði líka annar íslenskur prófessor sem var dóttir nasista. 

Íslenskir háskólamenn óttuðust árið 2003 þjóðarhreinsanir Ísraela. Gyðingar voru í hugum þessa fólks líklegastir til þjóðernishreinsanna.

Þó svo að ég hafi í síðustu færslum mínum um fólk sem hagar sér eins og svín vegna hugsjóna sinna, fárast yfir frumstæðni fárra Íslendinga sem halda að svínaúrgangur séu mótefni gegn Íslam og moskum, er ég ekki fæddur í gær. Ástæðan fyrir því að ég er fylgjandi bygginu moska á Íslandi er sú von mín, að í þeim verði ekki predikað það hatur og sú mannfyrirlitning sem því miður er predikuð  svo mörgum moskum heims. Það hatur fer ekki leynt. 

Ég er heldur ekki blindur og heilaþveginn eins og mannfræðiprófessorinn sem talaði í síðdegisútvarpinu á RÚV sl. fimmtudag. Efnið var kynþáttafordómar og snerist umræðan fljótt upp í að múslímar væru helstu fórnarlömb slíkra fordóma í nútímanum.

Unnur Dís
Unnur Dís Skaptadóttir

 

Mér er næst að halda, að mannfræðiprófessorinn Unnur Dís Skaptadóttir hafi talað gegn betri vitund, nema að hún sé haldin alvarlegum þekkingarskorti. Hún hélt því nefnilega fram að ofsóknir gegn múslímum á okkar tímum væru eins og gyðingaofsóknir nasista. Hún hélt því einnig fram að birtingarmynd hatursins gegn múslímum í Evrópu á okkar tímum væri alveg eins og myndmál nasista gegn gyðingum á síðustu öld. Engin furða þegar maður sé hvaða hatursplagg hún undirritaði árið 2003.

Hatur hluta hins íslamska heims gegn t.d. gyðingum, kristnum (t.d. Armenum og Koptum), vestrænni menningu, BNA, svo og kynþáttahatur í garð þeldökkra múslíma í Afríku, er rógróið í menningu sem og í trúarbrögðunum Íslam. Ef mannfræðiprófessor við íslenskan háskóla veit það ekki, ætti háskólinn sem ráðið hefur prófessorinn að athuga sitt ráð. Það er miklu meira áhyggjuefni fyrir hinn íslenska akademíska "heim"en heimildanotkun Hannes Hólmsteinss Gissurarsonar sem fárast var svo mikið yfir hér um árið að maður gat haldið að fólk væri með Hannes á heilanum.

Það er einfaldlega ekki rétt hjá Unni Dís Skaptadóttur, að eðli og birtingamynd haturs í garð múslíma í Evrópu í dag sé það sama og birtingarmynd haturs nasista í garð gyðinga á síðustu öld og fyrr. Það er alvarleg sögufölsun.

Myndmál öfgamúslíma gegnum síðustu 60 árin í þeirra heimalöndum sem og í Evrópu, þangað sem þeir hafa flutt eða flúið, myndmál haturs sem m.a. beinist gegn þeim hópi fólks sem þeir hata mest, er alveg eins og myndmál haturs nasista á gyðingum. Múslímar birtu og birta enn skopmyndir í anda der Stürmer og annarra nasistablaða. Öfgamúslímar hata nefnilega sama hópinn og nasistar og margir þeirra vilja í ofanálag útríma þjóðríki gyðinga og gyðinga hvar sem þá er að finna. Múslímar í Danmörku voru fyrir nokkrum árum dæmdir til fangelsisvistar fyrir að lýsa yfir slíkum kenndum.

Ef dr. Unnur Dís Skaptadóttir kennir nemendum sínum það sem hún sagði á fimmtudaginn var í síðdegisútvarpinu, þá er hún ekki að miðla fræðilegri umræðu, heldur aðeins yfirborðskenndum tilfinningum sínum sem lýsa alvarlegum þekkingarskorti á minnihlutahópum og þjáningum þeirra undan ofstæki fasískra meirihlutahópa, sem stunda þjóðarmorð í nafni öfgafullrar hugsjónar eða öfgafullrar útleggingar á trúarbrögðum.

Vitanlega er myndmál og eðli haturs ákveðinna hópa í garð múslíma jafn ógeðfellt og hatur öfgamúslíma í garð gyðinga og Ísraels, en það er ekki eins og myndmál og eðli haturs í garð gyðinga eins og það sýndi sig hjá nasistum á fyrri hluta 20. aldar.  Það hatur hafa öfgafullir múslímar einfaldlega fengið að láni og hafa notað grimmt. Maður hefur ekki getað opnað dagblað í hinum múslímska heimi eftir 1940 án þess að sjá það hatur í máli og myndum.

Reyndar notuðu Rússar og önnur ráðsstjórnarríki einnig sama myndmálið. Myndir sem birts höfðu í Nasistablöðum voru endurnotaðar í Pravda og síðan í Al Ahram og öðrum blöðum í miðausturlöndum. Nasistar nútímans afneita þjóðarmorðum nasista og múslímar gera það sama, t.d. þjóðarmorðinu á Armenum árið 1915. Utanríkisráðherra Tyrklands hló nýlega framan í hinn siðmenntað heim um daginn í Sviss og afneitaði þjóðarmorði Tyrkja. Tyrkneski ráðherran sýnir okkur líklega hlægjandi hvar næsta þjóðarmorð mun eiga sér stað í heiminum. Fasismi sá sem við sjáum um gjörvallan heim Íslams getur vart endað í öðru.

Við höfum þegar séð slátrunina í Darfúr. Dyggur stuðningur við fjöldamorð og þjóðarmorð múslíma, t.d. nú á Sýrlandi, kemur frá Pútín keisara í Rússlandi og frá Kína. Það skýrir á vissan hátt þann stuðning sem vinstri menn sýna Öfgaíslam, þar sem þeir afneita hlutum sem gerast fyrir framan augunum á okkur og kenna Ísrael og gyðingum um allt saman. Öfgamúslímar og vinstri menn sem telja sig eiga einkarétt á sannleika og réttlæti eru einfaldlega hættulegustu vopnabræður nútímans.

Ef Unnur Dís Skaptadóttir hefur ekki grundvallarþekkingu á eðli og birtingarmyndir versta kynþáttahatursins í Evrópu á 20. og 21. öld er illt í efni. Mjög mikið hefur verið skrifað um efnið, en það virðist greinilega hafa farið fram hjá prófessornum á Íslandi, nema að hún hafi pólitíska eða hugsjónalega ástæðu til að látast ekki þekkja eða vita þegar hún talar í síðdegisútvarp RÚV. Í ljósi þess að hún hefur tekið þátt í hatursáróðri ráðlegg henni að sækja sér ólaunaðs leyfis og leita sér betri menntunar. 

Pólitísk rétthugsun og lýðskrum mannfræðiprófessorssin í Ríkisútvarpi finnst mér alveg eins alvarlegur hlutur og þegar einhverjir öfgaasnar grafa svínaúrgang í grunna þeirra lóða sem valdar hafa verið fyrir mosku.

Ég vona að þessar tvær myndir frá YouTube gefi mannfræðingnum betri yfirsýn yfir það hatur sem vinstri menn á Íslandi hafa enn ekki gefið upp á bátinn.


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband