Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Ormagryfjan í Valhöll

 

Vilhjálmur í Valhöll

 

Nú er Vilhjálmsfóbían komin á hættuleg stig í Sjálfræðisflokknum. Nafni minn má nú ekki sjást í ýmsum hverfum borgarinnar. Fólk er hætt að tala við hann. Eitthvað hverfafélag vill ekki sjá hann sem borgarstjóra og fólk er hægt að skíra börnin sín Vilhjálm.

Hverfafélag. Það hljómar nú annars eins og eitthvað úr Moskvu á 6. áratugnum. "Hverfafélagið Stjarnan harmar að Samfylkingin sé í fýlu" og "hverfafélagið Hvöt hvetur hverfiskonur að láta Vilhjálm hverfa hvað í hverju, Kveðja Hanna". 

Nú er orðið opinbert, það sem svo sem áður var vitað, að það er kvennabylting, einhvers konar hystería, í gangi í Sjálfstæðisflokknum eins og annars staðar í þjóðfélaginu. "We can do it without a Willy".

Hanna Birna - eina blondínan í boði. Ekki er ástandið gott. Ætla konur virkilega að gera gamlan gaflara að borgastjóra í Reykjavík?

Innri baráttan í Sjálfstæðisflokknum er greinilega miklu eitraðri en 1000 flokksbundnir blaðamenn í Vinstri Grænum.

 


mbl.is Hverfafélag vill ekki Vilhjálm sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísindavefurinn svarar

 

Gyðingur

Tvo menntskælinga langaði árið 2006 mjög mikið til að fræðast um uppruna og aldur orðsins gyðingur. Þeir sendu þess vegna spurningu um það til Vísindavefs HÍ.  

Spurningunni var beint til Guðrúnar Kvarans prófessors, forstöðumanns Orðabókar Háskólans.

Guðrún greindi ekki frá heimildum fyrir notkun orðsins gyðingur, en hafði aftur á móti þessa skýringu fram að færa:

"Neikvæða merkingin í júði á líklegast rætur að rekja til þess að gyðingar sem stunduðu viðskipti víða um heim á síðari öldum, þóttu erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar og efnuðust oft vel. Þetta litu aðrir hornauga og farið var að nota jew, jøde, júði í neikvæðum tón um kaupsýslumenn af gyðingaættum. Hin neikvæða merking sem Jude fékk í Þýskalandi á árunum milli stríða og í síðari heimsstyrjöldinni er af öðrum toga og var tímabundin. Hún náði yfir allt fólk af gyðingaættum, ekki aðeins kaupsýslumenn"

Ég hef áður séð fræðilegar strandsiglingar á Vísindavefnum, en þetta svar Guðrúnar Kvarans er eitt svæsnasta dæmið sem ég hef séð.

Hin neikvæða merking Jude, sem nasistar gáfu orðinu, lifir góðu lífi, meðal annars á Íslandi. Á Íslandi hefur orðinu gyðingur líka verið núið um nasir danskra kaupmanna sem illyrði, þó svo að  þeir væru ekki hið minnsta gyðinglegir. Svo sér maður meira að segja nokkra kolruglaða afkomendur þessara dansk-holsteinsku ætta gagnrýna Ísrael með þeim rökum að þeir megi það vegna þess þeir séu af gyðingaættum.

Þegar 80% Austurríkismanna nútímans líkar ekki við gyðinga (Juden), er víst ekki mikið sem hefur breyst frá tímum Hitlers og þeirra sem heilluðust af honum. Þegar arabar og aðrir múslímar tala enn um Yahudi og tyrkir um Musavi sem asna, svín og apa og vilja útrýma þeim er ekkert nýtt undir sólinni. Löngu áður en orðin Jude, Juif eða Jew voru tengd okurkörlum, voru kirkjufeður,  biskupar og páfar búnir að kjöldraga gyðinga, svína þá til og ljúga öllu illu upp á þá í nafni trúar sinnar og heilagrar kirkju.

Það er kannski ekki nema von að velkristinn prófessor orðabókar á Íslandi sýni fullkomið þekkingarleysi á menningarsögu álfu þeirrar sem hún býr í, þegar hún er á þeirri skoðun að notkun orðanna gyðingur og júði hafi mótast af því að gyðingar hafi þótt "erfiðir viðfangs, verið nískir okurkarlar sem efnuðust vel". "Aðrir litu gyðinga hornauga" fyrir þetta segir Guðrún Kvaran. En ætli einhverjir kristnir menn hafi ekki líka verið erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar sem efnuðust vel. Get ég nefnt nokkrar alíslenskar ættir sem ættu þess vegna að vera gyðingar, þó þær séu nú fyrst og fremst komnar af hestaþjófum úr Húnavatnssýslu og hafi jafnvel í ættgarði sínum forystumenn í Flokki íslenskra Þjóðernissinna (nasista).

Ríkir gyðingar

"Það stendur hér Moshe, að það eigi að drepa okkur vegna þess að við erum svo nísk"

 

Margir þeirra sem litu gyðinga hornauga voru haldnir sjúklegri öfund í þeirra garð. Það var kennd sem taldist til erfðasyndanna. Það hefur hins vegar alltaf farið ofsögum af auð gyðinga og alla jafna voru 95% gyðinga í löndum Evrópu mun fátækari en kristnir borgarar álfunnar. Flestir gyðingar í Póllandi á 20 öld voru undir fátækramörkum. Í Hollandi var prósentan mjög há upp úr aldamótunum 1900.

Hindranir sem lagðar voru í götu gyðinga af ríkjum og kirkju, ásamt hatri og ofsóknum eru skýringarnar á því hvernig fólk talar enn á ógeðfelldan hátt um gyðinga. Þær ofsóknir ásamt kór vinstri öfgamanna, sem í raun kalla á eyðingu Ísraelsríkis þótt þeir þykist tala um frið í Miðausturlönd, valda því að eins ágætt orð og gyðingur er orðið skammaryrði meðal unglinga í ofeyðslu- og allsnægtaþjóðfélaginu á Íslandi. Ekki hjálpar það þegar Háskóli Íslands getur ekki gefið svar við einföldum spurningum án þess að framreiða gamlar rasistaklisjur.


Hátt upp í himininn, fljúga skal ... belgurinn

Le Tomate Reykjavík 1957

 

Í fyrra voru liðin 50 ár síðan flugbelg var fyrst flogið yfir Íslandi. Fyrsta lofbelgsflugið á Íslandi fór fram 23. júní 1957.

Loftbelgir hafa ekki orðið stór dilla meðal Íslendinga.  Sennilega er mjög erfitt að fljúga loftbelg á Íslandi vegna óstöðugleika í veðri. Það er líklega ástæðan fyrir því að Ómar Ragnarsson valdi að fljúga flugvél og flýta þannig fyrir heimshitnuninni margumtöluðu.

Ég her aldrei flogið í loftbelg og mun aldrei gera það til neyddur, vegna þess að ég er lofthræddur og lafhræddur ef mér er lyft hærra en tvo metra frá jörðu. 

Þó svo að ég hafi ekki einu sinni verið fæddur árið 1957, hef ég nú samt sagt frá fyrsta ballónfluginu á Íslandi í máli og myndum. Það geri ég í febrúarheftinu af hinu ágæta tímariti Sagan Öll sem er nýútkomið að því er Illugi ritstjóri sagði mér í dag.

Allir flugáhugamenn, sem og frímerkjasafnarar og fagrar konur verða að kaupa Söguna Alla, ef þau vilja vita allt um belgflugið árið 1957. Þar er víst að finna ýmis konar annan fróðleik sem ætti að höfða til allra hinna.

Sagan Öll, í bomsurnar og út í næstu búð og kaupa, kaupa, kaupa....


Skrifuðu íslensk skáld um helförina?

  
Nazi Iceland

 

Ég fékk nýverið bréf frá stúdent í Vín, sem lesið hafði bók mína. Hann vinnur að doktorsverkefni um helför (gyðinga) í bókmenntum (þ.e.a.s. fagurbókmenntum og ekki í fræðiritum) eftirstríðsáranna, sérstaklega á Norðurlöndunum.

Ég mun vísa honum á sérfræðinga á Norðurlöndum sem ég þekki, sem ég veit að geta svarað spurningu hans varðandi Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland miklu betur en ég get. 

En þegar ég fór að reyna að muna hvort einhverjar íslenskar skáldsögur, ljóð og aðrar listir hefðu fjallað um helförina, þó það væri ekki nema lína eða eitt málverk, reyndist minni mitt ekki vera hjálplegt.  Ég veit að Einar Hákonarson listmálari fór ungur til Auschwitz og varð fyrir miklum áhrifum af þeirri ferð. En hvort hann hefur beinlínis skapað verk sem tengjast þeirri för, veit ég ekki.

Einar heitinn Heimisson skrifað hina ágætu bók "Götuvísa gyðingsins", sem var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Svo eru auðvitað til aðrir sem misþyrma listagyðjunni og kalla sig listamenn og nota listina eins og menn gerðu forðum í Sovét.

Eysteinn heitir ungur maður fyrir austan. Eins og er, er hann sjóari og hugsuður og meira að segja bloggari. Hann hefur skrifað þetta á Ljóð.is.

Kæri Adolf sárt vér söknum þín
Senn er mál að efla hreina stofninn
Úr Jerúsalem rek
ja júðasvín
Og
jafnvel byrja að kynda gamla ofninn

Get ég sent þessa "ljóðlist" að austan til Vín? Er ekki eitthvað annað til?  Hvað með þig Þórarinn Eldjárn, eða Arnaldur Indriða? Eða eruð þið bara í frumskógarferð í kuskinu í naflanum á sjálfum ykkur?

Ég get auðvitað sent austurríska stúdentnum glás af íslenskum lofsöng og listsköpun um hryðjuverkastarfsemi í Palestínu, en ég held hann hafi ekki áhuga á því.

Hjálpið mér, þið sem eruð betur lesin á íslenskar bókmenntir en ég.


Brennum skólana !

 
Tingbjerg Skole

 

Að sögn yfirvalda í Danmörku hafa að minnsta kosti 10 skólar orðið eldi að bráð síðustu daga. Í gærkvöldi og í nótt hefur Tingbjerg Skole í Kaupmannahöfn brunnið og dagheimili í Árósum, svo eitthvað sé nefnt. Svo var líka kveikt í handan við hornið, þar sem ég bý.

Myndin hér að ofan er frá Tingbjerg Skole í Brønshøj. Börnin er greinilega flest innflytjendabörn.

Hér getið þið séð kynningarmynd nemendanna um skólann. Bakgrunnstónlistinn er gangsterrap innflytjendahljómsveitar sem kallar sig Block 27. Meðlimirnir hljómsveitarinnar eru allir fæddir í Danmörku og hafa verið í Tingbjerg Skole. Lagið sem þeir syngja "Nu er det min tur at kommet til tops" inniheldur t.d. þetta:  "for os er der ikke nogen lov" (engin lög gilda fyrir okkur), "det er os der har magten" (það erum við sem erum við völd) og "vi er på vej til tops" (við erum á leið á toppinn).  Hvaða aðferðir ætla þessir ungu menn að nota til þess að komast á toppinn. Menntun eða lögleysu?

Danska sjónvarpið sýndi í gær bókasafn í dönskum skóla. Brotist hafði verið inn í bókasafnið og bensíni hellt yfir þorra bókanna. Reynt var að kveikja í, en eldurinn var slökktur áður en hann náði að breiðast út. Fjöldi bóka var eyðilagður með bensíni. Þegar bækur eru brenndar, hugsa ég til bókabrenna nasista.

Múhameðsteikningar, lélegt uppeldi, danska þjóðfélagið eða eiturlyfjastríð? Mér er alveg sama hver ástæðan er. Bókabrennur og skólabrennur eru verk villimanna, sem ekki vilja skóla, menntun og lýðræði.

Gyðingar voru einu sinni flóttamenn/innflytjendur í Danmörku. Ekki fóru þeir um og kveiktu í. Víetnamar voru fyrir skemmstu flóttamenn í Danmörku. Ekki fara þeir um og brenna. Ungverjar voru til friðs og það sama er hægt að segja um Tamíla, og svo framvegis. Íslam er samnefnari þeirra sem nú brenna skóla í Danmörku.  Ekki útiloka ég að aðrir þættir séu fyrir hendi. En meginástæðan sem nú er gefin, þótt hún hafi verið önnur í byrjun, er birting mynda af Múhameð.  

Bókabrennur Bókabrennur nasista 

Þegar gyðingar voru flóttamenn í Danmörku á 4. og 5. áratug síðustu aldar voru ekki einu sinni til stjórnmálaflokkar sem heils hugar reyndu að koma í veg fyrir að þeim yrði vísað úr landi.

Nú er hins vegar öldin önnur. Allt ætlar að verða vitlaust þegar tveir Túnismenn eru handsamaðir. Handtaka þeirra er vegna meintrar tilraunar til að myrða skopmyndateiknara. Konur þeirra sem þeir hafa klætt í svarta poka í nafni trúarinnar, segja að þeir séu alsaklausir. En þær vissu víst ekki að þeir lifðu tvöföldu lífi meðan að útsýnið þeirra var skert undir kuflinum. .

Radikale Venstre, sá flokkur sem á heiðurinn að samvinnu Dana við nasista í síðari heimsstyrjöld, berst nú fyrir því að mennirnir frá Túnis fáið að vera áfram í Danmörku. Hryðjuverkamenn nasista voru líka boðnir velkomnir af Radikale Venstre.

Gyðingar hafa reyndar á síðustu árum verið lagðir i einelti í þeim hverfum þar sem óeirðirnar eru verstar nú. Mig minnir að stjórnmálamaður í flokki Radikale Ventre hafi mælt með því að gyðingar "ættu ekki að ögra með því að ganga með kollhúfur sínar" um götur borgarinnar. Er einhver sem leggur til múslíma með hnífi vegna þess að þeir ganga í fötum sem sýna trú þeirra?

Er verið að brenna danska skóla fyrir tvo vafasama karaktera frá Túnis eða ásjónu Múhameðs?

Hvað mynduð þið Íslendingar góðir, sem eruð svo skilningsríkir og eruð að eigin sögn svo góðir við útlendinga, gera ef skólarnir ykkar væru brenndir til kaldra kola vegna teikninga í dagblaði - eða bara einhvers annars????

HVAÐ MYNDUÐ ÞIÐ GERA? 

 


Kaupmannahöfn brennur

 
Kaupmannahöfn brennur

 

Og nú er bálið komið svo að segja heim til mín. Meðan ég sat við skriftir fann ég allt í einu brunalykt. Ég þefaði að öllu innandyra, en þar var allt með kyrrum kjörum. Svo opnaði ég hurð og sá ég þá fimm slökkviliðsbíla, lögreglu, eldtungur og reykhaf. Reykurinn og fnykurinn barst beint að húsinu okkar. Þegar ég skrifa þessi orð brennur hús umsjónarmanns hverfisins og endurnýtingarstöð handan við hornið minna en 100 metra í burtu. Það verður líklega ekki hægt að fara með pappa í endurvinnslu á morgun.

Var þessi íkveikja framin í nafni hins ófrýnilega Múhameðs, sem enginn má sjá, en sem allir sjá hvort sem er - ef þeir vilja?  Eða var bálið kynt vegna þess að innflytjendagengi  eru reið yfir því að danska lögreglan vill herða á löggæslu út af eiturlyfjasölu? Eldurinn er sá sami. Þeir sem kveikja hann gera það í nafni spámannsins sem ekki má sjást. En eldurinn sést.


Happy Birthday Gene !

Gene 

Í dag verður vinur minn Eugene Katz 92 ára. Ég óska afmælis"barninu" innilega til hamingju með afmælið.

Eugene Katz, sem býr í Napa í Kaliforníu, er mikilvæg persóna í bók minni Medaljens Bagside (2005). Bókin fjallar fyrst og fremst um fólk sem var myrt eftir að dönsk yfirvöld vísuðu því úr landi. Eugene var einn þeirra heppnu. Hann flýði til Danmörku á aðfangadag jóla árið 1938 en var vísað úr landi af dönskum yfirvöldum þann 31. desember 1938.

Árið 1938 var hann bakaralærlingur í Bremen og hét þá Egon. Hann lenti í smá umferðaslysi. Mótorhjóli, sem hann ók nýbökuðu brauði og kökum út til viðskiptavina bakarísins í Bremen á, ók hann óvart utan í mótorhjól SS-liða. Hann var handsamaður og dreginn fyrir dómara og sektaður. Upphæð sektarinnar var úr öllu samhengi við skaðann  Eitt sinn þegar Egon var ekki heima, kom Gestapo til að ná í hann. Þegar hann frétti það, tók hann það ráð að flýja strax til Hamborgar og þaðan til Danmerkur.

Þegar hann kom til Kaupmannahafnar eftir ævitýraríka ferð, gaf hann sig fram við yfirvöld. Hann átti hins vegar enga möguleika á því að fá náð fyrir augum danskra lögreglumanna. Hann hafði ekki neina pappíra eða meðmæli, t.d. frá þýskum sósíaldemókrötum, eins og annar ungur maður sem fór með honum á stöðina. Sá fékk að vera í Danmörku og fékk meira að segja að læra sama fag og hann hafði þegar lært í Þýskalandi. En Egon var "bara" bakarasveinn á flótta undan stormsveitunum. Meira að segja menn í forsvari gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn mæltu með því að honum yrði hent út. Einn þeirra, rabbínalærður bókavörður, Fischer að nafn, sagði við Egon Katz: "Heldur þú að hægt sé að leysa vandamál þín með því að koma hingað og vera okkur til ama". Fischer þessi hringdi svo í lögregluna og mælti með því að Egon yrði hent úr landi.

Eftir að Egon Katz hafði verið fleygt á dyr í Danmörku hélt hann aftur til Bremen, þar sem hann var tekinn fastur. Fyrir hjálp vina og bróður síns slapp hann að lokum úr prísundinni og úr landi. Leiðin lá til Ítalíu og með honum í för var bróðir hans Bruno og systir Cecilia. Frá Ítalíu lá leiðin til Shjanghæ í Kína, þar sem hann starfaði í tveimum bakaríum á stríðsárunum. Móðir Egons, Julie, og tvær systur, Gertrud og Leni komust ekki í burt í tæka tíð og voru yrtar í Helförinni.

6

 Egon Katz áður en hann flýði til Danmörku 1938

5

  Egon Katz i Bremen 1938

Eftir heimsstyrjöldina fékk hann pláss á amerísku skipi og endaði sem stýrimaður í kaupskipaflota Bandaríkjahers. Að lokum fór hann í land í og lærði endurskoðun í kvöldskóla og starfaði sem endurskoðandi langt fram yfir þann aldur sem venjulegt fólk fer á eftirlaun.

Eugene hefur lifað ýmislegt af. Ofsóknir nasista, brottvísun frá Danmörku, stríðshrjáð Kína og krabbameinsæxli í höfði svo eitthvað sé talið. Hann er eins og kötturinn með sín níu líf.

Hann skrifaði mér nýlega bréf, því hann er hættur að nota tölvubréf, sem konan hans Elisabeth sér um. Hann hafði smá hósta en leið annars vel.

Ég lét bjóða þessum einstaka manni til Kaupmannahafnar árið 2001, á vegum stofnunar sem ég vann fyrir, þegar hann var á ferð í Bremen og heimsótti fæðingarbæ sinn í Þýskaland, Barntrop-Lippe. Það var skrifað um heimsókn hans í dönsku dagblöðin og hann kom fram í sjónvarpi. En Dönum þykir ekkert gaman að vera minntir á hvers konar skíthælar þeir hafa stundum verið, svo það er nú fallið í gleymskunnar dá.

Fyrir utan kaflann um Eugene Katz í bók minni, sem fyrst og fremst fjallar um erfiða dvöl hans í Danmörku, hefur tengdadóttir hans, Karen Ray, skrifað frjálslega um sögu hans í Þýskalandi fyrir flóttann til Danmerkur. Sagan kom út í unglingabókinni To Cross a Line  sem einnig hefur verið gefin út á þýsku með titlinum Teure Freiheit .


Kaffihús í Belgíu 2008

  Belgian Coffee

Marcel (Marc Mordechai) Kalmann fæddist í janúar 1945 í útrýmingarbúðunum Auschwitz, en er nú bandarískur þegn. Hann ólst upp í Hollandi eftir stríð en fluttist þaðan árið 1978. Hann var nýlega í Belgíu, þar sem hann brá sér á hið fræga kaffihúsið Le Panier d'Or i Brugge og bað um einn kaffibolla. Hann var eini gesturinn á  veitingahúsinu, en þar voru tveir þjónar og einn barþjónn. Einn þjónanna kom auga á að Marcel Kalmann var með bænahúfu gyðinga undir hatti sínum og öskraði allt í einu á hann: "Við þjónum ekki gyðingum hér, út - út með þig".

Marcel Kalmann fór undan í flæmingi, og gekk inn á næsta kaffihús, þar sem þjónn aumkaði sig yfir hann. Kalmann kom að sögn þjónsins grátandi inn til hans. Þjónninn, Dean Stalpaert, ráðlagði Kalmann að hafa samband við lögregluna. Hún neitaði að koma og Kalmann varð að fara 3 km leið til að tala við hana.

Þar tók ekki við miklu betri meðferð en á Le Panier d'Or . Lögreglukona dró það sem hann sagði í efa og yfirmaður hennar öskraði að Kalmann yrði að gefa skýrslu á flæmsku. Er Kalmann bað um að skýrsla væri tekin vegna kæru sem hann vildi setja fram vegna gyðingahaturs, upplýsti lögreglumaðurinn hann að slíkt fyrirbæri væri ekki til í Belgíu.

Þetta mál mun nú draga dilk á eftir sér. Marcel Kalmann hefur kært árásina til yfirvalda í Belgíu. Ferðamálayfirvöld í landinu eru miður sín út af því að Le Panier d'Or rukkaði Marcel Kalmann um 6,5 Evrur, eða 650 krónur, fyrir kaffið. Það er þrisvar sinnum dýrara en gengur og gerist fyrir kaffibollann í Belgíu. Ferðamálayfirvöldin hafa hins vegar ekki látið í ljós áhyggjur út af gyðingahatri sem menn eiga greinilega á hættu þegar þeir setjast til að fá sér kaffi á fínasta kaffihúsinu í Brugge í Belgíu.

Neðst á þessari síðu er hægt að horfa á frétt úr flæmsku sjónvarpi um atburðinn, en hann er einnig kominn út í heimsfréttirnar, en að sjálfsögðu ekki til kaffilandsins Íslands, þar sem öllum er þjónað.

 

Nazi café Brugge
Le Panier d'Hitler

Farsinn heldur áfram

 

Skákpáfi

Erfðamál Fischers enn eina ferðina.

Lögfræðingurinn Sammy Estimo segist vera að vinna í máli meintrar dóttur Fischers. Það gerir hann á mjög ótrúverðugan hátt. Hann byrjaði á því að vera tvísaga við filippseyska fjölmiðla um "síðasta símtalið". Annars vegar greindi hann frá því, að Bobby hafi hringt í Marilyn Young, meinta barnsmóður Fischers, daginn áður en hann dó, og að Marilyn væri miður sín yfir því að hafa ekki getað svarað. Hins vegar skýrði hann frá því í öðrum fjölmiðlum, að Fischer og Marilyn hefðu talað saman daginn áður en Fischer dó.

Nú greinir Inqurier á Filippseyjum frá því að Estimo þessi segi að einhver skákpáfi í Evrópu kunni að hafa svörin við öllum spurningu og lykilinn að síðustu ósk Fischers. Fischer á að hafa gefið einhverjum evrópskum stórmeistara fyrirmælin áður en hann dó:

"Before Bobby died, he called Marilyn (Young, Fischer's Filipino partner and the mother of his daughter) and said that if ever something happens to him, to call this person," said lawyer Sammy Estimo, an official of the National Chess Federation of the Philippines. "We believe he may hold the secret to Bobby's estate."

Skákmeistarinn Torre er nú að reyna að ná sambandi við þennan evrópska skákmeistara, sem getur afhjúpað hinsta vilja Bobby Fischers í erfðamálum.

Ja, hérna.......Fischer hafði sens fyrir leikrænan endi!

Estimo heldur nú einnig þessu fram:

"Marilyn is a kind-hearted woman and when she learned that Miyoko is staying in Iceland with a common friend of theirs, she decided to try and contact her to voice her desire to work out a settlement because this is what Bobby would have wanted," Estimo revealed.

Estimo hafði einnig sagt þetta við skákvefsíðu á Filippseyjum: „Marilyn er góðhjörtuð kona og er tilbúin til að deila dánarbúi Fischers með Watai... Hún veit að Watai og Fischer voru afar náin,"

Þegar ég las þetta, duttu mér allar dauðar lýs úr höfði. Filippseyski konsúllinn á Íslandi hefur tjáð mér að þegar Marilyn og Jinky voru á Íslandi árið 2005, hafi þær ekki getað búið hjá Bobby Fischer vegna Watai. Þeim var komið fyrir á gistiheimili að Brúnavegi 8. Þær voru hins vegar hræddar í því húsi og fengu því að búa hjá konsúlnum. Watai er greinilega ekki barngóð kona, eða eins góðhjörtuð og Marilyn, sem vill nú að sögn Estimos deila arfinum með skassinu Watai, sem ekki vildi leyfi barninu og móður þess að búa hjá föður sínum.

Sammy Estimo er líka dálítið skrítinn lögfræðingur. Hann segir nú, að það sé vilji móður Jinky að deila beri arfinum á milli hennar og Watai, en áður hefur hann sagt við Inquirer að hann sé í vafa um að Watai hafi gifst Fischer og upplýsti einnig að skákmeistarinn Torre hefði í hyggju að skrifa vottorð upp á það sama.

Ég held ekki að það sé hollt fyrir Jinky Young Fischer, að Sammy Estimo eða Torre séu að vasast í hennar málum. Greinilegt er að Sammy Estimo er umboðsmaður einhverra aðila á Íslandi, og talar um móður Jinky eins og hún sé erfinginn sem viljia deila arfinum á milli sín og Miyoko Watai.

Filippseysk og íslensk yfirvöld verða nú að grípa inni í þennan farsa. Skákmenn ættu ekki að vasast í þessum málum. Nokkrir þeirra hafa augsjáanlega gleymt, að maður þarf ekki að valda "drottningar" út í samfélaginu og þeir gleyma líka að "prinsessur" eru til fyrir utan taflborðið.

Peðin gleymast

Gagnauglýsing

Pain in the butt

Nú er aftur farið að auglýsa á blog.is. Kapítalisminn gefur og kapítalisminn tekur. En hver vill auglýsa á bloggi mínu? Það gæti komið ljótu orði á vöruna sem er verið að auglýsa. 

Þeir sem eru æfir út í auglýsingabáknið og vilja báknið burt, ættu að búa til mótauglýsingar. Það gæti hugsanlega fengið Mbl.is ofan af þessum ósið.

Burt með NOVA!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband