Leita í fréttum mbl.is

Kaupmannahöfn brennur

 
Kaupmannahöfn brennur

 

Og nú er bálið komið svo að segja heim til mín. Meðan ég sat við skriftir fann ég allt í einu brunalykt. Ég þefaði að öllu innandyra, en þar var allt með kyrrum kjörum. Svo opnaði ég hurð og sá ég þá fimm slökkviliðsbíla, lögreglu, eldtungur og reykhaf. Reykurinn og fnykurinn barst beint að húsinu okkar. Þegar ég skrifa þessi orð brennur hús umsjónarmanns hverfisins og endurnýtingarstöð handan við hornið minna en 100 metra í burtu. Það verður líklega ekki hægt að fara með pappa í endurvinnslu á morgun.

Var þessi íkveikja framin í nafni hins ófrýnilega Múhameðs, sem enginn má sjá, en sem allir sjá hvort sem er - ef þeir vilja?  Eða var bálið kynt vegna þess að innflytjendagengi  eru reið yfir því að danska lögreglan vill herða á löggæslu út af eiturlyfjasölu? Eldurinn er sá sami. Þeir sem kveikja hann gera það í nafni spámannsins sem ekki má sjást. En eldurinn sést.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Það fylgir ekki friður þessum Múhammeð, er Danmark for alle eller er Danmark for Allah? Spyr sá sem ekki veit.

Vilhjálmur hafðu þökk fyrir greinar þínar um Gyðinga, Guð blessi þig.

Aðalbjörn Leifsson, 16.2.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Aðalbjörn, ég held að Danmörk sér fyrir alla. Allah hefur alltaf verið velkominn enda Danir mjög gestrisin þjóð, þótt öðru sé haldið fram. En fylgismenn hans og stríðsherrans Múhameðs eiga það til að draga þá inn í allt sem þeir gera, bæði gott og vont. Guð á ekki að vera afsökun fyrir gerðum mannanna og ég held að það standi líka í Kóraninum. Menn eru hins vegar misjafnlega vel læsir.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.2.2008 kl. 21:08

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þú ert nú sá fyrsti sem ég sé setja málið í þennan eiturlyfjagengis-vínkil, hér á landi hefur að minnsta kosti ekki frést um hann, aðeins haldið fram að þetta sé allt út af myndunum alræmdu.

Jón Arnar, sem býr í sömu borg og þú, vill meina að vandamálið sé fyrst og fremst unglingavandamál...það er að segja annarar-kynslóðar-innflytjenda-unglinga???

Einhvern veginn sé ég það ekki fyrir mér sem stíl eiturlyfjagengja að fara um og brenna bíla og kveikja í húsum...

Sem betur fer virðast þó íbúðarhús látin í friði í þessum róstum. Því miður ekki svo vel sunnar í álfunni, þar sem nýnasistar hafa brennt fólk inni sem þeir höfðu ekki mætur á. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.2.2008 kl. 03:47

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Horfðu á þetta Greta:

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397836/1

Fréttirnar eru mataðar niður í ykkur á Íslandi. Og það á uppsprengdu verði eins og allt annað. Og þið segið ekki neitt. Alveg eins og þegar þar er óskýranleg hækkun á nauðsynjavöru í Bónus.

Aðeins einu sinni, í byrjun sjónvarpsfrétta RÚV, þann 14. febrúar, var hin eiginlega ástæða fyrir uppþotunum nefnd. Kannski vegna þess að RÚV hafði varla sagt frá málinu áður. Síðan hafa íslenskar fréttastofur sniðgengið þá ástæðu og nú er það atburður sem átti sér stað 4 dögum eftir að róstur byrjaði sem er kennt um.

Líklega er Jón Arnar, sem þú nefnir, ekki búinn að læra dönskuna nógu vel til að lesa það sem gerist hér í landi. Ég hef búið hér í meira eða minna í 27 ár og hef séð hvað er að gerast. Danir eiga að sjálfsögðu sök á ýmsu, en Íslamofasisminn er auðveld afsökun sem þessi ungmenni nota til hefja sig upp. Fyrirmyndina hafa þau úr heimi trúar sinnar, en aðferðirnar eru að hluta til sóttar til smiðju vinstri manna af 68 kynslóðinni. Ég kenni, sem sagt, ekki neinu einu um. Það eru margar skýringar.

En eitt er víst. Óöldin byrjaði ekki vegna múhameðsteikninga, og eins og einn múftinn í Kbh. reyndi að segja við ungmennin: "Múhameð segir ekki að menn eigi að brenna bíla".

Þegar ungmennin sjálf segja ástæðuna fyrir því að þau gengu  berserksgang fyrir rúmri viku séu eyturlyfjaeftirlitið og mótmæli við lögreglu, þá verð ég að taka það trúanlega.

Vandamál ungra innflytjenda eru ekki sköpuð af Dönum eða þeirri ríkisstjórn sem nú eru við völd. Þeir hafa fengið sömu skólagöngu og aðrir (sem reyndar er léleg, því danskt skólakerfi er lélegt), þeir fengu og fá sérkennslu, þeir fá og hafa fengið sérhjálp; Alla aðstoð sem eitt besta velferðaþjóðfélag heims getur gefið. Þeir tala betri dönsku en margir Íslendingar, en þeir geta greinilega ekki stýrt lífi sínu. Annað fólk sem er atvinnulaust, gengur ekki um og kveikir í. (Kannski ætti ég að fara að gera það).

Nú er þetta orðin blanda, sem byrjaði með því að mjög valdamiklar og öfgafullar mafíur hér í landi (sem sumar hverjar selja dauðann í nafni Allah), hófu skipulagðar óeirðir og skemmdaverk. Þessar mafíur er mjög öflugar og eru búnar að vinna baraáttuna um eiturlyfjamarkaðinn við mótorhjólamafíurnar. Svo er Múhameð blessuðum, nauðugum viljugum, blandað í kokteillinn og hann verður bitur.

Sumt fólk sem þarf að horfa upp á þetta er haldið escapisma, veruleikaflótta, og setur fram allar aðrar skýringar en þær sem eru handbærar. Maður sér meira segja fólk sem kennir fjölmiðlum um og heimtar að danskir fjölmiðlar hætti að segja frá því sem gerist í þjóðfélaginu. Það fólk heimtar ekki aðeins að það megi ekki birta myndir af Múhameð, heldur krefst þessa að hætt verði segja frá glæpum innflytjenda, sem eru nú í miklum meirihluta í Danmörku.

Horfðu svo á þessa RÚV frétt frá því í gær : http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397838/4

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.2.2008 kl. 07:48

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Nú skil ég betur hvað þú átt við þegar þú segir: En eldurinn sést!

Hvernig eigum við hér uppi á Íslandi að geta skilið hvað er að gerast út frá þeim endemis fréttaskýringum (eða skorti á þeim) sem við fáum hér í fjölmiðlum? Það væri kapituli út af fyrir sig að skrifa um það.

Það er ekki ofsögum sagt af einfölduninni í fréttaflutningi hér á landi, það segirðu satt.  Þú skilur kannski hvers vegna mér fannst erfitt að  sífellt var ætlast til að maður væri að diskútera innflytjendamál í Danmörku hér um árið í dönskunáminu mínu - þar sem mér fannst ég ekki hafi neinar forsendur til þess og allt sem ég segði yrði meira og minna innhaldslaust blaður byggt á vanþekkingu og misskilningi. Kannski var ég bara svona neikvæð, vegna þess að ég hélt ekki að slíkt væri innifalið í tungumálanámi. En það að fræðast um málefni þjóðarinnar er víst innifalið í slíku námi og "indvandrerproblemerne" tekur greinilega sífellt stærri skerf í umræðunni um þjóðmál í Danaveldi.

Vilhjálmur, þaka þér fyrir þessan fróðleik. Ég þarf að horfa á þetta sem þú gefur tengla á og melta þetta betur, áður en ég segi meira.

Augljóslega er þó hér um að ræða ungt fólk sem lendir í klemmu milli tveggja hugmyndaheima, rótlaust og veit ekki í hvorn fótinn það á að stíga og útkoman er þessi, íkveikjur og "ballade". Guð og Allah (og Jahve, því þessir þrír eru einn) veri oss og öllum náðugur!

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.2.2008 kl. 13:25

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæl Greta, ekkert í heiminum hefur eina ástæðu. En sumar ástæður geta verið þyngri á vogaskálunum en aðrar.

Hljómaði þetta ekki eins og Konfutse.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.2.2008 kl. 15:19

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Jú, spakur ertu, Vilhjálmur!

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.2.2008 kl. 17:51

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Vilhjálmur, af því að efaðist hér að framan um að Jón Arnar skilji dönsku nógu vel til að skilja hvað er að gerast í kringum hann vil ég koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Þetta skrifaði hann mér þegar ég spurði hann að því hvernig stæði á því að Dani (af því hann sagði alltaf "við" í athugasemdum sínum þegar hann talaði um Dani) héti íslensku nafni og skrifað svona góða íslensku:

"Er fæddur á Íslandi og hef búið erlendis í bráðum 50% af mínu lífi + að ég átti pabba sem bjó hér frá því ég var 13ára  því tel ég mig Dana nú er ég bý í DK Nordmann er ég bjó í Norge og Ísl er ég bjó á Íslandi"

Greta Björg Úlfsdóttir, 17.2.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband