Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
13.11.2008 | 17:32
Norska kjaftakerlingin og forsetinn
Ólafur Ragnar Grímsson gasprar of mikið. Það er víst auðvelt að vera sammála um það. Hann hefur hins vegar hitt ofhjarl sinn í hádegisverðarboði í danska sendiráðinu í Reykjavík. Hádegisverðarboð í danska sendiráðinu hafa oft verið hættuleg íslenskum embættismönnum og hef ég skrifað færslu um það áður, sem ég hvet menn til að lesa. Vinsæll réttur í sendiráðinu var "tunga í gelé".
Norska senditíkin á íslandi, Margit Tveiten, er líklega komin af sama stofni og Gróa á Leiti. Óli og Tveiten á Leiti voru boðin í veislu í danska sendiráðinu, og andstætt því sem gengur og gerist í diplómatíu er þessi Tveity lady frá Norge hálfgerð fréttastöð á stuttbylgju. Ef Tveiten veit það, þá veit öll sveitin það.
Ég mæli með því að Óli loki rifunni meira en hann er vanur og að norsk yfirvöld kalli kvendiplómatann heim í endurskólun. Ég er persónulega á móti því að konur gegni háum stöðum í utanríkisþjónustu. Ingibjörg Sólrún er greinilega ekki sammála því. Nú þegar hún er að "spara" í ráðuneytinu, ræður hún stelpuna sem hún hélt úti í New York til að fremja gjörninga svo sem pönnukökubakstur, svo að Íslendingar gætu komist í Öryggisráðið. Pönnsubakarinn frá New York er nú orðinn sendiherra fyrir að eyða hundruðum milljóna í ekkert. Flott!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.11.2008 | 12:59
Nýr hundur í Hvíta Húsið af íslenskum ættum
Barach Obama næsti forseti BNA er búinn að finna sér hund sem ekki veldur ofnæmi. Þetta er alíslenskur hundur, Snati, sem unnið hefur til fjölmargra verðlauna vestra, m.a. fyrir að hafa ofnæmi fyrir fólki. Að sama skapi veldur Snati ekki ofnæmi hjá mannfólkinu. Snati er mjög greindur hundur. Hann hefur t.d. gefið út skáldsögu. Beinabygging hans þykir um margt svipa til mannfólksins. Hann er meðallanghöfði.
Snati er söngelskur, góður við börn og hefur áhuga á þyrlum. Hann hefur vakið athygli fyrir verk sín í Oregon. Ekki er enn vitað hver þau eru. Hann tilheyrir ekki neinum þrýstihópi. Hann er rólegur, spyr ekki spurninga og tekur sér langan tíma til að gelta. Hann bítur ekki í annað en bein sem otað er að honum. Varast ber þó að láta Snata annast bankaviðskipti. Þegar hann er kátur á hann það til að offjárfesta og taka lán sem hann getur alls ekki borgað. Hann verður oft mjög hátíðlegur á góðri stundu og telur sig geta gengt hlutverki á meðal bílanna. Sérstakur ráðgjafi verður ráðinn til að annars öll bankaviðskipti Snata meðan hann býr í Hvíta Húsinu.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2008 | 11:40
Vaselín- og Vodkadraumur
Þótt fréttir af hádegisverðarfundi Ólafs Ragnars á föstudaginn var séu afar óljósar og óstaðfestar, er auðvitað einkar athyglisverð tenging rússaláns við herstöðina á Miðnesheiði. Vonandi er ekki komið kalt stríð í miðri alheimshitnuninni. Menn spyrja sig náttúrulega, hvor slagorðið verði , Ísland úr NATÓ og rússneska herinn upp á Völl.
Þeir sem vilja gerast rússamellur, ættu kannski að fara að taka fram vaselínið og vodkann. Rúblureikninga og vodkaverðbréf. 10% þjóðarinnar getur lagst í vímu eins og góðum Rússum er einum lagið.
Nei, þetta er martröð í svarthvítu, með rússneskum herstöðvum og olíuvinnslum, stóriðnaði og gaffalbitum í matinn. Ef ég væri sálfræðingur, sem ég er sem betur fer ekki, myndi ég kalla þessi meintu viðbrögð Ólafs Ragnars Post Traumatic Stress. Þeir sem hafa valdið þessu ástandi hjá Óla eru gamlir kunningjar hans og ganga þeir enn lausir. Líklega er orðið tímabært að hneppa slatta af þeim í varðhald, þangað til málin verða rannsökuð niður í kjölinn.
Danir hafa verið mjög harðir við nokkra fjárglæframenn eins og Riskjær og Thorsen. Á Íslandi urðu á nokkrum árum til 200 karakterar af sömu gerð og þessir dönsku glæpamenn. Danir notuðu engin vettlingatök á þá og vörpuðum þeim í fangelsi. Við verðum að beita sömu aðferðum. Það ganga menn lausir sem eyðilagt hafa Íslenska lýðveldið svo mikið, að menn eru að rausa um nána vináttu við Pútín-Rússland. Er hægt að leggjast lægra?
Myndin efst er af ríkum fasista, sem nú er verið að sleikja upp, og myndin hér að neðan gæti verið af íslenskum þjóðernissinnum og Ólafi Ragnari í skrúðgöngu á 1. maí eftir nokkur ár, ef menn hugsa sig ekki tvisvar um.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2008 | 08:06
Það er greinilega engin hugarfarsbreyting í gangi
Meðan beðið er eftir "láninu", sem lofað hefur verið, svo Íslendingar geti haldið uppteknum hætti og neysluvenjum, er lítið annað að gera en að minnka við sig. Menn geta gengið í vinnuna eða tekið strætó.
Svo væri líka hægt að boykotta vörur frá Stóra Bretlandi og Hollandi; Hætta að rápa til London og Amsterdam. Margir eru vanir slíku og hafa hætt að kaupa allt frá Ísrael, vegna þess að stuðningurinn við hryðjuverkasamtök er talin til dyggða.
Boykot
Boykot
Bretar, Hollendingar og aðrar þjóðir sýna nú gamla nýlendutakta. Það er ekki við öðru að búast. Það gengur heldur ekki vel hjá þeim. Þetta eru gömul heimsveldi, þar sem peningar hafa ávallt skipt meiru máli en mannslíf. Við þekkjum sögu Breta. Saga Hollendinga er líka blóði drifin líkt og Breta og þetta eru meiri nasistaskinn en þeir segjast vera. Af hverju haldið þið að helmingur þeirra 10% gyðinga frá Hollandi sem lifðu helförina af hafi yfirgefið landið 5-10 árum eftir stríð?
Svo er annar lærdómur, sem hægt er að draga af þessu: Nú verður að fá nýja ríkisstjórn. Eyðsluklóin, okkar í utanríkisráðuneytinu, sem ætlaði sér að stjórna öryggi heimsins frá New York, sem ekki sá hvernig sirkustjaldið féll yfir hana og sem ekki getur á fljótan hátt bjargað öryggi þjóðarinnar með pólitískum aðferðum, ætti að fara að leita sér að starfi hjá Póstinum. Forsætisráðherrann ætti að fara á námskeið í persónulegu öryggi. Hann er eins og feitu og duglausu persónurnar í Latabæ. Af hverju þarf maðurinn alltaf að koma fram með einhvern við hliðina á sér?
Fyrrverandi auglýsingastjóri FL Group, einhver Kristján, sem síðast hefur starfað fyrir Latabæ, hefur reyndar þegar verið ráðinn í Stjórnarráðið. Betra væri að senda stjórnarráðið eins og það leggur sig í æfingar hjá þeim ofurhressa, og kannski eina sanna útrásarvíkingi sem við eigum, Magga Scheving. Hann hefur að minnsta kosti svitnað á því að græða milljónirnar sínar. Hinir hafa bara safnað snekkjum eða fitnað eins og þessi framsóknarvíkingur er gott dæmi um:
Gleðifrétt gærdagsins: Bjarni Harðarson er farinn, og er það vel. Vonandi fer Valgerður líka hið fyrsta. Skrílslæti Framsóknamanna í hinu háa Alþingi eru ekki á allt hitt bætandi.
Afgreiðslu umsóknar frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2008 | 18:43
Auschwitz-teikningar fundnar
Ekki held ég að til séu til margir Íslendingar sem eru í vafa um að Helförin hafi átt sér stað með gasklefum, brennsluofnum og hvaðeina. En þarna úti á meðal ykkar eru samt nokkrar sjúkar sálir, sem draga þetta allt í efa í einhverri forpúlaðri, trúarlegri andagift. Nokkrir þessa aðila eru einnig á fullu í samsæriskenningum um Twin Towers og öðru kukli. Slíku fólki er víst ekki við bjargandi.
Nú fá vantrúarmenn (nei, ég meina ekki þig Matti antikræst) eitthvað að hugsa og búa til samsæriskenningar um. Nú hafa nefnilega fundist nokkrar uppmælingar af elsta hluta búðanna í Auschwitz. Uppmælingar þessar voru teiknaðar á árunum 1941 - 1943 og sumar hverjar af föngum í búðunum eftir að viðbætur og ný hús höfðu verið byggð við gömlu herbúðirnar í Auschwitz. Sjá einnig hér.
Á sumar teikningarnar hefur hinn litli, ljóti Heinrich Himmler meira að segja skrifað nafn sitt og lagt blessun sína yfir verkið. En það sem er áhugaverðast er, er að hlutverk bygginganna er einnig ritað inn á teikningarnar. Þar kemur því greinilega fram hvaða bygging í búðunum hafi verið gasklefi (sjá mynd), hvar líkkjallarinn hafi verið, og allt auðvitað með þýskri nákvæmni.
Sérfræðingur hjá Bundesarchiv, Ríkisskjalasafni Þýskalands, hefur þegar lýst þessum uppmælingum sem mikilvægum fundi, svo ég býst við að ekki sé þarna um hrekk eða fölsun að ræða.
Í dag eru líka 70 ár frá því að Þjóðverjar gengu berserksgang gegn gyðingum á Kristalnóttinni. Þjóðverjar minnast margir þessa svarta bletts á sögu sinni með mikilli andargift og virðingu. Ekki er hægt að segja það um aðrar þjóðir. Litháar, sem margir hverjir stunduðu gyðingamorðin grimmt, hafa hingað til ekki fengist til að draga einn einasta litháískan nasistaböðul fyrir dómara. En nú vilja þeir hins vegar ólmir draga þrjú gamalmenni fyrir dóm. Þetta eru gyðingar, sem börðust með kommúnistum gegn nasistum og skósveinum þeirra. Litháar telja þremenningana vera stríðsglæpamenn.
Mér þykir alltaf gott að koma til Litháen og þar býr margt gott fólk. En þjóðin þarf að taka sig mikið á ef taka á hana alvarlega. Lágkúrulegt gyðingahatur er enn mjög almennt í landinu. Mótmælið áformum litháískra ráðamanna hér.
Helförin | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.11.2008 | 16:25
Á vígvelli siðmenningar MMVIII
Núna, rétt áður en míní-borgarastyrjöldin hefst á Íslandi þar sem réttlætið og sannleikurinn mun vinna, er Björn Bjarnason herforingi greinilega farinn að velta fyrir sér, hvort lýðræðið sé of dýrkeypt fyrir sig og vini sína.
Það er auðvitað af sem áður var, þegar Moggablaðamenn eru farnir að auglýsa múgæsingu í Iðnó og jafnvel verklegar æfingar með spælegg og tómatsalat frá Bónus á Austurvelli. Halla Gunnarsdóttir (Sigurðssonar)" væri líklega búin að missa vinnuna, hefði Mogginn enn verið málgagn Sjálfstæðisflokksins. Þessi Rósa Luxemborg Íslandskreppunnar sagðist á fundi í Iðnó að hún hefði aðeins krækt sér í örbylgjuofn í íslenska kaupæðinu. Hún á ekki einu sinni sjónvarp stúlkukindin. Er hún ekki Íslendingur?
General Björn er í öngum sínum og skrifar laugardaginn 8. nóvember:
Fjölmiðlaliðið, sem Björn Bjarnason er að tala um, er auðvitað gallagripir og fífl upp til hópa (Haarde 2008), dauðadrukknir kommar, menntaðir í Svíþjóð, ef þá nokkuð. Til hvers að hafa fjölmiðla? Þeir gera málið bara flókið með öllum þessum spurningu. Bloggið er enn verra. Þar er fólk með þráhyggju að básúna sig um það sem það veit ekkert um, þegar það er ekki í kaupæði.
Ég veit ekki um hvaða ábendingum vinir Björns eru að gauka að honum, en ég vona að það sé ekki það sem ég held að það sé. Annars held ég ekki að Björn eigi svo marga vini einmitt núna.
Ekki þótti mér þetta nú beysnir byltingamenn sem ég sá í sjónvarpsfréttum frá Iðnó, eða þeir sem spændu upp malbikið fyrir framan Alþingishúsið. Mér er spurn, væri ekki nær að búa til ommelettu og tómatsalat fyrir fátæka fólið, með skyrböku í eftirrétt, í stað þess að vera að sletta mat á friðað og hljóðlátt, gamalt hús?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2008 | 13:31
Way to go
Núna þegar hinn fíni, "aríski" kynstofn á Íslandi er búinn að sýna alheiminum að góðu genin hans Kára í deCode eru aðeins nothæf í ömurleg fjárglæfrashow, ölmusubetl og undirgefni, er gott til þess að vita að blökkumaðurinn Bragi O'bama fyllir Hvíta Húsið af dansandi gyðingum, negrum, Mexíkönum, Pólverjum og jafnvel vestur-Íslendingum með Rambógen. Þeirra tíma er kominn. Mér lýst bara vel á Obama. Ég er viss um að hann er ekki af íslenskum ættum.
Annars langaði mig bara að segja, að þýðingablaðamaður Moggans ættu kannski að hafa betri sögumenntun en sá sem sullað hefur þessari frétt saman. Irgun (Etzel), samtök þau sem faðir Rahm (Lofts) Emanuels var með í, stefndu ekki að stofnun Stór-Ísraels, heldur Eretz Israel, landsins Ísraels. Stór-Ísrael er eiginlega ekkert annað en eitthvað heilaæxli í fólki sem hatar Ísrael. Irgun-samtökin stefndu að stofnun Ísraelsríkis og börðust mest við breska lygalaupa og löðurmenni sem reyndu að koma í vef fyrir stofnun þess.
Það er nú líka of mikið sagt að tala um strangtrúaðan uppruna Rahms Emanuels. Strangtrúaðir gyðingar senda ekki syni sína í balletttíma.
Guðmundur bloggari Magnússon, fyrrverandi yfirmaður minn, leitaði um daginn að íslenskum Obama. Ég leita að íslenskum Rahm. Nú væri ég alveg til í veislu með einum slíkum, þar sem nöfn ýmissa karla yrðu þulin upp og hnífum stungið í borðið um um leið og sagt væri "Litla-Hraun, Litla-Hraun, Litla-Hraun" og jafnvel "dauður".
Myndin hér að ofan er ekki frá balletttímabili Rahms litla.
Rahm-bo" mun stýra Hvíta húsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 2
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 1352568
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007